Lögberg - 24.08.1950, Blaðsíða 7

Lögberg - 24.08.1950, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. ÁGÚST, 1950 7 Ársskýrsla skrifara íslenzka lúterska kirkjufélagsins 1950 Herra forseti! Háttvirta kirkjuþing! Kirkjufélag vort er nú orðið sextíu og fimm ára aldurs, og hefir bæði frá framförum og afturförum að segja á því langa aldursskeiði. Þegar ég nú er kallaður fram til að skýra frá framförum og afturförum þessa hins síðastliðna árs, get ég því miður ekki sagt söguna alveg rétta. Það sem því veldur nú, eins og svo oft áður, er miður góð innheimta á skýrslum frá söfnuðum. Sumir prestar og söfnuðir eru framúrskarandi skilvísir og góðir í þessu tilliti; aðrir draga það á langinn; en hinir láta ekki til sín heyra, jafnvel yfir margra ára tímabil. Slíkt má ekki viðgangast, og má kallast dauðamerki. Sumir vilja halda því fram, að skýrslur og tölur hafi litla þýðingu, og að hitt sé veigameira að söfnuðirnir séu andlega lifandi. En þá mætti spyrja, hve mikið líf væri nú í kirkja Jesú Krists ef hinir andlega innblásnu spámenn og postular, sem skrásettu rit Gamla og Nýja Testamentisins eins og andinn gaf þeim að mæla, hefðu ekki á sama tíma skrásett þær tölur og skýrslur sem þar eru inni geymdar. Hve stórir voru þeir hópar manna sem Jesús mettaði með dásamlegum kraftaverkum? Hve margir voru lærisveinarnir? Hve margir snerust til krist- innar trúar og gerðust lærisveinar hinn fyrsta Hvítasunnu- dag? Þannig mætti halda áfram að spyrja í hið óendanlega; og spurningum okkar er skilvíslega svarað, því spámenn- irnir og postulamir, sem voru boðberar Drottins boðskapar og fagnaðarerindis meðal mannanna, vanræktu ekki sínar skýrslur. Er ekki mál komið, að allir okkar prestar og söfnuðir reyni að taka þá miklu Guðs-menn sér til fyrir- myndar í þessu tilliti, ekki síður en í öðru efnum? Skýrslur hafa alls ekki komið frá fimmtán söfnuðum kirkjufélagsins. Þetta er afturför, þar sem í fyrra voru tíu söfnuðir sem ekki sendu skýrslur. Næsta kirkjuþing skulum við vona að skýrslur hafi komið í tæka tíð frá öllum söfnuð- um vorum. Þá væri skrifarinn ánægður og glaður, eins og við ættum öll að vera, sem erum trúnaðarmenn fagnaðar- erindisins. Samkvæmt þeim skýrslum, sem til skila hafa komið, er ástand þannig í kirkjufélaginu, að á safnaðaskrá eru 43 söfnuðir, eins og í fyrra. Þar við mun sennilega bætast á þessu kirkjuþingi einn söfnuður. Prestar kirkjufélagsins eru þrettán, tveimur færri en í fyrra. Séra Pétur Hjálmsson, sem vígður var árið 1903, og lengst af hefir dvalið og þjónað í Markerville, Alberta, andaðist þ. 30. janúar s.l., og var jarðaður í Tindastól grafreit þar í bygð þ. 2. febrúar. Hann var orðinn nálega 87 ára gamall, og búinn að vera blindur í nálega 20 ár, er hann var kallaður heim til síns eilífa hlutskiftis. Séra Arthur S. Hanson segir skilið við kirkjufélag vort, eftir þriggja ára þjónustu í Blaine prestakalli, til að taka að sér nýtt starf i prestakalli í Pennsylvania ríki. Átta prestar þjóna presta- köllum og trúboðssvæðum sem fasta prestar. Þetta er tveim prestum færra en í fyrra. Þó bætist væntanlega einn prestur i hópinn á þessu þingi, og verður talan þá níu fastaprestar. Tíu söfnuðir kirkjufélagsins eru án ákveðinnar fasta- þjónustu prests. Þrír söfnuðir, sem ekki hafa heimaprest, hafa samið um einhverja prestsþjónustu við presta í öðrum héruðum. Tala safnaðameðlima er: Fermdir 4,996; ófermdir 2,250; alls 7,216. Þessar tölur eru hærri en í fyrra. Tala altarisgesta er 136 meiri en í fyrra, og teljast nú að vera 1,907 manns. Virðist því andlegt ástand safnaða vorra, að jafnaði, þannig vera, að 38 af hverju hundraði fermdra meðlima ganga til altaris, „sér til trúarstyrkingar og eflingar í öllu góðu“. Þessi hlutföll þurfa að vera mikið hærri, því okkur veitir ekki af ríkulegri náð Guðs. Skírnir barna hafa verið 196, fullorðinna 11, alls 207. Fermingar 89. Útganga með lausnarbréfi 22 manns; inn- ganga með lausnarbréfi 37 manns. Innganga í söfnuði á annan hátt 62 manns; en útgengið úr söfnuðum þannig 148 manns. Dauðsföll á árinu voru 76 manns. Sunnudagsskólar eru 29, sama tala og í fyrra; kennarar og starfsfólk 186, þremur færri en í fyrra; nemendur í sunnudagaskólum 1,395, sem er 12 færri en í fyrra. Á skrá væntanlegra nemenda (Nursery Roll) eru nöfn 114 ungbarna. Innan kirkjufélagsins eru þrír karlaklúbbar, á móti einum í fyrra; og telja þeir samtals 84 meðlimi. Fimm félög fyrir karla og konur telja 74 meðlimi, svipað og í fyrra. Safnaða kvenfélög eru 35, en meðlimir þeirra alls 1,037 konur, eða 126 meðlimum hærri en í fyrra. Ungmennafélög eru 6, með 191 meðlim; en í fyrra voru talin 4 fleiri félög og 34 fleiri meðlimir. Kirkjubyggingar eru virtar á $195,810; og hygg ég að sú tala ætti að vera yfir $200,000 (þar sem mér er kunnugt um viðbót á kirkjuhúsum og nýja kirkjubyggingu einnig, sem ekki hafa komið fram í skýrslum safnaða). Presthús eru virt á $39,320; aðrar eignir, eins og gafreitir, hljófæri, bækur, byggingarsjóðir, o.s.frv., samtals $24,678. Safnaðar eignir samtals eru virtar á $259,808, sem er $16,078 meira en í fyrra. Á móti þessum eignum eru skuldir, sem nema $4,000; hafa þær minkað um $400 á árinu. Fé notað til safnaðaþarfa á árinu nam $49,455, og er það $427 lægri upphæð en í fyrra. Gjafir safnaða til starfs út á við voru alls $7,232, og hafa því hækkað um $1,007 á árinu. Starfsfé alls $56,687, sem er $584 meira en í fyrra. Þrjár prestsekkjur og einn prestur njóta eftirlauna. Á kirkjuþingi í Arborg, Man., 23. júní 1950. B. A. BJARNASON, Skrijari Kirkjufélagsins KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 50.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJöRN GUÐMUNDSSON SKÓLAVÖRÐUSTÍG 17 REYKJAVIK JÓN SIGURÐSSON, FORSETI (flutt 17. júní í Blaine og 18. júní í Vancouver.) Hve 17. júní er friðar fagur á fjöllum, í dölum, á sjó. Hve lífið er glatt, þegar lengstur dagur landið í skart sitt bjó. Nóttin er horfin, á hafsins öldum í heiðinu sólin skín, og glaðar þær klæðir með gúllnum fjöldum og gefur þeim blysin sín. Jón forseti kom þegar sumarsólin sveif yfir landi há, —Frá íslandi geislarnir út á pólinn með aflvaka lífsins ná. — Vœttir landsins á verði stóðu hjá vöggu Jóns nótt og dag, og einhuga sál hans orku hlóðu íslenzkri þjóð í hag. Úr hálofti söngur heiðlóunnar hljómaði í eyrum hans, brosandi, ferskir blómarunnar buðu honum sig í krans. Fegurð íslands um sólhvörf sendi sálu hans œðri mátt um frelsið þegar, hann fólki kendi fanstu’ hennar hjartaslátt. Brimgnýr hafsins og byljir vetrar báru honum karlmanns þor. Eldrúnir dyrfskan ótrauð letrar á öll hans förnu spor. Fagur sem grískur guð á stalli gnæfir hann enn í dag „Aldrei að víkja“ og verjast falli er vikingins árdags lag. Ókrýndur kongur íslands var hann um alla sína tíð, af atgerfis mönnum öðrum bar hann sem áttu um frelsið stríð. Stærstu hönkina úr höndum Dana hugspakur forðum dró, Alda kúgun varð orkuvana eitrinu ei lengur spjó. Um forsetan hugsa ég fyrstan manna er frelsis-þing eru háð, Formenn mannkyns á friðnum sanna fá engum tökum náð. Væri Jón meðal miljónanna myndi hann fremstur þar, og leggja veginn að velferð manna um vegleysur menningar. J. S. FRÁ KALDBAK / Skyrsla Betel nefndar Háttvirta kirkjuþing ! Yfirleitt má segja það, að starfræksla Betel elliheimilis nefir á umliðnu ári gengið vel, þrátt fyrir all-mikil veikindi er verið hafa. Úr ýmsum aðkallandi erfiðleikum hefir rætzt. Góður hugur ríkir á heimilinu yfirleitt, bæði meðal vist- fólks og starfsfólks; er það jafnan mikils um vert, ekki sízt á jafn stóru heimili eins og Betel er. Nefndin þakkar húsmóður heimilisins, Mrs. J. Augustu Tallman, fyrir ágætt starf á umliðnu ári, fyrir skilning á hlutverki því, er hún hefir með höndum, samfara um- hyggjusemi og árvekni 1 starfi hennar í allri merkingu. Sinn stóra hlut á hún í að skapa ánægju þá, sem á heimilinu er ríkjandi. Einnig þakkar nefndin öllu starfsfólki fyrir góða þjón- ustu, er það hefir af hendi leyst í*þarfir heimilisins á um- liðnu ári. Við burtför séra Skúla J. Sigurgeirsonar úr Gimli prestakalli á síðastliðnu hausti, fékk nefndin séra Sigurð Ólafsson, í Selkirk, til að inna af hendi bráðabirgða þjónustu í þarfir heimilisins; hefir hann, með leyfi safnaðarnefndar Selkirk safnaðar, frá byrjun október mánaðar, flutt þar messur vikulega, og átt samtal við vistfólkið, venjulegast á fimtudögum, og flutt þar 36 guðsþjónustur, haft 4 útfarir. Sunnudaginn, 4. júní, hafði hann þar fjölmenna altaris- göngu. Þar sem að aðal bygging heimilisins er nú orðin æði gömul, fer nauðsynin á viðgerð vaxandi ár frá ári. Á þessu ári hefir verið gert kostnaðarsamt og mikið verk við máln- ingu innanhúss. í ráði er að gera við þak eldri byggingar- innar á þessu sumri; er efni nú til þess fengið, og maður ráðinn til að vinna verkið. Nýr „power mower“ hefir verið keyptur til þess að létta undir starf umsjónarmanns við slátt á grasfletinum umhverfis heimilið. Sú er hugsjón nefndarinnar að gera alt er í hennar valdi stendur til að fegra staðinn og um- hverfið — eru þar blómabeðin og fögur tré — og gera það inndælan stað, eftir þÝí sem að auðið er. Á síðastliðnu hausti gaf Mr. Halldór Sigurdsson, í Winnipeg, heimilinu hátalara (amplifier); var það bæði góð og hagkvæm gjöf, er gerir rúmliggjandi fólki og þeim sem örðugt eiga með göngu upp og ofan stiga unnt að njóta alls þess er fer fram í samkomusal heimilisins. Er nefndin, og alt fólk á Betel, gefandanum innilega þakklátt fyrir gjöfina. Var gjöfin formlega viðtekin og helguð 8. júní, að gefanda og konu hans viðstöddum, ásamt meirihluta Betel nefndar, vistfólki og starfsfólki og mörgu fólki frá Selkirk; en þann dag hafði hið eldra kvenfélag Selkirk; safnaðar heimsótt Betel. „Electric water heater“ hefir verið keyptur á árinu, og er nú í notkun. Óvenjulega mikil veikindi hafa verið á heimilinu í síðustu tíð. Sem stendur, eru fimm í sjúkradeildinni, fjórir i smærri sjúkradeild, aðrir sjúklingar í sérherbergjum, alls tíu talsins. Alt þetta fólk þarf mikla og nákvæma aðhjúkr- un. Þess utan eru margir á heimilinu er þurfa stöðuga aðhjúkrun og umönnun, þótt ekki geti rúmliggjandi talist. Fer þeim stöðugt fjölgandi er þurfa æ meiri hjúkrunar við. Tvær ástæður liggja hér til: fyrst, hið óraskanlega lög- mál að „ellin leggur alla að velli“. Fólk, er notið hefir sæmilegrar heilsu, og lengi hefir þar dvalið, gerist háaldrað. Hin ástæðan er sú, að í síðustu tíð eru flestir, sem á heimilið koma ellihrumir og háaldraðir. Vill nefndin í fylstu alvöru leiða athygli almennings að því, að Betel er gamalmenna heimili en ekki sjúkrahús. Síðustu ár hefir ekkert áflæði verið á Gimli af völdum Winnipegvatns, og vatnið staðið lægra en oft endranær. Á þessu vori er mun hærra í v-tninu en í fyrra. Þar sem að flóðgarðurinn á Gimli er nú mjög í niðurníðslu, en hætta af völdum áflæðis er ofarlega í hugum manna, mun þetta vera hinn hentugasti tími til að endurnýja tilraunir til þess að flóðgarðurinn á Gimli verði endurbygður. Einn nefndarmanna, Mr. J. J. Swanson, hefir staðið í bréfa- skiftum við Ottawa stjórnina um þessi mál: haldið málinu vakandi og reynt til að fá nokkru til vegar komið, m.a. með því að skrifa um málið bæði fyrverandi og núverandi þingmönnum kjördæmisins. Telur nefndin nauðsynlegt að kirkjuþing gjöri yfirlýsingu um nauðsyn á framkvæmdum í þessu máli til stjórnarinnar í Ottawa. Dr. K. I. Johnson, er um allmörg ár hefir verið praktís- erandi læknir á Gimli, og læknir á Betel, flutti burt á þessu vori. Hann reyndist vistfólki á Betel ljúfur og hjálpsamur læknir, og er hans sárt saknað. Efnilegur ungur íslenzkur læknir, Dr. George Johnson, er nú seztur að á Gimli; væntum vér hins bezta af honum sem lækni heimilisins. Fjárhagsleg afstaða heimilisins hefir farið nokkuð batn- andi á árinu: sumpart vegna aukins ellistyrks, en ekki síður vegna framhaldandi kærleiksgjafa til heimilisins af hálfu almennings, er ber hag þess fyrir brjósti. Almennar gjafir á árinu námu $2,021.20; en sú upphæð er einungis $450 lægri en árið sem leið, en þá hafði sérstök fjársöfnun verið hafin meðal almennings. Dánargjafir á árinu voru þessar: Guðmundur Nordal (er dó á Betel á árinu), $183.42. Páll Nordal, einbúi 1 grend við Portage la Prairie (maður er vér höfum litlar upplýsing- ar getað um fengið), er sýndi góðvild sína til heimilisins, og kærleikshug til aldraðs íslenzks fólks, með því að arfleiða Betel að dánarbúi hans, er nam $1,241.96. Eftirstöðvar af dánarbúi O. W. ólafson, fyrverandi ráðsmanns á Betel, að upphæð $829.21, hefir nú verið greitt til heimilisins. Víglundur Davíðsson gaf fyrir all-löngu síðan til Betel lóð á Assiniboine Ave., er seld var fyrir nokkru. Lokagreiðsla á andvirði þess, að upphæð $200, kom í hendur féhirðis á þessu ári. Á þessu ári greiddi nefndin til Elliheimilisins á Moun- tain, N. Dak., lokaborgun, að upphæð $7,737.50. Áður hafði verið greitt til Elliheimilisins þar $7,262.50 (samkvæmt síðustu ársskýrslu); er þetta alls $15,000. Fé geymt „in trust“ fyrir vistfólk á Betel nemur $8,740.08, og birtist nú í fyrsta sinni í fjárhagsreikningi heimilisins, samkvæmt ráðleggingu yfirskoðunarmanns. Samanlagður reksturskostnaður heimilisins fyrir árið var $30,175.65, er nemur til jafnaðar nærri $42 á mánuði fyrir hvern einstakann vistmann. Bendir þetta til að hækka þurfi gjöld vistmanna, þeirra er gjaldþol hafa til þess, upp úr því sem að nú er. Til jafnaðar téðum reksturskostnaði, greiddi vistfólk $26,353.60, er gerði tekjuhalla er nemur $3,833.15. Innheimt í gjöfum $2,021.20; rentur og deilistofn (dividend) $741.68; tillag frá Manitoba fylki $50; samtals $2,812.88. Varð því að draga úr viðlagasjóði $1,009.27, til að jafna mismuninn. Samtímis voru lagðir inn í „Pioneer Memorial Fund" dánargjafir (þegar upptaldar) að upphæð $2,454.59. Að lokum fylgir hér með nöfn þeirra, er látist hafa á árinu, og 'einnig nöfn þeirra er fengið hafa inngöngu á heimilið; eru tölurnar bundnar við tímabilið frá 1. júní 1949 til 1. júní 1950. Nöfn látins vistfólks, frá 1. júní 1949 til 1. júní 1950: Erlendur Guðmundsson, Sigríður Friðriksson, Jón Helga- son, Finnbogi Thorkelsson, Sigurbjörg Thordarson, Ólafur Jónasson, Sumarliði Hjaltdal, Helga Gíslason, Sigurbjörg Jónsson, Pálína Eggertsson og Guðmundur Nordal. Látnir á árinu: 5 konur, 6 menn, samtals 11. Hólmfríður Johnson, er kom á heimilið á árinu, fór burt eftir fárra hiánaða dvöl. Inngöngu á heimilið frá 1. júní 1949 til 1. júní 1950 fengu: Kristrún Thorarinson, Jón Stefánsson, Hólmfríður Johnson, Daniel Pétursson, Thora Pétursson, Guðmundur Johnson, Matthildur Borgfjörð, Sigríður Landy Swain Swainson, Steinunn Valgarðsson, Kristjana Lovísa Johnson og Hólmfríður Gíslason. Inngöngu á árinu fengu því 8 konur, 4 menn. Á heim- ilinu nú eru 29 konur og 30 menn. —NEFNDIN Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business Traimnglmmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21 804 695 SARGENT AVT, WINNIPEG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.