Lögberg - 05.10.1950, Page 1

Lögberg - 05.10.1950, Page 1
PHONE 21 374 U«"*e i^Ot«4 c«« cTS Þa'u' f-o* st Gt A Completo Cleaninct Instiíuiior: PHONE 21 374 S°XÁ U^e p(i^eT a cteaT *íoB’ ’a Cleaning ínsiitution 63. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 5. OKTÓBER, 1950 NÚMER 40 Dr. J. B. Rollit aðstoðarmaður Dr. Gillsons forseta Manitoba- háskólans, og Dr. Alexander Jóhannesson rektor háskóla íslands og víðkunnur fræðimaður. Heimsókn þjóðkunns fræði- manns, er seint mun gleymast Vinsamleg tilmæli Km hirm fyrirhugaða kenslustól í íslenzku og íslenzk- um fræðum við Manitobaháskólann, hefir verið næsta hljóii upp á síðkasíið, að minsta kosti hvað íslenzku vikublöðin áhrærir; þó væri það fjarri sanni, að halda því fram, að unnendur málsins, sem eru margir, hafi sofið á verðinum, því mikið hefir unnist á, og skal slíkt að makleikum melið. Við komu dr. Alexanders Jóhannessonar, rektcrs við háskóla íslands, hefir aí skiljanlegum ástæðum vaknað nýr áhugi fyrir framgangi málsins því svo fagurlega útlistaði hann tilgang þess og menningarlega nauðsyn; hann kom, sá og sigraði. Nú er svo komið, að forustumenn Maniiobaháskólans hafa lýst yfir því, að eins fljótí og því verði við komið, eftir að 150 þúsundir dollara hafi safnast í sjóðinn, verði prófes- sorsembælti komið á fót, íslenzkum menningarerfðum til haftís og trausis í þessu landi, en með því hefir þá fegursti draumur Vestur-íslendinga rætzt. Enn vaniar sjö þúsund dollara upp á, að áminstri lág- marksupphæð verði náð, en slíkt má ekki, úr þessu, dragast á langinn; það eru þess vegna vinsamleg tiimæli f jársöfnun- arnefndarinnar, að nú verði brugðist skjótt við, þannig að áminst uppjhæð verði komin í hendur forsiöðunefndarinnar þann 12. yfirsíandandi mánaðar, en þá verða liðin 75 ár frá þeim tíma, er hinir fyrstu, íslenzku frumherjar siigu á land í þessari borg og festu hér rætur; verður þessa söguríka at- burðar minst með fljölbreyiiri skemlisamkomu í Fyrstu lútersku kirkju fyrir atbeina Þjóðræknisfélagsins. Mikið og ógleymanlegi ánægjuefni yrði forstöðuneínd kenslustólsmálsins það, ef hún gæti skýrt frá því á áminstri minningarsamkomu um landnámið í Winnipeg, að þá hefði lágmarki f jársöfnunarinnar verið náð. Verum samtaka um að varðveita helgidóma hinnar is- lenzku þjóðmenningar, lunguna og bókmentirnar. Fjárhæðirnar sendist annaðhvort til formanns fjár- söfnunarnefndar, DR. P. H. T. THORLAKSON, Winnipeg Clinic, Vaughan and St. Mary's, eða skrifara, MARGRÉTAR PÉTURSSON, 45 Home Street, Winnipeg. Það mun jafnan til meirihátt- ar viðburða teljast í menningar- sögu okkar Vestur-Islendinga, er rektor háskóla íslands, dr. Alexander Jóhannesson nýver- ið sótti okkur heim; og þó við- dvöl hans yrði drjúgum skemmri, en flestir myndu hafa kosið, varð hún þó engu að síð- ur lærdómsrík og líkleg til fram búðaráhrifa; það er ekki ein- asta að dr. Alexander sé djúp- skygn fræðimaður, heldur er hann og valmenni, er ann ís- lenzkri tungu og þjóðmenningu hugástum, enda báru ræður hans þess fagran vott, að á bak við orðin stæði persónuleiki sannmentaðs manns, er fæddur væri til forustu um fræðslustörf; að hann væri mikill og hjarta- hlýr kennari, blandaðist víst fá- um hugur um er á hann hlýddu. Dr. Alexander dvaldi aðeins hér í borg í liðugan vikutíma, og var eins og vænta mátti, önn- um kafinn dag út og dag inn; hann átti margar og ítarlegar viðræður við forustumenn Mani- tobaháskólans varaðandi stofn- un hins væntanlega kenslustóls í íslenzku og íslenzkum fræðum við þá miklu og vaxandi menta- stofnun, bæði hvað viðvék skipu lagningu kenslunnar og vali pró- fessors; má víst telja, að viðræð- urnar hafi í öllum megin atrið- um borið tilætlaðan og æskileg- an árangur. Manitobaháskólinn var heppinn í vali, að eiga þess kost, að ráð- faera sig við jafn lærðan og vitr- an mann sem dr. Alexander er í tilefni af skipulagningu hinnar fyrirhuguðu, íslenzku kenslu- deildar, og þá var; það vitaskuld ekkert smáræðis fagnaðarefni fyrir þá íslendinga hér í álfu, er unnið hafa að framgangi þessa niikilvæga menningarmáls. — Dr. Alexander flutti snjalla og áhrifamikla ræðu fyrir fjöl- nienni úr nemendahópi Mani- tobaháskólans um efni bókar sinnar Origin of Language — uppruni mannlegs máls, er vakti feikna athygli; seinna efndu for- ustumenn háskólans til veglegs heiðurssamsætis við hann í sal- arkynnum Fort Garry hótelsins, er nokkrum íslendingum var boðið til, og flutti hann þar einnig stórfróðlega ræðu. Á föstudagskvöldið var efndi ^jóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi til veizlu í virðing- arskyni við hinn* ágæta og kær- ^omna gest, er fór um alt hið ezta fram. Forseti Þjóðræknis- félagsins, séra Philip M. Péturs- son, hafði veizlustjórn með hönd um. Dr. Rúnólfur Marteinsson flutti borðbæn. Dr. P. H. T. Thorlakson, formaður fjársöfn- unar- og kenslustólsnefndar, skýrði viðhorf málsins og þakk- aði meðnefndarmönnum sínum ágæta samvinnu. Einar P. Jóns- son kynti heiðursgestinn og mintist með nokkrum orðum hans margþætta menningar- starfs. Frú Elma Gíslason skemti með yndislegum söng, en við hljóðfærið var Gunnar Erlends- son; þá flutti heiðursgesturinn innblásna og stórhrífandi ræðu um höfuðkosti íslenzkrar menn- ngar, og fangvídd íslenzkrar tungu; dáði hanp mjög helgi ljóðsins og hið sérstæða form þess; ræðan var ekki löng, en þeim mun fegurri og mergjaðri; að henni lokinni, þakkaði W. J. Lindal dómari heiðursgestinum fyrir komuna, fræðsluna og þann þjóðernislega styrk, er ræða hans hefði veitt. Ánægjulegt var það, að Ás- mundur P. Jóhannsson, sá er grundvöllinn lagði að fram- ^ kvæmd kenslustólshugmyndar- innar, skyldi vera viðstaddur þennan mannfagnað ásamt frú sinni, en Ásmundur hefir, eins og vitað er, átt við langvarandi vanheilsu að stríða;. en þegar ís- lenzk málefni eiga í hlut, halda honum engin bönd. Grettir L. Jóhannsson ræðis- maður og frú, höfðu dagverð^r- boð á Fort Garry hótelinu til’. heiðurs við dr. Alexander; eru ávarpsorð Grettis birt á öðrum stað hér í blaðinu; ríkti þar andi hinnar sönnu gestrisni þar, sem allir voru eins og heima hjá sér. Dr. Alexander lýsti í fáum, en fögrum dráttum, helztu verk- efnum hins væntanlega prófes- sors í íslenzku við Manitobahá- skólann eins og hann hafði hugs- að sér þau, og laut eitt atriðið að útgáfn safnrits um íslenzk- ar bókmentir hliðstætt við Is- landica, sem dr. Halldór Her- mannsson hefir áratugum sam- an safnað til og gefið út; að lok- um mælti Einar P. Jónsson nokkur orð, þakkaði heiðurs- gestinum komuna og árnaði honum góðs brautargengis. Nýting uppskeru tefst Vegna óhagstæðs tíðarfars, hefir nýting uppskerunnar vest- anlands tafist til muna og korn- tegundir rýrnað að verðgildi; þó er nú staðhæft, að No. 4 Nort- hern hveiti verði hæft til mölun- ar; tegundir þar fyrir neðan verða aðeins notaðar til skepnu- fóðurs. ÁVARP G. L. Jóhannssonar ræðismanns til dr. Alexanders Jóhannes- sonar rektors í hádegisboði, er ræðismannshjónin héldu honum og álitlegum hópi annara vinu í Fort Garry hóteli á sunnudaginn var. Dr. Alexander Jóhannesson rektor háskóla íslands, Kæri herra! MÉR ÞYKIR persónulega mikið fyrir því, að hafa ekki átt þess kost, að eyða með þér nokkrum stundum, kynnast þér nánar og ræða eitthvað við þig um áhugamál okkar Vestur- íslendinga, svo sem um stofnun kenslustólsins í íslenzkum fræð- pm við Manitoba háskólann, og með hvaða hætti bezt mætti styrkja bræðraböndin milli ís- lendinga austan hafs og vestan; ég fann til þess, og slíkt hið sama munu fleiri hafa gert er hlýddu á þína sfórfróðlegu og afar snjöllu ræðu á föstudags- kveldið, hve mikil styrkur okkur er af slíkri fræðslu og hve á- þreifanlega hún treystir þá menningarlegu brú, er tengja skal saman stofninn begja meg- in hins breiða hafs. Við finnum til þess hve mikð lán það var okkur, að þú skyldir verða fyrir valinu, sem sá mað- urinn, er sakir sérþekkingar þinnar og reynslu, mundi verða okkur hollráðastur, varðandi val prófessors í hið fyrirhugaða em- bætti við háskóla þessa fylkis, ásamt leiðbeiningum þínum við skipulagningu hinnar fyrirhug- uðu kensludeildar; okkur er það ljóst hve mikið veltur á, að und- irstaðan rétt sé fundin. Mikið fagnaðarefni hefði það orðið okkur og mikill þjóðrækn- islegur gróði, ef ástæður hefðu leyft að hið dásamlega erindi þitt um íslenzka málsmenningu og íslenzka ljóðagerð hefði bor- ist af vörum þínum til allra hinna íslenzku bygða hér í álfu, þó víst sé að gróðinn af slíku hefði orðið einhilða, okkur Vestur-lslendingum einum í vil; en ég er þess fullviss að árangur- inn af komu þinni verði mikill- vægur og varanlegur þó dvölin yrði eigi lengri en raun varð á. Þú hefur með löngu, göfugu og áhrifamiklu æfistarfi, opnað aygu okkar flestum mönnum fremur fyrir ódauðlegum vprð- mætum vors ástkæra móður- máls, sem við hér vestra, fáir og dreifðir, viljum standa vörð um í lengstu lög; það er holt fynr okkur og örvandi, að fá í heim- sókn slíka menn sem þig, sem lýsa frá sér sem brennandi vitar. Eg er sannfærður um, að þú, þeg- ar heim kemur, hugsar hlýtt til okkar, þó viðdvölin væri eigi Hannes Kjariansson ræðismaður Flytur ræðu hér í borg Eins og vikið var að í síðasta blaði, er ræðismaður Islands í New York, væntanlegur hingað til borgarinnar á næstunni, flyt- ur ræðu og skilar kveðju frá ríkisstjórn Islands á samkomu, ■sem haldin verður í Fyrstu lút- ersku kirkju þann 12. þ. m. í minningu um 75 ára landnám íslendinga í Winnipeg. Hannes ræðismaður hefir eigi fyr hing- að komið, hann er hæfileika- maður mikill og höfðingi í lund; í för með honum verður hin glæsi lega kona hans, Elín Jónasdóttir prests Sigurðssonar, en hún er vinmörg hér um slóðir. Lögberg fagnar komu þessara góðu gesta og býður þá velkomna, og treyst ir því jafnframt, að heimsóknin verði þeim til ánægju. Skemtiskrá er auglýst á öðr- um stað hér í blaðinu og er að- gangur að samkomunni ókeypis. löng og sendir okkur orð, er styrkja okkur að mun í barátt- unni fyrir sameiginlegum erfð- um, tungunni og bókmentunum. Konan mín og ég undirbjugg- um þennan fámenna dagverð í þeim tilgangi að verða aðnjót- andi, þó eigi væri nema svo að segja í nokkur augnablik, nær- veru þinnar og fræðslu; því mið- ur gat faðir minn ekki verið hér í dag, en hann er hér í anda, þakkar þér komuna og drengi- legt æfistarf þitt í þágu íslenzkr- ar menningar og þjóðarinnar norður í Atlandshafi, sem við svo einlæglega unnum. Þeir gestir aðrir, sem hér eru viðstaddir hafa allir lagt á sig mikið og óeigingjarnt starf í þágu háskólamálsins okkar; þetta starf er unnið í fullri ein- ingu með það takmark eitt framundan, að reisa íslenzkri tungu og bókmenningu það virki, er standi af sér storma komandi alda. Svo þökkum við hjónin þér innilega fyrir komuna og árnum þér heillar heimkomu til sifja- liðs og ættlands. Guð blessi þig æfinlega. Suður-Kórea frelsuð Á sunnudaginn lýsti General MacArthur því yfir, að Suður- Kórea hefði verið frelsuð úr ránsklóm kommúnista, að hin löglega stjórn landsins væri kom in aftur til hinnar fornu höfuð- borgar, Seoul, og að síðustu leyfar Norður-Kóreu hersins hefðu verið hraktar inn yfir sín eigin landamæri; skoraði hann jafnframt í útvarpsræðu á stjórn Norður-Kóreu, að gefast skil- yrðislaust upp, en við því hefir svar enn eigi fengist. Hersveitir Suður-Kóreu lýðveldisins eru komnar yfir fimmtíu mílur inn í norðurlandið, og tjást eigi munu linna sókn fyrri en kom- ið verða að landamærum Man- sjúríu. Brezk stjórnarvöld eru því meðmælt, að öll Kórea verði sameinuð í eitt ríki undir eftir- liti sameinuðu þjóðanna, og er svo að sjá, sem mikill fjöldi annara þjóða líti sömu augum á málið. Mr. Magnús Pétursson frá Gladstone, Man., hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. Fjölsótt’ guðsþjónusta Hin sameiginlega guðsþjón- usta í Fyrstu lútersku kirkju síaðstliðinn sunnudag var afar fjölmenn. Báðir söngflokkar kirkjunnar tóku þátt í söngnum undir stjórn Mrs. E. ísfeld. Mrs. Pearl Johnson söng, „Come unto him“ eftir Handel. Forseti safnaðarins, Mr. Vic- tor Jónasson flutti vingjarnlegt ávarp. Dr. Alexander Jóhannes- syni var boðið að ávarpa söfn- uðinn og flutti hann snjalt er- indi um íslenzkar erfiðr og skil- aði kveðjum frá Hr. Sigurgeir Sigurðssyni, biskupi yfir Islandi; séra Ásmundi Guðmundssyni, prófessor, o. fl. Þá steig sóknar- presturinn, séra Valdimar J. Eylands í stólinn og flutti fagra og djúphugsaða prédikun. Að lokinni guðsþjónustu sýndi cand. theol. Helgi Tryggvason frá Reykjavík undurfagrar lit- myndir frá íslandi og útskýrði þær jafnframt. Höfðu allir hina mestu ánægju af þessu. Árni G. Eggertson, K.C. þakkaði Mr. Tryggvason fyrir myndasýning- una með hlýjum orðum. Að því búnu safnaðist fólk saman í fundarsal kirkjunnar, þáði rausnarlegar veitingar og skemti sér við samtal. Forsætisróðherra í bílslysi Rétt eftir að stjórnarskipu- lagsfundinum í Quebec lauk í fyrri viku, lenti hinn íslenzki forsætisráðherra British Colum- bia-fylkis, Hon. Byron Johnson í bílslysi á þjóðveginum milli Quebec og Montreal ásamt frú sinni; að því er fyrstu fregnir af bílaárekstrinum skýrðu frá, var svo að heyra sem Mr. John- son og frú hefðu sætt alvarleg- um meiðslum; voru þau flutt í sjúkrahúsið í Quebecborg; en að því er síðast fréttist, voru meiðsli þeirra minni en hugað var, og er nú víst talið, að þau leggi af stað heimleiðis innan fárra daga. Reklor Háskóla íslands heimsæklr ríkisháskólann í Norður-Dakoia. — Frá vinstri til hægri: Dr. Alexander Jóhannesson, rektor Háskóla íslands, dr. John C. West, forseti ríkisháskólans í Norður-Dakota, og dr. Richard Beck, vararæðis- maður Islands í Norður-Dakota.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.