Lögberg - 05.10.1950, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 5. OKTÓBER, 1950
3
Norrænt bindindisþing í Helsingfors
SAMTÖK bindindismanna á
Norðurlöndum eru nú orðin 55
ára. Öðru hvoru hafa verið hald-
in bindindisþing Norðurlanda. í
öndverðum ágústmánuði var 18.
norræna bindindisþingið haldið
í Helsingfors í Finnlandi. Það
er í þriðja sinn, sem það er hald-
ið þar. Hin hafa verið haldin í
Stokkhólmi, Osló og Kaupmanna
höfn og eitt í Dorpat í Eistlandi
(1926). Árið 1947 var þingið
haldið í Stokkhólmi. Buðu þá
Islendingar þinginu heim til ís-
lands árið 1950, og var því boði
tekið, en með þeim fyrirvara,
ef fært þætti fjárhagslega að ráð
ast í það. Finnar buðu þinginu
til Helsingfors, ef ekki reyndist
mögulegt að halda það á íslandi.
Niðurstaðan varð sú, að Finnar
treystu sér ekki til að sækja oss
heim og Danir ekki heldur, svo
þingið var þá ákveðið í Helsing-
fors, en á þessu ári halda Finnar
hátíðlegt 400 ára afmæli höfuð-
borgar sinnar. — Það varð úr að
einn fulltrúi mætti héðan á
þessu þingi fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar og bindindishreyf-
ingarinnar, en þrír voru sendir
á Stokkhólmsþingið 1947. — Er
þar skemmst frá að segja, að
viðtökur Finna voru hinar alúð-
legustu og rausnarlegustu. Fór
þar saman höfðingsskapur og
hjartahlýja. Þingið var sett í
hátíðasal háskólans 3. ágúst, að
viðstöddu fjölmenni. Flutti
kennslumálaráðherra Finna, há-
tíðarræðuna og fulltrúar allra
Norðurlanda fluttu stutt ávörp.
Söngur var mikill og alls konar
hljómlist, því að Finnar eru
miklir fónlistarmenn.
Þingið var haldið í stœrsta
kennslusal háskólans. Þátttak-
endur voru nokkuð á fimmta
hundrað, 20 frá Danmörku, milli
20 og 30 frá Noregi, yfir 150 frá
Svíþjóð og á þriðja hundrað frá
Finnlandi. — Tveir voru frá ís-
landi. Var annar kona, sem
mætti jafnframt á fundi nor-
rænna bindindiskvenna í Hels-
ingsfors (Sigríður Hjartar frá
ísafirði). — Á þinginu voru hald
in milli 20 og 30 erindi um bind-
indis- og áfengismál. Af Islands
hálfu voru flutt 3 erindi: Um
bindindishreyfinguna og skemmt
analíf æskulýðsins, um afstöðu
*skunnar til bindindishreyfing-
arinnar og um starfsemi bæja-
og sveitafélaga á vettvangi
bindindismála.
Mikla athygli vakti erindi, er
norskur rektor, Olav Sundet,
hélt um rannsóknir um afstöðu
æskulýðsins til áfengismálanna.
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar
JOHN J. ARKLIE
Optometrigt and Optician
(Eyes Examined)
Phone 95 650
MITCHELL COPP LTD.
PORTAGE AT HARGRAVE
Hefir hann spurst fyrir um af-
stöðu þessa meðal fjölda æsku-
manna og kvenna, og skýrði enn
fremur frá athugunum, er gerð-
ar hafa verið á þessu sviði í
Bandaríkjunum. — Þá voru
flutt merkileg og næsta eftir-
tektarv^rð erindi um „Antabus“
og reynslu af ýmiskonar lækn-
ingum á drykkjusýki. — Voru
það merkir læknar, þrír frá
Finnlandi, Danmörku og Sví-
þjóð, sem fluttu þau. — Allmikið
var flutt af erindum um æsku-
lýðinn og áfengið, um meðferð
drykkjusjúklinga, um baráttuna
gegn áfengisnautn vagnstjóra
m. m. Erindi þessi verða öll
prentuð í þingtíðindum, sem
berast hingað, er líður á vetur-
inn, og vildi ég þá biðja Mbl. að
flytja nokkra kafla úr merk-
ustu erindunum.
Rúmið leyfir ekki að segja nán
ar frá þessu þingi, en samþykkt
var í einu hljóði að halda nœsta
norrænt bindindisþing í Reykja-
vík sumarið 1953. — Þeir spurðu
mig, hvort boð okkar stæði enn,
og kvað ég svo vera. Sagðist ég
enga afstöðu taka til þess, hvar
þingið yrði haldið næst, en ef
þeir óskuðu að koma til íslands
væru þeir velkomnir.
Auk aðalþingsins voru haldn-
ir fundir í 11 félagasamböndum
á sama tíma, svo sem í Góð-
templarareglunni, a 1 m e n n a
finnska bindindissambandinu,
sænska bindindissambandinu í
Finnlandi, norrænu bindindis-
sambandi stúdenta, kennara, bíl
stjóra o. s. frv. Mætti ég á ýms-
um þessara funda og flutti þar
ávörp og stutt erindi.
Veizlur voru margar haldnar
fyrir okkur aðkomufulltrúa, nor-
rænt kveld o. s. frv.
Ekki get ég svo skilist við
þetta mál, að ég ekki minnist
nokkrum orðum aðalkonsúls
vors í Finnlandi, hr. Erik
Juranto, og frúar hans. Gest-
risni þeirra við íslandinga og
frábæra fyrirgreiðslu vil ég
róma sem allir aðrir landar, er
gist hafa Helsinki. Mér hefir alls
staðar verið vel tekið af fulltrú-
um Islands erlendis, þar sem ég
hefi komið, en viðtökur Jur-
onto-hjónanna og innileg gest-
risni ber af öllu, að öðrum ó-
löstuðum. Má með sanni segja,
að íslendingar eigi hauk í horrii,
þar sem þau heiðurshjón eru.
Mér gatst ágætlega að Finn-
um. Þjóðin er mótuð af alvöru
lífsins. Karlmennska hennar,
skyldurækni, dugnaður og sið-
ferðilegt þrek má vera öðrum
til fyrirmyndar. Hygg ég skýr-
inguna á þessu vera þá, að Finn-
ar eru af mörgum taldir vera
trúræknasta þjóðin á Norður-
löndum. Ég minnist verunnar í
hinni fögru höfuðborg Finnanna
með þökk og aðdáun.
Formaður bindindisþingsins,
dr. theol. Rafael Holmström, cg
framkvæmdastjóri þess, Vihtori
Karpio, tóku oss gestunum með
einstakri umhyggju og alúðar
gestrisni, svo og allir þeir sam-
herjar og aðrir, sem vér áttum
viðskipti við. — Vinátta þeirra
í garð íslendinga sýndi sig með
mörgu móti og verður okkur
ógleymanleg.
Brynleifur Tobíasson
Mbl. 3. sept.
Fréttir fré Betel
Síðan seinast var skrifað héð-
an, hafa engar stórbreytingar
orðið til fréttnæmis. — Daglegt
líf gengur hér, meðal okkar
gömlu barnanna, sinn vanalega,
hægfara gang, undir góðri stjórn
og alúðlegri umönnun á allan
hátt. —
Helztu breytingar hins dag-
lega er það, að við fáum annað-
slagið heimsóknir félaga og ein-
staklinga, sem ætíð hafa með-
ferðis hlýja samúð og vináttu,
til vistmanna og heimilis. Fyrst
ég hefi tekið pennan, skal hér
talið hið helzta af því tagi.
Eins og árlega er vant, ganga
kvenfélögin hér og í nágrenni
þar á undan.
íslenzku konurnar hafa orð á
sér fyrir trygglyndi og vinsemd
til kunningja og þeirra, sem eitt-
hvað standa höllum fæti í bar-
áttu tilverunnar, og þetta heimili
og íbúar þess, hafa frá stofnun
þess, virst vera og eru kjöltu-
börn kvenfélaganna. —
„Framsókn“, kvenfélag hins
Lúterska safnaðar hér á Gimli,
hefir þann fasta sið, að heim-
sækja okkur á afmælisdegi heim-
ilisins 1. marz ár hvert, en af
sérstökum ástæðum var í ár
þeirri heimsókn frestað til 2.
s. m. —
Kvenfélagið „Minerva“, hér úr
bændabyggðinni vestan við, hef-
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
ihiperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TraimngImmediately!
For Scholarships Consult
the columbia press limited
pHONE 21 804
695 SARGENT AVT. WINNIPEG
ir tekið sumardaginn fyrsta, fyr-
ir sinn heimsóknardag, og komu
þær konur einnig til okkar þann
dag í ár.
Kvenfélag hins Lúterska safn-
aðar í Selkirk, hefir engan á-
kveðinn dag til heimsóknar, en
þær góðu konur komu hingað til
okkar hinn 8. júní.
Öll höfðu þessi félög meðferð-
is, eins og þau eru vön, rausnar-
legar veitingar fyrir vistmenn
og þjónustufólk, og frá öllum
var flutt stutt en hlýtt ávarp
til heimilis og vistmanna og öll
stofnuðu þau einnig til skemti-
stundar með söng og samræð-
um, svo segja má, að við gömlu
börnin sátum þar í góðum fagn-
aði, andlega og efnalega. —
Kvenfélagið „Mínerva“ hefir
tekið upp þann sið, að færa
hverjum einstökum vistmanni
dálitla persónulega gjöf; ef til
vill í minningu um sumargjafa
siðinn heima á okkar kæra föð-
urlandi, og er slíkt vel til fundið
og vekur stóra hrifning og gleði.
Kvenfélag Sélkirksafnaðar
færði heimilinu dálitla peninga-
gjöf, og Framsókn sýndi einnig
heimili og vistfólki velvild sína
og samúð.
— Ég vil nota þetta tækifæri
til þess, að færa öllum konum
þessara félaga innilega þökk frá
okkur öllum á Betel og hjartan-
lega ósk okkar, að hamingjan
gefi þeim heilsu, heiður og á-
nægju um alla ókomna ævidaga!
— Hér hefir á síðastliðnu
sumri verið mikið um gesti, er
komu til funda við ættmenn og
einstaklinga, sem hér dvelja.
Um það leyti sem landnámshá-
tíð Gimli-byggðar var haldin,
kom hingað fjöldi ættmenna og
aðstandenda þeirra, er hér
dvelja. Var sumt af því fólki
langt að komið, og gat sagt margt
til fróðleiks og skemmtunar
þeim er til þekktu. —
En þriggja manna, sem hér
hafa heimsótt heimilið og gömlu
landana, verð ég að minnast sér-
staklega. —
Rektor Pálmi Hannesson frá
Reykjavík, sem var sendifull-
trúi íslenzku stjórnarinnar á 75
ára afmælishátíðinni, kom hér
á heimilið að kvöldi hins 6. á-
gúst. Sýndi hann hreyfimyndir
af síðasta Heklugosi og skýrði
þær og áhrif og afleiðingar á
mjög skilríkan hátt. Áhrif þeirr-
ar stundar munu mörgum seint
úr minni líða. —
Mánudaginn 25. sept. heim-
sótti okkur Páll V. G. Kolka,
læknir frá Blönduósi, sem nú
er á ferðalagi hér vestra, en
hann var mjög tímabundinn og
dvaldist stutt. Sérstaklega átti
hann tal við nokkra af Hún-
vetnskum ættum, sem hér
dvelja, því hann er þaðan upp-
runninn, og einriig flutti hann
stutt en hlýtt erindi til vist-
fólks og heimilis. Og degi síðar
(26. s. m.) kom hingað Dr. Alex-
ander Jóhannesson, formaður
Háskóla Islands. Lýsti hann, í
stuttu mál, ástæðum lands cg
þjóðar í atvinnumálum og póli-
tík. Hann hafði einnig nauman
tíma, en þó náðu allmargir sam-
tali við hann. Maðurinn er stór-
fróður og þekkir mjög vel fólk
um alt land, svo þær stuttu
stundir urðu mörgum okkar til
ánægju.
Hafi þeir allir heiður og þökk
fyrir komuna! —
Heilsufar á heimilinu má
segja að sé í góðu lagi, eftir því,
sem ástæður eru til. Engin veik-
indi sérstök, en allmargt af okk-
ur, karlar og konur, er nú vegna
aldurs, eðlilega orðin hjálpar-
þurfar og þarfnast aðstoðar dag
sem nótt. Reynir það á þolrif og
hugulsemi hjúkrunarkvenna og
húsmóður, en slíkt er af alúð í
té látið, og aðhlynning öll og um-
hyggja af hendi leyst með af-
brigðum vel.
Eins og búast má við flytja
persónur héðan, annaðslagið,
yfir „móðuna miklu“„ og aðrir
nýir koma í staðinn. Nöfn þeirra
er dáið hafa, þýðir ekki að telja
hér. Blöðin í Winnipeg köma
altaf með þær fregnir. —
Enn hefir ekki tekist að fá
fastan prest til þjónustu hér á
Gimli, en fyrir hinum andlegu
málum á heimilinu Betel hefir
verið séð á þann hátt, að séra
Sigurður Ólafsson, þjónandi
prestur í Selkirk, kemur á heim-
ilið í hverri viku (vanalega á
fimtudag) og hefir hér guðs-
þjónustu með heimilisfólki. Það
er til stórrar ánægju fyrir þær
persónur, er þeim málum fylgja
fastast, og fræðslu og styrktar
fyrir hina, er tæpar standa. Sig-
urður Ólafsson er þannig inn-
rættur, að ætíð er unun og
fræðsla að mæta honum. „Það
er merkur, mætur, heill maður
bak við — prestinn“. —
Efnalegar ástæður heimilisins
munu, nú sem stendur, vera í
betra lagi, en var fyrir tíma síð-
an. Gætir þar að sumu leyti af-
leiðinga hækkaðs ellistyrks og
einnig hlýhuga gjöfum einstakl-
inga. Haldist sú velvild óbrotin
mun öllu vel borgið. íslenzka
þjóðarbrotið hefir sýnt, að það
ann þessum hvíldar- og hjálpar-
stofnunum, sem reistar hafa
verið og eru að rísa. Megi sá hlý-
hugur og velvild haldast! —
Nokkru fé hefir á liðnu sumri
verið varið til umbóta heimilis-
ins. Sérstaklega varð að gjöra
allmikið við þak elzta hluta
byggingarinnar, en því er nú að
mestu lokið og í góðu lagi fyrir
komandi vetur. Breyting var
gjörð á hitun vatns til þvotta og
leiðslu um bygginguna; keypt og
sett upp rafmagnshitunartæki í
stað þess, að kynda sérstakan
ofn til þess. Þótt rafkraftur kosti
nokkuð, mun með þessu móti
sparast og fyrirhöfn verða
minni. Enn eru þó dálitlir erfið-
leikar í þessu sambandi. Raftæk-
in vilja, af efnum , „harðvatni“,
einangrast og þurfa hreinsunar
við mánaðarlega, en líkur eru nú
til, að hægt sé að finna þar
breytingaraðferð til bóta, og
mun það lagfært svo fljótt sem
unnt er. —
— Máske meira við tækifæri.
Vistmaður
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PRODUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá aC rjúka út með reyknum — Skrifið símið til KELLY SVEINSSON 625 Wall Street, Winnipeo Just north of Portaoe Ave. Símar: 33-744 — 34-431 PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisíers - Solicilors Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Cliambers WinnipeR, Man. Phone 923 561
S O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORFORATE SEAI.S CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg Phone 924 624 JOHN A. HILLSMAN. M.D.. Ch. M. 332 Medical Arts. Bldg. Oí FICE 929 349 Home 403 288 i
[ Office Ph, 925 668 Res, 4C4 319 NORMAN S. BERGVAN, B.A., LL.B. Barrisler, Solieitor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA Phone 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6 — 652 HOME ST, Vlðtalsttmi *—5 efttr hádegl
fÍEIBST^l! ‘tenth st. BRANOON 447 Portage Ave, Ph, 926 886 DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Offloe nrs. 2.30—6 p.m. Phones: Offlce 26 — Rea. 280
. Phone 21 101 ESTIMATES FREE J. M. INGIMUNDSON Asphalt Rnofs and Insulated &idine: — Repalrs Country Orders Attended To 632 Simcoe Sl. Winmpeg, Man Offlce Phone Ree Phone 924 762 726 116 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL, ARTS BLDG. Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment
DR. A. V. JOHNSON Dentist f>06 SOMERStíT BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GEN. TRUSTS BUlLDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. Phone 926 952 WINNIPEQ
Talslmi 925 826 Helmllis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN SérfræOingur i augna, eyrna, nef oo kverka sjúkdómum. 209 Medical Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 6.00 e. h Office 933 687 Res. 444 389 S. A. THORARINSON BARRISTER and SOLICITOR 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Main Street WINNIPEG CANADA
DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur < augna. eyrna, nef og hdlssfúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 923 851 Heimasfmi 403 794 SARGENT TAXI Phone 722 401 FOR QUICK RELIABLE SERVICE
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPQ. Fasteignasalar. Lelgja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. . frv. Phone 927 688
/K HAGBORG fUíl/Zfó' PHONE 21331 J-
GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 92 8211 Uanager T. R. THORVALDBON Your patronage will be appreciated Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœöingar 2093ANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291
G. F. Jonasson, Pres. & Mac. Dlr. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLK, Siml 925 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Frath and Frozen Flsh. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 78 917
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CL.1N1C St. Mary's and Vaughan, Wpg. Phone 926 441 A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur likkistur og annast um öt- farir. Allur útbúnaður sá beztl. Ennfremur selur Hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslml 27 824 Heimllls talsiml 26 444
Phone 927 035 H. J. H. Palmason, C.A. H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountants 505 Confederatlon Llfe Bldg. Wlnnlpeg Manltobs Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just VVest of New Matemity Hospltal Nell's Flower Shop Wedding Bouquets. Cut Flowers Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790