Lögberg - 26.10.1950, Qupperneq 1
PHONE 21374
U<""e
clca^eT
A Complete
Cleaning
Instilution
PHONE 21374
u^e
rvc<t'n'e
^deTers
IjOI^ ■pvJ'Sl ® A Complete
Cleaning
(nstitution
63. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, OCTÓBER 26, 1950
NÚMER 43
Kóreustríðinu í þann veginn
að verða lokið
Áhrifamenn
eiga viðtal
I fyrri viku flaug Truman
Bandaríkjaforseti til Wakeeyjar
í Kyrrahafinu til viðtals við
MacArthur hernámsstjóra í Jap-
an og yfirforingja herja sam-
einuðu þjóðanna í Kóeru; rædd-
ust þeir við um framtíðarhorfur
öryggismála mannkynsins og
hvernig heimsfriði yrði bezt
borgið; voru þeir auðsjáanlega
á einu máli um það, að láta hart
mæta hörðu ef því væri að skipta
og sýna Rússanum 1 tvo heim-
ana, ef hann ekki hyrfi frá
heimsdrotnunarstefnu sinni.
Er Mr. Truman kom heim af
viðtalsfundi sínum við Mac-
Arthur hershöfðingja, flutti
hann mikla ræðu í San Fran-
cisco, þar sem grundvöllur var
lagður að bandalagi sameinuðu
þjóðanna, og lagði meðal annars
áherzlu á það, að Bandaríkja-
stjórn myndi gera alt, sem í
valdi hennar stæði til að efla
velmegun í Asíu og tryggja þar
frið, jafnframt því að veita þeim
þjóðum, er að Atlantshafs sátt-
málanum stæðu, alt hugsanlegt
fulltingi.
Grunur um íkveikju
Við réttarhöld þau, sem nú
standa yfir í Quebecborg vegna
eldsins, er kom uppí skemtiferða
skipinu Quebec þann 12. ágúst
síðastliðinn, er varð sjö manns
að bana, hefir Mr. Charles Hazen
látið þá skoðun í ljósi, að kveikt
muni hafa verið í skipinu af á-
settu ráði; hann er efnafræðing-
ur, sem heima á 1 Montreal, og
hefir unnið að eldsvoðarann-
sóknum í full þrjátíu ár; byggir
Mr. Hazen skoðun sína á því,
hve eldurinn hafi útbreiðst með
óeðlilegum hraða.
Samgöngumálaráðuneytið tjá-
ist einnig vera sannfært um það,
að öryggistækjum skipsins hafi
verið í meira lagi ábótavant.
ViH ekkert eiga
við stjórnmál
General Eisenhower hefir lýst
yfir því,' að hann sé með öllu
ófáanlegur til að vera í kjöri
sem forsetaefni Republicana við
næstu forsetakosningar í Banda-
ríkjunum; hann er um þessar
mundir rektor Columbiaháskól-
ans og kveðst eiga þar ærnum
skyldum að gegna.
Guðrún Christjónsson
Nú er svo komið, að tekið er
að sjást fyrir endann á Kóreu-
stríðinu með fullnaðarsigri af
hálfu lýðræðisaflanna, sem þar
hafa verið að verki. í fyrri viku
náðu hersveitir sameinuðu þjóð-
anna höfuðborg Norður-Kóreu á
vald sitt, og skömmu síðar var
um 4,000 amerískum fallhlífar-
mönnum dr(eift niður skamt þar
fyrir norðan, og með því var
króaður gersamlega inni mikill
herstyrkur kommúnista og gerð-
ur óvígur. General MacArthur
stjórnaði persónulega lendingu
fallhlífarliðsins úr loftfari sínu.
Fylkingar Suður-Kóreu eiga
aðeins eftir um fjörutíu mílur
ófarnar til landamæra Man-
sjúríu, en þar verður staðar
numið. Vera má að lítilsháttar
skæruhernaðar verði vart fyrst
um sinn í Kóreu eftir að stríð-
inu formlega lýkur.
Krefst hækkaðs
verðs
Danska stjórnin er ekki sem
ánægðust yfir því verði, sem
Bretar greiða um þessar mund-
ir fyrir svínsflesk frá Danmörku
og tjáist verða munu til þess
neydd að leita fyrir sér um
markaði annarstaðar, ef eigi fá-
ist skjótar úrbætur á núgildandi
verðlagi.
Danir hafa áratugum saman
selt Bretum meira en tvo þriðju
útflutningsmagns síns af fleski.
Fullvalda
gerðardómari
Eins og vitað er, varð það
hlutskipti sambandsþings í sum-
ar, að binda enda á járnbrautar-
verkfallið mikla, er lamað hafði
á skömmum tíma svo að segja
alt viðskiptalíf hinnar canadísku
þjóðar; að ströngum lagafyrir-
mælum einhuga þings, komust
samgöngur þá brátt 1 sitt upp-
runalega horf, þó síður væri en
svo, að útkljáð væri um ágrein-
ingsefnin; var báðum aðilum
gefinn fremstur til samninga, er
var samkvæmt ósk þeirra fram-
lengdur til hins 15. yfirstand-
andi mánaðar; en er sýnt þótti,
að grundvöllur til samkomulags
væri ófáanlegur, tók stjórnin
það ráð, að áður fengnu leyi
þings, að skipa fullvalda gerðar-
dómara, er rannsaka skyldi á-
greiningsefnin út í æsar, og
kveða síðan upp úrskurð, er
vera skyldi að ölíu bindandi
fyrir báða aðilja; og nú hefir
stjórnin valið mann til þessa
vandasama og ábyrgðarmikla
starfs, og er sá R. L. Kellock,
dómari í hæzta rétti þjóðarinn-
ar, og mun hann þegar taka til
óspiltra málanna varðandi lausn
viðfangsefnis síns.
Aukaþing
Forsætisráðherra Manitoba-
fylkis, Mr. Campbell, hefir lýst
yfir því að afloknum flokks-
fundi stuðningsmanna stjórnar-
innar á mánudagskvöldið var,
að Manitobaþingið verði kvatt
til funda þann 7. nóvember næst
komandi, til þess að taka nauð-
synlegar ákvarðanir varðandi
fjárveitingar • vegna flóðanna
miklu í síðastliðnum maímán-
uði.
Fórviðri veldurfjóni
Um miðja fyrri viku geisaði
fellibylur yfir suðurhluta
Floridaríkis, er orsakaði yfir
fimm miljón dollara eignatjón;
þrír menn létu lífið í þessum
hamförum náttúruaflanna.
íslendingur kjörinn
bæjarsfjóri í Selkirk
Við nýafstaðnar kosningar til
bæjarráðs í Selkirk, var Stefán
Oliver kjörinn þar til bæjar-
stjóra gagnsóknarlaust; hann
hefir átt sæti í bæjarráði í síðast-
liðin átta ár við vaxandi orðstír
og vinsældir. Mr. Oliver er son-
ur þeirra Guðmundar og Þóru
Oliver; hann starfar í þjónustu
Manitoba Rolling Mills Limited
í Selkirk.
Selkirk vex hröðum skrefum
frá ári til árs og er að verða mik-
ill iðnaðarbær; það er því engin
smáræðis sæmd, sem Mr. Oliver
hefir fallið í skaut með gagn-
sóknarlausri kosningu til bæjar-
stjóra.
Merkur lögfræð-
ingur lófinn
Á miðvikudaginn í vikunni,
sem leið, lézt hér í borginni einn
af dómurum háyfirréttarins í
Manitoba, Stephen Elswood Ric-
hards, 72 ára að aldri, er þjóð-
kunnur varð sem sáttasemjari
í deilumálum milli verkamanna
og vinnuveitenda; hann tók þátt
í fyrri heimsstyrjöldinni frá
1914.
Hinn látni dómari var fæddur
í bænum Brockville í Ontario,
en fluttist til Vesturlandsins
með foreldrum sínum sem barn
að aldri; hann var útskrifaður í
lögum af háskóla Manitobafylk-
is, og naut eigi aðeins vinsælda
og trausts meðal stéttarbræðra
sinna, heldur og engu síður af
hálfu almennings.
Ást-arþakkir
Mig brestur orð til þess að
þakka, eins og vera bæri, alla
þá ástúð, sem mér var sýnd við
fráfall míns hjartkæra eigin-
manns, Kristjáns Tómassonar.
Ég, og börnin okkar þökkum,
af hrærðum huga, nærveru vina
okkar, blómagjafir og kveðju-
skeyti, sem geyma hjá okkur
heilagar endurminningar.
Guð blessi ykkur öll.
Sigþóra Tómasson
Hecla, Nan.
Merkur stjórn-
mólamaður lótinn
Síðastliðinn föstudag lézt að
heimili sínu að Cold Springs
Harbor í New York ríkinu, einn
hinna kunnustu og áhrifamestu
stjórnmálamanna Bandaríkj-
anna, Henry L. Stimson 83 ára
að aldri; hann átti sæti í fjórum
ráðuneytum, fyrst sem hermála-
ráðherra í stjórnartíð Tafts for-
seta, en gegndi síðar sama em-
bætti í ráðuneytum þeirra Fran-
klíns D. Rosevelts og Harry S.
Trumans, en í stjórnartíð Her-
berts Hoovers veitti hann for-
ustu utanríkisráðuneytinu.
Mr. Stimson þótti vitur maður
og forspár, og um það leyti sem
Hitler komst til valda í Þýzka-
landi, varaði hann þjóð sína við
þeirri hættu, er þaðan mætti
vænta.
Thomas P. Hillhouse, K. C.
Tvennar aukakosningar til
fylkisþingsins í Manitoba, sem
fram fóru á þriðjudaginn féllu
á þann veg, að báðir frambjóð-
endur Campbell-stjórnarinnar,
þeir Thomas P. Hillhouse í St.
Andrews, og Mr. Trapp í St.
Clements, gengu sigrandi af
hólmi.
Lætur af embætti
Sir Stafford Cripps, er gegnt
hefir fjármálaráðherraembætti
í verkamannsflokks stjórninni
brezku síðan 1947, hefir látið af
embætti sakir heilsubrests; hef-
ir hann í rauninni ekki gengið
heill til skógar árum saman;
hann hefir jafnframt lagt niður
þingmensku í kjördæmi sínu,
East Bristol.
Sir Stafford er víðkunnur fjár
hagsfræðingur, og hefir jafnan
þótt einn hinn allra glöggskygn-
asti stjórnmálaleiðtogi verka-
mannaflokksins; hann neytir al-
drei áfengis og lifir einungis á
jurtafæðu; fyrirrennari hans í
embætti var Hugh Dalton, er
knúður var til að segja af sér
vegna lausmælgi.
Til vina minna
ó íslandi
Ég finn til þess, hve ég hefi
vanrækt að senda vinum mínum
á íslandi nokkur þakkarorð fyr-
ir margháttaða ástúð og fyrir-
greiðslu þann tíma, er ég dvaldi
heima, sem var nærri því heilt
ár; minningar þær, sem ég
geymi um dvöl mína á okkar
ástkæra föðurlandi, fölna ekki
fyrst um sinn, heldur munu þær
miklu fremur skýrast eftir því
sem árum fjölgar og verða mér
dýrmætari; en þó margt væri að
vísu breytt frá því er ég fluttist
vestur — fann ég mig þó fljótt
heima, bar glögg kensl á nátt-
úrufegurðina, og gladdi mig við
kunnuglegt yfirlit frænda og
vina. Það var gaman að koma
heim, en söknuði blandið að
kveðja.
Ég finn mér skylt, að þakka
skipshöfn á Tröllafossi og sam-
ferðafólki ógleymanlega gest-
risni, og mun slíks langminnug-
ur verða.
Með endurteknum þökkum
Winnipeg, 18. október, 1950
ARIJOHNSON
frá Stöfnum á Vatnsnesi.
Ferðir Dr. Kolka
Páll V. G. Kolka læknir held-
ur fyrirlestrar-samkomu í Blaine
8. nóvember og í Seattle 9. nóv-
ember. — Samkomunni í Van-
couver verður frestað vegna
ófyrirsjáanlegra kringumstæðna
um eina viku og verður því hald
in 13. nóvember í stað þess sem
áður var auglýst. Nefndin biðiir
velvirðingar á þessari breytingu
og vonar að samkomurnar verði
allar vel sóttar.
Úr borg og bygð
Dr. Sveinn E. Björnsson, sem
undanfarin ár hefir stundað
lækningar að Oak River, Man.,
hefir nýlega verið kjörinn lífs-
tíðarfélagi í College of Physic-
ians and Surgeons of Manitoba.
☆
Gefið til Kvenfélagsins ,Björk‘
$8.00. Frá Mrs. Ólafíu Isberg,
Lundar- Man.
Gefið til Kvenfélagsins ,Björk‘
$5.00 frá Mrs. Gruðrúnu Eyjólf-
son, Lundar, Man.
Með innilegu þakklæti,
Mrs. Stefán Hofleig,,
Lundar, Man.
☆
Mr. Friðrik P. Sigurðsson frá
Geysir, Man., var nýlega stadd-
ur í borginni.
☆
Síðastliðinn þriðjudag varð
bráðkvaddur hér í borginni Mr.
Franklín Magnússon, Conductor
hjá C. P. R. félaginu, 53 ára að
aldri, hinn gjörfulegasti maður
er átti hvarvetna miklum vin-
sældum að fagna; hann lætur
eftir sig ekkju, Elínu Frederick-
son frá Glenboro, fyrrum kenslu
konu ásamt fimm ungum börn-
um; einnig eina systur, frú Láru,
sem heima á í Minneapolis,Minn
Hann var sonur hinna merku
landnámshjóna Péturs Magnús-
sonar og frú Pálínu Magnússon
á Gimli, og þar bjó Franklín
með fjölskyldu sinni.
Útförin fór fram frá lútersku
kirkjunni á Gimli á laugardag-
inn. Séra Sigurður Ólafsson jarð
söng.
☆
H E K L U-fundur mánudags-
kvöldið 30. október. — Meðlimir
ámintir um að sækja fundinn.
☆
Jon Sigurdson Chapter I.O.D.E.
will hold a regular meeting in
The I.O.D.E. Headquarters Win-
nipeg Auditorium on Friday
Eve. Nov. 3rd at 8 O’clock.
☆
The Men’s Club of the First
Lutheran Church will hold its
first Annual Tea in the Church
Parlor on Saturday November
25th from 2 to 6 p.m., in Aid of
the Kitchen remodelling pro-
ject.
Eggert Claessen
lótinn
Á laugardaginn þann 21. þ.
m., lézt í Reykjavík, hr. Eggert
Claessen, er um langt skeið var
formaður framkvæmdarnefndar
Eimskipafélags íslands, þjóð-
kunnur athafnamaður og mikils
virtur lögfræðingur; hann var
fæddur að Grafarósi' í Skaga-
fjarðarsýslu hinn 16. dag sept-
embermánaðar árið 1877. For-
eldrar: Valgard Claessen, um
eitt skeið landsféhirðir, og
Kristín Eggertsdóttir sýslu-
manns Briem.
Hinn látni var útskrifaður í
lögum frá Kaupmannahafnar-
háskóla, en gerðist brátt hæzta-
réttarmálaflutningsmaður, e r
heim kom; hann var um hríð
bankastjóri við íslandsbanka og
við mörg önnur stórfyrirtæki
var hann riðinn; hann lætur
eftir sig ekkju, Soffíu, dóttur
Jóns Þórarinssonar fræðslu-
málastjóra.
Eggert Claessen var vinfastur,
gleðimaður mikill og höfðingi í
lund.
Áminst fregn barst þeim með-
stjórnendum Eimskipafélagsins,
hr. Ásmundi P. Jóhannssyni
byggingameistara og Árna G.
Eggertssyni, K. C., í símskeyti
frá Reykjavík.
Fimtudaginn, 19. október 1950
andaðist á St. Boniface Old
Folks Home Guðrún Christjáns-
son, 86 ára að aldri. Hún var
fædd á Kirkjubóli 17. ágúst, 1864
og var dóttir Ásmundar Jónsson-
ar og Guðrúnar Sigurðardóttur
konu hans. Til þessa lands kom
hún með foreldrum sínum 1876
og settist að í Winnipeg. Þar fór
hún snemma að vinna fyrir sér.
Hún giftist Carli Pétri Christ-
jánssyni 26. desember 1893,
að Akra, N. Dakota og bjó
þar syðra þar til þau hjónin
fluttust til Caliento, Man. árið
1903. Árið 1917 andaðist maður
hennar, og 1938 flutti hún til
Piney og bjó þar hjá dóttur
sinni Mrs. Bill Olson. S.l. jánúar
mánuð fékk hún inngöngu í St.
Boniface Old Folks Home, og
dó þar s.l. fimtudag, 19. október.
Börn hennar, sem lifa hana,
eru Kristín Eugenia, Mrs. Olson,
Engin
smóræðisfúlga
Að því er hagstofan í Ottawa
nýlega skýrði frá, greiddu
Manitobabúar á árinu, sem
leið því sem næst 62 . mil-
jónir dollara í tekjuskatt til
sambandsstjórnar; skattgreið-
endur voru 152,760 að tölu; í
Winnipeg nam tala þeirra, er
tekjuskatt greiddu, 110,000.
Vinnur kosningu
Við nýafstaðnar kosningar í
St. Boniface, var George Mac-
Lean kjörinn til borgarstjóra
með feikna afli atkvæða; áður
hafði Mr. MacLean haft með
höndum borgarstjóraembættið í
samfleytt tólf ár, og bætir nú
tveimur árum enn við sinn sér-
stæða embættisferil.
Fimm óra afmæli
Síðastliðinn þriðjudag voru
liðin fimm ár frá þeim tíma, er
grundvöllur var lagður að stofn-
un sameinuðu þjóðanna í borg-
inni San Francisco í Kalifd^rnu-
ríkinu; var atburðarins rriinst
með sérstökum þingfundi ^ð
Lake Success þá um morguninn,
og flutti forseti Bandaríkjanna,
Harry S. Truman, þar aðalræð-
una.
Guðrún Chrisljánsson
sem hún bjó hjá í Piney, og
Kristján Ferdinand í Parkdale,
Man. Hún misti fjögur börn,
þrjú þeirra uppkomin: Kristján
Alex; Kristrúnu Jónínu og Guð-
rúnu Pearl. Barnabörn hennar
eru ellefu og barnabarnabörn
fjögur.
Alla ævina var hún heilsu-
sterk. Erfiðleikar voru oft mikl-
ir, en h'ún bar þá með mestu
stillingu og rósemi. Syrir nokkru
hafði hún dottið og meitt sig
alvarlega, en hún var rúmföst
aðeins tvo mánuði áður en hún
dó. Kveðjuathöfn fór fram á
mánudaginn 23. október frá
Bardals. Séra Philp M. Péturs-
son jarðsöng.
Þrennar
aukakosningar
Nýlega eru um garð gengnar
þrennar aukakosningar til sam-
bandsþings, tvær í Quebec og
ein í Ontario; í Quebeckjördæm-
unum urðu úrslit á þann veg,
að óháðir Liberalar náðu kosn-
ingu, en lögðu að velli í póli-
tískum skilningi þá frambjóð-
endur er Liberalflokkurinn hafði
lagt blessun sína yfir; báðir
þessir nýju menn lýstu yfir
fylgi sínu við stjórnina.
í Wellandskjördæminu í On-
tario gekk hinn formlegi fram-
bjóðandi Liberalflokksins sigr-
andi af hólmi; þingsæti þetta
losnaði við fráfall verkamálaráð
herrans, Humphrys Mitchell.
Frambjóðendur íhaldsmanna,
kommúnista og C. C. F.-sinna,
komust lítt áleiðis í áminstum
aukakosningum.