Lögberg - 16.11.1950, Side 1
Silfurbrúðkaup í Langruth
Þann 7. nóvember áttu þau
sæmdarhjónin, Valdimar og
Margrét Bjarnason 25 ára brúð-
kaupsafmæli. í tilefni þess söfn-
uðust saman á heimili þeirra,
frændur, vinir og nágrannar og
þáðu góðgerðir, er þau hjónin
veittu af mikilli rausn.
Margrét og Valdimar Bjarna-
son voru gefin saman í hjóna-
band í Fyrstu lútersku kirkju
af séra B. B. Jónssyni, og var
Mrs. B. M. Paulson — Florence,
systir brúðarinnar — brúðar-
mey, en Thor Finnbogason að-
stoðaði brúðgumann, og voru
þau bæði viðstödd á þessu vina-
móti.
Eftir brúðkaupsför sína sett-
ust þau hjón að á bújörð ná-
lægt Langruth og stunduðu þar
kornrækt og hefir þeim vegnað
vel. Þau búa í bænum Langruth
á veturna.
Bæði hafa þau hjón tekið mik-
inn og giftudrjúgan þátt í fé-
lags- og safnaðarmálum byggðar
sinnar. Valdimar hefir átt sæti í
sveitarráðinu í mörg ár; verið
formaður hermannafélagsins —
Canadian Legion — og tekið þátt
í mörgum öðrum félögum. Kona
hans hefir og verið frábærilega
félagslynd. Hún hefir átt sæti í
stjórnarnefndum safnaðarins,
kvenfélagsins, The Legion Auxi-
liary, Women’s Institute og í
skólaráðinu. Nú sem stendur er
hún formaður skólaráðsins; enn-
fremur hefir hún í nokkur ár
verið forseti The Portage Dis-
trict Women’s Institute og einn-
ig heimafélagsins.
Þau hjón eru mjög skemtileg
heim að sækja og notuðu margir
sér þetta tækifæri til að votta
þeim þakklæti fyrir liðnu árin
og árna þeim heilla á komandi
tíð.
Skömmu eftir hádegi söfnuð-
ust saman á heimilinu nánustu
skyldmenni þeirra hjóna: Mrs.
A. G. Paulson frá Winnipeg,
móðir silfurbrúðarinnar, og
bræður og systur þeirra beggja
ásamt fjölskyldum þeirra, yfir
50 manns, og kom margt af því
langt að.
Valdimar er yngsti sonur
Kosinn í þriðja sinn
Mr. Freeman Einarsson
Þann 7. yfirstandandi mánað-
ar, var Mr. Freeman Einarsson,
bóndi að Mountain, kosinn í
þriðja sinn til ríkisþingsins í
North Dakota með miklu afli
atkvæða; hann er sterkur stuðn-
ingsmaður Republicana.
Mr. Einarsson er um alt hinn
mesti sæmdarmaður og auðugur
að þeim hyggindum, sem í hag
koma.
hinna velmetnu frumherjahjóna,
Sigfúsar og Guðfinnu Bjarnason.
Þau eru nú bæði látin.
Wyatt R. Polson, bróðir silfur-
brúðarinnar, mælti hlýjum orð-
um til þeirra hjóna, fyrir hönd
nánustu skyldmenna og afhenti
þeim að gjöf fagran Sterling
silfurborðbúnað. Ennfremur af-
henti hann þeim frá öðrum vin-
um, er hann tilgreindi, Torchere
lampa og peningagjöf, og komu
þeir seinna um daginn og kveld-
ið til þess að samfagna þessum
ágætu og vinsælu hjónum á
þessum tímamótum ævi þeirra.
Þau hjónin eiga tvö uppkom-
in börn: June, Mrs. J. Robertson,
Portage la Prairie, og Wallace,
námsmaður í búnaðarfræði við
Manitobaháskólann. Færðu þau,
einnig, foreldrum sínum einkar
fagra gjöf, silfur dresser-set.
Að lokum þökkuðu silfurbrúð-
hjónin með fögrum og innileg-
um orðum þann hlýhug og þá
virðingu er þeim hefði verið
sýnd með þessum mannfagnaði,
og einnig fyrir hinar dýrmætu
gjafir.
Væntir hærri skatta
Forstjóri þjóðbankans cana-
díska, Mr. Graham Towers,
flutti þann 9. þ. m. ræðu í Can-
adian Club í Toronto, þar sem
hann gaf ótvírætt í skyn, að ó-
hjákvæmilegt yrði að hækka
skatta á næstunni vegna síhækk
andi útgjalda til hervarna; hann
kvað það deginum ljósara, að
eins og nú hagaði til á vettvangi
heimsmálanna yrðu lýðræðis-
þjóðirnar að vaka á verði yfir
frelsi sínu og öryggi, en þeim
yrði jafnframt að lærast það, að
spara við sig á öðrum sviðum.
Mr Towers fór ekki í neina
launkofa með það, að sú skylda
hvíldi ófrávíkjanlega á herðum
stjórnarvaldanna að ganga á
undan með góðu eftirdæmi varð-
andi sparnað og hagsýni í rekstri
þess opinbera, því eftir höfðinu
dönsuðu limirnir.
Geigvænlegt
flugslys
Á aðfaranótt þriðjudagsins
fórst canadísk Skymaster flug-
vél í Frakklandshluta Alpa-
fjallanna; flugvélin var á leið
frá Róm, en þangað hafði hún
flutt stóran hóp pílagríma, er
gengu á fund páfa; með flug-
vélinni voru 51 farþegi, allir frá
Quebec nema einn, auk sjö
manna áhafnar; allir, sem með
flugvélinni voru, létu lífið.
Ægilegur eldsvoði
Síðastliðið laugardagskvöld
kom upp eldur í Leduchótelinu,
sem var í olíunámuhéraðinu lið-
ugar tuttugu mílur suður af
Edmonton, og brann byggingin
á skömmum tíma til kaldra kola;
tíu manns létu lífið, en sextán
voru fluttir til læknisaðgerða á
sjúkrahús.
Mælt er að kviknað hafi út
frá opinni gaspípu í kjallara
hótelsins.
Eitt flugslysið enn
Þann 8. þ. m., fórst í Montana-
ríkinu Northwest Airlines flug-
vél með 22 farþegum og áhöfn
innanborðs; var flugvélin á leið
frá Chicago til Seattle; veður var
að sögn næsta óhagstætt, ísing
og þoka; flugvélin hafði rekist
á fjallshlíð og eldur komið upp
samstumjis í benzíngeymunum.
Eiríkur Eiríksson B. A., L.L.B.,
Efnilegur
lögfræðingur
Þessi ungi og efnilegi maður
er Winnipeg-Í^lendingur, sonur
Mr. og Mrs. Guðmundar Eiríks-
sonar er lengi bjuggu að Gar-
field St. hér í borginni, en nú
síðari árin í Vancouver, B.C. —
Eiríkur var í foreldrahúsum í
Winnipeg þar til hann innritað-
ist í flugher Canada 1942. Hann
gegndi herþjónustu erlendis sem
„Flying Officer" til stríðsloka.
Er því lauk kom hann til Van-
couver, B.C., og innritaðist í há-
skóla fylkisins. Hann útskrifað-
ist 1948 með Bachelor of Art
gráðu, og í lögum 1949. Að af-
loknum prófum settist hann að
í New Westminster, B.C., og
hefir þar skrifstofu sína að 513
Columbia St.
Afmælisfagnaður
í tilefni af 60 ára afmæli Mrs.
J. B. Johnson, hinnar vinsælu
húsfreyju á Birkinesi, Gimli,
gerðu þau börn þeirra hjóna,
venzlafólk og vinir, þeim heim-
sókn á sunnudaginn, 5. nóv.
Tvær litlar stúlkur, sonardóttir
og dótturdóttir, Mrs. Johnson
afhentu henni fagrar gjafir fyr-
ir hönd gestanna. Einnig bárust
henni vinaskeyti, meðal annars
frá bróðurdóttir J. B. Johnsons í
Montreal. Mrs. Johnson þakkaði
innilega fyrir þessa vinaheim-
sókn. Voru síðan bornar fram
veitingar og fólk skemti sér hið
bezta.
Þakkarávarp
til okkar góðu vina við River-
ton, sem sýndu þá framúrskar-
andi góðvild og hjálpsemi við
fráfall kærrar konu og móður
Ólafar, sem lézt á sviplegan hátt,
og þar af leiðandi er söknuður-
inn þungbærarir en ella.
Við viljum af einlægu hjarta
þakka öllum þeim, sem skreyttu
kistuna með blómum og öllum
rausnarlegar góðgerðir sem veitt
ar voru þegar komið var til baka
frá grafreitnum. — Við viljum
af hjarta biðja þann almáttuga
kraft, sem öllu ræður að launa
fyrir okkur öllum þeim, sem lið-
sinntu okkur í okkar raunum.
Mrs. Kristjana Nelson
Hannes Jónasson
Hlýtur
Nóbelsverðlaun
Brezki heimspekingurinn víð-
frægi, Bertrand Russell lávarð-
ur, hefir hlotið bókmentaverð-
laun Nóbels fyrir yfirstandandi
ár; hann er afar mikilvirkur
rithöfundur og þótti róttækur
meira en alment gerist framan
af ævi; á hinum síðari árum
virðist hann hafa nokkuð hægt
á sér, en hallast þó ávalt í stjórn-
málum að skoðunum verka-
mannaflokksins.
Frá
Manitobaþinginu
Eins og stuttlega hefir þegar
verið vikið að, kom fylkisþingið
í Manitoba saman til funda í
byrjun fyrri viku í þeim til-
gangi einum, að afgreiða fjár-
veitingu til uppbótar þeim bæja-
og sveitahéruðum, er harðast
urðu úti vegna áflæðanna miklu
í vor, sem leið; þetta er auka-
þing, er eigi mun eiga nema
stutta setu; fyrsta verkefni þins-
ins var það, að velja sér nýjan
forseta í stað Mr. Millers, er
lét af þeirri stöðu að afloknu
síðasta þingi, er hann tókst á
hendur forustu mentamálaráðu-
neytisins; fyrir valinu varð N.
V. Bachynsk, þingmaður fyrir
Fisher kjördæmið. Hinn nýi þing
forseti er ættaður frá Úkraníu,
kom hingað um tvítugs aldur,
og lauk hér kennaraprófi; hann
gaf sig að skólakenslu í nokkur
ár; en síðan 1922 hefir hann set-
ið óslitið á þingi sem Liberal-
Prógressív; hann er maður eink-
ar vel máli farinn, og hinn föngu
legasti að vallarsýn.
Á þinginu í fyrra, voru það
C.C.F.-sinnar, er skipuðu hina
formlegu stjórnarandstöðu, en
nú eru það íhaldsmenn, er við-
skila hafa orðið við samvinnu-
stjórnina með Eric Willis í far-
arbroddi, sem andstöðuskykkj-
unni sveipast.
Tveir nýliðar tóku sæti á þing-
inu, báðir stuðningsmenn stjórn-
arinnar, þeir Thomas P. Hill-
house, St. Andrews, og Alfred
Trapp, St. Clements.
Fjárveiting sú, sem stjórnin
fer fram á að þingið veiti í á-
minstu augnamiði, nemur 6
miljónum dollara.
Mr. Campbell hefir lýst yfir
því, að stjórnin hafi ákveðið, að
Frá Kóreu
Sameinuðu herjunum í Kóreu
hefir orðið allvel ágengt upp á
síðkastið, þrátt fyrir hernaðar-
legan stuðning Kínverja við
Norður-Kóreumenn; forsthörk-
ur miklar spenna landið heljar-
klóm um þessar mundir.
v. . —
Howard Benson
Lézt af slysförum
Á miðvikudagskvöldið 8. þ. m.,
lézt af slysförum hér í borginni
13 ára piltur, Howard Benson,
sonur þeirra Mr. og Mrs. Ingi
Benson, 716 Arlington Street,
vinsæll unglingur og vel gefinn;
auk foreldra sinna lætur hann
eftir sig fjögur systkini, Sella
Driscoll, Wilfrid, Kristín og
Selma.
Útförin fór fram frá Bardals
að viðstöddu miklu fjölmenni á
laugardaginn þann 11. þ. m.
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng.
Lögberg vottar sifjaliði hins
unga sveins innilega hluttekn-
ingu í þeim þunga harmi, sem
að því er kveðinn.
greiða bæja- og sveitafélögum
á flóðsvæðunum 8714 af hundr-
aði þess kostnaðar, er þau hafi
orðið fyrir meðan á flóðunum
stóð; sumir hlutaðeigendur tjást
ánægðir með slík málalok, en
aðrir telja þau ófullnægjandi;
sannast hér vitaskuld sem ann-
ars staðar hið fornkveðna, að
enginn gerir svo öllum líki.
Vantraustsyfirlýsing, er C. C.
F.-sinnar báru fram á hendur
stjórninni og íhaldsmenn lögðu
blessun sína yfir, var feld með
35 atkvæðum gegn 16.. Svo fór
með sjóferð þá.
Kærkominn gestur
Hingað kom til borgarinnar á
laugardaginn var ungur og
gjörvulegur íslendingur, Einar
E. Sæmundsen skógraektarfræð-
ingur frá Reykjavík, er dvalið
hefir liðlega tvo mánuði í Alaska
til að kynna sér trjágróður, sem
líklegt þætti að dafnað gæti á
íslandi; hafði hann með sér um
tuttugu tegundir, mestmegnis
greni; hann er sterktrúaður á
það, að á sínum tíma verði ís-
land eins og á landnámstíð, skógi
vaxið milli fjalls og fjöru. Þessi
kærkomni gestur er sonur Ein-
ars E. Sæmundsen skálds og
skógræktarfræðings og konu
hans Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur; hann er bróðursonur frú Sig-
ríðar Árnason, ekkju séra Guð-
mundar Árnasonar.
Á mánudagskvöldið höfðu þau
mætu hjón, Einar Árnason raf-
urmagnsfræðingur, O. B. E., og
frú Þóra Árnason, fjölment og
ánægjulegt heimboð í heiðurs-
skyni við hinn góða gest, en
þeir nafnarnir eru systkinasyn-
ir; nutu gestir þar ríkmannlegra
veitinga og skemtu sér við sam-
ræður fram eftir kvöldinu.
Einar skógræktarfræðingur
lagði af stað héðan á miðviku-
dagsmorguninn, en flýgur á
næstunni frá New York áleiðis
heim.
Sameiginleg
guðsþjónusta
Sameiginleg guðsþjónusta fyr-
ir alla meðlimi og velunnara
Fyrsta lúterka safnaðar verður
haldin á ensku. næstkomandi
sunnudagskvöld, 19. nóv., kl. 7.
Við það tækifæri verður Páli
Bardal þingmanni afhent skraut
ritað ávarp frá söfnuðinum, í til-
efni af langri og giftusamri starf-
semi hans að söngmálum kirkj-
unnar. Veitingar fara fram að
aflokinni guðsþjónustunni í sam
komusal kirkjunnar.
Allir velkomnir!
Fyrsta ísfisksalan
í Þýzkalandi
Snæfell seldi þar bátafisk
úr Eyjaíirði á föstudag
Snæfell skip útgerðarfélags
KEA seldi síðastliðinn föstudag
um 112 smálestir af ísuðum báta
fiski í Þýzkalandi. Er þetta fyrsti
ísfiskurinn, sem seldur er í
Þýzkalandi nú um margra mán-
aða skeið.
Snæfell fór með ísaðan báta-
fisk úr verstöðvunum við Eyja-
fjörð á þennan markað. Hefir
skipið oft áður flutt þannig af-
urðir bátanna úr Eyjafirði á
erlendan markað með ágætum
árangri, eftir því sem *im hefir
verið að ræða á hverjum tíma.
Ekki hafði útgerðarstjórn
skipsins borizt nákvæmar fregn-
ir af sölunni í gær, og því ekki
vitað um það í gærdag hvað
fengist hafði fyrir farminn.
—TIMINN, 21. okt.
Tekst á hendur
yfirforustu
General Dwigth D. Eisen-
hower, sá, er í síðari heimsstyrj-
öldinni veitti yfirforustu hinum
sameinuðu herjum lýðræðis-
þjóðanna, er frelsuðu mikinn
hluta Norðurálfunnar undan
ánauðaroki Nazismans þýzka,
hefir nú verið valinn til þess að
takast á hendur herstjórn þeirra
þjóða, er að Atlantshafssáttmál-
anum standa, og það hlutverk
hafa með höndum, að verja
Vestur-Evrópu ef á hana yrði
ráðist, sem engan veginn er ör-
grant um.
Frá því að áminstri styrjöld
lauk, hefir General Eisenhower
verið forseti Columbiaháskólans
en nú er hann á förum til Ev-
rópu til að kynnast með eigin
augum viðhorfinu frá hervarna-
legu sj'ónarmiði séð, og skipu-
leggja samvarnir lýðræðisþjóð-
anna.
Kjörinn til tíu ára
Mr. Justice Guðm. Grímson
Við kosningarnar í Bandaríkj-
unum, sem fram fóru þann 7.
þ. m., var Mr. Justice Guðmund-
ur Grímson, kosinn til tíu ára
dómari í hæztarétti North
Dakotaríkis gagnsóknarlaust; er
þetta ein viðurkenningin enn,
sem Guðmundur hefir hlotið á
sínum langa og glæsilega em-
bættisferli.
Kunnur lögspek-
ingur látinn
Á þriðjudaginn í fyrri viku
lézt af hjartaslagi hér í borginni
Edgar J. Tarr, K.C., 69 ára að
aldri, eigi aðeins einn af allra
merkustu bórgurum þessa bæj-
arfélags, heldur þjóðkunnur
maður vegna afskipta sinna og
sérþekkingar á vettvangi heims-
málanna; hann ferðaðist víða
um lönd, var um eitt skeið for-
maður Canadian Institute of
International Affairs, en síðar
Institute of Pacific Relations.
Mr. Tarr sótti fundi fyrir hönd
Canada í Jérúsalem, Kína og
Japan. Hann var alment talinn
vitur maður og góðgjarn.
Mr. Tarr var fæddur í Ottawa
og hlaut mentun við menta-
stofnanir Ontariofylkis, en flutt-
ist til Winnipeg nálega hálf-
þrítugur að aldri, og stundaði
hér við góðan orðstír málafærslu
starf um langt skeið.
Fólksfjölgun í
Canada
Að því er hagstofunni í Ot-
tawa segist frá, nam fólkstalan
í Canada þann 1. september síð-
astliðinn 13,921,000. Þykir það
því nokkurn veginn sýnt, að um
næstu áramót verði íbúatalan
komin upp í 14 miljónir.
Manntal í Canada fer fram í
júnímánuði næstkomandi.