Lögberg


Lögberg - 23.11.1950, Qupperneq 2

Lögberg - 23.11.1950, Qupperneq 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. NÓVEMBER, 1950 Bréf og minningarorð fró íslandi Þjóðræknisfélagið heldur Vestur íslendingum samsæti Hafnarfirði, 9. nóv. 1950 Hr. Einar Páll Jónsson, ritstjóri Lögbergs: Þér vonandi afsakið, þó að ég undirritaður sendi yður eftirfar- andi línur. Þannig er mál með vexti, að á s.l. hausti andaðist á heimili mínu tengdamóðir mín, frú Sigríður Davíðsdóttir, fyrv. ljósmóðir, og læt ég hér með fylgja eftirmæli, er birtust í Morgunblaðinu á útfarardegi hennar, yður til frekari upplýs- inga. — Sigríður var ljósmóðir á Jökul- dalnum á árunum 1895—1902, og kynntist því mörgum Aust- firðingi, og gat þeirra við ýms tækifæri, og alltaf að góðu. Þar á meðal minntist hún yðar oft, er Vestur-íslendinga bar á góma. En þar sem hún naut al- mennra vinsælda austur þar, fyrir dugnað og farsæld í ljós- móðurstarfinu, voru það einnig margir, sem minntust hennar, og þar á meðal margir, er um þær mundir fluttust vestur um haf, og báru kveðjur þær, er henni bárust með ýmsum, er frá Vest- urheimi komu, þeim vinsældum ljósan vott. — Konan mín, Ingibjörg Guð- mundsdóttir, var um þessar mundir barn að aldri, og dvaldi þá hjá Guðmundi Snorrasyni og Álfheiði Þorsteinsdóttur í Foss- gerði, sem hún hélt vinfengi við til dánardægurs þeirra, og heyrði hún þá og síðar margra -f -f -f Svo löng var nóttin, unz lauk við skál, með horfinn þróttinn, en heila sál. — í JÚLÍMANUÐI í sumar, er ég var stödd uppi í Borgarfirði, dreymdi mig nótt eina þessa öldruðu vinkonu mína, sem ég vissi, að síðustu missirin hafði háð harða baráttu við elli og þungbæran sjúkdóm. Mér þótti ég sjá hana glaða, hrausta og ferðbúna, og vel til alls vandað. — Þótti mér hún ávarpa mig þessum orðum: „Nú er ekki ann- að eftir, en að syngja nr. 489“. — Það var raunar ekki andláts- fregn hennar, sem mér barst næsta dag, heldur nánustu frænku hennar og vinkonu, frú Ingibjargar frá Óseyrarnesi. — En að kvöldi hins 14. þ. m. voru öll ár og dagar Sigríðar Davíðs- dóttur „liðin í aldanna skaut“. Hún var fædd að Hólum í Stokkseyrarhreppi 30. okt. 1864. Var móðir hennar Guðríður Jóns dóttir frá Loftsstöðum, dóttur- dóttir Jóns ríka í Móhúsum, og eru þær ættir alkunnar og fjöl- mennar. En faðir hennar, Davíð Ólafsson úr Vestmannaeyjum, ættaður úr Rangárþingi, hafði drukknað það sama ár, er hann var á leið úr Eyjum til lands, að vitja ráðahags við unnústu sína og reisa með henni bú. — Guðríður giftist síðar Halldóri Steindórssyni á Fljótshólum, og bjó þar við mikla rausn og virð- ingu um hálfrar aldar skéið. — Óx Sigríður þar upp með móður sinni og gerðist snemma afbragð að andlegu og líkamlegu atgervi. — Alsystir Sigríðar, ári eldri, var Jónína, sem ólst upp hjá sr. Páli Ingimundarsyni í Gaulverja bæ. Fór hún ung til Vestur- heims, og er nú látin fyrir mörg- um árum. — En hálfsystkiri Sig- ríðar, börn Guðríðar og Hall- dórs voru þrjú, Þuríður, Bjarni og Jón, bjuggu þau öll í Fljóts- hólum, og býr þar nú Guðríður dóttir Jóns, gift Tómasi Tómas- syni, og er þetta allt mikið mann dómsfólk. Um tvítugsaldur giftist Sig- ríður Jóni Bjarnasyni, söðlasmið frá Tungufelli, ágætum hæfi- leika og drengskaparmanni. Reistu þau bú á nokkrum hluta Fljótshóla, en fluttu síðar að Ás- gautsstöðum við Stokkseyri. — Eignuðust þau þrjár dætur: Kat- þessara nafna getið, en hefir ekki átt þess kost, að fylgjast með þessu fólki, eða hafa sam- band við það, og veit því ekki hve margt af því er enn á lífi, né hvar það á heima. — Með tilliti til þessa, datt henni í hug, að ef þessi eftirmæli yrðu birt í blöðum Vesturheims, myndu þessir fornu vinir og kunningjar Sigríðar, fá af henni fregnir, bæði hvað á daga henn- ar hefði drifið, og um hennar burtför héðan úr heimi. — Gæti það orðið þeim bæði til fróð- leiks og gamans, og væri þá til- ganginum náð. — Sjálfur á ég frændur og ætt- ingja í Ameríku, sem ég hefi mist sjónar af, og veit ekki hvað hefir orðið um. — Ef með þyrfti, þætti mér vænt um, að mega eiga yður að, með að hafa upp á því fólki við tækifæri. — Ég endurtek, að ég vona að þér afsakið þessar línur. — Mér er ljóst, að yður myndi vafalaust þykja vænna um, að fá gott fréttabréf héðan að heiman, en það verður ekki í þetta sinn af minni hálfu, enda kannske aðrir til þess ráðnir. — Við hjónin sendum yður, okk- ar beztu kveðjur og árnaðarósk- ir, og biðjum yður og fjölskyldu yðar allrar blessunar nú og ævin lega. — Virðingarfyllst, Þorvaldur Árnason, Lækjargötu 12, Hafnarfirði ♦ ♦ ♦ ♦ rínu, sem missti heilsu 25 ára gömul og dvelur nú í sjúkrahúsi, Guðríði búsetta í Reykjavík, og Ólöfu Guðmundu, sem andaðist á þriðja aldursári 1891. — Var hún óvenjulega vel gefið barn, söngvin og ljúflynd, og varð dótturmissirinn Sigríði svo sár, að hún lét um stund nærri bug- ast af sorginni. — Varð það með- al annars til þess að þau hjónin slitu samvistir og fór þá Sigríð- ur með dætur sínar heim til móður sinnar að Fljótshólum, og var þar næstu ár. Tók þá Guð- ríður húsfreyja dótturdæturnar í fóstur, allt til fullorðinsára. En á Sigríði sönnuðust orð skáldsins: „Þótt þú hnígir, hóf þig aftur, himinborinn sálar- kraftur". — Lífsþráin og starfs- þráin unnu að nokkru bug á harminum, en hin unga kona festi nú ekki yndi í átthögunum, heldur gaf sig útþránni á vald, og hélt til Reykjavíkur. — Starf- aði hún þar fyrst á heimilum, m. a. á heimili Þórhalls biskups og á heimili Þorbjargar Sveins- dóttur ljósmóður, og hjá henni og Schierbeck landlækni lærði hún síðan ljósmóðurfræði. Urðu þær Þorbjörg tryggðavinir, og hygg ég að með þeim konum hafi verið ekki svo lítill andleg- ur skyldleiki. — Orð Matth. Joch. um Þorbjörgu: „Harða, blíða, heita, djúpa sál, hjarta þitt var eldur, gull og stál“, hefði vel mátt heimfæra til Sigríðar Davíðsdóttur. Bað Þorbjörg Sig- ríði þess, ef hún eignaðist son, að láta hann heita Benedikt, og lýsir þetta betur en langt mál, hvílíkar mætur gamla konan hafði á skjólstæðing sínum. Að námi loknu var Sigríði veitt Jökuldalshérað í Norður- Múlasýslu. — Var hún þá heit- bundin öðru sinni Guðmundi Guðjónssyni, trésmið, ættuðum úr Árnesþingi. — Var hann gáfu maður og hvers manns hugljúfi, enda var hamingja þeirra mikil og fögur. Sigríður stundaði ljósmóður- störf. á Jökuldalnum nær sjö ára skeið, við mikla farsæld og vinsæld, og urðu aldrei slys und- ir höndum hennar. — Mun það oft hafa verið ekki lítið afrek að etja við höfuðskepnurnar og annan háska þar á þeim árum, svo langt frá læknum og flest- um öryggistækjum, sem nú þykja nauðsynleg. — Væri það mikil saga út af fyrir sig, en verður ekki rakin hér. Það var ekki háttur Sigríðar að ræða mikið um erfiðleika eða baráttu liðins tíma. — En í síð- asta skipti er ég átti tal við hana, fyrir rúmum mánuði, talaði hún um ferðalögin og samgönguerf- iðleikana á Jökuldalnum, og þótti mér sem henni yxi ekki í augum sú mikla ferð, er nú var fram undan, móti margri tví- sýnunni, er hún hafði lagt út í við starf sitt fyrir 50—60 árum. — Og í báðum tilfellum var hin sama huggun, — hinn sami styrkur, — hennar bjargfasta traust til forsjónar Guðs og handleiðslu, sem var ávöxtur mikillar reynslu langrar ævi. Árið 1902 fluttu þau Guð- mundur aftur til Reykjavíkur með Ingibjörgu dóttur sína (f. 1895), og bjuggu þar næstu tvö ár. — En örlögin höfðu aldrei ætlað Sigríði neinn værðar- blund á dúni eða rósum, og enn mátti hún sjá á bak ástvini sín- um. — Með æðruleysi þess, sem veit sig hafa fengið uppfylltar dýpstu óskir lífsins og notið þeirra gæða, sem öllu gulli eru dýrri, tók hún nú á herðar sér þá byrði sem hamingju hennar og skapgerð var samboðin, — kaus heimili sínu bana, fremur en örkuml, ef hamingja annara mætti þar fyrir verða heilli og varanlegri. — Hvarf nú ástvinur hennar aft- ur til Austurlands og ílentist þar. — En Sigríður kom dóttur sinni í fóstur, og gerðist vökukona á Landakotsspítala um fjögurra ára skeið. — Nú var viðhorf hennar til lífsins nokkuð breytt. — Jafnvægið milli hæfileika og tilfinninga orðið öruggt, svo að henni var ljóst hve farsæla hugg un það veitir, að reyna eftir megni að bæta annara böl, og lina þrautir þess, sem liggur særður við veginn. — Þegar Ingibjörg dóttir hennar komst á þann aldur, að þurfa að stunda framhaldsnám, breytti Sigríður stöðu og réðist ráðs- kona til Morten Hansen, skóla- stjóra, þar til hann andaðist ár- ið 1923.— Þá keyptu þær mæðg- ur húsið nr. 12 við Grundarstíg, og bjuggu þar til ársins 1938, er Ingibjörg giftist Þorvaldi skatt- stjóra Arnasyni, og fluttist Sig- ríður þá með henni til Hafnar- fjarðar, þar sem hún átti á heim- ili þeirra hið fegursta ævikvöld. — Mátti segja að þau kepptust um að gera henni ellina fagra og ánægjuríka, enda elskaði Sigríð- ur Þorvald, sem væri hann sonur hennar. Löngum var Sigríður heilsu- hraust og óvenjulega verkmikil, að hvaða starfi sem hún gekk. — Var hún líka, — þrátt fyrir örðugan og breytilegan hag, — fjölskyldu sinni, ættingjum og öðrum vinum, alveg sjaldgæfur liðveizlumaður, hvort sem að höndum bar sjúkdóma eða ann- an vanda. — Skapgerð hennar var svo hrein og stórbrotin, hæfi leikar hennar svo fjölþættir og frjóir, að öllum fannst eðlilegt, að leita til hennar um hvers kyns liðveizlu. — Sjálfri mun henni líka hafa fundist að henni bæri að styrkja með ráðum og dáð alla sem hún náði til. — En þá má ekki gleyma hvílíkan bak- hjarl hún átti til hjálpseminnar eftir að Ingibjörg dóttir hennar komst á legg. — Hélt hún alla tíð, eftir að hún varð fulltíða, heimili með móður sinni, og voru þær svo samhentar og sam- rýmdar, að fátítt mun vera, og er fagurt þess að minnast, þeim sem vel þekktu til. Sigríður var trúkona mikil og einlæg, sem aldrei gleymdi misk unsemd Guðs, né lét hjá líða, að gefa honum dýrðina. — Á efri árum hneigðist hugur hennar nokkuð að spiritisma og dulræn- um fræðum, og á vegum spiri- tismans mun hún fyrst að fullu hafa látið huggast eftir dóttur- missirinn 1891. Árið 1934 varð Sigríður fyrir því óhappi að lærbrotna og gat eftir það litla ferlivist haft. En sálin var heil og hugur og kjark- það löngum í sæti sínu, las all- ur óbugaður. — Hún vann eftir mikið og ræddi við vini sína. — Mun margur hafa farið af fundi hennar glaðari en hann kom, og auðugri af andans gulli, og bjartri trú á lífið og höfund þess. Þeir sem áttu því láni að fagna, að kynnast Sigríði vel, og eignast vináttu hennar og trún- að, munu telja það dýrmætan þátt í lífshamingju sinni. — Svo auðug að andlegum glæsileik var þessi stórbrotna höfðings- kona. Jarþrúður Einarsdóllir Ég er nýkominn heim úr sex vikna ferðalagi um hernáms- svæði Rússa í Þýzkalandi. Þar eru æskustöðvar mínar og ætt- ingjar margir, en eins og þar er högum háttað nú, held ég mig langi ekki til að koma þangað aftur. Ég fór til að heimsækja ætt- ingja og vini, en margir þeirra þorðu naumast að láta sjá sig á tali við mig, og sumir vildu ekki lofa mér að heimsækja sig. Því samkvæmt hugsunarhætti kommúnista hlaut ég að vera amerískur njósnari fyrst ég kom frá Bandaríkjunum. Hefði kom- ist upp hver ég var, meinti það fangelsisvist eða jafnvel líflát fyrir mig og alla sem ég hafði staðið í sambandi við, svo að ég gat ekki legið þeim þungt á hálsi, þó þeir vildu vera varasamir. Ég hóf ferð mína frá Berlín, en þangað kom ég flugleiðis frá Bandaríkjunum. Vinir mínir þar ráðlögðu mér strax að fara ekki lengra. En kærasti vinur minn, eða öllu heldur vinkona á ráð- stjórnarsvæðinu — við skulum kalla hana „Jakkie“, því ég þori ekki að nefna hana sínu rétta nafni — hafði komið til Berlín- ar til að mæta mér. Ég komst í samband við hana eftir ótal krókaleiðum og gegnum marga milligÖngumenn. Ég þorði ekki að skrifa henni, því bréfið hefði hæglega getað komist í hendur lögreglunnar „Volbjrolize“ — sem er bæði lögregla og herlið ráðstjórnar Þýzkalands. En fyrir þrábeiðni mína út- veguðu vinir mínir falsað vega- bréf og önnur skilríki fyrir mig, samkvæmt þeim var ég búsettur í Berlín, og vann hjá heildsölu- verzlun, og var nú í sumarleyfi. En sem Berlínarbúi hafði ég rétt til að ferðast um ráðstjórn- arsvæðið. Ég og Jakkie fórum frá Berlín með járnbrautarlest til Leipzig. Lestin átti að leggja af stað kl. 7 að morgni, en til að tryggja okkur sæti vorum við komin á stöðina kl. hálf sex. Og nú vor- um við að leggja út á fjörð þann hinn mikla sem aðskilur ,ráð- stjórnarlöndin í Austur-Evrópu frá umheiminum. Við höfðum farbréf til frægs skemtistaðar í ráðstjórnar Þýzka landi, því þar sem skjöl mín sögðu að ég væri í sumarleyfi var vissara að haga sér eins og slíkur maður mundi gera. Ég reyndi að þurka af mér öll merki þess að ég hefði nokkurn- tíma verið annars staðar en í Þýzkalandi, um fram allt mátti ekki vitnast að ég hefði verið í Bandaríkjunum. Ég útvegaði mér þýzkan fatnað frá því insta til þess ysta. Hafði þýzka vasa- klúta, þýzkan penna og vasa- bók — en mér var ráðlegt að skrifa ekkert í hana, sem mér væri ekki sama hver sæi. Ég hafði meðferðis gamlan bakpoka í stað ferðatösku. Var með þýzk gleraugu og þýzka peninga- buddu. Þá varð ég að muna að Stjórn Þjóðræknisfélagsins hélt þeim dr. Sveini Björns- syni og konu hans Maríu Björnsson samsæti að Hótel Borg í gærkveldi, en síðan var dvalið á heimili forseta Þjóðræknisfélagsins, herra biskupsins Sigurgeirs Sig- urðssonar, í góðum fagnaði um kvöldið. Dr. Sveinn Björnsson og kona hans komu hingað til lands á síðasta vori og hyggjast að dvelja hér enn um stund. Hafa þau hjónin heimsótt átthaga stinga allri skiptimynt aftur í budduna eins og Þjóðverjar gera en ekki lausum í buxnavasana eins og siður er í Bandaríkjun- um. Einnig varð ég að varast að láta heyrast á mæli mínu að ég hefði dvalist erlendis. Mátti með engu móti segja í hugsunarleysi „Thank you“ staðinn fyrir „Danke scho en“. Þegar við komum inn í þriðja flokks vagnklefann, sem okkur var vísað á, voru tvö sætin þeg- ar skipuð og öll átta setin klukku stund áður en lestin lagði af stað. Farþegarnir voru órólegir rétt eins og þeir sætu á nálar- oddum, og samræður alls engar. Það var eins og andrúmsloftið væri óttablandið. Á járnbrautar- stöðinni voru til sölu vestræn blöð og tímarit, og allskonar á- vextir. Ekkert slíkt sá ég fyr en ég kom til Berlínar aftur. Það var 15 minútna ferð til Grossbeeren, en þar átti að skoða vegabréf og farangur far- þeganna. Eftir því sem við færð- umst nær þeim stað óx óróleiki farþeganna. Strax og lestin fór að hægja á sér fóru karlmenn- irnir að leita í vösum sínum en konurnar í handtöskunum, eft- ir nauðsynlegum skjölum og skilríkjum. Enginn sýndist kæra sig um nærveru lögreglunnar lengur en óhjákvæmilegt væri. Mér datt það snjallræði í hug að vissasti vegurinn til að sýn- ast eins saklaus og barn í vöggu, væri það að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég tók því brauðsneiðar úr pússi mínu og fór að fá mér bita. Allt í einu opnaðist klefahurð- in og inn kom fulltrúi löggæzl- unnar í ráðstjórnar Þýzkalandi. Hann var í svörtum einkennis- búningi mjög áþekkum þeim er stormliðar Hitlers báru fyrr- um. Fyrstu spurningunni beindi hann til allra farþeganna. Vildi vita hvort við hefðum nokkur „West-Mörk“. Grannleitur ná- ungi, sem auðsjáanlega var þaul vanur að ganga gegnum hreins- unarelda slíka sem þennan varð fyrir svörum. Annars var hann eini maðurinn, sem að ég varð var við á öllu ferðalaginu, sem sýndist óskelfdur og í essinu sínu frammi fyrir lögreglunni. „Ég hef enga peninga", sagði sína á Austurlandi og farið víða um. Þau hafa ekki sótt landið heim um fjörutíu ára skeið, og virðist margt breytt hér til batn- aðar frá því, sem áður var. Láta þau hjónin vel yfir för sinni hingað til lands, þótt þau hafi ekki verið heppin með veður, með því að stöðug rigning var á Austurlandi meðan þau dvöldu þar. Þau hjónin hafa bæði unnið merkilegt starf vestan hafs og látið sig kirkjulega starfsemi og mannúðarmál miklu skipta. Hafa margir íslendingar notið gestrisni þeirra og fyrirgreiðslu. Þakkaði biskup störf þeirra, sem hann lýsti í stórum dráttum, en þau hjónin bæði gerðu grein fyrir ferðum sínum og þeim á- hrifum, sem þau hefðu orðið fyrir í heimalandinu. Létu þau vel yfir móttökum öllum og vin- semd, sem þau hefðu orðið að- njótandi. Auk þess tóku til máls Ófeigur læknir Ófeigsson og Árni G. Eylands stjórnarráðs- fulltrúi, sem báðir þökkuðu þeim hjónum viðkynningu vest • an hafs. Dr. Sveinn Björnsson og frú María gera ráð fyrir að hverfa héðan af landi í seinni hluta nóv- embermánaðar eða í byrjun des- ember. —VÍSIR, 23. okt. Vísindamenn telja síldarstofninn í hrörnun Vandamál þetta verður raett á þingi alþjóðahafrannsóknarráðs- ins í Kaupmannahöfn í naesta mánuði. Það hefir lengi verið kunnugt, að fiskistofninn í Vesturhafinu, Norðursjónum og Norður-At- lantshafinu er í verulegri hrörn- un, en í þessu sambandi hefir einkum verið rætt um flatfisk og þorsk. Nú er spurt um, hvort síldarstofninn sé einnig í hættu, og mun þetta verða eitt aðalvið- fangsefni þings alþjóðahafrann- sóknarráðsins, sem hefst hér í borginni hinn 2. október n. k. Á hafrannsóknarþinginu í Edin- borg á s.l. ári var því slegið föstu, að síldarstofninn væri á hættusvæðinu, með því að vís- indamenn þykjast hafa komizt að raun um, að stofninn fari minnk'andi ár frá ári. Þegar þess er gætt, að síldin er einn lang- þýðingarmesti fiskur fiskveiði- manna Norður-Evrópuþjóða, er auðskilið, að þetta mál verður rætt af alvöru á fundum fiski- fræðinga og hafrannsóknar- manna. Líklegt er, að fulltrúar á þingi þessu ræði um að senda sam- eiginlega ályktun til ríkisstjórna viðkomandi landa, þar sem rætt verður um ráðstafanir til þess að vernda síldarstofninn. — Á þessu ári hafa farið fram víð- tækar síldarmerkingar og verð- ur einnig rætt um árangur þeirra. Vel má þó svo fara, að rannsóknir þessar haldi áfram a. m. k. ár enn, áður en farið verður í alvöru að ræða um eitt eða annað form síldarfriðunar. Framhald á bls. 7 eining KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svp vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 50.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON SKÓLAVÖRÐUSTIG 17 REYKJAVIK Frú Sigríður Davíðsdóttir fyrrum Ijósmóðir Leyniför til Austur-Þýzkalands Eftir ERIC WALDMANN Höfundurinn er fæddur og uppalinn I Austur-pýzkalandi. Var um skeiS I fangabúðum Nazista, en tókst aC strjúka til Sviss & stríCs- árunum. 1945 gekk hann I þjónustu bandarísku herstjðrnarinnar, og flutUst til Bandarikjanna skömmu siOar, og stundar nú háskóla- nám þar. Af skiljanlegum ástæCum ritar hann ekki undir sinu rétta nafni.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.