Lögberg - 25.01.1951, Side 1
PHONE 21374
- deTB.- ^doS-Gt
l'** tr\3* A Complele
Cleaning
Instilution
PHONE 21374
^O***’-.
A U^e
^O*d40rtc«»”"s
dereTS ^rO^0
® A Complete
Cleaning
Instituiio’
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN. 25. JANÚAR, 1951
NÚMER 4
Fylkisþingi stefnt
til funda
Fyrstu viðskiptasamningar við
V.-Þýzkaland undirritaðir
Fyrir nokkrum dögum var
undirskrifað í Frankfurt am
Main samkomulag milli ís-
lands og Vestur-Þýzkalands
um viðskipti á árinu 1951.
Aðflutt smjör
Campbell forsætisráðherra
Á miðvikudaginn var lýsti
forsætisráðherra Manitobafylk-
is, Mr. Campbell, yfir því, að
fylkisþinginu 1 Manitoba yrði
stefnt til funda þann 1. febrúar
næstkomandi; kemur þing því
að þessu sinni saman nokkru fyr
en venja er til; megin ástæðan
fyrir því, að flýtt var svo mjög
fyrir þingsetningu, er talin að
vera fólgin í þeirri brýnu þörf,
sem á því er, að taka til alvar-
legrar yfirvegunar raforkumál
fylkisins, einkum með hliðsjón
af því, að koma í veg fyrir þurð
á raforku, en að til slíks gæti
komið, hafa sérfræðingar í þjón-
ustu stjórnarinnar óttast um í
nokkur undanfarin ár; mælt er,
að skoðanir þingmanna í þessu
efni séu harla skiptar.
Flestar stjórnardeildir munu
nú hafa lokið ársskýrslum og
gengið frá þeim í því formi, sem
þær verða lagðar fyrir þing;
þetta verður þriðja þing yfir-
standandi kjörtímabils, en síð-
ustu kosningar fóru fram 1949;
aukaþingið vegna fjárveitinga í
tilefni af flóðunum miklu, var
haldið í nóvembermánuði síðast-
liðnum.
Fylkisstjórinn, Hon. R. F. Mc-
Williams, sem dvalið hefir um
hríð sér til hressingar í Bermuda,
er væntanlegur heim þann 31.
þ- m., og verður þá kominn í
tæka tíð til að leggja stjórnar-
boðskapinn fyrir þing.
Samkvæmt þessu samkomu-
iagi verður viðskiptasamningur,
sem undirskrifaður var hinn 15.
marz 1950 og ganga átti úr gildi
nú um áramótin, látinn gilda á-
fram í aðlatriðum fyrir allt árið
1951. Það er því gert ráð fyrir,
að íslendingar selji Þjóðverjum
á næsta ári fisk og síld fyrir 2,5
milljónir dollara og ennfremur
síldarmjöl, síldarlýsi, gærur og
fleiri vörur.
Frá Vestur-Þýzkalandi kaupa
íslendingar m. a. útgerðarvörur,
vefnaðarvörur, járn, stál og raf-
lagningarefni, rafmagnsvörur,
vélar, járnvörur, kemiskar vör-
ur, linoleum, áburð, sement, gler
og leirvörur o. fl.
Af hálfu ríkisstjórnar íslands
samdi Jóhann Þ. Jósefsson al-
þingismaður við þýzk stjórnar-
völd um þetta mál í aðalatriðum,
en hann fór til Þýzkalands í
þeim erindum, samkvæmt beiðni
ríkisstjórnarinnar, að afloknu
Evrópuráðsþingi í Strasbourg í
nóvember. Aðalræðismaður Is-
lands í Þýzkalandi, Vilhjálmur
Finsen, sendiherra, lauk síðan
samningsgerðinni og undirskrif-
aði samkomulagið fyrir Islands
hönd.
—TÍMINN, 23. des.
í vikunni, sem leið, héldu
canadískir smjör- og mjólkur-
framleiðendur ársþing sitt á
Royal Alexandrahótelinu hér í
borginni, og var það fjölsótt
mjög; á þinginu skýrði formað-
samtakanna, Mr. Gilbert
ur
McMillan, Huntington, Que., frá
því, að nú væri svo komið, að
í stað þess að eiga fyrirliggjandi
birgðir af smjöri og osti, væri nú
verið að flytja inn fimm miljónir
punda smjörs frá New Zealand,
auk þess sem víst mætti telja
að um innflutning osts yrði jafn-
framt aðfæða; kvað hann liggja
í augum uppi, að við svo búið
mætti ekki lengur standa, held-
ur yrði að auka þannig fram-
leiðsluna, að Canada hefði á-
minstar framleiðslutegundir til
útflutnings á ný.
Jórn og aluminíum úr íslenzku hraungrýti
Góður árangur rannsókna
í sumar og haust
Mikil líkindi eru talin til
þess, að hægt verði að vinna
járn, aluminíum og ýms önn
ur efni úr íslenzku hraun-
grýti, þannig að vinnslan
borgi sig. I sumar hefir dval-
ið hér á landi þýzkur verk-
fræðingur á vegum Þórodds
E. Jónssonar stórkaupmanns
og gert margar tilraunir í
þessu skyni. Sjálf rann-
sóknin fer fram í Berlín og
hafa rannsóknir, sem þegar
hafa verið gerðar gefið góð-
ar vonir og reynslu. Loka-
rannsóknin fer nú fram og
er árangurs af henni að
vænta um miðjan næsta
mánuð.
10—11% járn og
5—6% aluminíum.
Samkvæmt rannsóknum hins
þýzka verkfræðings reiknast svo
Hraunflóð veldur
líftjóni
Frá Port Moresby á New
Guinea er símað þann 22. þ. m.,
að hraunflóð úr Lamingtonfjalli
hafi orðið þess valdandi, að fjög-
ur þúsund manns hafi látið líf
sitt, þar á meðal enskur trúboði.
Lamingtonfjall er um hundrað
mílur frá Port Moresby.
Dýrtíð lótin í friði
Þó mikið sé talað um stríð og
stríðsviðbúnað, verður naumast
annað með réttu sagt, en dýrtíð-
in sé nokkurn veginn látin í
friði; nú er kaffipundið komið
upp í dollar, og líklegt talið, að
það hækki um tuttugui cents
enn, án þess að sýnilegt sé, að
hafist verði handa um úrbætur;
matvara hækkar jafnt og þétt í
verði eins og vísitalan fyrir nóv-
embermánuð leiðir svo afdrátt-
arlaust í ljós; fatnaður allur
stígur upp, og alveg nýverið
hækkaði par af karlmannaskóm
um tvo dollara, en par af kven-
skóm um dollar, svo í rauninni
má segja, að á þessum vettvangi
sé alt á eina bókina lært.
Hvað ætli blessað gamla fólk-
ið, sem verður að draga fram
lífið á tiltölulega lágum ellistyrk,
geti keypt mikið af lífsnauð-
synjum á því geypiverði, sem nú
þjakar að, eða margt annað
fólk, sem dregur fram lífið á
sultarlaunum? Ætli það væri úr an
vegi, að stjórnarvöldin tæki nú
þá rögg á sig, að reisa tafarlaust
skorður við hinni sívaxandi dýr-
tíð og setja hámarksverð á
neyzluvörur?
Einstætt fórviðri
Alveg einstætt fárviðri vitjaði
British Columbiafylkis í vik'
unni, sem leið, er orsakaði marg
háttuð spjöll, og fékk höfuðborg-
in Victoria, sinn hluta af firn-
um þessum; varð vindhraðinn
um hundrað og fjörutíu mílur á
klukkustund.
Hafrót f-ekur hús
og trébryggju
Eftir því sem símasamband
kemst á við staði þá út um
land, sem urðu sambands-
lausir í ofviðrinu, berast
fleiri fregnir um allskonar
skaða af völdum þess.
Frá Raufarhöfn hafa meðal
annars borizt þær fregnir, að
mikið tjón hafi orðið á bæ ein-
um á Sléttu, því að bóndinn þar
missti um 70 fjár, en óttazt, að
það hafi allt drukknað í lóni
einu, sem féð var geymt hjá.
Þá gerði, eins og annars stað-
ar, brim mikið á Hofsósi og varð
það tjón mest þar, að nýbyggt
steinhús, sem stóð næst sjónum,
sökk í sæ, er hafrótið gróf und
því. Hafnarmannvirki þar
urðu hins vegar ekki fyrir veru^
legum skemmdum, þótt brimið
losaði grjót úr hafnargarðinum.
Loks má geta þess, að í Haga-
nesvík tók af svo til nýja
bryggju og er varla urmull eftir
af henni. Bryggja þessi var úr
tré og hafði verið gerð vegna
virkjunar Siglfirðinga við Skeiðs
foss í lok stríðsins.
—VÍSIR, 14. des.
Viðbúnaður vegna
vaxandi ófriðarhættu
til, að 10—11% af járni sé 1
hraungrýti og 5—6 af hundraði
aluminíum. En til þess að það
borgi sig að vinna málmana á
þann hátt, sem hinn þýzki verk-
fræðingur hugsar sér það, yrði
að koma því, sem afgangs verð-
ur af hrauninu í peninga með
því að framleiða verðmæt efni
úr því. Hefir verkfræðingurinn
ýmsar tillögur um það og er
vongóður um, að honum takist
að finna aðferð til að hagnýta
úrganginn.
Félag slofnað.
Stofnað hefir verið hlutafélag
í þeim tilgangi að afla véla og
vinna járn, aluminíum og fleira
úr íslenzku hraungrýti. Heitir
það Vulcan h. f. Mun félagið
hafa látið Fjárhagsráð fylgjast
með þeim rannsóknum, sem
þegar hafa verið gerðar í von
um, að fá þær vélar og tæki,
sem til vinnslunnar þarf, ef rann
sóknir sanna, að þær geti orðið
hagkvæmar.
—Mbl. 21. des.
40-50 miljón króna viðskiptasamningur
gerður við Pólverja
Tillaga Krislínar Sigurðardóitur
á Alþingi
II
í gær var lögð fram á Alþingi
tillaga til þingsályktunar um
viðbúnað vegna ófriðarhættu. —
Er Kristín L. Sigurðardóttir
flutningsmaður tillögunnar, sem
er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að hlutast til um,
að nægar birgðir séu jafnan til
í landinu af hjúkrunargögnum,
lyfjum og öðrum brýnustu nauð
synjum, vegna yfirvofandi ó-
friðarhættu.
Alþingi ályktar ennfremur að
fela ríkisstjórninni að beita sér
fyrir því, í samráði við bæjar-
og sveitarfélög, að gerðar verði
nauðsynlegar ráðstafanir til ör-
yggis borgurunum, ef til styrj-
aldar drengur“.
í greinargerð segir svor
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að styrjaldaróttinn
grípur nú ört um sig í heimin-
um, enda full ástæða til að ótt-
ast, að styrjöld sú er nú geisar
í Kóreu, kunni þá og þegar að
breiðast út og verða að hinni
þriðju heimsstyrjöld. Takist svo
hörmulega til, þrátt fyrir friðar-
vilja meginþorra mannkyns, eru
líkur til, að land okkar muni
sogast inn í þann hildarleik.
Verður því að teljast tímabært,
að nú þegar séu gerðar allar þær
ráðstafanir, sem nauðsynlegar
eru til öryggis landsmönnum,
svo sem að nægar birgiðr séu
til af lyfjum og hjúkrunargögn-
um, svo og nauðsynlegustu mat-
vörum. Ennfremur er þörf á, að
athugaðir séu möguleikar á að
flytja börn og gamalmenni burt
af hættulegustu stöðunum, þang
að sem hættan er talin minni.
Fyrsti ##nýtízkuJ
togarinn íslenzkur
Brezk blöð, einkum skozk,
skrifa allmikið um togarann
„Mána“, sem nýlega var hleypt
af stokkunum í Aberdeen. Er
skip þetta smíðað fyrir íslenzku
ríkisstjórnina og er eitt af 10
togurum, sem verið er að byggja
í Bretlandi. Hefir sá fyrsti
þeirra, sem Akureyringar fá
væntanlega, verið afhentur eig-
endum í gær í Aberdeen. Heitir
hann Harðbakur.
Um „Mána“ segja ensku blöð-
in, að hann sé stærsti togarinn,
sem byggður hafi verið fyrir ís-
lendinga, 205 fet á lengd og sé
búinn öllum nýtízku tækjum.
Fái íslendingar þannig „fyrsta
nýtízku togarann“, eins og blöð-
in orða það.
—Mbl. 16. des.
Sjúkrahúsið í
Arborg
Hinn 15. desember var undir-
ritaður í Varsjá viðskiptasamn-
ingur milli Islands og Póllands
fyrir árið 1951.
Samkvæmt samningi þessum
er gert ráð fyrir að Pólverjar
kaupi allt að 50.000 tunnur af
saltsíld, 2.000 smálestir af frystri
síld, 700 smálestir af hraðfryst-
um fiski, 1.000 smálestir af
þorskalýsi og ennfremur brota-
járn og saltaðar gærur.
Frá Póllandi kaupa Islending-
ar einkum kol, járn og stál, rúg-
mjöl, sykur, kartöflumjöl, vefn-
aðarvöru, nokkuð af pappír, salti
og fleiri vörum.
Gert er ráð fyrir, að viðskiptin
geti numið allt að 45—50 millj.
króna á hvora hlið, segir í frétt
frá utanríkisráðuneytinu.
Merkileg
kvöldskemtun
—Mbl. 17. des.
Snjóflóð valda
líftjóni og eigna
Um síðustu helgi geisuðu gíf-
urleg snjóflóð í Ölpunum, er
urðu þess valdandi, að 336 manns
týndu lífi í Svisslandi og Aust-
urríki; heil þorp hurfu með öllu
af sjónarsviðinu, en eignatjón
varð svo mikið, að ókleyft hefir
reynst fram að þessu að meta
það; er þetta talinn alveg ein-
stæður atburður í sögu áminstra
ríkja.
Vinnur sér mikinn
frama
Fró Kóreu
Marjory Sæmundsson
Að því er síðustu fregnir
herma, hafa hersveitir samein-
uðu þjóðanna unnið allmikið á í
Kóreu þrjá undanfarna daga,
einkum á Mið- og vesturvíg-
stöðvunum, og má það að miklu
þakka yfirburðum loftflotans;
lenti honum saman við tólf or-
ustuflugvélar af rússneskri gerð,
og voru fjórar þeirra eyðilagðar
með öllu og tvær aðrar skemd-
ar til muna.
Úr borg og bygð
KVEÐJUSAMSÆTI
Á fyrsta árinu, sem Red Cross
Memorial sjúkrahúsið í Arborg
var starfrækt, sóttu það 309
sjúklingar, að því er yfirum-
sjónarkonunni, Mrs. Marjorie
Lane segist frá; á tímabili þessu
litu sextíu og fimm börn fyrst
dagsljósið á þessu nýja sjúkra-
húsi. Mr. V. M. Tryon, formaður
Rauða kross sjúkrahúsnefndar-
innar í Manitoba, lét þess jafn-
framt getið, að Arborgbúar
hefðu komið á fót einu allra full-
komnasta sjúkrahúsi sinnar teg-
undar í fylkinu.
Þessi unga stúlka, sem er dótt-
ir séra Kolbeins Sæmundssonar
í Seattle, Wash., útskrifaðist með
ágætiseinkunn síðastliðið sumar
af ríkisháskólanum í Wash-
ington sem Bachelor of Science
í hjúkrunarfræði og hlaut einn-
ig Certificate of Nursing Super-
vision. Og nú fyrir skömmu
hlotnaðist henni sá heiður að
vera kosinn meðlimur í Phi Beta
Kappa félaginu; er Miss Sæ-
mundsson gáfuð og frábærlega
ástundunarsöm stúlka er hvar-
vetna nýtur virðingar og trausts.
til heiðurs Páli Kolka lækni,
sem nú er á förum heim til ís-
lands eftir sigurför sína um
byggðir Islendinga í Ameríku,
verður haldið í gestasal Hudson
Bay 1. febrúar n.k. klukkan
12.30 e. h.
Öllum íslendingum er boðið að
taka þátt í samsæti þessu, og
kveðja þennan góða gest. Mál-
tíðin kostar $1.00 fyrir manninn.
Þeir sem vilja taka þátt í þess-
ari kveðjuathöfn verða að gefa
sig fram við einhvern af undir-
rituðum, ekki seinna, en á þriðju
daginn, 30. janúar, 1951.
F orstöðunef ndin,
Philip M. Pétursson, sími 34 571
Guðmann Levy, sími 404 979
Jón J. Bíldfell, sími 722 740
☆
Mr. Björn Guðnason frá Kan-
dahar, Sask., var staddur í borg-
inni um miðja fyrri viku.
Karlakór lúterska prestaskól-
ans í St. Paul, Minnesota, söng
fyrir fullu húsi í Fyrstu lútersku
kirkju á mánudagskvöldið, 23.
þ. m. Er hér um að ræða 32
manna kór, myndaðan af valdri
sveit raddmanna úr nemenda-
liði skólans, sem nú mun vera
um 300. Er þetta aðal presta-
skóli norsku lútersku kirkjunn-
ar, sem til skamms tíma gekk
undir því nafni, en hefir nú
sleppt þjóðernislegu tilgreining-
unni. Söngurinn var allur kirkju
legur, og var unaðslegur á að
hlýða, og öll framkoma hinna
ungu manna með ágætum. Er
þetta í fyrsta sinn sem flokkur
þessi heimsækir Canada, en áður
hefir hann getið sér góðan orð-
stír víða í Bandaríkjunum. Sam-
skot eru tekin á öllum stöðum
þar sem flokkurinn syngur á
þessari ferð, og er fyrirfram á-
kveðið að þau gangi til viðreisn-
ar lútersku kirkjustarfi á eynni
Sumatra, en það starf var að
mestu eyðilagt í árásarstríði
Japana í síðustu heimsstyrjöld.
Einn af kennurum skólans, dr.
Rosental, var í fylgd með flokkn
um, og flutti hann stutta ræðu.
Hafði hann áður verið prófessor
við háskóla í Riga í Latvíu, en
flúði þaðan undan ofríki komm-
únista.Hefir hann dvalið vestan
hafs aðeins um fjögurra mánaða
skeið, og var furðulegt að heyra
hve góðu valdi hann hafði náð á
enskri tungu á svo stuttum
tíma. Var ræða hans skorinorð
aðvörun til áheyrendanna að
standa á verði um hinn trúar-
og menningarlega arf, og um
leið grátleg hrygðarmynd þess
ástands sem ríkir þar sem hin
andkristnu spillingaröfl komm-
únismans ná sér niðri, eins og
nú er í Eystrasaltslöndunum og
víðar, þar sem ræðumaður er
kunnugur málum af eigin reynd.
Kvöldstundin var bæði upp-
byggileg og fræðandi. Að aflok-
inni söngskrá voru ríflegar kaffi
veitingar fram bornar af yngra
kvenfélagi safnaðarins í sam-
kvæúiissal kirkjunnar.
Ráðuneytisbreytingar
Forsætisráðherra Breta, Mr.
Clement Attlee, kunngerði þann
18. þ. m., að hann hefði gert
nokkrar breytingar á ráðuneyti
sínu, þannig, að Aneurin Bevin,
sem fram að þessu hafði með
höndum forustu heilsumálaráðu-
neytisins, yrði nú verkamála-
ráðherra, og að eftirmaður hans
yrði George Isaacs; þá skipaðist
og svo til, að Hugh Dalton, fyrr-
um fjármálaráðherra, tæki við
nýju embætti, er nefndist hús-
næðis- og húsaskipunarráðu-
neyti.