Lögberg - 08.02.1951, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR, 1951
Landbúnaðurinn 1950
Áramólahugleiðingar eíiir Árna G. Eylands
(NIÐURLAG)
Vélakoslur og raekiunin.
Vélakostur ræktunarsamband
anna jókst allmikið á árinu, en
þó hægar en áður, og veldur því
stórhækkað verð á öllum búvél-
um og allvel er nú orðið fyrir
séð um vélakost í mörgum sveit-
um.
í árslok áttu 62 ræktunarsam-
bönd þessar ræktunarvélar, sem
styrkur hafði verið veittur til
að kaupa, samkvæmt þeim lög-
um, sem um það gilda, en alls
hafa verið stofnuð 63 ræktunar-
sambönd:
8 (5) skurðgröfur,
97 (67) beltatraktora með
ýtum,
3 (6) beltatraktora án ýtu,
28 (25) hjólatraktora,
17 (15) kílplóga,
49 (41) brotplóg,
34 (15) akurplóga,
4 (4) diskaplóga,
114 (74) diskaherfi,
7 (5) rótherfi,
14 (14) fjaðraherfi,
11 (11) flaghefla.
Auk þess töluvert af flutn-
ingatækjum.
Styrkur til vélakaupa rækt-
unarsambandanna nam alls kr.
4.034.639.92 í árslok (kr. 2.569.
997.49 í árslok 1949).
Ekki voru fluttir inn nema 11
beltatraktorar á árinu og ekki
nema 21 hjólatraktor. Af öðrum
búvélum til hemilisnofa var
fremur lítið flutt inn á árinu
og engir jeppar til almennra
þarfa. Horfir nú til vandræða
um störf héraðsráðunauta og
annara starfsmanna bænda sök-
um vöntunar á slíkum farar-
tækjum, þótt eigi verði með
sanni sagt, að lítið sé um bíla
á landinu, miðað við heildar-
þarfir og fólksfjölda.
Vélasjóður hélt úti 30 skurð-
gröfum, er unnu að framraeslu.
Ekki eru fyrir hendi tölur um
afköst þeirra. Árið 1949 hélt
vélasjóður úti 28 skurðgröfum,
er grófu 303322 lengdarm., er
mældust 1.106.433 rúmm.
Hjá Nýbýlastjórn voru 3 gröf-
ur að verki, er grófu 58.750
lengdarm., sem eru 260.876
rúmm., en alls voru grafnir við
landnám hjá nýbýlastjórn 67.-
097 lengarm., sem eru 292.533
rúmm.
Loks unnu 10 gröfur á vegum
ræktunarsambanda, sem eru
eign þeirra.
Engar tölur eru fyrir hendi,
er sýni hve mikið var unnið að
jarðvinnslu til nýræktunar.
Um Austurland og Norður-
land, austan til, tálmaði veður-
far vinnslu. Skortur á girðinga-
efni hefir einnig dregið nokkuð
úr því, að ræktunarframkvæmd
ir væru fullgerðar. *
Grasfræsala SÍS — en það er
nær eitt um sölu þeirrar vöru,
var 115 smál. 1949, en það svarar
til 2875—3000 ha. nýræktar.
1950 var grasfræsalan ekki nema
84 smál., er svarar til 2100—2300
ha. nýræktar. Þó er varla líklegt
að jarðvinnsla til nýræktar hafi
dregist saman sem þessu nemur.
Jarðræktarstyrkur, sem greidd
ur var á árinu nam 4,2 millj. kr.,
en 5,149 millj. árið 1949.
Nýbýlastjórn samþykkti á ári-
inu stofnun 37 (32) nýbýla.
Ræktunarsjóður lánaði ca. 345
aðilum 7,496 millj. kr. til rækt-
unarframkvæmda og byggingar
peningshúsa og annara útihúsa,
en árið 1949 námu slík lán 5,153
millj. kr. til 207 aðila.
Kaup á tilbúnum áburði voru
á árinu 2442 (2336) smál. köfn-
unarefni, 948 (989) smál. fosfor-
sýra og 885 (774) smál. kalí, mið-
að við „hrein“-efni.
í lok ársins kom hin lengi
Minnist
BETEL
á afmælisdegi stofnunar-
innar 1. marz
þráða tilkynning um, að verk-
smiðja til að framleiða köfnun-
arefnisáburð yrði byggð fyrir
Marshallfé. Við þá framkvæmd
eru miklar vonir tengdar, en því
er ekki að gleyma, að eftir er
að standa við stóru orðin. —
Hugmyndirnar og fullyrðing-
arnar hvað hér- verði gert í rækt
unarmálum þegar innlendur
köfnunarefnisáburður væri feng
inn, hafa stundum verið svo
öfgakendar, að þær nálgast
blekkingar, sem fyrst og fremst
eru sjálfsblekkingar. I þessu
máli, sem öðrum, er mikils um
vert að bændur standi föstum
fótum á jöfnum sverði, en tilli
ekki aðeins tánum „tindana á“.
Allvíða um landið sjást nú
orðið velræktaðar sáðsléttur.
Jafnbeztar hef ég séð þær í N,-
Þingeyjarsýslu og svo í Eyja-
firði og er það merkilegt, að í
N.-Þingeyjarsýslu eru ágæt sáð-
tún ræktuð úr lyngmóum, sem
virðast ófróir til ræktunar.
Annars vill mjög brenna við, að
nýræktartúnin eru léleg að
gróðri og sprettu. Enn gæti
hann spurt mig útlendingur,
sem allvíða hafði farið um beztu
sveitir, að því er varðar rækt-
unaraðstæður, sömu spurningar
og þá: „hvernig stendur á því,
að ég sé hvergi sáðtún?“ Hann sá
ekki að sáðslétturnar væru sáð-
tún, betur komu þær honum
ekki fyrir sjónir en þetta.
Gengisfelling —
áburður og fóðurbæíir.
Gengisfellingin kom fyrr og
harðar niður á bændum og bú-
skap þeirra en öðrum þegnum
þjóðfélagsins. Bar þar fyrst til
hækkun á tilbúnum áburði, því
að svo illa tókst til, að mikill
hluti hans var ógreiddur, er
gengisfellingin reið yfir. Hefði
það munað bændum miklu og
sætt þá stórum betur við gengis-
fellinguna, ef áburðarkaupunum
hefði verið bjargað í höfn í tæka
tíð. Þá hefðu þeir ekki orðið
fyrir barðinu á hinu lækkaða
gengi, sér til stórmeins, fyrri
en til fóðurbætiskaupanna kom
undir haustið.
Hundrað kíló af köfnunarefn-
isáburði (kalkammonsaltpétur)
kostuðu kr. 64,00 úr húsi í
Reykjavík vorið 1949, en kr.
91.00 vorið 1950.
Verðhækkun á fóðurbæti hef-
ir þó komið ennþá harðar við.
Fóðurblanda handa kúm kostaði
kr. 120.00 100 kg. hér í Reykja-
vík í ársbyrjun, en kr. 200.00 í
árslok (heildsöluverð). Síldar-
mjöl kostaði kr. 100.50 100 kg.
frá verksmiðju haustið 1949, en
kr. 247.20 í haust. — Þessi verð-
hækkun stafar þó eigi að öllu
leyti af gengisfellingunni, verð-
hækkun á síldarmjöli erlendis á
sinn þátt í hækkuninni. Það er
í sambandi við hækkun síldar-
mjölsins, sem uggur sækir mest
að um afkomu vetrarins og
skepnuhöld. Þrátt fyrir fjár-
hagslega aðstoð og hjálp hafa
bændur í óþurrkasveitunum eigi
treyst sér til að kaupa síldar-
mjöl til jafns við það, sem áður
var og alls eigi svo að öruggt sé
með hinum hröktu og litlu heyj-
um.
Innanlandssala á fiskimjöli og
síldarmjöli ársins 1949 nam 7303
smálestum, en af mjölfram-
leiðslunni í sumar seldust ekki
nema 2000 smálestir og senni-
lega alls ekki yfir 1500 smál. af
karfamjöli og öðru fiskimjöli.
Hið stórhækkaða verð á fóð-
urbæti beinir bændum, sem
stunda mjólkurframleiðslu einn
ig inn á þá braut, að reyna að
búa meira við eigin framleiðslu,
mun það og óþurrkarnir í sumar
ýta eitthvað undir aukna vot-
heysgerð, bæði til heybjörgun-
ar og fóðurbóta.
Þessi leið verður þó því aðeins
til bjargar að ræktunin aukist
bæði að magni og þó miklu frem
ur að gæðum, þar bíður vandinn
mestur.
Skólarnir.
Aðsókn að bændaskólunum er
að glæðast aftur. Á Hvanneyri
útskrifuðust 36 nemendur og nú
stunda þar 55 piltar nám. 17 1
yngri deild, 31 í eldri deild og
7 í framhaldsdeild.
Á Hólum útskrifuðust 16 nem
endur, 15 st'unda nám í yngri
deild og 15 í eldri deild.
Frá Garðyrkjuskóla ríkisins
voru brottskráðir 6 nemendur
og 19 stunda þar nám, 7 í yngri
deild, 8 í eldri deild og 1 verk-
legt nám.
Og íram líða slundir.
Og margs er fleira að minnast
og til að hugsa. Tilraunin með
þýzka verkafólkið tókst svona
og svona og bauð ekki til endur
tekningar. Skortur á fólki til bú-
starfa var heldur vægari á ár-
inu en áður, eða það er farið að
draga úr tali um þá hluti. Held-
ur rofar til í sauðfjársveitunum
eftir því sem karakúlhörmung-
unum léttir. Eyðibýli byggjast
og færri jarðir fara í auðn en
áður.
Það verður bæði gagn og gam-
an að sjá hvað manntalið 1. des.
leiðir í ljós um búsetu og at-
vinnuhætti, hver breyting er á
orðin síðan 1940 er síðasta at-
vinnumanntal fór fram. Frá
undanförnum 10 árum eru eng-
ar tölur til um þetta, en þau
hafa verið viðburða- og örlaga-
rík fyrir þjóðina og ekki síður
fyrir bændur og búalið en aðra
landsmenn.
Árbók landbúnaðarins kom út
á árinu. í henni er mikill fróð-
leikur um búskapinn, en mjög
skortir þar upplýsingar um
fjölda býla og búa, bænda og
búaliðs, er að búnaðarfram-
leiðslu vinnur.
Handbókarnefnd var skipuð á
árinu til að vinna að útgáfu
fræða er bændum henti í dag-
legri önn. Um sinn verður látið
nægja að gefa út vasabók með
almanaki og upplýsingum, er
mun verða arftaki vasakvers
þess er SIS gaf út um skeið.
Handbókin kemur svo síðar.
Ný jarðræktarlög voru sett á
árinu, eftir margháttaðan undir
búning — lög næstu framtíðar
á því sviði.Mikið og gott ný-
mæli í þeim eru ákvæði um
héraðsráðunauia þótt þau séu
klúðursleg. Annað nýmæli mis-
lukkað er um Vélanefnd ríkis-
ins og Vélasjóð. Það er Verk-
færanefnd ríkisins afturgengin.
Víst þurfti það, fyrirkomulag
endurfæðingar við, enda margt
breytt frá því að Verkfæranefnd
var í vöggu, en illa hefir til tek-
ist og hlálega frá hendi löggjaf-
ans, svo að mikla bjartsýni þarf
til að treysta að vel takist fram-
kvæmdin. Hins vegar er skylt
góðs að væríta, því að útgerð
skurðgrafa Vélasjóðs og annað,
er Vélanefnd á að hafa með
höndum, er geysi mikilsvert fyr-
ir bændur landsins, veltur á
stórmiklu fjárhagslega um þenn
an gilda þátt allra ræktunar-
framkvæmda.
Þjóðin öll óskar bændum og
búaliði góðs búnaðarárs og starfa
á hinu nýbyrjaða ári, og gró-
anda og gæfu frá ári til árs.
Mælt við
Dr. Svein E. Björnsson og frú
Marju L. Björnsson við burtför
þeirra írá íslandi 1. des. 1950
Heim sig hjón týgja
hávegu skýja.
Köll skyldu knýja
kær verk að drýgja.
Hug-hlýju vígja
harpa og gígja.
Sóttu sæmd nýja
Sveinn og María.
☆
Leggja frá landi
loft á vélgandi,
fylgir fljúgandi
frónskur hlú-andi.
Heillir veg vandi
vinum farandi
umsveiptum yljandi
íslands þelbandi. —
S. Baldvinsson
Úr fórum þjóðsagnasafnarans
ÚR FÓRUM JÓNS ÁRNA-
SONAR. Sendibréf. Finnur
Sigmundsson bjó til prent-
unar. Fyrra bindi. Hlaðbúð.
Reykjavík 1950. Prentsmiðj-
an HÓLAR.
Finnur landsbókavörður Sig-
mundsson hefir nú í þriðja sinn
gefið út á smekklegan og skemti
legan hátt gagnmerkt -safn af
bréfum frá síðustu öld. Fyrst
kom Húsfreyajn á Bessastöðum.
og var sú útgáfa að ýmsu leyti
nýjung í bréfaútgáfu hér á
landi. Hin eldri bréfasöfn vor
eru flest á þann hátt úr garði
gerð, að safnað hefir verið í eina
heild bréfum frá einum og sama
manni, en ekkert hirt um bréf
til hans. Hefir mér stundum
fundist þessi aðferð áþekk því,
ef prentuð væru úr leikriti ein-
ungis tilsvör aðalpersónunnar,
en öllu öðru algerlega sleppt
Háttur Finns Sigmundssonar er
hins vegar sá, að safna í eina
heild bréfum frá einhverjum
merkismanni og bréfum til hans,
tengja það síðan saman með
stuttum frásögnum og nauðsyn-
legum skýringum. í safninu
Sonur gullsmiðsins á Bessa-
stöðum fullkomnaði Finnur í
sumum atriðum útgáfutækni
sína. Er hið nýja safn gefið út
með sama sniði, nema hvað
skýringarnar eru nú öllu veiga-
meiri en áður.
Það er skemmst af að segja,
að Úr fórum Jóns Árnasonar er
einstaklega skemmtileg bók. Ég
aflaði mér hennar daginn, sem
hún kom út, hóf lesturinn að
kvöldi og las lengi nætur. Er
hún eina nýja bókin frá þessu
hausti, sem skert hefir nætur-
svefn minn til muna. Bréfasafn-
ið er byggt utan um ákveðinn
kjarna: Það segir frá því, hvern-
ig til varð einhver ágætasta bók
íslenzk, Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar. Maður fylgist með því
stig af stigi, hvernig þetta frá-
bæra safn þróast og gæðist lífi,
eins og fóstur í móðurkviði.
Þessi rauði þráður, sem gengur
í gegnum allt bréfasafnið, teng-
ir það saman í heild og verður
til þess, að maður les bókina í
einni lotu, engu síður en hag-
lega gert skáldrit.
Skemmtilegar eru margar þær
myndir, sem bréfin bregða upp,
eigi sízt af höfundunum og
hugsunarhætti þeirra. Þarna
eiga margir ágætismenn hlut að
máli, og bera bréfin þeim yfir-
leitt hinn prýðilegasta vitnis-
burð. Einna hlýjast í þeli verð-
ur manni þó til Jóns Árnasonar
sjálfs, þessa einlæga, trygg-
lynda og hógværa snilldar-
manns, sem jafnvel kennir sjálf-
um sér um prentvillurnar í
þjóðsögunum, þótt enga próf-
örk hafi hann lesið. Annar á-
gætasti bréfritarinn í þessu
safni held ég að sé Guðbrandur
Vigfússon, fluggáfaður maður
og afburða vel ritfær. Við lestur
þeirra bréfa hans, sem hér birt-
ast, vaknar sú spurning, hvort
ekki væri ástæða til að gera
bréfum hans meiri skil en hér
var kostur. Þætti mér líklegt, að
Finni Sigmundssyni yrði ekki
skotaskuld úr því, að taka sam-
an skemmtilega bréfabók um
Guðbrand.
Aðrir mikilsháttar menn, sem
eiga þarna góð bréf, eru t. d.
Sérá Skúli Gíslason, séra Sig-
urður Gunnarsson, séra Árni
Helgason, séra Björn Halldórs-
son, Jón Sigurðsson forseti,
Benedikt Gröndal, Þuríður
Sveinbjarnardóttir Kúld og
séra Sveinn Níelsson.
Margt kemur fram í bréfum
þessum, sem ástæða væri til að
benda á, en rúmið leyfir það
ekki. Þó vil ég ekki láta hjá líða
að vitna til bréfs frá séra Páli
Jónssyni á Myrká, þar eð það
sýnir ljóslega, hvern dóm margir
lögðu á þjóðsögur fyrir daga
Jóns Árnasonar. Séra Páll seg-
ir: „Ég mun hafa sagt yður það
fyrir löngu síðan, að áður en
ég lagðist löngu leguna á Myrká
MINNINGARORÐ:
Mrs. Sæunn Stefónsson
Þessi mikilhæfa og göfuga
kona lézt, á níunda ári yfir átt-
rætt, laugardaginn, 30. desem-
ber, á heimili tengdasonar og
dóttur, Mr. og Mrs. S. Oddson í
Vancouver, í British Columbia.
Hún var fædd á Ánastöðum
í Skagafirði, á íslandi, í júní
1862, dóttir Jóns Ásmundssonar.
Áriði 1883 giftist hún Jóni Ste-
fánssyni. Það sama ár fluttu
þau til Canada og settust að í
Nýja-íslandi. Þau bjuggu all-
mörg ár á landi suðvestur af
Gimli, og síðar í Gimli-bænum.
Árið 1912 fluttu þau á land í
grend við Steep Rock, Manitoba,
og bjuggu þar til ársins 1936. Þá
fluttu þau í bæinn Steep Rock
og áttu þar heima til 1939; þá dó
Mr. Stefánsson.
Þau hjónin eignuðust 8 börn.
Þrjár dætur eru dánar: Inga
Magnea, gift Stefáni Eldjárns-
syni á Gimli; Elín, Mrs. Wis-
hockil, í Calífornia; Jónína, gift
Friðþjófi E. Snidal í Steep Rock.
Á lífi eru þrír synir: Pálmi,
Alex og Stefán, sem allir eiga
heima að Steep Rock, og tvær
dætur: Mrs. Anna Reid, í San
Fransisco; og Mrs. Valdína Odd-
son í Vancouver. Barnabörnin
eru 20.
Eftir lát mannsins síns átti
Mrs. Stefánsson heima hjá börn-
um sínum, nokkuð í Vancouver
og nokkuð að Steep Rock, en
eftir 1946, var fastaheimili henn
ar hjá Oddsons-hjónunum í
Vancouver, þar sem alt var
gjört, sem unt var, henni til að-
stoðar og ánægju.
Heilsu mun Mrs. Stefánsson
hafa haft fremur góða, enda
hlífði hún sér ekki við störfin,
sem oft voru mikil. Þau voru
prýðilega af hendi leyst. Fyrir
rúmu ári síðan kendi hún sjúk-
dóms þess, er leiddi hana til
hinnar hinstu hvíldar. í apríl-
Mrs. Sæunn Slefánsson
máuði síðastliðnum gekk hún
undir uppskurð, sem veitti
henni nokkurn bata, en aðeins
um stundarsakir.
Mrs. Stefánsson var frábærlega
góð kona. Það leyndi sér ekki í
unaðslegri framkomu hennar,
því þar spegluðu sig alúð og ein-
lægni, og hjá henni var einnig
trygð, sterk og staðföst. Jesús
sagði: „Þannig lýsi ljós yðar
mönnunum, til þess að þeir sjái
yðar góðverk og vegsami Föður
yðar, sem er í himnum“. Hún
átti það ljós í hugsun, orðum og
verkum. Meðal annars skein
það í glaðlyndi, sem aldrei
brást, hvað miklir sem erfiðleik-
arnir voru, og það ljómaði skært
1 vinsemd og hjálpsemi, sem alt
vildi gjöra öðrum til gagns og
gleði, hjálpar og aðstoðar.
Hún var frábær eiginkona,
dásamleg móðir, unaðsleg vin-
um, auðug að gæðum, Guði trú
ævina út.
Hennar er sárt saknað af börn-
um, barnabörnum og mörgum
vinum.
Rúnólfur Marteinsson
(2% ár), var ég búinn að safna
mestu firnum af allra handa, er
ég gat komizt yfir, og ætlaði að
skrifa það upp í bók, því að þá
var engin von til að þjóðsögur
myndu koma á gang; en af því
að ég hélt að ég myndi deyja,
lét ég brenna það allt. En nú
iðrast ég eftir, því að þar hefði
mátt fá margt nýtilegt í þjóð-
sögur“. — I öðru bréfi, rituðu
skömmu síðar, endurtekur séra
Páll söguna-um þjóðsagnabrenn
una og bætir við: „Þá voru eng-
um farnar að detta í hug neinar
þjóðsögur. Allt þess háttar var
þá í fyrirlitningu, svo ég áleit,
að það lýtti mig látinn að hafa
safnað hégilju- og hjátrúar-
sögnum og þulum, er allt þess
háttar var þá kallað. En strax
þar á eftir byrjaði þjóðsagna-
tímabilið“.
Þessi ágæta bók, sem ég hef
nú reynt að lýsa í sem fæstum
orðum, er fyrra bindi af tveim-
ur. Síðara bindið kemur út á
næsta ári. Segir útgefandi, að
þar beri meðal annars á góma
„starf þeirra Sigurðar málara
fyrir forngripasafnið, kvonfang
Jóns og heimilishagir, umsjón-
arstarf hans í lærða skólanum,
bókaútgáfa Páls Sveinssonar,
þjóðhátíðin og svo frv. .. . Þá eru
ferðalok, sagt frá síðustu ævi-
árum Jóns Árnasonar, andláti
og eftirmælum“.
Munu allir, sem lesið hafa
þetta bindi, hyggja gott til fram-
haldsins. Gils Guðmundsson
Ég bið oð heilsa
(Lag Inga Lárussonar: „Nú
andar suðrið sæla . . . .")
Flutt í Samsæti, sem Aust-
firðingafélagið á Akureyri hér
dr. med. Sveini Björnssyni frá
Árborg, Man., og frú hans, Marju
Grímsdóttur Laxdal, s.l. laugar-
dag:
Að hausti blikar víða’ á vængi
þanda
um vegu háa útum bláa geima.
Þá liggur margra leið til fjarra
heima. —
Senn leggið þið af stað til
„Furðustranda!"
En þegar rofna kveðjur hlýrra
handa,
og hópur vina starir trega-
blandinn,
sælt er að minnast: — enn er
sami andinn
og íslenzk tryggð hjá hverjum
góðum landa!
Af klökku hjarta gildis-gesti bið
Guðs kveðju’ og mína bera
frændum góðum
og dreifðum fjölda vina’ um
Vestur-fold!
Minnumst þess æ, að arfleifð
eigum við:
Óð-borna tungu’ og sögu á
Norðurslóðum
og erum runnin öll úr íslands
mold!
Helgi Valtýsson
Þá barst heiðursgestunum
þessi vísa frá samkvæmisgesti:
Enn hafa vitjað okkar vestan
um haf
valmenni af frónskum stofni,
sem fjarlægðin hefir ei fært á
kaf
í framandi hópsálnaofni.
Ingólfur Erlendsson
Til Dr. Sveins
Björnssonar
Þó að margir flyttust frá
fósturlandsins armi
íslenzk hjörtu altaf slá
undir þeirra barmi.
Heimalandsins hækkar brá
hjartað fyllist vonum
þú kemur eins og andblær frá
okkar týndu sonum.
Allir segja það til þín
þú sért góður gestur
bæði ég og bygðin mín
biðjum að heilsa vestur.
Bjarni Jónsson