Lögberg - 08.02.1951, Blaðsíða 8

Lögberg - 08.02.1951, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. FEBRÚAR, 1951 ANNAR STÓRBRUNI í FYRRINÓTT: Gistihús Hótel Selfoss brann til ösku með öllu innbúi Álta manns svaf í húsinu, bjargaðist nauðulega, en missti aleigu sína. — Einn íbúanna vaknaði af tilviljun. Úr borg og bygð Matreiðslubók Dorcasfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir nú til sölu splunk- urnýja matreiðslubók, er það hefir safnað til og gefið út; bók þessi er með svipuðum hætti og hinar fyrri, vinsælu matreiðslu- bækur, er Kvenfélög safnaðar ins stóðu að; þetta er afar falleg bók með fjölda gamalla og nýrra uppskrifta, sem koma sér vel á hvaða heimili, sem er. Matreiðslubók þessi kostar $1.50 að viðbættu 10 centa burð- argjaldi. Pantanir, ásamt andvirði, sendist: Mrs. A. MacDonald 11 Regal Ave. St. Vital Sími 205 242 Mrs. H. Woodcock 9 St. Louis Road, St. Vital Sími 209 078 eða til Columbia Press Limited. 695 Sargent Ave. Sími 21 804. ☆ ÆTTLAND og ERFÐIR, hin vinsæla bók eftir dr. Ric- hard Beck, kostar $3.50 óbundin og 4.75 í bandi. FÖÐURTÚN eftir dr. P. V. G. Kolka, með 280 myndum kostar $10.00 ó- bundin en $13.00 í bandi. Fást í BjÖRNSSONS BOOK STORE 702 Sargent Avenue, Winnipeg. ☆ Hingað komu til borgar á laugardagskvöldið var, tveir ungir og efnilegir menn, ættaðir af Austfjörðum, Kristinn Nils Þórarinsson, sonur Þórarins Björnssonar frá Stuðlum í Norð- firði og Pálínu Þorsteinsdóttur úr Vestmannaeyjum, útskrifað- ur af Verzlunarskóla íslands; hinn maðurinn er Páll Sæmunds son rafvirki, sonur Sæmundar Sæmundssonar af Fjótsdalshér- aði og Ingibjargar Pálsdóttur frá Fáskrúðsfirði; þeir fóru vestur um haf með Goðafossi og dvöldu nálega vikutíma í New York; félagsbræður þessir fóru norður til Árborgar á þriðjudaginn, en þar hafa þeir þegar fengið at- vinnu. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will hold a meeting in the Lower Auditorium on Tuesday Febru- ary 13th at 2.30 p.m. ☆ Stúkan SKULD heldur fund í Goodtemplara- húsinu á þriðj udagskvöldið þann 13. þ. m. kl. 8. Vonast er eftir góðri aðsókn. ☆ Þakklæli til vina Fyrir margar jólakveðjur og aðrar kveðjur þökkum við hjón- in af hjarta. Vegna veikinda okkar fyrir jólin, var okkur ekki unt að senda vanalegar há- tíðakveðjur. Ekki heldur treyst- um við okkur til að tjá hverj- um einstakling þakklæti okkar bréflega. Á því biðjum við af- sökunar; en við erum þakklát fyrir alla vinsemd og biðjum Guð að blessa hana. Ingunn og Rúnólfur Marteinsson ☆ Heimilisiðnaðarfélagið heldur næsta fund sinn þriðju dagskvöldið 13. febrúar að heim- ili Mrs. Albert Wathne 700 Ban- nig St. Byrjar kl. 8 e. h. Frú Guðrún Skaptason, 378 Maryland Street, Winnipeg, fer þess vinsamlega á leit, að þeir umboðsmenn að ársritinu Hlín, sem kynnu að hafa nokkur óseld eintök, sendi henni þau við allra fyrstu hentugleika vegna þess að hún hefir pantanir að þeim. ☆ Þann 28. desember síðastliðinn lézt á sjúkrahúsinu í Wynyard, Sask., Jósafat Jósephsson, ná- lega 86 ára að aldri; hann var sonur þeirra hjóna Jósephs Björnssonar og Málmfríðar Hall grímsdóttur úr Núpasveit í Þingeyjarsýslu, er fluttust vest- ur um haf 1878 og dóu bæði árið 1905. Jósafat, venjulega kallaður litli Joe, var síðastur sex bræðra, Tvo menn verður hér að nefna fyrst til sögu, Thomas S. Gard- ner, efnafræðing í Rutherford í New Jersey og Edward Wenis aðstoðarmann hans. Þeir hafa um nokkurt skeið haft í fóstri „guinea pig“, sem þeir nefna Pétur mikla. Hann hefir verið alinn á sterkum fjörefnum og gerefni í því skyni að lengja líf hans. Og það hefir tekist. Hann er nú orðinn svo gamall að sam- svara mundi því að maður væri 148 ára, og hann er enn hinn brattasti. Af þessu eina dæmi er ekki hægt að draga þá ályktun, að menn geti lifað svo lengi. En Pétur er ekki eina dýrið, sem tilraunir hafa verið gerðar með. Tilraunirnar skipta þúsundum, og allar benda þær í sömu átt, að auðvelt sé að lengja lífið. Gardner segir að lífið sé eins og klukka, sem má færa aftur á bak. „Það eru mestar líkur til þess“, segir hann, „að eftir tíu ár verði þessum rannsóknum svo langt komið, að þá verði hægt að lengja líf manna svo, að þeir geti að minsta kosti orð- ið 120 ára“. Vísindin hafa fyrir löngu kom- ist að því, að ekkert „ákveðið lífsskeið“ er til. Það sést einnig á því hvað meðalaldur manna hefir hækkað hin síðari ár. Með- alaldur steinaldarmannsins, sem bjó í hellum, var ekki nema 18 ár. Meðalaldur fólks í Indlandi er ekki nema 27 ár. Meðalaldur Rómverja hinna fornu var 22 ár. Fyrir 100 árum var meðalaldur Bandaríkjamanna 41 ár, en er nú 65Y2 ár. Það eru aðallega veikindi, viðurværi og húsa- kynni, sem hafa áhrif á meðal- aldur manna, en auk þess koma svo hinir svokölluðu hrörnunar- sjúkdómar, þegar hjarta, lifur, lungu og nýru bila, eða æðar kalka. Henry S. Simms dr. við Col- umbia háskólann, hefir sagt, að ef menn geti sneitt hjá sjúkdóm- um og hrörnun, þá geti þeir lifað í 800 ár og jafnvel í allt að 22.000 ár. Nú hefir læknavísindunum tekist að sigrast á flestum sjúk- dómum og hinir og aðrir vís- indamenn eru að uppgötva hvernig á að sigrast á hrörnun. Hér eru nokkur dæmi: Dr. Henry Clegg Sherman, fyrrverandi prófessor við Col- umbia háskólann, hefir getað er kvöddu þennan heim; hann lætur eftir sig tvær systur, Helgu Longmore í Edmonton, og Guorúnu Finnbogason í Elfros, og í þeim bæ fór útför hans fram. ☆ ÞjóSræknisdeiIdin FRÓN þakkar hér með eftirgreindu fólki verðmætar bókagjafir og lánsbækur bókasafninu til handa: Guðmundur Jóhannesson, Mrs. B. S. Benson, Dr. P. V. G. Kolka, Lárus Scheving Ólafsson, Akra- nesi, og Mrs. O. Stephenson. Áminstar bókagjafir eru safn- inu kærkomnar, og þeim er við- taka veitt í þakklátum huga. Fyrir hönd deildarinnar FRÓN J. Johnson, bókavörður Iengt líf í rottum um 10% með því að gefa þeim A-fjörefni. Dr. T. Robertson, ástralskur vísindamaður, hefir lengt ævi músa um 17% með því að gefa þeim gerefni. Dr. Anton J. Carlson við há- skólann í Chicago, hefir tekist að lengja líf hjá rottum um 20% aðeins með því að láta þær fasta þriðja og fjórða hvern dag. Dr. C. M. McDay við Cornell háskólann, hefir lengt líf hjá rottum um 50% með því að láta þær ekki fá nema lítið af þeirri fæðu, sem er rík af hitaeining- um, en auka við þær steinefni og fjörefni. " Dr. Gardner hefir lengt ævi músa um 10% með því að gefa þeim gerefni. Vísindamenn vita það, að hrörnunarsjúkdómar koma af því, að smám saman safnast fyr- ir í líkamanum ýmis úrgangs- efni, sem hann getur ekki losað sig við, og eins í blóðinu. Sé hægt að finna ráð til þess að losa líkamann við þessi efni, þá kemur það af sjálfu sér að lífið lengist. Fyrir 30 árum gerðu tveir frægir vísindamenn, dr. Alexis Carrel og dr. P. Lecomte du Nouy merkilega tilraun á göml- um hundi. Þeir létu honum blæða út nær til ólífið, hreins- uðu blóðið og dældu því síðan í æðar hans að nýju. Þegar hund- urinn rétti við var hann orðinn ungur í annað sinn. Hann gekk úr hárum og fékk frábæra mat- arlyst og auk þess fékk hann nýjan dug til ástamála. Þessi tilraun hefir ekki verið endur- tekin, en vísindamenn eru að reyna að finna meðul er að gagni geta komið til þess að hreinsa blóðið. En ætli menn að lengja líf sitt, þá er mest komið undir því á hverju þeir nærast. Fjörefnið B-6 hefir haft undraverð áhrif í þá átt að lengja líf flugna. Pét- ur mikli fékk aðeins fjörefni frá Stórt íbúðar- og gistihús brann og engu af innanstokksmunum varð bjargað. Um miðjan dag í gær varð stórbruni að Ketilsstöðum á Völlum. Brann þar til kaldra kola á skammri stundu, tvílyft stórhýsi, ein mesta bygging í sveit á Austur- landi. Engu af innanstokks- munum varð bjargað. Brann á þrem stundum. Eldsins varð vart um klukk- an tvö í gær, en magnaðist skjótt og varð engu bjargað úr húsinu. Fólk kom af öðrum bæjum á Völlum, er vitnaðist um eldinn, en ti_I Egilsstaða náðist ekki með beiðni um mannhjálp við slökkvi- og björgunarstarf fyrr í fyrrinótt kom eldur upp í gistihúsbyggingu Hótel Selfoss, sem var einlyft timburbygging, áföst við veitingahúsið og bíóið, og brann hún til kaldra kola og varð sama sem engu bjargað, en átta manns, er þarna sváfu kom- ust nauðuglega út. Fyrir hið mesta harðfylgi slökkviliðsins á Selfossi tókst að verja bíóið og veitingahúsið fyrir eldinum, en þó urðu þar einnig skemmdir af vatni og reyk og nokkrar af eldi, er komst í hurðir og þök, en veggir eru steyptir. Gííurlegi ijón. Þeir, sem í gistihúsinu bjuggu, voru Guðmundur Maríasson veitingarrnaður, Sigríður K. Jónsdóttir, kona hans, og fjögur börn þeirra, fimm til tólf ára, Sigurður Christiansen, starfs- maður í veitingahúsinu og Ing- ólfur Filippusson, starfsmaður í verkstæðum Kaupfélags Árnes- inga, er leigði þarna. Misstu þau hjónin, Guðmund- ur og Sigríður allt, sem þau áttu, stórt og smátt. Svo nauðug lega björguðust þau út með börnin, að þau náðu ekki með sér svo miklu sem sokkum eða skóm á börnin. Einu utanyfir- fötin, sem þau komust með út, voru flíkur, sem húsbóndinn greip við rúmstokkinn. Eigur þeirra voru að vísu vátryggðar, en lágt. Ingólfur missti einnig allt, sem hann átti þarna innan húss, en af eigum Sigurðar varð nokkru bjargað, en sumt fórst í eldinum. Húsið sjálft átti hlutafélagið Selfossbíó. Gistihúsið var vá- tryggt fyrir 160 þús. krónur, en hin húsin fyrir 390 þúsund krónur. Lejgjandinn vaknaði af tilviljun. Tíðindamaður frá Tímanum átti í gær tal við Guðmund Maríasson og sagðist honum svo frá: Við vorum auðvitað öll í fasta- svefni, en það varð okkur til lífs, að Ingólfur Filippusson vaknaði fyrir einskæra tilvilj- fæðingu, en hann var orðinn „öldungur“ þegar hann var 700 daga gamall. Þá var farið að gefa honum gerefni til viðbótar og þá kastaði hann ellibelgnum. Dr. Gardner hefir nýlega skorað á menn að, hugsa meira um að rannsaka lífið, og verja fremur fé til þess en að búa til kjarnorkusprengjur. „Sennilega drep ég mig á of mikilli vinnu“, segir hann, „en dóttir mín gæti vel orðið 120 ára, ef hún ferst ekki af slysi eða kjarnorku- sprengju". —Lesb. Mbl. en eftir hálfan annan tíma, því að símastöðin þar er lokuð á tímanum frá tvö til hálf-fjögur. Um fimmleytið var allt brunnið er brunnið gat. — Eldsupptök eru ókunn. Stórhýsi. Húsið á Ketilsstöðum var stórt steinhús, tvílyft með timbur- innréttingu. Það var notað sem gistihús á sumrin, og voru ekki annars staðar meiri byggingar á Fljótsdalshéraði, nema á skóla setrum og Egilsstöðum og ef til vill að Skriðuklaustri. Að Ketilsstöðum búa Bergur Jónsson frá Egilsstöðum og Sig- ríður Hallgrímsdóttir, kona hans. Er tjón þeirra geysilega mikið, því að allt var lágt vá- tryggt. —TÍMINN, 6. jan. un. Varð hann þess þá var, að mikill eldur var kominn í húsið og allt að fyllast af reyk. Hljóp hann þegar inn til okkar hjón- anna og vakti okkur. Mun klukk an hafa verið 25 mínútur geng- in í fjögur. Við forðuðum okkur út um eldhúsið, þar sem eldur- inn hafði sízt náð sér. En Ing- ólfur hljóp út að vekja slökkvi- liðsmennina. Ég gat náð í nokkuð af fötum mínum, en konan mín komst út á nærklæðum og börnin eins og þau höfðu legið í rúmunum. Það fór allt, sem við áttum — ekki tangur né titur eftir. Aðeins nokkuð af eldhúsáhöldum tókst að bera út, en sumt af því brotn- aði eða skemmdist. Það mátti áreiðanlega ekki miklu muna, að hér færi ekki enn verr. —TÍMINN, 7. jan. Hin nýja ferðabók Framhald af bls. 5 höfundar á dvöl sinni í Genova: „Ákaflega held ég hinar átta- tíu kirkjur í Genova líti niður á skýskafann minn, þennan nýja hortitt í klassísku helgiljóði landsins. Um miðdegisleytið yfirgaf ég hann og labbaði upp á torgið Ferrari; settist niður við gosbrunninn. Mikið elskaði fólkið þennan stað. Á leið sinni yfir torgið stanzaði það hugfangið við steinskálina til þess að horfa á vatnið, hvað það væri lifandi og tært; sumir létu fimm líru seðil falla í það um. leið og þeir fóru, eins og þeir vildu greiða fyrir sig; eða var það ef til vill fórn? Ég veit það ekki fyrir víst; en það var svo svalandi að koma inn í úðann, óslitinn niður vatns ins svo dveljandi rór. Hér gleymdi maður áformum sínum, leystist úr tengslum við hjól tímans og ása, eril dagsins og önn; það var eins og þegar vind- urinn svæfir barnið á enginu. Og þarna bjó kolsvartur áll, aleinn og út af fyrir sig. Hann var svo gamall, að enginn vissi ártíð hans, ekki heldur, hvers vegna hann var hér kominn 1 upphafi. Ég horfði á hann um stund, hvar hann lá hreyfingar- MESSUBOÐ Fyrsta Luterska Kirkja Séra Valdimar J. Eyland*. leimili 776 Victor Street. Sími '-•017. — Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h. Allir ævinlega velkomnir; ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 11. febrúar. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson laus niðri við gráan múrbotn- inn, leyndardómsfullur og slöngulaga. Það hefði verið hægt. að trúa á hann; já, nú skildi ég loksins, hvers vegna djöfullinn valdi sér gervi ormsins“. — Áhrifamikil er lýsing höf- undar á „Kirkjugarði hettu- munkanna“ í Rómaborg, þó að hálfgerðan hroll setji að lesand- anum við lesturinn, svo ömur- leg er sú raunsanna mynd. Létt- ara er hins vegar, eins og vera ber, yfir lýsingunni á eynni Capri, „eylandi fegurðarinnar“, svo að annað dæmi sé nefnt, enda hefir höfundur glöggt auga fyrir sérkennileik og fegurð náttúrunnar. Og frá byrjun til enda ferðasögunnar eru nóg dæmi þess, að hann á eigi síður hæfileikann til að lýsa því, sem broslegt er, heldur en hinu al- varlega, og það er einmitt sá hæfileiki, sem forðar honum frá því að verða of hátíðlegur. Eins og aðrar bækur Helga- fellsútgáfunnar er ferðabók þessi hin snotrasta að ytri frá- gangi, prýdd nokkrum góðum myndum, meðal annars teikn- ingu af höfundi eftir ítalskan listamann. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDi Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON BARUGATA 22 REYKJAVIK WHAT DO WE LOSE? What do we lose when the forest burns? We lose the wood which might have been turned into houses or newspapers. We lose the protective cover on the soil, laying it open to erosion. We lose a home for wildlife—game animals and birds as well as valuable fur-bearers. We lose tourist dollars that the forests attract as a place of recreation and beauty. And we lose between 50 and 100 years of time—required to grow a new forest. THE CANADIAN FORESTRY ASSOCIATION SAYS: Don’t YOU be responsible for starting a forest fire! ♦ ♦ ♦ This message from THE CANADIAN FORESTRY ASSOCIATION is displayed through the courtesy of SHEA'S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-277 MANNSÆVIN 120 ÁR Nýjusiu rannsóknir sýna að hægi er að lengja aldur dýra mikið, og þá æiii að vera hægt að lengja aldur manna að sama skapi, og jafnvel gera menn svo að segja ódauðlega. Stórbruni að Ketilsstöðum á Völlum í gærdag

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.