Lögberg - 08.02.1951, Blaðsíða 5
5
ÁHUGAMÁL
LVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
SKRIFAR í SATURDAY NIGHT
Vafalaust er Saturday Night
með vönduðustu vikublöðum,
sém gefin eru út í þessari álfu.
Ritstjóri þess er hinn mikilhæfi
blaðamaður og rithöfundur, B.
K. Sandwell. Sér til aðstoðar
hefir hann mörgum stórhæfum
blaðamönnum á að skipa. Það
er því heiður fyrir hvern sem
er að fá ritgerðir sínar birtar
í þessu blaði. Síðastliðin 23. jan-
úar var grein í blaðinu eftir ís-
lenzka konu, frú Svanhvít
Josie — The “Mixed” Marriage
of Jew and Gentile. Það er ekki
í fyrsta skipti, að ritgerð hefir
birst frá hennar hendi í Satur-
day Night. Þessi ritgerð fjallar
um viðkvæmt efni, enda vakið
athygli. í síðasta tölublaði er
skýrt frá því, að vegna margra
bréfa frá lesendum, er blaðinu
hafi borist, um þessa grein,
muni ef til vill, önnur ritgerð
um sama efni birtast á næst-
unni.
Frú Svanhvít Josie hefir lipr-
an penna og skemtilegan stíl,
enda á hún ekki langt að sækja
það; hún er dóttir Dr. Sigurðar
Júl. Jóhannessonar og konu
hans, frú Halldóru. Frú Svan-
hvít er útskrifuð frá Manitoba
háskóla í lögfræði. Hún býr í
Ottawa.
☆
alheims bænadagur
kvenna.
Fyrir sextíu og fjórum árum
síðan mynduðu konur einnar
kirkjudeildar í Bandaríkjunum
samtök sín á milli um það, að
halda bænargjörð í sameiningu
ákveðinn dag á árinu.
Með ári hverju hafa þessi
samtök orðið víðfeðmari og eru
nú starfandi í 81 landi. Fyrsta
föstudag á föstunni samstilla
miljónir kvenna af öllum þjóð-
ernum og kynflokkum, hugsan-
ir sínar í bænargjörð. Þessar
helgiathafnir byrja í Suður-
kyrrahafseyjum og halda áfram
kringum hnöttinn þar til þeim
lýkur á St. Laurence-eyjunni
vestur af Alaska. Bænir þeirra
mnlykja hnöttinn þennan dag.
Þessar athafnir fara fram á
harla ólíkum stöðum, sumar í
stórum kirkjum, aðrar undir
beru lofti; sumstaðar er heit-
asti dagur ársins, annars staðar
snjór á jörðu og vetrarkuldi.
Þetta ár er bænadagurinn
föstudagurinn 9. febrúar. Hér í
borg, sem annars staðar, munu
þúsundir kvenna, af mörgum
Þjóðernum og frá mörgum mis-
munandi trúarflokkum, flytja
bænir í sameiningu.
Bænaathöfnin fyrir miðbæ-
inn fer fram í Holy Trinity
hirkju kl. 3 e. h. Þar mun borg-
arstjórafrúin, Mrs . G a r n e t
Coulter flytja erindi. Þar að
auki verða samskonar bænar-
samkomur í tólf öðrum kirkjum
1 úthverfum borgarinnar.
Konur frá ýmsum löndum
®eraja bænirnar, sem fluttar eru
pennan dag ár hvert, og skipu-
leggja bænagjörðina. Á þessu
ari fúH það í hlut þýzkra krist-
lnna kvenna. Athöfnin hefst
eftirfylgjandi bæn, sem
a lar konur — mæður, eiginkon-
Ur’ úætur og systur — geta tek-
1 undir af heilum hug og
hrærðu hjarta:
WORLD DAY OF PRAYER
First of J.rnt, February 9, 1951.
A Prayer For Peace
O God, the Father of our
°rd Jesus Christ, we come
e ore Thee and implore Thee
e give us peace in our hearts.
Help us to change all thoughts
strife and hate into words
an öeeds of love. Make us Thy
flaessengers to our children, and
a 1 with whom we live. Let
Frú Svanhvíi Josie
our homes be centres of peace
in the confusion of this warring
world.
Our hearts are beset with
fears; therefore we implore
Thee, O Lord, strengthen us
with the courage that comes
only through faith in Thee.
Guide the thoughts of the
nations and of all those who
govern them toward peace.
Transform the anguish and grief
that wars have brought upon
us into quietness and peace.
Comfort the distressed. Grant
help to the forsaken. Be Thou
the Father to the orphan and
a Shield to the widow. Awaken
in us the love that helps the
poor and feeds the hungry.
Strengthen all whom Thou
hast called into the special
ministry of Thy love and Thy
peace; comfort them when
weary and disconsolate. Supply
their daily needs. Grant them
love, patience and hearts full of
courage. Let their words and
their works be blessed.
Thou who hast promised to
comfort as a father comforts,
help us to do the work Thou
hast entrusted to us in this
world. Amen.
Writtön by German Christian toomcn
Women's Inter-Church Council
of Canada,
97 St. George Street,
Toronto 5, Ontario.
Barnelsk leikkona.
Joan Grawford hefir þegar
tekið fjögur fósturbörn — og er
í þann veginn að bsfeta því
fimmta við. Hið elzta af þessum
fjórum er þegar farið að ganga
í skóla, en þau næstelztu eru
tvíburar og mynda svolitla
heil fyrir sig — eru ríki í ríkinu.
Þess vegna er fjórða barnið, sem
er drengur, dálítið einmana og
af því ætlar hin umhyggjusama
Joan Grawford að gefa honum
lítinn bróður eða systur.
☆
Ef skordýr hefir farið inn í
eyrað, er hættulegt að reyna að
ná því út með prjónum eða þess
háttar áhöldum. Það getur skað-
að eyrað og, þar að auki orðið
til þess að skordýrið fari enn
lengra inn í eyrnagöngin. Reyn-
ið að lýsa inn í eyrað með vasa-
Ijósi, og lokka það út á þann
hátt. Ef það reynist árangurs-
laust, verður auðvitað þegar í
stað að leita læknis.
☆
Nýft naglalakk.
Efnarannsóknarstofa í Eng-
landi hefir sent nýtt naglalakk
á markaðinn. Er það framleitt
úr möluðu fiskhreistri, og er tal-
ið vera óvenju fallegt og sterkt.
í auglýsingu um þetta nýja
efni er komizt svo að orði, að
í notkun verði lakkið eins og
hluti af nöglinni. En ekki er
ólíklegt að heldur sé þar sterkt
að orði kveðið.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR, 1951
Hin nýja ferðabók Guðmundar Daníelssonar
Eftir prófessor RICHARD BECK
Guðmundur Daníelsson rit-
höfundur varð fertugur í októ-
berbyrjun á síðastliðnu hausti.
Eftir bókmenntalegum afköst-
um hans að dæma, myndi þó
margur ætla, að hann ætti sér
stórum meiri árafjölda að baki;
en hann hefir á þeim 17 árum
síðan hann hóf rithöfundarferil
sinn gefið út 15 skáldrit. Þetta
er þeim mun eftirtektarverðara,
þegar í minni er borið, að hann
hefir unnið að ritstörfum sínum
í hjáverkum frá kennarastarfi
og skólastjórn.
Fjölhæfni Guðmundar lýsir
sér einnig í því, að hann hefir
sent frá sér níu skáldsögur, eitt
smásagnasafn, eitt leikrit, tvær
ljóðabækur og tvær ferðabækur.
Rit þessi eru, að vonum, all-
misjöfn að kostum og gildi, en
bera órækan vott ríkri skáld-
gáfu: — hugkvæmni, þróttmikl-
um og litauðugum stíl og sam-
bærilegum frásagnarhæfileika.
Seinni bækur hans hafa einnig,
að minnsta kosti sumar þeirra,
sýnt aukna fágun í stíl og mál-
fari og fastari og vissari tök á
efni og mannlýsingum.
Einkum hefir hin nýútkomna
skáldsaga Guðmundar, í fjall-
skugganum, sem enn hefir eigi
borist í hendur greinarhöfundi,
hlotið mikið lof frá ýmsum hin-
um dómbærustu mönnum í þeim
efnum, er telja hina miklu
skáldgáfu höfundar njóta sín
þar ágætlega með mörgum
hætti, og jafnframt benda til
þess, að enn stórbrotnari og
heilsteyptari skáldverka megi
Það er sérkennileg barátta við
óvenjulega jarðelda, sem háð er
í fylkinu Ohio í Bandaríkjunum.
Verkfræðingar spreyta sig þar
á því, að sigrast á „helvítinu í
Straitsville“ eins og það er ^call-
að. Þar hefir lifað voðaeldur í
kolanámum neðan jarðar alla
tíð síðan 1884.
Það var námumannaverkfall
í Straitsville árið 1884, eins og
stundum vill verða, þegar verka
menn fá ekki framgengt kröfum
sínum um launakjör og hvíldar-
tíma. Þá gerðu nokkrir verk-
fallsmenn gálaust tiltæki. Þeir
kveiktu í kolum í fullum flutn-
ingavagni og renndu honum síð-
an niður í námuna með glóð-
inni í.
Þetta var upphaf sögunnar um
þennan mesta voðaeld, sem sög-
ur fara af og enn hefir ekki ver-
ið slökktur. Styttur og raftar,
sem voru úr timbri tóku skjótt
að loga og allt sem úr viði var í
námunum og , læstist eldurinn
víða svo að fljótlega logaði 20
ferkílómetra svæði neðanjarðar.
Enginn hafði búizt við svo ó-
skaplegum afleiðingum þessa gá
leysis, og viðnámið byrjaði of
seint. Byrjað var á því að byrgja
opin á námugöngunum. Var
múrað upp í þau. Þetta gerði þó
aðeins illt verra, því að þá urðu
sprengingar og kílómetralangir
gígir opnuðust, sem eldurinn
fékk loft í gegnum og æstist
hann þá mjög.
Áhrif jarðhitans komu skjótt
fram og voru bæði ill og góð.
Yfir námugöngunum skrælnaði
jörðin' og lækir hurfu og hluti
af dalnum fór í eyði. En í nokk-
urri fjarlægð frá eldunum var
jörð alltaf í blóma. Þar festi
ekki snjó um vetur, aldintré
báru tvöfaldan ávöxt og hita-
beltisjurtir þrifust þar. Þannig
lék eldurinn lausum hala án
þess að nokkuð væri að gert í 51
ár. Þá var hann búinn að éta
sig alveg að Straitsvillebæ. Árið
1935 gleypti jörðin nokkur hús
í jaðri bæjarins. Grunnurinn var
brunninn undan þeim og skurn-
in brast, svo að þau féllu niður
í hið mikla eldstæði. Bærinn
var allur í hættu og lagðist að
mestu í eyði.
Þegar þetta var töldu menn
frá honum vænta í framtíðinni.
Þessari umgetningu er þó sér-
staklega ætlað að draga athygli
lesenda að annarri bók Guð-
mundar, sem einnig kom út á
nýliðnu hausti, og á sjálfu fer-
tugsafmæli hans, en það er
ferðabókin Sumar í Suðurlönd-
um (Helgafell, Reykjavík, 1950).
Með hinni fyrri ferðasögu sinni,
um Vesturheimsför sína (Á lang-
ferðaleiðum, Reykjavík, 1948),
sem er bráðskemmtilegt og
snjallt rit í sinni grein, sýndi
höfundurinn það, að honum
lætur mjög vel slík frásagnar-
gerð.
Þessi nýja ferðabók hans sver
sig éinnig að ýmsu leyti í ætt
til hinnar Jyrri, en er jafnari um
fágað málfar og samfelldari, þó
að hugkvæmnin og hinn sterki
persónulegi stílblær séu óbreytt.
Frásögnin er hressileg og hisp-
urslaus sem fyrri daginn, því að
höfundur hikar ekki við að segja
eins og honum býr í brjósti um
menn og málefni.
Það er því skemmtilegt að
gerast ferðafélagi Guðmundar í
þessari suðurgöngu hans, er
hefst með flugferð frá íslandi
til Skotlands, og heldur síðan
áfram með járnbrautarlestum
og öðrum farartækjum suður á
bóginn um Bretland, Frakkland
og ítalíu, þar sem höfundurinn
átti lengsta dvöl, eins og heiti
bókárinnar gefur í skyn. Hann
staðnæmdist einkum í stórborg-
um svo sem London, París,
Flórenz og Róm, en kemur einn-
að þarna hefði brunnið meira en
hálf milljón smálesta af stein-
kolum. Nú var hætta á því, að
eldurinn tæki að breiðast út í
ennþá auðugri kolanámusvæði.
Þegar vonlaust þótti að eld-
urinn yrði slökktur reyndu
menn að stöðva hann. Nokkur
hundruð námuganga voru stífluð
og hlaðnir eldtraustir múarar í
þau. Verkfræðingar og verka-
menn unnu í steikjandi hita-
svækju að ná kolunum bak við
varnarmúrana, svo að þar yrði
ekkert eldsneyti. Tvö hundruð
metra þykkir múarar voru hlaðn
ir til verndar og sprungum lok-
að með steinsteypu og jarðvegi,
svo að eldurinn næði síður í súr-
efni.
En þetta stórvirki var líka
árangurslaust. Hitinn sprengdi
alla múra og eldurinn át sig
lengra og lengra. Þá datt einum
verkfræðingnum það ráð í hug
að veita fljóti niður í vítið. Far-
vegur var búinn til, nokkrir
kílómetrar á lengd og svo belj-
aði áin niður 1 námurnar einn
góðan veðurdag. Áhrifin urðu
stórkostleg. Bráðlega lá þoku-
mökkur og heit gufa yfir hérað-
inu. Stórkostlegri sprengingar
en nokkru sinni fyrr kváðu við
og aldrei hafði logað betur en
einmitt nú.
Árið 1937 tók sambandsstjórn
in í Washington í taumana til að
skakka leikinn, því að þá voru
auðugar námur taldar í mikilli
hættu. Sprengiefni og tröllauk-
in tæki voru notuð í þeirri sókn,
sem nú hófst.. Leðju var dælt í
stríðum straumurh niður í kverk
ar vítisins. Steyptir meiri varn-
argarðar en nokkru sinni fyrr
til að kæfa bálið. Þetta virtist
vera á góðri leið. Þó sáu menn
aldrei við eldinum. Hann kom
stöðugt upp á nýjum og nýjum
stöðum.
Sambandsstjórnin vildi ekki
hætta við svo búið og nú er ein-
mitt verið að hefja nýja stórsókn
gegn eldinum. Og nú eru fljót-
andi efnasambönd notuð í þeim
tilgangi, að þau kæfi neðanjarð-
areldinn, sem baráttan hefir
staðið við í tvo aldarþriðjunga.
Framtíðin ein veit, hvort þar
næst sigur eða ekki.
ig víðar við, t. d. í Genova,
Napoli, Capri og Feneyjum.
Margt ber eðlilega fyrir augu
og eyru á slíku langferðalagi
um söguríkar slóðir, og ekki síst,
þegar í hlut á jafn gaumgæfinn
ferðalangur og Guðmundur aug-
sýnilega er á það, sem verður á
vegi hans og gerist í kringum
hann; og allt þetta verður í
höndum hans lifandi í frásögn-
inni, hvort heldur að hún er í
alvarlegum tón eða höfundur
slær á glens, og lætur hann þá
stundum vaða á súðum, því að
annars væri hann ekki sjálfum
sér líkur.
I ferðasögunni er brugðið upp
glöggum myndum af frægum
Það er ekki á hverjum degi,
sem íslenzkum flugmanni hlotn-
azt sá mikli heiður og traust að
fljúga með frægasta hers-
höfðingja, sem nú er talinn
uppi, sjálfan EISENHOWER.
En sá heiður féll í skaut eins af
okkar ágætustu og öruggustu
flugmönnum í gær, er Jóhannes
Snorrason flaug Eisenhower til
Keflavíkur í Gullfaxa Flugfélags
Islands. Gátu Islendingar verið
stoltir, bæði af farkostinum og
áhöfninni er flutti gestina.
Með stærstu flugvélum sem lent
hafa í Reykjavík.
Flugvél Eisenhowers, sem er
fjögurra hreyfla Constellation
vél, hafði aðeins skamma við-
dvöl í Reykjavík en fór þaðan
til Keflavíkur, þar sem hún var
búin undir næsta áfanga ferð-
arinnar, sem átti að hefjast í
nótt.
Flugvél þessi er með stærstu
flugvélum, sem lent hafa í
Reykjavík, en er svipuð far-
þegaflugvélum þeim frá Air
France, sem notuðu völlinn í
Ameríkuferðum, áður en vélar
félagsins fóru að fljúga um
Keflavík.
Með íslenzkri vél
til Keflavíkur.
Var ákveðið, að Eisenhower
færi, ásamt fylgdarliði sínu með
íslenzkri flugvél héðan til Kefla
víkur. Gullfaxi Flugfélags Is-
lands varð fyrir valinu, enda er
sú vél vel búin og boðlegur far-
kostur fyrir hvern sem er. Hinn
þrautreyndi og öruggi flug-
maður f é 1 a g s i n s, Jóhannes
Snorrason, yfirflugmaður, var
valinn til að stjórna vélinni í
þessari sögulegu ferð.
Lagt var af stað frá Reykja-
víkurflugvelli fjórar mínútur
yfir fimm í gærkvöldi og flogið
beina leið til Keflavíkur. Var
flugvélin ekki nema röskar 10
sögustöðum og margvíslegur
fróðleikur fléttaður inn í staða-
lýsingarnar, sem aldrei verður
þó leiðindalestur, því að jafnan
ber frásögnin lífrænan og per-
sónulegan svip. Þá er ekki síð-
ur skemmtilegt að lesa lýsingar
höfundar á ýmsum þeim mönn-
um og konum erlendum, sem
hann kynntist á ferðalaginu, og
honum tekst ósjaldan, þó í
stuttu máli sé, að gera þetta ó-
líka fólk ljóslifandi fyrir aug-
um lesandans og opna honum
sýn inn í hug þess og líf. All-
margir íslendingar urðu á vegi
hans, og ber hann þeim sannar-
lega vel söguna.
Margt er skáldlega sagt og
víða ágætir sprettir í þessari
fjörlegu ferðasögu, eins og t. d.
eftirfarandi kafli um „Gos-
brunninn og álinn“ úr lýsingu
mínútur á leiðinni og lentí
mjúkt og örugglega á Keflavík-
urflugvelli. Gullfaxi flaug svo
aftur til Reykjavíkur um hæl.
I fylgd með Gullfaxa var ein
af Dakotavélum Flugfélagsins,
og voru nokkrir farþegar af
fylgdarliði hershöfðingjans með
þeirri vél, og eins nokkrir af á-
höfn einkaflugvélar hans, sem
komu með bíl til Reykjavíkur
fyrr um daginn.
í fyrsta sinn með almennri
farþegaflugvél.
Þegar Gullfaxi var lentur á
Keflavíkurflugvelli og vélin var
stöðvuð við hótelbygginguna,
kom Eisenhower fram í stjórnar
klefann til áhafnarinnar og
heilsaði upp á hana. Þakkaði
hann hverjum manni með handa
bandi fyrir flugferðina og lét
hið bezta yfir. Skrifaði hann
nafn sitt í vegabréf allrar áhafn-
arinnar, eins og til sanninda-
merkis um það, að það er ekki
á hverjum degi, sem hann flýg-
ur með venjulegri farþegaflug-
vél og flugmönnum, sem ekki
eru í flughernum. —
Flugferðin með Gullfaxa var
því bæði söguleg fyrir Flugfé-
lag íslands og Eisenhower sjálf-
an, sem flaug í fyrsta sinn síðan
hann varð herforingi með far-
þegaflugvél, sem ekki tilheyrði
hernum og flugmönnum, sem
ekki eru hermenn.
Sést bezt á því að óvenjulegur
heiður og mikil viðurkenning
hefir fallið í skaut Flugfélags
íslands og yfirflugmanns þess,
Jóhannesar Snorrasonar, sem
treyst var til að flytja hinn mikla
hershöfðingja, því enginn skyldi
halda, að hershöfðingi stórþjóð-
anna fari upp í flugvél hjá
hverjum sem er, og allra sízt
yfirhershöfðingi allra Atlanz-
hafsríkjanna, Dwight D. Eisen-
hower.
Business College Education
In these modern times Business College
Education is not only desirable but almost
imperative.
The demand for Business College Educa-
tion in industry and commerce is steadily
increasing from year to year.
Commence Your Business TraimngImmediately!
For Scholarships Consult
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
PHONE 21 804 695 SARGENT AV *. WINNIPEG
ELDVÍTIÐ MIKLA
Kolanáman, þar sem brunnið hefir lállausl í meira en 60 ár.
Framhald á bls. 8
Gullfaxi flutti Eisenhower
hershöfðingja til Keflavíkur
í fyrsta sinn með almennri farþegaflugvél
síðan hann varð hershöfðingi.
Góðvini Lögbergs hér í borg barst eftirfarandi fréttagrein með
flugpósti úr Reykjavík> og fékk hdna ritstjóra blaðsins þegar i
hendur til birtingar; var slikt vel af sér vikið; fréttin er úr Tím-
anum þann 26 janúar s.l. og þvi njj af nóiinni. —Ritstj.