Lögberg - 08.02.1951, Side 7

Lögberg - 08.02.1951, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR, 1951 7 Þjóðvegir landsins eru orðnir samtals um 5500 km. Þjóðvegir landsins eru nú samtals 5500 kílómetrar. Á síðasta ári var varið 27 milljónum króna til vega- og brúargerða, og er það svipað og árið áður. Til nýrra vega var þó ekki var- ið nema rösklega 7 milljón- um króna, en 13 milljónir fóru til viðhalds. Til brúar- gerða var varið 3,7 milljón- um króna,' en afganginum af upphæðinni til vélakaupa, til viðhalds fjallvega, til stjórnar vegamálanna o. fl. Samkvæmt greinargerð vega- málastjóra voru helztu fram- kvæmdir vegagerðarinnar þess- ar: Á Suðurlandi var fullgerður vegur að fyrirhuguðu brúar- stæði á Hvítá hjá Iðu, beggja vegna árinnar, og þar á að koma 109 metra löng hengibrú, og er líklegt að sú brúargerð hefjist á þessu ári. Vegurinn um Hruna- mannahrepp má nú heita full- gerður upp að Brúarhlöðum. Af öðrum vegagerðum í Árnessýslu má nefna að Grafningsvegurinn vestan og sunnan Þingvallavatns hefir verið endurbættur veru- lega og lagður nýr vegur frá Úlfljótsvatni um nýja brú á Soginu, sem lokið#var við að kyggja í haust rétt fyrir neðan Ljósafoss-stöðina. í Rangár- vallasýslu og Vestur-Skafta- fellssýslu var unnið að nýlagn- ingu og endurbótum á aðalleið- inni og öðrum þjóðvegaköflum víða um þessi héruð. í Höfn í Hornafirði var langdrægt lokið við að gera ferjulægi við aust- urbakka Hornafjarðarfljóts, en þar á að setja bílferju á fljótið. Hafnar voru framkvæmdir til undirbúnings brúargerð á Jök- ulsá 1 Lóni og gerður varnar- garður nærri hálfur kílómetri að lengd til að veita ánni í far- veg, þar sem síðar á að brúa hana, en þarna er fyrirhuguð um 250 metra löng brú svipuð að stærð og Markarfljótsbrúin, og er gert ráð fyrir að þessi brúarsmíði hefjist í ár. H e 1 z t u vegaframkvæmdir suðvestan og vestan lands voru sem hér segir á liðnu ári: ■Það þykir nú orðið tímabært að leggja nýjan veg um Hval- fjörð og var lítilsháttar byrjað á því verki í haust. I Borgarfirði var unnið að mörgum vegaköflum, bæði inni í Dölum og vestur á Mýrum. í Snæfellsnessýslu var byrjað á nýjum vegi yfir Fróðárheiði. í Dalasýslu er nú að jafnaði akfært á vetrum vestur að Ás- garði, en nú er hafin vegagerð vestan Ásgarðs. í Barðastrandasýslu var unn- ið að Gufudalsvegi, Barðastrand arvegi og Rauðasandsvegi. í Isafjarðarsýslu tókst nálega að fullgera veginn yfir Hrafns- oyrarheiði að Auðkúlu við Arn- arfjörð. I Húnavatnssýslu var lokið við að gera akfæran veginn kring- um Vatnsnes, alla leið frá Hvammstanga og um Vestur- hóp. 1 sambandi við nýju brúna á Blöndu, hjá Löngumýri, sem fullgerð var í sumar, var einnig lokið akvegagerð beggja vegna brúarinnar, þannig að nú er einnig akfært frá Blönduósi um Svínadalinn, yfir nýju brúna, að Vatnsskarði. Haldið var áfram vinnu við Skagafjarðarveg fremri, um innsveitir í Skaga- fjarðarsýslu. Lokið var við að gera akveg um Viðvíkursveit til Grafaróss og fullgerður var síð- asti kafli Norðurlandsvegar í Norðurárdal í Skagafirði. Enn fremur voru endurbættir nokkr- ir vegarkaflar á Öxnadalsheiði. Hyrjað var á að gera upphleypt- an veg, sem fyrirhugaður er á milli Hofsóss og Haganesvíkur og lagður þar kafli hjá Höfða í Eyjafjarðarsýslu var víða unnið að lagningu nýrra vega, on aðeins fyrir smáupphæðir á bverjum stað. Haldið var áfram vegagerð í Bakkafirði og ekki ólíklegt að á næstu tveimur árum verði kom- inn sæmilegur vegur allt að Höfn. Austan Jökulsár var haldið á- fram vegagerð á Hólsfjöllum og er nú kominn góður vegur frá Hólsseli að Dettifossi. Þeirri vegagerð verður haldið áfram á næstu árum, allt niður í Axar- fjörð, að Jökulsárbrú. Sömuleið- is verður haldið áfram vegagerð sunnan Grímsstaða, áleiðis í Víðidal. Nokkuð var unnið við Fjarðarheiðarveg og veginn til Borgarfjarðar. Loks voru byggðar 15 brýr víða um land ,lengri en 10 metr- ar, og fjölmargar smærri brýr, og verður þeirra getið síðar. Amerískar kímnisögur Og svo er hér að lokum saga um varkáran mann. Þekktur og forríkur verzlunarmaður varð ástfanginn af leikkonu. í marga mánuði var hann íastur fylgdar- maður hennar á öllum skemmt unum, og loks ákvað hann að giftast henni. Til þess að hlaupa ekki út í eitthvað, sem hann sæi eftir, fékk hann fyrst leynilög- reglumann til þess að grennslasi um fortíð leikkonunnar. Að lok- um fékk hann eftirfarandi skýrslu: „Ungfrúin nýtur mjög góðs álits. Fortíð hennar er flekk laus. Kunningja hennar og þá, sem hún umgengst, er ekki nokk ur leið að setja nokkuð út á. Eina hneykslið, sem hún hefir valdið er, að hún hefir undan- farna mánuði sést mikið í fé- lagsskap verzlunarmanns með vafasamt mannorð11. ☆ Ef þú mátt kyssa húsmóður- ina, kysstu þá aldrei vinnukon- una. (Spánskur málsháttur) Achmed Abdullah rithöfund- ur var ættaður frá Afganistan, sonur fyrrverandi landsstjóra í Kabul. Hann fékk menntun í Evrópu og ferðaðist síðan víðs- vegar um heim. Hann var ann- álaður málamaður og hann lærði ýmis tungumál þar sem hann ferðaðist. Einhverju sinna var hann staddur í Kairo. Þá kom til hans egypskur liðsforingi og bað um aðstoð hans. Þannig var mál með vexti, að lögreglan hafði tekið fastan Svertingja, sem var að flækjast þar á götunum og þótti grunsamlegur, en ‘ þegar átti að fara að yfirheyra hann, þá skildi hann ekkert, sem við hann var sagt. Og nú var Ab- dullah beðinn að reyna mála- kunnáttu sína.. Hann varð fúslega við því að hjálpa lögreglunni og fór með liðsforingjanum til fangelsisins þar sem Surtur var geymdur. Það var ekki neinum blöðum um það að fletta að fanginn var af afríkönsku kyni og að hann var skelfilega hræddur. Auk þess var varla sjón að sjá hann, því að hann var í hinum argvítug- ustu görmum, sem hann hafði sýnilega tínt upp af götu sinni. Abdullah byrjaði þegar að yfirheyra manninn, fyrst á frönsku, þá á afganisku, tyrk- nesku, tibetönsku, grísku, kín- versku, persnesku og batuönsku. En það var auðséð að fanginn skildi ekki eitt orð í þeim mál- um. Hann glápti eins og fábjáni á spyrjandann og skalf af hræðslu. Þá vendi Abdullah sínu kvæði í kross og reyndi ýmsar mállýskur, sem talaðar eru í Sahara, síðan nokkrar mállýsk- ur frá Kongo og seinast Zúlúa- mál. En það var alveg sama — fanginn skildi ekki eitt einasta orð. í örvæntingu sinni sagði þá Abdullah á ensku: — Mér þætti gaman að vita hvers konar fugl þú ert. Það var eins og Svertinginn hefði verið snertur með töfra- sprota. Hann stökk á fætur, ljómandi af gleði og hrópaði: — Ég er úr Hvítasunnusöfn- uðinum. Og þá kom í ljós að þetta var Svertingi frá Alabama. Hann hafði verið háseti á vöruflutn- ingaskipi frá New Orleans, stokk ið allsnakinn fyrir borð þegar skipið var skamt frá Afríku- strönd og synt í land til þess að komast til frænda sinna. En mót- tökurnar voru þannig að hann var orðinn hálfvitlaus. ☆ MacTavish var boðinn í skírn- arveizlu. Þar var fjöldi fólks og veitt af kappi. Þegar veizlan stóð sem hæst, reis MacTavish á fætur, gekk fyrir hvern veizlugest og kvaddi hann með nafni og handabandi. Þegar hann kom að húsbænd- unum, vildu þeir ekki heyra það nefnt að hann færi svona fljótt, veizlan væri rétt aðeins að byrja. — Nei, ég er ekki að fara, sagði MacTavish, en ég geri það svona til vonar og vara að kveðja á meðan ég þekki alla.-Lesb. Mbl íslenzkur listmólari farinn til Ástralíu til tveggja óra dvalar Eggert Guðmundsson lagði af stað þangað með fjölskyldu sína í morgun. EGGERT GUÐMUNDSSON listmálari fór í morgun ásamt konu sinni og barni áleiðis til Ástralíu, en þar hyggst hann dveljast tvö næstu árin. Mun hann vinna þar að list sinni og jafnframt halda sýningar, og er þegar ákveðið um sýningar að minnsta kosti í fjórum borgum. Auk þess mun kona hans, frú Edith Guðmundsson, sýna íslenzkar kvikmyndir og halda fyrirlestra á ferðum þeirra hjóna. Heimili Beethovens í Bonn hefir verið gert að minjasafni. í einu herbergjanna er píanóið, sem Beethoven samdi mörg af verkum sínum á. Eitt sinn kom hópur af amerískum stúdentum til að skoða húsið, og ein stúlk- an horfði með lotningu á píanóið og spurði hvort hún mætti leika á það. Leyfið fékkst og hún sett- ist við píanóið og lék nokkrar nótur úr Tunglskinssónötunni. Síðan reis hún upp og sagði við safnvörðinn: „Ég býst við, að all- ir miklir píanósnillingar, sem hingað hafa komið, hafi leikið á þetta hljóðfæri“. Alþýðublaðið hitti Eggert að máli stutta stund í gær, en þá var hann á hraðri ferð að koma frá því að kaupa farseðil með Gullfaxa og ljúka öðrum undir- búningi fyrir brottförina.... „Ég fer nú með sama áhuga og af sömu þörf af landi brott og árið 1927, er ég fór fyrst utan til náms“, sagði Eggert. „Ég hef að vísu betra fararnesti nú en þá, það er kunnáttuna, sem mig skorti þá algerlega. Hins vegar verður maður aldrei svo gamall, að maður geti ekki lært meira, og ég fer þetta nú vegna þess að ég finn hjá mér ríka þörf til þess. Ég álít sjálfur að sem lista- maður sé ég ftú á mótum æsku og aldurs, og að nú sé ég-kom- inn að því takmarki, að byggja upp lífsstarfið — vinna úr bernskubrekunum“. — Hve lengi hefurðu málað? „Það hef ég gert æði lengi, ég byrjaði á því meðan ég vann hér sem verkamaður á eyrinni. En það eru nú nákvæmlega 25 ár síðan ég hélt fyrstu sýningu, og jafnlangt frá því að ég fékk fyrstu umgetningu í blaði, en það var í Alþýðublaðinu, skrif- að af VSV. Eftir það sigldi ég „Nei, fröken“, svaraði vörður- inn. „Paderewski kom hér fyrir tveim árum, og hann sagði, að hann væri ekki verðugur þess að snerta það“. til Þýzkalands og dvaldizt er- lendis 1 samtals 13 ár, unz ég kom heim frá Petsamo 1940“. — Og hvernig er svo ferða- áætlun þín nú? ^ „Við förum fyrst til Bretlands og dveljumst í London um þrjár vikur. Þaðan förum við svo með skipi til Ástralíu um 15. febrúar, og er gert ráð fyrir að ferðin taki mánuð. Siglt verður um Miðjarðarhafið, Suezskurðinn, um Rauðahaf til Sidney á vest- urströnd Ástralíu. Þar höfum við stutta, viðdvöl að þessu sinni, en förum strax til austurstrand- arinnar, til Brisbane; en þar verður aðaldvalarstaður okkar og þar hyggst ég vinna úr frum- dráttum, sem ég hef með mér að heiman, en vegna gjaldeyris- ástæðna get ég ekki farið með neinar fullunnar myndir með mér. Einnig býst ég við að ég máli á ferðalögum mínum um landið, og ákveðið er að ég haldi sýningu í Brisbane, Melbourne, Porth og Sidney. Ennfremur mun kona mín sýna íslenzkar kvikmyndir, sem við höfum með okkur, bæði frá Reykjavík og af Heklugosinu, og mun hún flytja fyrirlestra með myndun- um“. Alþýðublaðið óskar Eggerti Guðmundssyni og fjölskyldu hans góðrar ferðar. —Alþbl. 16. janúar 1951 "POOL" SEED PRICES ALL PRICES F.O.B. WINNIPEG No Charge for Bagrs Price Per 100 Ibs. Bagged F.O.B. Wpg. All Stocks offered subject belng unsold. Prices subject to change without notice. Price Per Bushel Bagged F.O.B. Wpg. SWEET CLOVER White Blossom, No. 1 Seed ........................ $18.00 White Blossom, No. 2 Seed ......................... 16.50 Yellow Blossom No. 1 Seed ......................... 16.75 Yelow Blossom, No. 2 Seed ........................ 15.25 Special—Mixed White and Yellow Blossom, No. 1 Seed ... 16.00 Special—Mixed White and Yellow Blossom, No, 2 Seed ... 14.75 BROME GRASS Certified No. 1 .................................. 20.00 Certified No. 2 ................................... 19-50 No. 1 Seed ....................................... • 18.00 No. 2 Seed ........................................ 15.50 MEADOW FESCUE GRASS Registered No. 1—Ensign Variety ................... 40.00 Certified No. 1—Common ............................ 35.00 No. 1 Seed—Common ................................. 34.00 AU Registered and Certifled Forage Crop Seeds Packed and Sealed in 100-Pound, 50-Pound, and 25-Pound Bags Only. ALFALFA PLACE YOUR ORDER EARLY Registered No. 1 Grimm Registered No. 2 Grimm 75.00 65.00 No. 3 Seed Grimm No. 2 Mixture, Alfalfa and Sweet Clover— (Approx. 5% Sweet Clover) No. 2 Mixture, Alfalfa and Sweet Clover— (Approx. 15% Sweet Clover) RED CLOVER (Single Cut) 60.00 52.00 35.00 No. 2 Seed . 33.00 ALSIKE CLOVER 52.00 No 2 Seed 50.00 KENTUCKY BLUE GRASS 80.00 REED CANARY GRASS No. 1 Seed CRESTED WHEAT GRASS No. 1 Seed 21.00 No. 2 Seed RED TOP No. 1 Seed 70.00 TIMOTHY 16.00 MILLETS Registered No. 1-2 (Crown) 7.00 no. 1 Seed (Siberian) NÖ. 8 Seed (Siberian) I ■■ "Pool' Seeds Give Best Results CORN Hybrid—Packed in 1-Bushel Bags. Kingscrost KE-3, No. 1 Seed (U.S, Registered) ..... $12.00 Kingscrost Wheatiand Blend No. 1 Seed (U.S. Registered) ................................. 7.10 Wisconsin “255,” No. 1 Seed (U.S. Certified) ...... 5.25 Wisconsin “275,” No. 1 Seed (U.S. Certified) ...... 5.00 Canbred “150,” Registered No. 1 ................... 9.00 Canbred “250,” Registered No. 1 ................... 8.50 WHEAT—Packed in 2-Bushel Bags. Thatcher, 2nd Generation Registered No. 1-2 ......... 2.75 Thatcher. Registered No. 1-2 ........................ 2.60 Regent, Registered No. 1-2 .......................... 2.50 Redman, Ist Generation Registered No. 1-2............ 3.75 Redman, 2nd Generation Registered No. 1-2 .. .•...... 2.75 Redman, Registered No. 1-2 .......................... 2.60 Redman, Certifled No. 1-2 ........................... 2,45 Durums .................................Prices upon request OATS—Packed in 3-Bushel Bags. Exeter, lst Generation Reg stered No. 1 ............. 2.60 Exeter, lst Generation Registered No. 2 ............. 2.45 Ebceter, 2nd Generation Registered No. 1-2 .......... 2.20 Exetef, Registered No. 1 (We reserve right to supply Registered No. 2 on account of color only) ..................................... 2.10 Exeter, Rcgistered No. 2 .......................... 2.00 Exeter, Certified No. 1-2 ............................ 1.80 Ajax, Registered No. 1-2 ........................... 2.05 Ajax, Certified No. 1-2 ............................. 1.85 Vanguard, 2nd Generation Registered No. 1-2.......... 2.15 Fortune, Registered No 1-2 ............. 2.60 BARLEY—Packed in 2-Bushel 3ags Montcalm, 2nd Generation Registered No. 1-2 ......... 2.55 Montcalm, Registered No. 1-2 ........................ 2.40 Montcalm, Certified No. 1-2 .. ...................... 2.25 O.A.C. 21, Registered No. 1-2......................... 2.40 Plush, Registered No. 1-2 ............................ 2.25 Titan, Registered No. 1-2 ............................ 2.40 Vantage, Certified No. 1-2 .......................... 2.30 FLAX—Packed in 2-Bushel Bags. Oil Flax, No. 1-2 Seed (Dakota type) ................ 6.50 Dakota, No. 1-2 Seed ................................ 6.75 Royal. No. 1-2 Seed ................................. 6.60 Dakota, Registered and Certified ..... Rocket, Certifled and Commercial ..... pnces upon Íequest Sheyenne, Certifled ..................I H H NITRO-NOX—Inoculation for Legume Seed (Dust Method) Alfalfa—Sweet Clover For 60 'bs of Seed ........................Postpaid .60 For 150 lbs. of Seed ......................Postpaid 1.10 Prices on Sprayers, 2,4-D, Seed Treaters, Ceresan and Leytosan supplied on request. Place your Order with your “Pool” Elevator Agent. A Deposit will hold your Seed until required. SEEDS DEPARTMENT - MANITOBA POOL ELEVATORS 715 MARION STREET PHONES 204 819 - 201 781 ST. BONIFACE

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.