Lögberg - 15.03.1951, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MARZ, 1951
Úr borg og bygð
Maireiðslubók
Dorcasfélag Fyrsta lúterska
safnaðar hefir nú til sölu splunk-
urnýja matreiðslubók, er það
hefir safnað til og gefið út; bók
þessi er með svipuðum hætti og
hinar fyrri, vinsælu matreiðslu-
bækur, er Kvenfélög safnaðar-
ins stóðu að; þetta er afar falleg
bók með fjölda gamalla og nýrra
uppskrifta, sem koma sér vel á
hvaða heimili, sem er.
Matreiðslubók þessi kostar
$1.50 að viðbættu 10 centa burð-
argjaldi.
Pantanir, ásamt andvirði,
sendist:
Mrs. A. MacDonald
11 Regal Ave. St. Vital
Sími 205 242
Mrs. H. Woodcock
9 St. Louis Road, St. Vital
Sími 209 078
eða til Columbia Press Limited,
695 Sargent Ave.
Sími 21 804.
☆
The Jon Sigurdson Chapther
I O D E will hold a “Birthday
Bridge“ on March 19th Monday
Eve. in the Federated Church
Parlors at 8.30 sharp.
Valuable prizes will be
awarded the lucky winners.
☆
ÞAKKARORÐ —
Innilegt hjartans þakklæti
viljum við undirrituð votta öll-
um þeim, sem á einn eða annan
hátt hafa hjálpað okkur síðan
húsið okkar, og allt innanstokks,
brann 2. des. 1950. Sérstaklega
viljum við minnast hjálparfé-
lagsins, „Help in Need“, sem
stofnað var í Riverton við þetta
tækifæri, „Red Cross“, sem
strax sendi okkur föt, og ná-
granna og skyldmenna, sem
veittu börnum okkar heimili
meðan við hjónin vorum á
sjúkrahúsinu sökum bruna af
orsökum eldsins.
í huga og hjarta geymum við
nöfn ykkar allra, vinir og vel-
unnarar, fjær og nær, sem svo
frábærlega vel hjálpuðu okkur.
Wilfred og Edna Hjörleifson
og börn.
Riverton, Man.
☆
Fólk í íslenzku byggðunum
og hér í borg, sem hefir í hyggju
að sækja hina miklu hljóm-
listarhátíð í Playhouse Theatre
30. marz, ætti að tryggja sér
aðgöngumiða sem fyrst. Hinar
tvær íslenzku listakonur, sem
þar koma fram, eru svó vinsæl-
ar, ekki einungis meðal íslend-
inga, heldur og annara þjóð-
erna, að sennilegt er að aðgang-
ur að öllum sætum hússins selj-
ist fyrirfram.
Aðgöngumiðar fást hjá Miss
Margréti Pétursson, 45 Home
Str., sími 721 724; Björnsson’s
Book Store, 702 Sargent og hjá
íslenzku vikublöðunum, Lög-
bergi og Heimskringlu.
Mr. Soffonías Thorkelsson rit-
höfundur frá Victoria, B.C., kom
til borgarinnar á mánudaginn
var ásamt frú sinni; munu þau
hjón dvelja hér í nokkra daga;
það er altaf hressandi að heilsa
upp á Mr. Thorkelsson, þennan
fróða og glögga alvörumann.
☆
HeimilisiðnaðarfélagiS
heldur fund kl. 8 á þriðju-
dagskvöldið þann 20. þ. m., að
PIONEER
CHICKS
are
"Bred for Produdion"
ORDER NOW
FOR EARLY DELIVERY
R.OP. Sired Barred Rocks Approved Lieht Sussex
New Hampshires 100 50
Rhode Island Reds 25
100 50 25 19.75 10.40 5.45
18.75 9.85 5.20 Pullets
Pullets 34.00 17.50 9.00
34.00 17.50 9.00 Cockerels
Cockerels 15.00 8.00 4.25
15.00 8.00 4.25
White Leghorns 17.25 9.10 4.85 White Rocks 18.25 9.65 5.10
Pullets Pullets
35.00 18.00 9.25 34.00 17.50 9.00
Cockerels Cockerels
5.00 3.00 1.75 15.00 8.00 4.25
Live Arr. Gtd. Pullets 96% Accurate
PIONEER
HATCHERY
416 Corydon Avé. Winnipeg, Man.
Producers of High Quality Chicks
Since 1910
heimili Mrs. Paul Sigurdson,
134 Niagara Street.
Sr
Þeir séra Eric H. Sigmar frá
Glenboro og séra Jóhann Frið-
riksson frá Lundar voru staddir
í borginni á mánudaginn.
☆
„FÖGUR ER FOLDIN".
Ræður og erindi eftir Dr.
Rögnvald Pétursson. Bók, sem
öllum er gott að lesa og eiga.
Mjög ódýr bók. Rúmar 400 blað-
síður í stóru broti. Kostar í
mjög laglegu bandi aðeins $4.50.
Björnsson's Book Síore,
702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
Fólkið óttar sig . . .
Framhald af bls. 5
arar og hermenn. Eti í þeirra
hópi er líka úrval hjáríkjanna,
knattspyrnumenn, pólskir flug-
menn og háttsettir rússneskir
liðsforingjar. Við teflum vesa-
lings Fuchs og Pontecorvo dul-
arfulla, sem báðir hafa kosið
Moskvu, fram gegn hundruðum
þúsunda A.-Evrópumanna, sem
vildu fá að draga að sér loft
frelsisins á árinu 1950. Þetta
•fólk gefur öruggasta svarið við
þeirri spurningu, hvort komm-
únistastefnan vinni hugi al-
mennings í heiminum eður eigi.
Hún týnir fylginu.
Sigrar Stalínismans á árinu
hafa unnist fyrir valdbeitingu,
venjulega með aðstoð annarra.
„Sigrar“ stefnunnar hafa fengizt
með valdi og óvæntum árásum.
Á árinu 1950 urðu menn vitni
að rússneska okinu í óvönduð-
ustu mynd þess, en menn hafa
líka orðið vitni að því, að áhrifa-
vald kommúnistastefnunnar hef
ir orðið að víkja úr hugum al-
mennings. Hún er ekki framar
trúaratriði. Hún er orðin al-
heimssamsæri.
—Mbl. 13. febr.
Fegrunorfélagið verðlaunar
þau hús, sem fegurst þykja
Fegrunarfélagið hefir nýlega sett nefnd til þess að skoða
ný hús hér í bænum og benda á þau, sem fegurst eru.
Ætlar félagið að verðlauna þau hús, sem fegurst þykja og
bezt, eða byggingameistara þeirra og eigendur.
Þetta verður samskonar starf-
semi og sú, sem félagið hefir
haldið uppi undanfarin ár nm
garðana og haft hefir greinileg
áhrif á garðrækt bæjarmanna
og áhuga á henni. 1 húsnefnd-
inni hafa tekið sæti, að beiðni
félagsstjórnarinnar, þeir Hörð-
ur Bjarnason, skipulagsstjóri,
Þór Sandholt, arkitekt, og Selma
Jónsdóttir, listfræðingur.
Þá mun Fegrunarfélagið halda
fund í næstu viku um skipulags-
mál bæjarins. Framsögumenn
verða arkitektarnir Sigurður
Guðmundsson og Þór Sandholt.
Þessi fundur verður sameigin-
legur fyrir Fegrunarfélagið og
Reykjavíkurfélagið, en þessi fé-
lög ætla að koma á samvinnu
sín í milli um þau mál, sem eru
sameiginleg áhugamál þeirra,
þótt þau starfi sjálfstætt hvort
um sig.
Um jólin í vetur lét Fegrun-
arfélagið gera allmörg steinker,
sem sett voru á Lækjargötu, að
ráði bæjarins, og tré í þau. Er
að þessu mikil prýði. Nú hyggst
félagið koma slíkum kerum fyr-
ir á fleiri stöðum og undirbýr
samvinnu um þetta mál milli fé-
lagsins og ýmsra stofnana og
stórhýsa í bænum, sem líklegt
þykir að vilji ljá þessu lið. Er
ætlunin að með vorinu geti slík
blómaker komið víða um bæ-
inn.
Fleiri mál hefir Fegrunarfé-
lagið nú í undirbúningi varð-
andi fegrun bæjarins.
—Mbl. 14. febr.
Nýjar vélar teknar í notkun
hjó ullarverkmiðjunni Gefjun
Síðasta ár vann verksmiðjan úr
163.000 kg. af ull og um 200
manns störfuðu, þar
Fyrstu vélarnar í hinni nýju
ullarverksmiðju Gefjunnar
á Akureyri voru nýlega
teknar í notkun. Eru þetta
tvær svissneskar spunavél-
ar af mjög fullkominni gerð,
og ein kembivélasamstæða.
innan skamms verður vef-
stólum komið fyrir í nýja
vélasalnum, og verða þeir
16 talsins. Árið sem leið
vann Gefjun samtals úr
163.787 kg. af ull og nálega
200 manns unnu hjá fyrir-
tækinu.
Unnið er nú að því að full-
gera hið nýja verksmiðjuhús
Gefjunnar, sem mun vera
stærsta verksmiðjuhús á land-
inu. Er það allt á einni hæð,
nema ullarþvottastöðin, sem er
á tveim hæðum. Gólfflötur
verksmiðjusalsins er 4400 fer-
metrar.
Þegar þessi nýja verksmiðja
verður öll tilbúin og tekin til
starfa, má fastlega búast við því,
að Gefjun geti aukið framleiðslu
sína á prjónabandi og dúkum,
svo að ekki þurfi að vera skort-
ur á þeim vörum í landinu.
Framleiðsla Gefjunar á árinu
1950 var sem hér segir:
Dúkar 75.000 m. Teppi 2.317
stk. Stoppteppi 604 stk. Kamb-
garns-prjónapand 26.949 kg. —
Annað band 10.281 kg. Lopi
61.265 kg.
Samtals var unnið úr 163.787
kg. ullar. Allmikil aukning varð
á framleiðslunni frá árinu 1949,
ef lopinn er frátalinn. Fram-
leiðsla dúka jókst um 14.000
metra, framleiðsla stoppteppa
tvöfaldaðist, kambgarnsprjóna-
band jókst um 5.000 kg. og ann-
að band um 6.000 kg.
Við ullarverksmiðjuna Gefj-
un starfa nú 174 manns, en auk
þess 20 við ullarþvottastöðina.
Þá störfuðu að’ staðaldri 45
manns við nýbyggingar verk-
smiðjunnar á árinu.
Á síðastliðnu ári greiddi ull-
arverksviðjan Gefjun 5.2 mill-
jónir króna í vinnulaun, þar af
1.1 milljón við nýbyggingar.
—Alþbl. 10. febr.
íslenzk
smíðuð
trésmíðavél
í vélsmiðjunni
Blossi ó Flateyri
Vélsmiðjan Blossi á Flat-
eyri hefir framleitt nokkr-
ar trésmíðavélar, og eru
þær algerlega íslenzk smíði,
nema hvað rafmagnsmótor-
inn, sem knýr tæki vélar-
innar, er innfluttur. Aðeins
tvær slíkar vélar hafa komið
hingað til Suðurlandsins og
fékk barnaskólinn í Hafnar-
firði aðra, en Páll Guðjóns-
son, trésmíðameistari í
Reykjavík, hina.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefir fengið hjá Páli Guð-
jónssyni, er vél þessi hið mesta
þing, að hans dómi. Hún er lítil
um sig og létt og því auðveld í
flutningum, og þarna eru sam-
einuð ýmis tæki í einni vél, sem
annars eru sjálfstæð verkfæri
hvert fyrir sig. Fylgjandi tré-
smíðavél þessari eru t. d. afrétt-
ari, fræsari, hjólsög og lang-
holsuðubor. Sagði Páll að vélin
væri sérstaklega hentug til þess
að vinna með henni við innrétt-
ingar á húsum, og væri það kost
ur hve auðvelt væri að flytja
hana á milli, en það væri létt
verk fyrir fjóra menn.
Forstjóri vélsmiðjunnar Blossi
á Flateyri er Vilberg Jónsson,
og hefir hann gert vélina eftir
sænskri fyrirmynd.
—Alþbl. 22. febr.
Betty: „Mamma, sendir Guð
okkur matinn?“
Móðirin: „Já, elskan“.
Betty: „En það verð hjá hon-
um“.
„Hvað er að þér, Jón? Ertu
meiddur?“
„Já, alveg áreiðanlega. Ég
sagði Pétri hvaða álit ég hefði á
honum í gærkvöldi og það lítur
út fyrir, að hann hafi haft verra
álit' á mér“.
☆
Orsök og afleiðing.
„En hvað sjúkrabílstjórarnir
hljóta að þurfa að horfa upp á
miklar þjáningar og eymd“.
„Já, vissulega! I hvert skipti,
sem þeir fara í ferð, aka þeir á
einhvern“.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
4
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017.—
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
*
Á íslenzku kl. 7 e. h.
......... e. h.
☆ Allir ævinlega velkomnir.
Jonni: „Þetta er hnefaleik- ☆
arinn frægi, MacCorker, bróðir — Argyle Prestakall —
minn var í sama bekk og hann“. Sunnudaginn 18. marz,
Tommi: „Það er nú ekki mik- (Pálma-sunnd.)
ið, hann sló þrjár framtennur Glenboro kl. 11 f. h.
úr bróður mínum“. (ensk messa).
Baldur kl. 7 e. h.
(ensk messa).
Islenzk föstu-messa í Glen-
boro á fimtud. 15. marz, kl.
7:30 e. h.
Eric H. Sigmar
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Pálma-sunnudag —
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
Ensk messa kl. 7 síðd.
Cantata: „The Darkest Hour“
undir stjórn Mr. E. Dinusson
kl. 8.30 síðd.
S. Ólafsson
☆
— Páskamessur —
Sunnudaginn, 25. marz —
Riverton kl. 2 e. h.
Árborg kl. 8 e. h.
Guðsþjónusturnar f a r a
fram á ensku.
Cantata: „The Dorkeat Hour“
Allir boðnir og velkomnir!
Skúli Sigurgeirsson
Sáttmálasjóður veitir 60-70 íslendingum
styrki á þessu ári
72 íslendingar sfunda nám í dönskum háskólum,
þar af 23 við Hafnarháskóla.
Sáttmálasjóður hefir úthlutað styrkjum til 60—70
íslenzkra ríkisborgara fyrir þetta ár. Um þessar
mundir stunda samtals 72 íslendingar nám í döskum
háskólum, þar af 23 við Kaupmannahafarháskóla.
Móðgun á móðgun.
„Ég sé reglulega eftir þessum
misskilningi, Finna, og ég er til-
búin að mæta þér á miðri leið
og sættast“.
„Misskilningi! Ef þú værir
ekki alveg tilfinningalaus, mynd
irðu kalla það rifrildi“.
☆
Göfugt markmið.
Hún: „Hefurðu heyrt um
Endurbótaklúbb kvenna?“
Hann: „Já, hann virðist hafa
það markmið að endurbæta allt,
nema klúbbinn, og alla, nema
meðlimi hans“.
Samkvæmt upplýsingum frá
sendiráði Dana hér á landi skipt-
ast styrkir sáttmálasjóðsins sem
hér segir:
Á fundi 23. júní s.l. úthlutaði
hin danska deild sáttmálasjóðs
eftirfarandi styrkjum tii ís-
lenzkra ríkisborgara:
Til eflingar dönsk-íslenku
menningarsambandi var úthlut-
að:
16 íslendingum 300 kr. hverj-
um til dvalar við ýmsar náms-
stofnanir, 1 fékk 500 kr.
Til vísinda: Til rannsókna ís-
lenzkra miðaldabókmennta var
úthlutað 1800 kr.
Á fundi hinn 28. desember s.l.
úthlutaði hin danska deild sátt-
málasjóðs eftirfarandi styrkjum
til íslenzkra ríkisborgara:
Til eflingar dönsk-íslenzku
menningarsambandi var úthlut-
að:
21 íslending 300 kr. hverjum
til dvalar við ýmsar námsstofn-
anir, einum íslendingi 500 kr.
Til vísinda: Einum Islendingi
500 kr. til að vinna í Árnasafni.
Til grasafræðilegra rannsókna á
íslandi var úthlutað 1500 kr., til
ljósmyndunar íslenzkra ævin-
týrahandrita 1000 kr. og til nor-
rænnar orðabókar 25.000 kr.
Til íslenzkra stúdenta: 17 ís-
lenzkum stúdentum 500 kr.
hverjum, 9 íslenzkum stúdent-
um 300 kr. hverjum.
Skibsreder A. P. Möllers Fond
af 1936 til fordel for islandske
studerende úthlutar hvert ár
800 kr. eða 4 sinnum 200 kr.
Eins og stendur stunda 23 ís-
lendingar nám við Kaupmanna
hafnarháskóla og 49 við aðra há-
skóla, flestir í verkfræðiháskól-
anum (27) og listháskólanum
(10). Aðgangur er ekki takmark-
aður að Kaupmannahafnarhá-
skóla né Árósarháskóla, en allir
aðrir háskólar hafa þurft að tak
marka tölu nemenda við ákveð-
ið hámark, og verður danskur
nemandi því að víkja fyrir hverj
um útlendingi, sem skólavist
hlýtur.
—Alþbl. 21. febr.
Stórhríð nyrðra, mjólk-
urlaust ó Akureyri
í gær var stórhríð hér nyrðra
með mikilli fannkomu. Umferð
tepptist á vegum og mjólkur-
iaust varð í bænum eftir hádegi.
Engin mjólk er væntanleg í dag,
fannfengi er geysimikið.
—Alþbl. 22. febr.
Páskavikan í Fyrstu lútersku kirkju
PÁLMASUNNUDAG
Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 11 f. h. (á ensku) íslenzk
messa kl. 7.
SKÍRDAGSKVÖLD, KL. 8
Altarisganga (á íslenzku).
FÖSTUDAGINN LANGA, KL. 7
Stainer’s Crucifixion verður sungin af sameiginlegum
söngflokk. Elmer Nordal og Albert Halldórsson ein-
söngvarar.
PÁSKADAG
Hátíðaguðsþjónustur á venjulegum tíma.
Allir ævinlega velkomnir!
YOUR CHOICE
of the finest
* ELECTRIC RANGES
* REFRIGERATORS
ELECTRIC RANGES
. . . featuring modern stylish lines, with fast heating
elements, roomy ovens and automatic heat control.
Available in both table top and low oven models.
Choose from a long list of makes including Moffatt,
General Electric, McClary, Westinghouse, Gurney,
Findlay and Frigidaire.
ELECTRIC REFRIGERATORS
. . . with plenty of storage space to keep food fresh.
Up to date features include dependable refrigerating
units and reliable temperature selectors. You can
choose from such beautiful models as Frigidaire,
General Electric, McClary, Westinghouse, Philco, Gib-
son and Leonard.
EASY TERMS AVAILABLE
(k W'
PORTAGE & KENNEDY
Phone 968 201