Lögberg - 26.04.1951, Page 1
PHONE 21 374
fcrtfa
&
.rvers
A Complete
Cleaning
Inslitulion
PHONE 21374
u«"'e
r'leö-'*16
Compl.t6
Cleaning
Institution
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, >0. APRlL, 1951
NÚMER 17
Kosningor í Bretiandi alveg
vafaioust í nónd
Þau tíðindi hafa nú gerst, að
alveg vafalaust verði gengið til
almennra þingkosninga á Bret-
landi, og það sennilega eins fljótt
og því framast verður viðkomið;
stjórnin hefir stuðst við afar
veikt þingfylgi og hefir tíðum
komist í hann krappan við at-
kvæðagreiðslur, og nú hafa tveir
af ráðherrunum látið af embætt-
um, en það eru þeir Bevan
verkamálaráðherra og Wilson,
er veitt hefir forustu viðskipta-
málaráðnuneytinu; báðir teljast
þessir ráðherrar til hins róttæk-
ari fylkingararms verkamanna-
flokksins, og nú hefir einn að-
stoðarráðherrann, sem sæti átti
á þingi fetað í fótspor hinna og
látið af embætti; ástæður, sem
þeir bera fram fyrir ákvörðun-
þessum eru þær, að stjórnin hafi
Merkur stjórn-
móíamaður !ófánn
Á fimtudaginn var lézt í svefni
að heimili sínu að Grand Rapids,
Mich., Senator Arthur H. Wand-
enberg, einn hinn vitrasti og
víðsýnasti stjórnmálamaður
Bandaríkjanna í samtíð sinni,
C7 ára að aldri; hann fylgdi
Republicanaflokknum að mál-
um, en var með öllu laus við
flokkslega hlutdrægni; hann átti
sæti á þjóðþingi Bandaríkjanna
samfleytt í tuttugu og þrjú ár,
°g var um langt skeið formaður
utanríkismálanefndar efri mál-
stofunnar, enda talinn einn hinn
mesti sérfræðingur þjóðar sinn-
ar varðandi meðferð utanríkis-
mála.
Senator Wandenberg var einn
af stofnendum sameinuðu þjóð-
^nna, og lagði jafnan á það mikla
áherzlu, að flokkapólitík fléttað-
ist ekki inn í stefnu þjóðar sinn-
ar í utanríkismálum meðan hún
^etti í kalda stríðinu við Rússa.
Við fráfall Senator Wanden-
bergs græðist Demókrötum eitt
sæti í efri málstofunni, með því
að ríkisstjórinn í Michigan, sem
er Demókrati, skipar í sæt.i hans
niann úr sínum flokki.
Truman forseti, og allir helztu
þingforingjar, mintust fagurlega
hins merka og margþætta ævi-
starfs hins látna Senators í þágu
hinnar amerísku þjóðar.
Atkvæðagreiðsla
fyrirskipuð
Samkvæmt lögskipuðum fyr-
irmælum fylkisþingsins í Mani-
toba, verður því skotið undir al-
nienna atkvæðagreiðslu bænda,
hvort þeir vilji að sala hrjúfra
korntegunda verði framvegis,
eins og hefir gengist við, í hönd-
um hveitiráðsins, eða að þeir
hjósi sér aðrar markaðsleiðir;
ekki hefir enn verið gert heyrin
kunnugt hvenær atkvæðagreiðsl
an fari fram, þótt það verði að
^jalfsögðu einhverntíma í sumar.
Fangi fyrirfer sér
John Henry Schmidt, 31 árs að
aJúri, sá, er handtekinn var um
síðustu helgi, og sakaður um að
hafa myrt foreldra sína og þrjú
systkini á býli þeirra skamt frá
bænum Carman hér í fylkinu,
eins og skýrt var frá hér í blað-
mu í fyrri viku, fyrirfór sér í
Mngaklefa sínum í Headingly
hegningarhúsinu á aðfaranótt
síðastliðins fimtudags; hafði not-
að leðurbelti til að hengja sig í.
veitt svo mikið fé til hervarna,
að rneð því hafi í rauninni verið
grafnar ræturnar undan því.fé-
lagslega öryggi, er flokkurinn
hafði efst á stefnuskrá sinni og
komst til valda á.
Arinbjörn Sigurgeirsson
Bardal 85 ára
22. apríl 1951
Svíjur fyrir sjónum,
svipur horfnrar tíðar,
frónskra mikilmenna,
merkra fyrr og síðar.
Þeirra mikla manndóms,
máttkur lifir andi,
heiðraður og hafinn,
hátt í voru landi.
Aldrei mázt úr minni,
manndómserfðir slíkar,
meðan uppi eru,
Arinbjarnar líkar.
Fyrir alla æfi,
ungur hét hann trygðum,
feðra trú og frelsi,
frónskum höfuðdygðum.
Hann er enn í anda,
ungur, frjáls og glaður,
heilbrigður á hólmi,
hálfnírœður maður.
Ytra ber hann engin,
afturfarar merki,
farsæll ættararfur,
á þar hlut að verki.
Hugprýðin og hreystin,
halda ennþá velli,
táp af slíku tagi,
tefur fyrir elli.
Góðvild hans og göfgi,
gladdi margan bróður,
sem án vina virtist,
vondapur og hljóður.
Fagur orðstír endist,
æfidegi lengur,
og í hvers manns huga,
hyltur góður drengur.
Hjörtur Brandson
Alvarlcgar fréttir
frá Kóreu
Síðastliðinn sunnudag hófu
kommúnistar gagnsókn mikla á
vesturvígstöðvunum, og hTöktu
liðsveitir sameinuðu þjóðanna í
tveimur tilfellum frá 12—15 míl-
ur til baka; mannfall af hálfu
kommúnista varð að sögn geisi-
mikið, en af miklu var að taka,
og fyltu þeir því jafnóðum upp
í skörðin; staðhæft er að á
áminstum vígstöðvum ráði rauð-
liðar yfir freklega sjö hundruð
þúsundum vígra manna, er vel
séu búnir að hergögnum öllum.
Lætur af
þingmensku
Mr. J. C. Donaldson, þingmað-
ur fyrir Brandonkjördæmið í
fylkisþinginu í Manitoba, hefir
tilkynt forseta þingsins, að hann
láti af þingmensku að loknu því
þingi, er enn á setu; hann hefir
jafnframt lýst yfir því, að hann
dragi sig með öllu í hlé af vett-
vangi stjórnmálanna. Mr. Don-
aldson hefir jafnframt fylgt í-
haldsflokknum að málum og var
kosinn 1949 undir merkjum hans
sem stuðningsmaður samvinnu-
stjórnarinnar; hann hefir reynst
hinn nýtasti maður á þingi og
býr yfir þeim hyggindum, sem í
hag koma.
Mr. Donaldson stofnaði fyrir
nokkru fyrirtækið B r a n d o n
Packers Limited, og er forseti
þess og aðalframkvæmdarstjóri.
Arinbjörn S. Bardal
Áttatíu cg
fimm óra
Síðastliðinn sunnudag átti
Arinbjörn S. Bardal áttatíu og
fimm ára afmæli, og var, eins
og vænta mátti, næsta gest-
kvæmt á heimili þeirra hjóna þá
um daginn, því bæði er nú það,
að fjölskyldan er stór, og vina-
hópurinn.út í frá, heldur ekkert
smáræði.
Árin sýnast lítt hrína á Arin-
birni, hann er enn hinn snöfur-
mannlegasti- og leikur sér dag-
lega eins og unglamb.
Tjón af völdum
óflæðis
Mississippifljótið hefir gert
mikinn usla víðsvegar í Mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna, og
að því er Rauða Krossfélaginu
segist frá, munu nálega tuttugu
og tvær þúsundir manna í fimm
ríkjum hafa neyðst til að hverfa
af heimilum sínum; eignatjón
skiptir miljónum dollara.
Lagafrumvarp
afgreiff
Frumvarp Campbellstjórnar-
innar í Manitoba um heimild til
að kaupa allar eignir Winnipeg
Electricfélagsins og samræma
orkumál fylkisins í eina heild,
hefir verið afgreitt í fylkinu með
nálega samhljóða öllum atkvæð-
um, eða með fjörutíu og fimm
atkvæðum gegn tveimur; þeir
tveir þingmenn, er greiddu at-
kvæði gegn framgangi frum-
varpsins voru Mr. McDowell,
Iberville, og Mr. Duff Roblin,
þingmaður fyrir Suður-Winni-
peg kjördæmið.
Aðgerðir stjórnarinnar í á-
minstu máli, eru grundvallaðar
á skýrslu hinnar svokölluðu
Hogg-nefndar, er fyrir nokkrum
árum var lögð fram og mælti
með því, að orkuframleiðsla
fylkisins yrði betur samræmd,
en fram að þessu hefir gengist
við, og yrði að öllu leyti í hönd-
um stjórnarvalda fylkisins.
Getið er til, að söluverð eigna
Winnipeg Elecric-félagsins muni
nema um 70 miljónum dollara;
þá er nú og líklegt talið, að Win-
nipeg Hydro muni selja fylkinu
allar orkustöðvar sínar.
Býður sig fram
til þings
Mr. J. W. Grant MacEwan,
prófessor í landbúnaðarvísind-
um við Manitobaháskólann, læt-
ur nú af því embætti og býður
sig fram til sambandsþings í
Brandonkjördæminu, en kosning
þar hefir verið fyrirskipuð þann
24. júní næstkomandi. Áminst
kjördæmi losnaði sem kunnugt
er, við fráfall Mr. Matthews,
sem var elztur canadískra þing-
manna, er dauða hans bar að.
Mr. Mac Ewan leitar kosninga
undir merkjum Liberalflokksins,
og er hann um alt hið álitlegasta
þingmannsefni.
EFNILEGIR TVIBURAR:
Vógu 18 og 19 merkur og voru
54 og 55 cm. á lengd
Þriðja fæðing móðurinnar, sem er frá Selfossi
Sjöunda apríl ól þrítug kona frá Selfossi tvíbura í fæðinga-
deild Landspítalans í Reykjavík, dreng og stúlku, og vó
annað barnið átján merkur en hitt nítján. Mun slíkur
þroski tvíbura vera með fádæmum,
Ekki léttir
dýrtíðinni
Þess verður ekki vart enn, að
dýrtíðinni í þessu landi sé tekið
að létta, eða raunhæfar ráðstaf-
anir hafi verið gerðar af hálfu
stjórnarvaldanna í úrbótaátt;
pund af kaffi, þegar bezt lætur,
kostar dollar, pund af sæmilegri
steik áttatíu cents og stundum
þar yfir, og svo má segja, að alt
fari eftir þessu; allar tegundir
fatnaðar hafa hækkað í verði
von úr viti, og svo er nú húsa-
leiga hreint ekki orðin neitt
barnaglingur heldur; þetta er
þeim ekki tilfinnanlegt, sem úr
nógu hafa að moða, en það er
ekkert leikfang fyrir ellistyrks-
þegana og láglaunastéttirnar í
borgum og bæjum.
Afmælisósk til A. S.
Bardal 22. apríl 1951
Áttatíu ár of fimm,
TJnir þú í Ijósi dags,
Aldrei sé þér œfin dimm
Upp til hinzta sólarlags.
Með vinsemd,
Finnbogi Hjálmarsson
Stefán Islandi syngur
íslenzk lög í danska
útvarpið
í dag syngur Stefán Islandi,
óperusöngvari, íslenzk lög í
danska útvarpið kl. 19,15—19.35
eftir íslenzkum tíma.
Lögin, sem Stefán syngur eru:
Vögguljóð eftir Jón Þórarinsson,
Horfinn dagur eftir Árna Björns
son, Áfram eftir Árna Thorsteins
son, Vögguvísa eftir Pál Isólfs-
son, Nú lokar munni rósin rjóð
eftir Loft Guðmundsson og Bik-
arinn eftir Eyþór Stefánsson.
—Mbl. 18. marz
Snjó kyngir niður
á Austurlandi
Morgunblaðinu barst í gær
svohljóðandi fréttaskeyti frá
fréttaritara sínum á Egilsstöð-
um:
Enn hefir bætt stórlega á snjó-
inn hér á Héraði. Frá því á laug-
ardagskvöld til þriðjudagsmorg-
uns var óslitið hríðarveður með
miklu frosti. Hafa fóðurflutning-
ar alveg teppst þessa daga. Nú
eftir óveðrið var þungfært öll-
um flutningatækjum. En á fóð-
urflutningum veltur afkoman á
Út-Héraði og Jökuldal meðan
aðkeypt fóður endist.
Þetta dæmalausa tíðarfar tor-
veldar mjög alla fóðurflutninga
og gerir ástandið í þessum byggð
arlögum enn ískyggilegra.
—Mbl. 19. apríl
Fannkingi í Alberfa
Um miðja fyrri viku lagðist
víðsvegar um Albertafylki slíkt
fannkingi, að einstætt er talið á
þessum tíma árs; í Calgary nam
hinn nýfallni snjór nálega tíu
þumlungum, en varð þó töluvert
meiri í Edmonton; allmikið snjó-
aði og um sama leyti hér og þar
í Saskatchewan, en í Manitoba
ekki svo neinu næmi.
Móðir barnanna er Regína
Guðmundsdóttir að Heiðarbóli á
Selfossi, en maður hennar er
Benedikt Franklínsson, starfs-
maður á Selfossi hjá vegagerð
ríkisins. Þau hjón áttu fyrir tvær
telpur, en þetta var þriðja fæð-
ingin. — Regína er ættuð úr
Flatey á Breiðafirði, en Benedikt
er frá Litla-Fjarðarhorni í Kolla-
firði á Ströndum.
Tvíburarnir.
Það var stúlkubarnið, sem var
þyngra, nítján merkur, og lengd
þess var 55 sentimetrar. Dreng-
urinn, var 18 merkur og 54 senti-
metrar að lengd. Þeim mæðgin-
um heilsast öllum vel, og mun
móðirin senn fara heim með hina
ungu Selfossborgara. Óskar Tím-
inn þeim góðrar heimferðar.
Hafði verið slöpp og þungfær.
Regína er kona rösklega í með-
allagi há vexti. Hún hafði síð-
ustu^ vikurnar verið mjög þung-
fær, eins og von var til, og nokk-
uð slöpp. Samt var hún alltaf á
fótum, þar til nokkru fyrir fæð-
ingu. Hafði hún legið vikutíma
í fæðingardeildinni, er hún átti
börnin.
Meðal einburar 14—15 merkur.
Það mun talið, að meðal ein-
burar séu fjórtán til fimmtán
merkur að þyngd, en dæmi eru
þess, að þeir séu allt upp í 24—25
merkur. Slík þyngd og þroski
tvíbura, sem barna þeirra hjóna,
Regínu og Benedikts, mun harla
fátíður, ef ekki nær einsdæmi.
—Tíminn, 15. apríl
Hin nýja flugvél Flugfélags
íslands er komin til landsins
Verður skírð einhverju faxanafni.
HIN NÝJA Douglas Dakota flugvél Flugfélags íslands
kom til Reykjavíkur klukkan 15.55 í gærdag, og hafði hún
þá verið um 5% tíma á leiðinni frá Prestvík. — Flugvél-
inni hefir ekki verið valið nafn ennþá, en mun verða
skírð einhverju faxa nafni.
Fyrir hálfum mánuði síðan
fóru þeir Jóhannes Snorrason
yfirflugmaður og Ásgeir Magnús
son vélvirki til Englands þeirra
erinda að líta á flugvél, sem var
föl í Manchester. Árangurinn af
ferðinni var sá, að ákveðið var
að festa kaup á þessari flugvél.
S.l. fimmtudag var svo flug-
vélinni flogið frá Manchester til
Prestvíkur, en þar voru ein-
kennismerki Flugfélags íslands
máluð á hana, auk þess, sem
smáskoðun fór fram á flugvél-
inni áður en flogið var yfir haf-
ið. Auk þeirra Jóhannesar og Ás-
geirs voru eftirtaldir menn í á-
höfn flugvélarinnar frá Prest-
vík til Reykjavíkur: Gunnar
Frederiksen aðstoðarflugmaður,
Rafn Sigurvinsson loftskeyta-
maður og Skúli Petersen loft-
siglingafræðingur.
Hin nýja flugvél getur flutt 28
farþega, en aðrar Douglas flug-
vélar Flugfélags íslands hafa
haft sæti fyrir 21 farþega. Ekki
hefir flugvélinni ennþá verið
valið nafn, en einhvern næstu
daga mun hún verða skírð ein-
hverju faxanafni, eins og aðrar
flugvélar, sem eru í eigu Flug-
félags íslands.
Flugvélin, sem ber einkennis-
stafina TF—ISB, mun verða tek-
in í notkun strax, en hún kemur
til með að fljúga á öllum helztu
flugleiðum félagsins, svo sem til
Akureyrar, Vestmannaeyja og
annara þeirra staða, sem Douglas
flugvélar F. í. fljúga reglulega
til.
—Alþbl. 15. marz
Fær
dómaraembæHi
Ralph Maybank
Nú hefir Mr. Ralph Maybank
formlega látið af þingmensku
sem sambandsþingmaður fyrir
Mið-Winnipeg-kjördæmið h i ð
syðra, og mun verða, áður en
langt um líður, skipaður dóm-
ari í konungsrétti Manitoba;
þingmensku afsal hans gerir það
að verkum, að aukakosning fer
fram í kjördæminu þann 24. júní
næstkomandi.
Brezkur kafbótur
fersf1
Nú hefir flotamálaráðuneytið
brezka lýst yfir því, að kafbát-
urinn Affray, sem týndist í
Ermarsundi um fyrri helgi, hafi
auðsjáanlega farist með allri á-
höfn, 75 manns; neðansjávarbát-
ur þessi var í reynsluför og hafði
með sér súrefni, er talið var
nægilegt til . að endast í 48
klukkustundir; er kafbáturinn
gerði ekki vart við sig á tiltekn-
um tíma, var leit hafin, er fjöldi
herskipa og flugvéla tók þátt í,
en alt kom fyrir ekki; einnig
tóku kafarar þátt í leitinni án
þess að þeir yrði nokkurs varir.
Flotamálaráðuneytið t e 1 u r
þetta eitt hið sérstæðasta slys,
sem gerst hafi á friðartímum í
sögu brezku þjóðarinnar.
Þinglausnir
Síðastliðið föstudagskvöld var
Manitobaþinginu slitið eftir að
það hafði setið á rökstólum í
ellefu vikur, tekið til meðferðar
sæg mikinn þingmála og afgreitt
fjölda frumvarpa. Campbell for-
sætisráðherra lét þess getið, að
til þess gæti komið, að kvatt yrði
til aukaþings með það fyrir aug-
um, að ganga endanlega frá raf-
orkumálum, einkum með hlið-
sjón af þörfum Winnipegborgar;
yfir höfuð fór þingið friðsam-
lega fram, og umræðum jafnað-
arlegast stilt í hóf. Einn ráð-
herranna, Mr. McDiarmid, gat
ekki tekið þátt í þingstörfum
vegna lasleika.