Lögberg - 26.04.1951, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. APRIL, 1951
S. Þ. eiga að varðveita friðinn
SÍÐARI HLVTI
Hér fer á eftir framhald
ræðu Thor Thors sendiherra,
sem hann flutti á fundi
Stjórnmálanefndar S. Þ.
29. janúar s.l.
Nú liggja fyrir nefndinni tvær
tillögur til ályktunar. Önnur frá
Bandaríkjum Norður-Ameríku
(fskj.A/C.l./654). Mörg ríki hafa
þegar lýst fylgi sínu við þessa
tillögu.
í annari málsgrein þessarar
tillögu er það tekið fram, að
Pekingstjórnin hafi hafnað til-
lögum Sameinuðu þjóðanna um
að gera vopnahlé í Kóreu með
friðsamlega lausn málanna fyrir
augum, og að herir hennar haldi
áfram innrás sinni í Kóreu og
geri stórfelldar árásir á lið Sam-
einuðu þjóðanna þar.
í samræmi við þetta segir í
þriðju málsgrein svo sem hér fer
á eftir: „Lýðstjórnin í lýðrík-
inu Kína hefir veitt liðveizlu og
beinan stuðning þeim, sem þegar
höfðu framið árás í Kóreu og
tekið þátt í bardögum gegn liði
Sameinuðu þjóðanna þar og
þannig gjörst sek um árásar-
aðgerðir í Kóreu.
Þegar ef til vill hundruð þús-
unda kínverskra hermanna vel
vopnaðir flugvélum, skriðdrek-
um og öllum týtízku vígbúnaði
berjast í Kóreu — og þegar enn-
fremur er tekið tillit til fram-
komu Pekingstjórnarinnar við
Sameinuðu þjóðirnar — getum
við þá með nokkru móti komist
hjá þeirri niðurstöðu, að kín-
verska lýðstjórnin sé þátttak-
andi í árásaraðgerðum í Kóreu.
Það er hin mesta háðung við
Sameinuðu þjóðirnar og veröld-
ina alla á þessum miklu alvöru-
tímum, ef á að telja okkur trú
um það, að Kínverjarnir, sem
berjast í Kóreu, séu einungis
sjálfboðaliðar, sem af tilviljun
lögðu leið sína yfir landamærin.
Manni gæti þá jafnvel orðið á að
spyrja, af hverju þeir eru þá
ekki heldur kallaðir skemmti-
ferðamenn.
Sameinuðu þjóðirnar hikuðu
ekki við að saka Norður-Kóreu-
menn um árásaraðgerðir. Þeir
berjast þá í heimalandi sínu, en
Kínverjar aftur á móti réðust
inn í framandi land og heyja
stríð á erlendri grund, leggja að
velli syni þeirra þjóða, sem eru
í bandalagi Sameinuðu þjóð-
anna.
Það er tvímælalaust skylda
Sameinuðu þjóðanna að viður-
kenna staðreyndir, og það er
hryggileg staðreynd, að Kín-
verjar taka þátt í árásaraðgerð-
um í Kóreu. Sumar sendinefnd-
ir hafa haldið því fram, að yfir-
lýsing um þann sannleika muni
særa hinar viðkvæmu tiliinning-
ar Pekingstjórnarinnar og þar
með espa hana til öflugri árásar-
aðgerða, og muni hún þá neita
að semja við hið illa innrætta
Bandalag Sameinuðu þjóðanna.
Með leyfi að spyrja, eru það ein-
hver sérréttindi Pekingstjórnar-
innar að lýsa Sameinuðu þjóð-
irnar árásaraðila og þá einkum
Bandaríki Norður-Ameríku, sem
verja sjálft líf bandalagsins með
blóði sona sinna og leggja gæfu
þegna sinna að veði dag frá degi
og veita Kóreubúum og þegnum
allra annarra smáþjóða þannig
hugstyrk með því að sýna fram á
það í fyrsta skipti í sögunni, að
hugmyndin um félagsöryggi
þjóðanna er ekki orðin tóm,
heldur raunveruleiki nútíðar-
innar.
í þessari tillögu er sú krafa
gerð á hendur Pekingstjórninni,
að hún sjái svo urn^að herir henn
ar og kínverskir þegnar í Kóreu
láti af ófriði sínum við lið Sam-
einuðu þjóðanna og haldi á brott
úr Kóreu. Ennfremur er stað-
festing gefin á þeim ásetningi
bandalagsins að halda áfram að-
gerðum sínum gegn árásinni í
Kóreu og þess krafist af öllum
ríkjum að halda áfram að veita
Sameinuðu þjóðunum allan
stuðning í aðgerðum þeirra í
Kóreu. Auk þess er þess krafist
af öllum ríkjum, að þau veiti á-
rásarmönnunum í Kóreu enga
aðstoð.
í áttundu málsgrein er svo
fyrir lagt, að nefnd skipaðri
meðlimum nefndarinnar um
sameiginlegar ráðstafanir skuli
falið að athuga án tafar, hverj-
um frekari ráðstöfunum verði
beitt gegn þessum árásaraðgerð-
um, og á hún að skila Allsherj-
arþinginu áliti um málið.
Það er nú ljóst orðið af skýr-
ingu þeirri, er háttvirtur full-
trúi Bandaríkjanna gaf hér á
laugardaginn, að ætlunin er að
skipa sérstaka nefnd til að at-
huga ráðstafanir gegn þessum
árásaraðgerðum. Og ég vil
leggja áherzlu á það, að sú skýr-
ing var gefin, að nefndin hefði
einungis umboð til að athuga
slíkar ráðstafanir, og verður að
gefa Allsherjarþinginu skýrslu
um það efni. Það er því auðsætt,
að Allsherjarþingið mun taka á-
kvörðun um það, hvort og hve-
nær nokkrum refsiaðgerðum
verður beitt, og ekkert ríki er
skuldbundið til að gera neinar
þær ráðstafanir, er nefndin ger-
ir tillögur um. Ákvörðun í mál-
inu verður tekin á Allsherjar-
þinginu, og hvert ríki hefir þá
rétt til að ráða við sig afstöðu
sína til slíkra aðgerða. Menn
skyldu gera sér Ijósa grein jyrir
því, að við erum ekki að taka
ákvörðun um neinar refsiað-
gerðir að sinni. Við erum aðeins
að leggja drög til að gerð verði
athugun á því, hvort ráðlegt
þætti að beita refsiaðgerðum síð-
ar. Þessi grein er því einungis
sett til tryggingar, og engar nið-
urstöður af þeim athugunum,
sem þar er lagt til að gera, verða
nokkurn tíma lagðar fyrir Alls-
herjarþingið meðan einhver von
er um friðsamlega lausn í Kóreu.
Háttvirtur fulltrúi Líbanon hefir
gert breytingartillögu, sem gef-
ur enn betri skýringu á efni
þessarar greinar, og vér munum
með ánægju greiða atkvæði
tillögu hans.
í síðustu grein tillögunnar
felst staðfesting á því, að Sam-
eínuðu þjóðirnar halda áfram að
stefna að því að koma á vopna-
hléi í Kóreu og að ná markmið-
um Sameinuðu þjóðanna þar
með friðsamlegu móti, og þar
mælir svo fyrir, að forseti Alls-
herjarþingsins skuli þ e g a r
kveðja til með sér tvo menn, er
ásamt honum beittu sér fyrir
milligöngu í þessu skyni.
Þessi niðurlagsgrein tillög-
unnar sýnir enn einu sinni, að
Sameinuðu þjóðirnar rétta fram
hönd sína til heiðarlegrar lausn-
ar. Sáttanefnd sú, er hér er lagt
til að komið verði á fót, og ég er
ekki í neinum vafa um að hún
verður skipuð einhverjum vitr-
ustu og hæfustu mönnum okkar,
getur tekið til starfa þegar í
stað. Pekingstjórninni ætti að
vera kunnugt um það, að þessir
fulltrúar eru fúsir að koma til
fundar við hana og 'ræða um
samninga á grundvelli ákvæð-
anna í stofnskrá Sameinuðu
þjóðanna.
Við erum með þessu að koma
á fót nýrri nefnd til sátta og frið-
ar, sem sönnun þess, að þrátt
fyrir sífelld vonbrigði, vonast
bandalagið stöðugt eftir friði og
telur dyrnar þangað enn standa
opnar. — Sameinuðu þjóðirnar
komu til Kóreu eingöngu í þágu
friðarins og dvelja þar einungis
í friðarskyni.
Hin tillagan, sem fyrir liggur
í málinu (fskj. A/C. 1/642, nr.
I og II), er borin fram af tólf
Asíu- og Arabaríkjum. I þessari
tillögu felst, að fulltrúar þeirra
sjö ríkisstjórna, er Pekingstjórn-
in stakk upp á, komi saman við
fyrsta tækifæri til að rannsaka
svar Pekingstjórnarinnar við
tillögum nefndarinnar, um frið-
samlega lausn og til að hefja
undirbúning að friðsamlegri
lausn Kóreumálsins og ágrein-
ingsmála í Austur-Asíu.
Upphaflega var ekkert hirt um
þá afstöðu stjórnmálanefndar-
innar í tillögunni, að vopnahlé
yrði fyrst að komast á í Kóreu
og allar samningaviðræður að
fara á eftir. Henni hefir nú ver-
ið breytt þannig, að hún felur í
sér ákvæði um vopnahlé. I til-
lögunni virðist samt sem áður að
engu farið eftir þeim reglum, er
nefndin hefir sett sér og ekki
eftir ákvæðum stofnskrárinnar,
og er tillagan þar af leiðandi
ekki aðgengileg.
Samkvæmt þessum athugun-
um og staðreyndum mun ís-
lenzka sendinefndin greiða at-
kvæði með tillögu þeirri, sem
Bandaríkin hafa lagt fram. Er
við gerum það höfum við í huga
og byggjum á þessum atriðum:
Á þessari örlagastundu er að-
eins um tvennt að ræða. Sam-
einuðu þjóðirnar verða að taka
sterka afstöðu eða bregðast hlut-
verki sínu. Það virðist vera lítill
vafi á því, að árás Norður-Kór-
eumanna inn í Suður-Kóreu
átti upptök sín. var undirbúin
og hefir verið styrkt af hinum al-
þjóðlega kommúnisma, sem
þyrstir í alheims yfirráð. Árás
Kínverjanna virðist einnig vera
ein hlið á hinum hættulegu ráða
gjörðum um útþenslu hins al-
þjóðlega kommúnisma, sem nú
vofir yfir mannkyninu og varp-
ar skugga og ótta á líf sérhverr-
ar þjóðar, ekki sízt smáþjóðanna,
sem eru þess ekki megnungar
að verja sjálfa sig.
Við vitum nú, að ef Samein-
uðu þjóðirnar hefðu ekki skorist
í leikinn í Kóreu, þá væri nú
kommúnistísk leppstjórn í
Kóreu, sem hefði yfirráð yfir
öllu landinu. Ef Kórea félli nú
í hendur kommúnista, hver yrðu
þá örlög Indo-Kína, Thailands,
Burma, Malaya, jafnvel Indo-
nesíu og Filipseyja, og við gæt-
um haldið áfram lengra. Er það
ekki hugsanlegt, að einhvern
daginn yrði þunglega barið að
dyrum Indlands frá öðrum átt-
um en Tibet, sem kommúnistar
hafa nú lagt undir sig.
íslenzka þjóðin hefir mikla
samúð með þjóðum Asíu, enda
þótt við búum svo langt frá hver
öðrum, og séum svo lítið kunn-
ugir. Okkur finnst að Kórea eigi
að vera fyrir Kóreubúa, Tibet
fyrir Tibetbúa og Kína fyrir
Kínverja. Asía fyrir Asíubúa, en
ekki fyrir Rússana.
Einhversstaðár v e r ð u r að
stöðva þessar tryllingslegu ráða-
gerðir um útþenslu kommún-
isma. Aðeins styrkleiki og sam-
heldni hins frjálsa heims getur
stöðvað hana. Allur heimurinn
er í hættu. I dag er það Kórea.
Á morgun gæti það verið Iran og
Júgóslavía, eða Vestur-Þýzka-
lands, eða Noregur, Svíþjóð, eða
jafnvel Island. Félagsöryggi er
okkar eina von. Það er hlutverk
Sameinuðu þjóðanna að veita
okkur það. Þegar styrjöldin
hófst í Kóreu voru Sameinuðu
þjóðirnar veikburða nýgræðing-
ur. Það eru Bandaríkin, sem
meira en nokkur önnur þjóð
hafa styrkt og eflt Sameinuðu
þjóðirnar. Þau hafa í rauninni
orðið lífgjafi þessa veika ný-
græðings. Álit og styrkleiki
Sameinuðu þjóðanna var endur-
lífgaður og aukinn. og í dag eru
samtök þeirra þýðingarmeiri
fyrir allan heiminn, sérstaklega
smáþjóðirnar, heldur en þau
hafa nokkru sinni verið áður.
Við skulum vona, að þjóðir
heimsins verði ekki fyrir von-
brigðum. Við skulum vona, að
mannslífunum hafi ekki verið
fórnað árangurslaust í Kóreu.
Við þykjumst nú vita, að unnt
hefði verið að stöðva hina aðra
heimsstyrjöld, ef það hefðu ver-
ið til samtök frjáls heims árið
1939 og 1939. Við trúum því og
biðjum, að með festu og styrk-
leika og óbilandi trúmennsku
við framkvæmd hugsjóna Sam-
einuðu þjóðanna, muni þeim
takast að koma í veg fyrir hina
þriðju heimsstyrjöld, og að
skapa friðsamlegt samfélag
frjálsra þjóða.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á (SLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir am
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
BÁRUGATA 22 REYKJAVÍK
—Mbl. 15. Marz
MOST COMFORTABLE CARS ARE BRITISH
British cars won 13 of the 18 prizes for the best
looking, best equipped and most comfortable cars at
the recent Monte Carlo Rally Concours de Confort.
British car manufacturers are constantly engaged
in tests to improve the present performance and equip-
ment of new cars. Modern equipment is being installed
for better riding comfort, better driving in all kinds
of weather for drivers and passengers. With a standard
Mark VI Bentley, Mr. W. M. Couper won the Grand
Prix d’Honneur, a prize awarded for interior comfort
and suitability for long distance touring at the Monte
Carlo Rally. His car was perfectly equipped for the
arduous 2,000-mile winter test and its fixtures included
wipers to keep the headlamps free from snow, a fog
light with an extending arm, a barometer on the steer-
ing wheel, and a device for washing the windscreen
when the car is in motion. This picture shows Mr. W.
M. Couper standing beside his Bentley car at Monte
Carlo. The healight wipers can be clearly seen.
, Ef til vill eru bein Péturs
postula fundin
Vísindamenn rannsaka bein, sem fundust í gröf hans
Eftir PATRICK CROSSE, fregnritara Reuters
PÁFAGARÐI. — I kapellu við
hliðina á einkabókasafni páfa
í Vatikanhöllinni, er lítil beina-
hrúga. Þetta eru hér um bil 1000
ára gömul mannabein. — Ka-
þólska kirkjan kennir, að Krist-
ur og María mey hafi stigið upp
til himna. Úr því að því hefir
þannig verið slegið föstu, getur
verið að þessi beinahrúga sé öll-
um helgum dómum dýrmætari
fyrir kaþólsku kirkjuna.
Beinin rannsökuð.
Bein þessi fundust fáein fet
frá ófáguðu steinskríni, sem
komið var niður á beint undir
háaltari Péturskirkjunnar. —
Píus páfi XII. hefir lýst yfir, að
þarna sé um að ræða gröf fyrsta
postulans og fyrsta páfans.
Fornfræðingarnir^ sem fundu
gröfina, hafa lagt þó nokkuð að
páfanum, að hann lýsti yfir, að
hér væri fundin bein heilags
Péturs. Samt hefir páfinn ekki
enn gefið þessa yfirlýsingu.
Aftur á móti mælti hann svo
fyrir, að beinin skyldu flutt í
litla kapellu við hliðina á her-
bergjum hans í Vatikanhöllinni,
þar sem vísindamenn rannsaka
þau nú gaumgæfilega.
Full leynd er höfð á þessum
rannsóknum. Samt er talið, að
vísindamennirnir reyni fyrst af
öllu að ganga úr skugga um,
hvort beinin muni vera af karli
eða konu.
Ef takast mætti að færa sönn-
ur á, að beinin væru af karli og
aldur þeirra telst hér um bil
1900 ár, þá hafa þar með aukist
líkurnar til, að þau séu af Pétri
postula.
Tekin úr skríninu.
Auðvelt er að skýra, hvers
vegna þau voru ekki í steinskríni
grafarinnar, heldur rétt hjá.
Margt bendir til, að Serkir hafi
rænt gröfina í herhlaupinu til
Rómar 846. Þegar þeir létu
greipar sópa um muni þá, sem
gefnir höfðu verið til grafarinn-
ar og komið var fyrir víðsvegar
um hana, þá er varla nokkur vafi
á, að þeir hafa opnað skrínið.
Þar sem engin bein voru í
skríninu nú, þá þykir það benda
eindregið til þess, að þau, sem
upphaflega var komið þar fyrir
hafi seinna verið numin þaðan
burt. Það gæti hæglega verið
sömu beinin og fundust í sömu
gröfinni nokkur fet frá skrín-
inu.
Gröf postulans fundin.
En ekki er kunnugt um, hvort
vísindamönnum þeim og forn-
fræðingum, er fengnir hafa verið
til, muni nokkru sinni takast að
færa öruggar sönnur á að bein-
in séu í raun og sannleika af
Pétri postula.
Búist er við, að allur sá fróð-
leikur, sem tekist hefar að safna
um þetta efni, verði gerður
heyrinkunnur einhvern tíma á
þessu ári, þegar páfi gefur yfir-
lýsinguna um fund fornfræðing-
anna. Unnu þeir að því í 10 ár
að grafa upp gröf postulans.
Upphaflega var búist við, að
yfirlýsingin yrði gefin um þenna
fund einhvern tíma í fyrra.
En fyrst á aðfangadagskvöld,
seinasta degi ársins helga, gaf
Píus páfi svolátandi yfirlýsingu:
„Hefir gröf heilags Péturs í raun
og veru fundist? Lokaniðurstaða
þess starfs og þeirra rannsókna,
sem fram hafa farið, er skýlaust
jákvæð. — Já, gröf postulans
hefir fundist“.
Menn héldu, að tilkynning um
fund fornfræðinganna mundi
fylgja í kjölfarið. Enn virðist þó
hafa orðið töf á. — Páfinn hefir
ekki enn gefið fyrirmæli um út-
gáfu þess aragrúa af skjölum,
sem hlýtur að verða yfirlýsing-
unni samfara.
Líklegt þykir, að vísinda-
mennirnir hafi ekki lokið rann-
sóknum sínum á litlu beina-
hrúgunni í kapellu Vatikanhall-
arinnar.
Annar helgur dómur.
Það er til annar helgur dómur
kenndur við Pétur postula, sem
kristnir menn hafa sýnt lotningu
öldum saman. Nútíma vísindi
hafa þó aldrei verið kvödd til,
að gengið yrði úr skugga um
áreiðanleik hans.
Þetta er höfuð postulan ásamt
höfði Páls postula. Eru þau
geymd í dýrmætum silfurskrín-
um í Laterankirkjunni. Að
minnsta kosti tveir þeirra forn-
fræðinga, sem stóðu að upp-
greftrinum fyrir páfa, telja, að
Constantinus, fyrsti kristni keis-
arinn, hafi gefið Laterankirkj-
unni höfuð postulans. Það var á
þeim tíma, þegar gert var fyrsta
húsið yfir gröf Péturs, en það
hús má segja að sé fyrsti vísir
að Péturskirkjunni, sem nú
stendur.
Kynni að skeika í einhverju.
Saga þessara dýrmætu helgu
dóma, um höfuð postulanna, er
nokkuð vafasöm til ársins 1369.
Það ár fyrirskipaði Urban páfi
V., að Laterankirkjan skyldi
endurreist, en hún skemmdist
mjög í eldi 1308.
Hann mælti svo fyrir, að höf-
uð postulanna tveggja skyldu
lögð í páfa-altarið. Til þess tíma
ætluðu menn, að þau væru varð-
veitt í Páfakapellunni. Urbano
Mellini kveður höfuðin vera í
páfa-altarinu 1649. Þá höfðu þau
verið gyllt og skreytt gimstein-
um og öðrum dýrmætum
steinum.
Þessir steinar hurfu 1804, er
Frakkar herjuðu Róm, en eftir-
líkingar voru settar í þeirra stað,
og eru þar enn.
Frásögn sögunnar, sem vitnað
verður í til stuðnings því, að
hér sé um að ræða höfuð Páls og
Péturs postula, er glompótt. Arf-
sögninni er ef til vill ætlað að
fylla í eyðurnar, og hún hefir
staðið föstum fótum með kirkju-
valdinu í hér um bil sex aldir.
—Mbl. 10. marz
Alþingi gengur í
alþjóðaþing-
mannasambandið
Á einkafundi þingmanna, sem
haldinn var áður en þingslit fóru
fram s.l. miðvikudag, var sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um, að Alþingi Islendinga skyldi
ganga í alþjóða þingmannasam-
bandið. Höfðu áður borizt óskir
um það frá stjórn samtakanna
að íslendingar gerðust aðili að
því. Á fundum þingmannasam-
bands Norðurlanda, sem Alþingi
er einnig þátttakandi í, hefir því
oft verið hreyft að æskilegt væri
að við gerðumst meðlimir al-
þjóða þingmannasambandsins
eins og öll hin norrænu þjóð-
þingin hafa þegar fyrir all-löngu
gerst.
Kostnaður við þátttöku í sam-
bandinu er svo að segja enginn.
Á þessum sama fundi var sam-
þykkt að stjórn íslandsdeildar
norræna þingmannasambandsins
skyldi einnig fara með stjórn
deildar okkar í alþjóða samband-
inu. Var sú stjórn endurkosin á
fundinum en hana skipa þeir
Gunnar Thoroddsen, Bernharð
Stefánsson, Stefán Jóh. Stefáns-
son og Einar Olgeirsson.
Aðalritara Alþjóða þingmanna
sambandsins var þegar tilkynnt
um þessa ákvörðun Alþingis og
barst Jóni Pálmasyni, forseta
Sameinaðs þings skeyti frá hon-
um í gær, þar sem ísland er
boðið velkomið í samtökin.
—Mbl. 9. marz