Lögberg - 26.04.1951, Síða 4

Lögberg - 26.04.1951, Síða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. APRIL, 1951 Ibabfrg Gefifi út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED fi95 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EOITOK LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG. MAN. PHONE 21 804 Rritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5 00 um árið—Borgist fyriríram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Authorized as Second Class Mail, Post Office Department. Ottawa Heimkoma MacArthurs og ræða hans 1 fyrri viku kom MacArthur, hinn frávikni yfirhers- höfðingi sameinuðu herjanna í Kóreu og hernámsstjóri í Japan heim eftir fjórtán ára útivist; hann varð heims- frægur vegna sóknar sinnar gegn Japönum í Kyrra- hafsstríðinu, og þá engu síður vegna hins mikla starfs síns varðandi viðreisn hinnar japönsku. þjóöar á lýð- ræðislegum grundvelli; mun forusta hans á þeim vett- vangi skapa honum varanlegan virðingarsess í sög- unni, því viðfangsefnin voru fjölþætt og úr vöndu að ráða; en svo tókst honum viturlega til um lausn þeirra, að hin yfirunna þjóð skoðaði hann sem vin og pólitískan frelsara. Svo var heimkomu MacArthurs tekið með mikl- um fögnuði, að til eins dæma má teljast í sögu Banda- ríkjaþjóðarinnar; hann flutti meistaralega ræðu í sam- einuðu þingi þjóðar sinnar við svo mikla hrifningu, að lófataki ætlaði aldrei að linna; hann varði í öllum at- riðum drengilega gerðir sínar án þess að persónulegs kala í nokkurs garð yrði vart; hann kvaðst hafa talið, og telja það enn, hemaðarlega nauðsyn, að stjaka við þeim hernaðarlegu bækistöðvum í Kóreu, er stæðu að baki sókn hinna kínversku kommúnistaherja, sem og að heimila Nationalistum á Formosa innrás á megin- land Kínaveldis, því þó það væri á allra vitorði hve styrjaldir væm ömurlegar, yrðu þær að vera háðar með sigur fyrir augum, og í þeim tilgangi hefðu sam- einuðu þjóðirnar komið til liðs við Suður-Kóreulýð- veldið, er sviksamlega var á það ráðist. „Hætta sú hin mikla, sem af yfirgangi kommún- ismans stafar“, sagði MacArthur, „er hvorki einangr- uð né staðbundin, heldur felur hún í sér ákveðnar drottnunartilraunir yfir öllum þjóðum heims, og þess vegna megum við ekki við tvískiptingu, hvað þá heldur margskiptingu krafta okkar“. Hann lagði ríka áherzlu á það, hve óumflýjanlegt það væri vegna öryggis Banda- ríkjaþjóðarinnar sjálfrar, að hnekkja framgangi kommúnismans í Asíu; á hinu mættu menn heldur ekki missa sjónar, að með Asíuþjóðum væru ný viðhorf að skapast, er þurka vildu út ævagamla minnimáttarkend og alt það, er mint gæti á nýlendukúgun; að vernda þessar þjóðir gegn eiturörvum kommúnismans og gróðursetja hjá þeim skilning og ást á sönnu lýðræði, væri hið mikla markmið, sem stefna bæri að; hann kvaðst ekki standa einn uppi með aðgerðir sínar gagn- vart Kóreu og Kína; allir hernaðarsérfræðingar, að herforingjaráði Bandaríkjanna meðtöldu, hefðu litið sömu augum á málið. „Ég fullvissa yður um það“, sagði MacArthur, „er ég nú ávarpa yður í fölnandi ljósaskiptum ævi minnar, að ég el hvoríri kala né beizkju í hug; það.eina, sem fyrir mér vakir, er að verða þjóð minni að sem mestu liði; ég sækist ekki eftir pólitískum metorðum; ég verð ekki til framboðs í póhtísk embætti, og vænti þess að nafn mitt verði ekki bendlað við stórpólitík“. Um Japan hafði MacArthur meðal annars þetta að segja: „Japanska þjóðin hefir farið í gegnum þann mesta umbrotahreinsunnareld, er síðari aldir hafa orðið vitni að, og hún er staðráðin í að byggja framtíð sína á hugsjónum lýðfrelsis og mannréttinda; hún er vaknandi þjóð að siðferðilegum styrk og drengskaparáformum, er byggja vill upp^sjálfstæð sína eigin menningu“. MacArthur kvaðst snemma eftir að Kóreustríðið braust út, hafa gert hlutaðeigandi stjórnarvöldum að- vart um það, að aukins liðsafla í Kóreu væri þörf ef binda ætti skjótan enda á styrjöldina, sem þar geysaði; við þessu hefði verið daufheyrst; hann kvaðst ennfrem- ur hafa lagt sig í líma um að gera hlutaðeigendum frels-' isstríðsins í Kóreu það skiljanlegt, að nema því aðeins, að heimild yrði veitt til að varpa sprengjum á aðalbæki- stöðvar kommúnista í Manchuriu, koma á hafnbanni í Kína, og ennfremur að veita Nationalistum heimild til innrásar á meginlandið, gæti orðið afar tvísýnt um fullnaðarsigur sameinuðu herjanna, en upp með slíkt hefði ekki verið komandi. „Þeir, sem tjást fúsir til káksamninga við kín- verska rauðliða, ganga auðsjáanlega í svefni og hugsa ekki langt fram í tímann“, sagði MacArthur í ræðu sinni, „því meðan kínverskir forustumenn njóta ein- huga stuðnings af hálfu Rússa, þykjast þeir vissir í sinni sök“. Hinum mikla hershöfðingja var fundið það til for- áttu, að hann hefði verið um of opinskár, og gert hinar og þessar yfirlýsingar, sem brotið hefðu í bág við yfir- lýsta stefnu Bandaríkjastjórnar í utanríkismálunum; vera má að svo hafi verið, en á hinn bóginn ber þess að gæta, að hann gerði þær sem ábyrgur hershöfðingi og með það eitt fyrir augum, er hann taldi skynsamlegast frá hernaðarlegu sjónarmiði séð og vænlegast til sigurs. Brottvikning MacArthurs frá hernaðarlegri yfir- forustu í Asíu, vakti eins og vænta mátti óhemju um- tal vítt um heim, og hún hefir þegar þyrlað upp póli- tísku moldviðri í hans eigin landi, sem haft getur úr- slitaáhrif á næstu forsetakosningar; enn eru vitaskuld hvergi nærri öll kurl komin til grafar, er upplýst geti THE STATE OPENING OF PARLIAMENT Their Majesties the King a n d Queen drove in state from Buckingham Palace for the opening of Parliament. Crowds lined the route of the state procession from Buckingham Palace to the House of Lords. This picture shows the Royal proces- sion leaving Buck- ingham Palace on the way to the House of Lords. Skipt um blóð í nýfæddu barni í Reykjavík Nýstárleg læknisaðgerð framkvæmd í fæðingardeild Landsspítalans í síðustu viku. 1 síðastliðinni viku var framkvæmd í fæðingardeild Landspítalans í Reykjavík læknisaðgerð, sem ekki mun fyrr hafa verið reynd hér á landi. — Var þar bókstaflega skipt um blóð í nýfæddu barni. Læknirinn, sem framkvæmdi þessa nýstárlegu aðgerð, er Elías Eyvindsson, ungur læknir, ætt- aður frá Vestmannaeyjum. Er hann nýkominn hingað heim frá framhaldsnámi í Vesturheimi, þar sem hann mun sérstaklega hafa kynnt sér svæfingar og blóðbankastarfsemi. Rhesus-faktor. Ástæðan til þess, að þessi að- gerð á barninu var nauðsynleg var sú, að þarna hafði lent sam- an blóðflokkum, er stofnað gátu barninu í voða, ef ekki var að gert. Kemur slíkt fyrir, þegar faðirinn hefir svonefnadan rhesus-faktor í blóðinu, en móð- irin ekki. Þó gætir þess sjaldn- ast, fyrr en móðirin hefir alið tvö eða þrjú börn, en þetta var 4. barn móðurinnar en þá mynd- ast mótefni gegn rhesus-faktorn- um, ef barnið hefir hann, og getur það haft lífshættulegar af- leiðingar fyrir það, enda þótt það fæðist lifandi. Talið er, að rhesus faktor sé í blóði 85% af fólki, en það kemur því aðeins að sök, þótt hinum tveimur blóðflokk- um slái saman, ef móðirin hefir hann ekki, en faðirinn hefir hann, enda erfir barnið rhesus- faktorinn frá föðurnum. Meðal lítillar þjóðar, eins og íslendinga, er þetta fyrirbæri heldur sjald- gæft, en meðal fjölmennari þjóða eru eðlilega meiri brögð að þessu. Árshátíð Sjálf- stæðisfjelags Akureyrar Akureyri, 20. mars. Sjálfstæðisfélögin á Akureyri héldu árshátíð sína að Hótel Norðurlandi s.l. sunnudagskvöld. Var samkoman fjölsótt. Jónas Rafnar, alþingismaður, hélt ræðu, þar sem hann ræddi um stjórnmálaviðhorfið, aðdrag- andann að núverandi stjórnar- samstarfi og þá erfiðleika, sem atvinnuvegirnir hafa að undan- förnu átt við að stríða vegna aflabrests, harðinda og markaðs örðugleika. Var ræðu hans mjög vel tekið. Smárakvartettinn söng nokk- ur lög við góðar undirtektir og sýnd var kvikmynd. Tómas Tómasson, ritstjóri, stjórnaði hófinu. Nýjung í læknavísindum. Elías Eyvindsson mun hafa kynnzt þessari nýjung í lækna- vísindum vestan hafs, en þar hefir þeirri aðferð, að skipta um blóð í slíkum börnum, ef það er talið nauðsynlegt, verið beitt um nokkur ár. Blóðskiptin. Aðgerðin í fæðingardeild Landspítalans var framkvæmd daginn eftir að barnið fæddist. Bílar tepptust á Sólheimasandi. Þegar snjóinn tók að setja nið- ur fyrir alvöru, tepptust þrír bíl- ar, sem voru á austurleið með vörur, á Sólheimasandi, og sitja vörurnar þar enn. Eina ýtan, sem hér er, brotnaði einnig, svo að hún er nú ekki nothæf, en verið er að reyna að gera við hana. Er ætlunin að bílarnir flytji vör- ur frá Reykjavík austur á Sól- heimasand, en þaðan verði reynt að flytja vörurnar austur á sleð- um, sem ýta dragi. Bændur eiga mánaðargjöf. Flestir bændur eiga heygjöf handa sauðfé og hrossum þrjár vikur eða mánuð og handa kúm allmikið lengur. Fer þó marga að vanta fóðurbæti og erfiðleik- ar verða sýnilega miklir við að koma honum til bænda. Einna erfiðast verður að koma honum austur í Álftaver, Meðalland og Skaftártungu. Hefir verið talað um að fiytja þangað á sleðum og ýtu, en sá hængur er á, að þar er yfir tvö óbrúuð vatnsföll að fara, Kerlingardalsá og Múla- kvísl. Þær eru nú bólgnar af snjó og krapi og ófærar. Væri helzt að fara yfir þær á fjöruvaði. Sést af þessu, hve brú á þessi vatnsföll sunnan heiðar er nauð synleg, því að byggðarlögin geta orðið nær bjargvana og sam- göngulaus þegar svona viðrar. Var blóði úr starfsstúlku Land- spítalans dælt í barnið, jafnótt og hið upphaflega blóð þess var látið renna út um aðra æð. Var þannig skipt um blóð í því, að svo miklu leyti sem unnt var. Virðist þetta hafa tekizt vel, og er þess nú beðið með eftirvænt- ingu, hvernig barnið dafnar. Hörundsliturinn að breytast. Þegar barnið fæddist, var það að kalla appelsínugult á hör- und, en þessa daga hefir hörunds litur þess verið að breytast. Sló fyrst á það grænum blæ, en er hann nú að færast í eðlilegra horf. Er það von manna, að þessi fyrsta aðgerð af þessu tagi hér á landi ætli að hepnast vel. —Tíminn, 18. apríl Hér í Mýrdalnum urðu nokkr- ir skaðar í ofviðri á dögunum. Nokkrir símastaurar hafa brotn- að og símalínur víða í ólagi. En tilfinnanlegri varð þó fjárskaði í Mýrdalnum. Á Ytri-Sólheim- um hrakti 40 ær, sem ísleifur Erlingsson bóndi átti, frá fjár- húsum út í veðrið. Fundust þær flestar aftur, en þó vantar fjórar enn. Sex þeirra sem fundust, drápust þó og ellefu eru enn veikar eftir hrakninginn og ekki séð, hvernig þeim reiðir af. Einn ig missti Einar Einarsson bóndi á næsta bæ tíu ær út í veðrið, átta þeirra náðust aftur lifandi, en tvær eru dauðar. Segja má, sagði fréttaritarinn að lokum, að ástandið sé hið ískyggilegasta, því að ekki er nú langt þangað til sauðburður hefst og haldist svipað tíðarfar, sem er algerlega eins dæmi hér um slóðir á þessum tíma, eru miklir og ófyrirsjáanlegir erfið- leikar fyrir dyrum. —Tíminn, 19. apríl Modern Jewellers 678 Sargent Avenne Repairs to all makes oj WATCHES, CLOCKS, JEWELLERY AND RONSON LIGHTERS Rovalzos Flower Shop Z53 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA Bus. Phone 27 989—Bes. Phone 36 151 Our Speclalties: WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mlss I . Chrlstle, Proprletress Formerly with Robinson & Co —Mbl. 21. marz að fullu hin flóknu rök, er til grundvallar lágu, eða, að minsta kosti áttu aö liggja fyrir hinni skjótu og drama- tísku ákvörðun Trumans forseta í máli þessu, sem jafnan mun orka tvímæla; en víst er um það, að hlutur MarArthurs hefir á engan hátt rýrnað við tiltækið, nema síður sé; hann er enn óskabarn þjóðar sinnar og dáður sem hetja af flestum þjóðum heims. Meiri snjór í Mýrdalnum en nokkur maður man dæmi til á sama tíma Tíu daga samfelld fannkoma. — Allmiklir fjárskaðar urðu að Ytri-Sólheimum á dögunum —Frá fréttaritara Tímans í Vík í Mýrdal. Hér hefir snjóað látlaust meira og minna hvern einasta dag í rúma viku og er kominn meiri snjór hér um slóðir en nokkur maður man dæmi til. Algerlega er orðið ófært um alla vegi og ekki vonir til að bílaumferð hefjist fyrr en verulega breytir um tíðarfar. Nokkrir fjárskaðar urðu í Mýrdalnum í ofviðri á dögunum. Gamall snjóbíll sendur til Akureyrar Á að flytja að og frá flugvellin- um, en fara síðar til Húsavíkur ef hentugt þykir. í fyrradag lagði Páll Sigurðs son í Fornahvammi af stað norður í land með annan gamla snjóbílinn, sem þar , hefir verið. Fór hann með hann á stórri tíu hjóla bifreið norður á Blöndu ós, en ók snjóbílnum þaðan aust- ur. Gisti hann í Varmahlíð í fyrrinótt, en hélt áleiðis til Akur eyrar kl. 7 í gærmorgun. Á að flytja á flugvöllinn. Snjóbíllinn fer fyrst og fremst norður á vegum vegamálastjórn- arinnar, og mun ætlunin að flytja fólk og flutning á honum frá og að flugvellinum á Mel- gerðismelum, meðan ekki þykir gerlegt að hefjast handa um að ryðja snjó af veginum. Síðar er svo ráðgert ef þörf er á og hentugt þykir að senda snjóbíl þennan til Húsavíkur og láta hann annast flutninga fóð- urbætis út um sveitir. —Tíminn, 18. marz Bæjarsjúkrahúsinu ákveðinn sfaður í Fossvogi Ákveðinn hefir verið staður sá er hið mikla Bæjarsjúkrahús verður. Bæjarráð tók endanlega ákvörðun um þetta á fundi sín- um á föstudaginn. Bæjarráð samþykkti, að sjúkrahúsið skuli standa við gatnamót vestan Klifvegar og sunnan Sléttuvegar. Jafnframt lýsti bæjarráð því yfir, að hvorki lóðum né löndum á svæði þessu muni verða ráðstafað. —Mbl. 18. marz „M a m m a, maðurinn minn elskar mig ekki lengur“. „Af hverju segirðu þetta, barn?“ „Af því að ég hef alltaf vakið hann með kossi á morgnana, en í gær keypti hann sér vekjara- klukku“. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar. ER ÞÉR SENDIÐ Peninga yfir hafið Sendið þá • GREIÐLEGA • AUÐVELDLEGA • TRYGGILEGA Með Canadian Pacific EXPRESS Erlendar greiðslur Sérhv^r Canadian Paéific skrifstofa sendir fyrir yður peninga yfir hafið . . . ’fljótt . . . . . . ábyggilega. Minnist þessa er þér næst sendið peninga frændum, vinum eða viðskiptavinum. Síuuufúut (PcLctfic

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.