Lögberg - 20.09.1951, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
,ners
A Complete
Cleaning
Insiitution
iðfte
PHONE 21 374
Clea^^5
* aere^s
^,tt'HTld ^ A Complete
Cleaning
Institution
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 20. SEPTEMBER, 1951
NÚMER 38
Mætur samferðamaður lófinn
Síðastliðið fimtudagskvöld lézt
af hjartabilun á Almenna sjúkra
húsinu hér í borginni Paul
Reykdal, kunnur athafna- og
hæfileikamaður, fæddur að Úlf-
stöðum í Reykholtsdal í Borgar-
firði hinum meiri, hinn 3. dag
júlímánaðar árið 1878. Níu ára
að aldri, fluttist hann vestur um
haf með foreldrum sínum, þeim
Árna Jónssyni og Helgu Jóns-
dóttur, er tóku upp nafnið Reyk-
dal, og settust að í námunda við
núverandi Lundarþorp; þar ólst
Paul upp; gerðist snemma á-
hugasamur um mannfélagsmál
innan vébanda bygðarlags síns,
og varð um margt umsvifamik-
ill og nytsamur brautryðjandi;
hann vann um langt skeið kapp-
samlega að íþróttamálum;
gegndi í mörg ár fyrir hönd sam-
bandsstjórnar eftirliti með ný-
býlum, rak árum saman verzlun
gaf sig við útgerð og fisksölu og
sat sjaldan auðum höndum;
hann tók um nokkurt skeið
virkan þátt í stjórnmálum undir
merkjum íhaldsstefnunnar, og
var þá með köflum nokkuð ó-
væginn; en hin síðari æviár varð
hann umburðarlyndari að því er
stjórnmálin áhrærði.
í lífsskoðunum hirti Paul lítt
um troðnar brautir; hann fór
sínu fram hvernig sem viðraði
og hverjir sem hlut áttu að máli;
hann var ekki eitt í dag og ann-
að á morgun; hann var maður
mjög hneigður til fróðleiks og
svo stálminnugur, að til undan-
tekninga mátti teljast; hann
hafði yndi af ljóðum, kunni
kynstrin öll af smellnum vísum,
en hafði á síðari árum gert sér
far um að kynnast íslendinga-
sögunum og íslenzkum drótt-
Bruni að Moldnúpi
undir Vestur-
Eyjafjöllum
Eignaljón bóndans 40 lil 50
þúsund krónur.
Ströng mótmæli
Útanrikisráðuneytíð canadíska
hefir sent kommúnistastjórninni
í Kína ströng mótmæli vegna ó-
virðulegrar meðferðar á cana-
dískum trúboðum þar í landi,
sem ekkert hafa til sakar unnið
annað en þá það, að halda fast
við trú sína og rækja þær
skyldur, er þeim höfðu verið
faldar á hendur; er svo að sjá
sem kínversk stjórnarvöld ætli
dyggilega að feta í fótspor læri-
feðra sinna í Moskvu varðandi
árásir á kirkjunnar menn.
Svo skamt er enn umliðið
síðan Canadastjórn sendi áminst
mótmæli, að svar af hálfu Kína
gæti naumast hafa borist henni
í hendur.
Syndir yfir
Ermarsund
Paul Reykdal
kvæðum; um slík efni áttum við
tíðum tal, er fundum bar saman,
venjulegast á skrifstofu minni.
Paul Reykdal þótti með ágæt-
um nærgætinn og ástúðlegur
heimilisfaðir, ávalt vakinn og
sofinn um velferð konu sinnar
og barna, og heimilið var hans
allra helgasta á þessari jörð.
Paul Reykdal lætur eftir sig
konu sína, frú Kristínu Eggert-
son Reykdal, og eftirgreind börn:
Mrs. Grace Thorsteinsson,
Mrs. Sigríður Price, Paul Valdi-
mar, Mrs. Helga Skaptason,
Skapti, Mrs. Hazel Violet
Trumpour og Arthur Meighen;
einn son, Paul, mistu þau Reyk-
dalshjón, er hann var í hvíta-
voðum.
Tvær systur Pauls, Ragnheið-
ur og Kristín Ramsey, dóu löngu
á undan bróður sínum. Tveir
hálfbræður, Jón og Þorvaldur,
dóu á Lundar, og ein hálfsystir,
Guðrún, býr á Húsafelli í Reyk-
holtsdal.
Fögur minningarathöfn um
þenna merka samferðamann fór
fram í sambandskirkjunni í þess-
ari borg, er séra Philip M. Péturs
son stýrði, en mildan einsöng
söng Mrs. Lincoln Johnson; síð-
an var líkið flutt til Lundar, en
kveðjumál fluttu í samkomu-
húsi bæjarins þeir séra Philip
og séra Jóhann Fredricksson;
fjölment var. mjög á báðum
stöðum. Jarðsetning fór fram í
Lundargrafreit.
E. P. J.
☆
ÞAKKARORÐ —
Innilegt hjartans þakklæti
vottum við hér með öllum þeim
hinum mörgu vinum og sam-
ferðamönnum, er á einn og ann-
an hátt auðsýndu samúðarríka
hluttekningu við fráfall ástkærs
eiginmanns og föður, Paul
Reykdals.
Frá fréttaritara Tímans
á Hvalsvelli.
í fyrrinótt brann að Mold-
núpi undir Vestur-Eyjafjöll-
um sambygging, sem í var
fjós og fjóshlaða, í hlöðunni
voru 600—700 hestburðir af
heyi. Kom eldurinn upp í
heyinu í hlöðunni. — Að
Moldnúpi búa Einar Jóns-
son og Eyjólfína Jónsdóttir,
kona hans.
Átlantshafsbandalagið heldur fund í Gttawa
Af hálfu íslands siija fundinn
Thor Thors, sendiherra í Banda-
ríkjunum og Canada, Bjarni
Benedikisson utanríkisráðherra.
Hans Anderson þjóðréiiarfræð-
ingur og Gunnlaugur Pélursson
fullirúi; í för með Bjarna uian-
ríkisráðherra er hin glæsilega
frú hans. — Thor sendiherra
hringdi í G. L. Jóhannsson ræðis
mann frá Oiiawa á laugardaginn
og léi honum áminsiar upplýs-
ingar í ié, en Lögberg varð
þeirra þegar í stað aðnjótandi.
ferðar mörg og mikilvæg mál,
og þá einkum þau, er sérstaklega
lúta að öryggi Vestur-Evrópu;
oó þykir og sýnt, að tekin verði
til alvarlegrar yfirvegunar sú
hin háskalega verðbólga, er
sverfur að flestum þjóðum heims
og haft getur ískyggileg áhrif á
varnarmálin, sem nú er varið til
ærnu fé.
Það var um ellefu-leytið í
fyrrakvöld, að fólkið á Mold-
núpi varð eldsins vart, og var
hann þá einnig kominn í fjósið.
Var þá þégar hafið björgunar-
starf, en tilraunir til þess að
slökkva eldinn voru árangurs-
lausar, enda hvort tveggja, að
náttmyrkur var á og talsvert
mikill stormur, sem æsti eldinn.
Kom þó mannssöfnuður úr
sveitinni brátt á vettvang heima
fólki til hjálpar.
400—500 heslburðum
af heyi bjargað.
Byggingin var úr steinsteypu,
og standa veggir einir eftir, því
að allt brann innan úr henni og
sömuleiðis þakið. Hins vegar
tókst að bjarga 400—500 hest-
burðum af heyinu, en sumt af
því er þó skemmt. Um 200 hest-
burðir munu hafa brunnið eða
gereyðilagzt.
Allt óváiryggl —
bruni fyrir 3 árum.
Allt, sem brann, var óvá-
tryggt, og er tjón þeirra hjóna,
Einars og Eyjólfínu, talið nema
að minnsta kosti 40—50 þúsund-
um króna.
Fjós og hlaða, sem stóð á þess-
um sama stað, brann fyrir þrem-
ur árum á sama hátt og nú, er
eldur kom upp í heyinu.
—TIMINN, 9. sept.
Fundur þessi hófst á laugar-
daginn og stendur yfir fram í
seinni part þessarar viku; má
þess vænta, að hann taki til með-
Heytjón af
vatnavöxf-um
ó Héraði
Frá Fréttaritara Tímans
á Egilsstöðum.
Nú upp á síðkastið hafa verið
hér miklar rigningar og vatna-
vextir, svo að skemmdir hafa
orðið á heyjum. Síðustu þrjár
vikur hefir ekki verið hægt að
ná heyi á Fljótsdalshéraði, svo
að mikið var orðið úti, og í
vatnavöxtunum sem gerði, flaut
upp mikið hey á engjum í Hjalta
staðarþinghá. Þó að sumt af hey-
inu náist aftur, þegar lækkar í
blánum, skemmist það mjög,
vatnast út og sezt í það leir og
rusl. Það munu hafa verið
hundruð hestburða af heyi, sem
orðið hafa fyrir skemmdum.
—TÍMINN, 5. sept.
A m e r í s k vélritunarstúlka,
Florence Chadwick frá San
Diego, Cal., synti nýverið frá
Englandi yfir Ermarsund til
Frakklands og var sextán
klukkustundir og fjórtán mínút-
ur á leiðinni. Miss Chadwick,
sem er 32 ára að aldri, er fyrsta
konan, er synt hefir vegalengd
þessa báðar leiðir; yfir Ermar-
sundi hvíldi með köflum þykk
þoka svo lítt sást til ferða sund-v
konunnar, og höfðu kviksögur
borist út um það, að hún myndi
hafa drukknað; en er hún lenti
við strönd Frakklands, fagnaði
henni hópur barna og kvenna,
er bera vildi hana á gullstóli.
Er Miss Chadwick kom heim
var San Diego í hátíðarbúningi
í virðingarskyni við sundhetj-
una.
Samningar um
kolakaup
Stjórnarvöldin í Japan, hafa
nýverið gert samning við stjórn
Indlands um að kaupa þaðan úr
landi meginhluta kolabirgða
sinna, í stað þess að leita á náðir
kínverskra kommúnista í þeim
efnum. Japanir tjást hafa komist
„Jarðeldur"
Kjalarnesi
Nú síðustu vikur hefir eldur
verið í hálfunnum flagspildum
við þjóðveginn á Kjalarnesi
Hefir reyk lagt upp hér og þar
um flögin, og í fyrrakvöld, er
allhvasst var á Kjalarnesi
kembdi eimyrjuna undan vind-
inum í myrkrinu, og við og við
gusu logar upp úr
Nýjar útvarpsfregnir af fund-
inum herma, að ýmissar þær
máttarminni þjóðir, er að á-
minstu bandalagi standa, svo
sem norrænu þjóðirnar, vilji fá
aukið íhlutunarvald varðandi
þær meginákvarðanir, sem tekn-
ar kunna að verða, og vilji í
þeim efnum ógjarna láta aðrar
þjóðir hugsa fyrir sig.
Hermólaróðherra lætur af embætti
Á miðvikudaginn í fyrri viku
lét George Marshall hermála-
ráðherra Bandaríkjastjórnar af
embætti og lét þess um leið get-
ið, að ákvörðun í þessu efni
stafaði einungis af einkaástæð-
um; hann hafði um hríð veitt
forustu utanríkisráðuneytinu, en
gegnt hermálaráðherraembætti
árlangt; mun það naumast orka
tvímælis, að- Mr. Marshall sé
einn hinn víðfrægasti maður,
sem nú er uppi; það var hann,
sem kom fótunum undir Vestur-
Evrópu í efnalegum skilningi að
lokinni síðustu heimsstyrjöld
með hinni svonefndu Marshall-
hjálp, sem var einstakt fyrir-
bæri í sinni röð og haft hefir
afar víðtæk áhrif varðandi fjár-
hagslega viðreisn viðkomandi
þjóða.
Við forustu hermálaráðuneyt-
ísins hefir tekið Robert A.
Lovett, sem um nokkurt skeið
hefir verið aðstoðarráðherra
þessarar stjórnardeildar.
Hlýtur verðlaun
Marvin Nelson, sonur Mr. og
Mrs. Edward A. Nelson, Pine
Shadows Farm, Brainerd, Min-
nesota, hefir nýlega hlotið æðsta
heiðursstig frá Future Farmers
of America, fyrir framúrskar-
andi ástundun og þekkingu í bú-
vísindum. Marvin hefir haft mik-
inn áhuga fyrir búfræði frá
unga aldri; hann hefir stundað
nám við Minnesotaháskólann
síðan 1949 og lagt sérstaka stund
á framleiðslu mjólkurafurða.
Jafnframt námi sínu hefir hann
rekið búið með föður sínum og
á nú sjálfur þriðja hluta þess.
Hann hefir komið ýmsum um-
bótum til leiðar á bújörðinni.
Móðir Marvins er íslenzk en
Póli ísólfssyni boðið
til Bandaríkjanna
Dr. Páll ísólfsson mun fara á-
samt konu sinni vestur til Band-
aríkjanna með Lagarfossi í
næstu ferð hans. Fer Páll í boði
Bandaríkjastjórnar til kynnis-
dvalar vestra með svipuðum
hætti og þeir dr. Alexander Jó-
hannesson og Pálmi Hannesson,
rektor haustið 1950.
Páll mun að mestu dveljast á
austurströnd Bandaríkjanna og
heimsækja ýimsar menntastofn-
anir svo sem Harvard-háskóla
og einnig verða nokkurn tíma
gestur E. Power Biggs, eins
kunnasta organista Bandaríkj-
anna. Einnig mun Páll heim-
sækja byggðir þær í miðríkjun-
um, sem íslendingar eru mést í
,svo sem Minnesota og Norður-
Dakóta.
TÍMINN, 6. sept.
Þessi flagbruni er meðan við faðir hans finnskur
þjóðveginn í tungunni, þar------------------------
að einkar hagfeldum samningum
Kristín Reykdal og fjölskylda við Indverja.
The Songs My Father Sang
Long ago my dear old father used to take me on his knee.
His voice was young and strong when first he sang his songs to me.
They mark the very first of all the music 1 have heard,
And, before I knew their meaning, I could s\ng them word for word.
“Jonesey Married Mabel” was a song he used to sing;
“Me Name is Sandy Mclntosh”; and “Ring-a-Ting-a-Ling”;
“Bill Bounder was a Rounder”; “Call Me Up Some Rainy Noon” ...
I can hear Dad’s voice a-ringing with each old, familiar tune.
f
So many nights we’ve sung these songs while Russian Bank we’d
play,
And l’ve a strong suspicion folks could hear us miles away.
Our voices blent in comradeship—when I was but a lad
It brought me close to Heaven to be singing with my dad.
To me, these songs and Fathefs name create a synonym,
For I have seldom heard them sung by anyone but him.
Now time has carried off his voice, but each beloved refrain
Awakes my childhood mem’ries and I hear him sing again.
Art Reykdal
sem braut liggur niður að Salt-
vík. Þarna hafa verið grafnir
skurðir til þess að þurrka landið
og er mikill mór í uppmokstrin-
um.
Eldurinn mun fyrst hafa
kviknað í mónúm úr uppmokstr-
inum á skurðbakkanum, en hef-
ir breitt sig út, svo að nú er eim-
yrja í stórum spildum, þar sem
búið var að tæta landið að
nokkru leyti. Jörð öll er nú ó-
venjulega þurr eftir hina lang-
vinnu þurrka, svo að eldurinn á
auðvelt með að læsa sig um
svörðinn og grafa um sig í mó
og reiðingstorfi, sem er undir
efsta jarðlaginu. —
—TÍMINN, 5. sept.
ísland þriðja mesta
samvinnulandið
ísland er þriðja mesta sam-
vinnulandið í heiminum miðað
við fólksfjölda. Er þá miðað við
neytendasamtökin. — öflugust
eru samtökin í Finnlandi, þar
eru í samtökunum 22,9% af íbú-
um landsins. Þá kemur Bretland
með 20,6% og loks Island með
20,1%.
Næstu lönd eru talsvert miklu
neðar í hlutfallstölunni. Rúss-
land með 16,5%, Tékkóslóvakía
15,9%, Svíþjóð 13,4%, Sviss
12,1% og Danmörk 10,5%. —
—TÍMINN, 5. sept.
Brúin ó Fjarðaró
eystra stórskemmd
Frá fréttaritara Tímans
í Borgarfirði eystra.
í fyrradag var hér geysileg
úrkoma fyrst með slyddu og
jafnvel snjókomu. Er hvítt nið-
ur undir byggð, og frost var í
gærmorgun.
Geysilegur vöxtur hefir hlaup-
ið í Fjarðará eins og önnur vatns-
föll hér um slóðir. 1 gær hafði
áin grafið brott þriggja metra
háa uppfyllingu við syðri brúar-
stöpulinn og undan honum, svo
að hann er siginn nokkuð og
sprungur komnar í hellu brúar-
innar. Beljar áin nú á stöplinum
og sunnan við hann og er talin
hætta á, að hann fari alveg. Um-
ferð er að sjálfspgðu alveg
teppt.
—TÍMINN, 8. sept.
Fyrrum þingforseti
lótinn
Síðastliðinn fimtudag lézt að
heimili sínu að Dauphin hér í
fylkinu, Hon. James Lopgstaffe
Bowman, forseti neðri málstofu
sambandsþingsins 1 Ottawa í
stjórnartíð R. B. Bennetts, ná-
lega sjötíu og tveggja ára jað
aldri; hann var fæddur að
Thornhill í Ontariofylki, en
fluttist á unga aldri til Mani-
toba, þar sem hann hlaut ment-
un, lauk fyrst kennaraprófi, en
útskrifaðist seinna í lögum af
háskóla Manitobafylkis.
Kosningar
á Bretlandi
Nú hefir verið ákveðið að al-
mennar þingkosningar á Bret
landi fari fram þann 25. október
næstkomandi; gekk Attlee for-
sætisráðherra á konungsfund
síðastliðinn mánudag varðandi
þingrof og nýjar kosningar.
Stjórnin hefir átt erfitt upp-
dráttar undanfarið ' ár vegna
harla takmarkaðs þingfylgis.
Fiskþurkun hafin
hjó Útgerðarfélagi
Akureyrar í
nýjum húsum
Fiskþurrkun er nú hafin í hin-
um nýju fiskþurrkunarhúsum
Útgerðarfélags Akureyringa á
Oddeyri.
Jóhannes Jónasson, verkstjóri,
segir í samtali við blaðið „Is-
lending“ á Akureyri, að allt
bendi til þess að vel muni tak-
ast með fiskþurrkunina með
hinum nýju tækjum, þrátt fyrir
nokkra byrjunarörðugleika.
Ennþá er aðeins annar klef-
mn, eða helmingur þurrkrúms-
ins, tekinn í notkun. Er þar hægt
að þurrka 50 skippund í einu.
I sumar var steypt rúmgott
„plan“ norðan við byggingarnar.
Er þar hægt að taka við fiskin-
um úr togurunum og umstafla
honum þar þegar þess er þörf.
Knýjandi nauðsyn er, segir
íslendingur, að byggt verði eitt
hús til viðbótar, og mun stjórn
og framkvæmdarstjóri félagsins
hafa fullan hug á að byrja á því
verki þegar í haust.
—Mbl., 5. sept.
I