Lögberg - 20.09.1951, Blaðsíða 8

Lögberg - 20.09.1951, Blaðsíða 8
8 LÖGBEáG, FIMTUDAGINN, 20. SEPTEMBER, 1951 GAMAN OG ALVARA Úr borg og bygð MaíreiSslubók D;ucasfélag Fyr?ta lúterska safnaða.r iiefir nú til sölu spiunk urnýja raatreiðslubók, er þaó hefir safnað til og gefið út; bók þessi er með svipuðum hætti og hinar íyrri, vinsælu matreiðslu bækur, er Kvenfélög safnaðar ins stóðu að; þetta er afar falleg bók með fjölda gamalla og nýrra uppskrifta, sem koma sér vel a hvaða heimili, sem er. Matreiðslubók þessi kostar $1.50 að viðbættu 10 centa burð- argjaldi. Pantanir, ásamt andvirði. sendist: Mrs. A. MacDonald 11 P.egal Ave. St. Vital Sími 205 242 Mrs. H. Woodcock 9 St. Louis Road, St. Vital Sími 209 078 eða til Columbia Press Limiíed, 695 Sargent Ave. ‘ Sími 21 804. ☆ The Dorcas Society of the First Lutheran Church again present their annual “Theatre Nite” at the Uptown Theatre, September 26, 1951, at 8.30 p. m. Valuable door prizes will be given to lucky ticket holders. Everyone Ts welcome to attend. Tickets mey be obtained from any Dorcas member, or at the Box Office the night of the per- formance. Admission fifty cents. ■ír Á aðfaranótt síðastliðins laug- ardags, lézt á sjúkrahúsi í Van- couver, Mrs. Helga Jónasson, ekkja Tryggva Jónassonar, er dó á Gimli 1947. Hún var 69 ára að aldri; hún lætur eftir sig fimm uppkomin og mannvænleg börn, einn son og fjórar dætur. Útförin fer fram frá Sam- bandskirkjunni á Gimli á föstu- daginn í yfirstandandi viku, kl. 2.30 e. h. Séra Philip M. Péturs- son jarðsyngur. ' ☆ Ungfrú Snjólaug Sigurdson, hinn víðkunni píanisti, sem dval- ið hefir hér undanfarna mánuði hjá móður sinni, frú Jónu Sig- urdson, lagði af stað áleiðis til New York á sunnudagskvöldið var. ☆ Síðastliðinn sunnudag lézt í Vancouver, Stefán S. Stefáns- son, er um mörg ár hafði starfað í slökkviliði borgarinnar, hinn gjörvulegasti maður; hann var sonur þeirra Mr. og Mrs. Finnur Stefánsson, sem mörgum voru að góðu kunn í Winnipegborg; hinn látni lætur eftir sig konu sína, Mary, og tvær systur, Mrs. Nia Thompson og Mrs. Laura McAlphine; einnig bróður, Frið- rik að nafni. Útförin fór fram í Vancouver. ☆ Fólki í Nýja-íslandi er hér með tilkynnt, að hinn ágæti tenórsöngvari, Ólafur Kárdal efnir til söngsamkomu í Sam- bandskirkjunni í Árborg næst- komandi laugardagskvöld, 22. sept., kl. 9. Þar verður ýmisllgt fleira til skemtunar .Inngangur aðeins 50 cents. Þessi samkoma er undir um- sjón Kvenfélags safnaðarins. Frónsfundur Þjóðræknisfélagsdeildin Frón heldur fund í G. T.-húsinu á mánudaginn 1. okt. n.k., kl. 8.15 e. h. Ræðumaður að þessu sinni verður Próf. Áskell Löve, sem hingað kom frá íslandi fyrir skemstu. Þeir, sem til hans heyrðu á íslendingadeginum á Gimli í sumar sem leið, vita að hann er maður orðheppinn og skemtilegur, auk þess, sem pró- fessorinn mun geta sagt okkur hitt og þetta fróðlegt að heiman, ætlar hann einnig að sýna lit- myndir frá íslandi. Skýrt verður frá öðrum at- riðum skemtiskrárinnar í næsta blaði. H. Thorgrímsson, ritari Fróns ☆ Ungfrú Solveig Lifman lagði af stað áleiðis til Gander, New- foundland á laugardaginn var, þar sem henni var boðin ágætis staða; en þar er búsett systir hennar, frú Margrét Miller, sem gift er flugvallarstjóranum í Gander; þessar ágætu systur eru dætur hinna kunnu merkis- hjóna, Mr. og Mrs. B. J. Lifman í Árborg. ☆ í vikunni, sem leið, dvöldu hér í borginni eftirgreind ung- menni úr Reykjavík, er komu bílleiðjs í stutta heimsókn frá New York: Hjalti Geir Kristjánsson, sonur Kristjáns Siggeirssonar verk- smiðjueiganda; þeir Kristján og Fred Bjarnason lífsábyrgðar- umboðsmaður eru hálfbræður. Gunnar Zoega, sonur Geirs Zoega vegamálastjóra, og þær ungfrúrnar Marta Jóhannsdótt- ir, Ólöf Björnsdóttir og Kristín Þ. Þorsteinsdóttir; hinir ungu menn stunda í vetur nám við Columbiaháskólann, en ung- frúrnar þrjár starfa á skrifstof- um í New York. ☆ Tilkynning til eldri íslendinga við Lundar og í grendinni: Vegna ýmsra erfiðleika getur Kvenfélagið „Eining“ ekki haft sitt árlegk Haustboð fyrir aldraða fólkið þetta haust; en við vonum að betur gangi næsta ár, og send- um innilegar kveðjur og óskir um vellíðan til allra okkar vina. Fyrir hönd Kvenfélagsins „Eining“ Björg Björnson Rannveig Guðmundson ☆ Þjóðrænisdeildin „FRÓN“ Þakkar hér með eftirtöldu fólki fyrir bækur gefnar bóka- safni deildarinnar: Dr. Sig. Júl. Jóhannesson; Sveinn Sveinsson; frú P. Helgason og frú Helga Tompson. Deildin er öllum þess- um og öðrum, sem bækur hafa gefið til bókasafnsins, innilega þakklát. Megi sem flestir gjöra það sama. F. h. Deildarinnar „Frón“ J. JOHNSON bókavörður ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will hold their next meeting, on T.uesday Sept. 25, at 2.30 p.m. in the lower auditorium of the church. On Sunday Sept. 30, members will meet at 11 a.m. for a church parade. Ágúst Sædal málarameistari biður þess getið, að hann sé nú sem fyr reiðubúinn að fegra heimili íslendinga í Winnipeg. Phone 725 588. Ste. 16 Acadia Apts., Victor Street. ☆ Annual Fall Tea The Jon Sigurdson chapter, I.O.D.E. will hold its annual Fall* Tea and Sale in the T. Eaton Assembly Hall, Saturday, Sept. 29, from 2.30 to 4.45. A feature of the afternoon’s entertainment will be the model- ling of exquisite late 19th cen- tury fashions, with Mrs. E. W. Perry and Mrs. W. S. Jonasson in charge of arrangements. Mrs. B. S. Benson and Mrs. P. J. Sivertson are general con- veners, with Mrs. S. Gillies, Mrs. B. Heidman, and Mrs. H. F. Danielson as table conveners. Mrs. Thorpe is in charge of the Home cooking sale and Miss V. Jonasson and Mrs. T. Thorstein- son will look after sale of novelties. ☆ Lundar, 10. sept. 1951 LÖGBERG, Winnipeg, Man. Viljið þér gjöra svo vel og birta eftirfarandi línur í blaði yðar: Kvenfélagið EINING, Lundar, Man., gefur $5.00 í Blómsveiga- sjóð Kvenfélagsins B Jð^K, Lundar, Man., í minningu um Helga Björnson dáinn 4. júlí 1951. Kærlega þakkað. Margrél Hofteig, Lundar, Man. ☆ Gjafir til BETEL: A friend, Selkirk, Man. $50.00; Mrs. G. Sturlaugson, Betel, Comforter’ Bed Linens and several pillows; Mr. G. F. Jónas- son, Winnipeg, 100 lbs. Lake Winnipeg White fish; W. Lang- rill, Selkirk, Man., 4 Boxes chocolate; a friend, Mozart, Sask., $5.00; Mrs. R. K. G. Sigur- björnsson, Leslie, Sask., í minn- ingu um Stefán Anderson $10.00; M. G. Gudlaugson, R. R.2. White Rock, B.C., í minningu um Ás- björn Sturlaugson, er dó að Svold, N.D. og móður hans, Ás- gerði Sturlaugson, er dó að Betel, $5.00; Icelandic Lutheran Ladies Aid, Langrunth, Man., pr. Mrs. S. Oddson $15.00. Kærir þakkir. —* J. J. Swanson, féhirðir 308 Avenue Bldg. Wpg. ☆ Silíurbrúðkaup. í tilefni þess, að séra Philip M. Pétursson og Mrs. Pétursson eiga 25 ára giftingarafmæli, býð- ur söfnuður Sambandskirkjunn- ar öllum vinum og velunnurum þeirra hjóna til móttöku, sem haldin verður í neðri sal kirkj- unnar á þriðjudaginn 25. sept., kl. 8.30 e. h. NEFNDIN Svell á tjörnum í gærmorgun í gærmorgun var svell á tjörn- um Austanlands. Á Reyðarfirði var frostið eftir nóttina það mik- ið, rúðuglers þykkt svell var á lygnum tjörnum en á Gríms- stöðum á Fjöllum var svellið 5 millimetra þykkh Þar var snjódrífa í heysátúm á túninu um kl. 3 í gærdag. Ann- ars var sólskin og bjart veður á Austurlandi í gærdag og fólk alls staðar í heyskap, þar sem grasnytjar eru á annað borð. — Vonast menn eftir nokkra daga þurrki, en það myndi verða til mikillar bjargar til að ná inn heyi sem enn er eftir að þurrka. —TÍMINN, 8. sept. Fjögur nýbýli að rísa upp í Hornafirði eru nú unnið að smíði íbúðarhúss á fjórum ný- býlum, og er ytri bygging þeirra langt komin. Votheysgryfjur hafa verið gerðar í sumar á all- mörgum bæjum, og er nú verið að byrja að slá í þær hána. —TIMINN, 5. sept. Fillers for Lögberg Tommi hafði að lokum getað unnið ást leiðinlegrar en ríkrar stúlku, og skömmu eftir að þau opinberuðu trúlofun sína hitti hann gamlan vin sinn sem sagði: Ég hef heyrt að þú sért aldeilis dottinn í lukkupottinn, vinur sæll, og ég óska þér hjartanlega til hamingju. Hún er sannarlega. rík stúlkan þín, en svo hef ég heyrt, að hún væri leiðinleg. Hvernig er það, hefurðu ekki orðið að hætta við að reykja og drekka? — Jú, ég hef þurft þess, en hefði ég ekki opinberað með henni þá hefði ég þurft að hætta að borða. ☆ Georg: — Af hverju var hann í vinnufötum í gærkveldi þegar hann kom til þess að heimsækja þig? Grace: — Hann var að vinna. Ég skulda honum peninga. ☆ Strákur var spurður hvers- vegna hann hefði hætt í skólan- um. — Það dró úr mér allan kjark, því mér gekk illa í öllum grein- um nema landafræði. — Hvernig stóð á því að þér gekk ekki illa í landafræði? — Við höfðum ekki landa- fræði í mínum bekk. ☆ — Jæja, fyrst þú ert svona maður, þá vil ég ekkert meira með þig hafa. Tilfinningar mín- ar gagnvart þér hafa breytzt, og ég vil aldrei sjá þig meira. — Komdu þá aftur með hring- inn. — Tilfinningar mínar gagn- vart þér hafa breytzt, en þær eru ennþá óbreyttar gagnvart hringnum. Traffic Accidents Continue Downward Trend in Manitoba Injury accidents on Manitoba roads. and highways continued to decline steadily throughout August — maintaining Manitoba second for the greatest reduction on the continent, reports R. B. Baillie, Director of Highway Safety. A drop of 40 per cent from the August record of last year contrasted sharply with the 18 per cent increase recently re- ported by the National Safety Council for the rest of North America, Mr. Baillie stated. Total traffic accidents for Manitoba were down 25 per cent, from 932 to 702; deaths were down 50 per cent, from 6 to 3; and the 40 per cent drop in injury accidents marked a de- crease of from 328 to 198. In Winnipeg, accidents were down from 454 to 300; deaths from 1 to 0; and non-fatal ac- cidents down from 99 to 74. Mr. Baillie warned, however, that there are still too many preventable accidents involving young children. “Children are now back at school,” he said, “and parents and teachers should teach them safe walking and cycling habits.” The Safety Director also cau- tioned year-round drivers that accidents have climbed sharply towards the end of the last few ýears. To combat this adverse trend, the Driver Improvement Clinic has redoubled its efforts to improve accident repeaters, he said. Cautionary letters are being sent out at the rate of over 5,000 per month, with 1,000 of these being sent to speeders, Mr. Baillie pointed out. All drivers with three or more moving traf- fic violations this year afe being called in for driver improve- ment. “This seasonal increase in traffic accidents poses a chal- lenge to all year-round drivers to maintain the record achieved during the Summer months,” the Safety Director declared. — Ég var að ganga út með konunni minni um daginn og þá komum við að drullupolli, ég bar hana ekki yfir og þá sagði hún: Þú ert ekki eins góður við mig núna eins og þegar þú varst ungur strákur. — Og hverju svaraðir þú? — Ég sagði bara: Þú ert nú ekki eins grönn núna eins og þegar ég var ungur strákur. ☆ Gömul kona og amerískur her- maður sátu hvert á móti öðru í brezkum járnbrautarvagni. Her- maðurinn japlaði á tyggigúmmí í sífellu, og gamla konan horfði á hann. Á einni stöðinni fór hann út og inn kom vinkona gömlu konunnar, þá sagði hún: — Mikið varv hann indæll, ungi hermaðurinn, sem fór út áðan. Alla leiðina var hann að tala við mig, en hann talaði bara svo lágt, og ég heyri svo illa, að ég heyrði ekkert af því, sem hann sagði. DÁNARFREGN — Páll Stefán Antóníus Hall- dórsson var fæddur í Geraldton, Sask. þ. 24. jan. 1905. Hann dó þ. 6. sept. s.l. 46 ára gamall. — Foreldrar hans voru hjónin Guð- laug Björnsdóttir frá Eskifirði og Björn Halldórsson frá Hrafns gerði í Suðurnesi í Austur- Skaftafellssýslu. Foreldrar hans komu til Canada árið 1901 og settust að í Geraldton. Páll var alinn upp í foreldrahúsum. Fað- ir hans dó 1921, en móðir hans er hjá Jóhanni syni sínum. Tvö systkini lifa bróður sinn, Mrs. John Reykjalín í Langenburg, Sask. og Jóhann bóndi í Gerald- ton. Páll kvæntist konu af hérlend- um ættum, Doris Murray, þau eiga tvö börn, dreng 14 ára og stúlku 11 ára. Páll heitinn var hinn mesti myndarmaður og öllum var vel til hans, sem þekktu hann. Hann var snillingur í að leika á fiðlu og mikið sótst eftir honum til að spila og skemta á gleðimótum. Hann var víða þekktur og alls staðar velkomin. Útförin fór fram frá United kirkjunni í Geraldton þ. 10. sept. Hátalarar voru notaðir og hópur af fólki stóð allt í kringum kirkj una og lengst út á götur. Ungir og gamlir komu í hundraða tali að kveðja vin, sem þeir söknuðu sárt og mátu mikils. Séra Jóhann Fredriksson jarðsöng. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóla kl. 12.15 e. h. ☆ Lúlerska kirkjan í Selkirk Sunnudaginn, 23. sept. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnuþlagaskóli kl. 12 íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir! S. Ólafsson ☆ — Gimli Luiheran Parish — H. S. Sigmar, Pastor Sunday September 23rd 9 a.m. Betel. 1:30 p.m. Communion Service in Husavick. 3:00 p.m. (Standard Time) Service in Geysir (Icelandic and English). 7:00 p.m. (D. S. T.) Youth Service in Gimli. 8:30 p.m. (Standard Time) Youth Service in Riverton. Everyone aíways wölcome. ☆ — Lundar Presiakall — Sunnud. þ. 23. sept. Lundar, sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Messa á íslenzku kl. 2 e. h. Messa á ensku kl. 7.30 um kvöldið. Sunnud. þ. 30. sept. Otto, messa á ensku kl. 2 e. h. Lundar, messa á ensku kl. 7.30 um kvöldið. J. Fredriksson Nágranni:—Jæja, vinur, hvað hefir nú hann sonur þinn lært í skólanum? Stoltur faðir:—Hann var ekki búinn að vera í einu viku, þegar hann sýndi, hvernig hægt væri að opna flösku með tú-kalli. FRÁ VANCOUVER: Afmælishátíð á Höfn » 3498 Osler St. Vancouver Sunnudaginn 30. sepfr. 1951 Kl. 2 til 5 og 8 til 10 e. h. 0 Inngangseyrir. Gjafir til elliheimilisins. 1. Peningar. 2. Rúmfatnaður, handklæði, bollapör o. s. frv. 3. “Groceries, Canned goods, Preserves.” 4. Aðrar gjafir heimilinu til gagns. Program Kl. 3 og 9 e. h. Kaffi, sætabrauð og skyr á boðstólum. Allir velkomnir. — Komið og styrkið þarft fyrirtæki! NEFNDIN THE MALTING PR0CESS There are three stages in the malting process, i.e., steeping, germinating and drying. The steeping. consists in soaking the barley in water until the kernel is almoát saturated. This is done in large steep tanks through which pure water and air can be forced. The germination is done in a compartment or drum where the barley can be kept at the proper temperature and moisture content. Fresh air is forced through the germinating mass to remove the carbon dioxide and supply oxygen to the grain growing. The germinated barley, or as it is called “green malt”, has been allowed to grow until small rootlets have developed, but the sprout has not emerged from under the hull. The drying is dOne in kilns through which heated air is forced. It is usually dried to about 3 percent of 4 percent miosture. The dried rootlets are removed and malt is the result. To the uninitiated malt appears like a clean sample of barley. For further information, write to Barley Improve- ment Institute, 206 Grain Exchange Bldg., Winnipeg. Twelfth of series of advertisements. Clip for scrap book. ♦ ♦ ♦ ♦ This space contributed by SHEA’S WINNIPEG BREWERY LTD. MD-293

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.