Lögberg - 20.09.1951, Qupperneq 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 20. SEPTEMBER, 1951
I
7
Lífssannindi íslendingasagna
eiga erindi til alls mannkyns
— segir prófessor Niels Bohr ______
Hluiverk þjóðarinnar er að varð-
veila menningarf jársjóði sína.
PRÓFESSOR Niels Bohr og frú
hans eru farin af landi burt. Þau
*fóru með Drottningunni í gær.
Á sögusiöðum.
Þá daga sem hinn heimsfrægi
vísindamaður var hér, notaði
hann, sem mest hann mátti, til
að sjá með eigin augum, og
kynnast merkum íslenzkum
sögustöðum.
Það hefir vakið mikla athygli
meðal almennings hve prófessor
Niels Bohr er kunnugur íslend-
ingasögum og hve mikils hann
metur þær.
Á fimmtudag komu þau hjón-
in hingað til bæjarins úr bílferð
um Borgarfjörð, Húnavatnssýslu
'og Skagafjörð. Voru þau í fylgd
með sendiherra Dana, frú Bodil
Begtrup, og nutu leiðsagnar
prófessors Sigurðar Nordals.
Ánægjuleg kynning.
Er ég hitti prófessor Bohr að
máli í sendiherrabústaðnum við
Hverfisgötu í gærmorgun lýsti
hann ánægju sinni yfir því, að
hafa haft tækifæri til að koma
hingað, að hafa notið einstakrar
gestrisni hér eftir því sem hann
sagði, hafa kynnst hinum sögu-
fróðu mönnum er hann um-
gekkst hér, og séð með eigin
augujn hve hér eru miklir 'fram-
tíðarmöguleikar á mörgum svið-
um.
öllum verður það minnisálætt
er eiga þess kost, að ræða per-
sónulega við þennnn mikla vís-
indamann, svo alþýðlegur er
hann. Svo innilegur í öllu sínu
tali og framkomu, að manni
verður ósjálfrátt að þykja vænt
um hverja setningu sem hann
segir.
Hann iók sögurnar
að erfðum.
Ég spurði hann m. a. hvað
hefði vákið athygli hans á ís-
lendingasögunum, og gert það
að verkum, að hann hefjr kynnt
sér fornbókmenntir okkar svo
vel. Hann sagði:
„Ég er enginn sögumaður að
sjálfsögðu og þekking mín á
sögu íslands er mjög í molum.
En upprunalega kynntist ég Is-
lendingasögum og lærði að meta
gildi þeirra vegna þess að faðir
minn var einn af mörgum Dön-
um sem á þeim árum lagði stund
á lestur sagnanna. Ég erfði á-
hugann frá honum og hefi tam-
ið mér að leita hugsvölunnar við
þann listabrunn og hvíldar frá
alvarlegum störfum.
Ég las íslendingasögurnar í
dönsku þýðingu Niels M. Peter-
sen. Það er mér mikið ánægju-
efni, að menn skuli geta vænst
þess, að íslendingasögur í heild,
sinni komi út á enskri tungu svo
sögurnar verði aðgengilegar fyr-
ir öllum hinum enskumælandi
þjóðum.
Þarf a3 víkka sjóndeildar-
hringinn.
Er ég í háskólafyrirlestri mín-
um minntist á íslendingasögurn-
ar, vakti það fyrir mér að benda
á, að sögurnar geta hjálpað okk-
ur til að sjá gömul viðfangsefni
í nýju ljósi. í fyrirlestri mníum
vakti það ekki fyrir mér, að
segja neinn nýjan sannleika í
þessu sambandi. Ný vísindi hafa
gert þörfina brýnni á því, að
skilja afstöðu manna til tilver-
unnar yfirleitt. I því sambandi
er það mikils virði að meta að
verðleikum gamla þekkingu sem
sögurnar geyma en oft gleymist
vegna þess að henni er ekki
nægileg eftirtekt veitt vegna
hefðbundinna forma og skoðana.
Nýjar rannsóknir hafa kennt
okkur að sjóndeildarhringur okk
ar hefir verið alltof takmarkað-
ur, þegar hin nýju reynsluvís-
indi koma til skjalanna, sem sé
. reynsla okkar, sem fengin er úr
heimi atomanna er hefir áður
verið lokað land fyrir mann-
kyni.
Áður héldu menn, að þeir
hefðu fundið grundvallarregl-
urnar fyrir allri vísindalegri
þekkingu. En þetta reyndist ekki
á rökum byggt. Við höfum kom-
ist að raun um að rammi þessar-
ar þekkingar er of þröngur. Við
höfum fundið þörfina til að taka
vandamálin upp til nýrrar yfir-
vegunar. Á sama hátt og við
höfum tekið upp lýsingar á til-
finningalífinu.
En vegna þess hve óviðjafnan-
legur skáldskapur eða skáldleg
tilþrif birtist okkur í íslendinga-
sögum, verða þær okkur sí-
gildar.
Þar er þó vitaskuld ekki um
vísindalega sálfræði að ræða, en
óviðjafnanlega mannlega þekk-
ingu á eðli manna sem kemur í
ljós í alls konar umhverfi og
vandamálum lífsins.
Tel ég þar fremstar persónu-
lýsingar Njálssögu.
Þegar ég stóð í ræðustól Há-
skólans, fann ég mjög til þess,
að ég skyldi ekki geta notað hina
gömlu samnorrænu tungu. Þess
vegna er það mér ánægjuefni að
fyrirlestur minn verður þýddur
á íslenzku og gefinn út.
Mikilsverð ltynni.
Það hefir verið mér mikið á-
nægjuefni að kynnast íslenzkum
vísindamönnum sem svo mjög
hafa sökkt sér niður í íslenzkar
fornbókmenntir, lifað í þeirra
heimi. Viðkynning mín við þessa
menn, hefir verið mér til mikils
fróðleiksauka. Hver af öðrum
hafa þeir gert sér það ómak að
fylgja mér til sögustaða.
Einar (Ólafur Sveinsson til
Þingvalla, Þorkell Jóhannesson
til Fljótshlíðar og Sigurður Nor-
dal um Borgarfjörð, Vatnsdal og
alla leið norður í Skagafjörð til
Glaumbæjar, þar sem við í skín-
andi veðri sáum greinilega til
Drangeyjar, sem rifjaði upp fyrir
okkur síðasta þáttinn í hinni
miklu harmsögu Grettis.
Á ferð minni til Norðurlands
með Sigurði Nordal, var ég
hrifnastur af Vatnsdalnum og
að geta virt fyrir mér hof og um-
hverfi þess í skínandi veðri. Það
var sem margt annað í þessari
ferð, ævintýri líkast, að geta séð
heim að bæ Kormáks, og að Gils-
bakka og koma -að Borg og
Reykholti.
Mikilsveri hluiverk.
En þegar ég lít yfir þessa daga
þá finnst mér það næstum ótrú-
legast af öllu, að hafa getað ferð-
ast dag eftir dag í gegnum svo
fjölbreytilegt landslag að sjónar-
sviðið breytir gersamlega um
svip svo að segja á hálftíma
fresti. Ánægjulegt er að fara um
sveitir þar sem ættir íslendinga-
sagna lifðu lífi sínu. En það er
mér ánægjuauki að geta um leið
augum litið hve miklir framtíð-
armöguleikar eru hér fyrir hendi
þegar þjóðinni gefst tækifæri til
að taka vísindin og tæknina í
þjónustu sína.
Ég þykist sjá í anda hve stór-
kfelldar framfarir verða hér á
næstu *áratugum. Og ég gleðst.
yfir því hvað ykkur hefir þegar
tekist að byggja upp í landinu.
Minnist ég þá að sjálfsögu Há-
skólans ykkar.
Eftir þessa heimsókn mína
hingað hefi ég sannfærst um, að
íslenzka þjóðin mun um ókomin
ár eiga hlutverki að gegna í þágu
mannkynsins, í samvinnu við
aðrar þjóðir, vegna menningar
þeirrar sem þjóðin hefir til varð-
veizlu, ef heiminum auðnast að
koma þeirri samvinnu á, sem
mannkyninu er nauðsynleg.
Með þessum orðum var lokið
samtalinu við Niels Bohr. —
Hann ætti að vita hyersu heim-
sókn hans hingað er íslenzku
þjóðinni kærkomin. V. St.
—Mbl. 11. ágúst
EFTIRMÆLI
Mrs. Krisiín Erlendsson
Víðir, Man.
Dáin 5. marz 1949
Að verki loknu,
verður hvíldin
kærust þeim,
er kveldið kemur,
sem að hafa,
um sína daga
unnið vel,
til æviloka. —
Kveður þú,
sem kærast hefur,
verið þér um
þína daga.
Heimilið sem
heitt þú unnir
er margvíslega
minnig geymir. —
Rúnir tímans,
ritað hafa,
sögu þá
er sýna merkin.
Þar sem áform
ykkar hjóna,
sigri með
þið sáuð blessast! —
Eftir missir,
eiginmannsins,
söm þú hetjan,
sanna reyndist.
Áfram halda,
ei undan víkja,
það var viljans,
þrá og vonin. —
Meðan þrekið,
þig nam styðja,
góðri barðist
baráttunni.
Það er móðir,
það má sanna,
sem er heimsins,
helgast aflið. —
Man þig byggð,
og börnin kæru,
sem nú fylgja,
sinni móður.
Grafar til, — hvar
góður faðir,
hefir lengi
hennar beðið. —
Gott er höfgans,
hvíldar njóta.
Heims frá slóðum,
horfinn vera.
Aftur vakna,
í æðra veldi
ung, sem fyrr,
á æskuskeiði! —
B. J. Hornfjörð
Heymjöl unnið á
tveim stöðum í
Fljótshlíð
Gefur góða raun, segir Klemenz
á Sámsstöðum.
Hraðþurrkað heymjöl er nú
framleitt á tveimur stöðum
á landinu, að Sámsstöðum
og Ámundakoti í Fljótshlíð.
Er framleiðslan í byrjun að
Ámundakoti, en á Sáms-
stöðum verða í sumar fram-
leiddar 26—28 lestir.
Heymjölið er framleitt úr
snemmsleginni töðu og há og
notað í fóðurblöndur. Er það
þurrkað með áttatíu stiga heitu
lofti, og er hráolía og rafmagn
*notað sem hitagjafi. *Sá galli er
þó á vélunum, að þær eru held-
ur seinvirkar og ekki hægt að
láta í þær nema hálfþurrt hey.
íslenzka heymjölið ódýrara^
— Sé aðstaða sæmileg og rétt
að farið, borgar s'ig ágætlega að
vinna hér heymjöl, sagði Klem-
enz á Sámsstöðum í gær. Erlent
heymjöl komið til Reykjavíkur,
kostar upp undir tvær krónur
kílóið, en við höfum selt það á
1,65, komið þangað. íslenzka
mjölið inniheldur þó heldur
minna af próteini, en prótein-
magnið er vel hægt að auka með
því að slá oftar og bera á milli
slátta.
—TÍMINN, 2. sept.
Hugleiðingar um kirkjuþingsferð
Þegar ég fór á k^rkjuþingið,
sem haldið var á Lundar, hét ég
sjálfri mér því, að nú skyldi ég
ekki skrifa neitt um ferðalagið,
en nú er ég samt sest niður að
skrifa um það.
Ferðin gekk greiðlega. Lestin
brunaði óðfluga yfir fjöllin köld
og hrikaleg og ekkert varð til
farartálmunar og alt gekk vel
þangað til hún skilaði okkur af
sér í Winnipeg. — Það hoppar
altaf í mér hjartað þegar ég
kem þangað og ryfjast upp end-
urminningar um gamla kunn-
ingja og vini, sem fléstir eru nú
farnir yfir hafið mikla. — Ég
gleymi aldrei hvað margar gleði-
stundir ég hafði á heimili hinna
ágætu hjóna séra Jóns Bjarna-
sonar og frú Láru konu hans,
hann andansmaðurinn og leið-
toginn mikli gat verið svo
skemmtinn í hópi unglinga, sagt
fyndnar sögur og hlegið með
okkur, annars man ég bezt eftir
honum sitjandi við skrifborð
sitt, — hann minnti mann á öld-
ungana fornu. Ég vildi að guð
vildi nú sepda okkur Islending-
um annan eins leiðtoga. Mrs.
Bjarnason var einstök, sístarf-
andi bæði fyrir kirkjuna og
heimili sitt, hún taldi það ekki
eftir sér, að leggja alla sína
krafta í þjónustu og til eflingar
guðs ríkis, hún var manni sín-
um einkar samhent í því eins
og öðru.
Núna þegar ég kom til Winni-
peg, fór ég strax að heimsækja
fósturdóttur þeirra , Theodóru,
hún á ágætt hús suður við Rauð-
ána og býr þar. Þegar ég kom
þangað, var þar fyrir hópur af
blindu fólki, sem Friðrik fóstur-
bróðir hennar keyrir til hennar
einu sinni í viku, og sem hún svo
les fyrir og skemmtir á einn eða
annan hátt. Ég efast ekki um að
hún kveiki ljós í myrkrinu hjá
þessu blessaða fólki, og þá er
tilgangi hennar náð. Svo kom
ég til Mr og Mrs. Jóns Bíldfelds.
Jón er enn hraustlegur og dug-
legur á að líta og ég vona og
óska að hann eigi enn eftir að
láta bylgjuna brotna á sér, eins
og undanfarið, bæði í kirkju-
málum og eins í viðhaldi ís-
lenzkunnar. Jón er enginn flysj-
ungur; Soffía kona hans er fjör-
ug og skemmtin og góð heim
að sækja. Mrs. Sigríður Bíldfeld.
ekkja Ögmundar bróður Jóns
(móðir mín og faðir þeirra voru
systkin) var nú að fara til einka-
sonar síns í Vancouver; hún
missti ekki fyrir löngu fyrir-
myndardóttur, að allra dómi,
Þjóðbjörgu og svo manninn. Hún
er þrekkona.
Nú átti ég eftir að sjá Elínu
systur mína, sem mig var farið
að langa svo mikið til að sjá. Hún
var unglegri en áður og fjör-
legri, því nú gengur hún á báð-
fótum; hún á marga kunningja,
sem sjá hana iðulega og hún hef-
ir nóga vitsmuni til að gleðja sig
yfir því. Mér til mikillar gleði
fannst mér henni líða vel.
Það var ein kona, sem mig
langaði til að koma til, en hafði
ekki tíma til þess, en það var
Vilhelmína dóttir séra Odds
Gíslasonar (nú Mrs. Stevens), við
þekktumst heima á gamla land-
inu, og ég hélt þá að engin stúlka
gæti verið fallegri en hún; svo
kom ég til hennar mörgum ár-
um eftir að hún varð ekkja og
ég var svo glöð yfir því, hvað
vel hún hafði haldið við því,
sem hún lærði heima, og var víð-
lesin, fróð og skemmtileg.
Svo kom ég til Mrs. Ingunnar
Jónsson (móðir mín og móðir
hennar voru systur); hún kom
hér ung og giftist ung, misti
manninn skömmu eftir að þau
giftust og hefir verið ekkja síð-
an. Hún er væn kona, trygglynd
og vinur vina sinna.
Svo er önnur frænka mín, það
er Lára Scheving, hún er dóttir
Elínar móðursystur minnar og
manns hennar séra Lárusar
Scheving; Davíð Scheving rekt-
or á Bessastöðum var afi hennar.
Hún er kyrlát kona og ekki
margmál í umgengni, en þegar
að maður er með henni einni, þá
er varla hægt að finna skemmti-
legri manneskju, því nógar eru
gáfurnar. Ég kom fyrst til henn-
ar þegar hún var í Nýja-íslandi
í dálitlu húsi, sem hún hafði
•keypt þar, með móður sína og
ungan son sinn, Lárus, sem hún
ól svo upp sér til sóma og gleði.
Til Mr. og Mrs. Páls Vatnsdal
kem ég í hvert skipti, sem ég
kem til Winnipeg, við höfum
þekksts í mörg ár.
Ég dvel hjá ekkju Kristjáns
bróður míns og sýnir hún mér
hina mestu umhyggjusemi og
systurlega velvild.
Nú var ferðinni heitið til
Lundar, þar sem ég ætlaði að
sitja á kirkjuþingi, og eftir að
hafa verið tvo daga í Winnipeg
fór ég þangað og kom þar að
kvöldi dags, þar þá búið að setja
kirkjuþingið. Það átti að fara að
halda guðsþjónustu, ég settist
niður með hinu fólkinu, fór til
altaris með því, og beið þangað
til mér var sagt hvar ég ætti að
halda til. Við Mrs. Elín Jónasson
héldum til hjá Mr. og Mrs. Ingi-
mundi Sigurðsson, ágætu fólki
í góðu húsi og þar leið okkur vel.
Kirkjuþingið fór fram með
friði og einingu, eins og venju-
lega, og var mér til mikillar
gleði, fannst mér að meiri áhugi
væri fyrir kirkjumálum en að
undanförnu. Gjörðir kirkju-
þingsins hafa komið út í Lög-
bergi, og þá, sem langar til að
lesa þær geta fundið þær þar.
Okkur var tekið framúrskar-
andi vel, það var ekki alt í því að
okkur væri veitt vel heldur hitt,
að fólkið sýndist veita manni
af innilegri velvild og gestrisni.
Veitingafnar fóru fram í stóru
og myndarlegu samkomuhúsi
rétt hjá kirkjunni, en í kirkjunni
voru haldnir allir fundir og
guðsþjónustur. Prestshúsið er
þar rétt hjá, prestshjónin eru
einstaklega almennilegt fólk —
presturinn, séra Friðrik, hefir
sjálfur gjört svo við húsið, að
það er þægilegt og gott til íbúð-
ar; óvanalegt af presti að gjöra
slíkt, þeir heimta að það sé gjört
fyrir sig, enda eiga þeir það
skilið, ef þeir standa vel í stöðu
sinni. —
íslenzka er víst talsvert töluð
á Lundar og ber það vott um
fastheldni og tryggð við gamla
landið, og er það virðingarvert.
Kannske það sé af því, að Lund-
arbyggð hefir sent frá sér svo
margt menntafólk. Það hlýtur
að vera traustur stofn, með
sjálfstæðar hugsanir. — Þeir
eiga góðan söngstjóra — mér
brá í brún að heyra sum gömlu
lögin sungin þarna meistaralega
vel. Ég frétti nýlega, að maður-
inn, sem æfir söng þarna sé V.
Guttormsson, tónskáld.
Enga akra eða vötn sé ég í
kringum Lundar og var mér
sagt að land þar í kring væri
hrjóstrugt steinótt, en ágætar
bújarðir lengra í burtu.
Nú var komið að því að kve^j-
ast og halda heimleiðis. Þrjú af
okkur fengum keyrslu með Frið-
rik Bjarnasyni, séra Eylands,
kennari frá Winnipeg og ég.
Litlu eftir að við fórum af stað
fengum við þá voðalegustu rign-
ingu og rok með þrumum. Frið-
rik er ágætur bílstjóri, svo höfð-
um við séra Eylands og ham-
ingju hans innanborðs, svo að
við komumst heim heilu og
höldnu.
Þegar til Winnipeg kom átti
ég eftir að hitta mágkonu mína,
sem var nýlega komin frá ís-
landi og ætlaði þangað bráðlega
aftur. Hún var þá komin í sum-
arbústað niður að Gimli. Ég fór
þangað til hennar, mér þótti
vænt um að sjá hana, ég hafði
margt að spyrja hana um —
frændfólk mitt og vini, jafnvel
um hestana, kýrnar og lömbin
og fuglana — litlu maríötluna í
hlaðvarpanum, sem hoppar svo
léttilega, og segir krökkunum
hvar þau eigi að vera.
Þegar ég var unglingur var ég
látin sitja yfir ánum um hey-
skapartímann. Ég man hvað ég
grét þegar ég labbaði á eftir
þeim í fyrsta sinni með nestið
mitt í annari hendinni, en með
hinni í stúlkuna, sem átti að
segja mér hvernig ég ætti að
sitja hjá. Þegar við vorum bún-
ar að ganga nokkuð lengi, stans-
ar hún og segir mér að á þessari
sléttu eigi ég að halda ánum,
ég megi ekki láta þær fara yfir
þennan læk, því þá fari þær
upp í hraunið og þar týnist þær.
Ég mátti ekki siga „Neró“ á þær,
en þegar sólin var yfir nónvörðu
átti ég að fara að bæja þeim við
til heimferðar — og vertu nú
sæl — láttu þér ekki leiðast. —
Ég horfði á eftir henni svo lengi,
sem ég gat séð hana — svo henti
ég mér niður á jörðina og grét.
Hjásetan tókst mér vel, þegar á
sumarið leið mátti heita að þær
pössuðu sig sjálfar, ég gat lesið
eina bókina eftir aðra, mér leidd-
ist að yfirgefa þær þegar hjá-
setunni var lokið — þær voru
mínar ær og ég telpan þeirra,
svona sögur líkar þessari ryfjuð-
ust upp fyrir mér: — Hrævar-
eldurinn á mýrarkeldunum,
álftasöngurinn á vötnunum,
fossaniðurinn í ánum, björtu
næturnar og norðurljósin, og
svo mamma mín með báðar mín-
ar hendur í sínum horfandi i
augu mér og sagði: — Gleym þú
aldrei drottni þínum og frelsara,
ef þú vilt að þér líði vel. Svona
þyrlaðist þetta allt upp í huga
mínum eins og óðfluga fellibyl-
ur. —
Mágkona mín er nú á heim-
leið, en ég er komin heim til
mín. —
Anna Malthíasson
Vancouver, B.C.
GAMAN 0G
! A L V A R A
Inga: — Þessi kjóll er allt of
þröngur á þig.
Magga: — Já, hann er alltof
þröngur, og hann er þrengi held
ur en skinnið á mér.
Inga: — Hvernig getur hann
verið þrengri en skinnið á þér?
— Magga: Sjáðu nú til. Ég
get sest niður þegar ég er nakin,
en ég get ekki sest niður í þess-
um kjól.
4 ☆
Lóla: — Hvaða dýr er það sem
hefir 24 fætur, græn augu, rauð-
an skrokk, með svörtum rönd-
um?
Danni: — Það veit ég ekki.
Hvaða dýr er það?
Lóla: — Það veit ég ekki held-
ur, en hvað svo sem það er, þá
ættirðu að taka það af hálsinum
á þér.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sen. fyrst greiðslu fyrir
vfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75 00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir tóm
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK