Lögberg - 25.10.1951, Blaðsíða 1
1
SVIPLEGT DAUÐASLYS:
Presturinn á Skútustöðum
bíður bano af falli í stiga
Það sviplega slys vildi til í fyrradag, að presturinn á
Skútustöðum við Mývatn, séra Hermann Gunnarsson,
féll úr stiga og höfuðkúpubrotnaði. — Lézt hann
nokkrum stundum síðar.
íslendingar í Suður-Californíu
Blaðið átti einnig tal við hér-
aðslækninn á Breiðumýri, Þór-
odd Jónasson, sem kom til
sjúklingsins skömmu eftir slys-
ið, og samkvæmt frásögn hans
vildi það til með þessum hætti:
Laust fyrir kl. 12 á hádegi í
fyrradag var séra Hermann að
bera 170 punda þungan hveiti-
poka ofan í kjallara húss síns.
Niður tréstiga var að fara og
bar hann pokann í fanginu og
gekk áfram niður stigann. Var
hann kominn mjög neðarlega í
stigann, er honum varð fóta-
skortur með einhverjum hætti
svo að hann féll aftur yfir sig
°g fylgdi hinn þungi hveitisekk-
ur honum eftir í fallinu. Féll
séra Hermann á hnakkann og
hlaut mikið högg.
Heimilisfólkið kom þegar að,
og var séra Hermann þegar bor-
inn í rúm. Var hann þá með fulla
meðvitund, en dreyrði úr eyr-
um. Héraðslæknirinn á Breiðu-
mýri, Þóroddur Jónasson, kom
að hálfri stundu liðinni. Sam-
tímis voru gerðar ráðstafanir til
að fá flugvél til Mývatns til að
sækja sjúklinginn og flytja í
sjúkrahús til tafarlausrar að-
gerðar.
Fékkst Grummanflugbátur frá
Akureyri og flaug Aðalbjörn
Kristinsson honum austur. Með
honum var Jón Sigurgeirsson,
lögregluþjónn, sem er Mývetn-
ingur. Lenti báturinn á vogin-
um rétt austan við Álftagerði,
sem er næsti bær vestan Skútu-
staða, og þaðan aðeins nokkurra
mínútna gangur í Skútustaði.
Var þetta um kl. 3 síðdegis í
fyrradag. ,
Séra Hermann hafði fulla
rænu um klukkustund eftir að
slysið varð, en þá misti hann
meðvitund og kom ekki aftur til
meðvitundar. Lézt hann svo um
kl. hálffjögur, og var læknirinn
yfir honum allan tímann. Var
þetta um svipað leyti og komið
Landhelgismól
íslands koma við
sögu í Haag
Brezki saksóknarinn og mál-
flytjandi Breta í landhelgis-
málinu, sem nú er fyrir alþjóða-
dómstólnum í Haag, lauk í gær
sóknarræðu sinni með þeirri
kröfu, að landhelgisákvörðun
Norðmanna væri lýst ólögleg.
Hins Vegar kvað hann Breta
fúsa til samninga við Norð-
mejin um nauðsynlega verndun
fiskimiða á landgrunni. Hann
vék einnig að þeirri ákvörðun
íslendinga að stækka landhelgi
sína fyrir Norðurlandi og kvað
hana algerlega ólöglega.
Norski verjandinn mun hefja
varnarræðu sína um miðja vik-
una.
Tekur sæfri á alþingi
Andrés Eyjólfsson, bóndi í
Síðumúla, hinn nýkjörni þing-
maður Mýramanna, tók sæti á
alþingi í gær. Var kjörbréf hans
þegar samþykkt að lokinni þing-
setningu.
—TÍMINN, 2. okt.
var með sjúkrakörfu úr flug-
vélinni heim í Skútustaði.
Lætur eftir sig konu
og eitt barn.
Séra Hermann Gunnarsson
var maður um þrítugt, sonur
Gunnars Jónssonar frá Fossvöll-
um. Hann var nýlega orðinn
prestur Mývetninga en hafði
unnið sér almennar vinsældir
og viðurkenningu sem ágætur
kennimaður og góður héraðs-
þegn. Hann var kvæntur Sigur-
laugu Johnsen frá Vestmanna-
eyjum og áttu þau eitt ungt
barn.
Aths. Hinn látni, ungi prestur,
var bróðursonur Gísla Jónsson-
ar ritstjóra Tímarits Þjóðrækn-
isfélagsins og Einars P. Jónsson-
ar ritstjóra Lögbergs.
—TÍMINN, 12. okt.
Brúðkaup
Á sunnudaginn voru gefin
saman í hjónaband, þau Jakob
Ágúst Vopni fyrrum bóndi að
Swan River og frú María Ragn-
hildur Árnason, ekkja Ingólfs
Árnasonar frá Cypress River;
hjónavígslan fór fram að heim-
ili Mr. og Mrs. Chris Nordman,
en Mrs. Nordman er dóttir
brúðarinnar; en önnur dóttir
brúðarinnar, frú Alma Gíslason,
söng yndislegan einsöng við
upphaf vígsluathafnarinnar. Dr.
Rúnólfur Marteinsson gifti.
Svaramenn voru Mr. og Mrs.
Nordman. Margt var boðsgesta
við athöfnina, og vegleg veizla
setin.
Mr. Ragnar Gíslason stýrði
ræðuhöldunum; fyrir m i n n í
brúðarinnar mælti Mr. L. Holm,
en fyrir minni brúðgumans
mælti Dr. Marteinsson og skýrði
frá fjölþættu ævistarfi hans og
las kvæði eftir Hjálmar Gísla-
son; þakkaði brúðguminn með
fögrum og hlýjum orðum vina-
hótin í garð þeirra hjóna; heimili
þeirra verður að 4 Elswood
Street , Winnipeg. Brúðguminn
er 84 ára, en brúðurin 79 ára.
Löberg flytur þeim Mr. og
Mrs. Vopni innilegar árnaðar-
óskir.
☆
Til Maríu og Ágúsiar Vopni,
21. oklóber, 1951
Þið hafið, alla æfi,
önn lífs, með drengskap sönnum,
borið, og bezt með farið,
bætt pundið hverja stundu.
Því mun líf-föðurs ljúfa
ljósið, frá dular ósum,
yður svipfagurt sveipa
sólarlag æfidaga. H. G.
Afrkvæðagreiðsla
um kornsölu
Landbúnaðarráðherra fylkis-
stjórnarinnar í Manitoba, Mr.
F. C. Bell, hefir tilkynt, að at-
kvæðagreiðslan um sölu hrjúfra
korntegunda fari fram þann 24.
nóvember næstkomandi; skrá-
setning kjósenda hefst þann 16.
yfirstandandi mánaðar; aðeins
framleiðendur korntegunda
greiða atkvæði um málið; fram
að þessu hefir hveitiráðið ann-
ast um söluna, en nú verður
bændum það í sjálfsvald sett
hvort þeir vilji að sama sölu-
aðferð haldist við, eða að kornið
verði selt á opnum markaði.
686 Banning Si.
Kaffidrykkja
Meðlimum og vlnum Fyrsfa
lúterska safnaðar er hér með
boðið til kaffidrykkju á hinu
nýja prestssetri safnaðarins, 686
Banning St. hér í borginni síð-
degis og að kvöldi næstkomandi
föstudags og laugardags, 26. og
27. þ. m.
Kvenfélög safnaðarins og
djáknarnir annast veitingar. —
Komið og 'sjáið nýja húsið!
Nefndin
Skipaður
sendiherra
Samkvæmt frétt, sem Lög-
bergi barst frá íslandi á þriðju-
daginn, hefir Dr. Sigurður Nor-
dal verið skipaður sendiherra ís-
lands í Kaupmannahöfn í stað
Stefáns Þorvarðarsonar, er bráð-
kvaddur varð í Reykjavík á síð-
asta sumri.
Dr. Nordal er einn hinn víð-
mentaðasti og snjallasti rithöf-
undur þeirra, sem við sögu ís-
lands koma, og setur vafalaust
glæsisvip á hverja þá stöðu, sem
hann skipar.
í flugslysinu mikla þann 17.
þ. m. við Mount Benson þar sem
23 menn létu líf sitt, var einn
þeirra William Perry, 26 ára að
aldri, sonur Mr. og Mrs. Walter
E. Perry 723 Warsaw Ave. hér í
borginni; móðir hans Margrét
Jones-Perry, er ættuð frá Mikl-
ey, en maður hennar er lestar-
stjóri hjá Canadian National
j árnbrautarfélaginu.
Hinn látni, ungi maður var
glæsimenni og mikill að vallar-
sýn; hann stundaði nám við Earl
Gray alþýðuskólann og Kelvin
gagnfræðaskólann, en gekk síð-
an í flugherinn og lauk þar flug-
stjóraprófi, er hann var 19 ára
gamall; fyrir nokkru hafði hann
gengið í þjónustu hins mikla
Aluminiumfyrirtækis í British
Columbia og gegndi þar ábyrgð-
arstöðu.
Bill, eins og vinir hans jafnan
kölluðu hann, var manna vin-
fastastur, svo sem kunnugt er
einnig um hina mikilhæfu móð-
ur hans, sem ekki er eitt í dag
og annað á morgun. Bill var
einkabarn foreldra sinna, og er
því ólýsanlegur harmur að þeim
kveðinn við sviplegt fráfall
hans, og allir aðrir, sem kyntust
honum sakna hans líka.
Þau Mr. og Mrs. Perry fóru
þegar vestur til Vancouver dag-
inn eftir að þeim barst harma-
fregnin til að afla sér frekari
vitneskju um atburðinn.
Fyrrum róðherra
látinn
Nýlega lézt hér í borginni Mr.
John C. Dryden, fyrrum menta-
málaráðherra og síðar fjármála-
ráðherra í Campbell-stjórninni í
Manitoba 53 ára að aldri, vin-
sæll maður og skyldurækinn
um embættisstörf; hann hafði
verið veill á heilsu síðastliðin
tvö ár.
Mr. Dryden var útskrifaður í
búvísindum frá Manitobaháskól-
anum.
I Los Angeles og nágrenni er
fjöldi manna og kvenna af ís-
lenzkum ættum, sem að eiga
rætur sínar að rekja til North
Dakota — er þetta tápmikið
dugnaðarfólk, með átthagatrygð
í ríkum mæli, sem kom greini-
lega í ljós í sambandi við hina
stóru samkomu, sem að -hér fór
fram 29. sept. s.l. í North Star
Auditorium til arðs fyrir gamal-
mennaheimilið „ B O R G “ að
Mountain, N. Dakota, en sam-
komuna sóttu yfir 400 manns.
Hinn efnilegi maður Valdimar
Thorvaldsson stjórnaði samkom-
unni með mikilli röggsemi, en
vel hafði verið búið í haginn með
allan undirbúing, t. d. seldi
Phil Halperin á annað hundrað
aðgöngumiða, en hann er kvænt-
ur Jónínu Ásgrímsson. Þarna
var Cayor tombóla, happadrættir
í mörgum myndum, og hinar
beztu veitingar undir stjórn
hinna færu hjóna Hans og
Emilíu Ortner; varð fjárhagsleg-
ur árangur framar beztu vonum.
Ég vil geta þess, að hér er hópur
af fólki, sem að ekki er íslenzkt,
en sem að hlúir að málefnum
íslendinga af fremsta megni.
Allra þjóða dagur
Þann 12.—13. þ. m. var haldin
hin árlega samkoma, sem að hin-
ir ýmsu þjóðflokkar hér efna til
í húsakynnum sínum að 435 So.
Boyle Ave. Þar höfðu Islend-
ingar myndarlega sýningu und-
ir stjórn frú Guðnýjar Thor-
valdsson.
Forsæfrisróðherra
myrfrur
Hinn 15. þ. m., var íorsætis-
ráðherrann í Pakistan, Ali Khan,
myrtur, er hann var að flytja
ræðu fyrir miklum mannsöfn-
uði; hann var 57 ára að aldri og
var alment talinn hinn mikil-
hæfasti stjórnmálamaður.
Ali Khan var alla jafna hlynt-
ur Vesturveldunum og dáði mjög
kosti vestrænnar menningar.
Pakistan lýtur brezku krúnunni,
þó þjóðin eins og flestar sam-
lendur Breta, njóti fulls sjálfsr
forræðis.
Sir Kwaja Nazimuddin, sem
g e g n d i landstjóraembætti í
Pakistan, hefir tekist á hendur
st j órnarf orustuna.
Mófrfallinn
þjóðnýfring lyfja
Að því er dagblaðinu Winni-
peg Free Press nýlega sagðist
frá, tjáist forseti læknafélagsins
í Manitoba, Dr. Eyjólfur John-
son, vera því með öllu mótfall-
inn, að þjóðnýting lyfja verði
hrundið í framkvæmd og vill
hafa frjálsa og óháða læknastétt.
Dr. Eyjólfur stundar lækning-
ar í Selkirk og nýtur hylli al-
mennings.
Þingið sefrfr
Alþingi kom saman til fundar
í gær, og prédikaði séra Jón
Auðuns í dómkirkjunni fyrir
þingsetningu. Síðan var gengið
til þinghúss og setti forseti þing-
ið. Að því búnu tók aldursfor-
seti, Jörundur Brynjólfsson, við
fundarstjórn.
Allmargir þingmenn voru
ekki komnir til Reykjavíkur, og
tveir þingmenn, Eiríkur Einars-
son og Finnur Jónsson, tilkynntu
veikindaforföll. Tekur Sigurður
Ó. Ólafsson sæti á þingi í stað
Eiríks.
Valdimar Björnsson og frú
í Los Angeles.
Þann 19. þ.m. komu saman um
40 manns að hinu nýja og veg-
lega heimili þeirra Olive og
Sumi Swanson að Long Beach
til þess að fagna hinum mætu
hjónum, Valdimar Björnssyni og
konu hans frá Minneapolis. —
Valdimar flutti ra^ðu; kom hann
víða við bæði í gamni og alvöru
og í ljóðum bæði á ensku og ís-
lenzku; en eins og að allir vita
þá er hann prýðilega máli far-
inn, og svo íslenzkur í anda að
til fyrirmyndar er. Og okkur,
sem að höfum dáðst að honum
úr fjarlægð árum saman, þótti
mikið í það varið að fá að heyra
hann tala og sjá hann augliti til
auglitis. Góðar veijingar voru
framreiddar á hinu fullkomna
og gestrisna heimili þeirra Olive
og Sumi Swanson.
HINN 6. október s.l. fór hér
fram hin árlega samkoma til
minningar um fund Vínlands
hins góða og Leif Eiríksson í
Los Angeles Breakfast Club; en
þar komu íslendingar töluvert
við sögu, þar sem að Jóhannes
Newton setti samkomuna, en
hann er formaður nefndar
þeirrar, sem að stendur fyrir
þessum hátíðahöldum. Þarna
munu hafa verið um 2000 manns.
Skemtiskrá var ágæt og dansað
til kl. 2 um nóttina, veitingar
hinar beztu á Skandinava vísu.
Tvær konur voru þar í íslenzk-
um búningum, þær Hlíí Talcott
og Ásta Bæfings. Á meðal gesta
úr fjarlægð var Mrs. Hannes
Pétursson frá Winnipeg.
Skúli G. Bjarnason
Tekin ókveðin
afsfraða
Útanríkisráðuneytið b r e z k a
hefir gefið út svolátandi yfir-
lýsingu vegna deilunnar milli
Breta og Egypta út af Suez-
skurðinum og yfirráðunum yfir
Sudan:
Bretar eru staðráðnir í því, að
að gera allar nauðsynlegar ráð-
stafanir til viðhalds setuliði sínu
á. Suezsvæðinu.
Bretar gangast ekki inn á
neitt það, er breyti til um
stjórnarfarslega afstöðu í Sudan
án þess að ráðgast um slíkt við
íbúa landsins, og heita núverandi
landstjóra, Sir Robert Howe, ein
dregið fylgi.
Slegið hefir í brýnu milli
brezkra og egypzkra liðssveita
öðru hvoru, með mannfalli af
hálfu hinna síðarnefndu. Bretar
hafa á valdi sínu einu brúna,
sem liggur yfir Suezskurð.
Vigfús Guðmunds-
son leggur upp í
hnafrfrferð sína
Vigfús Guðmundsson, hinn.
góðkunni gestgjafi í Hreðavatns-
skála, lagði í gærkveldi upp í
óvenjulegt ferðalag af sextugum
manni. Tók hann sér far með
Goðafossi vestur um haf, þar
sem hann ætlar að heilsa upp á
fornar slóðir í Klettafjöllunum,
en halda síðan ferð sinni áfram
yfir Kyrrahafið til Ástralíu og
koma að vori hingað á æsku-
stöðvarnar í Borgarfirði úr hinni
áttinni endurnærður að aflok-
inni óvenjulegri hnattför.
Vigfús lét þess getið, er hann
kvaddi blaðamenn Tímans í
gærkveldi að ef vel lægi á sér
myndi hann senda bréf til birt-
ingar frá Hawai og Ástralíu og
einhverjum öðrum stöðum hin-
um megin á hnettinum.
Úr borg og bygð
Canadian Life Insurance
Officers samtökin veita 10 verð-
laun árlega, þeim námsmönnum,
sem hæztir eru í Society of
Acturaries prófunum. Að þessu
sinni unnu 5 námsmenn frá
Manitoba-háskóla verðlaun og
var Sigurður A. Helgason, 690
Ebby Str., einn þeirra. Hann
hlaut $100 verðlaun. Mr. Helga-
son er frábær námsmaður. Hann
er nú starfsmaður hjá Great*
West Life Assurance Co. hér í
borg.
☆
Þann 13. þ. m., lézt að heimili
dóttur sinnar, 855 — 9th Street,
Brandon, Man., frú Ragnheiður
Guðmundsdóttir Ólafsson, fædd
í Kollugerði á Skagaströnd í
Húnavatnssýslu 29. ágúst 1873.
Hún fluttist til þessa lands á-
samt manni sínum, Ó. B. Ólafs-
syni og fjölskyldu, er settist að
í Brandon.
Hin látna, sem var hin mæt-
asta kona, lætur eftir sig 10
börn, fimm dætur og fimm sonu;
dæturnar eru Mrs. D. McLean,
Rapid City, Mrs N. Henfrey,
Kenora, Mrs. W. Cochrane, Mrs.
C. Baker, og Mrs. Hodgson í
Brandon, en synirnir eru þessir,
O. V. og G. A.'J Winnipeg , Win-
nipeg, Albert, Iroquois Falls,
Ont., George og Robert í Bran-
don. Maður frú Ragnheiðar lézt
1936. Barnabörnin er 23, en 3
barnabarnabörn.
Útförin fór fram á þriðjudag-
inn frá Brackie útfararstofu, en
jarðsett var í grafreit Ólafsson-
fjölskyldunnar í Brandon.
☆
í fyrri viku komu hingað til
borgar úr höfuðstað íslands þær
ungfrúrnar Svafa Vilbergs og
Erla |Ólafsdóttir; þær komu með
Tröllafossi til New York þann
17. þ. m., og hrepptu ákjósanlegt
ferðaveður yfir hafið.
Ungfrú Svafa hefir komið
hingað áður, en nú átti hún
brýnt erindi, því hinn 12. nóv-
ember giftist hún hér í borg Mr.
Thomasi Júlíus.
Ungfrú Erla á margt frændlið
hér í borginni.
☆
Á sunnudaginn, 7. október,
lézt að heimili sínu í Osland,
B.C. Jónína Jónsson, kona Gísla
Jónssonar. Jónína heitin var 78
ára gömul. Maður hennar og
hún höfðu búið saman í 51 ár og
síðan 1918 í Osland bygðinni.
Auk eiginmanns skilur hún
eftir þrjú börn og fjögur barna-
börn, systir, Mrs. Anna Duplisse,
og bróður Eirík Johnson, bæði í
Selkirk, Man. Börnin eru: —
Kristjana (Mrs. Lealand) Van-
couver, Jón, í Lulu Island, B.C.,
og Valdimar í Osland.
Útförin fór fr^m frá Prince
Rupert 11. okt.
(Hinnar látnu verður nánar
minst síðar).
☆
Um þessar mundir eru stödd
í bænum, Mr. og Mrs. Th. Jones,
Mrs. H. W. Sigurgeirsson og
Mrs. B. W. Benson, öll frá Hecla,
Man. Fiskiveiðar við eyjuna hafa
verið með lélegasta móti í haust.
☆
Fundur i stúkunnni Heklu
næsta mánudagskvöld. Stúk-
unni Skuld boðið. Kaffi á eftir
fundi.
☆
Mrs. M. D. Kristjánsson frá
Lundar, Man., er nýlega alflutt
til sonar síns W. K. Kristjánsson
hér í borg.
☆
Miss Thora Asgeirson er nú
byrjuð að stunda nám hjá fræg-
um kennara í píanóleik, Madame
Alice Gaulthurs, í París á Frakk-
landi.
Ungur maður ferst í flugslysi