Lögberg - 25.10.1951, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25 OKTÓBER, 1951
7
Skáktaflið — uppruni þess og breytingar
SKÁKTAFL er orðin gömul
íþrótt. Menn vita með vissu, að
það var iðkað í Indlandi og
Persíu á 7. öld, og máske fyr.
Það er og hefir altaf verið or-
usta þar sem tveir jafnsterkir
herir eigast við.
Upphaflega var mönnum rað-
að á taflborðið líkt og fylkinga-
skipan var þá í indverskum her.
Hver taflmaður hafði á að skipa
8 fótgönguliðsmönnum og að
baki þeirra voru 8 liðsforingjar,
en að baki þeirra voru'konung-
urinn og ráðgjafi hans og voru
þeir varðir til beggja handa af
fílum, hestum og stríðsvögnum.
Hið merkasta við taflið er að
tilgangurinn er ekki sá að upp-
ræta algerlega her óvinarins,
heldur knýja konunginn til upp-
gjafar. Konungur býður ósigur
þótt hann hafi meira liði á að
skipa en hinn, ef hann kemst í
sjálfheldu. I hvert sinn er kor-
ungur er í hættu, er skák, en
þegar hættan steðjar að á alla
vegu cg hann getur ekki hreyft
sig, þá er mát. Þessi tvö orð,
skák og mát, eru komin úr pers-
nesku, en þar þýðir „shah mat“:
konungurinn er dáinn.
Ýmsar sagnir eru um það
hvernig skáktaflið hafi verið
fundið upp. Ein af þeim er á
þessa leið:
Tveir indverskir prinsar börð-
ust einu sinni til ríkis. Þeir voru
hálfbræður sammæðra. Þeir
hétu Talkland og Gau. Talkland
var herskár og grimmur og hann
hafði gert uppreisn gegn bróður
sínum. En Gau var friðsamur
maður og góðgjarn og hann gaf
út þá skipan, að enginn mætti
vinna bróður sínum geig í or-
ustu. Samt fór nú svo að Talk-
land féll. Her Gaus hafði um-
kringt hann og hann fanst dauð-
ur i valnum.
Móðir þeirra varð ákaflega
reið og hún ásakaði Gau fyrir
að hafa myrt bróður sinn. Sann-
leikurinn var sá, að menn Talk-
lands höfðu drepið hann, en Gau
gat ekki sannað það. Honum
féll mjög þungt að liggja undir
ásökunum móður sinnar, svo að
hann kallaði fyrir sig alla spek-
inga sína og bað þá að finna ein-
hver ráð til þess að sannfæra
móður sína um sakleysi sitt.
Vitringarnir sátu á ráðstefnu
heila nótt og að því loknu gáfu
þeir konungi það ráð, að hann
skyldi láta gera eftirmynd af
vígvelli, þar sem tveir herir
áttust við. Völlurinn skyldi af-
markaður í reita og reitarnir
skyldu sýna hvað hinar ýmsu
herdeildir væru fljótar í ferð-
um. Svo skyldi tálga smámyndir
af konungunum, ráðgjöfum
þeirra, liðsforingjum og öðrum
hermönnum og fylgja þeim á
þessu borði. Að því búnu skyldi
orustan hefjast. Sumar her-
deildirnar sæktu hraðar fram
en aðrar og að lokum kæmi að
því að annar hvor konungurinn
væri umkringdur og í þeirri
herkví biði hann svo bana af
„þreytu og þorsta“.
Þegar taflið hafði verið smíð-
að sýndi Gau það móður sinni,
og hún fékk svo mikinn áhuga
fyrir því, að hún neytti hvorki
svefns né matar og seinast dó
hún yfir taflinu.
Önnur indversk saga um upp-
runa taflsins er sú, að það tákni
sigur hins frjálsa vilja yfir for-
lagatrúnni. Frá ómunatíð höfðu
Indverjar iðkað tafl, sem þeir
nefndu „nard“. Það var leikið
þannig, að menn köstuðu ten-
ingum og eftir þeirri tölu sem
upp kom, máttu þeir leika á
borðinu. Hér réði hendingin eða
forlögin. En svo var það að vitur
Brahmaprestur korn til kon-
ungsins og sagði honum að and-
inn í þessu tafli væri gagnstæð-
ur trúarkenningunum. Konung-
ur félst á þetta og bað hann að
finna upp nýtt tafl þar sem vilji
og gáfur manns gæti notið sín,
tafl sem kendi mönnum hug-
rekki, varfærni, metnað og ráð-
snilli.
Og svo fann Brahmaprestur-
inn upp skáktaflið, sem einmitt
þroskar þessa eiginleika manns-
ins. Góður skákmaður verður að
vera ráðsnjall, varkár og treysta
sjálfum sér. Sá, sem hugsar um
það eitt að drepa alla þá menn,
er hann kemst í færi við í stað-
inn fyrir að gera varnir kon-
ungsins sem traustastar, mun á-
reiðanlega tapa. Hér sannast hið
fornkveðna, að kapp er bezt með
forsjá.
Upphaflega var leikni í tafli
sú, að sýna sem mesta her-
kænsku. Segir því þriðja sagan
um uppruna þess, að það hafi
verið fundið upp af konungi,
sem vildi leggja niður fyrir sér
hvernig bezt væri að beita hin-
um einstöku hersveitum á víg-
velli.
Fjórða sagan segir að konung-
ur nokkur hafi fundið það Mpp
til þess að sýna þegnum sínum
hvernig þeir gæti jafnað allar
deilur sínar á friðsaman hátt.
Þannig herma sögur að skák-
taflið hafi verið fundið upp bæði
til þess að læra af því her-
kænsku og að láta mannvitið
skera úr um deilur.
Á 10. öld barst skáktaflið frá
Arabíu til Spánar og Italíu og
þaðan til Vestur-Evrópu. Varð
það snemma vel metin dægra-
dvöl meðal heldra fólks. Þá var
taflið enn mjög líkt því, sem
það hafði verið í Indlandi,
nema hvað flestum taflmönn-
unum höfðu nú verið gefin ný
nöfn. Eina undantekningin var
nafnið á hróknum, en á ind-
Sjúkrasamlög starfrækt í öllum
hreppum landsins frá 1. október
næstkomandi.
Yfirgnæfandi meirihluti með því
í sveiium að stofna sjúkrasamlög
Fyrsta október næstkomandi
verða allir íslendingar orðn-
ir sjúkratryggðir, en fyrir
þann tíma á að vera búið
að ganga frá stofnun sjúkra-
samlaga í öllum sveitarfélög-
um. Á árinu 1950 voru
sjúkrasamlög komin í öll-
um hreppum landsins, að
undanteknum 61, en þá voru
samþykkt lög, er fyrirskip-
uðu öllum sveitarfélögum að
hafa starfandi sjúkrasamlög.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefir fengið hjá Trygg-
ingarstofnun ríkisins eru það að-
eins 2 eða 5 hreppar, sem enn
hafa ekki gengið frá stofnun
sjúkrasamlaga, en samkvæmt
lögum um sjúkratryggingar ber
öllum sveitarfélögum að hafa
sjúkrasamlög frá 1. október
1951, og eiga þá að vera búin að
innheimta iðgjöld óg vera tilbú-
in að greiða sjúkrakostnað.
Eins og kunnugt er voru
sjúkrasamlög stofnuð samkvæmt
lögum í öllum kaupstöðum
landsins 1936, en í sveitum var
ekki lagaskylda að hafa sjúkra-
samlög. Hins vegar gat hvert
sveitarfélag fyrir sig látið fara
fram atkvæðagreiðslu um stofn-
un sjúkrasamlags, og varð meiri-
hluti atkvæðabærra manna að
greiða því atkvæði til þess að
sjúkrasamlögin yrðu stofnuð. Á
þennan hátt voru stofnuð sjúkra
samlög í aðeins örfáum sveita-
hreppum.
Með lögum frá ?0. desember
1943 var svo öllum sveitarfélög-
um, sem ekki höfðu þegar
sjúkrasamlög, gert að skyldu að
láta fram fara atkvæðagreiðslu
um það, hvort stofna skyldi
sjúkrasamlag í viðkomandi
sveitarfélagi. Við atkvæðagreiðsl
una kom það greinilega í ljós,
að meginþorri fólks í sveitum
óskaði eftir því að sjúkrasamlög
yrðu stofnuð, og var svo komið
um síðustu áramót, þegar lög-
boðið var að öll sveitarfélög
skyldu hafa sjúkrasamlag, að
einungis 61 hreppur á landinu
hafði ekki sjúkrasamlag. Þegar
versku hafði hann heitið „rukh“.
Á Englandi urðu fílarnir að
biskupum, hestarnir að riddur-
um og ráðgjafinn að drottningu.
Það hefði Indverjum aldrei dott-
ið í hug, því að kvenfólk var
ekki í miklum metum þar í
landi. Sýndi þetta því ólíkan
hugsunarhátt vestrænna þjóða.
Og seinna varð svo drottningin
„bezt á borði“, en það var ekki
fyrr en á 15. öld. Fram til þess
höfðu hrókarnir verið sterkustu
mennirnir.
Upprunalega voru skákmenn-
irnir smálíkneski í mannsmynd,
konungur og drottning með kó-
rónu, biskup með mítur o. s. frv.
En þegar skáktaflið breiddist
út og eftirspurn varð mikil, var
farið að renna skákmennina og
síðan hafa ekki verið andlit á
þeim. Eina undantekningin frá
þessu er riddarinn, sem hefir
hestshaus.
Við gangur skáktaflsins hefst
að marki á 16. öld. Áður höfðu
þó ýmsir leiknir skákmenn kom-
ið fram með leiðbeiningar um
heppilegustu byrjunarleika. En
nú kom Spánverjinn Ruy Lopez
de Segura og ritaði skákreglur
og leiðbeiningar um byrjunar-
leika. Það var árið 1561 og varð
þetta grundvallarrit, sem seinni
tíma menn bygðu á. Margt hefir
breytzt síðan og nýjar reglur
komið til sögunnar. Og nú er
gefinn út í heiminum slíkur ara-
grúi af allskonar skákritum, að
ekki verður tölu á komið.
—Lesbók Mbl.
lögin voru sett, voru þó 9 af
þessum sveitafélögum, þegar bú-
in að ákveða að stofna sjúkra-
samlög, og síðan hafa 47 til við-
bótar gengið frá stofnun sam-
laganna.
Nú eru því ekki eftir nema
4—5 hreppar, sem eiga eftir að
stofna sjúkrasamlög en sumir
þeirra eru mjög yfámennir og
hafa leitað fyrir sér um að sam-
einast öðrum sjúkrasamlögum,
en frá þessu verður væntanlega
endanlega gengið fyrir 1. októ-
ber, en þá eiga allir landsmenn
að vera orðir sjúkratryggðir.
—Alþbl., 6. sept.
Minningarorð
Jóhann Bjarni Thorleifson var
fæddur 12. júní 1867 á Reykjum
á Reykjaströnd í Skagafirði.
Faðir hans var Þorleifur Jóns-
son hreppstjóri og sýslunefndar-
maður í mörg ár í Sauðárhrepp,
en móðir hans var Sigríður Þór-
bergsdóttir frá Dúki í Sæmund-
arhlíð. Hann kom að heiman
sumarið 1187. Hann lærði úr-
smíði hjá Guðjóni Thomas og
hafði alla sína tíð eftir það þá
atvinnu og farnaðist vel og var
í miklu áliti fyrir áreiðanleik í
öllum viðskiptum alla sína
verzlunartíð sem var rúmlega
40 ár mest af þeim tíma í York-
ton, Sask. Kona Jóhanns, Guð-
rún Jónsdóttir Bjarnasonar# og
Helgu Sölvadóttur, bæði skag-
firzk, dó 15. nóv 1941 og var
jörðuð í Yorkton þar sem hann
verður jarðaður af Rev. J. Jones,
sem er enskur prestur þar.
Jóhann kom til Betel 9. júlí
1949 og dó 22. ágúst 1951. Hús-
kveðju flutti séra H. S. Sigmar
sama daginn.
Þau hjónin eignuðust tvo
sonu, sem eru á lífi, Dr. W. H.
Thorleifson, læknir í Vancouver,
B.C. og Jóhann O. Thorleifson,
gullsmið í Yorkton, Sask. og
dóttur sem dó 1913.
Jóhann var glaðlyndur að
eðlisfari og skemtinn í sínum
hóp og prúðmenni í allri fram-
komu, en jafnframt alvörumað-
ur og ákveðinn í skoðunum sín-
um og vildi öllum vel. Höfðing-
legur var hann, en samt auð-
mjúkur í framkomu við náunga
sína.
Vinur
Allir íslendingar sjúkratryggðir
Ingibjörg Sveinsson
(1870—1951)
Áusturrísk
skóldkona Sátin
KUNNASTA skáldkona, sem
Austurríkismenn hafa átt á
þesari öld, Paula Preradovic, er
nýlátin. Hún var fædd þann 12.
október 1887, af austurrískum
og króatískum ættum. Eftir hana
hafa komið út fjórar ljóðabæk-
ur og töldu Austurrískismenn
hana mesta ljóðaskáld sitt á síð-
ustu áratugum. Þjóðsöngur sá,
sem þeir viðurkenna nú, er éftir
hana, og má nokkuð marka það,
hversu mikils álits og hylli hún
naut í heimalandi sínu, að er
hún lézt, þann 24. maí síðastlið-
inn, var henni valinn legstaður
í heiðursgrafreit, við hlið Hugo
Wolf, hins heimskunna, austur-
ríska tónskálds, og fór útför
hennar fram á kostnað ríkisins.
Ljóð hennar eru fáguð, þrungin
heitri tilfinningu, sem oftast er
túlkuð með látlausu, en um leið
hnitmiðuðu orðalagi og undir
einföldum, en formföstum brag-
arháttum. Hún var djörf og ein-
beitt í skoðunum; komust naz-
istar brátt að því, að þeir áttu
þar hættulegan og skeleggan
andstæðing, og sat hún í fang-
elsum þeirra síðustu styrjaldar-
árin.
Dr. Metita Urbancic, sem
þekkti skáldkonuna persónu-
lega, hefir snúið einu kvæði
hennar á íslenzku, og fer það
hér á eftir. —
Þú hrausti fuglinn, hjarta mitt,
hve hátt upp ertu floginn?
Þau þauzt svo sæll mót sólarglit
og spenntur var við geðið þitt
um böl og gleði boginn.
Þann 1. maí s.l. andaðist í
Brúarbygðinni í Argyle, Cypress
River P.O., sæmdarkonan Ingi-
björg Sveinsson hnigin að aldri.
Hún var ein af frumherjunum,
kom til Vesturheims 1876. Hún
var fædd í Svartárkoti í Norður-
árdal í Mýrasýslu á íslandi 19-
júlí 1870. Voru foreldrar hennar
Jón Magnússon Nordal og fyrri
kona hans Sigríður Þorvalds-
dóttir. Settist fjölskyldan að í
Mikley í Winnipegvatni og var
þar fyrstu árin, en fluttist til
Argyle 1885, eftir nokkra dvöl
í Winnipeg.
Ingibjörg sál. mun hafa dval-
ist í Winnipeg og unnið þar eins
og títt var um ungar stúlkur á
þeim dögum, þar til hún giftist
Halldóri Hjaltasyni Sveinsson
frá Nauteyri við ísafjarðardjúp,
er vestur kom 1883. Eftir að þau
giftust bjuggu þau nokkur ár í
Winnipeg, en fluttu til Argyle
1899 og stunduðu búskap þar og
farnaðist vel unz Halldór dó á
bezta aldri 22. marz 1921. Hélt
ekkjan áfram búskap með börn-
um sínum, og héldu þau hópinn
og farnaðist vel, eru börnin öll
vel gefin og vel látin. Á lífi eru
fjögur: Hjalti Sigurjón sveitar-
ráðsmaður í Argylesveit, giftur
Guðnýju Hannesdóttur Sigurðs-
sonar; Guðmundur Magnús, fyrr
um sveitarráðsmaður, giftur hér-
lendri konu; Björn Ottó, ógiftur
(eru þeir bræður allir gildir
b æ n d u r í Brúarbygðinni);
Elenora Þorgerða, ógift heima.
Dáin eru: Sigríður og Helgi.
Ingibjörg Sveinsson
Fríkirkjusafnaðar 3. maí að
flestu bygðarfólki viðstöddu.
Séra Eric H. Sigmar jarðsöng
hina látnu. Hér er til grafar
gengin kona, sem var virkilega
ein af frumherjunum og reyndi
allar þrautir frumbyggjalífsins
og naut svo seinna hinna mörgu
gæða, sem fólki voru féll ríku-
lega í skaut á seinni árum. Hún
var kona með heilsteypta skap-
gjörð og hrein í lund og sinni.
Sínum náustu var hún trygg og
ástrík, kjörlandi og þjóðflokki
hollráð og sönn og til sæmdar
langa ævi.
Minning hennar mun lengi lifa
hjá ástvinum og þeim er þekktu
hana.
G. J. Oleson
Byggingin fullgerð, en
vanfar tæki og húsmuni
Æ, fugl minn kær, því kúrir þú
nú kyrrláts trés í toppum?
Með lamaðan væng því lúrir þú,
því lítur döpru auga þú
skjálfandi af kulda í kroppnum?
Þig grunar gildru, er ógnar þér,
og veiðimann á gægjum?
Þú óttast ör, sem óheill ber,
því djúpa sár hans banvænt er,
og dá í dauðans blægjum?
Ó, hjarta, hraustur fuglinn þú;
þér húmi í skal ei leiðast:
Sá sem sveif glaður eins og þú
mót sól og himnablæ í trú
mun valdi engu veiðast!
Meliía Urbancic
Varið var 76*A milljón króna til
kaupa á flutningatækjum.
Á fyrri helmingi yfirstand-
andi árs nam verðmæti inn-
flutningsins til íslands sam
tals 441% milljón króna.
Er það að krónutali miklu
hærri upphæð en dæmi eru til
áður 1 sögu íslenzkrar milliríkja
verzlunar. Hér ber þess þó að
geta, að íslenzka krónan hefir
ekki sama verðgildi og hún
hafði á fyrra helmingi síðasta
árs.
Af þessari upphæð er 76V2
millj. kr. varið fyrir flutninga-
tæki og er það stærsti innflutn-
ingsliðurinn á þessu tímabili.
Mest er keypt af þessu mflutn-
ingatækjum frá Bretlandi, eða
fyrir röskar 43 millj. kr., fyrir
20% millj. kr. frá Noregi, 10
millj. kr. frá Svíþjóð og minna
frá öðrum löndum.
Næst stærsti liðurinn er álna-
vara, garn, vefnaðarmunir og
þess háttar vara, sem flutt er
inn fyrir 66.4 millj. kr. frá ýms-
um löndum.
Eldsneyti, og smurningsolíur
o. þ. h. er flutt inn fyrir 44 millj
kr., korn og kornvörur fyrir
23.7 millj. kr., vélar (undan-
skildar rafmagnsvélar) fyrir kr.
21 millj. kr., tilbúinn áburður
fyrir 16.2 millj. kr. rafmagns-
vélar og áhöld fyrir 16 millj. kr.,
málmvörur hafa verið keyptar
fyrir hátt á 14. millj. kr., pappi,
Ingibjörg sál. var mesta mynd-
arkona ,skörungur sem hús-
freyja, ástrík og skyldurækin
eiginkona og móðir, félagslynd
og þjóðrækin, unni íslenzkri
tungu og menningu, og fylgdist
með því sem var að gjörast með
þjóð vorri. Systkini hennar voru
þauGuðrún, er gift var Guð-
mundi Símonarsyni (W. G.
Simmons) stórbónda í Argyle,
og Magnús J. Nordal, er bjó á
föðurleifð sinni, og bæði fengu
almenningsorð.
Hálfsystkin hennar eru: Sigur-
jón og Þórdís Emilía í Van-
couver, B.C.
Jarðarförin fór fram frá kirkju
pappír og pappírsvörur fyrir 13
millj. kr., kaffi, kakó, te og
kryddvörur fyrir nær 13 millj
kr., ávextir og grænmeti fyrir
röskar 12 millj. kr. og ódýrir
málmar fyrir 12Y2 millj. kr.
Af smærri liðum má geta þess
m. a. að drykkjarvörur hafa ver-
ið fluttar inn fyrir nær 2 millj.
kr. og tóbak og tóbaksvörur fyr-
ir 4.6 millj. kr., lyf og lyfjavörur
voru fluttar inn fyrir 1.9 millj.
kr., ilmolíur, ilmefni og snyrti-
vörur fyrir 2% millj. kr., silfur,
platína, gimsteinar og gull- og
silfurmunir fyrir 320 þús. kr.,
kjöt og kjötvörur fyrir 98 þús.
kr. og mjólkurafurðir, pgg og
hunang fyrir 19 þúsund kr.
Óvísl. hvorl það lekur lil siarfa
í veiur.
Undanfarin misseri hefir
verið í smíðum í Hafnarfirði
mikil bygging, þar sem í
framtíðinni á a ðvera elli-
heimili kaupstaðarins, fæð-
ingardeild, sjúkradeild og
jafnvel heilsuverndarstöð.
Það líður nú senn að því,
að unnt verði að byrja að
nota þessa byggingu, en þó
vafasamt, að það geti orðið
í veiur.
— Þessi bygging stendur sem
kunnugt er á hrauninu upp af
Hörðuvöllum, og er í rauninni
fjórar hæðir, samtals 750 fer-
metrar að stærð, sagði Guð-
mundur Gissurarson bæjarfull-
trúi við tíðindamann Tímans í
gær. Sjálfri er byggingunni nú
að ljúka, en enn vantar tæki
margs konar og húsmuni.
Múrhúðað og málað.
Flokkur manna hefir unnið að
byggingunni í sumar, og hefir
húsið verið múrhúðað að utan,
og tvær efri hæðirnar hafa ver-
ið dúkaðar og málaðar. Verið er
að vinna að niðursetningu hrein-
lætistækja og ganga frá vöskum
og eldhúsi. Lyfta í húsið er
væntanleg innan skamms.
90 vistmenn.
Þegar húsið hefir allt verið
tekið í notkun, eiga að geta ver-
ið þarna um níutíu vistmenn.
Er þess beðið með talsverðri
eftirvæntingu, að sú stund komi
að húsið verði vígt. Hefir húsið
þegar verið all-lengi í smíðum,
en hér er líka um að ræða
myndarlega og fjárfreka fram-
kvæmd. TÍMINN, 13. sept.
—VÍSIR, 20. sept.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sen. fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir tóra
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVIK
Flutningatæki er helzti liður á
innflutningsverzluninni í ór