Lögberg - 22.11.1951, Síða 1
Braut fró Riverton 70 mílur
norður með vatninu
Monarch Construction félagið,
sem myndað var af S. V. Sigurd-
son, frændum hans og Oddi
Ólafsson, Riverton, Man., hefir
unnið ■ að því síðan veturinn
1948—’49 að ryðja braut norður
frá Riverton, gegnum Howard-
ville, með fram Washow Bay,
norður með ströndinni til móts
við Matheson eyjuna. Þetta eru
70 mílur gegnum kargaskóg,
fen og foræði. Vegalengdin
er álíka og frá Netley-læk til
Riverton. Samkvæmt viðtali, er
Winnipeg Tribune átti við S. V.
Sigurdson, sem nú er bæjar-
stjóri í Riverton, telur hann að
jarðvegurinn, sem þessi nýja
braut liggur í gegnum sé eins
góður eins og á svæðinu frá
Netley-læk til Riverton, en það
svæði er eitt af þéttbýlustu bún-
aðarsvæðunum í Manitoba.
Búið er að byggja upp braut-
ina frá Riverton til Beaver
Point, um 40 mílur, og er verið
að undirbúa að mölbera hana.
Kostnaðurinn við þann vegar-
spotta er kominn upp á $50.000
Þaðan liggur vegurinn til Bull
Head, Little Bullhead, Pine
Dock og Dog Head. Fram að
þessu hafa þessir staðir haft
samband við umheiminn með
bátum á sumrin og hundum,
véla-sleðum og snjóbílum
eftir vatninu á vetrin. En þegar
vatnið frýs eins snögglega eins
Þing sameinuðu
þjóðanna
Það, sem markverðast hefir
fram að þessu gerst á ársþingi
sameinuðu þjóðanna í París, er
fólgið í því, að nú hafa verið
teknar til umræðu og yfirvegun-
ar tillögur Trumans forseta um
hugsanlega takmörkun vopna og
eftirlit með hergagnafram-
leiðslu; utanríkisráðherra Banda
ríkjanna, Dean Acheson, fylgdi
málinu úr hlaði með skilmerki-
legri ræðu, þar sem hann lagði
megin áherzlu á það, hve óhjá-
kvæmilegt það væri, að alþjóða-
mál væri rædd af fylztu hrein-
skilni og ekki farið í launkofa
með neitt; vesturveldin hefðu
ekkert óhreint í pokanum og
þar af leiðandi gætu þau óhikað
lagt mál sín fyrir dómstól al-
þjóðaálits án ótta eða undan-
færslu; brýndi hann fyrir Rúss-
um að brjóta odd af oflæti sínu
og sanna friðarvilja sinn í verki;
en hvernig til tekst um slíkt,
verður sennilega fyrst um sinn
álitamál, eftir því sem ráða má
af undirtektum Vishinsky’s fram
að þessu.
Ægileg flóð í ítalíu
. Svo miklir vatnavextir hafa
veirið í Po-ánni síðastliðnar
tvær vikur, að bæir og borgir á
árbökkunum hafa farið í kaf.
Yfir 100 manns hafa týnt lífi
sínu; 200 þúsundir manna eru á
flótta frá heimilum sínum;
margir, sem ekki gátu forðað
sér í tæka tíð látá fyrirberast
uppi á loftum, húsþökum og í
trjátoppum og er verið að reyna
að bjarga þeim þaðan, en rign-
ing, þoka og illviðri hefir mjög
hamlað björgunartilraununum.
Sagt er að þetta sé það ægi-
legasta áfall af völdum náttúru-
afla í Italíu síðan í landskjálft-
unum mil^Lu 1908.
og í haust og bátar komast ekki
hinar áætluðu ferðir með matar-
byrgðir, horfir til vandræða í
þessum byggðum, því talsverður
tími líður þar til ísinn er nógu
traustur til umferðar. Fyrir
þessa ástæðu var byrjað á braut-
inpi 1948, en þá fraus vatnið
líka óvenjulega snemma. Við-
burðirnir í haust munu og hraða
brautargerðinni, og þó hún sé
enn ófullgerð, aðeins skógurinn
ruddur á norður endanum, hefir
verið reynt að notast við hana
síðan vatnið fraus. Fjöldi fiski-
manna, sem ætluðu norður með
bátum komust ekki norður með
veiðarfæri sín og verða að reyna
að komast norður sem fyrst á
hundum, dráttarvélum og snjó-
bílum.
Eftir þessari braut verður
hægt að flytja fisk frá þessum
stöðvum, auk þess er nú verið
að nema lönd með fram braut-
inni, því eins og áður er sagt,
er jarðvegurinn góður, en áður
en hægt er að nota hann verður
að ryðja skóginn og ræsa fram
löndin, eins og gert var í Nýja-
íslandi á landnámstíð, en nú eru
til ólíkt betri tæki til þess.
Þá minnist fréttaritarinn á
brautina frá Fljótsbyggð til
Mikleyjar-byggðar, nú kallaðar
Riverton og Hecla, elztu ís-
lenzku byggðirnar hér í álfu.
Nú er búið að gera veg þvert
yfir eyjuna og frá Riverton
að vatninu að vestan verðu og
frá Riverton austur að vatninu
Nú vantar brúna yfir mjósund-
ið — brúna, sem þetta fólk hefir
dreymt um 1 75 ár. Mikleyingar
hafa átt í sömu vandræðum í 75
ár og þessar litlu nýbyggðir
norður með vatninu, þegar vatn-
ið er að leggja og leysa. Margir
hafa flutt frá eyjunni vegna
þessara samgönguörðugleika, en
Mikley er samt enn stór byggð,
telur um 350 manns. Eftir öll
þessi ár eiga þeir skilið að tengj-
ast meginlandinu.
Hvenær kemur brúin?
Lýkur
meistaraprófi
Thor Thorgrímsson, M.A.
Þann 9. yfirstandandi mánað-
ar lauk Thor Thorgrímsson með
hárri fyrstu einkunn, meistara-
prófi við háskólann í Toronto;
í fyrra útskrifaðist hann sem
Bachelor of Arts frá Manitoba-
háskólanum; hefir hann um hríð
gefið sig við sögu miðaldanna,
en mun nú leggja stund á forn-
norrænar bókmentir; þessi
frækni námsmaður er einn hinna
kunnu og gáfuðu Einarsstaða-
systkina, en foreldrar hans eru
þau séra Adam heitinn Thor-
grímsson og eftirlifandi ekkja,
frú Sigrún Thorgrímsson, sem
búsett er í Winnipeg.
Mr. S. V. Sigurðson
Fyrsti bæjarstjóri
í Riverton
• Þorpið Riverton við íslend-
ingafljót í Nýja-Islandi, sem
lengi gekk undir nafninu Ice-
landic River, hefir nú verið lög-
gilt og öðlast bæjarréttindi;
fyrsti bæjarstjórinn, Mr. S. V.
Sigurðson, var kosinn gagn-
sóknarlaust; hefir hann langa
reynslu í meðferð héraðsmál-
efna; hann er kunnur athafna-
maður og drengskaparmaður í
hvívetna; foreldrar hans voru
hin mikilhæfu hjón, Stefán Sig-
urðsson kaupmaður á Hnausum
og frú Valgerður, sem fyrir
skömmu er látin.
Kínverjar í
Winnipeg neyddir
til fjórútlóta
Níðingshönd kommúnista í
Kína nær yfir 5000 mílur til
Winnipeg.
Á laugardaginn skýrðu bæði
dagblöð borgarinnar frá því, að
Kínverjar í Winnipeg, sem eiga
skyldmenni í Kína, fengju nú
stöðugt bréf frá Kína þess efnis,
að þeir yrðu að senda lausnar-
gjáld fyrir skyldmenni sín, ann-
ars yrðu þau send í fangabúðir
eða tekin af lífi. Hér í borginni
búa um 700 Kínverjar og aðal-
lega eru það kaupmenn, matsölu-
menn og aðrir, er virðast vel-
megandi, sem fá þessi bréf.
Sumir svara ekki bréfunum, en
aðrir senda alla þá peninga, sem
þeir geta náð saman, til þess að
reyna að bjarga fjölskyldum
sínum. Fréttaritarar blaðanna
töluðu við marga þessa menn og
allir eru þeir ótta- og kvíðafullir
yfir afdrifum sinna ' nánustu í
heimalandinu, og allir biðja þeir
að láta ekki nafns síns getið, því
'að kommúnistar muni þá hefna
sín á skyldmennum þeirra.
Þessum kúgunaraðferðum er
beitt við Kínverja, hvar sem
þeir eru búsettir í Canada og
Bandaríkjunum, og nú er verið
að rannsaka þetta mál sunnan
línunnar.
Ný söguleg skóld
saga komín út
Nýkomin er út skáldsagan
„Yngvildur fögurkinn", eft-
S ir Sigurjón Jónsson.
Er þetta tyrra bindi sögunnar,
en efni hennar er sótt í Lax-
dælu. Sigurjón Jónsson hefir
verið allmikilvirkur við rit-
störfin og liggja eftir hann
skáldsögur, smærri sögur, ljóð
og leikrit.
„Yngvildur fögurkinn“ er
snotur bók, 211 bls. að stærð, gef
in út af Iðunnarútgáfunni,
prentuð í Víkingsprenti.
—'VISIR, 12. okt.
Virðuleg útför sérstæðs manns
NAL ætlar að
smíða nýtt
Bergensfjörd
Norsk-Ameríska línan áform-
ar að láta smíða nýtt hafskip,
sem verður 17,000 lestir, og verð-
ur það sennilega smíðað í Bret-
landi.
Á fyrsta farrými verður rúm
fyrir aðeins 100 farþega, en 800
á 2. farrými (tourist class). Lík-
legt er að skip þetta verði nefnt
Bergensfjörð, eftir hafskipi sem
félagið átti og hafði í förum
milli Norðurlanda og New York
1913-1939, og viðkunnugt var.
Hið nýja Bergensfjörð verður
ekki fullgert fyrr en 1955, og
mun eiga að koma í stað Stav-
angerfjörðs, sem hefir verið 33
ár í förum. — Hið nýja skip á að
hafa 20 hnúta hraða, eins og
Oslofjörð, og hafa viðkomu í
Bergen, Stavanger, Kristians-
sand, Kaupmannahöfn og Oslo,
og fara hálfsmánaðarlega til
New York.
Miklu hlýrra
nú en í fyrra
Sá er munur á tíðarfari nú
og í fyrra, að þann 4. októ-
ber í fyrrahaust voru snjóa-
lög þannig á Hellisheiði, að
bifreiðarstjórar kynokuðu
sér við að fara yfir hana.
Bifreiðar, sem þá fóru yfir
heiðina voru hátt á 5. klst. að
brjótast yfir hana, en margar
tóku þann kost heldur að fara
Krýsuvíkurleiðina.
Það sem af er haustinu í haust
hefir ekki gránað í rót á Hellis-
heiði, hvað þá meira.
—VÍSIR, 12. okt.
A. S. Bardal útfararstjóri,
þessi sérstæði höfðingi í sögu
íslendinga vestan hafs, er kom
víst naumast inn fyrir skóladyr
á allri sinni löngu ævi, var til
moldar borinn á laugardaginn
var; eftirminnilega fögur kveðju
mál fóru fram í kirkju Fyrsta
lúterska safnaðar og flutti þau
sóknarpresturinn, séra Valdimar
J. Eylands; þetta var þriðja fjöl-
mennasta, íslenzka útförin, sem
ritstjóri þessa blaðs minnist að
hafa verið viðstaddur, en hinar
voru kveðjuathafnirnar um þá
Thomas H. Johnson dómsmála-
ráðherra og Dr. B. J. Brandson.
Auk fjölda mikils samúðar-
skeyta, er hinni merku ekkju
Mr. Bardals, frú Margréti, bárust
víðsvegar að úr þessu landi, og
kveðju frá íslenzku Góðtempl-
arastúkunum í Winnipeg, voru
lesin í kirkjunni skeyti frá
biskupi íslands, Þjóðræknisfé-
lagi íslands og Stórstúku ís-
lands.
Fjölmennur söngflokkur
blandaðra radda jók mjög á
virðuleik kveðjuathafnarinnar,
en fagran einsöng söng með
Einangraður norður
á vatni
Frá því að Winnipegvatn varð
óvenjulega snemma ófært yfir-
ferðar í haust vegna íslaga, hefir
vitavörðurinn á Georges Island
verið þar með öllu einangraður
að öðru leyti en því, sem flug-
vélar hafa dreift niður til hans
skjólfatnaði og matvælum; mað-
ur þessi er Harold Olson frá
Minnipeg Beach; er síðast frétt-
ist var alt í góðu lagi um ásig-
komulag hans.
flokknum frú Pearl Johnson, en
við hljóðfærið var frú Björg Is-
feld, er æft hafði söngflokkinn;
blómkranzar voru margir og
tilkomúmiklir.
Ritstjóri Lögbergs hafði ætlað,
sér að semja og birta í þessajri
viku dálitla persónuminningu
um Mr. Bardal, en fékk eigi
komið því við vegna marghátt-
aðra anna, en mun gera sér far
um að koma því í verk á næst-
unni.
Kóreumálin
Fréttirnar frá Norður-Kóreu
undanfarna daga hafa valdið
djúpum sársauka vítt um heim.
og þá ekki hvað sízt í Banda-
ríkjunum; en svo er mál með
vexti, að amerískur liðsforingi,
sem jafnframt er lögfræðilegur
ráðunautur amerísku herjanna
í Kóreu, gaf nýverið út yfirlýs-
ingu um það, að kommúnistar í
Norður-Kóreu hefðu myrt svo
þúsundum skipti stríðsfanga
sameinuðu þjóðanna þar í landi
á fátíðan og þrælmannlegan
hátt; fyrst í stað litu ýmsir svo
á, að hér væri um mishermi að
ræða, og var málið falið rann-
sóknarnefnd; nú hefir Ridway
yfirhershöfðingi staðfest þessa
ömurlegu fregn að öðru leyti en
því, að vera megi að tala hinna
myrtu kunni að vera nokkru
lægri en upphaflega var sagt frá.
Viðræðum um vopnahlé mið-
ar enn lítið áfram.
Gullfaxi hefir flogið 300
sinnum til Reykjavíkur
frá útlöndum
Gullfaxi hefir á 3 áitim
flogið vegalengd, sem svar-
ar til þess, að hann hefði
flogið 34 sinnum kringum
hnöttinn.
„Á íslartdi hita menn aðeins mat í
hverum til að skemmta ferðafólki"
íslenzk kona í Bretlandi telur
Breta „gamaldags", en íslend-
inga nýtízkulega.
íslenzk kona, Ingibjörg
Gísladóttir Porter, sem er
gift enskum manni og býr
í Nottingham, mótmælti ný-
lega í blaðinu The Notting-
ham Evening Post ýmsu,
sem sagt hafði verið villandi
um ísland.
Segir blaðið svo frá: „Frú
Ingibjörg Porter, sem býr við
Laurie Avenue nr. 44, Forest
Fields, kom nýlega upp á rit-
stjórnarskrifstofur blaðsins. —
Kvaðst hún hafa lesið frásögn
þess um, að það væri alsiða, að
matur væri soðinn í íslenzkum
hverum, en hún vildi mega upp-
lýsa, að íslendingar væru ný-
tízkulegri en svo. Frú Porter er
þaulkunnug íslandi, enda borin
þar og barnfædd, en fluttist til
Englands, er hún giftist Cyril
Porter árið 1946. Hún tjáði rit-
stjóra blaðsins, að stundum
kæmi það fyrir, að matur væri
soðinn í hverum til þess að
skemmta ferðamönnum. En ís-
lendingar hafa tekið hveravatn-
ið í sína þjónustu með miklu
hagkvæmari hætti. %
„Mér fannst miklu fremur, að
Englendingar væru „gamaldags“
í matargerð, þegar ég kom hing-
að í fyrsta sinn frá íslandi. 1
mörgum byggðarlögum heima á
íslandi, er hveravatnið notað til
hitunar og suðu með nýtízku-
útbúnaði“, mælti frú Porter.
„Miðstöðvarhitun er lang al-
gengust, og í nýjum húsum eru
hvarvetna kerlaugar eða steypi-
böð, en heitt vatn í krönunum.
Rafmagn er í öllum kaupstöð-
um og ráðagerðum um rafmagns
notkun um allt landið miðar vel
áfram. Á sumum sveitabæjum
eru sérstakar aflstöðvar, þar sem
orkan fæst frá fossum 1 grennd-
inni“.
Frú Porter brá upp fjörlegri
og nýtízkulegri mynd af ætt-
landi sínu, og þess vegna vonum
við, að engum detti í hug, að
það sé alsiða á íslandi, að menn
sjóði fisk og kartöflur í tréköss-
um í hverunum. Maður frú
Porter var með brezka flug-
hernum á íslandi styrjaldarárin.
—VISIR, 6. okt.
Þegar Gullfaxi kom frá út-
löndum s.l. miðvikudag, var það
í 300. skipti, sem hann kemur
hingað frá útlöndum. Á þessum
tíma, röskum 3 árum, hefir l»ann
flutt 14,597 farþega milli landa.
Rösklega 181 lest af vörum hef-
ir hann flutt milli landa í þess-
um ferðum og 32 lestir af pósti.
Gullfaxi hefir lent alls 917
sinnum á 41 flugvelli í 20 þjóð-
löndum, í þremur heimsálfum.
Oftast hefir hann lent í
Reykjavík, þar næst í Prest-
wick og Kaupmannahöfn.
—VÍSIR, 20. okt.
Tekur þótt í umræðum um búnaðarmól
Mrs. Andrea Johnson
Umræðum um búnaðarmál
(Farm Forum) er oftast útvarp-
að frá C. B. W. á mánudags-
kvöldum, frá hafi til hafs, og
leiðandi menn og konur, sem
málum eru kunnugust eru valin
til.að ræða þau.
Á mánudagskveldið, 3. des-
ember, kl. 9.30 f^ra fram um-
ræður um bún&ðarmál frá
Toronto yfir C. B. W. útvarps-
kerfið. Mrs. Andrea Johnson frá
Árborg, Man., sem getið hefir
sér ágætan orðstír fyrir þátttöku
sína í ýmsum búnaðarmálasam-
tökum, auk margra annara vel-
ferðarmála í fylkinu, hefir verið
beðin að taka þátt í þessum um-
ræðum. Aðrir, sem taka til
máls, eru ungur bóndi frá
Ontario og svo formaður yfir
kennsludeild fullorðins fólks við
McDonald háskólann í Quebec.
Mrs. Johnson fer flugleiðis til
Toronto með T. C. A. 28. nóvem-
ber.
Uppbófarverð
Viðskiptamálaráðherra sam-
bandsstjórnar, Mr. Howe, hefir
lýst yfir því í þinginu, að í sam-
bandi við hveitiverðið hafi verið
ákveðið að greiða bændum yfir
uppskeruárið 1950—51,1 uppbót-
arverð hveitis, er nemi nálega
29 centum á mæli; ávísanir fyrir
hlutaðeigandi upphæðum verða
sendar bændum fyrir næstkom-
andi jól.