Lögberg - 06.12.1951, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. DESEMBER, 1951
3
Hver verður næsti forseti Bandaríkjanna?
Kosið að ári
A NÆSTA ári eigu að fara fram
forsetakosningar í Bandaríkjun-
um. Þegar er farið að ræðu um
það vestra, hverjir vænlegastir
séu sem forsetaefni. Flokkarnir
hafa ennþá ekki t^kið ákvarðan-
ir um frambjóðendur enda fer
jafnan fram hörð barátta innan
hvers flokks áður en sú ákvörð-
un er tekin.
Fjölmargir stjórnmálamenn úr
báðum stóru flokkunum hafa
verið nefndir í bandarískum blöð
um og tímaritum í sambandi við
forsetakosningarnar og daglega
daglega berast þeim ógrynni
bréfja frá lesendum, þar sem
þeir láta í ljól álit sitt um ýmsa
hugsanlega frambjóðendur.
Eisenhower — Taft
Það kemur fram í bréfum les-
enda í amerískum blöðum, að
flestir þeirra er finna hvöt hjá
sér til að láta til sín heyra í þessu
máli ,virðast vera nokkuð sam-
mála um hver vænlegastur sé til
að leggja Truman að velli, ef
hann gefur kost á sér. Sá maður
er Eisenhower, hershöfðingi.
Verði Eisenhower í kjöri þ^cir
sennilegast að það verði fyrir re-
publikana. Ekki er þó vitað, að
hershöfðinginn hafi enn sem kom
ið er gefið ádrátt um að verða í
framboði fyrir flokkinn, en hins
vegar hefur öldungadeildarmað-
urinn Robert A. Taft, nýlega lýst
því yfir á blaðamannafundi í
Washington, að hann muni leit-
ast við að fá sig tilnefndan innan
ílokks republikana sem forseta-
efni.
Við það tækifæri gaf Taft yfir-
lýsingu þar sem hann gerir grein
fyrir stefnu sinni í aðalatríðum
og ástæðunum til þess að hann
telur sig sigurstranglegan fram-
bjóðanda fyrir republikana.
Taft sigurviss
Taft segir: „Ég hef tekið þessa
ákvörðun, sökum þess að ég er
sannfærður um að meirihluti re-
publikana um gjörvallt landið er
því eindregið fylgjandi að ég
verði í kjöri fyrir flokkinn --“
„Ég hef lagt ríka áherslu á, að
republikanar leggi fram jákvæða
stefnuskrá í kosningabaráttunni,
sem byggist á þeim grundvallar-
reglum, sem republikanar hafa
barist fyrir varðandi stjórn land-
sins, áætlun um' framfarir í
krafti einstaklingsfrelsis, aukna
sjálfstjórn í félagsmálum og efna
hagslegt frelsi------“
Taft leggur áherslu á öfluga
baráttu gegn útbreiðslu kommún
■ ismans í heiminum og/vigbúnað
Vestur-Evrópu til að löndin þar
geti varið sig sjálf gegn rúss-
nesskri árás.
„Ég gef kost á mér,“ sagði Taft,
„sökum þess að ég tel, að mér sé
unt að halda uppi þeirri einu bar-
áttuaðferð, sem getur leitt til
sigurs fyrir republikanan.” Taft
kveðst gera sér fulla grein fyrir
örðugleikum fólksins í baráttu
gegn þeim samtökum, sem styrkt
séu með fé skatt greiðenda. „Ég
er sannfærður um að meirihluti
bandarísku þjóðarináar trúir á
grundvallarstefnumál republik-
ana. Ég er því sannfærður um,
að ég verði tilnefndur og kjör-
inn.“
Misjafnar undirtektir
Ákvörðun Tafts hefur fengið
misjafnar undirtektir bæði með-
al ýmissa leiðtoga RepubliJkana-
iiokksins og þjóðarinnar, en flest
ir telja, sem kunnugir eru þess-
um málum, að Taft hafi mikla
möguleika til að verða tilnefnd-
ur af flokknum, en ekki að sama
skapi likurnar með sér til að ná
kosningu í forsetastólinn. Hins-
vegar hallast sömu menn að því,
að Eisenhower, hershöfðingi,
hafi minni möguleika til að ná
samþykki innan flokksins, en
meiri möguleika til sigurs hjá
kjósendum.
Hoffman
Vitað er að ýmsir af helstu
leiðtogum republikana eru ein-
dregnir stuðningsmenn Eisen-
howers og telja hann sigurstrang
legasta forsetaefni, sem flokkur-
mn gæti boðið fram, einkanlega
sökum þess hversu vinsæll hann
er hjá alþýðu manna. Aðrir, sem
viðurkenna að vísu vinsældir
Eisenhowers og mannkosti hans,
hafa þó fundið það honum til
foráttu að hann sé hermaður og
telja það hættulegt að áhrifa her-
sins gæti meira en góðu ' hófi
gegnir í stjórn Bandaríkjanna.
Þessir menn, sem hvorki telja
sig geta stutt Taft eða Eisenhow-
er eru að miklu leyti óráðnir og
þykir sennilegt með tilliti til þes^
að sá hópur er býsna fjölmennur,
að enn eigi eftir að koma fram sá
frámþjóðandi, sem eining verður
að lokum um innan flokksins.
Það síðasta sem fram hefur kom-
ið í því efni er nafn Paul Hoff-
mans, sem kunnur er m. a. sem
framkvæmdastjóri Marshall-að-
stoðarinnar svonefndu.
Vitað er að störf hans á sviði
efnahagsmála hafa aflað honum
mikils trausts og þykir honum
hafa farist vel úr hendi það á-
byrgðarstarf, sem honum var
falið í sambandi við Marshall-
hjálpina, enda mun enginn hafa
orðið til að gagnrýna þau störf
hans. j
Hvað sem úr verður varðandi
Hoffman, þá er það ljóst, að nafn
hans hefur verið nefnt í þessu
sambandi af ábyrgum aðilum en
þó er það svo nýlega, að þjóðin
hefur enn ekki haft tækifæri til
að íhuga mál hans til hlítar.
Ýmis blöð í Bandarfkjunum gera
nú sitt besta til að vekja athygli
á Hoffman og möguleikum hans
við væntanlegar forsetakosning-
ar. Verður ekki annað ráðið af
ummælum, en að full alvara sé á
bak við uppástunguna um Hoff-
man.
Dewey styður Eisenhower
Sumir af helstu leiðtogum ré-
publikana hafa látið í ljós litla
hrifningu varðandi ákvörðun
Tafts, að leita eftir tilnefningu
flokksins.
Meðal þeirra, sem styða fram-
boð Eisenhowers er Thomas
Dewey, ríkisstjóri í New York
ríki. — Lét hann þau orð falla,
er honum barst fregnir um á-
kvörðun Tafts, að hún væri at-
hyglisverð, en bætti við, að af-
staða sín í kosningunum væri
þegar kunn, þ. e. að hann mundi
styðja framboð Eisenhowers.
Earl Warren, ríkisstjóri í Cali-
forniu-ríki, sagði aðspurður, að
ákvörðun Tafts kæmi ekki á ó-
vart, annað vildi hann ekki láta
uppi um álit sitt. Sjálfur hefur
Warren verið nefndur í sam-
bandi við forsetakjörið.
Þegar þetta er ritað hafði Mac-
Arthur, fyrverandi yfirhershöfð-
ingi, en ekki tjáð sig um framboð
Tafts, en lýst því yfir, að hann
mundi flytja ræða á næstunni
þar sem vikið yrði að þessu máli.
MacArthur hefur sem kunnugt
er um langt skeið átt miklu fylgi
afi fagna sem forsetaefni, en að
undanförnu virðist þó sem tals-
mönnum hans hafi fækkað eitt-
hvað, og áhuginn dofnað fyrir
framboði hans.
Ýmsir vilja skipti
Um framboð af hálfu demó-
krata hefur minna verið ritað, en
vitað er að ýmsir málsmetandi
áhrifamenn í Bandaríkjunum,
sem ekki hafa tekið beina af-
stöðu méð eða móti hinum tveim
flokkum, sem allsráðandi eru í
bándarísku stjórnamálalífi, hafa
látið í ljós þá skoðun, að tími sé
til kominn að stjórnaforustan
flytjist úr höndum demókrata,
þar sem óhepjpilegt sé fyrir
stjórnmálalíf landsins, að sami
flokkur fari með völd samfleytt
svo lengi sem demókratar hafa
setið að völdum. — Tími sé kom-
inn til að „hreinsla til“ eins og
það er orðað, í stjórnarbákninu* í
Washington.
Svo margt er nú skrafað í
Bandaríkjunum um væntanlegar
forsetakosningar, að erfitt er að
henda reiður á, hvað verður ofan
á í vali frambjóðanda, en eftir-
væntingin er oft fullt eins mikil
við þær kosningar, sem fram
fara inan flokkanna um fram-
bjóðandann eins og við sjálfur
forsetakosningarnar.
— MBL. 3. nóv.
Viðgerðarstöð fyrir mannfólkið er ekki síður nauðsynleg
en fyrir vélar
— Með aukinni vélanotkun í
sveitum landsins er það talið
nauðsynlegt, að koma upp véla-
viðgerðarstöðvum í hverju hér-
aði. Menn skyldu ætla að ekki
væri síður þörf á viðgerðarstöð
fyrir fólkið sjálft. Enda er naum-
ast hægt að ætlast til þess, að
duglegir og vel menntaðir lækn-
ar fáist í sveitahéröðin, ef þeim
er það aðeins ætlað að vera sem
nokkurskonar póstafgreiðslu-
menn, til að senda sjúklinga í
flugvélum til Reykjavíkur eða
til fjórðungsspítalanna, þegar
þeir kunna að rísa upp.
Húnvetningar áhugsamir
Á þessa leið komsj; Páll Kolka
að orði við Morgunblaðið í gær.
— Hann er kominn hingað til
Reykjavíkur ásamt tveim öðrum
Húnvétningum, Guðmundi Jón-
assyni, bónda að Ási í Vatnsdal
og Hafsteini Péturssyni á Gunn-
steinsstöðum. Erindi þeirra er að
bera fram tilmæli héraðsbúa til
Alþingis um, að það leggi fram
það fé í sjúkrahús á Blönduósi,
sem gert er ráð fyrir í lögum, að
ríkissjéður leggi til sjúkrahúsa
og læknisbústaða úti um land.
Mikill áhugi er á þessum fram-
kvæmdum í Húnavatnssýslu. —
Undirbúningsnefnd er þar starf-
andi, og er ég formaður hennar,
segir Kolka. En í nefndinni eru
fulltrúar frá sýslunefnd frá kven
félagssambandi héraðsins og ung
mennafélagasambandi sýslunnar.
|
Akveðið að hyrja í haust
Nokkur hundruð þúsund krón-
ur hafa félagasamtök þessi safn-
að í byggingarsjóð. Til merkis
um áhugann, sem ríkir í hérað-
inu fyrir þessu máli er rétt að
geta þess, að tveir bændur hafa
gefið sínar 10 þúsundirnar hvor,
en einn 12 þús. í byggingar sjóð-
inn. En framkvæmdir hafa hing-
að til strandað á því, að fjarfest-
ingarleyfi hefir ekki fengist.
Nú er ákveðið að hefja undir-
búning verksins, með því að
grafa fyrir grunni hússins í
haust. Er því valinn staður á túni
sunnan Blöndu, rétt ofan við
Blöndubrú.
30 sjúkrarúm
— Og hvernig á fyrirkomulag-
ið að vera?
— I ferð minni vestur um haf
hafðr ég tækifæri til þess að
kynna mér, hvernig þessum mál
um er fyrirkomið þar. Er stefn-
an sú, að þrátt fyrir ágæta spít-
ala og lækningamiðstöðvar í
borgunum, er nú unnið að því að
koma upp smá sjúkrahúsum í
minni bæjum og sveitaþorpum,
svo hægt sé að veita fólki þar
skjóta læknishjálp, er á þarf að
halda.
Þessi sjúkrahús er líka notuð
sem fæðingarstofnanir.
Þetta sjúkrahús á að hafa 30
sjúkrarúm, enda verður gert ráð
fyrir því að létta megi hjúkrun
af heimilum fyrir örvasa gamal-
menni, en hún er nú víða mikil
byrði á fámennum sveitaheimil-
um. En stofnanir ekki fyrir í
landinu, sem geta tekið að sér
slíka hjúkrun vegna plássleysis.
Kostnaður c milljónir
Þarna á líka að verða heilsu-
verndastöð fyrir héraðið og læk-
isbústaður. Uppdrættir liggja að
sjálfsögðu fyrir og kostnaðarætl-
un. Er talið að byggingin muni
kosta allt að þrem milljónum
króna.
—Rekstrarkostnaður á sjúkra-
húsi af þessari stærð á ekki að
vera að tiltölu við notin meiri en
á stærri sjúkrahúsum, sem neinu
neinur. Stærri sjúkrahúsum er
alltaf skipt í hjúkrunardeildir,
„stationir“, sem hver hefur álíka
mikinn fjölda sjúkunga til um-
sjar. En þetta sjúkrahús verður
álíka stórt og ein „station“ í
stærri sjúkrahúsum.
—Við Húnvetningar , álítum
það alveg nauðsynlegan lið í upp
byggingu sveitanna að koma upp
slíkum héraðsspítölum, þar sem
skilyrði eru til þess vegna þétt-
bylis og samgangna.
—Eftir reynslu minni í þessum
efnum, til ég að árlega megi gera
íáð fýrir að tveir héraðsbúar af
hverjum þúsund eigi yfir sér
bráðah bana af völdum sjúk-
dóma, sem eingöngu er hægt að
ráða bót á með tafarlausri skurð-
læknisaðgerð. Sjúklingarnir
þurfa þá að komast á sjúkrahús
innan nokkurra klukkustunda,
eða í hæsta lagi innan þriggja
sólarhringa eftir að þeir veikjast.
—Á þeim 17 árum, sem ég hef
verið héraðslæknir í Húnavatns-
sýslu, hafa yfir 70 slík sjúkdóms-
tilfelli komið fyrir í Blöndu ós-
héraði einu.
Samgöngu á vetrum og veðr-
átta eru þannig, að útilokað er að
koma slíkum sjúklingum t i 1
Reykjavíkur eða Akureyrar, í
flugvél. Y s. 1. sumri leið t. d.
einu sinna vika svo ekkert flug-
samband var til Akureyrar.
Ég tel að alls á landinu komi
fyrir 300 slík sjúkdómstilfelli á
ári. Er það helmingi fleiri en
koma fyrir af hverskonar slys-
um.
Fullkomið sjúkrahúsakerfi er
nauðsynleg ráðstöfun. Og þá er
þess að gæta, að sylsahættan í
daglegu lífi almennings hlýtur
að fara mjög vaxandi í sveitun-
um vegna hins stórujn aukna
vélakosts, sem notaður er við
dagleg störf, segir Kolka.
— MBL. 14 okt.
Fornminjafræðingur: — Þessi
vasi er 2000 ára gamall. Þér verð
ið að fara varlega með hann,
þegar þér farið með hann út í
bílinn.
Flutningsmaðurinn: — Alveg
sjálfsagt. Ég skal fara eins var-
lega með hann og væri hann
nýr!
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMU N DSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK
Business and Professional Cards
PHONE 724 944
Dr. S. J. Jóhannesson
SUTTE 6—652 HO.ME ST.
Viðtalstími 3—5 eftir hádegi
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ut.
vega peningalán og elúsábyrgð,
bifreiðaábyrgð o. s. frv.
Phone 927 538
SARGENT TAXI
PHONE 204 845
PHONE 722 401
FOR QUICK, RELIABLE
SERVICE
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office Hours 2.30 - 6 p.m.
Phones Office 26 — Res. 230
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOimgar
209 BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Phone 928 291
CANADÍAN FISH
. PRODUCERS, LTD.
*
J. H. PAGE, Managing Directcr
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
HAGBORG FVEL/Zæ
PHOME 2IS3I J--
ÍUU«lillL»aitllWIMW
Office Phone
924 762
Res. Phone
726 115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
PUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Stofnað 1894
Simi 27 324
Phone 23 996 700 Notre Dame Ave.
Opposite Maternity Pavillion,
General Hospital.
Nell’s Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson
Res. Phone 27 482
Office 933 587 Res. 444 389
THORARINSON &
APPLEBY
BARRISTERS and SOLICITORS
4th Floor — Crown Trust Bldg.
364 Main Street
WINNIPEG CANADA
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaelnlngar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
við, Ijeldur hita frá að rjúka út
meíS reyknum.—Skrifið, stmið til
KELLY SVEINSSON
625 Wall Street Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Símar: 33 744---34 431
DR. H. W. TWEED
Tannlœknir
508 TORONTO GENERAL TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 926 952 WINNIPEG
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smiih St. Winnipeg
PHONE 9^4 624
Phone 21101
ESTIMATES
FREE
J. M. IN6IMUNDS0N
Asphalt Roofs and Insulated
Slding — Repairs
Country Orders Atteuded To
632 Slmcoe St. Winnipeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
51 Firsl Avenue '
Ný útfararstofa með þeim full-
komnasta útbúnaði, sem völ er
á, annast virðulega um útfarir,
selur líkkistur, minnisvarða og
legsteina.
Alan Couch. Funeral Director
Phone—Business 32
Residence 59
DR. ROBERT BLACK
Scrfrœöingur í augna, eyrna, nef
og hálssjúkdnmum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 923 815
Hsimaslmi 403 794
447 Portage Ave.
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Nettino
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
Phone 928 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage will be appreciated
Minnist
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan, Winnlpeg
PHONE 926 441
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephonpe 202 398
Branch
Store at
123
TENTH ST.
8RAN00N
Ph. 926 885
í Jóla- og nyársgjöfum yðar.
GLEÐILEG JÓL!
PHONE 927 025
H. J. H. Palmason, C.A.
H. J. PALMASON & CO.
Chartered Accoontants
505 Confederation Life Bldg.
WINNIPEG MANITOBA
PARKER, PARKER &
KRISTJANSSON
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, K.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristjansson
500 Canadian Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 923 561
Rovatzos Flower Shop
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
Bus. Phone 27 989—Rcs. Phone 36 151
Our Specialties:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mlss 4. Christie, Proprletress
Formerly with Robinson & Co.
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT BLK, Simi 925 227