Lögberg - 29.05.1952, Blaðsíða 1

Lögberg - 29.05.1952, Blaðsíða 1
Þrjú forsetaefni verða í kjöri 29. júní í sumar Ásgeir Ásgeirsson, séra Bjarni Jónsson og Gísli Sveinsson Framboð til forseiakjörsins verða að vera komin, form- lega, 24. maí Fullvíst var í gærkveldi um þrjú forsetaefni, sem í kjöri verða 29. júní íi sumar, er hinn nýi forseti íslands verður kos- inn: Ásgeir Ásgeirsson, séra Bjarni Jónsson og Gísli Sveins- son. Standa að framboði Ásgeirs kjósendur úr öllum lýðræðis- flokkunum, að framboði séra Fyrsta Sumarmót Fróns Eins og sjá má af auglýsing- unni í þessu blaði verður engum þeim í kot vísað, sem sækir sumarmótið næsta mánudag, 2. júní n.k. Þess var áður minst að séra V. J. Eylands myndi flytja ræðu og munu flestir, sem dóm- bærir eru á þá hluti, fúslega viðurkenna, að hann eigi fáa sína líka sem ræðumaður. Þá þarf ekki að kynna Mrs. Pearl Johnson, sem okkur er að góðu kunn fyrir söng sinn í lútersku kirkjunni hér í borg, svo að maður gleymi ekki útvarpinu, sem flutt hefir rödd hennar til fjarlægustu landa á '“Praiiie Schooner”, sem fróðir menn telja vinsælasta program sem C.B.C. hefir útlandinu að bjóða. Enn annað stendur þó til boða, sem sé það, að okkur hefir heppnast að fá mann til þess að kveða rímur. Við, sem fædd er- um á íslandi, munum hvað mikil ánægja það var að heyra rímur vel kveðnar. Hinir, sem aldrei hafa heyrt þær kveðnar í nokk- urri mynd, ættu ekki síður að hafa gaman af þessu. Nú ætlar einn af ágætustu kvæðamönn- um okkar hér vestra, Tími Böðvarsson frá Árborg, að kveða fyrir okkur nokkur stef. Þeim, sem röddinni beita, hafa þegar verið gerð nokkur skil, en til eru þeir, sem á aðra strengi slá og má sízt gera þeim lægra undir höfði. Harold Jónasson, sem kominn er af frægum músiköntum í landi hér og þegar hefir aflað sér mikilla vinsælda, hefir lofast til að spila fyrir okkur á cello. Hann hefir einu sinni áður spilað fyrir okkur á þetta hljómfagra hljóðfæri öll- um til ánægju. Enn er þess að minnast að Próf. F. Guðmundsson tók sig til með það að biðja nokkra íslend- inga að heiman, sem hér eru vel þekktir, að flytja stuttar ræður á hljómplötur um ýms efni, sem við Vestur-íslendingar látum okkur nokkru skipta. Tvær eða þrjár af þessum hljómplötum verða að líkindum spilaðar á Sumarmótinu. Minnist þess, að þetta verður að líkindum síðasta íslenzka samkoman á þessu vori í Win- nipeg-borg og gleymið ekki að aðgangur verður ekki nema 50 cent. Samkoman verður haldin í G.T.-húsinu á mánudaginn, 2. júní n.k. H. Thorgrímsson, ritari Fróns. Bjarna miðstjórnir stjórnar- flokkanna, og að framboði Gísla samtök, sem kalla sig frjáls samtök kjósenda. Ekkert þessara framboða hef- ir þó verið lagt fram formlega enn, enda framboðsfrestur ekki útrunninn fyrr en 24. maí. En þá verða öll framboð til forseta- kjörsins að vera komin fram á- samt skriflegum meðmælum frá 1500—300 kjósendum, sem verða að vera úr öllum fjórðungum landsins, tiltekin lágmarkstala úr hverjum. Kunnugt er að söfnun með- mælenda með framboðúm Ás- geirs Ásgeirssonar og Gísla Sveinssonar er þegar hafin, en framboð séra Bjarna Jónssonar mun ekki hafa verið ráðið fyrr en 1 §ær' —Alþbl., 10. maí Aukakosningar til sambandsþings Síðastliðinn mánudag fóru fram í sex kjördæmum austan lands aukakosningar til sam- bandsþings og lauk þeim á þann veg, að íhaldsflokkurinn vann fjögur þingsæti, en Liberalar tvö; fjögur kjördæmanna voru í Ontario, eitt í New Brunswick og eitt í Quebecfylki. Mr. Drew lét mikið af sigri flokks síns og var í sjöunda himni eftir að hljfSi ært .• að um leikslokin. Á leið til mikils frama Dr. Sveinbjörn S. Björnson Læknir sá hinn efnilegi, sem hér um getur, útskrifaðist af Manitobaháskólanum 1946 og gegndi næstu fjögur árin á eftir læknisembætti að Ashern, Man. Að þeim tíma liðnum, tók hann að leggja fyrir sig sérfræðigrein, réttarfarslega læknisfræði (For- ensic Medicine), og vann eitt ár á rannsóknarstofu spítalans í Regina, Sask. Því næst hlaut Dr. Sveinbjörn styrk til frekara náms að New Britain í Connecti- cut ríki, en hefir nú verið veitt- ur þrjú þúsund dollara styrkur til framhaldsnáms við Harvard- háskóla. Dr. Sveinbjörn er sonur hinna góðkunnu hjóna Dr. Sveins E. Björnsonar skálds og frú Marju Björnson, sem nú eru búsett í Miniota, Man. Hann er kvæntur Helgu, dóttur S. V. Sigurðsson- ar, hins mikla athafnamanns í .Riverton, og frú Kristrúnar Sigurðsson. Þau Dr. Sveinbjörn og frú Helga eiga tvö mann- vænleg börn. Mr. Leifur Hallgrimson lög- fræðinemi við Manitobaháskóla fór austur til New York síðast- liðna viku og mun dvelja þar í viku. Flugpóstur til Hecla Miss Oddný Eiríka Bjarnason Lýkur prófi í hjúkrunarfræði Þessi unga stúlka, sem fædd er í Churchbridge, Sask., 29. marz 1929, hefir nýlokið með á- gætum vitnisburði prófi í hjúkr- unarfræði við Winnipeg General Hospital. Foreldrar hennar eru þau Magnús Bjarnason póst- meistari í Churchbridge og frú Jónína Bjarnason. Amma henn- ar í föðurætt hét Oddný, sem numið hafði hjúkrunarfræði í Danmörku og gegndi' við mik- inn og ágætan orðstír margvís- legum hjúkrunarstörfum meðal íslendinga á frumbýlingsárum þeirra í Churchbridge og grend. Séra Harald S. Sigmar sókn- arprestur á Gimli, gekk nýverið undir all-alvarlegan uppskurð á Almenna sjúkrahúsinu í Winr.'** peg, en er nú á góðunr-batavegi að því er síðast fréttist. Séra Harald er frábærlega vinsæll maður, og streyma því til hans víðsvegar hlýjar óskir um fulla heilsubót. ☆ Séra Harald Sigmar fermdi 16 ungmenni í lútersku kirkjunni á Gimli sunnudaginn 18. maí. Þau eru þessi: Sharon Olson Delores Bolin Rosalie Thorsteinson Wanda Magnússon Evelyn Isfeld Valdine Geirholm Hulda Bjarnason Anna Johnson Dorothy Thorkelson Edward Stevens Harold Bjarnason Clarence Stevens Franklin Scribner Carl Thorsteinson Kenny Hjörleifson Billy Valgardson. ☆ Te-samkomur þær, er Sam- bands kvenfélagið efndi til á miðvikudaginn síðastliðna viku voru vel sóttar, sérstaklega um kveldið, og var ánægjulegt að hlusta á Mrs. S. E. Björnsson segja frá ferðalagi þeirra hjóna til íslands; varð hún mjög hrifin af heimsókninni og hinum höfð- inglegu viðtökum, er þau nutu þar. íslenzku munirnir, sem hún sýndi, eru mjög fallegir. Dregið var um þrjá muni og hlaut Murray Johnson, Oak Point, armband úr gullnu víra- virki; Miss S. Hjartarson, Gimli, hlaut ofinn dúk og Mrs. E. Eyjólfsson útsaumaða dúka. Samkomurnar voru haldnar til arðs fyrir Hallveigarstaða- sjóðinn. Séra Friðrik A. Friðriksson á- varpaði samkomugestina og flutti þeim kveðjur frá ættjörð- inni. ☆ Mrs. Geir Thorgeirsson og systir hennar, Lena Gudmund- son, brugðu sér suður til Fargo, N. Dakota um helgina. Úr borg og bygð Veitið athygli auglýsingunni um skemtisamkomu Þjóðrækn- isfélagsins á þriðjudagskveldið í Fyrstu lútersku kirkju; er þar. um óvenjulega góða skemtun að ræða. Hmn kærkomni gestur frá íslandi, séra Friðrik A. Friðriksson, flytur ræðu; Mrs. Elma Gíslason hin kunna söng- kona skemtir með söng. Dorothy Mae Jónasson, 16 ára, dóttir Mr. og Mrs. S. O. Jónasson 177 Waverley Str., byrjaði snemma að leika á fiðlu; hún lék í fyrra fyrir Mr. Eli Spivak, frá To- ronto Conservatory of Music og fanst honum svo mikið til um hæfileika hennar, að hann veitti henni styrk til að stunda nám við hljómlistarskólann og hefir hún verið þar í ár, en kemur nú heim um helgina. Oscar Sigvaldason er ungur piltur frá Árborg, sem hefir oftar en einu sinni hlotið verðlaun í samkepni í framsögn íslenzkra ljóða. — Fleira verður til skemt- unar og fróðleiks á samkomunni. ☆ Síðastliðinn mánudag, 26. maí, barst sú fregn hingað, að Mar- grét Sigfússon, ekkja Sigurðar sál. Sigfússonar á Oak View, hefði dáið þá um morguninn. Margrét var fædd á Hvammi í Svartárdal í Húnavatnssýslu og var 89 ára að aldri. Fæðingar- dagur hennar var 2. júlí, 1862. Faðir hennar var Illugi sonur Jónasar frá Gili í Svartárdal, Einarssonar af Skeggstaðaætt og konu. hans Guðrúnar Illuga- dottur Gíslasonar frá Holti í Svínadal í Húnavatnssýslu. — Móðir Margrétar var Ingibjörg dóttir Ólafs Björnssonar að Auð- óífsstöðum í Langadal og konu hans Margrétar Snæbjörns- dóttur prests í Grímstungu, Halldórssonar biskups á Hólum í Hjaltadal. Árið 1899 giftist Margrét Sigurði Sigfússyni og aldamóta- árið fluttu þau vestur um haf, og eftir stutta dvöl í Westbourne settust þau að á Oak View, þar sem Sigurður nam land og bjó til dauðadags. Kveðju- og minningarathöfn fer fram í kirkjunni á Vogar, fimtudaginn 29. maí. Séra Philip M. Pétursson jarðsyngur. ☆ Mr. Jóhann Johnson, sonur þeirra Mr. og Mrs. J. B. Johnson, Gimli, Man., útskrifaðist nýlega í dýrafræði við Guelph háskól- ann. Hann stundaði nám í eitt ár við Manitoba-háskólann áður en hann gekk í herinn, og tvö ár við sama skóla eftir að hann fékk lausn frá herþjónustu, en lauk síðan námi sínu við ofan- greindan háskóla. ☆ Dr. S. O. Thompson, þing- maður Gimlikjördæmis, var staddur í borginni í vikunni, sem leið. Á þriðjudaginn 3. maí hefst póstflutningur á flugvél frá Riverton til Hecla og Manigo- togan austan við Winnipegvatn; Riverton Airways hefir þetta starf með höndum og flytur póst til þessara staða á þriðjudögum og föstudögum. Rúm er í flug- véhnni fyrir nokkra farþega.- Ekki telst þetta til stórvið- burða, en þeim, er þarna þekkja til, finst það skýr smámynd af þeim stórfeldu breytingum, er átt hafa sér stað í samgöngu- málum víðast hvar um heim síðustu áratugina. Miðaldra fólk í Mikley og eldra man enn glöggt þegar pósturinn bar bréfa og blaðapokann á bakinu í gegnum mýrar og for þvert yfir eyjuna og reri þaðan á flat- botnu til Islendingafljóts — en á vetrum voru þessar 24 mílur farnar á sleða, er 5 eða 6 hundar drógu. Eins og nærri má geta voru þetta afar erfið ferðalög, sérstaklega á sumrin og ekki léttist á póstinum þegar Eaton's bögglarnir komu til sögunnar; þrátt fyrir þetta fanst þeim, er biðu með óþreyju eftir hinum vikulegu bréfa- og blaðasending- um, að póstinum væri ekki nein vorkunn að skila af sér á lög- ákveðnum tíma. Menn kölluðu ekki alt ömmu sína í þá daga. Ekki voru þessar ierðir hættu- lausar; árið 1910, er pósturinn var að fara eftir vatninu ný- lögðu á hundalest, brast ísinn og hann drukknaði; annar póst- ur fórst, er hann var að sigla á smáfleytu áleiðis til Fljótsins. — Árið 1915 var byrjað að flytja póstinn á mótorbátum, en á vetrum á hestum og nokkru síðar fékst póstur fluttur tvisvar Kjörinn heiðursforseti Paul Bardal, M.L.A. Á nýafstöðnum ársfundi fé- lags útfararstjóra í Manitoba- fylki, var Paul Bardal fylkis- þingmaður kjörinn heiðursfor- seti félagsins; er hann hvers konar sæmdar maklegur sakir mannkosta sinna. í viku og voru þetta miklar um- bætur. Á síðustu árum hefir hann verið fluttur á Bombadiers á vetrum. En ávalt hefir verið erfitt að komast á milli þegar vatnið er að leggja og leysa, en með þessari nýju ráðstöfun er nú að fullu úr þessu bætt. Flugferðin stendur yfir í tíu til tólf mínútur. Virðuleg athöfn Síðastliðið föstudagskvöld fór fram í þinghúsi Manitobafylkis fjölsótt og virðuleg athöfn, helg- uð Canadian Citizenship Day, hinum canadiska þegnréttinda- degi; er hér um alþjóðarsamtök að ræða, er sambandsstjórn stofn aði til, og á W. J. Lindal dómari sæti í framkvæmdarnefndinni og situr tíðum fundi hennar í Ottawa, en það var Manitoba- deildin er í þessu tilfelli átti hlut að máli. Mr. Lindal stýrði athöfninni af ágætri háttlægni og skýrði með áhrifamiklum for- málsorðum gildi áminstra sam- taka. Stuttar, en markvissar ræður fluttu fylkisstjórinn, Mr. Mc- Williams, Campbell forsætis- ráðherra, Coyne yfirdómari og Bachynsky þingforseti; voru allar ræðurnar skipulega fluttar þar sem áherzla var lögð á raun- verugildi canadiskra þegnrétt- inda og síaukin áhrif canadisku þjóðarinnar á viðhorf heims- .málanna. Söngflokkur úr Machray-skól- aunm skemti með nokkrum þjóð- lögum, er unun var að hlusta á. Yfir athöfninni allri hvíldi eftirminnilega fagur eindrægnis- blær. Kjóll Evu Braun fundinn í kafbót ó sjóvarbotni? Einkennilegur fundur dansks kafara „NEW YORK TIMES“ flytur þá fregn frá Kaupmannahöfn, að danskur kafari hafi fyrir viku síðan komið með part af kven- mannskjól upp úr þýzkum kaf- bát, sem sökkt var vorið 1945 af brezkum flugvélum í Litlabelti, milli eyjarinnar Fjóns og Jót- lands. Þessi fundur hefir undir eins framkallað getgátur um það, að kafbáturinn hafi haft nazistíska flóttamenn frá Þýzkalandi innan borðs, kannske jafnvel Hitler og Evu Braun, og það séu máske lifar af kjól hennar, sem kafar- inn fann. Það er auðvitað ekki talið ó- hugsandi að einhver af áhöfn kafbátsins hafi haft með sér kvenmannskjól sem einhverja endurminningu; en danskur lögreglufulltrúi sagði: „Við tök- um fundinn sem vott þess, að kona hafi verið um borð í kafbátnum.“ —Alþbl., 29. apríl — DÁNARFREGN — Sunnudaginn, þann 25. maí, lézt Ármann skáld Björnsson snögglega að heimili sínu, 2075—E. 43rd Ave., Vanc., B.C., kl. 2 e. h. Banamein hans var hjartabilun. Hann lætur eftir sig ekkju, tvær giftar dætur, og son til heimilis hjá móður sinni. Þessa mæta manns verður minnst síðar. Blöðin á Islandi, einkum Norðanlandsblöðin, eru vinsam- lega beðin að taka upp þessa dánarfregn. Sat ég undir Siggu litlu Sat ég undir Siggu litlu söng við hana og kvað hélt um hennar mjóa mitti minnisstætt er það; yfir hennar ljósu lokka lófa hrjúfum strauk, unz að blíður svefn um síðir Siggu hvörmum lauk. Lagði ég hana hægt í hvílu heyrði hve ’ún dró andann rótt í álfheim drauma, ennþá vanginn hló. íLæddist ég frá henni hljóður horn mitt settist í aftur sá ég söngvareyfur sól í gegnum ský. P. GUÐMUNDSSON

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.