Lögberg - 29.05.1952, Side 5
LöGBERG, FIMTUDAGINN,
29. MAI, 1952
5
WW WWWW WWWWW W w w
wwwwwww*
\l l ( AU VI
i vi ssv
Ritstjori: INGIBJÖRG JÓNSSON
ÞjÓÐRÆKNISLEGAR
Þjóðernis- og ætternishroki er
leiðinlegur og heimskulegur, en
hins vegar er hverjum manni
styrkur í því að finna að hann
sé af góðu bergi brotinn; það
eykur á ábyrgðartilfinningu
hans og sjálfstraust, og hann
reynir að koma þannig fram, að
hann varpi fremur ljóma en
skugga á forfeður sína. Flest
fólk, sem eitthvað er spunnið í,
er því gætt nokkrum ættar-
metnaði. íslendingum, engu síð-
ur en öðrum þjóðflokkum, er
það holt að þekkja sögu síns
eigin þjóðstofns og halda á lofti
minningunni um afrek feðra
sinna og mæðra. í þessu felst
ræktarsemi og manndómur.
Islendingar hafa jafnan verið
miklir sagnritarar og góðu heilli
tóku Vestur-Islendingar snemma
að rita þætti úr sögu sinni eftir
að þeir fluttu til þessa lands og
hafa haldið því áfram síðan. Sú
saga er stutt; hún nær ekki yfir
eina öld, en við eigum sameig-
inlega með frændum okkar á ís-
landi þúsund ára sögu að baki
Þeirra saga er okkar saga þang-
að til við fluttum af landi burt.
Við Vestur-Islendingar eigum
Ingólf Arnarson, Ara fróða,
Snorra Sturluson, Jón Arason,
Hallgrím Pétursson, Jónas Hall-
grímsson, Jón Sigurðsson, engu
síður en Stephan G. Stephans-
son, Vilhjálm Stefánsson, Thom-
ar Johnson og Byron Johnson,
svo nokkrir séu nefndir, sem
hæzt gnæfa í sögunni frá fyrstu
tíð íslands byggðar til okkar
daga í þessu landi. Þessa menn
og aðra þeirra líka er gott að
eiga og muna.
HUGLEIÐINGAR
byggðu landi og koma börnum
sínum til manns þrátt fyrir alla
þá erfiðleika, sem landnáminu
eru samfara. Það virðist vera
kominn tími til þess að minn-
ingu fyrstu húsmóðurinnar á ís-
landi, sem var formóðir allra
íslendinga hvar sem þeir eru í
sveit settir, sé verðug sæmd
sýnd, og ættu Vestur-íslending-
ar að láta það mál sig nokkru
skipta.
Koma konur ekki við sögu?
Hlutverk konunnar hefir jafn-
an verið hljóðlátt og heima-
bundið, en það er engu að síður
mikilvægt. Hún skapar heimilis-
lífið og elur upp börnin og mót-
ar þau. Margir afreksmenn hafa
þakkað mæðrum sínum eða
eiginkonum þann frama, sem
þeir hafa öðlast; þær örfuðu og
hvöttu þá til dáða. Konur fara
heldur ekki varhluta af gáfum,
andlegum og líkamlegum, þótt
þeirra gæti oft á annan hátt en
hjá karlmönnum; oft er sagt um
mikla menn að þeir hafi sótt
gáfurnar til móður sinnar. Fjöld-
inn allur af konum hefir látið
mikið til sín taka utan heimilis
— í héraði og í landsmálum. —
Landnámsbarátta íslendinga
íslandi fyrir þúsund árum og í
þessu landi fyrir 75 árum var
háð af konum engu síður en
körlum. Þrátt fyrir þetta hafa
sagnritarar sneytt að miklu leyti
fram hjá konum.
Formóðir íslendinga
Minningu merkra manna er
einnig haldið á lofti með því að
reisa af þeim myndastyttur eða
með því að gefa einhverjum
góðum stofnunum þeirra nöfn
Á íslandi hafa verið reistar
styttur í minningu um ýmsa
mætustu syni þjóðarinnar svo
sem Snorra Sturluson, Jónas
Hallgrímsson og Jón Sigurðsson
en ekki veit ég til að nokkurrar
konu sé þar minst á þennan
hátt. Á Arnarhóli í Reykjavík
stendur vegleg myndastytta af
fyrsta landnámsmanni Islands
Ingólfi Arnarsyni; þar nam
hann land, og fer vel á því að
hans sé þannig minst, en betur
hefði farið á því, ef konu hans
landnámskonunnar Hallveigar
Fróðadóttur, hefði jafnframt
verið minst á þennan hátt. Víst
var hennar hlutur ekki minni
þessu landnámsævintýri; það
reynir meira að segja meir
þolrif konunnar, en manns
hennar, að stofna heimili í
Hallveigarsiaðir
Fyrir allmörgum árum síðan
hófu konur á íslandi fjársöfnun
í þeim tilgangi að reisa kvenna-
heimili í Reykjavík; á það að
vera samskonar stofnun og
Y.W.C.A. heimilin. Konur og
stúlkur úr sveitum landsins
myndu dvelja þar þegar þær
heimsækja höfuðborgina. Þar
myndu stúlkur geta fengið upp-
lýsingar um nám og atvinnu;
foreldrar myndu miklu öruggari
um velferð ungra dætra sinna,
ef þær ættu aðgang að slíkri
stofnun þegar þær koma fyrst
til borgarinnar. Ennfremur verða
þessari byggingu fundarsalir,
lestrarsalur og samkomusalur.
Þetta heimili, er allar íslenzkar
konur, sem til Reykjavíkur
koma fá aðgang að, á að heita
Hallveigarslaðir og verður
Deirrar konu ekki minst á veg-
egri hátt en að gefa þessari
DÖrfu stofnun hennar nafn.
Framkvæmdir hafa gengið
erfiðlega. Rúmlega 27 ár eru lið-
in síðan fjársöfnuriin var hafin
og á því tímabili skall á kreppa,
og krónan hefir fallið geysilega
verði og skortur er á erlendum
gjaldeyri. Þá var ekki hægt að
hefjast handa að byggja vegna
baráttu, sem konurnar áttu í við
skipulags- og byggingaryfirvöld
bæjarins, er neituðu þeim um
eyfi að byggja á þeirri lóð, sem
sær höfðu útvegað sér undir
heimilið. Má segja, að karlmenn
)eir hafi lítinn skilning sýnt á
jessu velferðar- og áhugamáli
cvenna. En nú hafa konurnar
fengið lóð á fallegum stað við
Tjörnina í hjarta borgarinnar.
Nokkur fjárhagsleg aðstoð frá
líslenzkum konum — og körlum
— hérna megin hafsins myndi
aegin með þökkum, ekki sízt
vegna gjaldeyris örðugleikanna,
jví ýmislegt efni í bygginguna
Darf að fá héðan og fyrir það
verður að greiða í dollurum.
Það væri og líka ánægjulegt
fyrir vestur-íslenzkar konur að
eiga þátt í að koma upp stofnun,
sem ber nafn formóður þeirra,
Hallveigar Fróðadóttur; þeim
ber að minnast hennar virðulega
engu síður en konum heima á
íslandi.
Eftir því sem ferðalög til ÍS'
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK
Sameinaða lúierska kirkjan í Cavalier. N.D.
Kirkjuvígsla í Cavalier
Á sunndaginn 25. maí, kl. 2:30 fór fram mjög hátíðleg
og fjölmenn kirkjuvígsluathöfn í Cavalier, N. Dak.; var
hún framkvæmd af séra Agli H. Fáfnis, forseta kirkju-
félagsins, með aðstoð Stefáns Guttormsson, .cand. theol.,
sem er kjörinn prestur safnaðarins, og séra Valdimars J.
Eylands, sem kom þar fram sem fulltrúi Heimtrúboðs-
nefndar félagsins.
The Uniled Luiheran Church í Cavalier var stofnuð
16. október 1949. Fyrstu guðsþjónustur safnaðarins voru
haldnar í leikhúsi bæjarins. En þar sem engin skilyrði voru
þar til sunnudagahalds, fékk söfnuðurinn inni í samkomu-
húsi Frímúrara og voru guðsþjónustur og aðrar safnaðar-
samkomur haldnar þar alt vors 1952. Snemma á árinu 1950
réðist söfnuðurinn í það að kaupa kirkju, sem var eign
St. Pauls safnaðar, í nærliggjandi sveit.Var kirkjubygging
þessi færð inn í bæinn á mjög hagkvæman stað; var steyptur
undir hana kjallari, og hún aukin og bætt á marga lund;
er hún nú hið prýðilegasta guðshús, búin öllum nauðsyn-
legum tækjum til guðsþjónustu og samkomuhalds. Á þessu
stutta tímabili hefir söfnuðurinn meir en tvöfaldast að með-
limatölu. Öll ber kirkjan ljóst vitni um mikinn áhuga
meðlima sinna, og stórar fórnir í tíma og fjárframlögum.
Allmargar gjafir bárust kirkjunni á vígsludegi hennar, þar
á meðal altarisbiblía frá Fyrsta lúterska söfnuði í Winnipeg,
skrautlegir kertastjakar og önnur altarisáhöld frá stjórnar-
nefnd safnaðar síns, ásamt ríflegum peningagjöfum frá ein-
stökum vinum.
Um þrjú hundruð manns voru viðstaddir vígsluna;
settust flestir þeirra að borðum að afstaðinni hinni kirkju-
legu athöfn, og neyttu máltíðar sem var framreidd af kven-
félagi safnaðarins af mikilli rausn.
Stefán Guttormsson, sem er kjörinn prestur safnaðarins,
útskrifaðist í vor frá lúterska prestaskólanum í Minneapolis;
er hann mjög vel gefinn og á allan hátt hinn efnilegasti
maður. Þessi yngsti söfnuður kirkjufélagsins hefir farið
óvenjulega vel af stað. Megi blessun Guðs hvíla yfir öllu
starfi hans.
Emil Wolter og þýðingar hans
ó íslendingasögum
HINN víðkunni tékkneski ------------
fræðimaður, Emil Walter, fyrr-
verandi sendiherra Tékkósló-
vakíu í Noregi og á íslandi, hefir
nú lokið við að þýða á tékknesku
íslendingasögurnar þrjár, Lax-
dælu, Eyrbyggju og Gísla sögu
Súrssonar. En áður hefir hann
þýtt Njálu á tékknesku og Sæ-
mundar Eddu.
Nýlega hefir verið ákveðið, að
þýðingar þessar verði gefnar út
r
Þingboð
o
I
Hið tuttugasta og áttunda ársþing
BANDALAGS LÚTERSKRA KVENNA
verður haldið að
GIMLI, MANITOBA.
6., 7. og 8. júní 1952
FÖSTUDAG 6. JÚNI:
Þingsetning kl. 10 f. h.
Starfsfundur kl. 2 e. h.
< Fundur kl. 8 e. h.
Skemliskrá
Mrs. A. Buhr — Faith
Mrs. J. Vigfússon — íslenzkt erindi
(Silver Collection)
ERINDI:
0 LAUGARDAG 7. JÚNÍ
ERINDI:
☆
TEKUR ÞÁTT
lands verða greiðari fjölgar
þeim vestur-íslenzku konum, er
heimsækja ísland. Það væri
bæði þægilegt og ánægjulegt
fyrir þær að eiga aðgang að her-
bergi á Hallveigarstöðum, er
þær hefðu sjálfar lagt í fé.
Það er sjaldan að okkur gefst
tækifæri að eiga samvinnu við
systur okkar á íslandi um sam-
eiginleg áhugamál; skilningur á
þessu máli og stuðningur við
það myndi treysta frændsemis'
böndin og verða öllum sem að
því standa til gleði og gagns.
☆ ☆ ☆
í MEIRIHÁTTAR RÁÐSTEFNU
í BOSTON
Frú Bertha Beck í Grand
Forks, N. Dak., sat fyrri helming
þessarar viku í Boston ársþing
allsherjar Berklavarnarfélags
Bandaríkjanna (The National
Tuberculosis Association) sem
fulltrúi Berklavarnafélags Norð-
ur-Dakota ríkis (North Dakota
Tuberculosis and Health Assso-
ciation), en hún var nýlega á
ársfundi þess félagsskapar end-
urkosinn forseti hans fyrir yfir-
standandi ár.
Hún á einnig sæti í stjórnar-
nefnd Sambands Berklavarna-
félaga Miðvesturlandsins (Mis-
sissippi Valley Conference on
Tuberculosis) og situr einnig
stjórnarnefndarfund SambandS'
ins samhliða þátttöku sinni í
ársþinginu í Boston.
Frú Bertha Beck
forlagi Stokkhólmsháskóla.
Emil Walter hefir fyrir
skömmu verið kosinn heiðurs-
doktor við háskólann í Uppsöl-
um, m. a. vegna þessara mikils-
verðu þýðinga, sem hann hefir
haft með höndum og nú er lokið
við.
I 30 ár hefir Emil Walter lagt
stund á norrænar bókmenntir.
Hann hefir m. a. þýtt mikið af
skáldverkum Selmu Lagerlöf og
ennfremur skáldverk eftir Heid-
enstam, Johannes V. Jensen,
Sigrid Undset og Hamsun.
Doktorsritgerð hans, sem hann
varði fyrir mörgum árum, fjall-
aði m. a. um samanburð á fonr
um skáldskap Tékka og íslend-
inga.
Þegar stofnað var sænskt
sendikennaraembætti við há
skólann í Prag fékk dr. Walter
Dað embætti fyrstur manna.
Síðan varð hann erindreki
stjórnar sinnar í nokkur ár, en
refir nú að undanförnu haft á
hendi mikilsverða kennslu í
tékknesku við Uppsalaháskóla,
eftir að hann lét af sendiherra-
störfum, en þau vildi hann ekki
hafa á hendi, eftir að kommún-
istar tóku völdin á fósturjörð
hans.
Emil Walter kom hingað í
fyrsta sinn til landsins árið 1924
og hafði þá aflað sér svo full-
kominnar þekkingar á íslenzkri
tungu að hann gat bæði talað og
ritað málið. Þann stutta tíma,
sem hann dvaldi hér eignaðist
hann fjölda vina, er hafa af á-
huga fylgt störfum hans, er
miðað hafa m. a. að því að út-
breiða þekkingu á íslenzkum
bókmenntum að fomu og nýju.
Með fræðimannsstörfum sínum
hefir Emil Walter jafnan sýnt í
verki, að hann er sannur vinur
íslendinga og íslenzkrar þjóð
menningar.
—Mbl. 7. mai
Starfsfundur kl. 9 f. h.
Starfsfundur kl. 2—3 e. h.
Hannyrðasýning kl. 3—4
Starfsfundur kl. 4—6
Fundur kl. 8 e. h.
Skemliskrá
Mrs. Lára B. Sigurdson — Address “Gimli”
Mrs. W. E. Gordon — Address
(Silver Collection)
SUNNUDAGINN 8. JÚNÍ, KL. 2 E. H.
Dagskrá auglýst í næsta blaði.
KONUR: —
Erindrekar eru beðnir að mæta stundvíslega kl. 8 að
morgni föstudagsins 6. júní við Fyrstu lútersku kirkjuna í
Winnipeg, Man., þar sem Chartered “BUS” bíður þeirra.
Þingið byrjar stundvíslega kl. 10 f. h. með starfsfundi.
FJÓLA GRAY. forseii
Q::—>o
KIRKJUÞINGSBOÐ
Hið 68. ársþing hins Evangeliska lúterska kirkjufélags
íslendinga í Vesiurheimi verður haldið í Minneoia,
Minn. 29. júní til 2. júlí n.k.
Þingið hefst með guðsþjónustu kl. 11 á sunnudags-
morguninn 29. júní, — verður þá vígður til prests,
cand. theol. Stefán Guttormsson, sonur séra Guttorms
í Minneota. Á miðvikudagsmorguninn fara fram kosn-
ingar embættismanna, og er gert ráð fyrir að þingi
verði slitið u mhádegi þann dag.
öllum söfnuðum Kirkjufélagsins ber skylda til að
senda fulltrúa á þingið: einn fulltrúa fyrir hvern
söfnuð sem hefir minna en eitt hundrað fermda með-
limi, auk þess fulltrúa fyrir hvert hundrað meðlima
þar sem um fjölmennari söfnuði er að ræða; þó má
enginn söfnuður senda fleiri en fjóra fulltrúa.
Sendið nöfn erindreka til forseta félagsins séra E. H.
Fáfnis, Mountain, N.D., svo fljótt sem unt er.
E. H. FÁFNIS. forseii
HAROLD S. SIGMAR, skrifari