Lögberg - 21.08.1952, Qupperneq 1
O Canada we stand on
guard for thee
íslendingar viljum vér
allir vera
65. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 21. ÁGÚST, 1952
NÚMER 34
-------1
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
Uggvænlegar
horfur
Hvernig svo sem fram úr
ræðst, verður naumast annað
sagt, en stjórnmálaviðhorfið í
íran sé næsta ugg'vænlegt. Mossa
degh forsætisráðherra hefir eins
og þegar er vitað, fengið í hend-
ur alræðisvald næstu sex mán-
uðina með það fyrir augum, að
ráða fram úr ef auðið yrði þeim
fjárhagslegu vandræðum, sem
nú steðja að þjóðinni og veikja
viðnámsþrótt hennar gegn á-
róðri rússneskra kommúnista
og fylgifiska þeirra í landinu;
svo hafa horfurnar hríðversnað
upp á síðkastið, að utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna hefir
farið þess á leit við brezk stjórn-
arvöld, að þau komi þegar til
liðs við Mossadegh og veiti hon-
um efnahagslega aðstoð, því
með þeim hætti einum geti það
lánast, að koma í veg fyrir að
kommúnistar hrifsi völdin í sínar
hendur og sölsi undir sig landið.
Ekki þykir líklegt að Bretar
taki tilmælum Banáaríkjanna í
þessu efni tveim höndum því
þeim er þungt í skapi til Mossa-
deghs vegna afstöðu hans til
olíudeilunnar, þó vera kunni að
nauðsyrr brjóti lög.
Hrakmenni eitt, Mullah Kos-
honi, fégjarn og valdagráðugur,
er sagður að vera þess albúinn
að ganga í bandalag við kommún
ista og steypa Mossadegh af
stóli væri þess nokkur kostur;
vill hann útrýma með öllu úr
landinu vestrænum menningar-
áhrifum og koma á fót miðalda-
skipulagi þar sem forkólfar
Móhameðstrúarmanna fái kúgað
lýðinn að vild; maður þessi, sem
hniginn er allmjög að aldri, er
talinn að vera blóðþyrstasti
skálkurinn, sem nú er uppi í
íran og ekki horfir í neitt mál-
stað sínum til framdráttar. —
Mossadegh er hugarhaldið um
að ryðja honum úr vegi og það
sem allra fyrst.
Utanríkisráðherra
kvænist
Síðastliðinn fimtudag voru
ge’fin saman í borgaralegt hjóna-
band utanríkisráðherra Breta,
Anthony Eden, og Clarissa
Spencer Churchill, bróðurdóttir
Winston Churchills forsætisráð-
herra. Brúðguminn er 55 ára en
brúðurin 32 ára. Mr. Eden skildi
við fyrri konu sína fyrir tveim-
ur árum vegna þess að hún var
svo að segja á sífeldum ferða-
lögum um Bandaríkin og gaf sig
lítt að húsmóðurstörfum. Svara-
menn voru föðurbróðir brúðar-
innar og Sir John Eden bróðir
brúðgumans. Brúðhjónin eyða
hveitibrauðsdögum sínum í
Portugal.
Að afstaðinni hjónavígsluat-
höfninni höfðu þau Churchill og
frú boð inni að Nr. 10 Downing
Street til heiðurs við brúðhjónin.
Banni létfr af
Landbúnaðarráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, James G.
Gardiner, kunngerði á þriðju-
daginn, að banninu á flutningi
nautgripa og kjöts frá einu fylki
til annars væri nú formlega létt
af þar sem nú væri víst, að gin-
og klaufnaveiki yrði ekki leng-
ur vart í landinu; tjáðist Mr.
Gardiner vongóður um, að þess
yrði eigi langt að bíða að Banda-
ríkin léttu einnig innflutnings-
banninu af.
27. JÚLÍ
í skýrslu Fiskifélags íslands
um síldveiðina í vikunni 20. til
27. þ. m. segir svo: Síðustu viku
mátti heita síldarlaust á miðun-
um. í vikunni var saltað í 8.414
tunnur, en 814 mál fóru til
bræðslu, auk 2100 mála af ufsa.
Laugardaginn 26. á miðnætti
var búið að salta í 25.607 tunn-
ur, en á sama tíma í fyrra nam
söltunin 47.700 tunnum. Bræðslu
síldaraflinn var 19.403 mál, en
rösklega 200 þúsund mál á sama
tíma í fyrra. Einungis 39 skip
hafa fengið 500 mál og tunnur
og þar yfir. — í gær, laugardag-
inn 2. ágúst, höfðu Síldarverk-
smiðjur ríkisins tekið á móti
15.367 málum til bræðslu, en
132.328 málum á sama tíma í
fyrra.
☆
Eiríkur Þorsteinsson kaupfé-
lagsstjóri á Þingeyri verður í
kjöri fyrir Framsóknarflokkinn
í aukakosningunum í Vestur-
Isafjarðarsýslu, Sturla Jónsson
hreppstjóri verður í framboði
fyrir Alþýðuflokkinn og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
☆
Finnar bjóða nú til alþjóðlegs
skákmóts í Helsinki í sambandi
við Olympíuleikana. Þrjátíu
þjóðir hafa tilkynnt þátttöku,
eða fleiri en í nokkru öðru skák-
móti. Meðal keppenda verður
heimsmeistarinn rússneski, Bot-
venik. — Fjórir menn keppa frá
hverju landi, — af íslandshálfu
þeir Eggert Gilfer, Friðrik Ólafs-
son, Lárus Johnsen og Guðjón
M. Sigurðsson, og til vara Sigur-
geir Gíslason og Guðmundur
Arnlaugsson, og verður sá síðast
nefndi fararstjóri íslendinganna.
☆
Grasspretta hefir lagast mjög
mikið síðari hluta júlímánaðar,
og nýting heyja verið góð á
suður-, norður- og austurlandi,
og einnig sæmileg á Vesturlandi.
Á stöku stað er lokið síðari
slætti, t. d. á Fossi í Mýrdal.
☆
Biskupinn yfir Islandi vígði á
sunnudaginn var fimm kandi-
data til prestsþjónustu: Björn
Jónsson til Keflavíkurpresta-
kalls, Eggert Ólafsson til Kvenna
brekkuprestakalls, Fjalar Sigur-
jónsson til Hríseyjarprestakalls,
Rögnvald Finnbogason til Skútu
staðaprestakalls og Sváfni Svein-
bjarnarson, aðstoðarprest til
föður síns Sveinbjarnar Högna-
sonar að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð.
☆
Strætisvagnar Reykjavíkur
bera sig nú fjárhagslega, og er
kappkostað að afla dieselvagna
í stað gömlu benzínvagnanna,
en dieselvagnarnir eru miklu
ódýrari í rekstri, — er eldsneyt-
isnotkun þeirra einungis 1/5 til
1/4 hluti af eldsneytiseyðslu
benzínvagnanna, og dieselvagn
arnir auk þess ódýrari í við-
haldi. — Strætisvagnana skortir
nú geymsluhús og húsnæði fyrir
viðgerðastöð, og benda líkur til
þess, að fyrirtækið gæti af eigin
rammleik hafið smíði þessa hús-
næðis, ef fyrir væru nægir diesel
vagnar til starfrækslu, — en
hver dieselvagn hefir skilað nær
40 þúsund króna ágóða á ári.
Hvað vagnakostinn áhrærir er
ástandið nú þannig, að ef ekki
rætist úr um innflutning á fleiri
nýjum vögnum næstu mánuðina
getur svo farið að fækka verði
ferðum í stað þess að fjölga þeim
á vetri komanda.
☆
Sjötíu ára afmælis Kaupfélags
Þingeyinga var minnst með há-
tíðahöldum á Húsavík á sunnu-
daginn. Samkomugestir voru
kvaddir saman með lúðrablæstri
á torginu fyrir framan hús Kaup
félagsins laust fyrir kl. 14. —
Fjölmargar ræður voru fluttar,
og afhjúpuð höggmynd í fullri
líkamsstærð af Jakobi Hálf-
dánarsyni, fyrsta kaupfélágs-
stjóra félagsins, og er myndin
gjöf til Kaupfélags Þingeyinga
frá Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga.
☆
Náðst hefir samkomulag milli
ríkisstjórnarinnar, Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitenda
sambands íslands um skipun
nefndar til að gera tillögur um
hversu vinna megi gegn, — eða
útrýma, — því árstíðabundna
atvinnuleysi, er stafar af því,
hversu atvinnuvegir lands-
manna eru háðir árstíðum. Ber
nefndinni að skila áliti hið allra
fyrsta, og helzt áður en næsta
Alþingi kemur saman. Nefndina
skipa Jens Hólmgeirsson, Hanni-
bal Valdemarsson og Björgvin
Sigurðsson.
☆
Byggingarfélag verkamanna í
Reykjavík á nú í smíðum fimm
hús með tuttugu íbúðum, og
ætlunin er að hefjast bráðlega
handa um smíði fimm fjögurra
íbúðarhúsa í viðbót, og verða þá
40 íbúðir í smíðum hjá félaginu.
☆
Biskup landsins hefir auglýst
fimm prestaköll laus til umsókn-
ar: Norðfjarðarprestakall og
Bolungarvíkurprestakall, og
nýju Reykjavíkurprestaköllin,
Bústaða-, Háteigs- og Langholts-
prestaköllin. — Séra Sigurður
M. Pétursson hefir verið kjörinn
lögmætri kosningu til Breiðaból-
staðarprestakalls í Snæfellspró-
fastsdæmi.
☆
Eimskipið Dettifoss setti ný-
lega hraðaipet á leiðinni frá New
York til Reykjavíkur, — meðal-
hraðinn var 14,9 mílur, og sigl-
ingartíminn frá New York og
heim tæpir sjö sólarhringar.
☆
Margbreytileg hátíðahöld
verða nú um Verzlunarmanna-
helgina. Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur gengst fyrir þriggja
daga hátíðahöldum, og hófust
þau í gærkvöldi.
☆
Borgfirðingafélagið í Reykja-
vík hefir Reykholtshátíð í dag,
og verður þar margs konar gleð-
skapur.
☆
í skýrslu Barnaverndarnefnd-
ar Reykjavíkur fyrir árið 1951
segir að afbrot barna og unglinga
hafi færst stórlega í vöxt á því
ári, og er þar einkum um kennt
atvinnuleysi og sVo dvöl erlends
herliðs í landinu.
☆
Til Reykjavíkur koma í dag 50
bændafulltrúar frá Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi og Danmörku,
og sitja þeir aðalfund bænda-
sambands Norðurlanda, er háður
verður í Reykjavík dagana 4. og
5. þessa mánaðar. Formaður
bændasambandsins er Bjarni
Ásgeirsson sendiherra.
☆
Um veðráttuna í síðustu viku
er það helzt að segja, að á sunnu
dag og mánudag var suð-Vestan-
átt víðasthvar á landinu, skýjað,
en úrkomulítið og sæmilega
hlýtt. Á þriðjudag brá svo rétt
einu sinni til norðan- og norð-
austanáttar og kólnaði á norður-
og austurlandi, með þoku til
hafsins og nokkurri rigningu,
einkum á fimmtudaginn. Á suð-
íslenzk sýning á föstudagskveldið í
Fyrstu lútersku ksrkjunni
vesturlandi þjrti hins vegar til
með norð-austanáttinni. — Á
fimmtudaginn var hvasst í
Reykjavík, allt að 8 vindstigum,
en síðan hefir verið kyrrt og
bjart veður suðvestanlands, og
víða 16 til 18 stiga hiti um nón-
bilið.
í heimsókn
til Moskvu
Forsætisráðherra hins rauða
Kínaveldis er nú nýkominn til
Moskvu með fríðu föruneyti til
að votta þeim Stalin og Molotov
hollustu sína; nokkurn veginn
þykir sýnt, að til grundvallar
heimsókninni liggi annað og
meira en algeng vináttutjáning
því í för með forsætisráðherra
voru ýmsir hinna æðstu her-
foringja.
Kynningarorð
Á íslendingadagshátíðinni, sem
haldin var að Gimli, Man.,
mánudaginn 4. ágúst, kynnti
forseti dagsins, séra Valdimar J.
Eylands, annan aðalræðumann
dagsins, prófessor Finnboga
Guðmundsson, á þessa leið:
„Maðurinn, sem íslendinga-
dagsnefndin valdi í þetta sinn til
að mæla fyrir minni íslands,
skipar að mörgu leyti sérstöðu
á meðal okkár. Hann er nýr mað-
ur hér; hefir aldrei fyrr komið
fram á samkomu á þessum stað.
Hann er persónugervingur ný-
uppfylltra drauma, sem marga
okkar mætustu menn hefir
dreymt næstum frá upphafi ís-
landsbyggða hér vestan hafs;
Rann er einnig tákn um þau víð-
tækustu og sigursælustu samtök
sem fram á þennan dag hafa átt
sér stað á meðal okkar Vestur-
íslendinga; í eigin persónu sinni
hefir hann til að bera það beztá,
sem völ er á á íslandi, eða í
nokkru landi: æsku, ættgöfgi,
andlegt atgjörvi, glæsilegan
námsferil, fræðimennsku, en
um fram alt prúðmennsku hins
sannmenntaða manns.
í gær var hann staddur vestur
í Seattle, í nótt ferðaðist hann
um háloftin, og í dag er hann
staddur hér. Mér er ekki kunn-
ugt um nokkurn mann annan,
sem flutt hefir íslandsminni á
jafn fjarlægum stöðum, sem
Seattle og Gimli, með svo stuttu
millibili. Að þessu athuguðu er
það sízt ofsagt að hann skipar
sérstöðu á meðal okkar hér í
dag, og vonir standa til að hann
eigi eftir að skipa sérstöðu í fé-
lags- og menningarmálum okkar
Vestur-íslendinga um langan
aldur.
Prófessor Finnbogi Guðmunds
son! Þú ert óskabarn okkar Is-
lendinga hér vestan hafs. Við
bjóðum þig hjartanlega velkom-
inn; við vottum þér hollustu
okkar, og bjóðum þér samvinnu
okkar í starfi þínu, því að það
er einnig okkar starf: að vernda
íslenzkt mál og .menningu á
þessum slóðum. Við hlökkum til
þess að fá nú tækifæri til að
hlusta á ræðu þína fyrir MINNI
ÍSLANDS.
Alvarlegír
skógareldar
I British Columbiafylki hefir
naumast komið deigur dropi úr
lofti í háa herrans tíð; hefir
þetta leitt til þess, að víðtækari
skógareldar geisa í fylkinu en
dæmi voru áður til; eldarnir hafa
breiðst út á hundrað og fimtíu
stöðum, og vinna nú þúsundir
manna að því nótt sem nýtan
dag að hnekkja framgangi
þeirra.
Frú Anna Ásmundsdóttir
Torfason, er ferðast hefir víða
um Bandaríkin síðan í vor og
sýnt íslenzkan handiðnað, er ný-
komin til Winnipeg. Sýning
hennar hefir hvarvetna vakið
mikla athygli, enda hefir hún
til sýnis aðeins muni af full-
komnustu gerð svo sem sýnis-
horn af allra fallegustu band-
tegund, sem hægt er að fá á Is-
landi, en íslenzkar spunakonur
eru viðurkendar þær beztu í
þeirri grein á öllum Norður-
löndum.
Frú Anna hefir ásamt frú
Laufeyju Vilhjálmsdóttur átt
mikinn þátt í að endurvekja á-
huga fyrir ullarvinnu á íslandi;
þær stofnuðu fyrirtækið „íslenzk
ull“, sem er nokkurs konar mið-
stöð fyrir framleiðendur hand-
unnins ullarvarnings; hand-
spunnin ull selst nú fyrir 600
krónur kílóið, svo það hefir
sannast orðtæki þeirra: „Vinnum
ull, hún verður gull!“
Frú Anna efnir til sýningar á
íslenzku prjónlesi og öðrum ís-
lenzkum munum í Fyrstu lút-
ersku kirkju á fösludagskveldið,
22. ágúst kl. 8; sýningin er ekki
Mann- og eignatjón
Seinnipart vikunnar, sem leið,
urðu vatnavextir valdir að
mann- og eignatjóni í suðvestur-
hluta Englands; áttatíu manns'
svo vitað sé týndu lífi, nokkrir
voru ókomnir fram en þúsundir
manna stóðu uppi ráðþrota án
skýlis yfir höfuðið. Hellirigning
hafði staðið yfir í marga undan-
farna daga.
Úr nógu að velja
Nú þykir sýnt að þrír fram-
bjóðendur að minsta kosti keppi
um borgarstjóraembættið í Win-
nipeg við kosningar þær til
borgarstjórnar, sem fram fara í
októbermánuði næstkomandi;
um tvo frambjóðendur er þegar
víst, þá Garnet Coulter og
Stephen Juba, er koma vill á fót
samdrykkjusölum karla og
kvenna í borginni; þá hafa
C.C.F.-sinnar lýst yfir því, að
þeir séu staðráðnir í að hafa
frambjóðanda í kjöri þótt enn
sé eigi vitað hver verði fyrir
valinu.
Áttræðisafmæli
Á sunnudaginn þann 3. þ. m.,
átti Hákon Noregskonungur átt-
ræðisafmæli og var hann í til-
efni af þessum merka áfanga í
lífi hans hyltur ákaft af miklum
mannfjölda; það voru eigi aðeins
Oslóbúar, er heiðruðu konung
sinn með skrúðgöngu um helztu
götur borgarinnar og hvers kon-
ar öðrum mannfagnaði, heldur
var þar samankominn mikill
mannsöfnuður svo að segja úr
öllum landshlutum. Hákon kon-
ungur nýtur enn beztu heilsu og
tekur virkan þátt í kjörum þjóð-
ar sinnar; hann hefir setið að
völdum í 47 ár og jafnan notið
hinnar mestu lýðhylli.
Meðal konunglegra gesta, er
heimsóttu hinn vinsæla konung
á afmælisdaginn má telja Gustav
Svíakonung, Alexöndru fyrrum
Danmerkur drottningu, prins
Georg af Grikklandi og hertog-
ann af Edinburgh.
Ráðherrar, forseti stórþingsins
og dómarar í hæztarétti, heim-
isóttu konung þá um daginn og
fluttu honum árnaðaróskir; um
kvöldið fIjutti konungur þakkar-
ræðu af svölum ráðhúss borgar-
innar.
stór — aðeins úrvalsmunir.
Frú Anna er þjóðkunn kona,
og um starfsemi hennar og
heimsókn hennar til Bandaríkj-
anna birtist grein í Lögbergi 31.
júlí s.l. eftir Skúla G. Bjarnason,
Los Angeles. Mörgum mun
hugarhaldið að kynnast þessum
virðulega fulltrúa íslands og
skoða hennar vönduðu sýningar-
muni.
Sýningin er ókeypis.
Krefsi
yerðlagstryggingar
Mr. H. H. Hannam formaður
hinna canadisku landbúnaðar-
samtaka, hefir krafist þess að
sambandsstjórn veiti kvikfjár-
ræktarbændum verðlagstrygg-
ingu fram að þeim tíma, er
Bandaríkjastjórn nemi úr gildi
þær hömlur, er settar voru
vegna gin- og klaufnaveikinnar
í Saskatchewan.
Kveðja til
Hnausabúa
Kæru Hnausabúar:
Það má ekki minna vera, en
ég sendi ykkur kveðju mína, þar
sem ég hafði ekki tækifæri til að
taka í hendina á ykkur nema
fáum eftir tuttugu og tveggja
ára veru mína meðal ykkar, sem
frá minni hálfu mátti heita vin-
samleg sambúð, enda þótt manni
falli ekki allir menn jafnvel í
geð, reyndi ég þar engan nema
að drengskap og góðri fram-
komu, og var mér margur greiði
gerður án endurgjalds, en alt
sem ég gerði fyrir aðra borgað
fullu verði, svo að þar er ég í
þaklkætisskuld. Auðvitað núna
síðastliðin ár hef ég lítið um-
gengist aðra en frændur og ná-
granna, — Magnússonsbræður,
Svein, Jóa, Einar og Munda, sem
allir eiga það sameiginlegt að
vera þeir hjálplegustu og frið-
sömustu menn, sem hægt er að
finna. Sama má segja um þeirra
bróðursyni, þeir hafa erft alla
þeirra góðu ættarkosti. Þó ég
ætlaði ekki að lengja þetta með
nafnakalli, verð ég þó að bæta
einu við, sem mestan þáttinn
hefir átt í að gera mér lífið létt
og skemtilegt, og það er konan,
sem með mér bjó, Sigríður
Goodman, því þau átta ár, sem
við vorum saman, mátti heita að
ég væri aldrei líkamlega heil-
brigður; var t. d. sex sinnum á
spítala og þegar einn kvillinn
læknaðist byrjaði annar; þrátt
fyrir það leið mér vel alt fyrir
hennar umhyggju, rólegu skaps-
muni og góða viðmót, og á hún
fáa sína líka að mannkostum,
hæfileikum og háttalagi.
Verið þið öll blessuð og sæl!
Daníel Halldórsson
Róttækar umbætur
fyrirhugaðar
Stjórn sú, sem nú hefir tekið
við völdum í Egyptalandi, hefir
ásett sér að hrinda í framkvæmd
svo fljótt sem framast megi
verða ýmissum róttækum um-
bótum varðandi efnahagslega
viðreisn þjóðarinnar og þá eink-
um með hliðsjón af landbúnað-
inum; meginhluti ræktaðs lands
hefir verið í höndum nokkurra
auðkýfinga, er sogið höfðu merg
úr umkomulitlum leiguliðum
sínum; nú er í ráði að hleypa af
stokkum nýrri löggjöf, er svo
mæli fyrir, að enginn einstakur
þjóðfélagsþegn megi eiga yfir
tvö hundruð ekrur lands.