Lögberg - 21.08.1952, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 21. ÁGÚST, 1952
Úr borg og bygð
COOK BOOK
Matreiðslubók, sem Dorcasfé-
lag Fyrsta lúterska safnaðar lét
undirbúa og gaf út; þegar þess
er gætt, hve bókin er frábærlega
vönduð að efni og ytri frágangi,
er það undrunarefni hve ódýr
hún er; kostar aðeins $1.50 að
viðbættu 15 centa burðargjaldi.
Pantanir, ásamt andvirði,
sendist:
Mrs. R. G. Pollock,
708 Banning St.
Winnipeg.
Sími 36 603
Miss Ruth BárdaL
5 — 54 Donald St.
Winnipeg,
Síini 929 037
☆
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband í
Fyrstu lútersku kirkju þau
Einar Marino Tómasson og Lily
Margaret Anderson. Brúðgum-
inn er yngsti sonur þeirra frú
Sigþóru Tómasson í Mikley og
manns hennar Kristjáns Tómas
sonar, sem fyrir skömmu er lát-
inn; brúðurin er dóttir Mr. og
Mrs. H. G. Anderson, sem bú
sett eru í þessari borg; mikill
mannfjöldi var viðstaddur hjóna
vígsluathöfnina. Séra Valdimar
J. Eylands gifti. Mr. A. Blöndal
söng einsöng, en við hljóðfærið
var frú Björg Isfeld.
Að vígsluathöfn lokinni var
setin fjölmenn og ánægjuleg
veizla í salarkynnum Caledonian
Club.
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður í Mikley.
☆
Á fimtudaginn í vikunni, sem
leið, komu heim úr íslandsför
þær frúrnar Kristín Jónasson og
Guðrún Blöndal; þær ferðuðust unni
með skipum báðar leiðir yfir
hafið; þær heimsóttu London
París og Glasgow og Edinburgh
áður en þær komu til íslands;
hvorug þeirra hafði áður ísland
augum litið, en báðar eru þær
frænd- og vinmargar á Fróni.
☆
Mr. Snæbjörn S. Johnson frá
Árborg, fyrrum sveitaroddviti í
Bifröst, var staddur í borginni á
mánudaginn ásamt syni sínum.
Mr. Johnson kvað uppskeru-
horfur í bygðarlagi sínu vera
hinar ákjósanlegustu.
Hjónavígslur: —
Gefin saman í hjónaband í
Selkirk, Man., þann 8. ágúst
Sigurður Árni Anderson og
Sarah Tofts Latimer, bæði til
heimilis í Selkirk. Við giftinguna
aðstoðuðu Mr. og Mrs. Frederick
G. Brown. Giftingin fór fram á
heimili móður brúðgumans, Mrs.
Christianson, 402 Claudeboye
Ave. Veizla var setin á heimil-
inu að giftingunni afstaðinni. —
Sóknarprestur gifti.
Gefin saman í hjónaband að
heimili íslenzka sóknarprestsins
í Selkirk, þann 9. ágúst: Walter
Josephson, Gimli, Man., og
Margaret Helen Isfjörð, einnig
frá Gimli. Brúðguminn er sonúr
Mr. og Mrs. S. Josephson á
Gimli; brúðurin er dóttir Mr. og
Mrs. Norman L. ísfjörð á Gimli.
Ungu hjónin voru aðstoðuð af
Miss Jórunn Helen Finnson og
Mr. Jacob Jacobson, Jr. — Fram-
tíðarheimili þeirra verður
Gimli.
Gefin saman í hjónaband
mánudaginn 11. ágúst, að heimili
Mr. og Mrs. John Grayston,
1986 Ross Ave, Winnipeg,
Stanley Lynn Goodman og Alice
Beatrice McKeown, bæði til
heimilis í Winnipeg. Við gifting-
una aðstoðuðu Miss Marge
Bauldic og Mr. Grayston, tengda
bróðir brúðgumans. Veizla var
setin á heimilinu að giftingar-
athöfninni afstaðinni. Séra Sig-
urður lafsson gifti.
Gefin saman í hjónaband í
Lútersku kirkjunni í Selkirk af
sóknarpresti, laugardaginn 16.
ágúst, James McKaye Fraser,
frá Winnipeg, og Doreen Gay
Keen, Selkirk. Vitni að gifting-
voru: Miss Adeline
Frances Massey, og Mr. William
Poniack. Veizla var setin í
Memorial Hall að giftingu af-
lokinni.
☆
Mr. Bjarni Sveinsson frá
Keewatin, Ont., var staddur í
borginni í lok fyrri viku.
☆
Mr. Grímur Jóhannesson for
stjóri rjómabúsins í Ashern, hef
ir dvalið hér í borginni nokkra
undanfarna daga ásamt fjö'
skyldu sinni í heimsókn til for-
eldra sinna og bræðra.
Á laugardaginn var voru gefin
saman í hjónaband i St. Michaels
kirkjunni á Gimli, þau Lára
Þórey Johnson og Denis Edmund
McCarthy. Brúðurin er dóttir
þeirra Mr. og Mrs. J. B. Johnson
á Gimli, en brúðguminn er sonur
Mr. og Mrs. D. E. McCarthy í
Winnipeg. Rev. J. Holloway
framkvæmdi hjónavígsluathöfn-
ina og að henni lokinni var setin
vegleg veizla í samkomuhúsi
Gimlibæjar. Ungu hjónin eyða
hveitibrauðsdögum sínum í
Kenora, en heimili þeirra verður
í Dalkeith Apts., hér í borginni.
☆
Mr. J. Th. Beck forstjóri og
frú lögðu af stað austur til
Toronto á laugardagskvöldið var
og ráðgerðu að verða liðuga
viku að heiman.
☆
Hr. Ólafur Gíslason frá Reykja
vík, sem dvalið hefir hér vestra
nokkuð á fjórða ár, lagði af stað
a áleiðis til íslands á miðvikudag-
inn; hann hefir stundað nám í
flugvélaverkfræði í Calgary og
hefir nú lokið fullnaðarprófi.
☆
Mr. Páll Austman frá Van-
couver hefir dvalið hér um
slóðir ásapit frú og tveimur
börnum í heimsókn til móður
sinnar og systkina.
☆
Mr. Eiríkur Austmann frá
Elfros, Sask., hefir dvalið hér um
slóðir í nokkra daga; hann hvarf
heimleiðis í dag og í för með
honum vestur var Paul S. John-
son frá Glenboro.
☆
Mr. og Mrs. Chris. Oliver eru
nýlögð upp í hálfsmánaðar ferða
lag um Austur-Canada og
Bandaríkin.
☆
Mr. og Mrs. Árni Árnason,
Mrs. Robert Hixson og Mrs. P.
Anderson frá Chicago og Rakel
Oddson frá Los Angeles, Cal.,
komu í skemtiferð hingað um
síðustu helgi.
☆
Miss Guðrún Jóhannsson
hjúkrunarkona frá Saskatooon,
hefir dvalið hér í borginni um
hríð.
Eldiviður úr Fnjóskadalsskógum getur
sparað 500 lesta kolainnflutning ó óri
550.000 Irjáplönlur gróðursettar
hér á síðastliðnu ári
Úr skýrslu skógræktarsijóra
Á árinu sem leið munu hafa
verið gróðursettar um 550
þúsund trjáplöntur á vegum
Skógræktar ríkisins og ein-
stakra skógræktarfélaga.
Frá þessu skýrir Hákon Bjarna
son skógræktarstjóri í ítarlegri
greinargerð um störf Skógrækt-
ar ríkisins á s.l. ári í nýútkomnu
ársriti Skógræktarfélags íslands.
Af þeim 550 þúsund trjáplönt-
um, sem gróðursettar voru hér
á landi í fyrra voru 30 þúsund
garðplöntur, en hitt allt skógar-
plöntur, sem gróðursettar voru
víðsvegar um land.
Innköllunar-menn Lögbergs
Bardal, Miss Pauline Minneota, Minnesota
Minneota, Minnesota Ivanhoe, Minnesota
Einarson, Mr. M Arnes, Manitoba
Fridfinnson, Mr. K. N. S. Arborg, Manitoba
Arborg, Manitoba Geysir, Manitoba Hnausa, Manitoba Riverton, Manitoba Vidir, Manitoba
Arnason, Mr. R Elfros, Saskatchewan
Gislason, T. J. Morden, Manitoba
Gislason, G. F. Churchbridge, Sask. Bredenbury, Sask.
Grimson, Mr. H. B. Mountain, North Dak.
Mountain, N.D. Edinburg, North Dak. Gardar, North Dak. Hallson, North Dak. ; Hensel, North Dak.
Johnson, Mrs. Vala Selkirk, Manitoba
Bjarnason, Mrs. I. Gimli, Manitoba
trimli, Manitoba Husavik, Manitoba “Betel”, Gimli, Man. ; Winnipeg Beach, Man ;
Lindal, Mr. D. J. ...Lundar, Manitoba
Lyngdal, Mr. F. O. Vancouver, B.C. i
5973 Sherbrook St. Vancouver, B.C. ;
Middall, J. J. Seattle, Washington
6522 Dibble N.W. ’ Seattle, Washington
G J. Oleson Glenboro, Manitoba
Glenboro, Man. Baldur, Manitoba ! Cypress River, Man.
Olafson, Mr. J. Le»He, Saskatchewan
Simonarson, Mr. A. Blaine, Washington !
R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. Bellingham, Wash.
Sigurdson, Mrs. J. Backoo, North Dak.
Backoo, N.D., U.S.A. Akra, North Dak. Cavalier, Noíth Dak. ; Walhalla, North Dak.
Valdimarson, Mr. J. Langruth, Manitoba
Langruth, Man. Westbourne, Manitoba ;
L — - -
Hið þjóðfræga Arnason-skyr
frá Gimli fæst nú í West End
Food Market, Victor og Sargent.
Sími 30 494.
í hitanum er ekkert hollara
en blessað skyrið.
☆
Mr. B. J. Lifman frá Árborg
var í borginni á mánudaginn.
☆
Síðastliðinn föstudag voru
gefin saman í hjónaband í
Fyrstu lútersku kirkju þau
Lorel Virginia Davidson og
Malcolm Andrew Wigg. Séra
Valdimar J. Eylands gifti. Brúð-
urin er dóttir þeirra Mr. og Mrs.
John Davidson, en brúðguminn
sonur Mr. og Mrs. William Wigg.
Mrs. Pearl Johnson söng ein-
söng, en við hljóðfærið var frú
Björg ísfeld.
Að hjónavígsluathöfninni lok-
inni var setin ánægjuleg veizla í
Valour Road Legion Hall. Heim-
ili ungu hjónanna verður í
Sterling Apts., í þessari borg.
☆
•
Látin er nýlega í Selkirk Miss
Halldóra Jóhannesson ættuð frá
Hrappsstöðum í Vopnafirði, góð
stúlka og vinsæl; mun hennar
verða frekar minst áður en langt
um líður.
Þekkir fangelsi nazista og
kommúnista af eigin raun
Frásögn tékknesks verkalýðs'
foringja og flóttamanns
í Kaupmannahöfn
UM ÞESSAR mundir er einn
af leiðtogum jafnaðarmanna í
Tékkóslóvakíu staddur í Kaup-
mannahöfn. Hann er landflótta,
en fjölskylda hans er ennþá í
heimalandinu og er nafni hans
því hér haldið leyndu. Honum
segist svo frá:
Ég hef reynsluna bæði af hinu
nazistíska og kommúnistíska
einræði og það er erfitt að gera
mun þar á. Bæði nazistar og
kommúnistar vörpuðu mér í
fangelsi. Nazistarnir höfðu mig
í haldi í 17 mánuði. Klefinn var
8 fermetrar að flatarmáli. Síðan
höfðu þeir mig 9 mánuði í fanga-
búðum. Eftir stjórnrof kommún-
istanna árið 1948 var ég aftur
settur í fangabúðir. Þar var ég
í 8 mánuði. Nazistarnir létu mig
pó hafa sæng til þess að sofa við,
en hjá kommúnistunum fékk ég
ekki annað en hálm. Það voru
tveir fílefldir Gestapomenn, sem
á sínum tíma handtóku mig, og
3eir snertu ekki byssurnar með-
an á því stóð. Kommúnistarnir
randtóku mig hins vegar 7 sam-
an og allir höfðu þeir byssurnar
lofti. Nazistarnir létu móður
mína vita að ég væri í fangelsi.
Kommúnistarnir létu engan
vita, að ég hefði verið handtek-
inn. Þegar kommúnistarnir
handtóku mig, settu þeir mig í
handjárn og bundu mig auk
jess við bílsæti. Þeir óku með
mig 300 km. leið þannig, og allan
tímann höfðu þeir bindi fyrir
augum mínum. í fangabúðunum
ijá þeim skeði það oft, að ef
kommúnistarnir töldu, að fang-
arnir vissu meira en þeir vildu
segja frá, þá sóttu þeir konur
þeirra og börn og pyntuðu fang-
ana til sagna að þeim ásjáandi.
Eftir að þeir létu mig lausan,
átti ég að teljast „frjáls maður“,
en kommúnistarnir héldu stöð-
ugt njósnum um mig. Mér tókst
þó að komast yfir landamærin
í maí árið 1949. Móðir mín var
ennþá í Tékkóslóvakíu. Ég hef
ekkert af henni frétt og hún
ekki af mér.“
Um ástandið f Tékkóslóvakíu
farast honum svo orð:
„Óánægjan meðal verkamanna
þar fer stöðugt vaxandi og af
þeim sökum herða kommúnist-
arnir sífelt tök sín á þeim. Frelsi
verkamannanna er ekkert nema
nafnið tómt, kjör þeirra versna,
kröfurnar um aukna framleiðslu
verða stöðugt háværari. Fólk
sveltur þar að vísu ekki, en
matarskammturinn og verðlagið
er ekki valdhöfunum til hróss.
Innan kommúnistaflokksins á
sér stað hörð valdabarátta. Það
sína bezt hinar stöðugu „hreins-
anir“ þar í landi. Þeir, sem í dag
eru dýrkaðir sem hetjur, eru
máske á morgun stimplaðir land-
ráðamenn og skemmdarverka-
menn — allt þekkt fyrirbrigði
frá öllum löndum, þar sem
kommúnistar hafa náð undir-
tökunum. Ástæðan til þessara
„hreinsana“ er sögð vera „Tító-
ismi“. Ég held hins vegar að það
sé blekking ein. Það er vægðar-
laus valdabarátta, og þeim, sem
bíður þar lægra hlut, er misk-
unnarlaust útrýmt.
—Alþbl., 15. júní
í skýrslu sinni skýrir skóg-
ræktarstjóri einnig frá því að
viðarhögg sé mjög að aukast frá
því sem verið hafi um mörg
undanfarin ár. Stafar þetta eink-
um af hækkandi kolaverði, því
viðurinn er fyrst og fremst not-
aður til eldiviðar. Á árinu sem
leið nam skógarhöggið 314 tonn-
um og þar af var langsamlega
mestur hlutinn, eða 229 tonn úr
Vaglaskógi. Telur skógræktar-
stjóri að í Fnjóskadal einum
mætti höggva um 1000 tonn viðar
árlega, en með því myndi
sparast innflutningur á kolum
er næmi 500 tonnum á hverju
ári, auk þess sem viðurinn er
mun ódýrara eldsneyti heldur
en kolin.
í gróðrarstöðvum skóræktar-
innar var unnið meira en
nokkuru sinni fyrr. Var sáð í
samtals 3169 fermetra, sem er
rösklega helmingi meir en það
svæði, sem í var sáð 1949. Dreif-
settar voru rösklega hálf milljón
plantna.
Unnið var að ýmsum bygging-
arframkvæmdum, girðingum og
þess háttar á árinu. Helztu girð-
ingar voru að Hvammi í Dölum,
Skorradal, Bessastöðum og Foss-
seli.
Af byggingarframkvæmdum
má geta þess að á Tumastöðum
í Fljótshlíð hefir verið unnið að
smíði kælihúss og var því að
mestu lokið um áramótin. Á
Þórðarstöðum var unnið að
stækkun íbúðarhússins og á
Hallormsstað var einnig unnið
að endurbótum íbúðarhúss.
. Auk framangreidrar skýrslu
flytur ársritið ýmsar greinar og
hvers konar fróðleik varðandi
skógrækt og landgræðslu. Þar er
grein eftir F. Osborn, er nefnist
„Sextíu þúsundir á sólarhring
hverjum," Hákon Bjarnason
skrifar um berfrævinga, Sturla
Friðriksson um trjágróður Eld-
lands og Magellanshéraðs, Einar
G. E. Sæmundsen um fræsöfnun
í Alaska 1950 og Daníel Krist-
jánsson grein, er hann nefnir
„Trjágarðurinn á klettinum.“
Loks eru svo skýrslur og reikn-
ingar, fundargerðir o. fl.
Ársritið nær að þessu sinni
bæði yfir árið 1951 og 52.
—VÍSIR, 8. júlí
Hann: — Haldið þér, að þér
gætuð lært að elska mig?
Hún (með 18 gráðu frostkulda
í röddinni): — Ekki skil ég í því.
Hann: — Átti ég ekki koll-
gátuna. Orðin of gömul til að
læra.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 24. ágúst:
Ensk messa kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síð.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Spurningar og svör varðandi canadíska banka
Hverjir stjórna hinum
löggiltu bönkum?
Hi
,inum tíu löggiltu bönkum í Canada, er
stjórnað af starfsfólki þeirra, 45,000 mönnum
og konum. Þetta fólk lærði bankastörf á ungum
aldri og kyntist þeim í öllum atriðum þegar
frá byrjun.
Þetta gildir eins um bankaforseta, bankastjóra
og féhirðirinn, sem skiptir ávísun yðar og leggur
saman upphæðir sparisjóðsbókarinnar.
Bankaþjónar hækka í stöðu eftir því sem æfing
þeirra eykst. Þeir læra bankastörfin við daglega
iðju — tíðum í mismunandi útibúum víðsvegar
um landið. Með þessum hætti kynnast þeir ná-
kvæmlega Canada, fólkinu og hinni marg-
háttuðu starfsemi, sem og þeirri fjölbreyttu
þjónustu, sem bankarnir veita.
Þér munuð sannfærast um, að bankastjórinn
og starfsfólk hans í nágrenni yðar gera alt sem
í þeirra valdi stendur yður í hag.
EUi uf auKlýslngunum, sem
BANKINN í NÁGRENNI
YÐAR BIRTIR