Lögberg - 23.10.1952, Side 3
3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. OKTÓBER, 1952
SIGURÐUR MAGNÚSSON:
Farið út á yztu þröm
Heimsókn í musierið, sem byggi var úr efnum frá
íialíu og Kína
Litið inn á knæpu þar sem þrælar ópíumsins þjóna eiiurguðnum
BANGKOK, laugard. 23. 8. — Það heitir Wat Benchamabopitr, sem
þýðir „hofið er reist var af fimmta einvaldanum,“ en það er þó
oftast nefnt Marmaramusterið, og þannig kennt við byggingar-
efnið, sem er aðaluppistaða þess
leið út til ítalíu.
Raunar var einnig farið upp til
Kína eftir tígulhellunum í þökin,
en eðalsteinar, gull og aðrir góð-
málmar, sem prýða hinar mörgu
byggingar að utan og innan, sótt-
ir til margra fjarlægra landa. —
Frægustu húsagerðarmeistarar
ríkisins voru tilkvaddir, en þeir
sóttu aftur ráð utan að og
lögðust á eitt um sköpun lista-
v e r k s , sem samboðið væri
f i m m t a einvaldanum, Chula-
longkorn konungi, sem ákvað
árið 1899 að láta endurreisa
þetta gamla musteri, svo að það
yrði sæmilegt minnismerki sjálf-
um honum og Gautama Búdda
til dýrðar. Það var einmitt á
þessum stað, sem Chulalongkorn
eða Rama V, hafði í æsku gegnt
prestþjónustu, og þangað ákvað
hann að flytja skyldi ösku lík-
amsleifa sinna, er dagur hans
væru allir, og setja hana undir
fótskör sjálfs Phra Buddha Jin-
arja.
Meðan unnið var að musteris-
byggingunni hugkvæmdist kon-
ungi að gaman væri að safna á
einn stað margvíslegum mynda-
styttum, er sýndu hvernig lista-
menn ólíkra tímabila og ýmissa
þjóðerna hefðu mótað hugmynd-
ir sínar um meistarann Buddha,
og í því skyni lét Rama konung-
ur bæði leita um allt ríki sitt og
einnig til annarra landa. Árang-
urinn varð sá, að um 500 styttur
standa nú í súlnagöngum must-
erisins, allar í meira en líkams-
stærð, flestar ævagamlar, en
nokkrar eftirlíkingar fornra og
frægra höggmynda, sem sjálfar
voru of litlar til þess að falla inn
í þá umgerð, er sköpuð hafði ver-
ið í þessu skyni.
Munkarnir fjórir
Þarna situr meistarinn í ýms-
um stellingum. Hann er t.d. með
krosslagða fætur og í andlegri
uppljóman, stendur og réttir
fram hendur til þess að hasta á
hafið, setur niður deilur milli
manna, skýrir hin leyndardóms-
fullu rök lífs og dauða, rís, sigri
hrósandi, upp af krónu lótus-
blómsins, íhugull, dularfullur,
oftast alvörugefinn, en stundum
brosmildur og ljúfur.
Fjórir snoðklipptir munkar,
klæddir gulum skikkjum, ganga
hægt og stefna inn í musteris-
garðinn, þar sem við stöndum.
Seo Hemanchayart, leiðsögu-
maður minn, sem man hvers ég
hef óskað, segir: „Nú“ — og þá
göngum við fram á móti munk-
unum, leggjum lófa saman og
hneigjum okkur. Þeir nema stað-
ar og svara kveðjunni á sama
hátt. Hemachayart tekur þá tali.
Af látbragði þeirra er mér ljóst,
að afráðið sé að verða við óskum
mínum. Svo göngum við allir
sex inn í eitt hinna mörgu af-
hýsa musterisins. Þar eru okkur
fengnir stólar, en munkarnir
fjórir setjast með krosslagðar
fætur upp á pall. Þeir eru ber-
sýnilega í bezta skapi, lausir við
alla tilgerð og koma frjálsmann-
lega fyrir. Fyrst hélt ég, að þeir
væru allir um tvítugt, en svo
kom í ljós að tveir voru hálf-
þrítugir en hinir nokkuð á fert-
ugsaldri, og er þetta eitt af því
marga, sem veldur því að eftir-
leiðis mun ég skipta fólki hér í
þrjá flokka, börn, unga og
gamla, en til þeirra, sem ég nefni
unga, geta þeir talizt, sem eru
frá 18-45 ára, og er mér oft alveg
ómögulegt að segja, svo að vit
sé í, á hvaða þrepi þess aldurs-
stiga staðið er.
Sá munkanna fjögurra, er
elztur var í hettunni og orð hafði
fyrir þeim bræðrum, heitir Kiti-
, og sótt var á sínum tíma alla
wong Veshi. Hann mælti á þessa
leið:
„Sá er siður hér í Siam, að
þeir, er vilja vera með mönnum
taldir, verja a.m.k. þrem mán-
uðum æsku sinnar til prestþjón-
ustu og er það talið lágmark
þess, er þarf til þess að kynnast
grundvallaratriðum trúarbragða
vorra, auk þess sem hreinlífi er
öllum unglingum hollur skóli.
Heimilt er þó hverjum að fara,
er hann vill, áður en lokið er
þessum þriggja mánaða tíma, en
talinn er það vottur iskyggilegs
óstöðuglyndis að fara fyrr en
þetta skeið er á enda.
Margir þeir, er ákveða sjálfir
að verða prestar gera það að
ráði ættingja, hefja þjónustu
þegar á unga aldri, en tvítugir
taka þeir venjulega ákvörðun um
hvort áfram skuli haldið eða
aftur snúið. Heimilt er hverjum
að hverfa úr prestastétt og taka
upp önnur störf, hvenær sem
þess er óskað.
Ég kom fyrst fjórtán ára gam-
all 1 klaustur og eru nú þrettán
ár síðan ég, þá tvítugur, hafði
aldur til að ákveða sjálfur að
helga líf mitt þessarri köllun.
Fari svo að ég sannfærist um að
önnur störf væru mér eiginlegri,
þá má ég, átölulaust, fara héðan
á morgun. —
Sá, sem vill helga líf sitt prest-
þjónustu þarf til þess eftir-
greint: þrjá gula dúka, en það
eru þrenn föt okkar, því að við
notum ekki annað fatnaðar, en
einn gulan dúk í senn, rakvél,
nál, tvinna og vatnsílát.
Algengt er að þeir, sem fjáðir
eru, gefi klaustri því, þar sem
þeir kjósa að dvelja, eignir sín-
ar, en fleiri eru þeir þó, sem
koma með tvær hendur tómar.
Mörg eru klaustrin rík að jarð-
eignum, en önnur eiga lítið sem
ekkert af löndum eða lausum
aurum og verða prestarnir þá að
lifa á því einu, sem þeim er gef-
ið hverju sinni.
Við byrjum daginn klukkan
4 á morgnana, en þá erum við
vaktir með bjölluhljómi og er
þá risið úr rekkju. Fyrsta klukku
tímanum verjum við til bæna-
lesturs, en klukkan 6 eigum við
að vera komnir út í götur og
göngum við þá framhjá flestum
húsum borgarinnar, svo að öll-
um, er vilja, gefist tækifæri til
þess að minnast hins mikla
meistara vors með því að láta
blóm eða mat, — oftast hrísgrjón
— af hendi rakna til okkar. Þér
megið ekki kalla þetta betl. Það
er alrangt, því að það erum við
sem gefum. Svo er hverjum í
sjálfsvald sett, hvort hann notar
tækifærin.
Við borðum árbít um 9 leytið,
eftir að heim er komið frá því að
áminna almenning um að rækja
trú sína, og að því búnu lesum
við í hinum helgu fræðum til kl.
11, en þá neytum við hinnar einu
máltíðar dagsins. Eftir það meg-
um við ekkert bragða nema te
eða vatn. Frá kl. 12-6 megum
við verja tímanum að vild, og
lesa margir þá, en frá kl. 6-7.30
flytjum við kvöldbænir í kap-
ellu og næstu klukkustundirnar
eru oftast notaðar til andlegrar
íhugunar, unz gengið er til náða.
Maturinn í klaustrunum er
einfaldur en hollur og eru hrís-
grjón oft helzta uppistaða mál-
tíðarinnar. Við sofum á hörðum
trébekkjum. Áfengis megum við
ekki neyta, en tóbak er okkur
heimilt. Krafan um einlíf er und-
antekningarlaus. Við megum
ekki fara í leikhús eða sækja
kvikmyndasýningar en 1 e i k i
megum við fara í heima í
klausturgarði. Okkur er gefinn
kostur á að sækja skóla, þar sem
kennt er allt það, er varðar
Buddhatrú, en auk þess eitt eða
tvö tungumál.
Hér hef ég nú reynt að verða
við ósk yðar um að segja frá
nokkrum þeim atriðum, sem
varða, ef svo mætti segja, hið
ytra borð embættis vors. Hitt
— hið innra — verður ekki
skýrt. Það verður einungis lif-
að, og það er venga þess, sem ég
hef verið hér í nítján ár og mun
verða öll þau ,sem ég á ólifuð.
Lífsflótti, spyrjið þér? Vitan-
lega. Það er mergurinn málsins
og takmarkið að hverfa alveg
frá þessu lífi til annars, sem
betra er og æðra.“
Samtalinu var 1 o k i ð. Svo
spenntum við greipar og hneigð-
um okkur. Eftir litla stund var
Wat Benchamabopitr — marm-
aramusterið mikla — að baki,
þar sem fim'mtíu Búddhar standa
vörð um ösku Rama hins
fimmta, þar sem hún hvílir við
gullinn fótstall Phra Búddha
Sinarja, þar sem munkurinn
Kitiwong Veithi mun síðar leggj-
ast, saddur lífdaga, til hinztu
hvíldar og þannig ná hinu æðsta
takmark ævi sinnar.
Nýr heimur
„Hvert skal nú halda?“ spurði
Seo Hemachayart.
„Það er bezt að fara alla leið
út á hinn endann, svo að maður
hafi einnig þar farið út á yztu
þröm,“ svaraði ég. „Nú er rétt að
koma inn í einhverja ópíumhol-
una.“
„Gott og vel,“ svaraði hann
„Ökum þá í ópíumknæpu.“
Á leiðinni þangað sagði hann
mér að ópíumneyzla væri leyfi-
leg í landinu, en óheimilt væri
að hafa það um hönd nema á
vissum stöðum, sem löggiltir
væru í því skyni, gegn mjög háu
gjaldi, ópíumrækt væri í land-
inu, að það væru Kínaverjar, er
einkum neyttu þess, og að fátítt
væri að menntamenn gerðust
þrælar þessa eiturs, en algengt
væri það meðal menntunarlítilla
erfiðsmanna, einkum samlor-
anna, hinna þríhjólandi stéttar
bræðra kínverzku kúlianna.
Hann kvað eitt ópíumhylki
kosta hálfan sjötta tecal, en sú
mynt er að verðgildi svipuð ís-
lenzkri krónu, og úr því fengj-
ust 5-6 pípur, en algengt væri að
menn neyttu a. m. k. tveggja
hylkja á dag. — Raunar færi það
mjög eftir efnahag manna og
þess væru mörg dæmi að menn
eyddu öllu fé og hverri stund til
ópíumneyzlunnar og að margir
glæpir ættu rót að regja til þess
að verið væri að útvega peninga
til ópíumreykinga.
Við stöðvuðum nú bifreiðina
ög gengum þar inn, sem mér
sýndist fyrst vera venjulegt
veitingahús, því að nokkrir menn
sátu í anddyri og supu gos-
drykki eða kaffi, en þegar
lengra var komið og augun farin
að venjast rökkrinu, þá opnað-
ist alveg nýr heimur.
— VÍSIR, 5. sept.
í Hagtíðindum er þess getið að
fyrstu 7 mánuði þessa árs eða
frá áramótum til júlíloka hafi
verið fluttar inn drykkjarvörur
fyrir um eina silljón króna, eða
nánar tiltekið fyrir milljón og
50 þúsund krónur. Hins vegar
hefur áfengisverzlun ríkisins á
sex fyrstu mánuðum ársins, eða
til júníloka, selt áfengi fyrir
hvorki meira né minna en um
30 milljónir króna eða nánar til-
tekið kr. 29,593,238, og geta menn
á þessu séð lítið dæmi um álagn-
ingu ríkisins.
Það, sem af er þessu ári hefur
áfengissalan þó verið í heild
heldur minni í krónutali en á
sama tíma í fyrra. Fyrri helming
Mirtningarorð
Guðmundur Pétursson andað-
ist að Elliheimilinu Betel, á
Gimli, þann 26. sept. Hann var
fæddur að Hólmakoti í Hraun-
hreppi í Mýrasýslu 31. ágúst
1877. Foreldrar hans voru Pétur
Guðmundsson bóndi þar og
fyrri kona hans Sigurlaug Sig-
urðardóttir, systir Sigurðar Sig-
urðssonar kennara við Mennta-
skólann í Reykjavík, er ungur
druknaði í Reykjavíkurhöfn.
Guðmundur missti móður sína
á barnsaldri, en ólst upp með
föður sínum og síðari konu hans,
Margréti ólafsdóttur frá Skíðs-
holtum. Þau fluttu vestur um
haf 1902 og settust að í Geysis-
byggð í Nýja-íslandi. Átti Pétur
systur þar í byggð, Mrs. Björg-
hildi konu Gísla bónda Gísla-
sonar á Gilsbakka. Pétur faðir
Guðmundar bjó í Fljótsdal, og
þar andaðist hann. Tvö hálf-
systkini Guðmundar, Sigurður
Kristinn og Ragnhildur, dóu á
unga aldri. Ein hálfsystir hins
látna, Mrs. Halldór Sigurðsson í
Winnipeg, er á lífi.
Vel reyndist Guðmundur föð-
ur sínum og heimili hans. Eftir
lát föður síns átti Guðmundur
jafnan heima í Fljótsdal, og bjó
einn, en vann jöfnum höndum
utan heimilisins árum saman
meðan kraftar hans leyfðu. Var
hann trúr þjónn, vandaður mað-
ur og trygglyndur; engum manni
vildi hann mein gera.
Guðmundur var fremur ein-
mana maður, og efri æviárin
urðu honum alltorsótt leið upp
á hinn örðuga hjalla efri áranna.
Hann átti trygga vini, er hann
hafði athvarf hjá, sem glöddu
hann og réttu honum kærleiks-
hönd — og þeirra á meðal var
systir hans og maður hennar.
Guðmundur hændi að sér börn
og var einkar barngóður maður.
Sá, er línur þessar ritar, minn-
ist hjálpsemi hans og hlýleika í
fiskiveri á Winnipegvatni og
bróðurlegrar samúðar, er hann,
harðþjálfaður og öllu vanur,
sýndi nýkomnum „emigranta"
unglingi.
Ef til vill hafa aðrir sömu sögu
að segja. — Verðmætin eru ekki
öll í löndum og lausum aurum,
heldur einnig fólgin í því að
létta öðrum byrðar og rétta
hjálparhönd, ef þess er kostur;
en það hygg ég að Guðmundur
Pétursson hafi jafnan verið fús
að gera meðan hann mátti. —
Þrotinn að heilsu og þreki fyrir
aldur fram kom hann til Betel
15. nóv. 1951, varð því dvöl hans
þar nokkru skemmri en eitt ár.
Á Betel naut hann góðrar að-
hjúkrunar og leið vel þótt heilsu
hans hrakaði. Var hann þakk-
látur fyrir að hafa komist þar
í höfn; hann andaðist þar, eins
og að ofan er getið. — útför hans
fór fram frá Elliheimilinu Betel
undir stjórn sóknarprestsins á
Gimli.
Við Geysis-kirkju fjölmenntu
vinir og nágrannar hins látna
manns. Undirritaður flutti þar
kveðju mál og jós moldu.
ársins n:m salan þá kr. 29,841.70,
en á fyrri helming þessa árs kr.
29,593,238.
í Reykjavík var vínsalan um
hálfri milljón króna minni nú,
en í fyrra. Þá nám vínsalan í
Reykjavík fyrri helming ársins
kr. 24,356,968, en nú kr. 23,891,
024; á Akureyri nam vínsalan í
fyrra kr. 2,433,814, en nú kr.
fyrra en nú kr. 626,400; á Seyðis-
2,364,393; á ísafirði kr. 582,269, í
firði kr. 369,684 í fyrra, en kr.
406,009 nú; á Siglufirði kr. 752,
152 í fyrra, en kr. 771,558 nú; í
Vestmannaeyjum kr. 1,346,823 í
fyrra, en nú kr. 1,534,008.
— A. B. 4 sept.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
PHONE 92-6441
J. WILFRID SWANSON & CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate - Mortgages • Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave., Winnlpeg
PHONE 74-3411
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh Sl. Winnipeg
PHONE 92-4624
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Ashphalt Roofs and Insulated
Siding — Repairs
Country Orders Attended To
632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
Sími 59
Sérfrœöingar i öllu, sem aö
útförum lýtur
BRUCE LAXDAL forstjóri
Licensed Embalmer
%
Dr. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7932
Home Telephone 42-3216
Dr. ROBERT BLACK
SérfrœBingur i augna, eyrna, nef
og hálssjúkdðmum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-3851
Heimasimi 40-3794
Comfortex
the new sensation tor the
modern girl and woman.
Call Lilly Matihews. 310
Power Bldg., Ph. 927 880
or evenings. 38 711.
Gundry Pymore Ltd.
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST. WINNIPEG
PHONE 92-8211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage will be appreclated
Minnist
EETEL
í erfðaskrám yðar.
PHONE 92-7025
H. J. H. Palmason, C.A.
Chartered Aecountant
505 Confederation Life Building
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barrisiers - Solicilors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 92-356]
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
404 SCOTT Blk. Síml 02-5227
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Kaupið Lögberg
S. Ólafsson
Drykkjarvörur fluttar inn fyrir 1 millj.
kr.# en seldar hér fyrir 30 millj.
Business and Professional Cards