Lögberg - 23.10.1952, Side 5

Lögberg - 23.10.1952, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. OKTÓBER, 1952 5 wwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww \l I 4 W4AI IVISNA M) \ / Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON C. A. C. Neytendafélag Canada — Canadian Association of Consumers Húsmæður annast um innkaup fyrir heimilin og fjölskylduna; talið er að 85 prósent af því fé, sem varið er til innkaupa í Can- ada, fari í gegnum hendur kvenna. Það er síður en svo að konur séu alltaf ánægðar með þær vörur, sem eru á boðstólum hvorki hvað snertir verð þeirra eða fráganginn á framleiðslu þeirra, en fram til síðustu ára hafa þær litlu getað áorkað til bóta í þeim efnum b'æði vegna þess að áhrifa þeirra gætir lítt í stjórnmálunum — þær eiga fáar sæti á þingi eða í stjórnar- nefndum — og vöruframleiðslan er að mestu í höndum karl- manna. Eini vegurinn er að húsmæð- ur landsins sameinist; aðeins þannig geta þær gætt hagsmuna sinna. The National Council of Women leitaði víðsvegar skoð- ana kvenna um þetta mál og komst að þeirri niðurstöðu að 80 prósent kvenna í Canada æsktu þess að konur mynduðu alþjóðarsamtök sín á milli í þeim tilgangi að gefa húsmæðrum leiðbeiningar um innkaup á vörum; í öðru lagi til að þær hefði félag er yrði milliliður milli neytenda og stjórnarinn og milli neytenda og vörufram- leiðenda. Ef þetta neytenda- eða húsmæðrafélag yrði öflugt myndu stjórnarvöldin og fram- leiðslufélögin sjá þann kostinn vænstan að taka leiðbeiningar þess til greina. Fyrsta sporið í þá átt að stofna félagið var að fá stjórnina til að leggja fram fé í ferðakostnað til Ottawa fyrir fulltrúa frá fimmtíu og sex leiðandi kvenna- samtökum landsins og lét stjórn- in af hendi rakna $15.000 í þess- um tilgangi. Þing þetta var háð 1947 og voru þar samankomnir forsetar landssamtaka kvenna í öllum stjórnmálaflokkunum, — I.O.D.E., úr kirkjudeildum pró- testanta, kaþólskra, gyðinga, hjálpræðishernum og frá Busi- ness og Professional Women’s Club og mörgum fleiri. Þótt þetta væri all-ósamstætt lið, ríkti hin mesta eining á þinginu er bar þann árangur að öflugt og virðulegt neytendafélag hús- mæðra alls landsins var stofnað þá þegar án frekara tilstands — Canadian Association of Con- sumers — og þykir þetta fyrir- brigði einsdæmi í sögunni um einingu og samtakavilja kvenna. í félaginu eru nú yfir 13.000 ein- staklingsmeðlimir auk fimmtán landssamtaka kvenna, er telja um 500.000 meðlimi. Getur hvaða kona sem vill gengið í félagið með því að senda 50 centa með- limagjald til Canadian Associa- tion of Consumers, 1245 Well- ington Street, Ottawa 3, Canada, og fær hún þá mánaðarlega ýmsar leiðbeiningar um inn- kaup, og skýrslur um starf fé- lagsins. Þangað getur hún og skrifað varðandi það, er henni finnst ábótavant við þá vöru er hún kaupir. C. A. C. hefir lagfært margt og komið miklu góðu til leiðar síðan það var stofnað fyrir fimm árum. — Húsmæður í St. John, New Brunswick, höfðu hugboð um það að bakarabrauð- in væru ekki fullar 24 únzur, eins og þau eiga að vera þar. C. A. C. konur þar keyptu 18 brauð víðsvegar um bæinn og fengu umsjónarmann stjórnar- innar til að vlgta brauðin, og vógu þau aðeins 20 únzur; þetta varð til þess að hann sá um framvegis að reglunum væri framfylgt. Konum 1 Quebec fannst að kjötframleiðslufélögin væru að reyna að ginna þær með því að vefja bacon innan í gegnsæjan pappír með rauðum röndum. — C. A. C. valdi eina borg, Stath- more í Quebec, sem tilrauna- stöð; öllum félagskonum þar var tilkynnt að þær skyldu krefjast þess, að kjötsölumaðurinn tæki umbúðirnar af hinu dulbúna bacon áður en þær keyptu það. Ekki leið á löngu áður en kjöt- sölumenn borgarinnar sendu umkvörtunarbréf til kjötfram- leiðslufélaganna með þeim ár- angri að þau héldu fund með forseta C. A. C. samtakanna og rauðu randirnar eru nú að hverfa af bacon umbúðunum. Margt fleira gagnlegt hefir C. A. C. framkvæmt og verður þess getið af og til í þessum dálkum; aðeins verður hér til- færð ein sönnun enn um nyt- semi og framtak þessara kvenna samtaka: Sápur og þvoltaduft C. A. C. rannsakaði sápu- og þvottaduft og komst að því, að það var ekki hægt að reiða sig algerlega á ráðvendni framleið enda þessarar vöru. Duftið er selt í pökkum í þremur stær&- um og á að vera helmingi meira duft í miðlungspakkanum en í þeim minsta og helmingi meira í stærsta pakkanum en í miðl- ungspakkanum. En við rann sókn kom það í ljós, að eitthvað höfðu framleiðendurnir kákað við vogina því minstu pakkarn- ir reyndust vera beztu kaupjn. C. A. C. sýndi stjórnarvöldunum fram á, að stærðin á sápu- og þvottaduftspökkunum væri eng- in sönnun fyrir því hve mikið væri í þeim. Árangurinn af því varð sá, að sambandsþingið sam- þykkti lög 1951 þess efnið að allir vöruframleiðendur yrðu að stimpla vöruþyngdina á pakk- ana, á alla vöru, sem seld er pökkum. — Engar vörur eru auglýstar eins mikið og sápu- og þvotta- duft; fæstir leggja trúnað á aug' lýsingarnar og reyna að loka augum og eyrum fyrir þeim. Tegundirnar eru svo margar og nöfnin svo mörg, að fæstar kon ur vita hvers konar sápu, eða duft þær eigi að velja. 1 C. A. C. Bulletin, sem út kom í apríl og sent er öllum félagskonum eru ágætar leðibeiningar um hinar mismunandi tegundir: Fáanlegar eru fjórar tegundir af sápu- og þvottadufti, sem er þannig gerðar að hægt er að nota það við hvers konar þvott á heimilinu. 1. Fyrst er hrein óblönduð sápa í sápustykkjum, sápuflís- um og sápudufti. Það er Maple Leaf Flakes, Ivory Snow, Ivory Flakes, Princess Flakes og Lux. Ekkert kemst í hálfkvisti við þessa óblönduðu sápu í rignar- vatni eða „soft“ vatni fyrir þvott á fínum fötum og dúkum, sem ekki eru mjög óhreinir. 2. Við suma sápu er bætt al- koline-blöndu til þess að ná úr miklum óhreinindum og einnig er bætt við sápuna fluorescent- lit — hin svokallaða „hvítari en hvít“ sápa. í þessum flokki eru Thrift Soap Flakes, Quix, Chipso, Rinso, Oxydol og Supersuds. Þessar sápur eru sérstaklega góðar til að ná miklum og fitu- kendum óhreinindum úr fötum og dúkum. Ekki er ráðlegt að þvo úr þeim ull eða fín föt. 3. Þá er komið að hinum „sápulausu sápum“ — synthetic detergents. — Hinar léttari og fíngerðari eru Dreft og Vel. Þær eru ágætar fyrir ullarefni og fín- gerð efni, einnig fyrir litað efni, ef hætta er á því að það láti litinn. Þær eru og ágætar við diskaþvott; sápuifroðan rennur af diskunum og þeir verða speg- ilgljáandi. Bezti kostur deter- gant sápunnar er, að hægt er að nota hana í kalkblönduðu (hard) vatni og einnig í „soft“ vatni og jafnvel í sjávarvatni. 4. 1 fjórða flokknum eru hið sterkara þvottaduft — Tide, Fab, Surf og Bye. í þessu dufti er synthetic detergents og alko- line og önnur efni til þess að auka kraft þeirra við að ná ó- hreinindunum úr þvottinum, einnig er venjulega í þeim fluorescent litur og í sumum er carboxymethyl cellulose til þess að þvotturinn verði ekki gráleitur eins og oft vildi verða fyrst er detergent þvottaduftið kom á markaðinn. Þetta duft er ágætt til þ'votta þar sem þvotta- vatnið er kalkblandað — hard. Stundum reynist vel að blanda saman sápudufti og detergent dufti. MINNINGARORÐ: Sigurður Finnsson landnámsmaður og bóndi í Víðisbyggð í Manitoba F. 8. jan. 1880 — D. 29. júlí 1952 Svo minnumst ei á biturt strit og stríð Né stutta œvi, löngu týndar grafir, Og allt það fjör, sem fórst í miðri hlíð, Né förlað þol og beztu vona tafir. Því hvern skal segja sælli en landnámsmann? Með sigurhug í Ijóði og handartáki, Með nýja og víða veröld framundan, Og vegleg óðul feðra sinna að baki. -STEPHAN G. STEPHANSSON Dánarminmng Það hefir dreglst alltof lengi að rita dánarminningu Felixar heitins Sigmundssonar frá Grund, þar sem nú eru liðin meir en tvö ár síðan hann lézt. En betra er seint en aldrei. Séra Bjarni A. Bjarnason, er jarðsöng Felix heit., var beðinn að rita hana og birta í íslenzku blöðunum, en einhverra hluta vegna hafði það gleymzt. Foreldrar Felixar voru þau valinkunnu sæmdarhjón Jónína Cuðrún Jónsdóttir og Sigmund- ur Gunnarsson Gíslasonar fræði- manns bónda að Syðra-Álandi í Þistilfirði. Heiman af íslandi fluttist Felix með foreldrum sínum árið 1891 og settust þau að á Grund í Geysisbygð tveim árum síðar, og bjuggu þar allan sinn búskap.. Þegar kraftar þeirra þrutu tók Felix sál. við búsforráðum og hjá honum dóu þau bæði fyrir allmörgum árum, og reyndist hann þeim um- hyggjusamur og góður sonur. Börn þeirra Grundarhjóna voru: Sigrún, fyrri kona Jóns Nor- dals, dáin fyrir löngu síðan; Gísli, lengj kaupmaður að Hnausa (dáinn 3. ágúst 1949) kvæntur Ólöfu Sigurbjörgu Dan- íelsdóttur Daníelssonar pósts; Gunnar, dáinn 1928, 36 ára og ókvæntur; Rannveig, gift And- rési fóstursyni Finnboga Firm bogasonar frá Finnbogastöðum í Breiðuvík; Felix Sigurbjörn, fæddur 14. jan. 1882, dáinn 21 apríl 1950, ókvæntur; Sigurrós, gift manni af enskum ættum, búsett í Saskatchewan. Þrjú stúlkubörn ólu þau Grundarhjón upp frá bernskU' skeiði, þær: Sigríði, dóttur Sigrúnar dóttur þeirra, gift James Page, Win- nipeg; Lillian, dóttur Gísla son- ar þeirra, dáin ung að aldri; Pearl, dóttur Rannveigar dóttur þeirra, gift manni af norskum ættum, Magnusi Wold, búsett í nágrenni við Grund; mun Pearl hafa dvalið hjá afa sínum og ömmu meðan þau lifðu. Felix sál. bjó á Grund í mörg ár eftir lát foreldra sinna, eða þar til hann kenndi banameins síns. Eftir það settist hann að hjá Pearl frænku sinni og manni hennar, og þar andaðist hann eftir langt og strangt sjúk- dómsstríð. Banamein hans var krabbi í lungunum, reyndist frænka hans honum með af- brigðum vel. Felix sál. var ágætur drengur, enda vinsæll mjög; hans er því saknað að makleikum bæði af vinum og vandamönnum. Gott var nágrönnunum að leita til Felixar um hjálp, ef á lá; fáir munu bónleiðir hafa brott vikið, ef þess var kostur að uppfylla. Jóhannes H. Húnfjörð Sigurður Finnsson var fæddur í Mikley í Winnipegvatni, 28. júlí 1880. Foreldrar hans voru Kristjón Finnsson, alkunnur at- orku- og athafnamaður, og fyrri kona hans Sigríður Halldórs- dóttir Friðrikssonar Reykjalíns, prests og prófasts á Stað á Reykjanesi. Sigurður ólst upp í Riverton og varð snemma harð- duglegur og framsækinn. Annan dag febrúarmánaðar 1901 kvænt- ist hann Hildi Jónínu Sigfúsdótt- ur Péturssonar bónda að Skóg- argarði við íslendingafljót og konu hans Þóru Sveinsdóttur. Var Hildur hin ágæasta kona að gjörfuleik og mannkostum og frábær aðstoð manni sínum á langri og farsælli samfylgd þeirra. Hún andaðist 19T. des. 1947 eftir langa rúmlegu. Börn þeirra eru: Thora Sigrún, Mrs. J. B. Jó- hannsson, Árborg; Friðrik, Sig- fús, Halldór Reykjalín; Sigurður Hildibrandur og Ásgeir Ingvi, allir kvæntir og bændur í Víðis- byggð; Hildur Sigríður, Mrs. H. Hibbert, Sylvan, Man.; Salín Rannveig, Mrs. G. Hewson, Vancouver, B.C. Látin eru: Kristjón Baldur, d. 1936 og Sveinn Erling, d. nýfæddur. Öll eru börn þeirra gift, einkar efnilegt fólk og öll búsett í ætt- byggð sinni, utan tvær systur, er annað heimilisfang eiga og skilgreint er; barnabörn eru 31 að tölu. Látin systkini Sigurðar eru: Sigríður, kona Gunnlaugs G. Martin, og Friðjón. Á lífi eru: Mrs. Ingunn Fjelsted, Árborg, Man.; Mrs. Kristín Baldvinsson, Hnausa, Man.; Mrs. Rósa Helga- son, Hnausa, Man.; Mrs. Sigríður Anderson, Árborg, Man.; Miss Guðrún Finnson, Hnausa, Man.; Kristjón, bóndi í Víðisbyggð; Wilfred, bóndi, Hnausa, Man. Sigurður og kona hans bjuggu fyrst í ættbyggð sinni við ís- lendingafljót, en námu land og settust að-í Víðisbyggð eftir alda- mót venju mikinn dugnað og heil- brigða framsóknarþrá. Marg- þætt varð athafnastarf Sigurðar bónda, og varð lífsbaráttan hörð og í mörg horn að líta. Brátt varð bú hans umfangsmikið. Um mörg fyrri ár vann hann utan heimilis síns að afstöðnum sumar- og haustönnum. Er vetur gekk í garð fór hann út í skóga og vann að trjáviðarsögun, og hafði stundum margt manna með sér. Þegar synir hans fengu aldur til urðu þeir ágætir samverka- menn hans, jafnt heima og að heiman; hið sama var að segja um dæturnar, þær voru ágætir hjálpendur móður sinnar á heimilinu, er var eitt af fjöl- mennustu heimilum Nýja-ís- lands. Þar hélt um stjórnvöl hin ágætasta eiginkona og móðir, er átti flesta þá kosti, er góða konu mega prýða; er hún með öllu ógleymanleg ástvinaliðinu eftirskilda, samferðafólki og vinum. Sigurður ávann sér traust sveitunga sinna og allra þeirra, er kynni höfðu af honum. Hann átti stóra hlutdeild í og frum- kvæði að mörgum framkvæmda málum byggðar sinnar og héraðs, og mátti jafnan eiga vísa aðstoð Sigurður Finnsson honum vel og gáfu eðlilega útrás hæfileikum hans. Nokkuð var hann kappsfullur, ef því var að skipta; skapgerðin karlmannleg og hvergi hvikul. Að öllu leyti var hann hinn ábyggilegasti, trúfastur og sannur vinur, er í raun reyndist ágætlega vel. Sigurður var einkar glæsilegur maður, mikill að vallarsýn, með hærri mönnum, en fremur grannur á vöxt; svipurinn karl- mannlegur og nokkuð harðger; ímynd norrænnar karlmennsku, eða þannig kom hann mér fyrir sjónir. — Þráðbéinn og íturvax- inn var hann að hinzta degi fram. Nokkur síðari árin hætti hann búskap og dvaldi þá í Árborg. Var heilsa konu hans þá mjög að þrotum komin. Annaðist hann um hana eftir beztu getu, og af frábærri nærgætni. Síðustu ævi- ár hennar dvöldu þau á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, við alla þá umönnun, er unnt var í té að láta. Eftir fráfall konu sinnar dvaldi Sigurður aðallega á téðu heimili og leið mjög vel; naut hann sín ágætlega, enda umkringdur af börnum sínum og systkinum, fornum nágrönnum og vinum. Heilsu hans var tekið að hraka, þótt hann bæri sig vel. Fáum vikum áður en dauða hans bar að> lét hann svo ummælt við Sameiginlega áttu þau ó- þann, er þetta ritar, að: „Nú væri hann eins og farmaður^ er biði byrjar til fegurri stranda.“ Dauða hans bar brátt að — störf og athafnir dagsins voru á enda — og þreyttur starfsmaður hafði hlotið lausn frá margþættum önnum og erfiði dagsins, er hann með prýði hafði af hendi leyst. Útför hans fór fram frá heimili dóttur hans og tengdasonar í Árborg og frá samkomuhúsi Víðisbyggðar þann 1. ágúst. — Talið var að um 500 manns væri viðstatt kveðjuathöfnina í heima- byggð hans. — Sá, er þetta ritar, flutti kveðjumál með aðstoð Mr. Virgil Anderson, Stud. theol. S. Ólafsson Fréttir . . . Framhald af bls. 1 fjársjúkdómum eftir því sem til- tækilegt þætti. Hingað er nú kominn á vegum stofnunarinnar skozkur sérfræðingur í sauð- fjársjúkdómum, og mun dveljast hérlendis þrjár til fjórar vikur. ☆ Ákveðið hefir verið að taka upp búfræðikennslu í vetur í þremur héraðsskólum landsins, að Núpi, Reykjum í Hrútafirði og Skógum. Til kennslunnar eru ráðnir búfræðikandidatar, en félag þeirra og fræðslumála- stjóri hafa undanfarin tvö ár unnið að því að kennsla í bú- fræðum yrði tekin á námsskrá við einhverja af héraðsskólun- um. Hjá grannþjóðunum er kennsla í undirstöðuatriðum bú- fræði verulegur þáttur í starfi margra alþýðuskóla. Verknáms- eða smíðadeildir hafa verið við tvo héraðsskóla hérlendis og gefist vel. ☆ 1 vetur fá 22 íslenzkir náms- menn styrki fyrir milligöngu norræna félagsins til náms við lýðháskóla og húsmæðraskóla á Norðurlöndum, og hrökkva styrkir þessir til þess að greiða ýmist allan námskostnaðinn eða meginhluta hans. Langflestir fara til Svíþjóðar, eða 15, tveir til Noregs, einn til Finnlands og fjórir til Danmerkur. 1 vetur stunda tveir sænskir nemendur nám í íslenzkum gagnfræða- skóla og hafa til þess styrk frá sænska ríkinu. ☆ Á síðastliðnum vetri fól menntamálaráðuneytið stjórn íslenzku orðabókarinnar að hafa umsjón með skráningu og út- gáfu nýyrða, sem fé var veitt til á fjárlögum þessa árs. Dr. Sveinn Bergsveinsson var ráðinn til starfans og hefir hann að þessu unnið frá því í febrúarmánuði síðastliðnum. Fyrsta hefti ný- Framhald á bls. 8 Department of Mines and Natural Resources Public Notice Auction Sales of School Lands PUBLIC NOTICE is hereby given that certain School Lands in the Province of Manitoba will be offered for sale by PUBLIC AUCTION at the places and on the dates here- after mentioned: WINNIPEG — October 31st, 1952 — 124 parcels. To be held in Theatre “A”, Government Building, 469 Broadway Ave. GRANDVIEW — November 4th, 1952 — 43 parcels. To be held in the Legion Hall. ROBLIN — November 6th, 1952 — 58 parcels. To be held in the School Auditorium. All sales to o’clock a.m. commence at 10 C0PENHAGEN hans til framkvæmda. Hann var vel gefinn og vel máli farinn; létu praktískar framkvæmdir Lists of Lands, reserve price, terms and conditions of sale may be secured on application to the Lands Branch, Depart- ment of Mines and Natural Re- sources, Room 18, 469 Broadway Avenue, Winnipeg, Manitoba. Dated at Winnipeg, in Manitoba, this First day of October, 1952. R. W. GYLES, Director of Lands, Room 18, 469 Broadway Winnipeg. Bezta munntóbak heimsins Stingandi fótaverkur Þjáist þér 1 leggjunum evo sem hnlf væri stungiB I holdiC ? Veit- ist yBur erfitt aS rétta úr fót- unum? Þósundir mæla meB Templeton’s T-H-C’s vegna skjótrar svíunar & vöðvas&rs- auka. YCur getur batnaC viC aC nota T-R-C's. 65 c., $1.35 i lyfja- búCum. J-838.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.