Lögberg - 23.10.1952, Síða 8

Lögberg - 23.10.1952, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 23. OKTÓBER, 1952 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands þar sýna ýmsir fjöllistamenn. Málari að nafni Veturliði Gunnarsson hefir málverkasýn- ingu í Listamannaskálanum í Reykjavík, og í Listvinasalnum var opnuð í fyrrakvöld sýning báta- og sjávarmynda eftir 23 íslenzka málara, og heitir sú sýning Ör nauslum. Meðal þeirra sem þar eiga myndir, eru Jó- hannes Kjarval, Jón Stefánsson og Ásgrímur Jónsson. ☆ Bókaútgáfan Helgafell hefir gefið út bók eftir Halldór Kiljan Laxness, er hann skrifaði ungur, og dr. Stefán Einarsson fann fyr- ir löngu hjá frönskum munkum. Þetta er eitt af drögum Laxness að Vefaranum mikla frá Kasmír. — I byrjun desembermánaðar kemur út ný skáldsaga eftir Halldór Kiljan Laxness, er hann hefir unnið lengi að. — Helga- fell hefir byrjað útgáfu nýs tímarits um menningarmál, og nefnist það VAKI. Ritstjórar eru fjórir ungir menntamenn. Séra Valdimar J. Eylands Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 26. okt. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Miklar jarðræktarframkvæmdir í Eyjafjarðarsýslu í sumar Úr borg og bygð Þann 19. þ. m. andaðist á sjúkrahúsi að McCreary, Nan. Jóhannes Tryggvi Sigurðsson, fyrrum bóndi í Víðisbyggð, Man. af afleiðingum af slysi. Hann var fæddur að Eyford, N. Dak. 18. maí 1882, sonur Johns Sig- urðssonar og konu hans Þórunn- ar Bjarnadóttur. Jóhannes kom til Canada árið 1900. Þann 27. jan. 1907 kvæntist hann og gekk að eiga Guðrúnu Björgu Hall- grímsdóttur Johnson, er lifir hann, ásamt þessum börnum þeirra, sem öll eru gift: Laufey, Fisher River; Gunnar, bóndi í Víðisbyggð; Þórunn, til heimilis í Winnipeg; Stefanía, Sigurður og Sigurrós, öll búsett í Winnipeg, og Jónína, í Prince Rupert, B.C. Tveir bræður hins látna, Jóhannes og Einar, eru á lífi. Jóhannes bjó um 40 ára skeið í Víðisbyggð, en flutti fyrir 6 árum síðan til Winnipeg. Hann var lífsglaður fjörmaður, er vildi öðrum til góðs vera í hvívetna. Útförin fór fram frá Clark- Leatherdale útfarstofu og Víðis Hall í heimabyggð hans að fjöl- menni viðstöddu. Þar mælti séra Sigurður Ólafsson kveðjuorð og jós moldu. ☆ Frú Þórdís Guðmundsson frá Elfros, Sask., sem gegnt hafði í 40 ár póstmeistaraembætti þar í bænum, er nú alflutt austur til Niagara Falls, Ont., þar sem hún hygst að dvelja framvegis hjá börnum sínum. ☆ The Womens Association of the First Lutheran Church will meet in the church parlors Tuesday, Oct. 28, at 2.30 p.m. ☆ Þeir séra Jóhann Fredriksson frá Glenboro og Jónas Kristjáns- son mjólkuriðnaðarfræðingur af Akureyri, sem dvalið hefir um hríð í Glenboro hjá systur sinni og tengdabróður, Mr. og Mrs. Páll Anderson, komu til borgar- innar á mánudaginn á leið norð- ur til Lundar, en þangað var séra Jóhann kvaddur til að jarðsyngja Bessa Byron frá Oak Point, sem nýlega lézt þar af slysförum, svo sem frá er skýrt á öðrum stað hér í blaðinu. Gefin voru saman í hjónaband á prestssetrinu í Selkirk, Man., þann 18. okt., Norman Douglas Johnstone, Árborg, Man., og Beatrice Eleanor S n i f e 1 d, Hnausa, Man. Við giftinguna að- stoðuðu Miss Sigurbjörg Snifeld, systir brúðarinnar og Mr. Ed- 'ward James Sloma. Nýgiftu hjónin setjast að í Árborg. Séra Sigurður Ólafsson gifti. ☆ Mr. Páll Johnson frá Vogar, Man., var staddur í borginni í fyrri viku. ☆ — GIFTING — Á þriðjudaginn 21. okt. voru gefin saman í hjónaband í París á Frakklandi Miss Thora Asgeir- son, píanisti, dóttir Mr. og Mrs. Jón Asgeirson, Lipton Street, og Ronald Perry Du Bois frá San Francisco; hann er af frönskum og hollenzkum ættum, Master of Arts frá San Francisco háskólanum og stundar nú nám í listmálningu í París. Lögberg flytur ungu hjónun- um innilegar hamingjuóskir. ☆ Mr. Björn Jónasson frá Silver Bay, oddviti Siglunessveitar, var staddur í borginni fyrripart vikunnar. ☆ Mr. H. W. Sigurgeirsson út- gerðarmaður frá Hecla, kom til borgarinnar um helgina. ☆ Dr. Richard Beck prófessor við ríkisháskólann í Grand Forks, N. Dak., og frú, komu hingað norður til að vera við- stödd útför Jóns Sigurðssonar frá Rauðamel, sem fram fór að Eriksdale. ☆ íslenzkar hljómplötur fást nú í Björnsson's Book Store, 702 Sargent Ave., Winnipeg. ☆ Kaupið „Sögu Islendinga í Vebturheimi IV. bindi eftir Próf. T. J. Oleson, $5.75 og $4.50. — Úrval af öðrum bókum á sanngjörnu verði hjá Björnsson's Book Slore, 702 Sargent Ave., Winnipeg. Skógfræðingur fró Alaska kynnir sér skógrækt ó íslandi Hingað er kominn banda- rískur skógfræðingur á veg- um FAO til þess að kynna sér skógrækt á íslandi og veita leiðbeiningar í þeim efnum. Skógfræðingur þessi heitir dr. Raymond Taylor og starfar í Alaska við rannsóknarstöð Bandaríkjanna í Juneau. Aðdragandi heimsóknar dr. Taylors er sá, að á fundi FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna) í Róm s.l. haust, fór fulltrúi ís- lands, Árni G. Eylands, þess á leit við stofnunina, að Islend- ingum yrði látin í té tæknileg aðstoð frá þessum aðila í þeim greinum, sem við teldum þörf á. Varð þetta til þess, að hinn 18. ágúst s.l. var undirritaður samningur um, að hingað kæmu tveir menn frá FAO í þessum erindum. Skyldi annar vera sér- fróður maður um sauðfjársjúk- dóma, en hinn um skógrækt. Nú er skógfræðingurinn kom- inn, eins og fyrr greinir, en von á hinum sérfræðingnum innan skamms. Hér mun dr. Taylor dvelja um hálfan mánuð eða svo, og ferð- ast með fulltrúum Skógræktar ríkisins til þeirra staða, sem gefa bezta hugmynd um skógrækt á íslandi, svo sem til Hallorms- staðar, um Suðurlandsundir- lendi og víðar. ísland er aðili að FAO, eins og kunnugt er, en sú stofnun hefir fjölmörgum heimsfrægum sérfræðingum í ýmsum greinum á að skipa, og má vafalaust vænta góðs af aðstoð þeirri, sem stofnunin getur í té látið. „Laugarnesleir" seldur í Los Angeles Laugarnesleir vekur athygli víðar en á iðnsýningunni, því að munir frá þessu fyrir- tæki eru til sýnis og sölu í þekktri stórverzlun í borg- inni Los Angeles á Kyrra- hafsströnd Bandaríkjanna. Fyrirtækið, sem selur þessa íslen?ku leirmuni, heitir J. W. Robinson, og er talið vanda mjög vöruval sitt og selja ekki nema smekklega og óvenjulega hluti. Það er Hal Linker, kvikmynda- tökumaður og fyrirlesari, sem hefir haft milligöngu um þetta, en hann hefir haft sex sýningar á íslandsmynd sinni í Los An- geles, en áhorfendur voru um 8500. í myndinni er meðal ann- ars sýnt, er Lauganesleirmunir verða til ,og hefir það atriði hennar vakið mikla athygli víða. Fór Linker á fund innkaupa- stjóra J. W. Robinson og spurði, hvort fyrirtækið hefði ekki á- huga fyrir slíkum leirmunum. H a f ð i innkaupastjórinn s é ð myndina og orðið hrifinn af mununum, og gat Linker fljót- lega útvegað nokkuð af leirmun- um, einar tvær sendingar, sem líkuðu strax svo vel, að þær seld- ust upp á svipstundu. Er hér einkum um að ræða „Líkjör-sett,“ könnur, öskubik- ara og fleira þess háttar, en litir í leirmunum þessum hafa vakið athygli þeirra, sem séð hafa vestur í Kaliforníá Um leið eru munir þessir skemmtileg landkynning, en neð an á þá eru greypt orðin „Ice- land-original-Gestur,“ sem merk ir, að þetta sé íslenzk frumstíð, en Gestur (Þorgrímsson) hefir mótað þá. Sigrún Guðjónsdóttir, kona hans, hefir síðan málað þá, og telja kupnáttumenn þetta mjög smekklega gert. I næsta mánuði verður opnuð á vegum fyrirtækisins J. W. Robinson alþjóðleg vöru og listgripasýning (International Fair), og mun Hal Linker þá sjá um, að munir frá Laugarnesleir verði þar til sýnis. — VÍSIR, 9. sept. Framhald af bls. 5 yrða er í prentun, og eru þar samtals um 5000 orð. Safnið á fyrst og fremst að gegna hlut- verki tæknilegrar orðabókar, og eru þar því ekki eingöngu ný- yrði í strangasta skilningi held- ur einnig þekkt orð, og við það miðað að bókin geti komið að sem víðtækustum notum. Fyrsta heftið verður 12 til 13 arkir. ☆ í dag fara fram prestskosning- ingar 1 þremur nýjum presta- köllum í Reykjavík og eru um- sækjendur samtals ellefu. ☆ Kvenfélagið „Hringurinn" í Hafnarfirði hefir í tilefni af 40 ára starfsafmæli sínu tilkynnt bæjarstjórn Hafnarfjarðar að það hafi ákveðið að gefa lækn- ingatæki og sjúkrarúm til vænt- anlegrar fæðingardeildar í bæn- um. Nemur andvirði þessarar gjafar um 120.000 krónum. ☆ Fyrstu opinberu hljórnleikar Sinfóníu-hljómsveitarinnar á þes^u hausti verða á þriðjudag- inn kemur, og er hinn fastráðni stjórnandi hennar og listræni leiðbeinandi, Olav Kielland, ný- lega kominn til Reykjavíkur. Ákveðið er, að hljómsveitin haldi að minnsta kosti 9 hljóm- leika fyrir almenning á þessu starfsári og verður hver þeirra endurtekinn fyrir skólafólk, sem fær þar ókeypis aðgang. Um 50 manns leika nú í sveitinni. — Kielland hljómsveitarstjóri sagði í viðtali um daginn, að aðalhlut- verk slíkrar hljómsveitar væri það, að vera lyftistöng tónlistar sinnar eigin þjóðar. Stjórnandi hennar þyrfti helzt að vera inn- lendur maður með djúpan skiln- ing á þjóðlegri tónlist, jafnframt því sem hann kynni skil á al- þjóðlegri list. Að loknum fyrstu hljómleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar fer Kielland til Parísar og stjórnar þar hljóm- sveit kennara og prófessora við tónlistarháskólann í París og syngur Kirsten Flagstad með hljómsveitinni. Öðrum tónleik- um Sinfóníuhljómsveitarinnar hér stjórnar Róbert A. Ottoson og þá leikur Erling Blöndal Bengtson með sveitinni. Leikfélag Reykjavíkur hefur á miðvikudagskvöldið frumsýn- ingu á íslenzkum ballett, Ólafi liljurós eftir Jórunni Viðar og Sigríði Ármann, og óperunni Miðlinum eftir Menotti. Miðill- inn verður sunginn á íslenzku og gerði Magnús Ásgeirsson þýð- inguna. Aðalhlutverkin syngja 3ær Guðmunda Elíasdóttir og Þuríður Pálsdóttir. Sýningunni stjórnar Einar Pálsson. Hljóm- sveitarstjóri á báðum sýningun- um er Róbert A. Ottóson. ☆ Þjóðleikhúsið sýnir um þess- ar mundir óperettuna Leður- blökuna og sjónleikinn Júnó og páfuglinn eftir Sean O’Casey. Frumsýning þessa leiks var á þriðjudagskvöldið. — Aðalhlut- verkin leika Valur Gíslason og Arndís Björnsdóttir, en leik- stjóri er Lárus Pálsson. Lárus Sigurbjörsson þýddi leikritið á íslenzku. ☆ Konrad-Maurer stofnunin í Kiel hefir boðið íslenzkum stú- dent styrk til námsdvalar næsta kennslumisseri, 1. nóvember til 28. febrúar, og er styrkur þessi ókeypis dvöl í stúdentagarði með kvöld og morgunverði, 70 ríkismörk á mánuði og undan- þága frá kennslugjaldi. Um- sóknir sendist Háskóla íslands fyrir 16. þ. m. ☆ Ungur söngvari, Guðmundur Baldvinsson að nafni, sem und- anfarið hefir stundað nám á ítalíu, hélt söngskemmtun í Reykjavík um daginn og var vel tekið. — í Sjálfstæðishúsinu er sýnd Haustrevían 1952, en þar syngur danska söngkonan Manja Maurier, og í Austurbæjarbíó er Sjómannadagskabarettinn, en Nýræklir í ár fulli eins miklar og áður — byggingafram- kvæmir eiiihvað minni Samtal við (ÓLAF JÓNSSON héraðsráðunaut Sumarið 1951 voru grafnir framræsluskurðir í Eyja- fjarðarsýslu og þeim hluta S.-Þingeyjarsýslu, er liggur að Eyjafirði, er námu 250.000 teningsmetrum, og á yfir- standandi sumri mun fram- kvæmdirnar ekki minni, sennilega eitthvað meiri, en mælingum er ekki lokið, enda eru skurðgröfur enn að verki hjá ræktunarsam- böndunum og munu verða fram á haustið, eftir því sem tíð leyfir. Þessar upplýsingar fékk blað- ið hjá Ólafi Jónssyni héraðs- ráðunaut, er það leitaði fregna hjá honum af ræktunarfram- kvæmdum í héraðinu. Framkvæmdirnar í sumar í sumar hafa skurðgröfurnar verið að verki hjá öllum rækt- unarsamböndunum nema Svarf- aðardal, en þar var mikið unnið í fyrra. 1 stórum dráttum eru framkvæmdirnar þessar: Hjá Ræktunarsambandi Saurbæjar- og Hrafnagilshreppa hefir í sumar aðallega verið unnið syðst í Hrafnagilshreppi, á Grund, Mið húsum, Finnastöð- um, Torfum og Möðrufelli og einna mest á síðasttöldu jörð- inni, enda standa þar yfir mikl- ar framkvæmdir. Eru tveir synir Kristins bónda Jónssonar að stofna þar nýbýli. Þetta rækt- unarsamband á sjálft skurð- gröfuna og starfrækir hana. Hjá Ræktunarsambandi Öng- ulsstaðahrepps vinnur skurð- igrafa, sem er eign Vélasjóðs og hefir hún unnið nyrzt í hreppn- um í sumar, í bæjarröðinni frá Kaupangi og norður úr að Hreppamótum. Þar utan við er að verki skurðgrafa Ræktunar- sambands Grýtubakka- og Sval- barðsstrandarhrepps. Hefir hún að undanförnu unnið á Veiga- stöðum og er um þessar mundir að byrja í Sigluvík, en fyrr í sumar starfaði hún í Höfða- hverfi, og þar var einnig mikið grafið í fyrra. Ræktunarsam- band Árness- og Árskógshreppa hefir skurðgröfu frá Vélasjóði, hefir hún til þessa aðallega starfað syðst í Árskógshreppi, í Kálfsskinni og Rauðuvík og held ur nú inn eftir, um Fagraskóg, Kjarna til Arnarness. Þessi grafa var að starfi í Svarfaðar- dal í fyrra. Næst sunnan við er grafa Vélasjóðs, starfrækt af Ræktunarsambandi Glæsibæjar, Skriðu og Öxnadalshreppa. Sú grafa vann fyrst í Kræklinga- hlíð, en síðan í Öxnadal og er þar að starfi nú. Loks er svo skurðgrafa Akureyrarbæjar, sem unnið hefir að framræslu fyrir ýmsa ræktunarménn í nágrenni bæjarins. Að öllu samanlögðu má telja víst, að grafnir hafi verið meira en 250.000 tenings- metrar. — Ólafur Jónsson taldi að nýræktir í héraðinu væru fullt eins miklar í ár og í fyrra, en byggingarframkvæmdir eitt- hvað minni. Hann taldi að hey- skapur mætti teljast sæmilegur allvíða, einkum innfjarðar, en rýrari en ella allvíða sökum kal- skemmda á s.l. vori. Kal og grastegundir Þegar blaðið spurði Ólaf um álit hans á rannsóknum þeim, sem gerðar hafa verið á kal- skemmdum í ár og fregnir hafa birzt af í blöðum, sagði hann, að enn hefði ekkert komið fram í blaðafregnum, sem ekki væri áður vitað. Ólafur framkvæmdi sjálfur athuganir á kali fyrir nokkrum árum og skrifaði ítar- lega um það efni í Ársrit Rækt- unarfélags Norðurlands. Er þar m. a. bent á þolni háliðargrass- ins, sem virðist vera aðalniður- staðan nú. í framhaldi af þessu sagði Ólafur Jónsson, að gras- fræblöndur þær, sem fengist hefðu hér að undanförnu, hefðu valdið sér vonbrigðum, og því miður væri ekki sú bót orðin á grasfræsölunni, sem hann og fleiri ræktunarménn hefðu vænzt. Til dæmis væri ástæða til að ætla, að háliðagrasið, sem var í blöndu þeirri, sem seld var í vor, hefði ekki spírað að gagni nema að einhverju leyti. Gras- fræblöndur þaer, sem fengust fyrir stríð, reyndust vel, og taldi Ólafur ástæðulaust að breyta þeim nema fyrir lægju sannan- ir um betri blöndur, en slíkar sannanir væru ekki fyrir hendi. Yfirleitt virtist sér að vanda þyrfti meira til grasfræinn- kaupa og grasfræblöndu en nú er gert. —DAGUR, 24. sept. Uppskeru lokið í Vafnabygðum Blaðið Wynyard Advance, er Lögbergi barst nýlega í hendur, lætur þess getið, að vegna hins hagstæða veðurfars, sem ríkt hafi undanfarnar vikur vestur Dar, megi svo segja að þresk- ingu í Vatnabygðunum sé í raun og veru lokið; uppskeran yfir aöfuð var bæði mikil og góð. —• Innköllunar-menn Lögbergs Bardal, Miss Pauline Minneota, Minnesota Minneota, 'Minnesota Ivanhoe, Minn., U.S.A. ; Einarson, Mr. M. Arnes, Manitoba Fridfinnson, Mr. K. N. S. Arborg, Manitoba Arborg, Manitoba Geysir, Manitoba Hnausa, Manitoba ; Riverton, Manitoba Vidir, Manitoba ; Arnason, Mr. R Elfros, Saskatchewan Gislason, T. J. Morden, Manitoba Gislason, G. F. Churchbridge, Sask. Bredenbury, Sask. Grimson, Mr. H. B. Mountain, North Dak. Mountain, N.D. Edinburg, North Dak. Gardar, North Dak. Hallson, North Dak. ; Hensel, North Dak. Johnson, Mrs. Vala Selkirk, Manitoba Bjamason, Mrs. I Gimli, Manitoba Gimli, Manitoba Husavik, Manitoba ' “Betel”, Gimli, Man. Winnipeg Beach, Man Lindal, Mr. D. J. ...Lundar, Manitoba Lyngdal, Mr. F. O. Vancouver, B.C. 5973 Sherbrook St. Vancouver, B.C. ! Middall, J. J Seattle, Wash., U.S.A. 6522 Dibble N.W. Seattle, Wash., U.S.A. \ Myrdal, S. J. Point Roberts, Box 27 Wash., U.S.A. Oleson, G. J. ... Glenboro, Manitoba Glenboro, Man. Baldur, Manitoba Cypress River, Man. Olafson, Mr. J. . Leslie, Saskatchewan Simonarson, Mr. A. Blaine, Washington R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. Bellingham, Wash. Sigurdson, Mrs. J Backoo, North Dak. Backoo, N.D., U.S.A. Akra, North Dak. Cavalier, North Dak.' Walhalla, North Dak. Valdimarson, Mr. J. Langruth, Manitoba Langruth, Man. Westbourne, Manitoba

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.