Lögberg - 26.02.1953, Blaðsíða 6

Lögberg - 26.02.1953, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. FEBRÚAR, 1953 Þegar Þormóður rammi fórst 34 Þjóðræknisþing í Vest-urheimi Skýrsla formanns björgunar- sveitarinnar Sunnudaginn 26. nóvember 1950, rétt fyrir kL 13, var ég staddur hjá Þórhalli Björnssyni einum af útgerðarmönnum m.b. „Nóa,“ og sagði hann mér að hann væri á sjó og einhverjir fleiri bátar. Sjór var þá orðinn mikill og v e ð u r ískyggilegt. Hringdi ég því til Þórarins Dúa- sonar, formanns slysavarnadeild arinnar á Siglufirði til að spyrja hann, hvort hann hefði kynnt sér hve margir bátar væru á sjó. Þórarinn lá veikur og bað mig að kynna mér þetta. Fór ég þá samstundis að athuga þetta, og kom þá í ljós, að róið hefðu um nóttina 3 mótorbátar og 3 trillu- bátar. Hringdi ég þá í talstöðina og bað hana að kalla í mótor- bátana og biðja þá að líta eftir trillunum. Voru gerðar margar tilraunir til að ná sambandi við bátana, en þeir svöruðu ekki. Um kl. 13,20 kom fyrsta trillan og um sama leyti fyrsti mótor- bátur. Hafði ég þá tal af þeim, og tjáðu þeir mér að sjór væri að verða ófær trillum og mikill stormur. Fór ég þá á símstöðina og hringdi í skipstjórann á m.s. „Sigurði,“ og spurði hvort hann væri fáanlegur til að fara að leita að trillunum tveim, sem vantaði, og var hann fús til þess. Einnig náði ég tali af skipstjór- anum á m.b. „Særúnu,“ og bað hann þess sama og gaf hann mér sömu svör. í þennan mund var „Nói“ að koma á landi. Fór ég því og hafði tal af skipstjóranum og sagðist hann ekkert hafa orðið var við triilurnar, en kvaðst hafa séð m. b. „Þórmóð,“ þegar hann var að leggja af stað til lands. Hafði hann þá verið að draga lóðina. Rétt í þessu kom önnur trillan og lét illa af veðrinu, sem von- legt var, enda þótti það ganga kraftaverki næst, að þessu litla horni skyldi takast að ná Siglu- firði í slíku veðri. Ekkert hafði enn frétzt af hinni trillunni. Hringdi ég þá á Haganesvík, ef ske kynni, að hún hefði hleypt undan veðrinu, og freistað að taka land þar. Reyndist það rétt, því að trillan var þá á sveimi úti á víkinni og voru menn í landi reiðubúnir að taka á móti henni. Gekk land- takan að óskum. Bátarnir, sem beðnir höfðu verið að leita, voru nú stöðvaðir, og ekkert hafst að um sinn, þar sem m. b. „Þor- móður“ var eigi talinn í hættu og tæplega sá tími kominn, að hann væri væntanlegur að landi. Þetta var um kl. 15. Kom ég nú við á talstöðinni og dvaldist þar æði lengi, vegna þess að allt- af var verið að kalla á „Þormóð“ öðru hvoru, en hann svaraði ald- rei. Fór ég þá heim, en er bátur- inn var ekki kominn kl. 17 og ekkert til hans spurzt, hringdi ég í vitavörðinn á Sauðanesi, Jón Helgason, og sagði honum að við værum farnir að óttast um „Þor- móð.“ Spurði ég Jón hvort hann héldi, að þeir hefðu tekið fjörð- inn. Taldi hann það vafasamt, að vitaljóst væri. Bað ég hann þá að gá að, hvort hann sæi nokk- urs staðar ljós og láta að bíða, því að Sveinn sonur sinn væri að koma hlaupandi neðan úr vita. Hann kom með þær fréttir, að hann sæi ljós á bát, sem væri rétt að segja kominn upp í brot- ið fram af Sauðanestánni. Spurði ég hann, hvort hann teldi það líklegt, að báturinn væri með vél í gangi, og taldi hann það útilokað, því að bátinn hrekti óðfluga að brotinu. Við slitum nú samtalinu og fór ég strax að kalla saman björgunarsveitina, og gekk það mjög greiðlega. Sagði ég að þeir yrðu að vera mættir í björgun- arskýlinu innan hálftíma. Kl. 17,30 voru flestir mættir í skýl- inu og var þá strax hafizt handa um að útbúa byrðarnar er sum- ar hverjar voru allþungar. Þeg- ar þessu var lokið og byrðarnar komnar á hvern og einn var kl. um 17,50. Vegna þess hvað veð- ur var ískyggilegt hafði ég feng- ið Sigurð Jakobsson, fyrrum bónda á Dalbæ, til að vera leið- sögumann sveitarinnar vestur yfir fjöilin. Brást hann skjótt og vel við, og var kominn í björg- unarskýlið í tæka tíð. Var nú allt tilbúið til fararinnar. í sveit- inni voru þessir menn: Sigurður Jakobsson, sem var leiðsögu- maður eins og áður segir, Þórir Konráðsson, Erlendur Stefánsson Sigurgeir Þórðarson, Stefán Guð mundsson, Jón Sveinsson, Bragi Magnússon, Alfreð Jónsson, As- grímur Stefánsson, Haraldur Pálsson, Oddur Oddson, Sig- tryggur Flóventsson, Jóhann Sigurðsson, Þormóður Stefáns- son og undirritaður. Var nú lagt af stað í bíl frá skýlinu fram á Hafnarhæð. Veð- urhæðin var um 8 vindstig, mik- il snjókoma en lítið frost. Þegar við fórum úr bílnum var kl. 18,- 05. Var nú haldið á brattann, Sigurður fyrstur og svo hver af öðrum í slóð hans upp svokall- aðan Strengshrygg. Það er mel- hryggur, sem liggur frá Hafnar- hæð og upp undir Fífladalsbrún. Leið þessa valdi Sigurður með það fyrir augum að losna við mestu ófærðina vestur yfir fjöll- in, en þessi leið er nokkru lengri en önnur, sem farin er í góðri færð. Af hrygg þessum hafði skafið vegna hvassveðurs, en þar gætti hins vegar nokkurrar klakastorku og hálku. Þegar við vorum komnir í um það bil 1000 feta hæð var komin iðulaus hríð, hörkufrost og veð- urhæðin um 10 vindstig. Upp er samt haldið hægt og sígandi og skriðið á köflum þegar mestu hryðjurnar gengu yfir. Ég get ekki annað en rómað stillingu mannanna og æðru- leysi á leiðinni yfir fjöllin í roki, hríð ,og náttmyrkri. Það sást ekki handa skil, en enginn mælti æðruorð, en það þakka ég mest því, að allir treystu leið- sögn Sigurðar Jakobssonar. Þeg- ar komið var upp á Fífladals- brún, sem er í um 1500 feta hæð, var gengið yfir Fífladali, yfir Leirdali og í Strandsskarð, sem er nokkru vestar, nærri vestur við svonefnda Skjaldarbreið. Var þessi krókur tekinn til að losna við mestu ófærðina. Það- an var svo tekin stefna, sem næst í norður á Langahrygg, og farið eftir honum niður í dal- botn. í dalbrotninum byrjaði ófærð- in fyrst fyrir alvöru. Leiðin lá nú eftir Göngutungum, hæðar- dragi, er liggur eftir dalnum að Dalbæ, þar sem áður bjó leið- sögumaður okkar, Sigurður Jak- obsson. Þessi leið úr dalbotni að Dalbæ sagði Sigurður vera rösk- an hálftíma gang í góðu færi, en það tók okkur 1 kl. og 20 mín. að komast þetta, enda var snjór- inn aldrei minni-en í hné og all- víða umbrota færi og alltaf þetta ofsaveður í fangið. Húsin á Dal- bæ sáum við ekki fyrr en við áttum örskammt að þeim, en þangað komum við kl. 21,15. Á Dalbæ var engin viðdvöl höfð. Sagði Sigurður okkur, að þaðan væri 45 mín. gangur út í Sauða- nesvita. Færðin út á bakkana að Sauðanesvita var allsæmileg, nema yfir Herkonugil, sem er skammt fyrir vestan vitann. Gil þetta er ægibratt og þverhníptir bakkar fyrir neðan í sjó fram, og var það eini verulegi tálminn frá Dalbæ að vitanum. Foraðs- veður var og virtist enn fara versnandi. Svo mikið var dimm- viðrið, að ekki sáum við ljós vit- ans fyrr en við komum að Engi- dalsá, sem er 6 til 8 hundruð metra vestan við vitann. Geng- um við nú fram á nef eitt á vestri bakka árinnar, og var það staður sá, er okkur var símleið- is frá Sauðanesi sagður slysstað- urinn. En þarna braut fleiri hundruð metra út, eða það sem við sáum, en ekki urðum við bátsins varir. Var þá gengið nokkuð vestur með bökkum og leitað undan veðrinu, en ekki sáum við bát- inn. Setti nú kvíða að mönnum, og flaug okkur í hug að við hefð- um komið of seint. Varð það að ráði að fara heim að Sauðanesi og fá a vita vissu sína þar. Fóru nú byrðarnar að segja til sín og óhugur og kvíði, þó enginn léti bilbug á sér fitina, þessi þungu spor kvíðans og óvissunnar heim að Sauðanesi. Þegar heim kom að Sauðanesi var húsfreyjan að koma heim frá kvöldmjöltum með mjólkur- föturnar í hendinni. Varð þar fagnaðarfundur, því hún sagði okkur greinilega til bátsins og þar með að tveir heimamenn stæðu þar vörð. Bauð húsfreyja okkur nú mjólk og smurt brauð. Var mjólkurfatan tæmd á skammri stundu. Greip hver maður brauð sneiðar, en síðan var þotið af stað, og sá nú ekki þreytu á nokkrum manni. Var hlaupið mður á bakka, en þar hittum við heimamennina, nokkru vestar en við höfðum áður leitað, og fylgdu þeir okkur á strandstað- inn. Ekki leizt okkur á, er á strandstaðinn kom, því að þar var á að geta 80 metra hár bakki snarbrattur og fótfestulítill í sjó fram, og ekki sáum við bátinn af brúninni. Var nú' liðinu skipt. Fóru 9 menn niður í fjöru á vað en 6 voru eftir uppi á brúninni til að halda í vaðinn, draga upp á og fylgja fyrstu mönnunum heim. í fjörunni var ekki vært fyrir sjógangi, og tókum við okkur stöðu á klettasillu í á að gizka 4 metra hæð frá fjörunni. Bátsverjar höfðu látið belg reka í land svo ekki þurfti að skjóta, en taugin var svo stutt, að þeir er tóku á móti belgnum urðu að standa í sjó upp í mitti við að hnýta saman. Síðan var blökkin með tildráttartauginni dregin fram af bátsverjum og fest í vantinn. Voru nú skip- verjar dregnir að landi í sjónum hver af öðrum á tildráttartaug- inni, því að líftaugina var engin leið að bera með sér yfir fjöllin í þessu veðri. Að björgun mann- anna var unnið af slíku kappi, að ekki mun hafa liðið nema 20 eða 25 mín. frá því að sveitin kom á brúnina þar til skipstjór- inn, sem var síðasti maður frá borði, kom í land. Bátsverjar voru orðnir mjög kaldir og þrek- aðir, enda búnir að vera hold- votir og skýlislausir í þessu veðri í 6 til 7 klst. frá því að þeir fengu áfallið sem stöðvaði vélina. Ferðin heim að Sauða- nesi með bátsverja var nokkuð erfið, en gekk þó ekki ver en það, eð ekki leið nema 1.15 mín. frá því, að við fórum frá bænum og þar til við komum heim með síðasta manninn. Björgunarsveitin var glöð og reif að loknu starfi. Bar furðu lítið á þreytu eftir langa og erf- iða göngu, en talið er að 18 til 20 km. séu frá Siglufirði á strandstað. Ljúft er og skylt að geta þess, að mjög tvísýnt hefði orðið um björgun bátsverja, ef ekki hefði notið við aðstoðar og umönnun- ar'heimilisins að Sauðanesi. Ég fullyrði, að enginn okkar, sem komum að Sauðanesi, eftir björg unina gleymir þeirri alúð og hlýju, sem mætti okkur þar. Rausn þeirra hjóna, Jónu Jóns- dóttur og Jóns Helgasonar, bar íslenzkri gestrisni vitni og sýndi einnig, að mannkostina getur ís- lenzka útnesjaveðráttan aldrei lamað, hversu harðleikin sem hún er. Allir bátsverjar og björg unarsveitin gistu að Sauðanesi um nóttina og undu sér vel í örygginu þar. Kl. 11 f. h. daginn eftir var lagt af stað heimleiðis í blíð- skaparveðri. Sóttist gangan vel og undruðust allir hve ferðin var auðveld og gekk fljótt, því að komið var til Siglufjarðar kl. 14,30. Urðu þar miklir fagnaðar- Framhald af bls. 4 hvors tveggja þarf verulega listamenn, fyrir hið fyrra lista- menn máls og stíls á tveimur tungumálum, og fyrir hið síðara hugsjónaauðugan og handlipran fagmann, sem er til þess fær að túlka anda og efni hinna fornu hetjusagna þannig að þær verði aðgengilegar fyrir listasmekk lesandans. Þegar svo þessir fag- menn eru fundnir og fengnir, þarf fjárráð eilítil til að kosta þessi fyrirtæki. Ef til vill væri viturlegt, að þetta þing kysi nefnd til að athuga þetta mál, frá öllum hliðum. • \ Þá er þess að geta að á s.l. þingi flutti hinn víðkunni áhuga og dugnaðarmaður dr. Th. Thor- lakson mjög athyglisverða ræðu um viðhorf Vestur-íslendinga til sameiginlegra áhugamála austan hafs og vestan, og bennti í því efni á möguleika til víðtækra félagssamtaka þeim til eflingar. Bennti hann t. d. á skógræktar- mál Islands, sem gjarnan gæti komið til greina sem sameigin- legt verkefni fyrir öll félags- samtök íslendinga hér o. fl. Ræð- an vakti mikla athygli, eins og við var að búast, og var prentuð í íslenzku blöðunum hér, og sömuleiðis í úrdrætti í tímariti Icelandic Canandian Club. Því miður er dr. Thorlakson ekki staddur á þingi nú til að inn- leiða þetta mál á ný, en mun væntanlega leggja ákveðnar til- lögur fram við stjórnarnefnd fé- lagsins innan skamms. Til fræðslumála má t e 1 j a margt sem unnið hefir verið, og unnið er í þessu félagi. Þar til heyrir kennarastóllinn í ís- lenzku við fylkis-háskólann hér, þessi glæsilegi draumur, sem nú er orðinn að veruleika, sem æ meiri vonir standa þó til. Þá má einnig nefna lestrar flokka þá í íslenzku, sem prófessor Finn- bogi skipualgði og veitir for- stöðu, bæði í sambandi við kvöldnámsskeið Háskólans, og nokkru síðar á Gimli. Eru þess- ir lestrarflokkar vel sóttir á báð- um stöðunum og veita fólki mikla ánægju og fræðslu. Þá má heldur ekki gleyma íslenzku kennslu barna, sem um margra ára skeið var veitt í svo nefnd- um Laugardagsskóla. Á síðari árum varð það ljóst, að því fyr- irkomulagi varð að breyta, því að þrátt fyrir góða kennslu- krafta fór aðsóknin sífellt þverr- andi. Nú í vetur hefir það tek- ist, fyrir framtakssemi prófessor Finnboga, að koma þessu starfi í nýtt og betra horf. Er nú kennsla veitt í fundarsal Fyrstu lútersku kirkju, á milli kl. 11 og 12 á sunnudögum. Aðsókn að þessum barnaskóla hefir verið langt um vonir fram, nálegt 50 börn hafa komið suma dagana. Búist er við að svipuð starfsemi hefjist í kirkju Sambandssafnað- ar innan skamms. Góðir kennslu kraftar hafa fengizt, og má nú segja, að þetta mál sé vel á veg komið. Nokkur skortur mun þó enn vera á kennslutækjum, svo sem stafrófskverum og léttum lesbókum. Einhverntíma koma væntanlega „linguephone“ plöt- urnar á íslenzku, sem prófessor Stefán Einarsson er nú að semja tekstana að. Verða þær kær- komnar öllum þeim ungu, sem læra vilja íslenzka tungu. fundir með bátsverjum og að- standendum þeirra. Það er einróma álit okkar, sem fórum þennan leiðangur, að ferðalagið yfir fjöllin hefði ver- ið lítt hugsanlegt án leiðsagnar Sigurðar Jakobssonar, eða minnsta kosti hefði það tafizt um 1 til 2 klukkutíma. Að endingu vil ég svo færa öllum, sem að þessari björgun unnu, mínar alúðarfyllstu þakk- ir fyrir dugnað þeirra, æðruleysi og þrautsegju. Siglufirði í nóvember 1950 SVEINN ÁSMUNDSSON — VIKINGUR Útgáfumál Útgáfumál félagsins snúast nú einkum um Tímaritið og út- breiðslu þess. Þetta mál var mik- ið rætt á síðasta þingi, og loks samþykkt tilaga þess efnis, að meðlimagjald félagsmanna skuli hækkað úr einum dollar í tvo, að meðtöldu Tímaritinu. Enn- fremur var samþykkt að 50 cent af þessum $2.00 skuli ganga til deilda —'þannig fá menn Tíma- ritið og félagsréttindi í þjóð- ræknisfélaginu fyrir $1.50 á ári. Er auðsætt, að tekjur félagsins af slíku útgáfufyrirtæki eru alls engar. Hins vegar myndi með öllu ókleift að gefa ritið út, ef því væri ekki fleytt með aug- lýsingum, sem í sjálfu sér eru bein gjöf. Þetta er vandræða bú- skapur og er félaginu með þessu bundinn fjötur um fót. Er til- gangslítið að gera samþykktir á þingum um fjárfrekar fram- kvæmdir, ef um leið er alltaf sunginn sálmurinn um það hvað við séum fáir, fátækir og smáir, með undirspili galtómrar fjár- hirzlu. Var fyrr í þessari skýrslu vik- ið að útbreiðslu Tímaritsins á íslandi. Hún hefir ávallt verið nokkur, en á síðari árum hefir hún farið minnkandi, vegna ó- reiðu, sem virðist hafa verið á útsending ritsins til kaupenda, og á innköllun gjalda. Nú vildi svo vel til, að Gísli Jónsson, rit- stjóri Tímaritsins, brá sér til ís- lands í fyrra sumar, og kom hann þá nýrri og góðri skipan á þessi mál, með aðstoð nokkurra áhugamanna í Þjóðræknisfélagi Islendinga í Reykjavík. Tók Sigurður Sigurgeirsson banka- ritari, sonur Sigurgeirs biskups, að sér afgreiðslu ritsins á íslandi. Er það mál þannig komið í góðs manns hendur. Á Gísli þakkir skilið fyrir framtakssemi sína, og heppilegar ráðstafanir sem hann gerði, félagsins vegna, í þessu máli. Afmæli skáldanna, Stephans G. Stephanssonar og Gests Pálssonar Á síðasta þingi var samþykkt áskorun til stjórnarnefndar fé- lagsins um að beita sér fyrir því að aldarafmælis Stephans G. Stephanssonar skyldi minnst með sem víðtækustum og virðu- legustum hætti. Nefndin hefir fjallað um þetta mál, og mun það nú aftur koma fyrir þetta þing. Þess má geta að ungmennafélög nokkur á Islandi, eru að beita sér fyrir því að skáldinu verði reistur minnisvarði í fæðingar- sveit sinni í Skagafirði, og er hugmyndin að minnisvarðanum verði komið upp á þessu ári. 1 þessu skyni hafa verið mótuð minnismerki úr silfri, sem hafa verið seld víðsvegar á Islandi, og einnig hér, þessu máli til stuðnings. Hefir dr. Richard Beck ritað um málið, og haft um- sjón með minnismerkjum þess- um. Munu þessi merki nú til sölu hjá Davíð Björnssyni bóksala hér í bænum, og ef til vill fleirum. Aldarafmælis Gests Pálssonar, skálds, verður minnzt með sam- komu, sem sérstaklega er helguð honum og áætlað er, að fari fram í lok þessa þings. Nýtt félag Eins og þegar er kunnugt, er nú myndað pýtt félag með æsku- lýð af íslenzkum ættum hér í borginni. Kennir félagið sig við Leif Eiríksson, og er skipað stór- um hóp hins efnilegasta fólks. Var þessi hreifing hafin undir forustu Walters J. Lindal dóm- ara, sem nú er forseti Icelandic Canadian Club og einnig heiðurs forseti þessa nýja félags. Enda þótt að þetta nýja félag sé form- lega óháð hinum eldri félögum meðal íslendinga, stendur það þó á hama grunni og þau, og hefir hliðstæð áhugamál og stefnuskrá. Þjóðræknisfélagið óskar hinu nýja félagi í velfarn- aðar, og hygur gott til samvinnu við það í framtíðinni. Önnur mál Önnur mál, auk þeirra sem hér hefir verið vikið að, koma vafa- laust til umræðu á þessu þingi. Það er svo margt, ef að er gáð, sem gera þarf. Um fram allt: Það þarf að herða á sókninni á öllum sviðum starfsmála okkar. Meðlimatala félagsmanna þarf að aukast að miklum mun. A- hugamenn okkar deyja árlega, sem aðrir menn, eða hverfa frá störfum fyrir elli sakir eða hrumleika. Of fáir gefa sig fram til að fylla skörðin. Mörg hundr- uð íslendinga á dreifingunni miklu um ala þessa heimsálfu myndu fagna því að fá Tímarit okkar í hendur, ef einhver benti þeim á að það væri til, og að það er sama sem gefið. Mikill fjöldi íslenzkra kvenna eru giftar am- erískum mönnum, og búsettar út um alla Ameríku. Vísast hafa þær, margar hverjar, lítil sam- bönd við þjóðbræður sína. Hvers vegna ekki að reyna að ná sam- bandi við þessar konur, og fá þær til að gerast áskrifendur að blöðum okkar og Tímariti félag- sins? Deildir félagsins, víðs vegar, þurfa að safna kröftum, og sums staðar þarf blátt áfram að vekja þær aftur til starfs og dáða. Það þarf að stuðla að því, að sú eina íslenzka bókaverzlun, sem er til hér vestan hafs, geti haldizt við sómasamlega. Það þarf að treysta betur menningartengslin við ís- land með ýmsum ráðum, og efna ef unnt er, til mannaskipta í stór um stíl. Öll félög, a. m. k. hér i Winnipeg og nágrenni þurfa að gera sitt ýtrasta til eflingar kennarastólnum í íslenzku hér við Háskólum, einkum í því að afla honum nemenda, og auka hróður hans á allan hátt. Hér þarf, á sínum tíma, að rísa sam- komuhús og félagsheimili, sam- boðið sögu okkar og eðli Islend- inga. Það þarf að útvega hæfi- legt húspláss fyrir ýmsa verð- mæta muni félagsins, sem sum- ir liggja undir skemmdum í kjall ara hússins, sem eitt sinn var kent við Jón Bjarnagon, en sum- ir eru í vörzlu minni, og nýlega afhentir mér af fyrirrennara mínum í forsetaembætti, séra Philip Péturssyni. Við þurfum sjálfir að vakna til meðvitundar um þann regin- sannleika, að þetta félag getur því aðeins lifað og unnið að því marki, sem það hefir stefnt að og starfað fyrir í meira en þrjá- tíu ár, ef við, meðlimir þess og velunnarar, gerum okkur grein fyrir breyttum aðstæðum frá því sem áður var, og leggjum fram verulegar fórnir, í fé og kröftum, því til framdráttar. Við höfum lyft Grettistökum áður; við eigum enn nóga dáð og drengskap til að gera slíkt hið sama nú. Vil ég svo leyfa mér að enda þessa ræðu með því að tilfæra hin fögru orð, er hinn látni for- seti íslands, Herra Sveinn Björns son, mælti til okkar á tuttugu og fimm ára afmæli félagsins. Ég vona að þau séu enn í góðu gildi: „Ég sé í huga mínum fjölda ágætra Vestui* Islendinga streyma úr mörgum áttum, suma um langan veg til árs- þings félagsins. Það eru hvorki vonir um glys, ver- aldar auð né eitthvað ann- að, sem í askana verður látið, sem draga ykkur til þessa fundar. Það er taug, sem er miklu dýrmætari. Hún er sprottin af sama toga, sem sú hin ramma taug er „rekka dregur, föðurtúna til.“ „Þið h a f i ð gert I s 1 a n d stærra, og verið okkur Is- lendingum hér heima til heilbrigðar áminningar um skyldu okkar við þjóðleg verðmæti. Þetta hhýjar okk- ur um hjartarætur.“ Göngum þá heil til starfa. Megi hjörtun verða hlý, og vilj- inn stæltur til dáða á þessu þrí- tugasta og fjórða ársþingi Þjóð- ræknisfélags Islendinga í Vestur heimi.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.