Lögberg - 26.02.1953, Síða 8

Lögberg - 26.02.1953, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. FEBRÚAR, 1953 Um hópferðina tiS íslands í sumar Ég þykist vita, að menn séu enn að átta sig á auglýsingu minni í síðasta blaði, því að margs þarf að gæta, áður en hægt er að ráðast í slíka för. Er því ekki að marka, þótt enn hafi ekki borizt margar umsóknir. Ég býð enn eftir upplýsingum um kostnað á íslandi, en þær mun ég birta jafnskjótt og þær koma. Ég hef orðið þess var, að menn hafa verið í vafa um, hvernig þeir ættu að skilja atriði það, er ég sagði, að fargjaldið yrði að vera óendurkræft, og vil því fara um það fáeinum orðum. I fyrsta lagi þarf ekki að taka það fram, að öllum verður skilað aftur fé sínu, fáist ekki næg þátt- taka og engin samningur því gerður. En fáist 50 manns og samningur verði gerður um ferð- ina, vandast málið. Hættu t. d. 5 á síðustu stundu við förina og ó- kleift reyndist að fylla í skörðin, næmi sá halli 2000 dölum. Yrðu hins vegar aðeins 2—3 sæti auð, gæti komið til greina að jafna þeim niður og hækka fargjaldið örlítið fyrir vikið. Annars verð- ur flugfélagið sjálft að setja á- kvæði um þessi atriði, og hef ég skrifað eftir þeim. Er viðbúið, að félagið muni verða eins rými- legt í þessum sökum og það frek- ast treystir sér til. En varnaglann vildi ég reka strax í upphafi, svo að menn hugsuðu alvarlegar um þetta en þeir kannske ella mundu. Eins og menn muna, ætlaðist ég til, að menn tilkynntu þátt- töku sína fyrir 15. marz, og hefði þá í huga, að við hefðum, væri vélin ekki orðin full, 2 vikur fyrir lokasóknina fram til 30. marz, þegar við þyrftum að segja af eða á. Ætla ég að flytja þenn- an frest til 20. marz í stað hins 15. Bið ég menn svo að fylgjast með frekari upplýsingum í næstu blöðum og vænti þess, að menn hiki ekki við að spyrja mig, ef þeir eru í nokkrum vafa um ein- stök atriði málsins. Finnbogi Guðmundsson, 30 Cavell Apts., 449 Kennedy St., Winnipeg. Úr borg og bygð — DÁN ARFREGNIR — Guðný Aðalbjörg Jóhannesson lézt á heimili dóttur sinnar, Mrs. C. L. MacLean að Pilot Mound, Man., þ. 25. janúar 1953, 87 ára gömul. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Ástnundsson frá Tjörnesi í S.-Þingeyjarsýslu og Guðrún Andrésdóttir frá Héðins- höfða. Guðný heitin giftist heima á íslandi Kristjáni Jóhannessyni, mun hann hafa verið úr Þistíl- firði. Þau komu til Canada árið 1899. Þau áttu lengi heima við Markervill í Alberta; þar lézt Jóhannes árið 1926. Þau eignuð- ust tvær dætur, önnur dó í æsku, hin heitir Lilja, Mrs. C. L. McLean að Pilot Mound, Man. Guðný var hjá dóttur sinni sein- ustu árin. Þar leið henni eins vel og hugsast gat. Kveðjuathöfnin fór fram frá útfararstofunni í Pilot Mound þ. 28. jan. s.l., og hún var jarðsungin sama dag í grafreitnum að Grund, Man., af séra J. Fredriksson. ☆ Jón Jóhann Thorlacius var fæddur í Dalasýslu þ. 18. desem- ber 1885. Hann dó að heimili sínu við Silver Bay, Man., þ. 11. fébrúar s.l. 67 ára gamall. For- éldrar hans voru Ólafur Helga- son Thorlacius frá Skarfsstöðum í Dalasýslu og Guðrún Daða- dóttir frá Hörðudal í sömu sveit. Börn þeirra voru 12. Tvö eru KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON FREYJUGATA 34 . REYKJAVÍK H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS ÁÐALFUNDUR * Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag Islands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar- daginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1.30 e. h. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir- standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1952 og efnahagsreikning með at- hugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt- ingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. '4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir huthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 2.—4. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá- setningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 26. maí 1953. Reykjavík, 28. janúar 1953. STJÓRNIN dáin, Búi og Sigurborg. Árni, Ólafur, Daði, Helgi, Sigríður (Mrs. Hördal) og RóSa (Mrs. Skagfeld) eiga heima við Silver Bay, Guðný (Mrs. O. Sigurdson), Ásthildur og Helga eiga heimá í Winnipeg. Jón heitinn kvæntist eftirlif- andi konu sinni, Emmu Sveins- dóttur Skagfeld árið 1918. Þau reistu sér bú skammt frá Silver Bay og var þar altaf heimili þeirra. Þau eiga sex börn: — Lorence, Jóhann og Wilson, Elín (Mrs. H. Koops), Guðrún (Mrs. A. Larson) og Beatrice (Mrs. S. Johnson). Útförin frór fram frá Betel kirkjunni að Silver Bay þ. 16. febrúar s.l. Séra Jóhann Fredriksson frá Glenboro jarð- söng. ☆ Um hádegisbilið síðastliðinn þriðjudag lézt að heimili sínu á Lundar, Ágúst Magnússon fyrr- um sveitarskrifari 89 ára að aldri, fæddur 25. október 1863 að Kot- hvammi í Vatnsnesi í Húna- vatnssýslu. Hann lætur eftir sig ekkju sína, Ragnheiði Jóhanns- dóttur Straumfjörð, og þrjá sonu og þrjár uppeldisdætur. Útförin fer fram á laugardaginn að Lundar undir forustu þeirra séra Valdimars J. Eylands og Dr. Rúnólfs Marteinssonar. Hinn látni var um alt hinn mesti sæmdarmaður. • ☆ Síðastliðinn miðvikudags- morgun lézt á Almenna sjúkra- húsinu hér í borginni Mr. C. P. Paulson, áður á Gimli, níræður að aldri; útförinni hefir enn eigi verið ráðstafað. ☆ Jóhannes Hallsson andaðist á Almenna sjúkrahúsinu í Winni- peg, þann 10. febr. eftir tæpa mánaðarlegu þar. Sjúkur hafði hann verið fluttur á sjúkrahúsið frá einbúa-heimili Sínu á Snake Island í Lake Winnipeg, en þar hafði hann búið hin síðustu ár. Jóhannes var fæddur að Réttar- holti í Skagafirði, 25. ágúst, 1876. Hann var sonur Halls bónda Hallssonar frá Skúfsstöðum í Skagafjarðarsýslu og miðkonu hans Jórunnar Jóhannesdóttur. Jóhannes fluttist vestur um haf með föður sínum 1886. Faðir hans nam land og nefndi Flugustaði og bjó þar í 16 ár; þaðan flutti hann í Árnesbygð, nam þar land og nefndi Björk. Albróðir hins M ESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Séra Valdimar J. Eyland* Heimili 686 Banning Street Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 1. marz Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagskóli kl. 12 Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson ☆ — Gimli Lutheran Parish — H. S. Sigmar, Pastor Sunday March lst 9:00 A.M. Betel 11:00 A.M. Gimli 2:00 P.M. Riverton 7:00 P.M. Arborg. March 8th at 2 P.M. Special Service in Arborg Lutheran Church. látna er Hallur Hallsson til heimilis í Riverton, Man. Hálf- systkini Jóhannesar á lífi eru: Vilhjálmur, búsettur í Beard- more, Ont.; Ólöf, kona Einars Magnússonar, Selkirk, Man.; Guðrún, gift Axel Melsted, Camp Morton, Man.; Anna, kona Björns Péturssonar, Winnipeg. Látnar systur Jóhannesar eru: Mrs. Lilja Eyjólfsson, Mrs. Helga Markússon, Lára og Jónasína Margrét, báðar látnar á ungþroska aldri. Jóhannes var vandaður og grandvar maður og einkar trúr í störfum og allri framkomu, á- gætlega liðinn og átti ítök í margra hugum. Aðallega stund- aði hann fiskiveiðar, en vann Rödd frá Betel „Fyrst allir aðrir þegja, þá ætla ég að segja“, meira get ég ekki tileinkað þessum línum úr þessu alkunna erindi. Fyrir nokkrum árum birtist fréttabréf héðan með fyrirsögninni „Mín fyrstu jól á Betel“. Þetta fanst mér vera vel tilfallin fyrirsögn, því það sem manni finst aðdáun- ar- og undravert í fyrsta sinni verður oft hverfult og hversdags- legt þess oftar, sem það endur- tekur sig, og allir vita og skilja, að mjög er ólíkt að koma úr fá- menni í fjölmenni, frá erfiði og áhyggjum til áhyggju- og iðju leysis ásamt beztu aðbúð á allan hátt, sem öllum njótendum ber að þakka og þá auðvitað nærtæk- ast að þakka forstöðukonu og framkvæmdanefnd; en það þakk- læti á sér líka dýpri rætur, og á ég þar við gjafir og góðvilja, sem þessari stofnun er sýndur; án þess væri ekki hægt að láta fólki líða eins vel. Þó það sé öðrum skyldara, sem eiga að sjá um hag heimilisins, en það er okkar skylda sem njót- um að þakka það, sem beinlínis er sent til glaðnings og góðgjörða til vistfólksins, sem var mikið þessi jól; og er mér sagt, að þetta hafi altaf verið gjört frá því elli- heimilið var stofnað. Eflaust hefir þetta verið þakkað munn- lega, en opinberlega man ég ekki til að ég hafi heyrt það þakkað, nema aðeins getið í síðasta gjafa- lista. Þetta sjálfboða kærleiks- verk finst mér þó að ekki megi gleymast, því allir vita að slíkt kostar mikla peninga og fyrir- höfn, og undir þann sama flokk heyra allar þær heimsóknir, sem hingað eru gerðar bæði af kven- félögum og einstaklingum fólki til ánægju andlega og líkamlega. Þrjár slíkar heimsóknir höfuni við fengið síðan í september síð- aðliðnum. Lúterska kvenfélagið í Winnipeg kom hér 11. september 1952; Kvenfélagið í Selkirk kom 25. samamánaðar og Dorcas kvenfélagið á Gimli 15. janúar 1953. öll þessi félög hafa flutt með sér gjafir og gleðskap fyrir alla auk þess sem margir hafa mætt þar persónulegum vinum, og alltaf hefir verið stutt skemti- skrá; og núna síðast flutti frú A. Blöndal skemtilega ferðasögu um íslandsför sína síðastliðið sumar. Öllu þessu fólki séu kærar þakkir fyrir sín göfugu og góðu verk og vilja. Jafnframt ofanskrifuðu má ekki gleyma því, sem mestan hátíðabrag setti á jólin hér, en það var koma Óla Kardal og konu hans, því auk aðdáenda sinna hér sem söng- manns á Óli hér marga vini frá veru sinni hér og persónulegri prúðmensku. Oft er Óli búinn að skemta Betelbúum með söng, víst altaf endurgjaldslaust; er það fáheyrt eða einstakt, að menn, sem búnir eru að verja bæði tíma og peningum til að æfa sig og fullkomna í ein- hverri list skemti öðrum hvað eftir annað án endurgjalds; og ég vona að ég tali hér fyrir munn allra: kærar þakkir Óli og ein- lægar heilla- og hamingjuóskir til þín og þinna, og við vonum að þér megi auðnast að syngja oft hér á Betel. D. H. jafnan hverja vinnu er til féll. Um 4 ára bil vann hann í þjón- ustu C. P. R. fé'lagsins í vestur- fylkjum Canada. Útför hans fór fram frá kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton þann 13. febr. s.l. — Séra Sigurður Ólafsson jarðsöng. ☆ I frásögn síðasta blaðs um hina miklu söngsamkomu í Fyrstu lútersku kirkju, láðist að geta um tvísöng þeirra Fjeldstedbræðra frá Árborg, er vakti almenna hrifningu. ☆ Mr. og Mrs. Hóseas Pétursson frá Wynyard dvelja 1 borginni þessa dagana og sitja þjóðræknis- þingið. ☆ Mrs. Harry Marvin frá Churchbridge, Sask., er í bæn- um um vikutíma í heimsókn hjá Mrs. G. Jóhannesson 739 Alver- stone St. ☆ Til sölu Ágæt verzlunarbúð til sölu nú þegar í bæ í suðvestur hluta Manitobafylkis; í bænum og um- hverfi býr fjöldi íslendinga. — Fyrirspurnir sendist á skrifstofu Lögbergs. ☆ A meeting of the Jon Sigurd- son Chapter I. O. D. E. will be held at the home of Mrs. T. Hannesson, 878 Banning St„ Winnipeg, on Friday Eve., March 6th at 8 o’clock. Það var í skóla í Varsjá, höfuð- borg Póllands. Skólastjórinn: — Hvað heitir faðir þinn? Nemandinn: — Stalín. Skólastjórinn: — Hvað heitir móðir þín? Nemandinn: — Pólland. Skólastjórinn — Hvers vilt þú helzt óska þér? Nemandinn: — Að hann faðir minn láti hana móður mína í friði. ☆ Örvænting Bandarískur margmiljónamær ingur Hector Orr Munsel var orðinn dauðþreyttur á ríkidæmi sínu og ákvað að gefa allar milj- ónir sínar til góðgerðarstofnana, hvað hann og gerði. — Loksins, sagði hann að því loknu, — get ég verið frí og frjáls og þarf ég ekki lengur að hafa áhyggjur út af peningum. En daginn eftir fékk hann bréf frá lögfræðingi sínum þar sem honum var tilkynnt að frændi hans væri látinn og hefði eftir- látið honum hvorki meira né minna heldur en 200 miljónir dollara! Fræðsluvi ka 1-7 marz Hentuqur tími til að * HelmsækJa skólann • Aðstoða kennarana • Veita skólaráðinu fuiltingi • Styðja að fræðslu útbreiðslu • Afla þér upplýsinga um mikilvægi víðtækari mentunar Þetta er þitt áhugamál — Þínir peningar — Framtíð barns þíns Afmælíssamkoma Beíels undir umsjón Kvenfélags Fyrsta lúterska safnar verður haldin í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU á Victor Street þriðjudaginn 3. marz 1953. — Byrjar kl. 8.15 e. h. Ávarp samkomustjóra Séra V. J. Eylands Einsöngur Miss Ingibjörg Bjarnason a) Sat hjá læknum b) Nú er veðrið svo grott ' I samræmi við söngvana, er sungnir voru mikið hér á fyrri árum, . verður söngkonan búin eins og þá tíSkaSist. Fiðluspil — Islenzk lög Allan Beck Samskot — Afmælisgjafir til Betel Ræða Séra H. S. Sigmar Bréf frá forstöðukonu Betels verður einnig lesið af ræðuinanni Einsöngur — Þrír íslenzkir söngvar Albert Halldórsson GOD SAVE THE QUEEN Við hljóðfærið: Mrs. W. Kristjanson AS lokinni skemtiskrá er öllum boðiö að setjast til borös við kaffi- . veitingar (rúgbrauíS, rúllupylsu, pönnukökur o. fl.) I neöri sal ’ kirkjunnar. IT PAYS TO SHOP œt EATON’S YOU WILL AGREE WHEN YOU SEE EATON'S Summer CATALOGUE Hin nýja Verðskrá EATON er mesta og bezta verzlunar- miðstöðin, er hefir á boðstólum í þúsunda tali vörur. sem heimilið þarfnast við því verði, sem á við tekjur fjöl- skyldunnar. ^T. EATON C?-, WINNIPEQ CANADA, EATON ORDER OFFICES IN MANITOBA IBrandon - Dauphin • Flin Flon - Fort Churchill - Neepawa - Portage la Prairie I Swan River - The Pas ‘ l» winnipti, Phon »r viilt t>« W«« K.fljw 1» Tht Malt Otitt Hígt. |

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.