Lögberg - 09.04.1953, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 9. APRÍL, 1953
3
YFIR FJÖLL OG FYRNINDI
FRAMHALD
í Vancouverborg
Það var ýmislegt nýstárlegt á
myndinni fyrir mínum augum,
suðrænir ávextir, grapes og
bananas sprottnir úr íslenzkri
mold, í gróðurhúsi að vísu, en
það virðist vera alveg sérstakt
kraftaverk, að slíkt skuli vera
hægt að framleiða svo norðar-
lega á hnettinum; en líklega er
það kostnaðarsamt. En góð hlýt-
ur sú gróðurmold að vera, sem
framleiðir þetta. Loftskip var
önnur ný sjón fyrir mínum aug-
um þarna. Það var töluvert stórt
loftfar að búa sig til ferðar.
Kona með börn fór um borð. Ég
sá vel framan í dreng, sérlega
fríðan, sennilega um fimm til
sjö ára að aldri, hann horfði
með ugg nokkrum niður fyrir
sig, niður fyrir vélina á dýpið
og umstangið, en alt vritist í
lagi. Vélin hóf sig til flugs og
hilti síðast undir hana yfir mikl-
um jökulskalla. Ég óskaði að
engin kona flýgi með börn sín
yfir jökla, að gamni sínu. Þá er
mikið betra að vera yfir sjónum
hversu gífurlegt sem það er.
Svo við komum aftur að kven-
félags samkomunni hjá lúterska
kvenfélaginu í Vancouver í
haust. Þar var troðfullur salur
af frjálsmannlegu og fínt klæddu
fólki. Full borð af mat og mun-
um trl sölu, sem jafnaðist á við
það bezta af slíku tagi, sem boðið
er fram á þannig löguðum mót-
um. Og allir sýndust una sér vel,
eldri og yngri á sveimi um sal-
inn, að velja sér eitthvað til
gamans og gagns af því, er á
boðstólum var eða í samtali við
kaffidrykkjuna og því um líkt.
Maður kyntist þarna nokkrum
til að byrja með, fleirum síðar
smátt og smátt eins og gengur.
Svo komu jólin. Jólamessa til-
einkuð börnunum var höfð á
sunnudaginn fyrir jól. Og hún
var framúrskarandi indæl. —
Börnunum var gert það ljóst svo
Ijúft og eindregið, hver það var,
sem kom á jólunum. Barnahóp-
urinn hafði gott program þarna
undir stjórn sunnudagaskóla-
kennaranna. Það var auðfundið,
að mikið verk hafði verið lagt í
það að kenna og æfa. Börnin
sungu jafnvel vers á íslenzku og
gerðu mæta vel. Hitt fann ég
glögt, að þegar þau fóru að
syngja aftur á enskunni, þá var
eins og skrúfað væri ljós upp í
lampa, svo mikið meira var ör-
yggi þeirra. Aftansöngur á ís-
lenzku var fluttur á aðfanga-
dagskveld, að viðstöddu fjöl-
menni. Við jóladagsmessuna
heyrðum við í fyrsta sinni, söng-
stjörnuna íslenzku hér á Strönd-
inni, ungfrú Margréti Sigmar.
Henni er mikið lánað, óska ég
þess af öllu hjarta, að hún kom-
ist þangað heilu og höldnu, sem
gáfa hennar liggur hæst til. Af
því við höfum oft, þau i fjar-
lægðinni, verið að spyrja um
hverra manna þessi söngmær
væri, eins og forvitnum íslend-
ingum er gjarnt, þá ætla ég að
leyfa mér að sagja frá því hér.
Margrét er dóttir Sigurjóns Sig-
mar og konu hans Louise Jakob-
son Sigmar. Hún er því bróður-
dóttir Dr. Haraldar Sigmar og
dótturdóttir Dr. Jakobsonar
fyrrum að Wynyard, Sask.
Eftir messuna á jóladaginn,
var gengið í samkomusal kirkj-
unnar, var þar fallega búið jóla-
tré — jólatré var einnig uppi í
kirkjunni. Það var fjöldi fólks
þarna og gleðibragur á fólki, að
mætast og talast við. Börnunum
voru afhentar gjafir af trénu,
svo var marsérað í kringum tréð
syngjandi með prestshjónin í
broddi fylkingar. Og það var
mikið sungið á báðum málunum.
Hálfdán Thorláksson hafði mikla
forustu um sönginn. Manni finst
altaf, þegar maður mætir ein-
hverjum af börnum sér Stein-
gríms Þorlákssonar, að þar mæti
maður vinum. Og Hálfdán er
maður „glaður og gunnreyfur",
hvar sem maður mætir honum,
talinn drengur hinn bezti og
kirkjustólpi mikill.
Á meðal margra, sem maður
mætti þarna, var virðulegur
bænda-öldungur, Ófeigur Sig-
urðsson frá Alberta, fyrrum ná-
granni og vinur Stephans G.
Stephanssonar. Ófeigur sækir
messur rækilega, fer oft gang-
andi um hálftíma ferð þar til og
hirðir ekki um þó rigning sé, ef
svo ber undir. „Ég held maður
sé ekki verri, þó maður vökni
svolítið,í‘ heyrði ég hann segja
í vetur, er piltar mintust á það
við hann, að hann kæmi gang-
andi í regni. — íslenzkur maður
fer þar, sem Ófeigur Sigurðsson
fer: Hann sækir allar samkomur
íslenzkar og maður sér og heyr-
ir að hann tekur drjúgan þátt í
því, sem íslendingar eru að gera
félagslega.
Þarna á jólunum i»aut maður
góðrar stundar við sönginn og
„selskapið“. Sunnudagaskóla-
kennarar eru fjórir, alt konur.
Formensku hefir þar ungfrú
Elín Johnson, sérlega aðlaðandi
stúlka, upphaflega frá Winnipeg.
Annar kennari þar við er ensk
kona gift íslenzkum manni, Mrs.
Bergvinsson. Þau eru frá Mani-
toba, sérlega myndarleg hjón.
Mrs. Bergvinsson sagði fram fag-
urt ljóð á programms samkomu,
sem kvenfélagið hafði síðar í
vetur og gerði það af mikilli list.
Mér er sagt, að hún lesi og tali
íslenzku.
Konur, sem hafa á hendi for-
mensku í kvenfélagsmálum safn-
aðarins, eru: Mrs. Munroe, hún
er bróðurdóttir Dr. Björns B.
Jónssonar heitins; Mrs.- Guð-
mundsson *frá Wynyard, Sask.;
Mrs. Gunnarsson, líka frá Vatna-
bygðum; Mrs. Isfjörð, ættuð úr
Nýja-íslandi, og fleiri. Þessar
konur eru allar búsettar til fleiri
eða færri ára hér í Vancouver.
Þær hafa mikinn áhuga fyrir
kirkjumálunum og þeim störf-
um, er þar að lúta.
Mér yfirsást að minnast þess,
að bæði við jólamessuna og á
programms samkomunni, söng
enskumælandi maður, Gordon að
nafni. Hann hefir mikla og fall-
ega rödd, og söng með afbrigð-
um vel. Organisti safnaðarins,
Stefán Sölvason, spilaði undir
fyrir hann í bæði skiptin. Fleira
fólk kom fram á umræddri sam-
komu, þar á meðal ungstúlka,
!sem gerði líkamsæfingar af mik-
illi list.
Formaður safnaðarins heitir
Sigfús Gillies, ættaður frá
Morden, Manitoba, ritari safnað-
arins er Gunnþór Hinriksson frá
Selkirk, Bjarni Kolbeins o. fr.
Góður söngflokkur er að komast
upp undir stjórn Stefáns Sölva-
sonar. Svo er bæði unglinga-
félag og fermingarflokkur, sem
hafa fundi og yfirheyrslur reglu-
lega.
Séra Eiríkur S. Brynjólfsson
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
FREYJUGATA 34. REYKJAVIK
I____________________________
er djúpur og einlægur trúmaður
og flytur kenningu sína á ein-
dregnum játningagrundvelli lút-
ersku kirkjunnar. Kirkjusóknin
er góð, venjulegast ágæt. Prests-
frúin Guðrún Guðmundsdóttir
Brynjólfsson, er mesta prýðis-
kona og börn þeirra hjóna, þrjú,
eru' bæði falleg og efnileg og
bera það með sér, að þau eru
vel með farin.
Þar sem kristindómurinn er
stærsta velferðarmál mannanna
og hér er að ræða um heppileg-
an áhugamann, þá vildi maður
óska þess, að íslendingar á Kyrra
hafsströndinni tækju sem flestir
höndum saman um séra Eirík S.
Brynjólfs^on. Manni sýnist það
lán, að þeim sendist hann þegar
um svo fáa unga eða miðaldra
menn er að ræða vor á meðal til
prestslegrar þjónustu. Á hverju
sem gengur, er farið til prests-
ins með mestu sorgir og gleði á
lífsleiðinni. Meðal margs annars
minnist ég þess, að í hitteð fyrra,
er mikið lá við, talaði ég við Dr.
Harald Sigmar alla leið frá okk-
ur í Leslie, — að heiman — og
hingað vestur, samkvæmt sam-
þykt heima fyrir, og beiddi hann
um embættislega hjálp. Dr. Har-
aldur varð við beiðninni og af-
greiddi með heiðri og sóma það,
sem um var beðið, var þó síður
en svo við góða heilsu. Stundum
hefi ég verið spurð að því heima
fyrir, hvort íslenzkur lúterskur
prestur væri hér á Ströndinni,
af fólki, sem endilega vildi fá
slíkra manna þjónustu. Þetta er
alt saman ágætt, en sannleikur-
inn er sá, að prestar og þeirra
fjölskyldur þurfa sömu lífsnauð-
synja við og aðrir og kostnaður
á viðhaldi safnaðar í það heila,
verður altaf töluverður, jafnvel
mikill, ekki sízt nú á tímum, þó
vel sé á öllu haldið.
☆
Auk tilgreindra samkvæma,
komum við á tvær aðrar sam-
komur í vetur. Fyrst hjá Kven-
félaginu „Sólskin", sem er gam-
alt félag hér á Ströndinni. Það
starfar fyrjr sjóð Elliheimilisins
„Höfn“ og aðrar slíkar góð-
gerðir. Samkoman var haldin í
„Sweedish Hall“ og var sæmilega
vel sótt. Það hús er vel til fallið
fyrir samkvæmi, stórt dansgólf,
ágætis eldhús og áfast þar við
framreiðsluborð og salur til
mötuneytis. Þarna var Tombóla,
veitingar og dans með góðum
hljóðfæraslætti. Maður mæt$i
svo mörgu fólki, gamal kunnug-
um og nýrri viðtals vinum, að
það yrði of langt mál að telja
það upp hér. Manni var ánægja
í að tala við alt það fólk, sem
maður mætti. Auk þess, sem tal-
ið er, var rafflað góðum mun-
um og alt gekk út og á miðunum
stóð, að alt væri fyrir Elliheim-
ilið „Höfn“ og er það prýðilega
gert.
☆
Hin samkoman í Sweedish
Hall var þjóðræknissamkoma.
„Ströndin“ sendi út sínar aug-
lýsingar á henni stuttu eftir að
séra Eiríkur kom til baka frá
Winnipeg. Samkomunni stýrði
Mr. Kolbeins. Þar kom fram
ágætur söngmaður, Elías Breið-
fjörð. Hefir maður séð nafn hans
í frásögnum um skemtanir sem
þessa héðan að vestan. Þá var
ungur maður, nýkominn frá ís-
landi, Grettir að nafni, sem lék á
harmoniku af mikilli list.
Aðalmáttarviður þessarar sam
komu var þó mál séra Eiríks S.
Brynjólfssonar, frásögn hans af
þjóðræknisþinginu og ferðalag-
inu öllu. Það var auðheyrt að
prestur hafði haft hina mestu
ánægju af ferðalaginu og sér-
staklega af samfundunum við
þjóðræknismenn, einn og alla,
þar innra. Hann var oft búinn
að dvelja við það í prívat erind-
um og flutti mikið mál um það
þarna, hve miklir ræðusnilling-
ar hefðu komið þarna fram: séra
Haraldur S. Sigmar, Valdimar
Björnsson, herra dómarinn »W.
Líndal, Dr. Beck. — Já, það getur
svo sem vel verið, að ég hafi
týnt einhverjum þeirra, en séra
Eiríkur S. Brynjólfsson var
verulega hrifinn af þeim öllum.
Prestur minti okkur á söguna af
Melkorku, sem hann tók frá sjón-
armiðum sögunnar og fegurðar-
innar. Séra Sigurður S. Christo-
phersson tók söguna fyrir, fyrir
nokkru síðan frá sjónarmiði til-
finninganna og manndómsins,
þó mér þætti hann óþarflega ó-
notalegur í garð Jórunnar. —
Séra Eiríkur sagði að Jórunn
hefði verið „skckungur mikill“;
er ég ánægð með þá lýsingu.
Fegurð og þróttur líka, er falinn
í því, að Melkorka skyldi geta
geymt mál sitt þar til drengur-
inn hennar þurfti þess með, en
ekki gera föntum þeim, er hröktu
hana og misbuðu henni það til
eftirlætis að tala við þá. Þó skal
það viðurkent, að hún hefði getað
fyrirhitt verri mann en Höskuld
Dalakollsson. Á hinn bóginn er
ég samþykk S. S. C. í því, að
það er undravert, að ekkert
skáldið hefir tekið fyrir sögu
Melkorku sem yrkisefni. Stafar
það líklega af því, að ísland
hefir ekki eignast skáldkonu
nægilega sterka og djúpa, sem
og staðfasta, til að gera sögu eða
leikrit úr henfiar æfi.
Um ferðasögu séra Eiríks S.
Brynjólfssonar er það frekar að
segja, að honum er það í vöggu-
gjöf gefið, að geta meðhöndlað
hreina gleði ekki síður en djúpa
alvöru. Og honum tókst vel með
það þarna; auk þess, sem hann
sagði ýtarlega frá þeim gæðing-
um mælskunnar, er þarna voru
samankomnir, þá sagði hann frá
ýmsu sem í sjálfu sér eru smá
munir, en sem honum brást ekki
að láta menn hafa skemtun af.
Að síðustu minti ræðumaður
okkur á þann sannleika, að með
því að halda sem lengst í það,
sem bezt er í íslenzku þjóðerni,
þá væru menn að sá þeim fræj-
um, er til gæfu myndu gróa í
canadisku þjóðlífi.
Að lokum var sungið þarna
Eldgamla ísafold og God save
the Queen.
FRAMHALD
Business and Professional Cards
Morgundýrð
Fagur rís af djúpi dagur,
dýrðargeislum heimur skín.
Þú, sem vaknar sæll af svefni,
sjá, hér birtist veröld þín.
Vonum þínum vigð og starfi,
vaxtarmátt þér lífið kýs.
Brosir við þér blessuð sólirí,
björt og fögur morgundís.
Morgunhlýr og mildur blærinn
mjúkt um vanga strýkur þinn.
Gegnum hugann geislafingur
greiða veg í himininn.
Loftið hreint sem lindin tæra
lífsins örfar strengjaspil.
Þar sem allt í árdagsljóma
elskar það að vera til.
Ástargeislum guðleg sólin
gyllir lo-ftsins bláa sal.
Allt er samræmt einum vilja,
allt sem honum lúta skal.
Undradjúp, sem auga mætir,
opnar himin þinni sál.
Mátt sinn drekkur mannsins hjarta,
morgundýrð af lífsins sál.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
%
St. Mary's and Vaughan, Winnlpeg
PHONE 92-6441
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
PHONE 92-4624
J. J. Swanson & Co. Phone 74-7855 ESTIMATES FREE
LIMITED 308 AVKNUE BLDG. WINNIPEG J. M. INGIMUNDSON
Fasteignasalar. Leigja hús. Út- Ashphalt Roofs and Insulated
vega peningalán og eldsábyrgð, Siding — Repairs
bifreiöaábyrgC ,o. s. frv. Country Orders Attended To
Phone 92-7538 632 Simcoe St. Winnlpeg, Man.
GIMLI FUNERAL HOME
SARGENT TAXI Sími 59
Sérfrœðinoar i öTlu, sem aö
PHONE 20-4845 útförum lýtur
FOR QUICK, RELIABLE SERVICE BRUCE LAXDAL forstjóri
Licensed Embalmer
DR. E. JOHNSON Dr. A. V. JOHNSON
304 Eveline Street DENTIST
SELKIRK, MAN. 506 SOMERSET feUILDING
Phones: Offlce 26 — Res. 230 Telophone 92-7932
Ofíice Hours: 2:30 - 6:00 p.m. Home Telephone 42-3216
Thorvaldson Eggertson Dr. ROBERT BLACK
Bastin & Stringer Sérfrœðingur 1 augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum.
Barristers and Solicitors 401 MEDICAL ARTS BLDG.
209 BANK OF NOVA SCOTLA BG. Graham and Kennedy St.
Portage og Garry St. Skrifstofuslmi 92-3851
PHONE 92-8291 Heimaslmi 40-3794
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. Creators of Distinctive Printing
J. H. PAGE, Managing Director Columbia Press Ltd.
Wholesale Dlstributors of Fresh and
Frozen Flsh 695 Sargent Ave., Winnipeg
311 CHAMBERS STREET PHONE 74-3411
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Offlce Phone 92-4762 Res. Phone 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment.
Gundry Pymore Ltd.
British Quality Fish Nettlng
98 VICTORIA 8T. WINNIPKG
PHONE 92-8211
Manager T. R. THORVALDSON
Yonr patronage wlll be appreelated
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook St.
Selur llkklstur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaCur s& beitl.
StofnaC 1894
Slmi 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposlte Matemlty Pavllion
General Hospltal
Nell's Flower Shop
Wedding Bouqueta, Cut Flowera.
Funeral Deslgns, Corsages,
Beddlng Plants
Nell Johnson Res. Phone 74-6753
PHONB 92-7025
H. J. H. Palmason, C.A.
Chartercd Acconntant
505 Confederatlon Llfe Buildlng
WINNIPEG MANITOBA
jfoknny, JZyan
li K / 1070 DOWNINO ST. PMONI 71 >11«
1
WINNIPEG'S riRST
"MAILORPHONE"
ORDER HOUSE
Watch for Opening
New Showrooms
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Winnipeg, Man. Phone 92-3561
Kaupið Lögberg
SELKIRK NETAL PRODUCTS
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og ftvalt herelnir. Hitaelningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viC, heldur hlta frá aC rjflka flt
meC reykum.—SkrtfiC. stmlC til
KELLY 8VEINSSON
625 Wall Street Wtanipeg
Just North of Portage Ave.
Slmar: 3-3744 — 3-4431
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin, Maniloba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Kjartan Ólafsson
J. WTLFRTD SWANSON & CO.
Insurance ta sU its branches.
Keal Estate - Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 443 480
LET US SERVE YOU *
VAN'S ELECTRIC LTD.
636 Sargent Ave.
Authorised Home Appliance
Dealert
General Electric
McClary E3ectrtc
Moffat
Admiral
Phone 3-4890
Minnist
CETEL
í erfðaskrám yðar.
G. 7. Jonasson, Pres. & Man. Dtr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Bimi 92-5227