Lögberg - 04.06.1953, Page 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN, 4. JJNÍ, 1953
3
RANNVEIG K. G. SIGBJÖRNSSON:
Yfir fjöll og fyrnindi
NIÐURLAG
— í Vancouverborg —
Lúterska kvenfélagið í Van-
couver hafði samkomu snemma
í apríl. Skautakappinn frægi af
íslenzkum ættum, Frank Fred-
rickson, stýrði samkomunni.
Hann gerði það með skörungs-
skap og glöðu geði. Mr. Fredrick-
son innleiddi samkomuna með
því að allir sungu O, Canada.
Þá var dálítill gamanleikur „The
Male Fashion Show“. Svo voru
sungin ensk þjóðlög. Þá talaði
sóknarpresturinn séra Eiríkur S.
Brynjólfsson. Hann sagði fram
nokkur erindi úr íslenzkum úr-
vals ljóðum og talaði út frá þeim
um mentir íslendinga, einkum
fyr á árum. Mintist á Hafnar-
ferðir þeiría til háskólans þar
og svoleiðis. Á viðeigandi stað í
máli sínu hafði presturinn brú
þá hina miklu,-sem verið er að
byggja hér í borginni, að uppi-
stöðu til að minna menn á Brúna
mestu, Jesúm Krist, sem borið
hefir íslendinga uppi í gegnum
alla erfiðleika í meir en þúsund
ár. — Síðan var sungið eitt og
annað af fallegum, enskum
söngvum.
Ýmislegt smávegis var til sölu
þarna, fatnaður og matarkyns.
Veitingar, og þær ágætar, voru
þarna á eftir.
☆
Tíunda maí urðum við þeirrar
ánægju aðnjótandi, að fræðslu-
málastjóri íslands, hr. Helgi
Elíasson heimsótti fólk hér.
Hann flutti erindi eftir messu í
samkomusal kirkjunnar að
messufólkinu, sem var margt,
viðstöddu. Forseti safnaðarins,
hr. Sigfús Gillies kynti gestinn
og setti samsætið. Einnig kynti
séra Eiríkur S. Brynjólfsson
komumann, því þeir eru vinir
og að sumu leyti samferðamenn
til margra ára. Þá tók við stjórn-
inni hr. Eymundsson, varafor-
seti þjóðræknisdeildarinnar, í
fjarveru forseta þess, Bjarna
Kolbeins. Hann bauð gestinn vel-
kominn og kallaði hann fram.
Menn fögnuðu einhuga komu
fræðslumálastjórans á ræðu-
pallinn og lögðu hlustir við máli
hans. Helgi Elíasson heilsaði
vinsamlega. Hann flutti hlýjar
kveðjur frá Islandi til allra ís-
léndinga vestan hafs. Hann
sagði glögg deili á sjálfum sér,
mintist lítið eitt á mentaferil
sinn og greindi nokkuð frá starfs
ferli sínum. Bar mál hans þess
vott, að hann er maður stað-
fastur á sinni braut, ann landi
og þjóð af einlægum huga, en
þó öfgalaust. Hr. Elíasson skýrði
einnig fyrir mönnum fræðslu-
málin á Islandi töluvert mikið
og ýmislegt í sambandi við þau.
Var þögnin, sem ríkti á meðan
hann flutti mál sitt, lifandi vott-
ur þess, að „menn gerðu góðan
róm að máli hans“, enda var
hann innilega hyltur með hvellu
lófataki, vel samtæku.
Svo sem kunnugt er, er
fræðslumálastjórinn hér vestra
í boði Bandaríkjastjórnar til
þess að kynna sér skólafyrir-
komulag hér vestra og hefir
dvalið syðra um all-langt skeið
en fékk orlof til Canada. Virðist
hr. Helgi Elíasson vel til þess
fallinn að fara með millilanda-
mál, því hann er stiltur og at-
hugull vel og hvorttveggja í
senn, hinn prúðmannlegasti og
alþýðlegasti maður.
Að loknu máli fræðslumála-
stjórans, þakkaði forseti sam-
kvæmisins, hr. Eymundsson,
ræðumanninum fyrir með hlýj-
um og vel völdum orðum. Það
var auðfundið á öllu máli hans,
að hann fagnaði komu þessa
gests. Lét hann í ljósi ánægju
sína yfir aukinni íslenzku kunn-
áttu hér í seinni tíð, þó lítið
kynni að vera. Það kæmi jafnvel
fyrir, að íslenzk tunga heyrðist
af vörum þeirra yngri. Virtist
hann vongóður um einhvern
vöxt þar í framtíðinni. Þetta
samkvæmi hélt áfram með því,
að konsúll Islands hér, hr.
Hálfdán Thorláksson, mælti
nokkur orð af ræðupalli í boði
forseta.
Veitingar voru framreiddar á
þessari samkomu. Piltarnir létu
þær í té í sérstöku virðingar-
skyni við daginn.
— Myndasýning á Höfn —
Þá var haft samkvæmi og
myndasýning á Höfn, nokkrum
dögum seinna, undir forustu
þjóðræknisdeildarinnar, til þess
að taka á móti fræðslustjóranum
þar, hr. Helga Elíassyni og verða
þeirrar ánægju aðnjótandi að
sjá myndirnar, sem hann hafði
meðferðis frá Islandi. Þetta gekk
alt saman ágætlega. Fleiri mynd-
ir voru einnig sýndar þar. Nú-
verandi forseti heimilisins, Sig-
urður Sigmundsson, sýndi mynd-
ir af íslendingum í Manitoba,
flestar frá fyrri tímum. Þær voru
skýrar og að öllu leyti bæði á-
gætlega sýndar og fyrir þeim
mælt. Þá sýndi hann myndir frá
Finnlandi, litauðugar og til-
breytilegar, af sjó og landi, fólk-
inu og iðju þess. Næst sýndi
hann myndir frá Nova Scotia.
Einnig þær voru í skrautlitum af
lands- og sjávarlífi.
Undir eins og fræðslumála-
stjórinn kom, hann hafði eitt-
hvað tafist, tók séra Eiríkur S.
Brynjólfsson á móti honum á-
samt formanni heimilisins og
kynti hann á sinn sérstaklega
vinsamlega hátt. Séra Eiríkur
sagðist hafa þekt Helga Elíasson
í tuttugu og fjögur ár og aldrei
vitað annað en gott um hann.
Hann var innilega glaður yfir
komu hans og yfir myndunum,
sem hann ætlaði að sýna. Og
andi prestsins greip ósjálfrátt
hugi viðstaddra. Þá tók fræðslu-
málastjórinn strax til að sýna
myndirnar ásamt formanni, og
það tókst ágætlega vel. Þær
voru mátulega litaðar, fanst mér,
til þess að yfir þeim birti, en
\
GISLI S. BORGFORD
FRAMBJÓÐANDI VERKALÝÐSSAMTAKANNA
í WINNIPEG CENTRE
Gísli er sonur hinna merku hjóna Þor-
steins Borgfjörð byggingameistara og frúar
hans, en Þorsteinn fluttist hingað til lands
árið 1886 og tók jafnan mikinn þátt í opin-
berum mannfélagsmálum og slíkt hið sama
gerði einnig frú Borgfjörð.
GísU hlaut mentun sína í skólum Win-
nipegborgar, en hugur hans beindist
snemma að því, aö beita sér fyrir bættum
kjörum verkamanna og nú hefir hann í all-
mörg ár verið forstjóri, Regional Director of
the Canadian Congress of Labour. Hann er
maður fylginn sér og vel máli farinn.
Greiðið atkvæði með almenningsöryggi
\
Styðjið C.C.F.-frambjóðendur yðar!
MERKIÐ KJÖRSEÐILINN ÞANNIG HINN 8. JÚNf
Published by Authority of Winnipeg Labour Council—Political Action Committee
Room 201 Union Building
536% Main Street
Phone 93-0131
ekki svo sterkar að maður efað-
ist mikið um virkileikann. Það
komu fram landlagsmyndir af
hraunum, jöklum, Heklu í mörg-
um rjúkandi eldgýgum, laugar
og hverir, hálsar og íðilfagrar
brekkur. Líka kaffenni og snjó-
hýsi, stór-bílar á ferð, jafnvel
upp um jökla.Myndir frá Reykja
vík, þar á meðal frá Austurvelli
með myndastyttu Jóns Sigurðs-
sonar forseta. Myndir frá Þing-
völlum, bænum þar og kirkj-
unni, gjám og hraunum. Myndir
frá Bessastöðum úti og inni, for-
setaheimilinu. Myndir af skólum
og ýmsum bústöðum, þar á
meðal sérlega falleg mynd af
sumarbústað Elíasar Bjarna-
sonar föður fræðslumálastjór-
ans. Hann hefir verið kennari
að lífsstarfi og hressir sig nú
stundum í sumarblíðunni á þessu
fallega heimili. Allar myndirnar
komu vel og skýrt út, og þó að
maður óskaði að sjá fleira, fann
maður að hér var um rætur
manns að ræða. Og maður er
þakklátur fyrir það sem maður
sá.
Nokkur ljóð voru sungin þarna
á íslenzku og að endingu God
save the Queen. Stefán Sölvason
var við hljóðfærið, en Sigurður
Sigmundsson, núverandi forseti
heimilisins, stýrði samsætinu og
talaði fyrir vestrænu myndun-
um. Og honum fórst alt ágætlega
vel. Fráfarandi forseti er Guð-
mundur F. Gíslason, fyrrum
kaupmaður í Elfros, Sask.
Allmargt fólk var þarna sam-
an komið, svo margt sem fyrir
komst til þess að geta haft full
not af myndasýningunum. —
Ágætar veitingar voru bornar
fram á eftir og menn sýndust
una sér vel við að skrafa saman
’og drekka kaffið.
Ritari þjóðræknisdeildarinnar
Ströndin hér, C. Isfjörð, sendi
okkur vinsamlegt boðsbréf um
að vera þarna við. Við þökkum
fyrir það. Einnig hefir séra
Eiríkur S. Brynjólfsson boðið
okkur með sér að Höfn í vetur
oftar en einu sinni, er hann hefir
farið í messuferðir þangað. Og
við höfum notið þess fjarska vel,
að litast um í þessu mikla skraut-
hýsi og tala við menn og konur
þar.
Business and Professional Cards
Dánarfregn
Þann 21. maí s.l. lézt að heimili
dætra sinna í Selkirk, Man., Mrs.
Jóhanna Jórunn Anderson,
ekkja Guðmundar (Arngríms-
sonar) Anderson, fullra 85 ára
að aldri. Hún var fædd 7. sept.
1867 í Holtum í Hornafirði.
Foreldrar hennar voru Jón Jóns-
.son og Herdís Jónsdóttir. Hún
giftist Guðmundi Arngrímssyni
Anderson. Þau fluttu til Canada
um aldamótin, bjuggu um hríð í
ísafoldarbygð, síðar í East Sel-
kirk, en um 30 ár í grend við
Lac du Bonnet. Guðmund mann
sinn misti Jóhanna 1950. Hún
átti fagra elli í umsjón dætra
sinna á heimili Kristínar dóttur
sinnar.
Börn Andersons-hjónana eru:
Tvær dætur, er dóu í bernsku;
John og Harry í Bissett, Man.;
Charley, Lac du Bonnet; Ger-
trude, er bjó með systur sinni,
og Katrín, er ávalt hefir heima
verið; Lillian, Mrs. Harry
Waytuik, fóstraðist upp á heim-
ilinu, einnig að nokkru Albert,
dóttursonur hinnar látnu. Barna-
börn eru 12 og eitt barnabarna-
barn.
Jóhanna var innilega trúuð
kona, þrekmikil og bjartsýn, og
isívinnandi að því er hún mátti.
Um langa hríð þjónaði hún við
ljósmóðurstörf, og átti affara-
sælar græðihendur. — Hún taldi
sig vera komna af ætt séra Jóns
Steingrímssonar í 5. lið. Útförin,
fór fram frá kirkju Selkirk safn-
aðar á annan í hvítasunnu.
S. Ólafsson
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPBG CUNIC
St. Mary's and Vaughail. Winnlpef
PHONE 93-9441
J. J. Swanson & Co.
I .TMTTF.D
308 AVXNUE BLDG. WINNIPKG
FaateiKnasalar. Leigja húa. Út-
vega peningal&n og elda&byrgB.
bifreiða&byrgfi o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
rOR QUICK. RELIABLE SERVICK
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MAN.
Phonee: Offlce 38 — Res. 330
OCflce Hours: 3:30 - 6:00 p.m.
Thorvaldson Eggerlson
Bastin & Stringer
Barriíters and BoHeitori
309 BANK OF NOVA SCOTLA BG.
Portage og Garry St.
PHONR 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managlng Direotor
Wholeeale Dlatrlbutora of Freah and
Frozen Flsh
311 CHAMBERS STRKET
Offlee: 74-14» Bee.: 72-3917
A. S. BARDAL LTD.
FUNBRAL HOME
843 Sherbrook St.
Selur ltkklstur og annaat um dt-
farlr. Allur útbúnaBur •& beatl.
StofnaB 1894
Slml 74-7474
Pkana 74-3237 TM Notra Dame Ave.
Oppoalta Matemlty Pavlllon
General Hoapltal
Nell's Flower Shop
______Bouqueta. Cut Flowera.
Foaaral Deslgns. Corsagea,
Beddlng Plants
Nell Johnson
Res. Phona 74-9733
Offlce Phone 99-4783 Rea. Phone 72-6113
Dr. L. A. Sigurdson
838 MKDICAL ARTS BUILDING
Offlce Houra: 4 pjn.—6 p.m. and by appolntment.
fohnny. Jlyan
908 Sargent Ave. Ph. 3-1365
WINMPCC'S I IRST
MAILORPHONE"
ORDER HOUSE
Write for our Spring and
Summer Catalogue
Lesið Lögberg
SELKIRX METAL PRODUCTS
lUykh&far. ðruggaata eldevörn,
og &valt hereinlr. Hitaelnlngar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldl-
viB. heldur hlta fr& aB rjúka út
meB reykum.—SkrlflB, slmlB tll
KKLX.T 8VKINS80N
«33 Wall Street Wlnnlpef
Juat North of Portage Ave.
Simar: 3-374« — 3-44»
J. WILFRID SWAlfSON k CO.
Insnrance in all Ita branches.
IU rown BDILDING
937 1» laa. i
urr 08
roo
S. O. BJERRXNG
Canadian Stamp Co.
RUBBKR & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATK SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipag
PHONB 93-4834
Phone 74-7853
ESTTMATKS
FREK
J. M. IN6IMUNDS0N
Aihphilt Roofi and Iniulated
Sidlng — Repair.
Conntry Order. Attend.d Te
833 Slmeoe St.
Winnlpeg.
Dr. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 92-7933
Home Telephone 42-3316
Dr. ROBERT BLACK
SérfrœBingur 1 augna, eyrna, nef
og hálssjúkdömum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-8851
Heimastml 40-3794
Arislocrat Stainless
Steel Cookware
For free home demonstrations
without obligation, write phone
or call
302-348 Main StreeL Winnipeg
Phone 92-4665
“The King of the Cookware”
Gundry Pymore Ltd.
Brltish Quality Flsh Nettlng
38 VICTORIA ST. WINNTPKO
PHONB »2-8311
Manager T. R. THORVALDSON
Tonr patronage wfll be appredated
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accountant
505. Confederation Llfe Building
WINNIPEG • MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - SoUdlon
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristj
3M Canadlan Baak of
Chamb.r.
Wlnmipeg, Man. Phone
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave., Wlnnipeg
PHONE 74-3411
Minnist
DETEL
í ©rfðaskrám yðar.
G. F. Jonamon. Prea. 8t Man Dtr.
Keystone Fisheries
Limited ,
4
Wholesale Distrlbutora of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Btreet Bimi 92-6237
BULLMORE
FUNERAL HOME
Dauphin. Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
VAN'S ELECTHIC LTD.
636 Sargent Ave.
Authorised Hotna Applinaoe
Dealars
Genarml Qeetric
McCUrr Qectrie
Admlral