Lögberg - 11.06.1953, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. JÚNl, 1953
5
WV
/UilGAHAL
■WENNA
Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON
*
75 ÁRA AFMÆLI MIKLEYJARSAFNAÐAR
II.
Eftirmanni séra Jóns Bjarna-
sonar í Nýja-lslandi, séra Hall-
dóri Briem, mun ekki hafa þótt
lífvænleg prestsstaða sín þar
eftir hina miklu útflutninga,
enda sagði hann af sér stöðunni
ári síðar, í marz 1881, og hvarf
þaðan burtu. Nú var enginn
prestur í Nýja-íslandi og Fram-
fari var liðinn -undir lok; hjöðn-
uðu nú deilurnar um hríð. —
Sjálfsagt hafa húslestrar verið
hafðir um hönd á flestum heim-
iium; þannig var það í Mikley.
Árið 1884 var séra Jón Bjarna-
son ráðinn prestur til lúterska
safnaðarins í Winnipeg. Um
veturinn það sama ár fór séra
Hans Thorgrímsson, eftir maður
séra Páls Thorlákssonar í Dakota,
að gangast fyrir því, að íslenzkir
söfnuðir beggja vegna landa-
mæranna mynduðu allir eitt
kirkjufélag. Var í þeim tilgangi
haldinn fundur í janúar 1885 að
Mountain og svo stofnfundur í
júní sama ár í Winnipeg. Full-
trúar voru þar frá söfnuðunum
í Nýja íslandi en ekki frá
Mikleyjarsöfnuði; hann gekk í
kirkjufélagið í júní 1886.
Á stofnfundi kirkjufélagsins
var rætt um prestsleysið í Nýja-
Islandi og forseta félagsins, séra
Jóni Bjarnasyni, falið að greiða
úr því. Samkvæmt ósk safnað-
anna réði hann séra Magnús J.
Skaptason 1887 sem þjónandi
prest kirkjufélagsins í Nýja-
íslandi. Varð hann brátt vinsæll
meðal safnaða sinna og gekk nú
alt vel um hríð.
Eins og áður er getið, gerði
Mikleyjarsöfnuður tilraun til að
reisa sér kirkju 1878, er ekki
varð af vegna ágreinings við
myllueigendurna þar, og svo
trúmálaágreiningsins og fólks-
fæðar eftir útflutninginn. Nú
tóku þeir sér fyrir hendur á ný
að reisa kirkju. Réði söfnuður-
inn tvo bræður frá Gimli yfir-
smiði þá Jakob og Vilhjálm
Sigurgeirssyni frá Grund í Eyja-
fírði. Var kirkjusmíðinni lokið
sumarið 1890, og Mikleyjarsöfn-
uður, þótt fámennur væri, varð
þannig fyrstur af öllum söfnuð-
um í Nýja-fslandi að reisa sér
kirkju.
Nokkrum mánuðum síðar, á
páskadaginn!891, gerðist sá sögu
legi atburður í Mikleyjarkirkju,
að sóknarpresturinn, sr. Magnús
J. Skaptason, flutti prédikun og
andmælti harðlega ýmsum kenn-
ingum lútersku kirkjunnar, hélt
svo suður nýlenduna og flutti
þessa sömu prédikun yfir öllum
söfnuðum sínum. Trúmáladeilur
hófust nú á ný og íriðnum var
slitið; einn söfnuður sagði presti
strax upp þjónustu, aðrir klofn-
uðu, þar á meðal Mikleyjar-
söfnuður, voru fylgjendur séra
Magnúsar þar í meiri hluta og
sagði söfnuðurinn sig úr kirkju-
félaginu ásamt fleiri söfnuðum í
Nýja-íslandi. Fóru safnaðarmál-
in í nýlendunni þá á ringulreið.
Kirkjufélagið sendi séra Haf-
stein Pétursson norður til Nýja-
fslands til þess að reyna að jafna
deilur manna og semja frið; er
sagt frá heimsókn hans til safn-
aðanna í Sameiningunni sept.
1892 og þetta meðal annars:
„Hann sigldi til Mikleyjar með 4
mönnum, er sendir höfðu verið
að sækja hann. Næsta dag mess-
aði hann þar og tók margt fólk
«1 altaris. Kirkju Mikleyjar-
safnaðar segir hann hér um bil
fullgerða, vandað hús að öllum
frágangi. Er það til mikils hróss
fyrir jafnfáa og fátæka menn,
°g eyjarbúar eru, að hafa komið
UPP sómasamlegu guðshúsi á
skömmum tíma, og er auðvitað
að þeir hafa ekki getað gjört það,
nema með því að taka nærri sér.
En svo ættu þeir að hafa hug-
fast um leið að kirkjan sé notuð
til að staðfesta þá í trúnni, en
ekki til þess að uppræta trúna
úr hjörtunum.“
Þetta guðshús varð nú að
deiluefni, því allir höfðu lagt til
þess. Gekk deilan svo langt,
að eitt sinn settu utansafnaðar-
menn lás á kirkjuna. Þá sendi
kirkjufélagið séra Jónas Sigurðs-
son norður og gat hann talað svo
um fyrir mönnum, að lásinn var
tekinn burt, en ekki var deilunni
lokið. Séra Jón Bjarnason, for-
seti félagsins, gerði sér ferð
norður sokkru síðar. „Ekki til
að ræða kirkjumál hið ytra,“
segir í Sameiningunni, „heldur
til að heilsa upp á menn í Jesú
nafni, og eftir mætti hvetja
menn til að glæða hjá sér ljós
kristinnar trúar í hjörtum og
húsum.“ Um heimsóknina til
Mikleyjar segir hann þetta: „Að
heimsækja Mikleyinga var í alla
staði ánægjulegt. — Kirkjan er
allsnoturt hús, þótt hún sé ekki
stór, byggð úr sandsteypu. Um
tíma fyrir nokkrum árum tóku
menn í Nýja-íslandi að byggja
hús af því efni. En nú hafa menn
hætt við þá húsagerð, því hún
hefir ekki vel gefist. Uppi yfir
dyrum kirkjunnar í Mikley
standa letruð þessi orð ritning-
arinnar: „Blessaður sé sá, sem
kemur í nafni drottins.“
Mikleyjarsöfnuður gekk aftur
í kirkjufélagið.
Bræðrasöfnuður við Fljótið
hafði sent séra Oddi V. Gísla-
syni köllun og þjónaði hann
Mikleyjarsöfnuði og öðrum söfn-
uðum í Nýja-íslandi um þessar
mundir. Hann sagði sig úr kirkju
félaginu nokkru eftir aldamótin
sökum ágreinings út af óvenju-
legum lækningum hans.
Það var ekki fyr en séra Rún-
ólfur Marteinsson gerðist prest-
ur í Nýja-íslandi 1901 að ágrein-
ingnum um kirkjuna í Mikley
lauk, munu vinsældir og lipurð
hins unga prests hafa átt mikinn
þátt í því. Einn ágætur byggðar-
búi, Jón Jónsson að Grund, tók
að sér að ná tali af öllum utan-
safnaðarmönnum og fékk hann
þá til að sleppa tilkalli sínu til
kirkjunnar án skilyrða; var það
göfugmannlega gert og mikið lán
fyrir byggðina, að ekki spunn-
ust út af kirkjueigninni hat-
ramlegri deilur og málaferli, eins
og sums staðar hefir átt sér stað;
lítil byggð þolir ekki slíkt. Þótt
kirkjan sé eign lúterska safnað-
arins fá utansafnaðarmenn hana
til afnota þegar þeir þurfa, enda
hafa þeir lagt til hennar og gera
enn. f Mikleyjarkirkju hefir
jafnan verið hátt til lofts og vítt
til veggja;.hafa safnaðarmenn ef
til vill þessi orð í huga: „í húsi
mínu rúmast allir, allir!“
Nú var ekkert því til fyrir-
stöðu, að kirkjan væri vígð og
fór athöfnin fram 14. sept. 1902.
Séra Jón vígði kirkjuna með að-
stoð séra Steingríms Thorláks-
sonar og sóknarprestsins.
„Vígsluathöfnin var dýrðleg og
hrifning mannfjöldans mikil,“
ritar séra Rúnólfur. Þarna sáu
menn, sem barizt höfðu þungri
baráttu fyrir lúterskum kristin-
dómi, drauma sína rætast. Ég
nefni suma þeirra: Helga á
Reynistað, Stefán á Jónsnesi,
Halldór í Hlíðarhúsum, Helga
Ásbjörnsson, Vilhjálm Ásbjörns-
son, Ágúst Magnússon, Stefán á
Höfða, Marus Doll og margir
fleiri, að ógleymdu kvenfólkinu,
sem voru engir eftirbátar karl-
mannanna í trúmensku við Krist
og kirkju.
Árið 1908 var prestakallinu í
Nýja-íslandi skipt og hefir
Mikleyjarsöfnuður tilheyrt síðan
Gimli-prestakalli. Síðan séra
Rúnólfur sagði af sér störfum í
prestakallinu 1910 hafa þessir
prestar þjónað Mikleyjarsöfnuði:
Séra Carl J. Olson 1911—17;
séra Sigurður Ólafsson, 1921—29;
séra Jóhann Bjarnason, 1930—35;
séra Bjarni A. Bjarnason,
1931—41; séra Skúli Sigurgeirs-
son, 1944—50; séra Harald S.
Sigmar, 1951. —
Á þessum árum hafa prestar
Unitara- og Sambandskirkjufé-
lagsins messað af og til í Mikl-
eyjarkirkju. Ennfremur er Sam-
bandskvenfélag starfandi í
byggðinni.
Árið 1886, 4. marz, mynduðu
14 konur kvenfélag, hið fyrsta í
Nýja-íslandi, er nefnt var
Undína, í þeim tilgangi að líkna
bágstöddum, en tók svo síðar á
stefnuskrá sína að hlynna að
lúterska söfnuðinum; hefir það
verið stoð hans og stytta í fjölda
mörg ár og er það enn.
Ekki er messað oft í Mikley,
sex til átta sinnum á ári, en
sunnudagaskóli er starfræktur
stöðugt, og ekki er hægt að minn-
ast hans, án þess að geta þess
manns, er gerði meira að því að
halda uppi kristindómsfræðslu á
eyjunni en nokkur annar, en
það var Helgi heitinn Ásbjörns-
son. í marga tugi ára stjórnaði
hann sunnudagaskólanum og
undirbjó börnin fyrir fermingu.
Hjá honum lærðu þau og mörg
að lesa íslenzku. Hann var oftast
erindreki safnaðarins á kirkju-
þingum. Nemendur hans munu
seint gleyma þessum hvítskeggj-
aða manni; góðmennskan og
trúargleðin skein jafnan af and-
liti hans. 'í minningargrein um
Helga ritar séra Rúnólfur: „Með
Helga látnum hefir Mikley mist
kenniföður þó ekki væri hann
prestvígður." —
Eins og áður er getið, var,
kirkjan byggð úr sandsteypu,
sem ekki gafst vel, hún var því
rifin og önnur kirkja reist 1928.
Söknuðu margir gömlu kirkj-
unnar; séra Rúnólfur ritaði: —
„Andi frumbyggðarinnar spegl-
aði sig þar; það var eitthvað þar
sterkt og hreint.“
Hin nýja kirkja er líka falleg
og er miklu stærri en sú gamla.
Guðmundur Olson var yfirsmið-
urinn. Árið 1938, 21. ágúst, var
nýja kirkjan vígð af þáverandi
forseta kirkjufélagsins, séra
Kristni K. Ólafsson; voru marg-
ir prestar viðstaddir og tóku þátt
i athöfninni. Ári síðar var
kirkjuþingið haldið í Mikley og
þótti þingmönnum ævintýralegt,
að sigla þá í fyrsta sinn á kirkju-
þing. Og í júní 1949 hélt Banda-
lag lúterskra kvenna ársþing sitt
í Mikleyjarkirkju. Þótti söfnuð-
urinn, kvenfélagið og Mikleying-
ar í heild taka höfðinglega á móti
gestunum í bæði skiptin.
Og nú hefir Mikleyjarsöfnuður
haldið upp á 75 ára afmæli sitt;
megi starf hans blómgast og
blessast á komandi árum.
,Sama vald, er veldur sólnatafli, veitir sér í gegnum mannsins æðar“
Áhrif stjarnanna á vorri jörð
Háttsettur embættismaður var
á ferð um vetur norður í Yukon-
héraði og gamall gullnemi var
fenginn til þess að aka honum á
sleða. Áður en þeir lögðu af
stað breiddi gullneminn feld af
villinauti yfir kné þeirra.
— Þú átt að snúa hárinu inn,
sagði embættismaðurinn. Veiztu
ekki að það er langtum hlýrra.
Gamli maðurinn sneri feldin-
um við og hló.
— Að hverju ertu að hlæja?
spurði embættismaðurinn.
— Ég var að hugsa um vesal-
ings villinautin, sagði sá gamli,
hvílíkir dauðans bjálfar þau eru
að hafa aldrei uppgötvað þetta.
"y
j7 Okkar a ðVlilli Sagt ^
Eftir GUÐNÝJU GÖMLU
I tilliti til alls, sem ritað hefir verið um
krýninguna, virðist sem ég geti litlu bætt þar
við. Utan þess, ef til vill, að þeir, sem sjá aðeins
skrautið og viðhöfnina, fara á mis við dýpri
merkingu viðburðarins. Það er vissan um stöðu-
leika breska konungsdómsins, sem ég hefi feng-
ið síðan ég kom til Canada, er veitir borgurum
samveldisríkjanna, þeim er skilja það, sterka öryggistilminningu.
Guð blessi drotninguna, sannarlega.
------ O ------
Nú verðum við að snúa okkur frá þessum æðri hugsunum til
hversdagslegri hluta. Við konurnar eigum lítinn heim útaf fyrir
okkur — fjölskylduna, og innan þess litla hrings reynum við að
afla alls þess sem bezt er; það er kanske þessvegna, að við konur
viljum reyna eitthvað nýtt, eða krefjumst einhvers betra. Þegar
ég kom til Canada, hafði ég aldrei heyrt um bréfklúta, eða
FACE-ELLE. Nú get ég ekki hugsað mér að vera án Face-Elle
klúta. fteynið þá og athugið hvers vegna Face-Elle er jafnan efst á
innkaupalista mínum!
------ O ------
í síðasta dálki mínum sagði ég ykkur frá nýrri uppfinningu—
CURITY DIAPERS. Þið verðið að reyna þær. Athugið sjálfur hve
Curity barnarýjur eru mjúkur og þerrandi, auðvelt að þvo þsc/,
og þær þorna fljótt. Ég skal senda þér eina Curity barnarýju fyrir
aðeins 25c í silfri eða frímerkjum er borgar fyrir höndlunnar
kostnað — skrifið mér í dag til Curity, 37 Isabella Street, Toronto.
Þær munu reynast óvenju góðar, því, þótt þær séu mjúkur og
léttar, þerra þær betur og endast betur en venjulegar barnarýjur.
Mig langar svo mikið að þú njótir þessarar uppfinningar með mér.
------ O-------
Frá borði mínu get ég Séð gómsæta hænsnasteik í GURNEY
ofninum okkar. Þetta er önnur nýjung, sem vera mín í þessu nýja
landi hefir veitt mér. Stundum stríðir maðurinn minn mér með
því að segja að við konurnar höfum of lítið að gjöra í Canada. En
hann veit að sá frítími, sem tímasparnaðarvél eins og Gurney
eldavélin veitir mér, gerir mér mögulegt að verja meiri tíma með
honum og börnunum. Hann getur í rauninni ekki kvartað, því
máltíðirnar, sem ég bý til fyrir hann á GURNEY vélinni okkar,
eru betri en nokkurn tíma áður — þess nýtur öll fjölskyldan.
------ O ------
Hvað tala konur um þegar þær hittast? Þú og ég vitum það.
Alveg það sama og ég rita um í þessum dálkum — nýjar leiðir til
að gera lífið auðveldara, ánægjulegra og öruggara. Og þegar ég
tala um öryggi, tala ég um IMPERIAL BANKANN. Við sem
komum til að byrja lífið á ný i ókunnu landi höfum við mörg
vandamál að stríða. Við, fyrir okkar leyti, munum
ávalt vera þakklát IMPERIAL BANKASTJÓRA
okkar fyrir þolinmóðar útskýringar og vinsamlegar
ráðleggingar, sem hjálpuðu okkur og greiddu úr
vandamálum. Einnig þú munt njóta þessarar fyrir-
greiðslu hjá IMPERIAL BANKANUM.
Á jörðinni ríkir nagandi kvíði.
— Andrúmsloft þessarar aldar er
þrungið feiknum og fárstöfum.
Allar þjóðir eru í uppnámi.
Andstæðurnar aukast og allt
virðist stefna á ógæfuhlið. Tor-
tryggni og öryggisleysi er hvar-
vetna að finna og friðarhugsjón-
in á erfitt uppdráttar. Jafnvel
hin dauða náttúra er að byrja að
tryllast. Mannkynið greinist í
ólíka flökka eftir ólíkum lífsvið-
horfum. Stórveldin hervæðast og
kappkosta að finna upp ný og
ný aleyðingar og drápstæki. Með
vaxandi ótta horfir almenningur
á þessi tákn tímanna og býst við
nýjum skelfingum ofan á þær,
sem á undan eru gengnar. Skugg-
inn af kjarnorkustyrjöld breiðist
út um alla jörð og mannkynið
óttast að Ragnarök sé á næstu
grösum.
Hvar er þá hjálpar og hug-
svölunar að leita? Hvergi nema í
trúnni á mátt og sigur hins góða,
trúnni á æðri máttarvöld, sem
hjálpað geta, ef liðsinnis þeirra
er leitað. Maðurinn verður að
skilja hlutverk sitt og stöðu sína
í alheimi. Hann verður að skilja
að hann hefir frjálsan vilja til
að velja og hafna, en er jafn-
framt háður utan að komandi
áhrifum, sem geta kollvarpað
öllum fyrirætlunum hans, ef þær
eru ekki í samræmi við hin eilífu
alheims lögmál. Honum verður
að skiljast, að „heimsins vél er
knúð af einu afli“, sem æðra er
allri mannlegri speki, og er því
guðdómur. Lausn mannkynsins
er komin undir því, að líf þess sé
í samræmi við lögmál alheims
máttarins, að það sé guðdómin-
i;m samtaka.
Fleiri og fleiri af andans mikil-
mennum þjóðanna taka nú undir
þessa skoðun, og það er fyrsta
skrefið í áttina að réttu marki.
Því svo sannarlega sem hin fáu
andans mikilmenni hafa áður
leitt þjóðirnar frá villimennsku,
þá munu þau leiða þær af þeim
villigötum, sem þær eru nú á.
---------------☆-----
í mörgum bókum, sem fræði-
menn rita og komið hafa út að
undanförnu er sagt, að jarðríki
sé ekki eina ríki heimsins, sem
byggt er, og að maðurinn sé ekki
aðeins jarðarborgari, heldur
einnig alheimsborgari, í þess orðs
fyllstu merkingu.
Meðal nýjustu bóka, sem um
þetta efni fjalla, er þýzk bók,
sem heitir „Wir und das Weltall"
og er eftir stjörnuþýðandann
Willy Bischoff. Hann gerir þar
þann greinarmun á „astrologie“
(stjörnuþýðingalist) og „astro-
nomi“, að astrologie sé sú fræði-
grein, er fáist við afstöðu stjarn-
anna innbyrðis og hverja þýð-
ingu hún hafi, en astronomi sé
himinþekking. Þess vegna hafi
hin fyrrnefnda verið kölluð
stjörnuþýðingafræði, en hin
„stærðfræði stjörnugeimsins“. —
Hvortveggja vísindagreinin sé
sjálfstæð, en astrologie hafi það
fram yfir að hún sé lífræn og
reyni að skilja -hvað liggur til
grundvallar að sambandi stjarn-
anna. Þessar vísindagreinar geti
stutt hvor aðra með aðstoð
þriðju vísindagreinarinnar, —
stjörnulíffræði.
Stjörnulíffræðin sé sú fræði-
grein, er rannsakar lífið í alheimi,
og samband lífsins í alheimi.
Það sé því hennar hlutskipti að
rannsaka þau áhrif, sem alheim-
urinn hefir á lífið hér á jörð, og
þá sérstaklega líf mannanna.
Sumir hafa haldið því fram,
þegar þekkinguna þrýtur, að
þetta eða hitt gerist af tilviljun.
En það er ekki um neina tilvilj-
un að ræða í stjórn alheimsins,
og stjörnufræðingurinn Johann-
es Kepler hélt því jafnvel fram
á sinni tíð. Þegar vér tölum því
um tilviljun, þá er það aðeins
vegna ónógrar þekkingar á stjórn
heimsins, og fullkomins þekk-
ingarleysis á afstöðu hnattar
vors í alheimi. Það er hlutverk
stjörnulíffræðinnar að styðjast
við reynslu og reyna að læra af
henni þegar svipaðir atburðir
endurtaka sig.
Astralogian lítur ekki á menn-
ina sem einstaklinga, heldur sem
lið í alheimssköpuninni. — Sama
valdið, sem stjórnar gangi stjarn-
anna og lætur blóm og jurtir
vaxa, hreyfir sér einng í sál
mannsins. Máðurinn er háður
utan að komandi krafti, sem ríkir
í alheimi og er öllu æðri og
hlýtur því að vera guðdómlegur.
Þessi kraftur stjórnar mönnum
og heimshverfum og þess vegna
hlýtur að vera tilgangur að baki.
Það hefir verið sannað vísinda-
lega, að eigi aðeins sól vor og
tungl hafa geisileg áhrif á lífið
hér á jörðu, heldur hafi blátt
áfram stuðlað að því, að lífið reis
hér á legg. Franski stjörnufræð-
ingurinn Camille Flammarion
sýndi fram á hver áhrif tunglið
hefir á líf manna, og Charles
Darwin tók undir það. Og þegar
það er nú sannað að tunglið hefir
þessi áhrif, þá er skammt til hins
að viðurkenna að aðrir hnettir
geti haft áhrif á lífið á jörðinni
líka, jafnvel á hugarfar og
breytni mannanna. Allir geislar,
sem til vor stafa utan úr geimn-
um, er orka, sem áhrif hefir.
Þetta má sjá á því t. d. að ljós
frá fjarlægustu stjörnum, hefir
áhrif á ljósmyndaplötu, felur í
sér kraft, sem gerir breytingar
á efnasamsetningi hinnar ljós-
næmu filmu.
Sérstök áhrif hafa hinar
aðrar jarðstjörnur á jörðina,
Merkúr, Venus, Marz, Júpíter,
Satúrnus, Úranus, Neptúnus og
Pluto. Það er eftirtektarvert að
sumar vísindagreinir hafa á
seinni árum komizt að niður-
stöðum í þessu efni, sem eru í
fullu samræmi við kenningar
astrologiunnar. — Allir þekkja
áhrif sérstakra geisla, eins og
t. d. útblárra geisla og X-geisla.
Þessir geislar stafa utan úr
geimnum og þeir hafa úrslitarík
áhrif á erfðastöðu mannkynsins.
Vér lifum og hrærumst í geisla
hafi og til áhrifa þessara geisla
er að rekja margt af því, sem
gerist í lífi mannanna. Þetta hef-
ir nú fengizt sannað með kjarn-
orkuvísindunum. Þessir geislar
hafa vakið oss til lífsins og áhrif
þeirra fylgja oss til æviloka.
Lífið er íleiðsla og samræmi.
Vorhefti "Scandi-
navian Studies"
Nýútkomið vorhefti ársfjórð-
ungsritsins “Scandinavian Stud-
ies”, málgagns Félagsins til efl-
ingar norrænum fræðum (The
Society for the Advancement of
Scandinavian Study), er að all-
miklu leyti helgað íslenzkum
fræðum.
Öndvegi skipar í heftinu rit-
gerð eftir dr. Richard Beck, er
nefnist “Alexander Pope and
Icelandic Literature”, fyrsta
heildaryfirlit um það efni á enska
tungu, en áður hafði höfundur
birt ritgerð um það í „Skírni“.
Dr. Beck er einnig meðhöfundur
bókfræðilegs yfirlits yfir rit og
ritgerðir um norræn fræði, er út
komu í Bandaríkjunum síðast-
liðið ár (“American Scandinavian
Bibliography for 1952”); er þar
getið ýmsra rita og fjölda rit-
gerða, er varða íslenzk fræði,
meðal annars þriggja ritgerða
um það efni eftir dr. Stefán
Einarsson. Eftir hann er einmg
í umræddu hefti ritdómur um 3.
bindi af hinni nýju útgáfu af
Heimskringlu Snorra Sturluson-
ar (íslenzk fornrit XXVIII,
Reykjavík, 1951).
Aðalritstjóri “Scandinavian
Studies” er hinn kunni málfræð-
ingur, Prófessor A. M. Sturte-
vant, á ríkisháskólanum í
Kansas (University of Kansas);
en auk hans eiga sex aðrir kenn-
arar í norrænum fræðum í
Bandaríkjunum sæti í ritstjórn-
inni, meðal þeirra dr. Beck og
dr. Einarsson.