Lögberg - 11.06.1953, Page 6

Lögberg - 11.06.1953, Page 6
6 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. JÚNÍ, 1953 y=——. GUÐRÚN FRÁ LUNDI: DA LALÍF \ „Ég hélt það af því, að hnjúkarnir eru svo hvítir,“ sagði hann og benti hlæjandi fram í fjöllin. „Það er munur eða hérna hjá okkur; þar sést ekki snjódíll í fjöllunum.“ Hún leit hornauga upp til fjallanna. „Ég get nú helzt trúað, að það festi aldrei fönn á þessum grjótstrýtum,“ sagði hún þurrlega. Hann hló. „Hefurðu aldrei komið út á Ströndina fyrr?“ „Nei, ekki svona langt.“ „Þér lízt víst ekkert vel á þig?“ „Mér sýnist hún ósköp mögur og sultarleg,“ sagði hún og hló dálítið. ' „Finnst þér björgulegra í dalnum?“ „Það er ólíku saman að jafna.“ „En það var líka alauð jörð hjá okkur um páska. Þá var sagt, að allar skepnur væru í húsi hjá ykkur.“ „Það er líka gras, en ekki grjót, undir snjónum hjá okkur, þegar hann leysir,“ sagði hún og hló glaðlega. Hann hló líka. „Kannske verðum vð alltaf að jagast út af dalnum og Ströndinni,“ sagði hann. „Dalurinn er langtum betri,“ sagði hún. „Þeir eru líka háreistir og drjúgir, dalapiltarnir,“ sagði hann, „þó að hann sé nú allra montnastur, þessi „dalaprins“, sem svo er kallaður.“ Þóra hækkaði í söðlinum og setti hnykk á höfuðið. „Honum er líka óhætt að hreykja hattinum. Hann á hann sjálfur,“ sagði hún í breyttum rómi. Svo sló hún í Mósa og þeyttist á undan Sigurði. Hann gat ekki haft tal af henni lengi. Þetta var ósköp laust við að vera skemmtilegt ferðalag. „Fer nú ekki bráðum að sjást bærinn þinn, Þóra?“ var það næsta, sem hann sagði. „Ó-nei. Það er nú nokkuð langt eftir ennþá,“ kallaði hún aftur fyrir sig. Loksins var þó riðið í hlaðið á framtíðarheimili Sigurðar. Magga gamla og drengur stóðu úti á hlaðinu og athuguðu gestinn nákvæmlega með forvitnum augum. „Þetta hefur þú haft upp úr krafsinu, Þóra litla,“ vældi Magga gamla. „Er þetta allt heimilisfólkið?“ spurði Sigurður kíminn. „Ójá,“ sagði Þóra. „Það er ekki svo stórt búið í Hvammi, að það þurfi marga til að vinna fyrir því. Það er óvíða annars eins fólksfjöldi og þarna á Hvoli. Mér þykir ólíklegt, að það hafi annað að gera en að tefja hvað fyrir öðru.“ Hún var búin að spretta söðlinum af Mósa, áður en hann vissi af. „Ég hefði nú eiginlega átt að gera þetta,“ sagði hann vand- ræðalega. „Ég er vönust við að gera það sjálf,“ sagði hún. Magga sagði henni, að Jón á Nautaflötum hefði komið og spurt eftir henni rétt eftir að hún hefði verið riðin af stað. „Hann vildi ekkert stanza,“ sagði hún. Þóra horfði með ánægju á, hvað Sigurður tók skarplega á skóflunni daginn eftir, þegar farið var að stinga út úr húsunum. Það var þó mikill munur eða að sjá til hans Fúsa. Henni fannst hún þurfa að láta hann skilja það á sér um kvöldið, þegar lokið var við taðið að öllu leyti, stinga það, aka frá og kljúfa. Og hún sagði glaðlega við hann, þegar þau gengu heim að bænum: „Svona fljótt hefur aldrei gengið að stinga út, það ég man eftir.“ Eins var með túnvinnsluna. Hún gekk eins og í sögu, fannst henni. Það var engin hætta á, að hún yrði á eftir nágrönnum sínum núna. Hún fór á fætur klukkan sex á hverjum morgni og fór til kindanna eins og hún var vön, meðan sauðburðurinn stóð yfir. Sigurður hafði ekki vanizt því, að farið væri að hreyfa sig fyrr en klukkan sjö. Það var líka nægilega langur vinnutími til klukkan tíu á kvöldin. Hann mókti því þangað til hann heyrði klukkuna slá. „Mér þyký: húsmóðirin geta vaknað á morgnana,“ sagði hann við Möggu gömlu einn morguninn. „Ójá; hún á ekki langt að sækja það. Hann tók ekki nærri sér að vakna, hann faðir hennar, meðan hann gat það heilsunnar vegna.“ „Hefur hún þessa fótaferð allan árshringinn?“ „Nei, ónei; ekki nema núna um sauðburðinn, blessaður vertu.“ Hann var ævinlega búinn að vinna dágóða stund, þegar hún kom heim. Hún bauð honum ætíð góðan dagínn og sagði vanalega eitthvert spaugsyrði við hann, eins og hvort honum fyndist ekki dalurinn ólíkt fallegri núna en Ströndin, eða hvort hann sæi eftir steinunum, að hafa þá ekki í kring um sig. Hann svaraði vanalega í sama tón. Honum fannst hún ólíkt skemmtilegri en þegar þau riðu inn eftir Ströndinni á kross- messudaginn. Hann fór að spyrja drenginn, hvað ærnar væru margar, hvort hann vissi það. Jú, hann vissi það vel. Þær voru fimmtíu og tvær með ánum hennar Möggu og einni, sem hann átti sjálfur. „Nú, hvað á hún margar?“ „Átta.“ „Nú; þá á Þóra 43.“ Hann setti þessar níu til hliðar. Og seytján ær voru úti í Hvolsfjalii sem hann átti sjálfur. Þær yrðu á fóðrum í Hvammi næsta vetur. Það urðu samtals 60 ær. „Er ekki eitthvað af gemlingum?“ spurði hann drenginn. „Jú, átta.“ „Nú, já. Á ekki Magga neitt af þeim?“ „Nei.“ Og hann átti einhvers staðar líka átta. Sextán. Sjötíu og sex á næsta vori. Hann setti ærnar Möggu enn til hliðar. „Hvað eru hrossin mörg?“ spurði hann drenginn. „Það eru fjórir klárarnír og Mósi og eitt trippi.“ Hann bætti við þremur höfðum, sem hann átti sjálfur. Níu hross. Tvær kýr og kvíga í fjósinu. Það var einhvers staðar byrjað með minna, gat hann hugsað sér. Drengurinn hélt áfram: „Svo eru þrjár kýr, kvígan og kálfurinn.“ „Þær eru ekki nema tvær, drengur,“ sagði Sigurður. „Jú; ein er í byggingu á Hóli. Kannske kaupir Elli hana. En Björn svæfði alltaf kálfinn á haustin, þegar honum fundust heyin lítil, en þegar vel heyjaðist, lét hann hann lifa.“ „Nú, einmitt það,“ sagði Sigurður. Hann var anzi skynsamur, þessi strákur, ekki eldri en hann var. Þegar búið var að vinna á túninu og verið var að hressa sig á lummukaffi, sagði Sigurður: „Hann hefur ekki haft fyrir því að slétta í túninu, gamli maðurinn.“ „Nei; því var nú ver,“ sagði Þóra. „Ég held helzt, að honum hafi þótt svo vænt um þúfurnar, að hann hafi ekki getað hugsað til þess að þær hyrfu.“ „En hvað finnst þér?“ spurði hann. „Ég vildi helzt, að þær væru allar farnar.“ Um kvöldið, þegar smalinn fór fram fyrir féð, sagði Sigurður við hann: „Þú skalt skreppa heim að Nautaflötum og fá lánaðan ofanaf- ristuspaða. En skilaðu því frá Þóru, en ekki mér. Ég þekki það ekkert, þetta fólk.“ Hann lofaði að gera það. Hreppstjórinn var ekki heima, þegar drengurinn 'kom fram eftir. Svo hann gerði boð fyrir húsfreyju og bar upp erindið við hana. „Jú, auðvitað er það velkomið, en þú þarft að koma inn, góði minn.“ Og það voru bornar fyrir hann sætar kökur og nýmjólk. Og fólkið þyrptist í kringum hann, næstum því eins og það langaði í þessar kökur, og hann var spurður næstum því úr spjörunum. Enginn var þó eins áfjáð og Lísibet og Jón. Hún var þó oft búin að segja, að það væri ósiður, að spyrja unglingana, sem kæmu á heimilið. En nú gerði hún sig seka í þessari óhæfu. „Ætlar hann að fara að rista ofan af? Er hann ekki mikið dug- legri en Fúsi?“ Það var Lísibet sem spurði, og drengurinn játaði tyggjandi. „Er það hann, sem gengur innan um féð í fjallinu á morgnana?“ spurði Jón. „Nei, það er Þóra. Hún fer ofan klukkan sex. Hann klæðir sig ekki fyrr en hún er farin að ganga átta.“ „Skyldi Tóti minn hafa reynt að fara ofan jafn snemma hús- móður sinni. Kannske farið til kindanna fyrir hana,“ sagði Jón. „Það er vel líklegt,“ sagði móðir hans. „Og Þóra að fara á fætur klukkan sex,“ tautaði Anna. „Alltaf segir þú þetta. Talar um dugnaðinn í Þóru,“ sagði konan hans og káklaði á kinninni á honum, eins og hún væri að gefa honum pústur. „Gott ef þú hleypur ekki út í fjallið til hennar einhvern morguninn til að hæla henni fyrir dugnaðinn.“ „Vertu ekki öfundsjúk, góða mín. Engan meiðir annars hól. Auðvitað ert þú fjarska dugleg líka, þó að þú farir ekki á fætur fyrr en um tíuleytið,“ sagði hann glettinn. Hún setti upp fýlusvip, en varaðist þó að láta fóstru sína sjá framan í sig. „Þú ert slæmur — vondur,“ tautaði hún fast við andlitið á honum. Hann kyssti hana hlægjandi. „Þakka þér fyrir hólið, elskan mín. En hvers konar leiðindasvipur er þetta, sem þú setur upp? Viltu að ég segi, að Þóra sé ónytjungur og slæm stúlka?“ Hún tók fyrir munn honum: „Nei, Þóra hefur alltaf verið mér eins og systir.“ Svo hvíslaði hún einhverju að honum, sem enginn heyrði. Lísibet fylgdi drengnum til dyranna og afhenti honum spað- ann. „Fellur þér vel við nýja vinnumanninn?“ spurði hún. „Já, já,“ svaraði strákurinn hreykinn. „Er hann laglegur?“ spurði hún. „O, svona í meðallagi. Hann er rauðkollóttur,“ fleipraði hann út úr sér, um leið og hann hljóp úr hlaðinu. Þetta sama kvöld, þegar allir voru sofnaðir, gekk Þóra hugs- andi suður túnið. Hún ætlaði að gá að nýborinni á, sem Fúsi átti. Það var víst hálfgerður klaufi að komast á spenann, litla greyið. Það var rétt að gæta að því. Hún gat hvort sem er ekki sofnað. ílugurinn var í uppnámi. Smalinn hafði sagt henni frá því, að hann hefði komið að Nautaflötum, og hann hafði tuggið upp hvert einasta orð, sem sagt var í kokkhúsinu. Og nú sauð gremjan í henni við Önnu. Hún var að reyna að slíta upp það, sem eftir var af æskuástinni í hjarta Jóns til hennar. Hún gat ekki þolað að hann léti í ljós að Þóra væri dugleg, af því hún sjálf tók aldrei ærlegt handarvik; enda þurfti hún þess ekki. Það var dekrað og stjanað við hana eins og smáborn. Og henni datt í hug, að hann hlypi kannske út í fjallið. Mikið hlaut það að vera óskemmtilegt fyrir hann, að vera giftur þessari tortryggnu manneskju. Skyldi hann hafa sagt að hún væri ónytjungur, ef hún hefði heimtað það? Skyldi hann, sem aldrei hafði þekkt annan vilja en sinn eiginn, beygja sig fyrir duttlungum þessarar konu, að hann segði aðeins það, sem henni þóknaðist? Það var aðeins þetta síðasta, sem Anna hafði sagt, sem mýkti svolítið skapsmuni hennar. Þær höfðu alltaf verið eins og systur; en nú fannst henni hún geta hatað hana, síðan hún sá hana standa við stofugluggann. Þá sagði einhver innri rödd henni, að hún hefði ekki átt betra skilið af þessari saklausu og hreinskilnu konu. Þóra svaf, aldrei þessu vant, morguninn eftir, þegar Sigurður fór ofan. „Hún hlýtur að hafa yerið í alla nótt að bjástra við féð,“ sagði Magga gamla. Hún vakti hana með kaffinu. „Skárri er það nú endemis svefninn!“ sagði Þóra, þegar hún leit á klukkuna. Það var víst óþarfi að tala um dugnaðinn hennar núna. Hún varð hissa, þegar hún sá hvað Sigurður hafði fyrir stafni og flýtti sér til hans. , „Ég hélt að þú hefðir ekki á móti því, að ég risti ofan af stykkinu því arna,“ sagði hann og brosti dálítið drýgindalega. „Nú, það er einmitt það, sem mig hefur langað til í mörg ár,“ svaraði hún, tyllti sér á þúfu nálægt honum og horfði á, hvað hann vann laglega. Hann fumaði ekki eins og sumt fólk, sem vill heita duglegt, heldur setti hann spaðann undir eitt hornið á þökunni og fló hana ofan af þúfunni í einni striklotu, henti henni síðan dálítið frá sér. En smalinn hamaðist við að hlaða úr þeim bunka beggja vegna við flagið. „Ertu vanur að gera þetta?“ spurði hún. „Já; ég var sex vikur í fyrravor hjá nýja prestinum á Kára- stöðum. Honum þótti heldur þýft túnið. Þeir gera meira að jarðar- bótum á Suðurlandi en hér.“ „Já, ég sé það, að þú ert vanur,“ sagði hún og hélt áfram að horfa á hann. „Verður ekki langt þangað til þetta verður að slægjutúni?“ spurði hún svo. „Það verður hægt að slá það strax í sumar.“ „Er það mögulegt?“ Hún hafði haldið, að það þyrfti mörg ár til að gróa. Eiginlega hafði faðir hennar komið því inn í höfuðið á henni. „Er þetta ekki erfitt?“ spurði hún því næst. „Það læt ég vera, ef spaðinn bítur almennilega.“ „Þú hefur sléttað mikið hjá prestinum í sex vikur.“ „Já; við vorum líka tveir.“ Þóra gleymdi gremjunni, sem hafði haldið vöku fyrir henni næstliðna nótt. Nú voru það þúfurnar og Sigurður, sem áttu mest- allar hugsanir hennar. Hún þreyttist aldrei á því að horfa á flagið. Gaman yrði, þegar það yrði orðið að grænu, sléttu túni, þessi .ólukku þúfnaklasi, sem tæplega var hægt að slá eða raka. Skyldi hann ekki slétta í túninu næsta vor, ef hann yrði þá hjá henni? Hún gat tæplega hugsað sér að missa-hann, svo vel féllu henni verkin hans. Hún þurfti að tala um það við hann. Bjóða honum hærra kaup, ef hann vildi ekki vera við sömu kjör og þetta ár. Hún fór á fætur á sama tíma og vant var og gekk í fjallinu, oft lengur en hún beint þurfti. Það var svo gaman að rifja upp bernskuleikina og æskuástina og horfa yfir dalinn, sem óðum var að grænka. Það var gott útsýnið úr fjallinu. Svo var þetta svarta, stóra moldarflag efst í *úninu hennar. Bráðum var búið að herfa það og flytja í það nægan áburð. Á morgun yrði það þakið, hugsaði hún einn morguninn, þar sem hún sat ofarlega í fjallinu og hvíldi sig. Og þarna var verið að sækja ólukku bikkjurnar frá Nautaflötum, sem höfðu stolizt út fyrir merkin. Hestasveinninn rak þá dálítið fram yfir merkin, sneri svo við hestinum og kom þeysandi. Hvert skyldi hann ætla? Nú þekkti hún reiðlagið. Það var Jón. Hann stanzaði hestinn á grundunum rétt fyrir neðan jarðfallið og veifaði til hennar. „Góðan daginn, Þóra! Ég er með bréf til þín.“ Bréf til mín?? hugsaði hún. Hvaðan gat það verið. Hún fékk aldrei bréf. Hún stóð upp og gekk í áttina til hans. „Hvar tókstu það?“ „Það kom með póstinum.“ Nú varð hún enn meira forviða. Aldrei hafði hún fengið póstbréf, nema bréfin, sem hann hafði skrifað henni af skólanum og hún geymdi eins og helga dóma niðri í kistuhandraða. Gat það verið frá Lilju?? „Er það frá Ameríku?" spurði hún. „Það getur verið.“ „Skrifar ekki Lilja þér?“ spurði hún hálf háðslega. Hún skýrði það ekki nánar. Það var eins og heimurinn ætti aðeins eina Lilju. Hann vissi líka vel, hverja hún meinti og svaraði raunalega: „Nei; hún skrifar mömmu.“ Hún var nú komin niður á jafnsléttu og stóð skammt frá hest- inum og horfði undrandi á Jón. Því var hann svona? Það var hvorki glettni eða ertni í svip hans, heldur alvara, eins og þegar hann kom með líkbörurnar á sumardaginn fyrsta. Hún gekk fast að hestinum og studdist upp við makkann. „Hefur nokkuð — komið fyrir?“ spurði hún, og glettnisbrosið hvarf af andliti hennar. „Hefurðu heyrt frá Seli?“ „Nei, hvað? Seli? Hvað er þaðan að frétta?“ „Það eru sorglegar fréttir. Hjálmar hrapaði fram af bröttu klettunum í Faxagilinu og stórslasaðist.“ „Ósköp eru að heyra þetta,“ sagði Þóra og stundi. „Hefur læknir verið sóttur?“ „Já; hann var þar í gær. Hann gaf víst litlar vonir. Mamma er fram frá.“ „Ó, þessi veikindi og dauði. Það er voðalegt!“ andvarpaði hún. „Já,“ sagði hann. „Þessi alheimsstjórn svo kallaða. Hún á að vera réttlát og gæzkurík. En hún er óréttlát. Hvað skyldi hann hafa unnið til slíkra forlaga? Hefur hann ekki strítt við fátæktina alla ævina, án þess að mögla, og svo á hann þetta eftir, að lifa við örkuml og langar þjáningar. Það hefði þá verið betra, að hann hefði dáið strax. Aldrei raknað við aftur.“ „Já,“ sagði hún. „Það hefði verið það bezta. Að hugsa sér að þjást margar vikur, eins og hann pabbi sálugi. Þó hefur hann ekki átt eins bágt og þessi maður.“ Svo bætti hún við: „Það var gott, að Þórður fór ekki frá Seli í vor.“ „Víst var það, fyrst þetta þurfti að koma fyrir.“ Hún brosti dálítið. „Svona var ég skynsöm.“ „Það er víst óþarfi að þakka skynseminni það, heldur þráan- um og duttlungunum, sem þér eru gefin-í svo ríkum mæli. Hvað gekk eiginlega að þér þarna um kvöldið, þegar þú varst að fara og ég var alveg að bráðna af bróðurkærleika og umhyggjusemi, en þú lézt eins og óhemja og óviðráðanlegur vargur?“ Þóra greiddi faxið á hestinum með fingrunum, hálfvandræða- leg á svipinn og kafrjóð í.andliti. „Ég var gröm við Önnu,“ sagði hún lágt. „Við Önnu? Nú er ég alveg hissa. Ég hélt, að engin manneskja gæti látið sér þykja við svo saklausa og góða stúlku sem hún er.“ „Hvað þurfti hún að vera að standa á gægjum? Það var and- styggilegt, og það á þessu kvöldi, þegar ég var nýbúin að fylgja föður mínum til grafar.“ „Ó, hún hefur ekkert meint með þessu. Hún bara elskar mig svo mikið, að hún getur tæplega séð af mér nokkra stund. Nei, Þóra mín; henni dettur ekki í hug að óttast þig. Það eru bara flestar konur svona. Þær vilja alltaf horfa á mennina sína. Svona verður þú líka, þegar þú ert gift.“ Hann brosti svo ósköp blíðlega. „Ég gæti hugsað, að hann mætti vera frjáls að því að tala jafnt við konur sem karla,“ svaraði hún stuttlega. „En ég hugsaði mér, að hún skyldi ekki þurfa að elta þig á mitt heimili; en þangað hefðir þú kannske komið, ef Þórður hefði verið þar; enda sagðir þú eitthvað í þá átt, ef mig minnir rétt,“ bætti hún við. „Ég hefði nú varla sagt henni frá því, þó að ég hefði komið við, þegar ég hefði komið neðan úr kaupstað." „Þá er nokkuð langt gengið, ef farið er að ljúga að konunni sinni.“ „Hvað? Þetta eru ekki annað en nauðsynlegar sveiflur. Þú hlýtur þó að hafa heyrt, að það er oft skrökvað að börnum, svo að þau verði rólegri.“

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.