Lögberg - 17.12.1953, Side 4

Lögberg - 17.12.1953, Side 4
4 LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 17. DESEMBER 1953 Lögberg Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON GeflS út hvern fimtudag aí THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utan&akrlft ritstjúrans: EDITOR LÖGBERG, 695 SAROENT AVENUE, WINNIPEG, MAN PHONE 74-3411 Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The 'Liögberg” is printed and published by The Columbia Preee Ltd. 695 Sargeht Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada A.uthorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Með öðrum blæ Jólahald nútímans hefir fengið á sig nokkuð annan blæ, en viðgekst á dögum íslenzkrar baðstofumenningar í byrjun þessarar aldar; þá var helgi jólanna aðalatriðið; á Islandi var á þeirri tíð jólaguðspjall lesið í heimahúsum, jólasaálm- ar sungnir og að loknum miðaftni var þá svo að orði kveðið, að nú væri að verða heilagt; og þá breiddist yfir heimilið dulrænn friður, sem orð fá eigi auðveldlega lýst, friður hjartans og innri sælu; gólf öll voru hvítþvegin og heimilis- fólk tjaldaði sínu bezta; allir fengu eitthvað nýtt að gjöf, því enginn mátti fara í jólaköttinn. Nú er víða svo komið, að endaskipti eru orðin á jóla- helgi og jólahaldi þar sem hið síðarnefnda hefir náð yfir- hönd; jólin eru orðin að verzlunarvöru þar sem einn keppist við annan um að auglýsa varning í blöðum og útvarpi og með götuauglýsingum; hlustendur og áhorfendur eru alvarlega mintir á það, hve kjörkaupadögunum fram að jól- unum fækki jafnt og þétt, og hve það sé mikilvægt, að láta ekki hin gullnu augnablik ónotuð fram hjá sér fara; vita- skuld eru margir nytsamir munir á boðstólum, sem gott væri að eiga, en fæstir geta veitt sér alt, sem hugurinn girnist, sumt má bíða betri tíma og jafnvel bíða langt fram yfir jól. Um jólaboðskapinn sjálfan, frið á jörð og velþóknan yfir mönnunum, er furðu hljótt þar til að jóladeginum kemur; það er engu líkara en alt verði að víkja fyrir hinu ytra jólahaldi, íburðinum, óhófinu og tildrinu; ekkert af þessu minnir á heilög jól, því heilög jól geta aðeins átt bú- stað í hreinu og auðmjúku hjartalagi. Ávalt og á öllum stöðum er fólk að finna, sem hlakkar og hugsar til jólanna í anda meistarans, sem grundvöllinn að þeim lagði; þetta fólk lifir óbrotnu lífi og deilir kjörum við samferðasveit sína og unir glatt við sitt. — í vikublaðinu Gilbert Plains Maple Leaf, er greinar- korn, sem helgað er jólunum og verðskuldar fylztu athygli og þess vegna er það hér birt í þýðingu: „Jólahald er nú mjög frábrugðið því, sem áður var; mörgum yðar stendur það enn vafalaust í fersku minni hve mikil eindrægni ríkti fyr meir varðandi undirbúning jól- anna; öllum var það ljóst að hér væri um hinn innihalds- ríkasta fjölskyldufagnað að ræða; kalkúnahátíð með viðeig- andi fylgiréttum var framreidd og væri þess nokkur kostur sátu allir til borðs saman á jólunum; þetta þótti sjálfsagt og jók mjög á heimilishamingjuna; faðir okkar bar fram á,til- settum tíma jólagjafnirnar, sumar keyptar að, en meginið unnið heima; svo vandlega voru þær geymdar, að enginn komst á minstu snoðir um hvað hver fengi í sinn hlut fyr en afhending fór fram; húsið var þvegið hátt og lágt og þannig lýst ef kostur var, að hvergi bæri á skugga; mönn- um skildist að hér væri ekki um algenga hátíð að ræða; þetta voru jólin, fæðingarhátíð Krists, sonar Guðs. Vér höldum ekki nú á tímum heilög jól eins og þau voru haldin í gamla daga; þau eru haldin með veizlum og öðrum ytri mannfagnaði. Verzlunarsamkepnin hefir sett þann svip á jólin, að þau eru að verða nálega óþekkjanleg sem helgasta hátíð ársins. Vér erum að verða of tilslökunarsamir við oss sjálfa, þegar hátíð hátíðanna, sjálf jólahátíðin á í hlut“. Lögberg árnar íslendingum hvar, sem þeir eru í sveit settir góðra og gleðilegra jóla. ☆ ☆ ☆ Vaknandi þjóðernismeðvitund Gullstrandar nýlendan í Vestur-Afríku, er lýtur yfir- ráðum .Breta, er líkleg til að öðlast fullkomið sjálfsforræði áður en langt um líður og eiga íbúarnir að þakka það einum, vitrum og fágætum manni, Kvame Nikrumah, er tekið hefir sér fyrir hendur að leiða blökkumannafylkingar sínar út úr eyðimörkinni; honum hefir verið líkt við Gandhi, hann hefir hvað ofan í annað setið í fangelsi og hann vill hafa sitt fram án blóðsúthellinga; hann heldur því fram, að blökku- menn séu réttbornir til landsins og eigi að erfa það; vill hann koma á fót traustu fylkjasambandi í Vestur-Afríku, er standi á eigin merg, og hann telur það ekki ná nokkurri átt, að örlítið brot hvítra manna ráði yfir örlögum og af- komu fjölda miljóna, sem samkvæmt aðstöðu sinni og eðlis- lögum eigi að njóta réttar til óhindraðrar sjálfsákvörðunar; framan af krafðist þessi sérstæði maður algers aðskilnaðar við Breta, en nú hallast hann fremur á þá sveif, að hollara sé að halda órofnu sambandi við krúnuna fyrst um sinn. Andstreymi ársins Yfirstandandi ár er komið að því að líða undir lok. Hefir það sjálfsagt fært mörgum gleði, en sumum sorg og söknuð. Við söknum hinna skrautlegu og aðdáanlegu blóma, sem glöddu hug og hjarta í hvert sinn sem á þau var litið. Þau bliknuðu fyrir ofurmagni hinn- ar kælandi náttúru; þau sendu okkur síðustu kveðju sína áður en þau létust. Legstaðir þeirra er hin kalda og svipdimma mold; nú hefir móðurnáttúran skreytt dánarbeð hinna fögru barna sinna hvítri voð. Minning þessara dýrðlegu gleðigjafa vekur sáran söknuð og hrygð út af því, að þau fengu ekki að lifa lengur. Hvers vegna fengu þau ekki alt af að lifa? Þeirri spurningu fær víst eng- inn maður svarað. Einn ávinningur við það, að verða að sjá á bak hinni miklu prýði jarðarinnar er það, að nú skilst manni hve mikils er mist; þeim mun hjartanlegri verður gleðin við endurkomu blómanna á komandi vori. Nálega alt andstreymi ber með sér nokkra raunabót þeim, sem vilja veita því athygli. Andstreymi getur að sönnu orðið svo stórfelt, að það verði mönnum um megn að rísa gegn því og sigra það. Menn leggja þá árar í bát og láta hugfallast. En hver ér kominn til að segja, hve marga hafi rekið i strand af því að baða í rósum? Menn læra að meta sumarið og fegurð þess með liðsinni vetrarins. Óvíða mun vetur harðari en á íslandi; óvíða mun fögnuður meiri yfir komu sumarsins: „Því svartar sem skyggir vor skammdegis neyð, þess skærar brosir við júnísól heið. Nú skín hún á frónið vort fátækt og kalt, og fegurðar gullblæju sveipar hún alt“. Oft kemur misskilnlngur því til leiðar, að menn verða frá- •hverfir hver öðrum. Fljótt á litið virðist ekki örð- ugleiki af manna hálfu hafa mikinn ávinning í för með sér. Þó er þar ávinningur ekki svo lítill. Framkoma manna og um- Heimsækið á ,Ódýra tímabilinu' (Haust, Vetur, Vor) Langar yður til að heim- sækja frændur og vini í Evrópu . . . . til að sjá með eigin augum stáðina, sem þér hafið heyrt svo mikið látið af? Ef svo er, þá gerið ráðstafanir til að fara frá september til apríl þegar „Ódýra tímabilið" gerir yður kleift að heimsækja mörg önnur lönd. Hafið samband við ferða- skrifstofu yðar. Látið hana annast ferðaáætlunina fyrir yður, ferðir um nágrenni borganna, er þér heim- sækið, hótelpláss og það sem með þarf til þess að ferð yðar gangi að óskum! European Travel COMMISSION (Evrópiska ferðamnanasambandið) Frekari upplýsingar gefa: Icelandic Counsulate General 50 Broad Street New York 22, N.Y. pic(Ci«t(tc(ctcicic<eieie<cw!e«teic«tcic(eieiei«(eicictctct(tetetcieic<cteicictetctcic«iK«wtctc(c« Greetings ... for the Festive Season! i May Happiness and Prosperity Be Yours in the Coming Year! (All Classes of INSURANCE) McMILLAN AGENCIES P.O. Box 761 — Phone 165 TOVELL BLK. SELKIRK. MAN. s J etctc«tctctc(c(ctete(etctctctc(etc'ctctctcte(cte(ctctctctctetctcte(cictctetctctetctcietc(«tctctctctc^ « I 1 ■ Sfjórn og starfsfólk . . . The Canadian Fish Producers Limited óskar öllum viðskiftavinum sínum og og íslendingum fjær og nær, gleðilegra jóla og góðs gæfuríks nýars. TALSÍMI 74-7451 Canadian Fish Producers L I M I T E D 1 1 1 1 311 Chombers St. WINNIPEG J. H. PAGE, forstjóri L______- gengni lýsir betur innræti þeirra, en orð eða yfirlýsingar fá gert. A þennan hátt segja mennirnir til sín. I þessu er fólgin hin nytsamlegasta þekk- ing og uppfræðsla. Listin til að lifa er eitt hið vandasamasta nám, sem hægt er að leggja fyrir sig. Það er hægt að kom- ast vel niður í ýmsum öðrum námsgreinum, en að kunna að læra að umgangast menn og málefni, verður nálega aldrei numið til fulls á þeim tíma, sem er til þess ætlaður. Æfiár mannsins eru alt of fá og fljót- ^tetítctctctctctctctctctetctctetctctctctctetcictcteictcictctctctctctetctetcietctctcictctctctctctctctctci Innilegustu óskir . . um gleðileg jóI, til allra okkar íslenzku viðskiftavina og allra íslendinga, og góðs gæfuríks nýórs. The Selkirk Navigation Co. Ltd. 1 I Phone 52-7014 SELKIRK. MAN. WINNIPEG íl»»»»»»»i)»»»»»»»»»»»»a»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»: tctctctetctctctctetetctetctetctctetctctetctctetctctctetctctetetetetetctetctctctctetctctatctctcictctcv « Megi hótið Ijósanna vekja hvarvetna frið og fögnuð! Með þökk fyrir greið og góð viðskipti. SELKIRK GARAGE Vlð brúarendann VERZLA MEÐ: STUDEBAKER—AUSTIN—BIFREIÐAR SELKIRK C. S. Sigurðsson, ráðsmaður MANITOBA Við óskum íslendingum fjær og nær gleðilegra jóla og að árið komandi verði þeim og öllum gæfu og gleði- ríkt ár. McLENAGHEN & NEWMAN BARRISTERS, etc. 1 I M 1 1 I SELKIRK MANITOBA %at»atMtMtatMt»atat»a)M9a)aiM»)a)a)»at»a)ata«a)a)a)>>a)a)a)a)a)a)a)a)a)»ata)ata)»»M Compliments of JUBILEE COAL Phone 42-5621 CORYDON ond OSBORNE W I N N I P E G <M. B. 9'uauu}, Manaxf&i

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.