Lögberg - 17.12.1953, Side 10

Lögberg - 17.12.1953, Side 10
10 LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 17. DESEMBER 1953 Krossferð barnanno Eflir JOHN W. KLEIN Herir krisfinna manna höfðu ekki getað stökkt vantrúar- mönnunum úr hinni helgu borg. Var það mögulegt að hópur lililla barna gæti unnið slikt þrekvirki? Einn góðan veðurdag árið 1212 barst Innocent páfa hinum III. fregn, sem fékk mjög á hann. Gröfin helga hafði um aldir verið í höndum vantrúarmanna, tilraunir höfðu verið gerðar hvað eftir annað til að ná henni aftur, en allar höfðu mistekizt smánarlega. Vonin var dáin í hjörtum krossfara. En nú frétti Innocent III., að hópar af börn- um söfnuðust saman fagnandi og hefðu einsett sér að ná aftur gröf Krists. Þau k'omu úr öllum áttum í Frakklandi og fylktu sér undir merki sveitapilts, sem taldi sig vera útvalinn af Guði. Pá'finn var duglegur maður og ákveðinn, og þessi fregn hafði djúp áhrif á hann. Stóð það ekki skrifað í biblíunni að af munni barna og brjóstmylkinga skyldu menn vizku nema? „Börnin gera okkur til skammar," hrópaði hann. „Meðan við sofum, leggja þau fagnandi af stað til Landsihs helga, til að endurvinna gröf Krists, sem vanhelguð hefir verið af návist vantrúaðra.“ Margir og voldugir voru þeir konungar, sem höfðu lagt af stað í sama tilgangi í fararbroddi fyrir miklum herjum hraustra riddara. Jafnvel Ríkharður ljóns hjarta, hinn óbugandi herkon- ungur Englands, sem hugprúðir menn óttuðust, jafnvel hann sneri frá, er hann leit virki og mjóturna Jerúsalemsborgar. — Verið gat að hópur barna, sem gagntekin væru af heilögum, eldlegum áhuga gæti afrekað það, sem öðrum hafði mistekizt. Hinn heilagi faðir íhugaði þessa fregn og vöknuðu þá nýjar vonir í brjósti hans. Jafnframt gerðust hinir furðulegustu at- burðir í Cloyes, afskekktu þorpi í hjarta Frakklands. Ungur sveinn, 16 ára gamall fjárhirðir, Etienne að nafni, tók sér píla- grímsstaf í hönd, kleif háan grjótstall á markaðstorgi þorps- ins og sagði þar kynlega sögu. Pilturinn var óvenju mælskur og gat þess að einkennilegur maður hefði hitt sig þenna sama dag. Hann var fátækur píla- grímur nýkominn frá Palestínu, er bað hann að gefa sér ofurlít- iön bita af brauði og horfði um leið bænaraugum á sögumann. Piltinum fannst þegar, að hann gæti ekki neitað manni, sem veríð hefði á þeim stað, sem hann þráði að sjá. Manni, sem gist hafði hina helgu staði, sem hann vildi fórna lífi sínu til að leysa úr ánauð. Hann sárbað hinn ókunna mann um að segja sér frá hin- um dýrlegu krossförum. Og undrun hans var mikil, er hinn fátæki pílagrímur ummyndaðist skyndilega í skínandi veru, og lýsti með orðgnótt hetjunum, sem fallið höfðu í bardaga. En, mælti hann ennfremur — svo er fyrirhugað, að barni skuli takast að ná því marki, sem hug- prúðir ijienn hafa orðið frá að hverfa — og nafn barnsins var „Etienne!“ Á sama augnabliki varð hinn ókunni maður konunglega tig- inn á að líta og tilkynnti að hann væri Kristur sjálfur. Og hann rétti sveininum bréf, sem hann tók við feginshugar og bréfið var stílað til konungsins yfir Frakklandi. Etienne skundaði heim til for- eldra sinna og sagði þeim frá heimsókn Drottins — en þau urðu undrandi og vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hann sýndi þeim hið himneska bréf, rithöndni var hin fegursta og æfð. Hann ætlaði sér nú að hætta við að vera lítilmótlegur smaladrengur. Jafnvel hjörðin hans litla virtist tilbiðja hann nú. Hann sagði foreldrunum aðra einkennilega sögu. Einu sinni hafði hann farið út í hag- ann til fénaðarins, en sá þá að féð hafði dreift sér og fann það ekki fyrr en eftir langa leit. Þá sá hann að kindurnar hans voru komnar inn á kornakur. Hann reiddist og hugsaði sér, að reka þær þaðan, berja þær fyrir óhlýðnina. En þær féllu þá á kné eins og þær væru að biðja hann auðmjúkleag fyrirgefning- ar. Þetta hlaut vissulega að vera merki þess að hann væri sér- staklega útvalinn af Guði? Var talinn heilagur Á þeim árum trúði fólk fús- lega á yfirnáttúrulega atburði, sérstaklega ef sögumenn töluðu af sannfæringarhita. Því var í fyrstu hlustað undrandi, en síðar af ákafri sannfærlngu á brenn- andi mælsku Etiennes. Þegar hann talaði á markaðs- torgi hins heilaga Denis, varð autt og mannlaust í kringum hið helga skrín dýrlingsins, en múg- ur manns þyrptist að til að hlusta á Etienne. Það fregnaðist að hann læknaði sjúka, en þó að fáeinir efuðust, voru margir, sem álitu, ahnn vera heilagan mann. En það voru börnin, sem hann hafði mest áhrif á. Var ekki Davíð aðeins drengur, þegar hann felldi hinn volduga Golíat? Hann ætlaði sjálfur að vera 1 fylkingarbrjósti fyrir Davíðs- her og frelsa hina helgu gröf. Trúarlitlir menn myndu vafa- laust muldra um, að þetta væri brjálæði, en Guði væri ekkert ómáttugt. Hafði ekki Móses leitt Israelsmenn út úr Egyptalandi, þar sem þeir strituðu sem á- nauðugir þrælar? Hafði hann ekki leitt þá þurrum fótum gegnum hafið rauða? Hví skyldi þetta ekki geta komið fyrir öðru sinni? Ferðin yrði löng og máttur óvinanna ægilegur. Mikið haf lá á milli þeirra og vantrúarmannanna. En þegar þeir nálguðust myndi hið fjandsamlega haf opnast, trú þeirra myndi halda því í skefj- um og þeir myndu gangar þurr- um fótum milli hárra vatns- veggjanna og ná marki sínu, því að ef trúin gæti flutt fjöll, hví skyldi hún þá ekki geta breytt hafi ‘í land? Mælska þessa undarlega pilts var svo heit og sannfærandi, að þeir, sem komu til að hæðast að því, sem fram fór, krupu á kné til þess að biðjast fyrir. Hópar af börnum þyrptust að honum, ímyndunarafl þeirra blossaði upp og þau sáu himneskar sýnir. Hrópin kváðu við: „Við skulum ná hinni helgu gröf og skíra hina vantrúuðu!" Og þau föðmuðust í brennandi trúarhita. Foreldrar þelrra sárbændu þau að koma heim, en þau þver- skölluðust við því. Alla nóttina veifuðu þau logandi blysum og hlustuðu á hvatningu Etiennes. „Þetta er í síðasta sinn, sem ósigur er nefndur!“ hrópuðu þau. „Nú skulum við börnin sýna brynjuðum stríðsmönnum og stoltum barúnum að jafnvel mestu smælingjarnir eru ósigr- andi, þegar Guð er í farar- broddi." Foreldrarnir voru örvænting- arfullir og grátbændu Etienne að láta af þessu og ógnuðu hon- um að síðustu. Ferðin yrði löng og hættuleg, hindranirnar marg- ar og ógnverkjandi, hinir van- trúuðu gráir fyrir járnum og miskunnarlausir. Eru það ekki nú þegar fjölda margir kristnir menn, sem vanmegnast í daun- illum myrkrastofum? „Þú ert að leiða þau öll út í dauða!" er sagt, að foreldrarnir hafi hrópað. „Til dýrðarinnar leiði ég þau!“ hrópaði hann og réð sér ekki fyrir fögnuði. „Getum við hikað þegar Jerúsalem grætur í eymd sinni?“ Og hann lýsti fyrir þeim saurgun grafarinnar helgu og kvalræði og þjáningum krist- inna manna í Palestínu. Skelf- Innilegar jóla- og nýársóskir Við þökkum Islendingum ánægjuleg viðskipti á árinu, sem nú er senn á enda runnið, og væntum þess að þau fari í vöxt á því ári, sem í hönd fer, öllum aðiljum til gagns og gleði. Munið hinn vingjamlega stað þar, sem vinir fagna vinum! OXFORD HOTEL I \ H L, & % <5 1 f 1 216 NOTRE DAME AVE. SÍMI 92-6712 1 húsinu er gjallarhorn gestum til ánægju og þæginda. JOSEPH STEPNUK S. M. HENDRICKS President Manager »»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»3»isia,3t3,s,a1a12,»»»»»»»»ai « 1 1 1 s ! Gleðileg JöL! . . . og happasælt nýár Við aðkomu jóla, verður bróð- urhugurinn j aínan efstur á baugi hjá siðmentuðum þjóðum; við óskum þess að sá bróður- hugur a u ð k e n n i hátíðahöld yðar í þetla sinn, eins og að undanförnu. Winnipeg Supply and Fuel Co. Ltd. 812 BOYD BUILDING Winnipeg, Man. Phone 92-8161 eicecicictooctcictctctcicecietcicictcietcicicicictcicicteietcicieietcietcicietcieietetcieieicicieieieieietcicicietcieieteieieicicicicictcieicictcicieiecci^ íslenzkir Byggingameistarar Velja TEN-TEST í allar sínar byggingar Þessi Insulating Board skara fram úr að gaeðum Seld og noiuð um allan helm— FYRIR NÝJAR BYGOINOAR, svo og tll aCgertSa eBa endurnýjunar fullnægir TEN-TKST svo mörgum kröfum, a(5 til gtörra hagsmuna veröur. Notagildl þess og verö er ávalt eins og vera ber. Og vegna þess aö þaö kemur i staC annara efna, er ftvalt um aukasparnaC aC ræCa. TEN-TEST hefir margfaldan tilgang sem insuiating board. ÞaC veitir vörn fyrir of hita eCa kulda, og tryggir jöfn þægindi hvernig sem vlCrar. Þessar auCmeCförnu plötur tryggja skjótan árangur og lækka innsetningarverC. 1 sumarheimil- um eCa borgarbýlum, skrlftstofum, fjölmennisibúC- um, útvarpsstöCvum, samkomusölum og hótelum, tryggir TEN-TEST lifsþægindl, útilokun hávaCa, og fylgir yflrleitt fyrirmælum ströngustu byggingar- listar. ÖtbreiCsla og notkun um allan heim gegnum viC- urkenda viCskiptamiCla, er trygging yCar fyrir skjótri persónulegri afgreiCslu. RáCgist viC næsta TEN- TEST umboCsmann, eCa skrifiC oss eftir upplýsingum. HLÝJAR SKREYTIR ENDURNÝJAR TEN-TEST LÆKKAR KOSTNAÐ VIÐ HITUN INSULATING WALL BOARD INTERNATIONAL FIBRE BOARD LIMITED, OTTAWA WESTERN DISTRIB UTORS: Armstrong Distributors Ltd. WINNIPEG. MANITOBA' r :eetc(c<cte«etc>c<c«ctcec<etc««tcteectctc!eecectcec!eteteectctctctctctctctctctctctctctcectctctetc!< Heilhuga jóla og nýársóskir til Islendinga CHARLES RIESS & CO. FUMIGATORS 372 COLONY ST.. WINNIPEG PHONE 3-3529 k»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»at»»»»»aí* Við óskum íslendingum fjær og nær gleðilegra jóla og að árið komandi verði þeim og öllum gæfu og gleðiríkt ár. H. SIGURDSON & SON LtMITED PLASTERING CONTRACTORS Halldor Sigurdson 526 Arlington Street Sími 72-1272 Halldor Melvin Sigurdson 1153 Ellice Avenue Sími 72-6860 W A MILIION CAHADIANS B°m Fyrsti Banki Canada * rá einni kynslóð til annarar hefir traust Canadamanna farið vaxandi á Montreal bankanum. / í dag kalla fleiri en hálf önnur miljón manna, frá einum enda Canada til annars, Montreal bankann, sinn banka. * Bank of Montreal er fyrsti og öflugasti bankinn í Canada SAMVINNU VIÐ ALLAR STÉTTIR í CANADA SÍÐAN 1817

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.