Lögberg - 07.01.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. JANÚAR 1954
3
Gjafir í byggingarsjóð „Stafholts''
BLAINE, WASHINGTON
Frá 10. desember 1952 lil 15. desember 1953
Minningargj af ir
Berta Stoneson í minningu um
Ellis L. Stoneson $200.00. Mr. og
Mrs. Sig. Arngrímson í minningu
um Maríu Thordarson $2.00.
Mr. og Mrs. Hannes Teitson í
minningu um Evelyn Vogue
$5.00. Eftirfarandi aðilar gáfu í
minningu um Jónas Jónasson:
Kvenfélagið LIKN $ 3.00
Hildur Thorlakson 5.00
Staff Icelandic Home
ur Peterson, Minneapolis, Minn.,
$10.00; Guðmundur Thorstein-
son, Los Angeles, Calif., $25.00;
Hildur Thorlakson Gólf (Tile
Floor) í borðsalinn $278.41;
Ástríður Johnson Gólf (Tile
Floor) í borðsalinn $278.41;
MINNING ARORÐ:
Mrs. Ragnhildur
Fred Thordarson $5.00; Mr. og
Mrs. Gunnar Guttormsson $5.00;
Einar Paulson $65.00; M. J.
Skafel, Mozart, Sask., $20.00;
Mr. og Mrs. Jón Magnússon,
Seattle, Wash., $5.00; Ingibjörg
Friend, Los Angeles, Calif.,
$20.00; Kvenf. LIKN, Blaine,
Wash., $50.00; Þjóðræknisdeild-
in „ALDAN“, Blaine, Wash.,
$100.00.
Samtals $1068.52
Árný Björnsson
„Stafholt" ........... 10.00
Jónína Hallson og börn 5.00
G. Kárason .............. 1.00
Mr. og Mrs. Hannes
Teitson .............. 5.00
Blaine Lutheran Church 5.00
Mundy Egilson og
fjölskylda ........... 20.00
Anna Lingholt ........... 1.00
Ingibjörg Helgason ...... 1.00
Mr. og Mrs. A. J. Fair.. 5.00
Sæunn Hólm .............. 5.00
Westford, Ásmundson
Árnason .............. 5.00
Mr. og Mrs. Einar Einarson 5.00
Ásta Johnson............. 1.00
Thora Hedberg ........... 1.00
Sigríður Johnson ........ 1.00
Mr. 0g Mrs. J. J.
Straumford ........... 5.00
John, Ben Eyford og
Wilson ............... 8.00
Mr. og Mrs. Einar
Símonarson ........... 5.00
Dagbjört Vopnfjord ...... 2.00
Jóhanna Jónasson ........ 25.00
I minningu um Ágúst Magnús
son, Lundar, bárust eftirtaldar
gjafir: Magnússons fjöldskyldan
..........$20.00
Mr. og Mrs. I. Sigurdson 10.00
Kvenfélagið, Lundar, .. 10.00
Mr. og Mrs. J. J.
Straumford .......... 10.00
Hagbjört Vopnfjörð í minningui
um Jacob Vopnfjörð $15.00;
Jóhanna Jónasson í minningu
um eiginmann sinn, Jónas
Jónasson $1000.00; Kvenfélagið
LÍKN í minningu um Steinunni
Bainter $3.00; Mr. og Mrs. Sig.
Arngrímson í minningu um
Árna O. Anderson $3.00.
Samtals $1402.00
Aðrar gjafir
Mrs. G. B. Jakobson, Zenith,
Wash., $5.00; Anna Baker, N. W.
Grange, Point Roberts, Wash.,
$26.70; Mr. og Mrs. Runólfur
Björnson, Blaine, Wash., $50.00;
Vala Anthony, Blaine Wash.,
$10.00; Kvenfélagið „Eining“,
Seattle, Wash., $100.00; Mr. og
Mrs. S. Guðmundson, Berkley,
Calif., $10.00; August Nyman,
Blaine, Wash., $5.00; Guðmund-
Pj'ófkosning fyrií*
biskupskjör:
Professorarnir Asmundur Gu<
mundsson og Magnús Jónsso
hluiu flesi aikvæði
Samkvæmt frétt í Ríkisú:
varpinu 3 deg fram kvölc
1 , a^ur talning atkvæða
profkosningu Prestafélags I:
lands fyrir biskupskjör. Kosr
mgarétt höfðu lli þjónanc
prestar og guðfræðikennarar vi
Háskólann.
Atkvæði féllu þannig að pr<
fessor Ásmundur Guðmundsso
aut o4 2/3 atkv. og prófessc
agnus Jonsson 46. Aðrir hlut
miklum mun færri, en 37 pres
vigðir menn alls fengu atkvæg
Kosnmg þessi fór fram me
sama hætti og biskupskjör. Hv<
sá, sem kosningarétt hefir, kj
þrjá menn. Hlýtur sá, sei
fyrst er talinn, 1 atkv., annar 2/
atkv. og þriðji 1/3 atkv.
Sjálft biskupskjörið hefst
þessum mánuði. Verða kjö
gögn send út á næstunni, en a
kvæði skulu berast kjörstjóri
inni fyrir 12. janúar n.k.
Rétt er að geta þess, að stjór
Prestafélagsins vildi ekki í ga
kveldi gefa neinar upplýsingí
um úrslit prófkosninganna.
—Mbl., 3. de
I dag, 12. desember 1953, er
rétt ár liðið síðan konan, sem
hér verður að nokkru getið, and-
aðist að heimili sínu í grend við
Árborg, Man.
Ragnhildur Árný Björnsson
var fædd að Innra-Hólmi í
Borgarfjarðarsýslu þann 27. dag
októbermánaðar 1892. Foreldrar
hennar voru þau hjónin Sigurð-
ur Jónsson ættaður af Reyni, og
Þuríður Árnadóttir bónda á
Innra-Hólmi Þorvaldssonar. Búa
þau nú að Bæ á Akranesi, bæði
háöldruð.
Ekki mun Ragnhildur hafa
notið mikillar skólamentunar,
enda krafðist hið mannmarga
heimili snemma krafta hennar,
því hún var næst elzt af 16 syst-
kinum. En það sýndi sig brátt,
að hún var bæði tápmikil og á-
stundunarsöm, því þótt skóla-
gangan væri slitrótt komst hún
prýðilega niður í þeim greinum,
sem kendar voru, jafnframt því,
sem hún hjálpaði móður sinni
við heimilisstörfin. Þegar hún
stálpaðist var hún nokkur sum-
ur kaupakona upp í sveit á
Suðurlandi, en starfaði jafnan
niður við sjó á vetrum.
Síðla sumars 1912 ræðst Ragn-
hildur Árný ásamt þremur
stúlkum öðrum til Ameríku-
farar, og var ferðinni heitið til
Winnipeg, en þar bjó Eygerður
föðursystir hennar. Hún fór
strax í vist hjá hérlendu fólki
og lærði brátt að mæla á enska
tungu, svo sem innfædd væri.
Var hún um skeið hjá hjónum,
Heap að nafni, var Mr. Heap og
er enn málaflutningsmaður í
Winnipeg. Tóku þau hjónin því-
líka trygð við þessa íslenzku
stúlku, að hún naut vináttu
þeirra og hjálp alt til þess
síðasta.
Árið 1920 giftist Ragnhildur
manni af enskum ættum, Scott
að nafni, en sambúð þeirra varð
stutt og slitu þau brátt sam-
vistir.
Var hún þá enn um hríð í
ýmsum vistum, en giftist síðar
Guðmundi M. Björnssyni, syni
Jóns Björnssonar frá Dakota,
ættuðum úr Rangárvallasýslu.
Árið 1924 settust þau að á land-
námsjörð Guðmundar og gerði
hún þá brátt, eins og kveðið er
um aðra landnámskonu, „að
heimili búlausa bæinn“.
Árið 1946 keypti Guðmundur
landnámsjörð Guðbjörns bróður
síns þrjár mílur vestur af Ár-
borg. Bjuggu þau þar síðan, þar
til hún andaðist, eins og fyr
getur, 12. des. 1952.
Þó Ragnhildur heitin kæmi til
Ameríku löngu eftir hin eigin-
lega landnámsöld var liðin, átti
hún engu síður margt sameigin-
legt með hinum fyrri landnáms-
konum. Hún var fædd við sjó-
inn fram og lifði öll bernskuárin
við nið og umbrot ægis, en öll
fullorðinsárin auðnaðist henni
aldrei að líta hið fangvíða haf
eða heyra hljóð þess. Hún þekkti
frá unglingsárunum kyrð og
fegurð sumarsins í sólríkri og
unaðslegri íslenzkri sveit, en
hlaut að lifa starfsárin öll ýmist
í skarkala og þys stórborgar
mitt í meginlandi Ameríku eða
á nýbýli þar sem vanhagaði um
flest það, sem til hagsælda gæti
talist.
Hún lifði þannig mestan
hluta ævinnar fjærri öllu því,
sem henni var kærast í bernsku;
foreldrum systkinum, æskuvin-
Ragnhildur Árný Björnsson
um, landinu og þjóðinni. Það er
því ekki að furða, þó að hún
hugsaði oft heim, enda hélt hún
uppi sambandi við fólk sitt og
fylgdist veí með flestu því, sem'
á íslandi gerðist öll þau ár, sem
hún dvaldist hér. En þó hún
lifði svona í einskonar útlegð,
og hugurinn dveldi oft við æsku-
stöðvarnar, var síður en svo að
hún vanrækti borgaralegar
skyldur í kjörlandinu; hún las
og skrifaði ensku og fylgdist vel
með málum, bæði heima í héraði
og á alþjóða vettvangi.
Hún kostaði kapps um að
menta börn sín eftir því sem
efni og ástæður leyfðu og hvatti
þau til þátttöku og framtaks-
semi í félögum og öllu því, sem
mátti verða þeim til skemmtun-
ar og uppbyggingar. Hún tók
virkan þátt í félagslífi bygðar
sinnar, var mörg ár í kvenfé-
laginu, og jafnan í stjórnarnefnd
þess; einnig um skeið í spítala-
nefnd (Women’s Auxiliary).
Ragnhildur var stjórnsöm á
heimili og létu henni vel öll
heimilisstörf, enda hafði hún
oftast umfangsmikið og mann-
margt heimili að annast. Hún
var glöð og dagfarsprúð og var
það hennar mesta yndi að taka
á móti gestum og hlynna að
þeim. Aldrei varð hún auðug í
venjulegri merking þess orðs,
en það eru ótrúlega margir, sem
minnast hennar með þakklátum
huga, því að hún kunni manna
bezt að meta þarfir annara.
Það mætti svo virðast sem
þessi umkomulausa og allslausa
stúlka mundi ekki eiga mikla
hamingju að sækja til Ameríku.
En það fór á annan veg; þó að
heimþráin væri nær yfirbugandi
fyrst í stað. Hún var svo lán-
söm að fá góðan mann, sem
reyndist hinn ágætasti lífsföru-
nautur og virti hana og mat að
verðugu. Hann hlynnti að henni
og annaðist hana af frábærri
þolinmæði og hugulsemi í gegn
um alt hennar veikindastríð, en
heimilið var frá upphafi alt
mótað af hlýleik og virðingu
við hana. Enn jók það hamingju
hennar að eignast mörg og
mannvænleg börn, sem hún bar
gæfu til að ala upp til fullorðins
ára og þannig hjálpaðist alt að
til að gera starf hennar blessun-
arríkt. Börnin, talin í aldursröð,
eru þessi:
Jack Arnold, af fyrra hjóna-
bandi, stundar bílaviðgerðir í
Árborg, kvæntur Sveinbjörgu
Jakobsdóttur Guðjónssonar.
Franklín, heima með föður
sínum.
Jón, í Winnipeg, starfsmaður
hjá Winnipeg Transit Co.,
kvæntur hérlendri konu.
Með innilegu þakklæti til allra
íslendinga, sem svo drengilega
hafa lagt lið í þarfir þessarar
stofnunar, bæði nú og fyr, til
blessunar öllum þeim, sem þar
búa nú, og marga, sem enn eiga
eftir að hafa athvarf í Stafholti.
Svo óskum vér öllum Islending-
um farsæls komandi árs.
F. h. Elliheimilisnefndar
Andrew Danielson, skrifari
Blaine, Wash., 15. des. 1953
Sigurþór, heima með föður
sínum.
Sólrún, kenslukona, Dominion
City.
Donald, kennari í Árborg.
Sigurður, heima með föður
sínum.
Margaret Elenor, miðsskóla-
nemi.
Eru börnin öll hin myndarleg-
ustu og prýðilega vel látin af
öllum þeim sem til þekkja.
Útför Ragnhildar var gerð frá
kirkju Árdalssafnaðar og var
þar samankominn fjöldi sam-
ferðafólks til að kveðja hinztu
kveðju þessa hughraustu, glað-
lyndu og bjartsýnu konu, sem
hafði unnið traust og vináttu
þeirra, sem með henni áttu
samleið. Séra Sigurður Ólafsson,
fyrv. sóknarprestur, stjórnaði
útförinni og flutti kveðjumál,
og fórst honum það að vanda
hvottveggja prýðilega; en sex
synir hinnar látnu báru móður
sína til grafar og var athöfnin
öll hin virðulegasta.
Það er vitanlega þungur
harmur kveðinn að heimilinu
við fráfall ágætrar móður og
eiginkonu. Sorgin hefir setzt 1
fyrirrúm, þar sem áður ríkti
gleði og ánægjá; en það er hlýtt
og bjart eins og áður var, því
áhrif hennar munu vara; og er
það- þeim gott, eftirlifandi eigin-
manninum á efri árum og börn-
unum á fullorðinsárum, að hafa
notið ástar hennar og umhyggju.
Samferðafólkið mun blessa
minningu hinnar látnu ágætis
konu.
S. Wopnford
KVEÐJA
Mrs. Ragnhildur Árný Björnsson
Framnes, Man.
Dáin 12. desember 1952
Dáin! Horfin héðan,
heims er vegferð búin.
Sefur sætt og hvílist,
sérhver þreyttur, lúinn.
Andstæð sjúkdómsárin,
oft um langar nætur,
hugur sveif til hæða,
helzt þar fengi bætur. —
Bregður ljúf'u ljósi,
liðna daga yfir,
æskan lífsglöð átti
óskastund sem lifir.
Manni og börnum meður,
meiga dugnað sýna,
ætíð alt það gleður
æfi liðins tíma. —
Eiginmaður myndir
mun í huga geyma,
sér þær hugarsjónum,
sízt hann jnun þeim gleyma.
Börnin ítök áttu,
æfileið að gera
hugum kæra og hlýja,
hér þér styrkur vera. —
Félag kvenna færir,
fyrir aðstoð þína,
fyllstu þakkir flytur
fyrir samleiðina.
Heimilið, — hvar hennar
hugsjón æsku velur,
helgað störfum hafði,
hennar minning dvelur. —
Annars heims þar eiga,
ástvinanna fundir,
samfagnandi sínar,
sæluríkar stundir.
Meðal mætra vina,
minning hugans líkir,
burtför, — leið til Ijóssins,
lífs þar framhald ríkir!
B. J. Hornfjord
Business and Professional Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CUNIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Asphalt Roofs and Insulated s Siding — Repairs Country Orders Attended To 632 Slmcoe St. Winnipeg. Man.
J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgtS, bifreitSaábyrgð o. s. frv. Phone 92-7538 1 Dr. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 92-7932 Home Telephone 42-3216
SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service Dr. ROBERT BLACK SérfræBingur I augna, eyrna, nef "óg hálssjúkdðmum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofuslml 92-3851 Heimasími 40-3794
DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones: Office 26 — Resídence 230 Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m. Creators oj Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave. Winnipeg PHONE 74-3411
Thorvaldson, Eggertson, Baslin & Siringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 92-8291 Hofið Höfn í huga Heimili sðlsetursbarnanna. Icelandic Old Polks' Home Soc-, 3498 Osler St., Vancouver. B.C.
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors o£ Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7451 Res.: 72-3917 Aristocrat Stainless Steel Cookware For free home demonstrations with- out obligation, write, phone or call 302-348 Main Sireet. Winnipeg Phone 92-4665 “The King of the Cookware”
Offlce Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment.
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um flt- farir. Allur útbúnaSur sá bezti. StofnaS 1894 SlMI 74-7474 Minnist BETEL í erfðaskróm yðar.
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Llfe Building WINNTPEG MANITOBA
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavilion General Hospital Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker. Q.C. B. Stuart Parker. A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Wtnnlpeg, Man. Phone 92-3561
Lesið Lögberg
!—
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út metS reyknum.—SkrifitS, slmiö til KELLT SVEINSSON 625 Wall St. Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar 3-3744 — 3-4431 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Slmi 92-5227
J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all its branches Real Estate • Mortgages - Rentalx 210 POWER BUII.DING Telephone 93-7161 Res. 46-3480 LET US SERVE YOU EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONK 92-4624 Van's Eiectric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT Phone 3-48! 0