Lögberg


Lögberg - 07.01.1954, Qupperneq 8

Lögberg - 07.01.1954, Qupperneq 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. JANÚAR 1954 Úr borg og bygð FRÓNS-fundur Þjóðræknisdeildin Frón efnir til almenns fundar í Góðtempl- arahúsinu, mánudagskvöldið 11. janúar kl. 8. Til þessa fundar er boðað fyrst og fremst til þess að kjósa full- trúa á þjóðræknisþingið. — Að hinum venjulegu fundarstörfum loknum hefst skemmtiskrá kvöldsins með því að Dr. Askell Löve sýnir kvikmynd af Heklu- gosinu. Myndina tók Ósvald Knudsen, og er hún talin ein sú bezta sinnar tegundar. Þess er og vert að geta, að á meðan á sýningu myndarinnar stendur, eru leikin nokkur íslenzk lög, sem að sjálfsögðu gefa henni aukið gildi og áhrifamagn. — Ennfremur mun Finnbogi próf. Guðmundsson sýna Tröllamynd- ir úr Dimmuborgum í Mývatns- sveit og segja nokkur orð í því sambandi. — Þetta er Jyrsti fundur Fróns á þessu ári, og er þess að vænta, að félagsmenn fjölmenni. Aðgangur er ókeypis, en sam- skot verða tekin. F. h. Fróns, Thor Víking, ritari vv ÍSLAND FARSÆLDA FRÓN Eftir Hjálmar R. Bárðarson, A.R.P.S. Fallegasta litmyndabók, sem 'gefin hefur verið út á Islandi. Margar heilsíðumyndir í litum og margar minni, allar í litum. Bókin er í stóru broti 10%— 8% og er 132 blaðsíður. Aldrei hefur komið út eins margbreytt úrval af litmynda- bók á íslandi, og aldrei eins ódýr, því hún kostar aðeins $8.50. Fæst í BJÖRNSSON'S BOOK STORE 702 Sargent Ave. Winnipeg, Man. ☆ Jakob Jónasson, frumherji og landnámsmaður í St. Peter’s umhverfi, í grend við Selkirk, andaðist að heimili sínu þann 19. des. s.l. Hinn látni var sonur Klemensar Jónssonar frá Ból- staðarhlíð og Ingibjargar Jóns- dóttur konu hans. Jakob var stórhuga framkvæmdamaður, er starfrækti bú í óvenjulega stór- um stíl. Þrír synir hans og ein dóttir ásamt eiginmanni starf- rækja stórbú á föðurleifð sinni. Útförin fór fram í Selkirk þann 22. des., að mörgu fólki við- stöddu. ☆ — Þakkarorð — Innilegt þakklæti viljum við votta öllum þeim, sem heiðruðu minningu okkar látna ástvinar, Þorsteins Swainsonar, með nær- veru sinni við útförina, fögrum blómagjöfum, samúðarkveðjum og hlýhug á margan hátt. — Einnig þökkum við söngflokkn- um og prestinum, Dr. Valdimar J. Eylands, fyrir kærleiksrík kveðjuorð. Krisfín Swainson og fjölskylda ☆ Ársfundur stjórnarnefndar elliheimilisins „Höfn“ í Van- couver, verður haldinn 28. jan- úar 1954, kl. 8 e. h., í Hastings Auditorium, 828 East Hastings, Vancauver. Þess er vænst að landar fjöl- menni. ic Síðastliðinn sunnudag lézt í Vancouver, B. C., Finnbogi Hjálmarsson 93 ára að aldri, ættaður af Tjörnesi í Þingeyjar- sýslu; hann var um langt skeið búsettur í Winnipegosis. Finn- bogi var einkar skemtilegur maður í viðmóti, ágætlega rit- fær og skáldmæltur; kona hans lézt fyrir allmörgum árum, en meðal eftirlifandi barna er Númi læknir að Woodlands, Man. • Útföx- Finnboga verður gerð frá Bardals hér í borg á föstu- daginn kemur, kl. 1.30 e. h. Dr. Valdimar J. Eylands jarðsyngur. Giftingar framkvæmdar af séra Sigurði Ólafssyni: 23. desember að heimili Mr. og Mrs. Allan Sveinsson, Selkirk: Bert Kindzienski, Árborg, Mani- toba, og Florence Grosjean sama staðar. Svaramenn voru Mr. og Mrs. Allan Sveinsson; Mrs. Sveinsson er systir brúð- gumans. Heimili ungu brúð- hjónanna verður í Árborg. 28. desember að prestsheimil- inu í Selkir: Marino Midford, Birds Hill, Manitoba, og Lillian Elizabeth Miller, Winnipeg. — Svaramenn voru Gestur J. Mid- ford og Mrs. Carl Midford — bróðir og tengdasystir brúðgum- ans. Framtíðarheimili brúðhjón- anna verður í Winnipeg. ☆ Séra Bragi Friðriksson, hinn ungi og glæsilegi prestur safn- aða íslenzka lúterska kirkjufé- lagsins við Manitobavatn og bú- settur er á Lundar, flytur guðs- þjónustu að Vogar á sunnudag- inn kemur hinn 10. þ. m., kl. 3 e. h. Er þess að vænta að fólk norður þar fjölmenni við guðs- þjónustuna. Látin er nýlega í Seattle, Wash., Hannes Kristjánsson um eitt skeið bóndi að Wynyard, en síðar í grend við Mountain, N. Dak., en þar var hann fæddur, sonur hinna kunnu landnáms- hjóna, Mr. og Mrs. Kr. Kristjáns- son, er bæði náðu hundrað ára aldri. Hannes var drengur hinn bezti og prúður í framgöngu; hann lætur eftir sig konu og uppkomin börn; meðal barn- anna er Mrs. H. S. Sigmar á Gimli. A film on the eruption of Hekla will be featured January 12th at a meeting of the Leif Eiriksson Club to be held in the First Federated Church, Ban- ning and Sargent at 8:15 p.m. Commentary will be made by Dr. Askell Love. Another attrac- tion will be the showing of slides on trolls and other rock dwellers, with commentary by Prof. Finn- bogi Guðmundsson. Refresh- ments will be served. ☆ Á sunnudaginn var lézt í Ár- borg Mr. Valdi Jóhannesson, 72 ára að aldri hinn mesti skýr- leiks og atórkumaður; hann bjó um langt skeið stórbúi í Víðis- bygð og tók virkan þátt í sam- vinnuhreyfingunni í bygðarlagi sínu; hann lætur eftir sig konu sína og mannvænleg börn. Útförin verður gerð að Víði í dag, fimtudag, kl. 2 e. h. ☆ William Francis Langrill, út- fararstjóri í Selkirk lézt á laug- ardaginn 2. janúar, 45 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, móður, bróður og fimm systur. Mr. Langrill var mörgum íslendingum kunnur og mjög vel liðinn í starfi sínu. — Bardals höfðu umsjón með út- förinni. ☆ Carol Guðríður, dóttir Mr. og Mrs. Skapti V. Eyford, Piney, Man., og William Barrington Blyth frá Esterhazy, Sask., voru gefin saman í hjónaband í Sam- bandskirkjunni 28. des. s.l. Séra P. M. Pétursson gifti; Gunnar Erlendsson var við hljóðfærið, en Mrs. Alma Gíslason söng. Brúðurin lauk prófi í Home Economics við Manitobaháskóla 1951. — Heimili Mr. og Mrs. Blyth verður í Athabaska, Alberta. ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will meet January 12th at 2.30 in the lower auditorium of the church. MODERN SAGAS eftir Thorsiínu Walters Saga íslenzku frumbyggjanna í North Dakota, með myndum. 240 bls. Kostar póstfrítt hvert sem er $4.00. Fæst nú í Björnsson's Book Store Séra Skúli Sigurgeirsson frá Walters, Minnesota, kom til borgarinnar ásamt Mrs. Sigur- geirsson og Jónasi syni sínum skömmu eftir jólin. Þau heim- sóttu vini og vandamenn í Sel- kirk og Nýja Islandi; séra Skúli hélt heimleiðis á nýársmorgun, en Mrs. Sigurgeirsson mun dvelja á þessum slóðum í nokkra daga. Jónas fór eftir nýárið til Brandon, en þar er hann starfs- maður hjá Household Finance félaginu. ☆ Miss Sigurlene Johnson, dóttir Mr. og Mrs. Harry Johnson, Glenside, Sask., og Cornelius Froese frá Harndean, Man., voru gefin saman í hjónaband á gamlárskvöld að heimili Dr. og Mrs. K. J. Backman, Garfield Street hér í borg. Er Mrs. Back- man föðursystir brúðarinnar. — Brúðarmey var systir hennar, Miss Patricia Johnson, en Wil- liam Penner aðstoðaði brúðgum- ann. Rev. E. S. McVety gifti. Frændkona brúðarinnar, Mrs. V. J. Thordarson og Miss Ina Acheson sungu brúðkaupssöngv- ana. Heimili ungu hjónanna verður í Winnipeg. ☆ Mrs. Nóra Emily Brown, ekkja Thorsteins Brown, lézt að heim- ili sínu 8 Royal Oak Apts., Win- nipeg, 29. desember s.l. Hún var 67 ára að aldri og hafði búið meiri hluta ævinnar í Selkirk. Hún lætur eftir sig þrjár dætur, Miss Murial Brown og Mrs. Ethel Mills báðar búsettar í Winnipeg, og Mrs. Lorna Ewing í Montreal; þrjá sonu, Norman í Calgary, Gordon í Winnipeg og Cecil í Ottawa; ennfremur 5 barnabörn. ☆ í lok nóvembermánaðar söng Guðmunda Elíasdóttir á íslend- ingasamkomu í New York, en við píanóið var Snjólaug Sigurd- son. ú Misá Margaret Bardal frá Des Moines, Iowa, kom í heimsókn um hátíðirnar til móður sinnar, Mrs. A. S. Bardal, og venzla- fólks hér í borginni. ☆ On Friday, February 12th, the Scandinavian Central Commit- tee will play hosts to the many Scandinavians and their friends on the lower mainland of B.C. when they hold their annual Midwinter Festival in the Hast- ings Auditorium, 828 E. Hastings Street. Ás in the past year, a good program of fine Scandinavian talent will be presented at 8 p.m. A film from the Jubilee Summer Camp, showing it’s progress and developments will also be shown to aquaint the audience with this fine venture. At 10 p.m. the dance will start and then you can enjoy your favourite Schottiches, Polka’s, Hambo’s and Waltz’s played by the Swedish Hall Orchestra. The dance will last until 1 a.m., so you are assured of a good time. There is also a number of prizes given away on the admission ticket which are very worth- while. The proceeds from the Festi- val will be used to send children to the Jubilee Summer Camp next summer so your attendance will not only give you a good time but will assure many children a joyous two weeks vacation. Everyone is welcome so make February 12th a date for the Midwinter Festival in the Hast- ings Auditorium. CARL ERICKSON, Secty. ☆ Myrtle Elizabeth Goodman og Lloyd Albert Johnson voru gef- in saman í hjónaband af Dr. Valdimar J. Eylands á prests- setrinu 5. desember s.l. Brúður- in er elzta dóttir Mr. S. S. Good- man og konu hans Sigurlínu, sem látin er. Heimili Mr. og Mrs. Johnson verður í Winnipeg. Félagsbækur Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins komnar út Félagsbækur bókaútgáfu menningarsjóðs og þjóð- vinafélagsins eru komnar á markaðinn, en þær eru skáldsagan „Musteri óttans“ eftir Guðmund Daníelsson, „Suðurlönd“ eftir Helga P. Briem sendiherra, Kvæði Eggerts Ólafssonar og And- vari og Almanak þjóðvina- félagsins. Ennfremur hefir menningarsjóður gefið út í ár þrjár aukafélagsbækur, en félagsmenn fá þær með hagkvæmara verði en í lausasölu. Skáldsaga Guðmundar Daní- elssonar er 180 blaðsíður .að stærð, og er þetta tíunda skáld- saga hans, en einnig hafa komið út eftir Guðmund tvær ljóða- bækur, tvær ferðasögur, eitt leikrit og eitt smásagnasafn. — „Suðurlönd“ eftir Helga P. Briem er fimmta bókin í flokkn- um Lönd og lýðir, og fjallar bókin um Spán, Portúgal og Italíu, en einnig eru í henni stuttir kaflar um Andorra, Gíbraltar, San Marino, Vatikan- ríkið og samskipti Islendinga við Suðurlönd. Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri hefir val- ið kvæði Eggerts Ólafssonar í safnritið íslenzk úrvalsljóð, og skrifar hann ýtarlegan formála um skáldið og kvæði þess. Helzta efni Almanaks Þjóðvinafélags- ins er grein eftir Níels Dungal um ameríska lækninn William Gorgas og Panamaskurðinn, ár- bók Islands 1952 eftir Ólaf Hans- son menntaskólakennara og framhald ritgerðar Guðmundar Gíslasonar Hagalíns um íslenzka ljóðlist 1918—1944. Andvari flyt- ur æviminningu Gunnlaugs Classens læknis eftir Sigurjón Jónsson lækni og ritgerðir eftir Þorkel Jóhannesson prófessor, Magnús Má Lárusson prófessor, Böðvar Jónsson póst, H. H. og Ólaf Sigurðsson bónda. —Alþbl., 29. nóv. Þann 5. des. s.l. gaf séra H. S. Sigmar saman í hjónaband Dorothy Valorie, dóttir Mr. og Mrs. Thorkell Thorkelson, Gimli, og Wilbert Samuel Du Gray frá Killarney, Man. Hjóna- vígslan fór fram í Unitara- kirkjunni á Gimli, en brúð- kaupsveizla var haldin í Parish Hall. Heimili ungu hjónanna verður á Gimli. ☆ Leiðréliing 1 Lögbergi 10. desember láðist að geta þess, að umsögnin um Emile Walters listmálara er endurprentuð úr blaði þaðan eystra; ennfremur hefði átt að leiðrétta þá staðhæfingu í um- sögninni-að Alþingi hafi verið stofnað af Norðmönnum og Keltum, sem er vitanlega hin mesta firra. ☆ Innselning á Lundar Á fimtudaginn 14. jan. kl. 7:30 verður séra Bragi Friðriksson settur í embætti að Lundar. Dr. Valdimar J. Eylands, forseti lúterska kirkjufélagsins, fram- kvæmir athöfnina með aðstoð nokkurxa nágrannapresta. Allir velkomnir. Magnús Jónsson gefur ekki kost á sértil biskupskjörs Magnús Jónsson, prófessor, hefir beðið blaðið að birta eftir- farandi yfirlýsingu: „Út af prófkosningu þeirri, sem fram hefir farið til undir- búnings væntanlegu biskups- kjöri, vii ég láta þess getið, að ég mælist eindregið undan því, nú sem fyr, að takast þetta em- bætti á hendur, þó að ég ætti kost á því. Þetta tel ég rétt að gera nú þegar kunnugt áður en kosning hefst, um leið og ég þakka innilega þeim, sem hafa sýnt mér það traust að vilja láta mig koma til greina við skipun í þetta virðulega embætti". Magnús Jónsson" MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Þreyja mó þorrann ný ljóðabók eftir Krisfján frá Djúpalæk Komin er út ný ljóðabók eftir Kristján skáld frá Djúpalæk. Nefnist hún „Þreyja má þorr- ann“. Hún flytur 45 kvæði og er 96 blaðsíður að stærð. Útgef- andi er Sindur h. f. á Akureyri, en bókin er prentuð í Prent- smiðju Þjóðviljans. Áður hafa komið út fjórar bækur eftir Kristján frá Djúpa- læk. Þær eru: Frá nyrztu strönd- um 1943, Villtur vegar 1945, I þagnarskógi 1948 og Lífið kallar 1950. Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. He.mili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. * Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 3. jan. 1954: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12. Islenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Lúferska kirkjan í Selkirk Sunnudaginn 10. janúar: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi íslenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Forsetafrúin, sem var meir en heTmingi þyngri heldur en hún átti áð vera, fór á megrunar- hælið. Eftir fjórar vikur fékk maðurinn hennar eftirfarandi skeyti frá henni: „Á fjórum vikum hefir þungi minn minnkað nákvæmlega um helming. Hvað á ég að vera hér lengi? — Þín Dóra“. „Vertu þarna í fjórar vikur til viðbótar. — Þinn Pétur“. Sólheimajökull mældur Jón Eyþórsson- veðurfræðing- ur hefir nýlega farið austur að Sólheimajökli og mælt hann, nákvæmlega ári eftir mæling una í fyrra. Kom í ljós, að vestri jökulsporðurinn hafði þokazt örlítið fram, en sá eystri stytzt um 10—12 metra. Góður afli ó Grundarfirði Tveir bátar stunda nú þorsk- veiðar með línu á Grundar- firði. Eru það bátarnir Farsæll og Páll Þorleiísson. Hefir aflinn verið allt að 6 tonn í róðri, á bát. Aflinn er -mestallur lagður upp í frystihús. Söngkonan . . . Framhald af bls. 1 Söngkennsludeild við Tónlislarskólann — Hverju álítið þér að beri að þakka aukna tónmenningu hér? — Tónlistarskólinn var fyrsti vísir til þess, að hægt væri að auka eitthvað tónlistarmennt. Flest þekkf og ungt tónlistar- fólk hefir útskrifast úr skólan- um. Annars hefi ég mikinn á- huga fyrir því, að stofnuð verði söngkennsludeild við skólann og fengnir verði góðir kennarar til að skóla þær fallegu raddir, sem hér eru, og halda hinum við, sem þegar hafa fengið nokkra skólun. Samtalinu er nú lokið. Eins og sést hér að framan, þá hefir frú Þuríður síður en svo verið að- gerðarlaus undanfarin tíu ár. Hún á svo að segja alla ævina ólifaða enn, og verði áfram- haldið eins og byrjunin, og séu aðrir eins ötulir við nám og starf, þarf ekki að óttast þau eftirmæli, sem hinni nýju kyn- slóð söngvara verður gefið að lokum. I. G. Þ. —TIMINN, 4. des. Landslagsmynd úr Norður-Saskatchewan SCANDINAVIAN CENTRAL COMMITTEE presents MIDWINTER FESTIVAL in HASTINGS AUDITORIUM Friday, FEBRUARY 12 Program 8-10 — Dance 10-1 Admission 75c Good Prizes on Lucky Tickets Proceeds used to send children to Jubilee Summer Camp this year. EVERYBODY WELCOME

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.