Lögberg - 18.02.1954, Síða 2

Lögberg - 18.02.1954, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. FEBRÚAR 1954 „Vertu sæll! Við söknum þín! Hinn 13. október 1953 mun jafnan verða sveipaður döprum haustblæ og saknaðar í huga mínum, því að þann dag létust, sitt hvorumegin hins breiða hafs, tveir hugstæðir og mikilsmetnir vinir mínir, þeir dr. Sigurgeir Sigurðsson, biskup íslands, í Reykjavík, og séra Egill H. Fafn- is, sóknarprestur að Mountain, N. Dakota, og fyrrv. forseti Hms evangelisk lúterska Kirkpufélags íslendinga í Vesturheimi. Svo langa og trygga vináttu átti ég báðum þeim ágætismönnum að þakka ,að mikil vanræksla væri það af minni hálfu að kveðja þá ekki með nokkrum orðum nú, er þeir eru, og um aldur fram, horfnir úr hópi samferðasveitar- innar, sem þeir prýddu með þeim hætti, að hlýtt og bjart verður ávalt um þá 1 hugum allra, sem kynntust þeim veru- lega, og þá sérstaklega í hugum vina þeirra og samverkmanna. Minningu Sigurgeirs biskups Séra Egill H. Fafnis hefi ég leitast við að gera nokk- ur skil á öðrum stað, en með þessum kveðjuorðum vil ég votta séra Agli virðingu mína og þökk fyrir langa og góða sam- fylgd austan hafs og vestan. Hér Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta og fimta miðsvetrarmót Fróns í Winnipeg, 22. febrúar 1954. Sargent Florists 739 Sargent Avenue WINNIPEG. Maniioba Phone 74-4885 Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta og fimta miðsvetrarmót Fróns í Winnipeg, 22. febrúar 1954. Dr. T. GREENBERG Phone 3-6196 814 SARGENT AVE. WINNIPEG. MAN. verður samt eigi, nema að litlu leyti rakinn æviferill hans, þó atburðaríkur væri og merkilegur um margt, því að það hefir þeg- ar verið gert í prýðilegum ræð- um og minningargreinum um hann beggja megin hafsins; þetta laufblað, sem ég, í óeigin- legri merkingu, legg á legstað hans, er aðeins ofurlítil greiðsla upp í vináttuskuldina við hann um meir en þriggja áratuga skeið. Séra Egill Fafnis var maður sönghneigður mjög og gæddur mikilli og fagurri söngrödd, enda söng hann oft einsöng við guðs- þjónustur, aðrar kirkjulegar at- hafnir og á almennum samkom- um, og fórst það þannig úr handi að landar hans (að öðrum ó- gleymdum) kunnu þá viðleitni hans vel að meta, og bera, meðal annars, þakkarhug til hans fyrir það framlag hans til félags- og menningarlífs þeirra. Eitt af þeim lögum, sem ég heyrði hann æði oft syngja á samkomum, og verður mér sér- staklega minnisstætt, var við eftirfarandi erindi í þýðingu eft- ir Guðmund skáld Magnússon: Gekk að heiman glaður drengur, gekk hann móðurhúsum frá. Honum brann í ungum æðum æskumannsins ferðaþrá. Gekk hann horskur gegnum skóginn, gatan stefndi á háreist fjöll. Trén hans bernsku-vinir voru, virtust hvísla til hans öll: Vertu sæll! við söknum þín! Ætla ég einnig, að þetta hafi verið eitt af eftirlætislögum og ljóðum séra Egils, og fór það að vonum, því að þar er færð í fagran og hjartnæman orðabún- ing útþrá og útferðarsaga hans og annarra æskumanna, sem hverfa brott úr átthögum og af ættjarðarströndum að leita gæf- unnar. Þetta lag og ljóð, er var honum svo kært, verður mér einnig sérstaklega ríkt í hug, er ég minnist hans, vegna þess, að okkur fyrstu kynni voru tengd við söng og hljómlist. Fundum okkar bar fyrst sam- an á Akureyri fyrir meir en 30 árum síðan er okkur brann báð- um náms- og athafnaþrá í blóði, og eru mér frá þeim tíma eink- um minnisstæðar gleðistundir, er við, ásamt öðrum, áttum sam- an á heimili hins söngelska frænda hans, Sigurgeirs orgel- leikara, og var þar óspart tekið lagið í góðum og glöðum hóp. Um svipað leyti lágu leiðir okkar Egils beggja vestur um haf, og ekki leið heldur á löngu, að fundum okkar bar saman hérna megin hafsins, enda átt- um við sameiginleg áhugamál þar sem voru bindindis- og þjóð- ræknismálin. Minnist ég ýmsra samfunda okkar frá þeirri tíð, ekki sízt á fyrsta Islendingadegi mínum vestan hafs, norður við Silver Bay í Manitoba. Varð nú „vík milli vina“ um skeið, bæði á námsárunum hér vestra og framan af starfsárum okkar, en síðustu 25 árin lágu leiðir okkar á ný ósjaldan sam- an, einkum síðasta áratuginn, eftir að hann fluttist til Moun- tain, og varð með okkur náin samvinna að félags- og þjóð- ræknismálum, sem mér er ljúft að minnast og þakka, því að hún var um allt hin ánægjulegasta. Mun mega segja, að hámarki sínu næði það samstarf okkar í 75 ára afmælishátíð íslenzka landnámsins í N. Dakota síðast- liðið sumar, en honum var það mjög hugleikið, að sú hátíð yrði haldin og öllum til sem mestrar sæmdar, enda varð það hið góða hlutskipti hans að stjórna því virðulega og fjölsótta hátíðar- haldi, og gerði hann það með þeim myndarskap, sem honum var laginn. Samhliða samvinn- unni að áhugamálum okkar, var ágæt vinátta með fjölskyldum okkar. Finn ég því til þess, að ég á bæði hugþekks starfsbróður og góðvinar að sakna, þar sem séra Egill var. Af sjónarhóli 30 ára kynna okkar er því margs góðs að minn ast af hans hálfu, og er ég renni sjónum yfir farinn feril hans, hverfa mér aftur í hug ljóðlín- urnar hans kæru: Honum brann í ungum æðum æskumannsins ferðaþrá. Gekk hann horskur gegnum gatan stefndi á háreist fjöll.“ Agli hollvini mínum er þar rétt lýst. Hann sótti á brattann, stefndi á heillandi fjöll mann- dóms og aukins andlegs þroska. Menntaþráin, sem honum logaði ungurp í barmi, hóf hann yfir erfiðlé’ikana og bar hann fram til sigurs, svo að hann náði því þráða marki að verða préstur meðal landa sinna hérlendis; vin- sæll og virtur í starfi, eins og lýsti sér í hinum mörgu trúnað- arstörfum, sem Kirkjufélag hans fól honum. Þá var það eigi síður mikil gæfa hans í lífinu, að hann kvæntist hinni ágætustu konu, er stóð honum dyggilega við hlið Sameign framtíðarinnar . . . Á Islandi hafa jafnan búið konur og menn, er metið hafa að makleikum æðri mentun; þetta má vafalaust að miklu leyti þakka fornbókmentunum, sem keðja kynslóðanna hefir varðveitt öld fram af öld. 1 mörgum canadiskum bygðarlögum þar, sem fólk af íslenzkum stofni býr, er bókmenning Islendinga að verða sameign annara Canadamanna. Á vettvangi alþjóðamála hafa fslendingar látið mikið til sín taka, og í stofnun þeirri, sem International Federation of Agri- cultural Producers, er að finna Stéttarsamband íslenzkra bænda. Með því að miðla þannig menningu sinni og hugsjónum til annara þjóða, aukast áhrif fslendinga að mun. Canada og tuttugu og sex aðrar þjóðir teljast til IFAP, og með þátttöku fslands í slíku sambandi, vinnur þjóðin á þeim grundvelli, sem leðir til alþjóða- friðar. CANADIAN CO-OPERATIVE WHEAT PRODUCERS LTD. WINNIPEG CANADA MANITOBA POOL ELEVATORS SASKATCHEWAN CO-OPERATIVE ALBERTA WHEAT POOL Winnipeg, Maniloba PRODUCERS LIMITED Calgary, Alberta Regina, Saskalchewan í hinum umfangsmiklu störfum hans ,og í þeim stormum, sem löngum blása um menn í opin- berum stöðum. Þau hjón eignuð- ust þrjá sonu, er upp komust. Og er ég hugsa til fjölskyldu séra Egills, minnist ég með djúpri þökk margra ánægju- stunda og gestrisni á heimili þeirra hjóna, og munu margir aðrir hafa sömu sögu að segja. Séra Egill var maður bók- hneigður og unni ekki sízt fögr- um skáldskap, enda sjálfur skáld mæltur vel, og var ánægja að ræða við hann um þau efni. Eins og vænta mátti, voru honum ís- Framhald á bls. 3 YFIR 1000 RED AND WHITE MATVÖRUVERZLANIR til afnota fyrir fólk í Sléttufylkjunum Þér hafið Red and White matvörubúðir í yðar næsta umhverfi, þar sem á boðstólum eru fyrsta flokks matvörur við sanngjörnu verði — og það, sem meira er um vert, að sérhver kaupmaður á og starfrækir sj áffur búðina. Prófið Red and WTiite kaffL — Það er ó- aðskiljanlegur skerfur góðra hluia, er menn leggja sér til munns. Þér þurfið ekki að bíða eftir vikuloka kjörkaupum. Þér getið verzlað og sparað hjá hvaða Red and White búð, sem er, nær, sem vera vill. RED and WHITE FOOD STORES .Eigandi og forsljóri er meðlimur yðar umhverfls" Weicame! Delegates to the lcelandic National Convention February 22-24 A Point to Remember! When in Winnipeg buy electric appliances at your City Hydro Show- rooms. For there, you can buy ap- proved, quality merchandise. Every article sold is backed by City Hydro's Appliance Service Organization to assure you satisfactory, trouble-free use of your appliances. \ It will pay you to remember this endorsement when you need a new electric range, refrigerator, automatic washer and dryer, vacuum cleaner, floor polisher or any of the many other electrical appliances upon which you depend for convenience and comfort in your home. Portage Ave., East on Kennedy Phone 96-8201

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.