Lögberg - 18.02.1954, Blaðsíða 7
7
v
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. FEBRÚAR 1954
Oliveira Salazar
Sérsiæður einvaldur, sem hefir
ráðið ríkjum í Poriúgal í 25 ár
Á þessu ári voru liðin 25 ár
síðan Antonio de Oliveira Sala-
zar varð fjármálaráðherra Portú-
gals. Með miklum rétti má segja
að frá þeim tíma hafi hann verið
einræðisherra í Portúgal. Sem
slíkur hefir hann hins vegar ver-
ið einstakur í sinni röð. Fátt í
sambandi við hann minnir á aðra
einræðisherra nútímans. Hann
talar aldrei til lýðsins af svölum
úti, efnir aldrei til skúðgangna
sjálfum sér eða flokki sínum til
dýrðar, mætir nær aldrei við há-
tíðlegar athafnir og heldur aldr-
ei veizlur. Hann gerir ekki hið
minnsta til að afla sér lýðhylli.
Þó nýtur hann vafalaust meiri
vinsælda en nokkur einstakur
maður hefir notið í Portúgal um
tangan tíma.
Stjórn Salazar m i n n i r að
mörgu leyti á stjórn hinna
gömlu einvaldskonunga fyrr á
tímum — þeirra, sem létu hag
og heill þjóðar sinnar ganga fyr-
ir öðru og tryggðu þegnum sín-
um framfarir og rétt. Flestir
þeirra munu þó hafa borizt meira
á en Salazar hefir gert.
Áður en Salazar hófst til valda
í Portúgal, ríkti þar fullkominn
glundroði. Síðan hafa Portúgal-
ar hins vegar búið við trausta
stjórn, sem þó hefir aldrei þurft
að beita harðræði. Enginn efi er
talinn á því, að Salazar hafi jafn-
an haft yfirgnæfandi meirihluta
þjóðarinnar að baki sér.
Oliveira Salazar er 64 ára gam-
all. Hann er fæddur í sveita-
þorpi. Faðir hans var þjónn á
búgarði þar í nágrenninu, en
móðir hans, sem var óvenjulega
gáfuð kona, vann við smábú
þeirra hjóna. Salazar var einka-
sonur þeirra, en dæturnar voru
fjórar. Fjölskyldan var því stór,
en efni lítiL Fljótt bar á því, að
Salazar var góðum námsgáfum
gæddur og hlaut hann því ókeyp-
is vist á kaþólskum menntaskóla.
Þar dvaldi hann frá 12-20 ára
aldurs. í skólanum var haldið
uppi miklum aga og reglusemi.
Salazar telur, að hann hafi orðið
fyrir miklum og góðum áhrifum
af þessu stranga uppeldi.
Tuttugu ára að aldri hóf Sala-
zar nám vió háskólann í Coim-
bra, sem stundum er nefndur
Oxford Portúgals. Hann lagði
þar stund á lög. 1 frítímum sín-
um vann hann fyrir sér með
kennslu. Að náminu loknu fékk
hann strax prófessorsstöðu við
skólann og má á því marka, hve
mikils álits hann hefir notið þá
þegar. Háskólakennari var hann
í 18 ár samfleytt og raunar er
hann skráður háskólakennari
enn í dag. í árbók Coimbrasá-
skóla er hann enn skráður sem
kennari „með fjarvistarleyfi“ og
er það gert samkv. hans eigin
ósk.
ARISTOCRAT
STAINLESS STEEL COOKWARE
For the Modern
WATERLESS WAY!
"^lUe 2uee*i tUe KUcUe+t
rr
Hafið Þ É R kynt yður heilsuatriðin
varðandi maireiðslu?
Vitið þér að slíkt sparar peninga, tíma
og eykur gildi fæðunnar?
Vegna frekari upplýsinga skrifið, símið
eða lítið inn
ARISTOCRAT
COOKWARE DISTRIBUTORS
Phone 92-4665
302-348 MAIN ST.
WINNIPEG
Salazar féllst á ósk þeirra Car-
mona og Gomes að taka við fjár-
málaembættinu, en hann sat
ekki í því nema í fimm daga að
því sinni. Hann hafði þá komizt
að raun um, að yfirmenn hans
vildu ekki fallazt á tillögur hans.
1 annað sinn fór hann heim til
Coimbra og hóf kennslustörf að
nýju. Öngþveitið í fjármálunum
hélt áfram að vaxa og Portúgal
varð að má erlend lán með fullt-
ingi Þjóðabandalagsins gegn skil
yrðum, sem skertu stórlega
sjálfstæð landsins. Carmona og
Gomes sáu ekki annað vænna
en kalla á Salazar í annað sinn.
í þetta sinn urðu þeir hins vegar
að sætta sig við að láta hann fá
óskorað vald á sviði fjármál-
anna.
Salazar gekk strax til verks
með mikilli festu og embættni.
Hann endurskipulagði alla opin-
bera þjónustu í landinu og lækk-
aði ríkisútgjöldin stórlega á þann
hátt. Jafnframt hækkaði hann
skatta. Hann lét ekki staðar num-
ið fyrr en ríkisreksturinn var
orðinn hallalaus. Síðan hefir
aldrei verið halla rekstur á rík-
isbúskapnum í Portúgal. Skuld-
ir ríkisins, erlendar og innlend-
ar, voru greiddar. Þegar því var
lokið, var vaxandi tekjuafgangi
ríkisins varið til margvíslegra
verklegra framkvæmda. Byggð
voru raforkuver og áveitur gerð-
Innfletjendur:
Þetta er fyrsta spor til öfl-
unnar borgarlegrar réttinda
Áður en þér getið lagt fram beiðni fyrir þegnréttindi í Canada, verðið þér
að leggja fram hjá yfirvöldunum eiðsvarna yfirlýsingu svohljóðandi:
„Yfirlýstur ásetningur minn um að verða canadiskur þegn“. Þessa yfir-
lýsingu getur hver nýr borgari átján ára eða meira gert. Hana er hægt að
leggja fram hvenær sem er eftir komu yðar til landsins. Að bíða með það
þarf ekki.
Vegna þess að yfirlýsing þessi verður að vera lögð fram að minsta kosti tólf
mánuðum áður en beiðni um þegnréttindi getur komið til athugunar, er
lagt til, að þetta fyrsta mikilvæga spor sé stigið sem fyrst eftir komu yðar
til Canada.
Eyðublöð er hægt að fá hjá skrifara dómsmálastofunnar í dómþinghá þeirri,
sem þér eigið heima í, er mun á sama tíma veita yður alla þá aðstoð, sem
með þarf til lúkningar beiðninni. Ef menn fýsir það heldur, er hægt að fá
eyðublöð þessi frá Registrar of Canadian Citizenship, Ottawa.
Þegar yfirlýsingin er útfylt má skilja hana eftir hjá skrifara
réttarins, eða senda hana beint til Registrar skrifstofunnar í
Ottawa. Fyrir frekari upplýsingar má skrifar til Registrar of
Canadian Citizsenship, Ottawa, Ontario.
Birt til upplýsinga nýjum canadiskum borgurum af
DEPARTMENT OF CITIZENSHIP & IMMIGRATION
OTTAWA, CANADA
H°N. WALTER HARRIS, Q.C.. LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C.
Minister ' Deputy Minister
ar, reistir spítalar og skólar og
vegir lagðir. Gömul minnismerki
sem víða voru að falli komin,
voru endurreist. Verzlunarflot-
inri var tvöfaldaður. Á skömm-
um tíma tókst Salazar að ná því
marki, að Portúgal bjó ekki að-
eins við trausta fjármálastjórn,
heldur einnig mikilvirka umbóta
stjórn.
Síðan 1932 hefir Salazar verið
bæði forsætis- og fjármálaráð-
herra. í raun og veru hefir hann
verið einræðisherra landsins,
þótt þjóðin kjósi bæði þing og
forseta. Aðeins einn flokkur er
starfandi í landinu — flokkur
Salazar. Stjórnarskráin hindrar
þó ekki, að fleiri flokkar rísi upp
enda hefir verið reynt að koma
þeim á fót. Slíkt hefir þó jafn-
an mistekizt og stafar það bæði
af vinsældum Salazar og hindr-
unum stjórnarvaldanna. Frelsi
almennings er þó meira í Portú-
gal en títt er í einveldislandi.
Dómstólarnir eru með öllu ó-
háðir og ritfrelsi. er ekki tak-
markað, nema varðandi stjórn-
mál.
Salazar réttlætir þessa stjórn-
arhætti með því, að stjórnarfar-
ið verði að miða við þroska og
skaplynd vðkomandi þjóða. Eng-
ilsaxar megi ekki ætla, að allar
aðrar þjóðir séu hæfar til að búa
við sama stjórnarfar og þeir.
Engilsaxneskt þingræði gat ekki
þrifizt, nema þar sem allir séu
fúsir til að lúta leikreglum þess.
Hjá þjóðum, sem ekki geri það
leiði það aðeins til upplausnar
og glundroða. Þjóðir, sem séu
vanar því að láta stjórna sér,
þurfi sinn tíma til að læra það
að fara sjálfir með stjórnina.
Þetta bil verði að brúa. Til þess
að tryggja þessa þróun, sé traust
og einbeitt stjórn nauðsynleg.
Eins og áður segir, gerir Sala-
zar lítið til þess að auglýsa sjálf-
an sig og stjórn sína. Ég mun
aldrei leggja fram svo glæsileg-
ar nýsköpunaráætlanir, segir
hann, að öll orka fari í það að
dást að þeim, en engin verði eft-
ir til að koma þeim í fram-
kvæmd. Hann segir, að sér sé
nóg að verkin tali. Og um það
verður ekki deilt, að lífskjör al-
mennings hafa mjög batnað und-
ir stjórn hans og framfarir ver-
ið miklar og almennar í landinu.
Salazar er starfsmaður mikill.
Hann vinnur venjulega frá kl.
9.30 að morgni til kl. 9 að kveldi.
Hann hefir aldrei kvænzt, en al-
ið upp tvær fósturdættur. Um
flestar heigar fer hann til fæð-
ingarþorps síns. Þar hefir hann
byggt sér lítið hús skammt það-
an, sem foreldrar hans bjuggu,
og segist hvergi vera hamingju-
samari en þar. Laun hans eru
180 sterlingspund á mánuði og
hann forðast að hafa nokkrar
auka tekjur. Hann lifir mjög ó-
brotnu lífi. Hann neytir mjög
sjaldan áfengra drykkja, reykir
aldrei og bannar reykingar í ná-
vist sinni. Hann er trúmaður
mikill. Blómarækt er bezta tóm-
stundaiðja hans, og blóm eru
líka einu gjafirnar, sem honum
eru sendar, er hann endursend-
ir ekki aftur. Skrifstofa hans er
venjulega full af blómum. Blóm
eru beztu vinir mínir, segir
hann, og því get ég ekki án
þeirra verið. — TÍMINN, 30 nóv.
Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta
og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954.
CRESCENT AFURÐIR ERU GERILSNEYDDAR
MJÓLKIN, RJÓMINN OG SMJÖRIÐ
CRESCENT CREAMERY CO. LTD.
Sími 37 101
542 SHERBURN ST. WINNIPEG
Velkomnir félagar og gestir á þrítugasta
og fimta miðsvetrarmót Fróns í
Winnipeg, 22. febrúar 1954.
★
WESTERN PAINT CO. LIMITED
Phone 93-7395
521 HARGRAVE ST. WINNIPEG
Stjóm og starfsfólk
Safeway búðanna
býður gesti, sem koma á hið
þrítugasta og fimta miðs-
vetrarmót Fróns í Winnipeg,
velkomna og væntir að þeir
njóti mikillar ánægju af
heimsókninni.
SAFEWAY
CANADIAN SAFEWAY LIMITED