Lögberg - 18.03.1954, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. MARZ 1954
Á níu alda afmæli innlends biskupsstóls verði
messað í nýrri Skólholtskirkju
— Nú er Alþingi að koma sam-
sn að nýju. Verður nokkuð gert
þar Varðandi Skálholt?
— Það er áreiðanlega margra
manna von. Skálholt hefir lengi
beðið þess, að því væri sómi
sýndur. Það getur ekki beðið
lengur. Og ég held, að þjóðin uni
því ekki öllu lengur, að ekkert
sé aðhafzt, segir próf. Sigurbjörn
Einarsson. — Hann hefir verið
formaður Skálholtsfélagsins frá
stofnun þess og átti ég samtal
yið hann í fyrradag um það,
hvað gert verði nú fyrir Skál-
holt.
— Nokkuð hefir þegar verið
aðhafzt, er ekki svo?
— Að vísu. Skálholtsfélag hef-
lr starfað í nokkur ár. Það hefir
leitazt við að vekja áhuga á þessu
rtlenningarmáli, endurreisn Skál-
holts, og hefir orðið nokkuð
égengt. Það hefir vakið athygli
flþjóðar á níu alda afmæli inn-
tends biskupsstóls, sem nú er
skammt undan, þar eð Isleifur
Gissuararson var vígður biskups
vígslu vorið 1056. Er óhjákvæmi-
iegt að minnast þessa stórvið-
burðar í íslenzkri kirkju- og
þjóðarsögu á myndarlegan hátt.
á s.l. haust\ minntust Norðmenn
® alda afmælis erkistólsins í
Niðarósi með glæsilegri viðhöfn
°g þeir hafa árum saman fórnað
miklu til þess að endureisa og
Prýða þjóðarhelgidóm sinn, dóm-
kirkjuna í Niðarósi.
Sumarid 1956
~~ Flestum mun nú orðið ljóst,
að við komumst ekki hjá því að
halda þetta afmæli hátíðlegt
sumarið 1956.
— Já. En hitt er jafnljóst, að
Saga Skálholts næstliðna hálfa
pðra öld og núverandi ástand
þess er ekki til þess fallið að
Vekja athygli útlendinga á því
lle koma þjóðinni í hátíðaskap.
h*ess vegna er sá einn kostur
fyrir hendi að umbæta hvort
tveggja, eftir því sem auðið má
Verða. Og það þolir enga bið, að
, afizt verði handa um þetta. Al-
Plngi það, sem nú situr, verður
°ð taka jákvæða afstöðu til þessa
nials, svo framarlega sem nokk-
uð á að verða hægt að gera af
°Pinberri hálfu Skálholti til
sóma fyrir sumarið 1956.
Hvað gera þarj
~~ Hvað er það, nánar til tek:ð,
að yðar áliti, sem Alþingi þarf að
gera?
~~ Allt kostar, fé. Opinberar
Jarveitingar til endurreisnar-
lnnar eru nauðsynlegar. Alþingi
efir veitt svolítinn styrk til
0rnleifarannsókna í Skálholti og
1 þess að hlaða upp kirkjugarð-
1Un! sem lengi hefir legið við
]0rðu að kalla.
Almennt er kunnugt, að kirkj-
LOW First Cost
LOW Operating
COST
kohler
Electric Plants
R°mes, Stores. Trailers,
ö°ats. Docks. Outbuildings,
etc.
independent source of light
stanHK0Wer — sole supply or
15 k4y Protection. Sizes up to
fear fully automatic. No
have n °r'ýe.r failure when you
lu«tódSgS; Ask for
/V\ua\f
MjVVFQRD^
A\edlanp,
flMITEP,
Su< Wpg. Ph. 37
187
an í Skálholti er að falli komin
og hún hefir áratugum saman
verið dæmd lítt eða ekki messu-
fær. Ríkið á kirkjuna og endur-
byggingarskyldan hvílir á því.
Hæfilegt guðshús á þessum stað
hlýtur gð kosta talsvert fé. Ég
efast ekki um, að almenningur
muni leggja þessari framkvæmd
lið með frjálsum gjöfum, en
frumkvæði opinberra aðila hafa
úrslitaáhrif á áhuga manna og
fórnfýsi. Mun ekki skuturinn
eftir liggja, ef vel er róið í fyrir-
rúmi, eins og þar stendur.
En nægir það eitt?
— En nægir það eitt, að veg-
leg kirkja rísi í Skálholti?
— Nei, það nægir ekki. Það
þarf að sitja staðinn. Og hann
verður ekki setinn svo sem
minningum hans hæfir þótt land
hans verði ræktað og prýtt, eins
og sjálfsagt er, og hann verði
sæmilega húsaður. Til þess að
staðurinn fái þann svip, sem
minningum hans hæfir og hann
geti orðið andlegt höfuðsetur að
nýju, þurfa fyrst og fremst að
sitja þar og starfa einhverjir
þeirra manna, sem kirkjan á
beztum á að skipa á hverjum
tíma.
— Það hefir stundum verið
stungið upp á því, að biskup
landsins flytjist í Skálholt, er
ekki svo?
— Jú, sú uppástunga hefir oft
komið fram. En flestir, sem mál-
um eru kunnugastir, munu telja
það óframkvæmanlegt. Fleiri
eru á þeirri skoðun, að vígslu-
biskup Skálholtsbiskupsdæmis
eigi að setjast að í Skálholti.
Tillögur um jramtíð
Skálholtsstaðar
— Er það ekki eitt af stefnu-
málum Skálholtsfélagsins?
— Jú, Skálholtsfélagið hefir
gert þetta að tillögu sinni. Og sú
tillaga er ekki gripin úr lausu
lofti.
— Á Alþingi 1945—’46 fluttu
þingmennirnir Sigurður Ólafs-
son, Jörundur Brynjólfsson, Sig-
.urður Guðnason, Sveinbjörn
Högnason og, Jón Sigurðsson
„frumvarp til laga um endur-
reisn hinna fornu biskupsstóla
að Skálholti og Hólum í Hjalta-
dal“ og var þar gert ráð fyrir
því, að vígslubiskuparnir settust
að á biskupssetrunum fornu.
Frumvarpið náði ekki fram að
ganga. En nokkrum árum síðar
skipaði þáverandi kirkjumála-
ráðherra, Eysteinn Jónsson,
fimm manna nefnd til þess að
gera tillögur um framtíð Skál-
holts. í nefndinni voru Sigurgeir
Sigurðtííon, biskup, Steingrímur
S^nþórsson, núv. kirkjumála-
rMherra, dr. Björn Þórðarson,
fyrrv. forsætisráðherra, Þor-
steinn Sigurðsson, form. Búnað-
arfélags íslands, og ég.
Tillögur nejndarinnar
— Hvað lagði þessi nefnd til?
— Hún varð sammála um að
leggja til, að Skálholt skyldi lög-
fest sem aðsetur vígslubiskups-
ins í Skálholtsbiskupsdæmi
forna, hann heita Skálholts-
biskup, og starfssvið hans jafn-
íramt aukið frá því, sem nú er.
Ennfremur, að veitt skyldi þegar
á fjárlögum fé til kirkjubygg-
ingar í Skálholti og yrði miðað
við það, að hin nýja Skálholts-
kirkja skyldi verða messufær
eigi síðan en vorið 1956, og í
þriðja lagi, að sóknarprestur
Torfastaðaprestakalls skyldi setj-
ast að í Skálholti, þegar henta
þætti. Þetta síðasta atriði er nú
orðið að lögum. En að öðru leyti
hefir frumvarp nefndarinnar
ekki verið lagt fyrir Alþingi.
— Þar virðist þó vera bent á
sanngjarna og eðlilega ráðstöfun.
— Benda má á það, að þetta
vakti fyrir þeim mönnum, sem
á sínum tíma beittu sér fyrir
löggjöfinni um vígslubiskupa.
Dr. Jón Þorkelsson flutti árið
1909 frumvarp um, að hinir
fornu biskupsstólar skyldu endur
reistir og landið hafa tvo bisk-
upa. Þingnegndin, sem fjallaði
um málið, breytti frumvarpi
hans í það horf, að tveir skyldu
vera varabiskupar, einn fyrir
hvort hinna fornu biskupsdæma,
an þess að kveðið væri á um að-
setur þeirra og án þess að þeim
væri sem slíkum ætlað neitt teij-
andi starf. Þórhallur biskup
Bjarnason segir í Nýju kirkju-
blaði um þetta, að hér með sé
að vísu drjúgt skref stigið í
átt að endurreisn stólanna fornu
og sé það vel farið. En það nái
of skammt. „En bresti vilja og
dáð til þess að endurreisa stól-
ana verður þetta hégómatildur,
sem menn gefast upp á“, segir
biskup.
Biskupsstóll að Hálum 850 ára
— Ætli það sé áhugi á þessu
meðal Norðlendinga, að því er
Hóla snertir?
— Mikill. Enda er satt bezt að
segja, að hlutur Sunnlendinga
varðandi sitt gamla höfuðsetur
er öllu lakari en Norðlendinga
gagnvart Hólum. En það er á-
ieiðanlega mjög almenn skoðun
landsmanna, að hin fornu bisk-
upssetur eigi að komast til önd-
vegis að nýju með því að höfuð-
klerkar sitji þá og hafi nokkra
tilsjón á hendi með kirkjumál-
um, hvor í sínu umdæmi. Það má
og minnast þess, að árið 1956 eru
íétt 850 ár síðan biskupsstóll var
settur á Hólum. Hólar eiga því
merkisafmæli það ár líka. En
hvað Skálholt snertir sérstaklega
er vert að hafa í huga, að Gissur
biskup ísleifsson gaf Skálholts-
kirkju óðal sitt með því ákvæði,
að þar skyldi ávallt biskupsstóll
vera, meðan landið er byggt og
kristni má haldast. Er ekki
sanngjarnt, að stjórnarvöld
landsins veiti kirkjunni og Skál-
holtsstað þá afmælisgjöf að leið-
rétta það, sem vangert hefir ver-
ið við hinn göfga gefanda? En
hann er að vissu leyti líka stofn-
andi Hólastóls og myndu stól-
arnir báðir að sjálfsögðu fylgjast
að í þessu.
— Skyldi mál þetta eiga fylgi
að fagna á Alþingi?
— Ég veit um ýmsa þingmenn,
sem fylgja því eindregið. Kirkju
legir fundir hafa lýst yfir áhuga
sínum á þessu. Biskupsembættið
er orðið svo umsvifamikið, að
vígslubiskupar hefðu ærið starfs-
svið við hans hlið og í umboði
hans. Það er því ekki aðeins
metnaður fyrif hönd hinna sögu-
frægu og helgu staða, sem knýr
á um þetta, heldur eðlileg þörf
kirkjunnar fyrir aukið svigrúm
og virkara skiplag í þjóðfélagi
nútímans. Sv. Þ.
Mbl., 7. febr.
ÚR GÖMLUM SKRÆÐUM
Sjaldan er ein bdran stök
90 ára gömul auglýsing um lögregluþjónsstöðu
son
Árið 1865 varð síra Jón Jóns-
Austfjörð, þá prestur að
Klyppstað í Suður-Múlasýslu,
fyrir einstökum óhöppum hverju
ofan í annað. Eitt var það meðal
annars að í fárviðri, sem geisaði
seinni hluta septembermánaðar
missti prestur mikið af heyi úr
sætum, sem fauk án þess að
hann næði nokkru af því aftur,
sem teljandi væri. Um svipað
leyti brann hjá honum búr og
eldhús til kaldra kola og án þess
að nokkru yrði bjargað af þeim
föngum eða verðmætum, sem
þar inni voru geymd. Meðal
annars brann þar allt skæða-
skinn, 16 tunnur af skyri, 10
vættir af rengi og margt fleira
fémætt.
í júlímánuði þá um sumarið
missti síra Jón, ásamt Stefáni
bónda í Stakkgarðshlíð, báts-
farm af korni í sjóinn. Hafði
kornið verið sett upp á sandinn
við fjarðarbotninn, en á meðan
verið var að sækja hesta til þess
að flytja kornið heim, reif
Fjarðará sig úr farvegi sínum og
þreif með sér ölduna, sem skips-
farmurinn stóð á. Þóttu óhöpp
þessi, sem komu hvert ofan á
annað, með stuttu millibili, með
einsdæmum miklum.
Auglýsing um lögregluþjóns-
stöðu
Þann 22. nóv. 1865 birti bæjar-
fógetinn í Reykjavík eftirfar-
andi auglýsingu, sem þótt stutt
sé, gefur nokkra aldarfarslýs-
ingu og sýnir í ýmsu starfsvið
lögregluþjóns í höfuðborg Is-
lands fyrir 90 árum. Auglýsing-
in er svona:
„Þeir sem vilja sækja um að
verða lögregluþjónn í Reykjavík
í stað lögregluþjóns Þ. sál.
Bjarnasonar eiga að afhenda
bænarskjöl sín innan 23. næst-
komandi desembermánaðar rit-
uð með eigin hendi.
Laun lögregluþjóns þessa eru
150 rd. af ríkissjóði um árið,
16 rd. 64 sk. nú fyrst um sinn af
dómsmálasjóðnum og þess utan
nokkrar aukatekjur við stefnu-
birtingar og sem réttarvitni
m. m.
Sá sem fær lögregluþjóns-
stöðuna er skyldugur að búa á
þeim stöðum hér í bænum, er
lögreglustjórinn tiltekur“.
Drukknaði í vök
Skömmu fyrir jól 1865 fór
unglingspiltur, 18 ára að aldri,
heimanað frá sér, Grjóteyri í
Kjós, og ætlaði norður yfir
Meðalfellsvatn á bæina sem
standa norðan vatnsins. Blíð-
skaparveður var á og mun það
hafa verið um aflíðandi hádegi
eða um húslestrartímann, sem
pilturinn lagði upp í för sína.
Pilturinn hét Ásbjörn Stefáns-
son. Hafði hann meðferðis hross
leggi, sem hann ætlaði sér að
nota í stað skauta svo sem þá
var títt. Á Meðalfellsvatni var
talinn traustur hestís þegar at-
burður þessi gerðist.
Víkur nú ,'ögunni heim að
Meðalfelli. Þar voru börn úti að
leik, en fullorðið fólk var inni
og hlýddi á húslestur. Sáu börn-
in þá hvar maður kemur brun-
andi eftir ísnum sunnan yfir
vatn og þótti þeim auðsýnt að
sá-'hinn sami myndi renna sér á
leggjum. Ekki hugðu þau að
manninum frekar og héldu leik
sínum áfram.
Þegar húslestri var lokið rökn-
uðu börnin við sér og sögðu
fullorðna fólkinu að þau hefðu
séð til mannaferða eftir vatninu,
en ekki hefðu þau tekið eftir því
hvert maðurinn fór. Sýndist
þeim helzt maðurinn stefna að
Meðalfellskoti og þangað mundi
hann sennilega hafa farið. Var
því þá ekki gefinn frekari
gaumur.
Nú er þar til að taka, að fólk-
inu á Grjóteyri tók að lengja
eftir1 Ásbirni, þegar komið var
fram um ljósaskipti um kvöldið,
því það hafði verið svo um talað
að hann yrði fljótur 1 ferðum.
Var þá sent á bæina norðan
vatnsins til þess að spyrjast
fyrir um Ásbjörn, en þangað
hafði hann hvergi komið. En nú
var frásögn barnanna sett í sam-
band við Ásbjörn og ferðir hans
og þótti ekki allt með felldu.
Var hafin leit og gengið á vatnið.
Fannst þá vök ein, skammt frá
landi suður undan Meðalfells-
koti og rétt við vökina fannst
annar hrossleggur Ásbjarnar.
Þótti þá auðsætt hvernig farið
hafði og að pilturinn myndi hafa
verið á hraðri ferð og ekki gætt
sín fyrr en hann rann í vökina.
Reyndist þetta og að sönnu, því
skömmu síðar var lík Ásbjarnar
slætt upp á 3—-4 álna dýpi.
—VÍSIR
Stutt æviminning
Þann 17. janúar 1953 lézt á
íslenzka gamalmennaheimilinu
„Höfn“ í Vancouver, B.C., Mrs.
Thorbjörg Helga Jóhannsson,
83ja ára. Hún var fædd í Stóru-
Gröf í Skagafjarðarsýslu á Is-
landi 9. des. 1872. Foreldrar
hennar voru: Jón Jónsson og
Guðrún Halldórsdóttir. Hún átti
eina systur á íslandi og bróður,
sem fluttist vestur um haf, og
dó á Gimli, Man. fyrir nokkrum
árum. Árið 1892 giftist hún
Birni Jóhannssyni frá Litlu-
Gröf í Skagafjarðarsýslu. Árið
1900 fluttust þau frá íslandi til
Canada og settust fyrst að á
Gimli, Man., en fluttust þaðan
til Winnipeg og dvöldu þar
nokkur ár, en fluttust svo aftur
til Gimli, og þar dó maður henn-
ar árið 1909. Þau eignuðust 4
börn, 3 dætur og einn son. Börn-
in eru: Mrs. J. Tucker, Van-
couver, B.C.; Mrs. J. Williams,
Stevston, B.C.; Mrs. R. Carp-
enter, Trail, B.C.; og sonur,
Magnús, bóndi að Dafoe, Sask.
Hana lifa ennfremur 9 barna-
börn og 8 barnabarnabörn. Eftir
lát manns síns dvaldist Thor-
björg sál. um 2 ár á Gimli, en
fluttist þá með börn sín til Sask-
atchewanfylkis og tók þar heim-
ilisréttarland nálægt Mervin
pósthúsi. Þar bjó hún í 7 ár með
börnum sínum og naut að
nokkru vinnuaðstoðar bróður
síns og einnig sonar, unglings að
aldri. Eftir 7 ára búskap seldi
hún land sitt og fluttist til
Magnúsar sonar síns, sem þá
hafði tekið heimilisréttarland
nálægt Dafoe, Sask., og byrjað
þar búskap. Hjá honum dvaldist
hún unz hún fluttist til Van-
couver, B.C., árið 1947 og gerðist
vistkona á íslenzka gamal-
mennaheimilinu „Höfn“, sem
var opnað það ár.
Með Thorbjörgu sál. er til
moldar hnigin ein af hinum
mörgu íslenzku landnámskon-
um, sem sýndu hina mestu
hetjudáð í hvívetna; hún reynd-
ist traustur förunautur manni
sínum, var trúföst og trygglynd,
fróðleiksgjörn og fylgdist vel
með því, sem gerðist meðal Is-
lendinga. Hún var allheilsugóð,
sterk og atorkusöm mest af
ævinni, sem sýndi sig bezt, að
það var ekki heiglum hent af
konu að nema heimilisréttar-
land á þeim árum og ala upp 4
börn á unga aldri. Hún kenndi
allmikillar sjóndepru síðustu
árin, og þá lásu dætur hennar
og vinir íslenzk blöð og bækur
fyrir hana. Hún var jörðuð frá
„Chapel of Chimes, Harron
Bros.“ útfararstofunni 21. jan.
Í953. Séra Eiríkur Brynjólfsson
jarðsöng.
Nú héðan burt í friði ég fer
ó, faðir, að vilja þínum.
I hug er mér rótt og hjartað er
af hörmunum læknað sínum,
sem hézt þú mér Drottinn
hægan blund
ég hlýt nú í dauða mínum.
Blessuð sé minning hennar.
CHINA LONG
CUCUMBER
Óvið j af nanlegir
vegna ferskra
bragðgæða
J>essi sérstseba niat-
jurt getur or8iS 2ja
feta há og 2—3 þuml-
ungar í þvermál. •—
Dökkgræn, mjallhvít
og sterk. Þessi jurt
þróast ávalt vei þrátt
fyrir óblitt veöurfar;
hún framleiðir ekki
mikiö af fræi og þess
vegna er vissara að
panta snemma.
Pakki 20c; únza 60c.
póstfrí.
ókeypis stór 164 bls.
fræs- og ræktunarbók
fyrir 1954
DOMINION SEED HOUSE
GE0RGET0WN.0NT.
a brand new
Westinghouse Freezer
by estimating
how long a
Westinghonse
Lamp lasts
Your guess is as good as anyone else’s. All
you have to do is drop into the City Hydro
Showrooms and make an estimate as to how
long you think a STANDARD WESTING-
HOUSE LAMP will burn. No obligation,
nothing to buy! The normal estimated life
of the lamp is 1000 hours, but it may burn
much longer. The lamp was turned on at
12 NOON, THURSDAY, MARCH 4, so that
the contest is already underway.
The winner will be the persons whose esti-
mate is nearest to the total number of hours
and minutes that the lamp burns. What’s
more, if your entry card is stamped showing
you have made a purchase at the store during
the contest, you will be elligible for an addi-
tional premium prize . . . a new WESTING-
HOUSE REFRIGERATOR, matching twin
for the FREEZER.
Full details of the contest are available at
the City Hydro Showrooms. Come in and
make an estimate . . . you may be the lucky
person
Cítt,
Porlage Ave., easi of Kennedy
Phone 96-8201