Lögberg - 06.05.1954, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 6. MAÍ 1954
3
Fjögur sunnlenzk rit um þjóðleg fræði
Eftir prófessor RICHARD BECK
I.
Fyrir nokkuru síðan (undir
árslok 1952) kom út á vegum
Stokkseyringafélagsins í Reykja
vík mikið rit og vandað að sama
skapi, Bólstaðir og búendur í
Stokkseyrarhreppi, eftir Guðna
Jónsson magister, en nýlega
hlaut hann að verðugu fyrir
þetta gagnmerka rit sitt doktors-
nafnbót í heimspeki frá Háskóla
Islands.
Dr. Guðni Jónsson er löngu
maður þjóðkunnur fyrir marg-
háttuð ritstörf sín, svo sem ágæt-
ar útgáfur íslendingasagna og
annarra fornrita vorra, og einnig
fyrir rit sitt Bergsætt (1932), er
ber vitni víðtækum og traustum
lærdómi hans á því sviði. Til
þessa ættfræðisrits hans á hið
nýja merkisrit hans um býli og
búendur í Stokkseyrarhreppi
einriig byrjun sína að rekja, eins
og hann tekur fram í formála
sínum að því. Lætur höfundur
þess einnig getið þar, að hér sé
um að ræða fyrsta bindi af þrem
bókum um sögu Stokkseyrar,
sem hann hefir tekizt á hendur
að semja, að tilmælum Stokks-
eyringafélagsins í Reykjavík.
Segir hann ennfremur í því sam-
bandi:
„Birtist nú hér fyrsta bókin,
sem nefnist Bólstaðir og búend-
ur í Stokkseyrarhreppi. Fjallar
hún um sögu einstakra bújarða
og annarra bólstaða í hreppnum
og greinir frá ábúendum á hverri
jörð, öllum sem kunnugt er um,
frá upphafi til þessa dags. Gerð
er grein fyrri ætt þeirra, kvon-
fangi og börnum, eftir því sem
kostur er á, og tilgreindur um
þá ýmislegur annar fróðleikur,
smásögur og sagnir, mannlýsing-
ar og því um líkt með tilvísun
til heimilda. Ritið er því hand-
bók um Stokkseyringa handa
þeim sjálfum og öðrum, sem
slíkan fróðleik girnast. Þar geta
kynbornir Stokkseyringar rakið
ættir sínar mann fram af manni
og í mörgum greinum lengra og
víðar en hingað til hefir verið
kostur. En aðrir koma þar einnig
mikið við sögu, einkum fjöldi
annarra Árnesinga og Rangæ-
inga“.
Eins og þessi gagnorða lýsing
á efni ritsins gefur í skyn, er þar
færður í einn stað geysimikill
sögulegur og ættfræðilegur fróð-
leikur um Stokkseyrarhrepp að
fornu og nýju, en bókin er að
meginmáli nærri 400 bls. í stóru
broti. Heimildaskráin ein tekur
yfir nálega þrjár blaðsíður, og
ber því vitni, hve víða höfund-
urinn hefir dregið að sér föngin,
en nafnaskráin, sem er hátt upp
í 70 bls. að lengd, sýnir það, hve
fjölmargir koma hér við sögu.
Framan við ritið er ágæt mynd
af höfundinum; auk þess eru í
bókinni heilsíðumynd af Stokks-
eyri og önnur slík mynd af
brimgarðinum fyrir Stokkseyri,
tilkomumikil mynd; einnig marg
ar bæjamyndir, og loks yfirlits-
hort af Stokkseyrarhreppi, er
eykur drjúgum notagildi ritsins.
Eins og vænta mátti frá hendi
hins margfróða og þaulæfSa höf-
undar, er prýðilega á hinu mikla
efni haldið, niðurskipun þess hin
skilmerkilegasta og bókin hin nu
jæsilegasta, enda eru fléttaðar
mn í býla- og mannlýsingarnar
sagnir og vísur, sem bæði eru til
tilbreytingar og varpa oft glöggu
°g skemmtilegu ljósi á frásagn-
arefnið, ekki sízt á sumar per-
sónulýsingarnar.
Rit þetta er, í einu orði sagt,
hin mesta fróðleiksnáma, stór-
merkur fengur íslenzkri byggða-
sögu og mannfræði. Geta þeir
íslendingar vestan hafs, sem
settir sínar eiga að rekja í Stokks
eyrarhrepp eða á þær slóðir,
áreiðanlega sótt í umrætt rit
mikla fræðslu um ættir sínar, að
ogleymdum þeim, sem áhuga
hafa á ættfræði almennt, því að
tú þeirra á slík bók vitanlega
serstakt erindi.
^ Stokkseyringafélagið í
eykjavík miklar þakkir skilið
yrir að hafa færzt í fang út-
gafu bókarinnar, sem er bæði
höfundi og útgefendum til var-
anlegrar sæmdar.
II.
Með hinni fróðlegu og vel-
sömdu bók sinni, Aldarfar og
örnefni í Önundarfirði (1951),
sýndi Óskar Einarsson læknir
það ótvírætt, að hann er bæði
gæddur góðum fræðimannshæfi-
leikum og jafn sýnt um það að
færa fróðleik sinn í skipulegan
búning og aðgengilegan les-
endum.
Nýkomin er út önnur bók eftir
hann, að þessu sinni hreinrækt-
að ættfræðirit, Siaðarbræður og
Skarðssysiur (Reykjavík, Isa-
foldarprentsmiðja, 1953), en ætt-
fræðin er nú einu sinni sú grund-
vallar fræðigrein, og svo víðtæk,
að þangað má í rauninni rekja
rætur þjóðarsögunnar.
A þetta bendir kona Óskars
læknis, frú Jóhanna Magnús-
dóttir (Torfasonar sýslumanns)
réttilega í prýðilegum formála
sínum, þar sem hún greinir
einnig frá tildrögum þessarar
gagnfróðlegu bókar bónda síns:
„Ættfræðin er móðir sagn-
fræðinnar og undirstaða hennar.
Langfeðgatalið er ein grein
hennar, niðjatalið önnur. Við
erum öll mótuð af frændum
okkar, sem á undan okkur hafa
gengið og erum eins og hlekkur
í keðju eða möskvi í neti.
Maðurinn einn er ei nema
hálfur,
með öðrum er hann meir en
hann sjálfur.
segir Einar Benediktsson og á
þetta einnig við um ættfræðina.
Þeir sem kunna skil á ætt
sinni og uppruna vita betur
hvar þeir eiga heima, eiga dýpri
rætur í ættlandi sínu og þjóð-
erni, stíga fastar á foldu, en þeir,
sem lítið eða ekkert vita í þeim
efnum.
Þau eru ekki mörg ungmenn-
in, sem veita ættfræðinni nokkra
athygli, enda eðlilegt, það er
einkenni æskunnar að horfa
„götuna fram eftir veg“, því að
hennar er framtíðin. En þegar
árin færast yfir fólk og það sér
kynslóðir koma og fara, en ætt-
arsvipurinn og ættareinkennin
halda áfram að lifa, vaknar á-
hugi flestra á þeim fræðum. En
því miður oftast of seint, þá eru
þeir venjulega horfnir, sem bezt
hefðu getað frætt okkur, ef við
hefðum gefið oss tóm til þess að
spyrja og hlusta meðan tími var
til.
Það fágæta atvik, að langafi
minn og tveir bræður hans, sem
allir voru prestar, giftust þrem-
ur systrum, vakti athygli manns-
ins míns og þess vegna er niðja-
tal þetta til orðið. Hann gaf mér
það í afmælisgjöf vorið 1949 og
nær það að þeim tíma. Mér
fannst hins vegar ekki rétt að
búa ein að þessum fróðleik og
því bauð ég það fram til prent-
unar vegna hinna mörgu afkom-
enda áðurnefndra bræðra og
systra og systkina þeirra“.
Vel sé óskari lækni fyrir þá
ágætu afmælisgjöf konu sinni
til handa frú Jóhönnu fyrir að
hafa átt hlut að því, að bókin er
komin fyrir almennings-
sjónir, og ísafoldarprentsmiðju
fyrir snyrtilegan og vandaðan
frágang hennar.
Bókin hefst á ítarlegri og
mjög greinagóðri inngangsrit-
gerð um framættir þeirra Stað-
arbræðra og Skarðssystra, en
Staðarbræður, er svo nefndust,
voru sex synir þeirra séra Torfa
prófasts Jónssonar að Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð og konu
hans Ragnhildar Guðmundsdótt-
ur, prests að Hreppshólum og
síðar að Kálfatjörn; Skarðssyst-
ur, fimm að tölu, voru dætur
þeirra hjóna Ingvars Magnús-
sonar og Ingibjargar Eiríksdótt-
ur að Skarði á Landi. Kvæntust
þrír þeirra bræðra þrem Skarðs-
systra, eins og vikið er að í for-
mála frú Jóhönnu, og er bókin
að meginmáli niðjatala þeirra.
Ýmsir af niðjum Torfa pró-
fasts fóru vestur um haf, svo að
hann á orðið eigi allfátt afkom-
enda hér í álfu. Má af þeim
nefna hinn ágæta söngmann og
góðkunna söngstjóra Pétur
Magnús (Pétur Gísla Torfason)
í Winnipeg.
En eins og niðjatalið í bókinni
ber með sér, er það orðinn mjög
1 sjóður Halldóru Snorradóttur“
eftir Magnús Víglundsson og
„Minningarsjóður um Þórarinn
Stefán Eiríksson á Torfastöðum“
eftir Guðríði Þórarinsdóttur, og
lýsa þær greinar báðar fagurri
ræktarsemi hlutaðeigenda.
Margt er og vel um hið ó-
bundna mál í ritinu, en það er
sem hér segir: „Vísur og ljóð“
eftir Sumarliða Grímsson, með
æviágripi hans eftir Guðríði
Þórarinsdóttur, og hefir hann
margmennur ættbálkur, og gagn
merkur að sama skapi, sem kom- j verig """aöur ‘ ’pr?ðiíega“ skáíd-
mn er ai Þéim Staðarbræðrum mæltur; >fJurtin fölnaða<l eftir
og Skarðssystrum, og er lær- ; Brand ögmundsson; „Tómasar
dómsríkt um margt að kynnast
þeim mikla og mannvænlega
hópi í þessari einkar skilmerki-
legu ættarskrá Óskars læknis;
Þó að þar verði vitanlega ekki
komist hjá beinum upptalning-
um, er þar eigi ósjaldan að finna
glöggar mannlýsingar samhliða
staðgóðum ævisögulegum fróð-
leik. Þá er það mikil prýði á
slíkri bók, hve margar og góðar
mannamyndir hún hefir að
geyma, og eykur það að sama
skapi á mannfræðilegt gildi
hennar, en nafnaskráin á nota-
gildi hennar. Bókarprýði er
einnig að myndunum af sýnis-
hornum handavinnu og skart-
gripa þeirra Skarðssystra,
þær voru annálaðar fyrir mynd-
arskap sinn og snilldar hand-
bragð í glitvefnaði og útsaumi.
III.
Árið 1949 hóf Félag Biskups-
tungnamanna í Reykjavík út-
gáfu ritsafns, er nefnist Inn til
fjalla, og fór safnið ágætlega úr
hlaði, því að fyrsta bindi þess
var bæði fjölbreytt og fróðlegt
að efni, og sambærilega vandað
að öllum frágangi; skrifaði'ég á
sínum tíma umsögn um það í
Lögbergi.
Annað bindi þessa athyglis-
verða ritsafns kom út síðastliðið
haust, og stendur hinu fyrra í
engu að baki, nema síður sé,
fjölbreytnin mikil í efnisvali og
meðferð þess og málfar prýði-
legt.
Hefst bindið á snjallri ræðu,
„Islendingar viljum við allir
vera“, eftir Þorstein Þórarinsson,
eins tímabær nú og hún var
þegar hún var flutt fyrir rúmum
20 árum (í Haukadal 21. des.
1931). Er ræðan einnig sæmandi
forspil hinna ágætlega rituðu
minninga og mannlýsinga, sem
fylgja í kjölfar hennar, en þær
eru: „Nokkrar endurminningar“
eftir Steinunni H. Bjarnason,
„Gamla Tunguheimilið“ eftir
Guðríði Þórarinsdóttur, „Hjónin
á Brekku“ eftir Skúla Helgason
frá Svínavatni, „Guðmundur í
Helludal“ eftir séra Magnús
Helgason, „Ranka á Drumb-
oddsstöðum“ og „Sigríður í
Brattholti“ eftir Guðríði Þórar-
insdóttur og „Á Reykjum“ eftir
Margréti Þormóðsdóttur.
Er í ritgerðum þessum brugð-
ið upp glöggum myndum og
skilningsríkum af aldarfari og
atvinnuháttum, og um annað
fram af sérstæðu fólki og oft
harla svipmiklu, sem gróði er að
kynnast og minnast, svo sem
merkiskonunni Sigríði í Bratt-
holti, er barðist hetjulega gegn
því, að Gullfoss yrði seldur til
virkjunar og glataði með því
fegurð sinni.
Af öðrum greinum í ritinu má
sérstaklega nefna ritgerð Sig-
urðar Skúlasonar magisters
„Nokkur örnefni í Skálholts
landi“; „Um kappsláttinn 1918“
eftir Jóhann Kr. Ólafsson, er
greinir frá fyrstu samkeppni
starfsíþrótt á íslandi; og nokkur
orð um skrúðgarða í Biskups-
tungum“ eftir Guðríði Þórarins-
dóttur; en að þeim greinum öll-
um er góður fengur.
„Manntal í Biskupstungum
1850“, sem hér er prentað eftir
frumriti í Þjóðskjalasafninu, er
einnig hið fróðlegasta. Þá er hér
endurprentuð hin snilldarlega
grein séra Magnúsar Helgasonar
„Yrðlingarnir á Kjóastöðum“
og auk þess eru af samfelldu ó-
bundnu máli í ritinu eftirtektar-
verð frásögn „Mannareið að
Haukadal“ eftir Sigurð Skúla
son; fróðleg afmælisgrein
„Barnaskólinn í Reykholti 25
ára“, og greinarnar „Minningar
ríma“ eftir Pál Guðmundsson á
Hjálmsstöðum, hinn kunna hag-
yrðing; erfiljóð eftir séra Pál
Sigurðsson um Guðmund Guð-
mundsson á Brekku; „Til Er-
lends Gíslasonar á Torfastöðum“
eftir Þorstein Þórarinsson, og
loks nokkrar stökur. Aftan við
þáttinn um Sigríði í Brattholti er
endurprentað hið hreimmikla
og stórbrotna kvæði Hannesar
Hafsteins um Gullfoss, og fór
ágætlega á því.
Auðsjáanlega hefir því í rit-
safni þessu verið haldið til haga
miklum byggðarsögulegum og
menningarsögulegum fróðleik,
og þökk sé þeim öllum, sem þar
en hafa lagt hönd á plóg; en engum
er, hins vegar, óréttur gerður,
þó minnst sé sérstaklega á hinn
mikla og prýðilega skerf, sem
Guðríður Þórarinsdóttir frá
Drumboddsstöðum leggur til
ritsins.
Það er prýtt mörgum góðum
myndum, manna og bæja, og
því fylgir nafnaskrá yfir bæði
bindi ritsafnsins, og hefir dr.
Þorsteinn Þorsteinsson fyrrv.
hagstofustjóri samið hana.
Business and Professional Cards
IV. ,
Á undanförnum árum hafa
komið út á vegum Bókaútgáfu
Guðjóns Ó. Guðjónssonar í
Reykjavík þrjú allstór bindi
Eyfellskra sagna eftir Þórð
Tómasson frá Vallnatúni undir
Eyjafjöllum; hafa sagnasöfn
jessi vakið athygli fróðleiks-
hneigðra manna og fengið góða
dóma; eiga þau hvort tveggja
vel skilið, að dæma af tveim
fyrstu bindunum, sem greinar-
íöfundi hafa í hendur borizt, og
er ekki að efa, að þriðja bindið
sverji sig í ætt um prýðisgóða
meðferð efnis og snjallt málfar.
I fyrsta bindinu eru einkum
skráðir þættir ýmsra nafn-
greindra manna og kvenna og
atburðalýsingar frá síðustu öld
undir Eyjafjöllum og víðar, og
styðst höfundur þar aðallega við
munnlegar frásagnir. Kemur
aar fram á sjónarsviðið fjöldi
aðsópsmikils fólks og sérkenni-
legt um margt, og var stórum
meir en verðugt að halda minn-
ingu þess á lofti með bókfest-
ingu sagnaþátta þessara. Mjög
athyglisverður er einnig loka-
íáttur bindindisins „Brot úr
sögu eyfellskra aldaskipta“.
Annað bindi Eyfellskra sagna
hefst á greinagóðum þætti um
Holtspresta 1742—1827, en því
næst fylgir mjög ítarlegur þáttur
um „Mið-Bælisátt undir Eyja-
fjöllum“; rekur síðan hver sagna
þátturinn og hver þjóðsagan
aðra til bókarloka, og gætir þar
eigi lítillar fjölbreytni í efnis-
vali, þó að eigi verði það hér
nánar rakið.
En auk mikils þjóðfræðalegs
fróðleiks, sem þessi söfn geyma
innan spjalda sinna, eru þau
eigi að síður sérstaklega eftir-
tektarverð fyrir það, hve málið
á þeim er hreint og kjarnmikið.
Þá eru sagnaþættir þessir einnig
merkilegir fyrir þá birtu, sem
þeir bregða á líf fólksins á þeim
slóðum, og sér í lagi fyrir lýs-
ingarnar á harðri baráttu þess
við hafið. öll hin sömu ein-
kenni — skýr og skipuleg efnis-
meðferð og hressilegt, ramm-
íslenzkt málfar — svipmerkja
nýjasta sagnasafn Þórðar Tóm-
assonar, er nefnist Sagnagestur,
og er nýútkomið (Isafoldar-
prentsmiðja, Reykjavík, 1953).
Eins og höfundur gerir grein
fyrir í formálanum, seilist hann
nú um sagnaefni til Landeyja og
víðar, og hefir orðið ærið gott
til fahga.
Framhald á bls. 7
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNÍPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnlpeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgtS,
bifreitSaábyrgB o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
Thorvaldson. Eqgertson.
Bastin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE. Managing Dlrector
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone
92-4762
Res. Phone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MFDICAL ARTS BUILDING
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaB 1894
SlMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouqueta. Cut Flowers.
Funeral Designs. Corsages,
Bedding Plants
Nell Johnson
Res. Phone 74-6753
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hretnir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eidi-
viC, heldur hita frá aB rjúka út
meC reyknum.—SkrifiC, simlB til
KELLY SVEINSSON
(25 Wall St. Winnipeg
Just North of Portage Ave.
Simar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all lts branches
Real Rstate - Mortgages - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 40-3480
LET US SERVE YOU
S. O. BJERRTNG
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
PHONE 02-4824
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
632 Simcoe St.
Winnipeg, Man.
SEWING^MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Poríage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
Sérfræöingur t augna. eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimasími 40-3794
Creal.ors of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargent Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
Hafið
Höfn
í huga
Heimili sólsetursbarnanna.
Icelandic Old Folks’ Home Soc-.
3498 Osler St., Vancouver. B.C.
Aristocrat Stainless
Steel Cookware
For free home demonstrationa with-
out obligation. write, phone or call
302-348 Main Sireei, Winnipeg
Phone 92-4665
“The King of the Cookware"
AUTOMOTIVE SERVICE
Exclusive Hillman
Distributors
Sargent & Home Ph. 74-2576
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accountant
505 Confederatlon Llfe Bulldlng
WINNIPEG MANITOBA
Lesið Lögberg
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker. Q.C.
B. Stuart Parker. A. F. Kristjanwon
500 Canadian Bank of Commeree
Chamberi
Wlnniprg, Man. Phone 92-3581
G. F. Jonasson. Pres. Sc Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributora of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Slmi 92-6227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Maniloba
Elgandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's EJectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMTRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-48!-0