Lögberg - 17.06.1954, Qupperneq 1
ANYTIME _ ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
/
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 17. JÚNÍ 1954
NÚMER 24
Samstiltir hugir Vestur-Isiendinga streyma til stofnþjóðarinnar í tilefni af tíu
ára afmœli lýðveldisins
JÓN SIGURÐSSON
Sómi íslands, sverð og skjöldur
íslenzkir leirmunir
ó ítölsku safni
Fyrir nokkru fékk stærsta
keramikasafn Norðurálfu,
sem er í Faenza á Italíu,
safn af íslenzkum leirmun-
um, sem gerðir voru í leir-
brennslu Listvinahússins á
Jafnframt birtust lofsamleg
ummæli um hina íslenzku leir-
munagerð í ítölskum blöðum og
hún talin í senn frumleg og
falleg.
I staðinn fyrir þetta safn fékk
Listvinahúsið nokkrar ítalskar
keramikfyrirmyndir frá 17. öld,
sem eru forkunnarfagrar. Hefir
leirbrennslan í Listvinahúsinu
uú gert talsvert af munum eftir
þegsum ítölsku fyrirmyndum og
eru þeir sýndir þessa dagana í
sýningarglugga Skartgripaverzl-
unar Árna B. Björnssonar á
borni Lækjargötu og Austur-
strætis.
Vinna nú 6 manns að staðaldri
1 leirbrennslu Listvinahússins
°S í vetur sem leið var mikil
aherzla lögð á gerð minjagripa
fyrir vorið og sumarið.
Nú hefir Listvinahúsið opnað
utsölu í húsakynnum sínum á
teirmunum, sem eru lítilsháttar
gallaðir í brennslu, en að öðru
leyti i fullu gildi. Er þar margt
tagurra og nytsamlegra muna,
sem seldir eru á mjög vægu
verði. Skipta munir þessir mörg-
Urn hundruðum.
—VISIR, 3. maí
Hr. Haukur Snorrason, rit-
stjóri vikublaðsins Dagur, sem
gefið er ^ Akureyri, kom
lngað til borgar á þriðjudags-
yeldið í fyrri viku og dvaldi
er aðeins yfir blánóttina; hann
Var í fylgd með allmörgum
sðamönnum á vegum Norður-
antshafsbandalagsins.
Útvarp á
lýðveldisdaginn
Haldið verður upp á lýð-
veldisdag Islands, 17. júní, hér
vestra með því að útvarpað
verður yfir kerfi CBW stöðvar-
innar í Winnipeg. Herra Thor
Thors, sendiherra Islands i
Canada og Bandaríkjunum, flyt-
ur kveðju til Vestur-lslendinga
frá heimaþjóðinni. Einnig mæiir
forseti Þjóðræknisfélagsins, Dr.
Valdimar J. Eylands, nokkur
orð. Útvarpað verður kl. 6
C. D. T. — Menn hafa nægan
tíma til að hlusta á útvarps-
erindin og síðan að fara á
skemmtunina, sem deildin Frón
stendur fyrir og sem á að fara
fram í Fyrstu Sambandskirkju í
Winnipeg.
Frábær námsstúlka
Margrét Hólmfríður Anderson
Þessi efnilega stúlka lauk
prófi, B. Sc. í Home Economics
við Manitobaháskóla í vor.
Hefir námsferill hennar verið
frábær. Á miðskólaárum sínum
í Glenboro hlaut hún jafnan
háar einkanir og skaraði sér-
staklega fram úr í saumaskap
og hannyrðum og vann mörg
verðlaun frá Manitoba Extension
Service. Þegar hún útskrifaðist
úr ellefta bekk hlaut hún náms-
verðlaun menntamáladeildar
fylkisins, en þau eru $325.00 á
ári í tvö ár til náms við Mani-
tobaháskólann. Meðan hún var
í háskólanum tók hún mikinn
þátt í félags- og íþróttalífi skól-
ans og hlaut tvenn verðlaun
fyrir leikni sína í íþróttum. Síð-
asta árið var hún formaður fé-
lagsmála háskólastúlknanna,
sem þar voru í heimavist. Hún
hefir nú tekið að sér stöðu í
Agriculture Extension Service
Minnesotaháskóla sem County
Home Agent.
Bróðir þessarar stúlku, Krist-
ján Gunnar Anderson var einnig
ágætur námsmaður, bæði við
miðskólann og háskólann. Hann
hlaut einnig tvenn námsverð-
laun á háskólaárum sínum,
$325.00 í hvert skipti. Hann út-
skrifaðist frá Manitobaháskóla
í Electrical Engineering árið
1948.
Foreldrar þessara systkina eru
Paul A. Anderson og kona hans
frú Jóhanna Guðrún Kristjáns-
dóttir.Anderson, Glenboro, Man.
Eru þau bæði fædd á Islandi,
hann að Sigurðarstöðum í
Bárðardal, en frú Guðrún að
Víðigerði í Eyjafirði.
Árni G. Eggerlson, Q.C.
Sæmdur
stórriddarakrossi
Fálkaorðunnar
Forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, hefir sæmt Árna
G. Eggertson, Q.C., stórriddara-
krossi hinnar íslenzku Fálka-
orðu, og veitti hann heiðurs-
merkinu viðtöku í Washington,
D.C., á fimtudaginn var, en um
afhending þess annaðist Thor
Thors, sendiherra Islands í
Canada og Bandaríkjunum;
meðal ástæðna fyrir orðuveit-
ingunni, er sérstök áherzla lögð
á mikilvæg afskipti orðuþega af
málefnum Eimskipafélags Is-
lands og stofnun íslenzku
kensludeildarinnar við Manitoba
háskólann.
Mr. Eggertson er frábær
dugnaðarmaður, sem tekið hefir
virkan þátt í íslenzkum kirkju-
og þjóðræknismálum; heimili
þeirra Eggertson-hjóna er mjög
rómað vegna alúðar og risnu.
Winnipeg Man
Gets International
Personnel Post
J. F. Krisljansson
J. F. Kristjansson of Winnipeg,
regional employment officer for
the Unemployment Insurance
Commission, has been elected to
the executive board of the Inter-
national Association of Person-
nel in Employment Security.
Mr. Kristjansson will repre-
sent the district composed of
Alberta, British Columbia, Man-
itoba and Saskatchewan.
He is president of the Man-
itoba chapter, IAPES, and re-
cently attended the association’s
41st annual international con-
vention in Asheville, North
Carolina.
Other Winnipeggers at the
convention included, Mrs. H. O.
Laycock, M. C. Johnson, Miss
Rose Cloutier.
The Manitoba chapter will
hold its annual convention at
Clear Lake, June 18-19. Princi-
pal speaker will be Commission-
er C. A. L. Murchison, Unem-
ployment Insurance Commission,
Ottawa.
Krabbameins-
félagið afhendir
150 þús. kr. gjöf
Framkvæmdastjórn Krabba
meinsfélags Islands, þeir
Níels Dungal, próf., Alfred
Gíslason, læknir, og Hjörtur
Hjartarson, stórkaupmaður,
hafa afhent heilbrigðismála
ráðherra, Ingólfi Jónssyni,
150 þúsund krónur að gjöf
frá félaginu til viðbótar-
byggingar Landsspítalans,
sem nú er að hefjast.
Lýstu þeir áhuga félags síns
fyrir því, að byggingu þessari
verði sem fyrst lokið og vöktu
athygli á því að sjúkrahúsa-
skortur, sem nú er hér mjög
tilfinnanlegur, kæmi ekki hvað
sízt niður á sjúklingum með
krabbamein. Kváðu þeir félagið
vænta þess að allir þeir aðilar,
sem á einhvern hátt gætu
stuðlað að því að stækkun Lands
spítalans gæti sem fyrst orðið
lokið, geri sitt til að svo megi
verða. — Heilbrigðismálaráð-
herra þakkaði hina höfðinglegu
gjöf Krabbameinsfélagsins Is-
lands og kvað hana sýna stór-
hug félagsmanna og vilja þeirra
til þess að leggja sjálfir hönd á
plóginn og mundi gjöf þessi
verða sterk hvatning til allra
þeirra, er að framgangi sjúkra-
húsmálanna vinna, bæði opin-
berra stjórnarvalda og einka-
samtaka, er veita þeim mikils-
verðan stuðning. —(Tilkynning
frá heilbrigðismálaráðuneytinu).
—VISIR, 3 .maí
Úr borg og bygð
Á miðvikudagskvöldið 9. þ. m.,
lézt að heimili sínu að Lundar,
Man., Eiríkur Jónsson Hallsson,
91 árs að aldri, fæddur að Meis-
seli í Jökulsárhlíð 2. apríl 1863,
og fluttist 3ja ára að aldri tií
Eiríks á Hrærekslæk í Hróars-
tungu, en fluttist til Vestur-
heims 1880 með konu og tvö
kornung börn; fyrstu sex árin
dvaldist fjölskyldan í Winnipeg,
en lagði leið sína norður að
Manitobavatni 1894 og gerðist
Eiríkur einn af frumherjum
Lundarbygðar. Hann var þrí-
kvæntur, fyrsta kona hans,
Jórunn Thorsteinsdóttir, lézt
1906. Önnur kona hans var
Ingibjörg Jónsdóttir Óláfsson,
en sú þriðja Jakobína systir
Ingibjargar.
Eiríkur, sem var um alt hinn
mesti skýrleiksmaður, er ekki
vildi vita vamm sitt í neinu,
eignaðist fimtán börn, og af
þeim eru 9 á lífi.
Útför þessa trausta Austfirð-
ings fór fram frá Sambands-
kirkjunni á Lundar á laugardag-
inn þann 12. þ. m. Séra Philip
M. Pétursson jarðsöng með að-
stoð séra Braga Friðrikssonar.
Nánari umsögn í næsta blaði.
*
Gefin saman í hjónaband í
kirkju Selkirk-safnaðar þann
12. júní: Ernest Lloyd Fey,
Selkirk, og Sarah Benita Evans,
sarra stað. Miss Donna Mary
Smith og Mr. Eugene Fey að-
stoðuðu við giftinguna. Sóknar-
prestur gifti. Veizla var setin í
samkomusal safnaðarins að gift-
ingu afstaðinni.
Mr. and Mrs. E. R. Davis, Sudbury, Ont., are spending
their honeymoon at The Cloister, Sea Island, Georgia.
Mrs. Davis was Miss Lorraine Johannson, daughter of
Mr. and Mrs- J. Walter Johannson of Pine Falls, Man.
—Courtesy of Winnipeg Tribune
i/ • •• • r
Kjorinn i
félagsstjórn
Mr. Grettir Eggertson
Svo sem vitað er og auglýst
hafði verið í Lögbergi, hélt Eim-
skipafélag Islands aðalfund sinn
í Reykjavík á laugardaginn var;
samkvæmt símskeyti, er um-
boðsmanni félagsins vestan
hafs, Árna G. Eggertsyni, Q.C.,
barst á mánudagsmorguninn var
Mr. Grettir Eggertson rafur-
magnsverkfræðingur kosinn x
framkvæmdarstjórn félagsins,
en hann sótti fundinn, eins og
þegár hefir verið skýrt frá fyrir
hönd vestur-íslenzkra hluthafa.
Hinn nýkjörni stjórnarnefnd-
armaður hefir árum saman ver-
ið ráðunautur íslenzku þjóðar-
innar varðandi rafvirkjanir
landsins og unnið þjóðinni á
þeim vettvangi ómetanlegt
gagn, enda er hann maður fylg-
inn sér hvar, sem hann gengur
að verki.
Brúðkaup
Á laugardaginn hinn 1. maí
síðastliðinn, voru gefin saman í
hjónaband í Third Avenue
United Church, North Battle-
ford, Sask., þau Lenora Pauline
Mitchell, dóttir Mr. og Mrs. Aiex
Mitchell þar í bænum, og Kris
Gíslason lögregluþjónn hjá
R. C. M. P., yngsti sonur þeirra
Mr. og Mrs. Thorsteinn Gísla-
son að Oak Point, Man. Rev. A.
M. Logie framkvæmdi hjóna-
vígsluna. Brúðarmeyjar voru
Mrs. Frances Mitchell tengda-
systir brúðarinnar og Miss
Primrose How. Brúðgumann að-
stoðuðu J. D. Berryman og E.
V. Matcett, báðir hjá R. C. M. P.,
en til sætis leiddu S. A. Juniper
og I. D. MacDonald, einnig í
þjónustu R. C. M. P.
Að vígsluathöfn lokinni, var
setin vegleg veizla í Co-op Hall,
North Battleford. Brúðhjónin
lögðu af stað í skemtiferð vestur
til Banff, og þaðan til Wash-
ington, D.C., U.S.A. — Heimili
þeirra verður að 1622 Queens
Street, North Battleford.
Á meðal utanbæjargesta sóttu
brúðkaupið Mr. og Mrs. Thor-
steinn Gíslason, Thorsteinn
Myrman og Garðar Gíslason
frá Oak Point og Magný Bryn-
jólfsson frá Lundar.