Lögberg


Lögberg - 08.07.1954, Qupperneq 1

Lögberg - 08.07.1954, Qupperneq 1
ANYTIME ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 67. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 8. JÚLÍ 1954 NÚMER 27 Fréttir fró ríkisútvarpi Islands 27. JÚNÍ -------------- Scholarship Awarded to Student- Named St. Clement’ Valedictorian Fréttir af kirkjuþingi Eftir J. J. BÍLDFELL Síðustu dagana hefur verið fremur kalt í veðri, nokkur úr- koma norðanlands og snjóað hefur þar í fjöll. Erfið varð færð á veginum í Siglufjarðarskarði. Leitað hefur verið síldar á mið- unum fyrir norðan land en ekki orðið síldar vart. — Fjöldi báta býst til síldveiða og í fyrradag höfðu verið afgreidd leyfi til 132ja báta og skipa til þess að stunda síldveiðar í sumar. ☆ Forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og frú Dóra Þór- hallsdóttir, eru nú að hefja opin bera heimsókn á Norðurlandi. Þau heimsækja fyrst Akureyri °g þar er nú opinber móttaka að hefjast í lystigarðinum, en í kvöld sitja forsetahjónin boð bæjarstjórnar að Hótel KEA. A niorgun fara þau að Laugalandi en á þriðjudaginn að Árskógi, — síðan til Ólafsfjarðar, Siglu- fjarðar og Sauðárkróks, koma að Hölum í Hjaltadal, verða í Húnavatnssýslu 4. og 5. júlí og í Strandasýslu 6. júlí. ☆ Yfirflotaforingi Atlantshafs- bandalagsins, Jerauld Wright, kom á miðvikudaginn til Islands 1 opinbera heimsókn. ☆ 1 málefnasamningi ríkis- stjórnarinnar frá 11. sept. s.l. er gert ráð fyrir því, að ríkis- stjórnin beiti sér fyrir því að tryggt verði aukið fjármagn til íbúðabygginga í kaupstöðum, kauptúnum og þorpum og á- herzla verði lögð á að greiða fyrir byggingu íbúðarhúsa, sem nú eru í smíðum og grundvöll- ur lagður að því að leysa þetta vandamál til frambúðar. I sam- ræmi við þetta hefir félagsmála- ráðherra skipað fimm manna nefnd til að gera tillögur um lausn húsnæðisvandamála þétt- býlisins, og er Benjamín Eiríks- son bankastjóri formaður nefnd- arinnar. ☆ Félagsmálaráðuneytið skipaði fyrir nokkru fimm manna nefnd til þess að endurskoða löggjöfina um almannatryggingar, og er Hjálmar Vilhjálmsson skrif- stofustjóri foramður hennar. — Nefndin tók til starfa seinni hluta maímánaðar og hefur haldið stöðuga fundi síðan. Þar sem hér er um að ræða heildar- eodurskoðun laganna má gera rað fyrir að hún taki langan tíma og verði ekki að fullu lokið u þessu ári. ☆ Á þriðjudaginn var skipaði forseti Islands Theódór B. Lín- hæstaréttarlögmann pró- fessor í lögfræði við Háskóla Is- lands. Theódór B. Líndal hefur verið aukakennari í lagadeild háskólans síðan 1941. ☆ Hinn 19. þ. m. var undirritað í Moskvu samkomulag um við- skipti milli Islands og Sovét- rikjanna. Pétur Thorsteinsson ^endiherra undirritaði samkomu ^gið fyrir Islands hönd, en I. G. abanov utanríkisverzlunarráð- erra fyrir hönd Sovótríkjanna. Samkomulaginu fylgja nýir vórulistar en viðskipta- og greiðslusamningurinn, sem gerð Var * ^rra helzt að öðru leyti ° reyttur. Vörulistarnir gilda í iqc hálft ár, eða til ársloka b- Enn hafa ekki verið gerðir neinir kaup- eða sölusamningar, en á listanum yfir íslenzkar af- urðir eru 35,000 lestir af freð- fiski, 15,000 lestir af saltsíld og 2000 lestir af freðsíld. Ráðgert er, að Sovétríkin afgreiði í stað- inn eftirtaldar vörur og magn: Brennsluolíu og benzín 325,000 lestir, rúgmjöl 4,000 lestir, hveiti klíð 3,000 lestir, hrísgrjón 1000 lestir, kartöflumjöl 600 lestir, hveiti 4,000 lestir, maís 5,000 lestir, sement 75,000 lestir, járn- pípur 2,000 lestir, steypustyrkt- arjárn 2,000 lestir, koks 1700 lestir og antracitkol 1100 lestir. Ennfremur er gert ráð fyrir að keyptar verði aðrar rússneskar vörur svo sem bílar, landbúnað- arvélar, asfalt, baðmullarvefn- aður, vín og eldspýtur. Islenzka samninganefndin, sem nú er í Moskvu, vinnur að því að gera sérstaka samninga um sölu íslenzku afurðanna og kaup á helztu vörunum frá Sovétríkjunum. ☆ Samkvæmt forsetaúrskurði frá 11. september 1953 um skip- an og skiptingu ráðherraem- bætta, var utanríkisráðherra dr. Kristni Guðmundssyni falið að fara með lögreglu- og önnur mál, er leiða af dvöl hins erlenda varnarliðs hér á landi. Sam- kvæmt þessu gaf ráðherrann út kæruskjal í máli, sem höfðað var gegn Islendingi starfandi hjá varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli. Hann var sakaður um að hafa ekið bifreið undir áhrif- um áfengis. Því var haldið fram af ákærða, að utanríkisráðherra væri ekki bær að fara með á- kæruvaldið í þessu máli. Hæsti- réttur úrskurðaði síðan, að samkvæmt forsetaúrskurðinum bæru dómsmál almennt undir Bjarna Benediktsson dómsmála- ráðherra. Akvæði laga frá 1951 um meðferð opinberra mála yrðu ekki skilin á annan veg en þann, að einn og sami dóms- málaráðherra fari með dóms- mál í landinu. Á þessari skipun yrði ekki gerð nein breyting nema með lögum, sem greindu hvernig ákæruvaldinu yrði skipt milli ráðherra ,og væri því ekki hægt með forsetaúrskurði að breyta gildandi lögum um það, að einn og sami maður fari með ákæruvaldið á hverjum tíma. Samkvæmt þessu hefði utan- ríkisráðherra brostið heimild til þess að samþykkja kæru á mál- inu til hæstaréttar, og bæri af þeim sökum að vísa því frá dómi. ☆ Verzlunarráð íslands hélt ný- lega aðalfund sinn og flutti Ing- ólfur Jónsson viðskiptamálaráð- herraherra þar erindi og talaði um verkefni verzlunarstéttar- innar, og taldi að kjörorðið ætti að vera: meiri framleiðsla, at- hafnafrelsi og frjáls verzlun. — Eggert Kristjánsson stórkaup- maður var endurkjörinn for- maður ráðsins. Aðalfundurinn samþykkti m. a. að skora á ríkis- stjórninað að afnema nú þegar þau verðlagsákvæði og inn- flutningshöft, sem enn eru í gildi, — taldi tímabært að verzl- unarráðið taki nú þegar að at- huga möguleika á stofnun við- skiptabanka, — ítrekaði sam- þykkt um að koma upp toll- geymslu hér á landi, og gerði það að tillögu sinni að stjórnar- völdin geri raunhæfar ráðstaf- anir í samráði við verzlunarráð- ið til þess að bílainnflutningur verði þegar frjáls. Framhald á bls. 4 CENTER LIN E—Dolores Johnson, honored as valedictor- ian of St. Clement High School, Center Line, class of 1954, was awarded June 6 a four year scholarship to Dominican Col- lege, Racine, Wis., for highest scholastic rating. S h e attended St. Clement for 12 years, and was awarded an honor certificate for being the outstanding girl leader of her class. A medal for highest rat- ing in commercial subjects (typing, shorthand, book- keeping) was also bestowed upon her. She was cheerleader for her last two years of hig school, and played basketball with the CYO team. She also studied piano at the Detroit Institute of Arts, and at- tended the Bill Wilson School of Dancing. At the age of 16, she received her license of cosmotol- ogy from the East Side College of Beauty Culture. She pursued a business pro- gram throughout her high school years, and will major in teachers training at Dominican Callege in the fall. Out-of-town guests attending her graduation were Mrs. Alex Johnson and her son, Trevor Johnson, of Winnipeg, Manitoba, Canada. Dolores is the daughter of Alex Johnson Jr., the grand- daughter of Louise and the late Alex Johnson, Winnipeg. —Winnipeg Free Press Dolores Johnson Róttækar róðuneytisbreytingar Hermálaráðherra — Ralp Campney. Solictor General — W. Ross Macdonald. Þegnréttindaráðherra — J. W. Pickersgill. Ráðherra Norðurhéraða — Jean Lesage. Ríkisritari — Rock Pinard. Samgöngumálaráðherra — George C. Marler. Þrjú börn fórust í eldsvoða Tvaer konur hlutu mikil brúna- sár; bærinn brann lil kaldra kola Rt. Hon. Louis St. Laurent Lögberg vék að því í fyrri viku, að vænta mætti allrót- tækra breytinga á St. Laurent- ráðuneytinu í Ottawa, og nú er þetta komið á daginn, og eru helztu breytingarnar sem hér segir: Mr. Abbott hefir verið skipaður dómari 1 hæztarétti Canada, en við af honum tekur sem fjármálaráðherra Mr. Walter Harris. í stað Claxtons hermálaráðherra hefiir verið skipaður Mr. Ralph Campney þingmaður Vancouver Centre kjördæmisins. Mr. Pickersgill verður þegnréttinda- og inn- flutningsmálaráðherra, en Mr. George C. Marler lögfræðingur frá Montreal tekst á hendur for- ustu samgöngumálaráðuneytis- ins. Eins og nú standa sakir, er ráðuneytið þannig samsett: Forsætisráðherra — Louis St. Laurent. Verzlunarráðherra — C. D. Howe. Búnaðarráðherra — James G. Gardiner. Heilbrigðismálaráðherra — Paul Martin. Teknaráðherra — James J. McCann. Verkamálaráðherra — Milton Gregg. Utanríkisráðherra — Lester B. Pearson. Dómsmálaráðherra — Stuart Garson. Mannvirkjaráðherra — Robert Winters. Ráðherra hermannamálefna — Hugues Lapointe. Fjármálaráðherra — Walter Harris. Póstmálaráðherra •— Alcide Cote. Fiskiveiðaráðherra — James Sinclair. Hörmulegt slys vildi til á Sandhólum í Eyjafirði í fyrradag. Brann bærinn til kaldra kola og þrjár telpur fórust. Tvær konur skað- brenndust. — Talið er að kviknað hafi í út frá olíuvél. Eldurinn mun hafa komið upp um kl. 5 um morguninn. Voru að Sandhólum þau Sigtryggur Sveinbjörnsson og Helga Jó- hannsdóttir úti í fjósi en inni sváfu 3 telpur, einn drengur og móðir húsfreyjunnar. Bærinn alelda Er hjónin komu úr fjósinu var bærinn alelda. Móðir barnanna gerði tilraun til að komast upp stigann til að bjarga börnunum, en varð að snúa við þar eð stig- inn var brunninn. Faðirinn gerði einnig tilraun til að kom- ast upp á þak og þá leiðina til barnanna. En hann varð einnig frá að hverfa vegna þess hve eldurinn var orðinn magnaður. Drengurinn slapp Drengurinn, sjö ára gamall, komst óskaddaður út en gamla konan, móðir húsfreyjunnar, hlaut alvarlegt brunasár á leið- inni niður stigann. — Dæturnar þrjár brunnu inni. Elzt þeirra var Hulda, 14 ára, þá Hrafnborg 19 ára og Sigrún yngst aðeins 4 ára. Ekkert við ráðið Slökkvilið Akureyrar kom fljótlega á vettvang, en gat ekk- ert ráðið við eldinn. Gripahús tókst þó að verja. En innan- stokksmunir brunnu allir. Ekki er fullkunnugt um elds- upptök, en talið er að kviknað hafi í út frá olíuvél. —Alþbl., 9. júní (Niðurlag) Fundur var settur kl. 9 á i þriðjudagsmorgun og hófst með guðræknis-þjónustu, sem séra Robert Jack stýrði. — Varafor- setinn, séra Guttormur Gutt- ormsson, var þá kominn til þings, en hann var fjarverandi fram að þeim tíma í sambandi : við 50 ára prestsembættisafmæli : séra Kristins K. Ólafssonar samkvæmt ráðstöfun forseta Kirkjufélagsins, Dr. Valdimars ' J. Eylands, eins og getið var um í síðasta blaði. — Séra Guttorm- ur lét mér í té eftirfarandi frétt um hátíðahaldið, sem fram fór í sambandi við fimmtíu ára vígslu afmæli sér^ Kristins: „Ég varð glaður, þegar hienn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins!" sungu helgifarar Gyð inga í fornöld. (Sálm. 122). Þau orð má ég vel heimfæra til sjálfs mín: Ég varð sannar- lega glaður, þegar forseti kirkju- félagsins íslenzka bað mig að fara til Sharon-bæjar í Wis- consin og ganga þar í guðshús með séra Kristni K. Ólafssyni á 50 ára vígsluafmæli hans, og flytja honum heillaóskir frá kirkjufélaginu, sem hann veitti forstöðu í 20 ár. Eftir þeirri beiðni fór ég eins og leiðir lágu með “Chicago and Northwestern” járnbrautinni austur til Wisconsin á föstudag- inn, 25. júní, og kom til Sharon um kvöldið. Sharon er snotur bær á borð við Minneota. Hann liggur rétt norðan við takmörk Wisconsin og Illinois ríkja. Sumt af safnað- arfólki séra Kristins er búsett í Illinois. Landslag í Suður- Wisconsin er fagurt og búsæld- arlegt; bæirnir stórir og húsaðir prýðisvel, og svo er um Sharon- bæ. Var ég gestur séra Kristins á meðan ég dvaldi þar. Séra Kristinn var veikur all- lengi á síðasta vetri, en er nú búinn að ná sér allvel og tekinn til starfs aftur. Verður hann þó að fara vel með sig. Kona hans, Ethel, lætur sér mjög ant um, að hann fylgi vel öllu því, sem læknarnir hafa skipað fyrir; og mun ekki ofsögum sagt af því, hve vel hún hafi reynzt manni sínum í hvívetna. Skyldulið séra Kristins var komið að vestan, norðan og austan til að vera við hátíða- haldið: synirnir fjórir, Erlingur, Paul, Marino og Friðrik, og dóttirin, Sigrún; svo og tengda- börnin öll og barnabörnin. Það var fagnaðarfundur mikill, eins og skiljanlegt er; mér var sagt, að mörg ár væri nú liðin síðan fjölskyldan öll hefði náð að vera samdægurs undir sama þaki. Hátíðahaldið byrjaði með messugjörð í kirkju séra Krist- ins — “Christ Lutheran” — á sunnudagsmorgni, 27. júní. For- seti Illinois synodunnar, dr. Harmon J. McGuire, flutti ræð- una, en varaforseti kirkjufélags- ins íslenzka, séra G. Gutt- ormsson, þjónaði fyrir altari. Aðsókn var mikil eins við mátti búast; auk safnaðarfólks í Sharon voru þar vinir og fyrr- verandi safnaðarmenn frá Norð- ur Dakota, frá Chicago, frá Kyrrahafsströnd, frá Mount Carroll í Illinois, — þar sem séra Kristinn þjónaði síðast áður en hann fór til Sharon — og líklega víðar að. Um hádegisbilið var setzt að borðum í samkomusal kirkjunn- ar. Veizlufólkið skipti hundruð- um; máltíðin var ljúffeng og rausnarleg; og má með sanni segja að öll hátíðin hafi verið ágæta vel undirbúin; kirkjan prýdd og endurbætt, og öllu til skila haldið eins og bezt mátti verða. Kirkja Christ-safnaðar er með fegurstu kirkjum, sem ég hefi séð í sveitabæ, byggð úr múr- steini; litmyndir í hverri glugga rúðu; altari, bekkir, pípuorgel og allur búnaður ber vott um rausn og smekkvísi safnaðarfólksins. Eftir máltíðina fóru fram ræðu höld í kirkjunni. Forsæti skip- aði séra Luther C. Mueller, prestur í Harvard, Illinois. Dr. McGuire flutti aðalræðuna. Bar hann séra Kristni lofsorð að makleikum fyrir fræðimensku, starfsþrek og myndarskap í allri frammistöðu, bæði í félagsmál- um og prestsþjónustu. Sendimaður kirkjufélagsins flutti þar kveðjur og heillaóskir; og ýmsir aðrir tóku þar til máls. Var auðfundið að séra Kristinn er mikilsmetinn og leiðandi maður í sínum félagsskap, nú eins og altaf áður. Hann var vígður í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, 26. júní 1904. Hann þjónaði söfnuð- um í Norður Dakota í 21 ár, þá í Argyle-söfnuðum í fimm ár, síðan Hallgrímssöfnuði í Seattle í 12 ár. Eftir það flutti hann til Chicago og vann fyrir Banda- ríkjastjórn um tveggja ára bil. Þjónaði síðan í fimm ár lútersk- um söfnuði í Mount Carroll í Illinois; en síðustu fimm árin hefir hann verið prestur Christ- safnaðar í Sharon. Séra Kristinn var forseti kirkjufélagsins íslenzka í 20 ár — frá 1923 til 1943. Mörgum ábyrgðarstörfum hefir hann gegnt síðan hann fór frá íslend- ingum. Hann hefir setið á mörg- um þingum Sameinuðu kirkj- unnar lútersku; var um eitt skeið forseti Norður konferensu Illinois sýnodunnar. Hann var kennari á prestaskóla lúterskum í Seattle um tveggja ára bil. Fyrir nokkrum árum var hann erindreki Sameinuðu lútersku kirkjunnar á heimsþingi lút- erskra manna í Kaupmanna- höfn. Og mörg fleiri störf hefir hann haft á hendi fyrir lútersk kirkjufélög, síðan hann fór frá íslendingum. Þeir sem vilja kynna sér all- an starfsferil séra Kristins ættu að lesa ítarlega grein um hann eftir G. J. Oleson. Sú ritgjörð birtist í Lögbergi 24. júní. Allir vinir séra Kristins munu óska þess af heilum hug, að hon- um megi auðnast að mega lifa og starfa í kirkju Drottins í mörg ár enn. Eftir að varaforsetinn, séra Guttormur, hafði flutt skýrslu sína, fóru vanaleg þingstörf fram. — Málin, sem fyrir lágu, voru rædd og afgreidd — gengu sinn vana-veg og er fátt eða ekk- ert um þau að segja, að undan- teknum tveimur málum, sem á dagskrá voru, en frá þeim verð- ur að skýra nokkuð nánar. Annað þeirra var stórmál, sem að allir íslendingar ættu að geta verið sammála um, þó að hugmyndin sé óneitanlega djörf og stórtæk. En hún er sú, að ráðast í að byggja um fimmtíu einingarheimili í sambandi við Betel, eða annars staðar, sem hægt sé að leigja aldur- hnignu fólki með mjög vægum . kjörum. Talað var um $25.00 um mánuðinn og eiga íbúðirnar að ; vera með öllum nútímaþægind- Framhald á bls. 5

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.