Lögberg - 15.07.1954, Síða 1
ANYTIME _ ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1954
NÚMER 28
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
4. JÚLI
Vikuna, sem leið, var yfirleitt
norðanátt hér á landi, kalt í
veðri og rigning öðru hverju
norðanlands, en bjart veður
sunnanlands nema á mánudag-
inn og þriðjudaginn. Fyrir norð-
an og austan snjóaði í fjöll. í
niorgun var hiti um frostmark í
Möðrudal og hafði snjóað þar í
nótt og einnig á Grímsstöðum.
Á láglendi á Norðurlandi var
hitinn í morgun 3 til 4 stig á
Celsíus, en sunnanlands 8 til 11
stig.
Sunnanlands hafa bændur hirt
töðuna jafnóðum og losað hefur
verið, að heita má, en heyskapur
hefur gengið erfiðlega norðan-
lands vegna óþurrka og kulda.
☆
Forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, og forsetafrúin,
úóra Þórhallsdóttir, eru nú á
ferðalagi á Norðurlandi. Þau
hófu ferð sína á sunnudaginn
var með opinberri heimsókn á
Akureyrí, fóru síðan um Eyja-
fjarðarsýslu og heimsóttu Ólafs-
fjörð og Siglufjörð, en frá Siglu-
firði fóru þau til Sauðárkróks,
voru í gær á Hólum í Hjaltadal
°S í dag fara þau um Húnavatns-
sýslu. Hvarvetna fagnaði þeim
fjöldi manns.
☆
Vöruskiptajöfnuðurinn v a r ð
óhagstæður um 43,6 miljónir
króna í maímánuði s.l. Út voru
fluttar vörur fyrir samtals 67,2
núljónir króna en inn fyrir 110,8
nnljónir króna. Fyrstu fimm
uiánuði ársins hefur vöruskipta-
jöfnuðurinn við útlönd orðið ó-
hagstæður um 63,7 miljónir
króna. Út hafa verið fluttar vör-
ur fyrir 335,1 miljón króna en
Snn fyrir 398,8 miljónir króna.
☆
Fjöldi skipa er kominn norður
fyrir land til síldveiða en síldar
hefur ekki orðið vart þar enn,
®nda hefur veður verið óhag-
stætt að undanförnu, norðan-
hræla og kuldi. — Rannsóknar-
skipin þrjú, sem voru við síldar-
ieit og sjávarrannsóknir á svæð-
iuu milli Noregs, Jan Mayen, ís- .
lands og Færeyja, hittust í Fær-
eyjum laugardaginn 26. júní, og
háru forstöðumenn rannsókn-
anna saman niðurstöður sínar.
, I af vestur- og norðurlandi er
óvenjulega mikill hlýsær, áber-
andi hitaskiptalag hefur ekki
myndast og spáir það góðu um
ótuskilyrði. En yfirleitt virðist
astand sjávarsins á því svæði,
Sem rannsakað hefur verið, líkt
°g var á sama tíma árs 1953 og
195l. Síld fannst djúpt í hafi út
af austur- og suðausturlandi, en
síldarlaust virtist 75 mílur í
austur frá Langanesi.
☆
Atvinnumálaráðherra hefur að
tillögu stjórnar Síldarverksmiðja
rikisins heimilað Síldarverk-
smiðjum ríkisins að kaupa
ræðslusíldina í sumar á föstu
verði sextíu krónur málið, en
Pað er sama verð og í fyrra.
☆
Vart hefur orðið lungna-
? emmda í kind frá Lundum
Stafholtstungum, og eru
emmdir þessar með sama móti
þær, sem koma fram við
Urramæði. Kind þessari var
s rax slátrað og lungun send til
annsóknar, og hefur sauðfjár-
JU ^ómanefnd fyrirskipað ein-
nSrUn á öllu fé á Lundum og
—
næsta bæ, Miðgarði. í ráði er
að fella allt fé á þessum bæjum
í sumar, enda er mikið í húfi að
sjúkdómurinn breiðist ekki út að
nýju. Þurramæði er oft svo hæg-
fara og lítt áberandi í byrjun,
að liðið geta 6 til 9 ár frá því að
smitun varð og þar til veikin er
orðin sýnilega mögnuð í fénu.
☆
Mikill fjöldi manna fór úr
Reykjavík á miðvikudaginn suð-
ur á almyrkvasvæðið á suður-
ströndinni eða til Vestmanna-
eyja til þess að sjá almyrkva á
sólu. Veður var hið fegursta og
sólmyrkvinn sást því við beztu
skilyrði, og mælingar á honum
hér á landi hafa tekizt ágætlega.
Amerískir og íslenzkir vísinda-
menn höfðu sett upp athugunar-
stöð í Austur-Landeyjum. Þar
stóð almyrkvinn 40 sekúndur.
☆
Sambandsráð Ungmennafé-
lags Islands hélt aðalfund sinn
um s.l. helgi og var þar sam-
þykkt að halda næsta lan%smót
ungmennafélaganna á Akureyri
4. og 5. júlí 1955 og Ungmenna-
sambandi Eyjafjarðar ' falinn
undirbúningur. Mót norrænna
ungmennafélaga hófst að Laug-
arvatni á fimmtudaginn var og
í dag er skemmtun þeirra ung-
mennafélaganna í Þrastaskógi.
☆
Þann 16. janúar s.l. skipaði
Ingólfur Jónsson heilbrigðis-
málaráðherra 5 manna nefnd til
þess að hafa með höndum undir-
búning að stofnun hælis fyrir
drykkjusjúka menn. Nefndin
skilaði tillögum 5. apríl s.l. og
taldi hentugast með hliðsjón af
öllum skilyrðum, að velja hæl-
inu stað í Gunnarsholti á Rang-
árvöllum. Nú hefur ráðherrann
tekið á leigu hjá Sandgræðslu
ríkisins tvö íbúðarhús í Gunn-
arsholti til eins árs í tilrauna-
skyni. Er um það samið að Sand-
græðslan láti vistmenn hafa
vinnu, en þarna eru ákjósanleg
skilyrði til þess að vistmenn geti
stundað margs konar störf. Sæ-
mundur Jónsson frá Austvaðs-
holti á Landi hefur verið ráðinn
forstöðumaður heimilisins, sem
tók til starfa nú um mánaða-
mótin.
☆
Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga var hald
inn í vikunni sem leið að Bifröst
í Borgarfirði, og sóttu hann full-
trúar frá 57 kaupfélögum.
Rekstur sambandsins varð um-
fangsmeiri á s.l. ári en nokkru
sinni fyrr. Heildarveltan varð
500 miljónir króna, þar af 184,5
miljónir hjá útflutningsdeild og
hafði sú deild aukið veltu sína
um 43 miljónir. Hjá innflutnings
deild varð veltan 179 miljónir,
og nam aukningin þar 11 miljón-
um króna. Aðrar helztu deildir
sambandsins eru véladeild, sem
hafði 36 miljón króna veltu,
iðnaðardeild með 29 miljónir og
skipadeild með 29 miljónir.
Þrátt fyrir miklar framkvæmdir
hefur enn sem fyrr verið fylgt
þeirri reglu að ráðast ekki í
meiri fjárfestingu en nemur
eigin fé og hægt er að fá sérstök
lán til. Haldið hefur verið áfram
að auka skipastól sambandsins
og bættist Dísarfell við á árinu,
og á þessu ári kom olíuskipið
Litlafell og Helgafell hljóp af
stokkunum, en það verður
þriðja stærsta kaupskip íslend-
inga. Vilhjálmur Þór forstjóri
sambandsins skýrði frá því að
sambandið hefði gert fjórar til-
raunir til þess að fá leyfi fyrir
Framhald á hls. 4
Lýkur prófi í
hjúkrunarfræði
Miss Dorothy E. Bjömson
Þann 17. maí síðastliðinn lauk
Miss Dorothy E. Björnson fulln-
aðarprófi í hjúkrunarfræði með
ágætiseinkunn við Winnipeg
General Hospital.
Miss Björnson er fædd í bæn-
um Swan River 6. febrúar 1932.
Hún er dóttir sæmdarhjónanna
Jóhanns og frú Helgu S. Björn-
son, sem eiga héima í Swan
River bygðinni. .
Miss Björnson hefir nú tekizt
á hendur stöðu hjá Manitoba-
stjórninni sem Health Nurse í
Swan River héraði.
Fjörufíu óra
sf-jórnmólaferill
Hinn 25. júní síðastliðinn voru
liðin fjörutíu ár frá þeim tíma,
er núverandi landbúnaðarráð-
herra sambandsstjórnarinnar,
Rt. Hon James G. Gardiner, hóf
hinn gagnmerka stjórnmálaferil
sinn í Saskatchewan; hann var
ungur kosinn á fylkisþing en
hafði áður gefið sig við kenslu-
störfum; hann varð forsætisráð-
herra í Saskatchewan, er Hon.
Charles H. Dunning lét af
stjórnarforustu, en 1935 tókst
hann á hendur forustu landbún-
aðarráðuneytisins í Ottawa og
hefir gegnt því embætti jafnan
síðan við mikinn og vaxandi
orðstír.
Mr. Gardiner er fæddur að
Farquhar, Ont., 1883 og fluttist
ungur til Vesturlandsins, og hef-
ir árum saman rekið stórbú í
Melville-héraðinu í Saskat-
chewan; hann er málafylgju-
maður mikill, mælskur vel og
rökfastur í ræðu.
Til einsdæma má það teljast í
stjórnmálasögu hinnar cana-
disku þjóðar, að Mr. Gardiner
hefir aldrei tapað kosningu á
sínum langa og sérstæða stjórn-
málaferli.
Sýning íslenzkra
fræða opnuð í
Þjóðminjasafnmu
Forráðamenn Háskóla ís-
lands huðu blaðamönnum í
gær að skoða merka sýningu
á hókum, sem opnuð verður
í salarkynnum Þjóðminja-
safnsins í dag. Er hér um að
ræða sýningu á hókum, er
fjalla um íslenzk fræði og
út eru gefnar á árunum
1911—1954.
Dr. Þorkell Jóhannesson rektor
háskólans lýsti sýningunni í gær
og sagði frá tilgangi hennar. Er
sýningin haldin í tilefni af 10
ára afmæli hins íslenzka lýð-
veldis.
Háskólarektor gat þess, að út-
gáfa bóka um þjóðleg fræði
hefði aukizt mikið um 1930 og
væri enn mikil gróska í útgáfu
þeirra bókmennta. Hefði þetta
orðið þannig með auknu sjálf-
stæði þjóðarinnar, tilkomu há-
skólans og auknum áhuga al-
mennings á þjóðlegum fræðum.
Sýning þessi er hin merkasta
og á háskólinn þakkir skyldar
fyrir að koma henni upp. Hún
getur orðið öllum almenningi til
mikils gagns og fróðleiks. Þarna
er hægt að fá heildarmynd um
þann bókakost, sem til er um
þessi efni og gefið hefir verið út
á áðurnefndu tímabili. Þess ber
að geta, að þarna eru eingöngu
bækur, sem ritaðar eru af ís-
lenzkum mönnum. En útlending-
ar hafa einnig lagt nokkurn
skerf til þessara fræða.
Meðal þeirra bóka, er þarna
er að sjá, eru allar hinar vönd-
uðu ljósprentanir af fornritun-
um í útgáfu Munksgaard og
gefnar eru út af íslenzkum
fræðimönnum.
Allar útgáfur Islendingasagna
prentaðar á þessu tímabili og er
það safn ekki lítið að vöxtum.
Er það ljós vottur hins mikla á-
huga almennings fyrir fornritun-
um, að útgefendur skuli hafa
ráðizt í allar þessar útgáfur á
jafn stuttum tíma. Minnir það
menn aftur á þá staðreynd, að
heimkoma handritanna er nauð-
synjamál þjóðar, sem á þessar
sögur ein, elskar þær og virðir
og les mest allra bóka enn þann
dag í dag. Þessa er hollt að minn-
ast á afmæli lýðveldisins. Menn-
ingararfurinn, sem geymdist í
þessum skinnblöðum, varð
drýgsta vegarnestið í sigurgöngu
sjálfstæðisbaráttunnar. Fátækt-
in var mikil á öllum öðrum
sviðum.
Kóreumenn verða
aldrei þrælar
Á fjögra ára afmæli Kóreu-
stríðsins flutti Syngman Rhee
lýðveldisforseti ræðu í höfuð-
borginni Seoul að viðstöddum
geisilegum mannfjölda, þar sem
hann skoraði á hinar vestrænu
þjóðir, að láta ekkert það ógert,
er hnekkja mætti heimsdrotn-
unarstefnu kommúnista og
komst þar að auki meðal annars
svo að orði:
„Suður-Kóreumenn eru ávalt
við því búnir að verja mannrétt-
indi sín með oddi og egg og
þeir ætla ekki að bíða eftir því,
að verða sauðarlegir þrælar hins
miskunnaralausa Moskvuvalds;
þeir vilja heldur alt í sölur
leggja en verða slíkri stiga-
mensku að bráð“.
Merkur maður
lótinn
í fyrri viku lézt Senator
Buchanan 78 ára að aldri, einn
af kunnustu blaðamönnum hinn-
ar canadisku þjóðar; hann stofn-
aði stórblaðið The Letbridge
Herald og hafði með höndum
ritstjórn þess um langt skeið
áður en hann hlaut sæti í Senat-
inu; hinn látni Senator átti
frumkvæði að stofnun frétta-
sambandsins canadiska, The
Canadian Press og var um hríð
forseti þess; hann var fram-
sóknarmaður í þess orðs sönn-
ustu merkingu, er jafnan bar hag
samferðamanna sinna fyrir
brjósti og vildi í öllu veg þjóðar
sinnar og þá ekki sízt Vestur-
landsins.
McCarthy og
Stevens
Við nýlega afstaðna skoðana-
könnun í Bandaríkjunum vegna
deilunnar milli Senator Mc-
Carthy’s og Stevens hermála-
ráðherra og Senats-rannsóknar-
innar í málinu, hefir McCarthy
beðið lægra hlut; tuttugu og átta
af hundraði hölluðust á sveif
Stevens en tuttugu og fjórir
veittu McCarthy að málum;
tæpur helmingur kvaðst enn
eigi hafa tekið ákveðna afstöðu
til málsins.
Lýkur B.A.-prófi
Sheila Gwendolyn Breckman
Þessi unga og velgefna stúlka
lauk í vor Batchelor of Arts
prófi við Western University,
London, Ont. Miss Breckman
hlaut einnig námsverðlaun frá
háskólanum í Oslo og stundaði
þar um hríð nám í landafræði,
söngu og norskri tungu; í píla-
grímsför sinni til Norðurlanda,
heimsótti Miss Brekman jafn-
framt Danmörku og Svíþjóð;
hún er dóttir þeirra Mr. og Mrs.
Halldór K. Breckman, en Mrs.
Breckman er af skozkum ætt-
um; Mr. Breckman hefir með
höndum forstjórastöðu hjá
Beaver Lumber Company að
London.
Miss Breckman er frábærum
námshæfileikum gædd og líkleg
til mikils frama.
Iðnaðarbankinn
stofnar útibú ó
Kcflavíkurflugvelli
Einnig ætluð stofnun útxbús á
Akureyri
Aðalfundur Iðnaðarbankans
var haldinn 12. júní í Tjarn-
arkaffi. Mættir voru full-
trúar með rúmlega 11 þús.
atkvæði af 13 þús. atkvæð-
um samtals. — Formaður
bankaráðs. Páll S. Pálsson,
stjórnaði fundinum, en
fundarritarar voru Stefán
Jónsson og Pétur Sæmund-
sen. Flutti formaður banka-
ráðs skýrslu um starfsemi
bankans á liðnu ári. Bank^i-
stjórinn Helgi Hermann
Eiríksson, las upp og skýrði
ársreikninga bankans, er
voru samþykktir athuga-
semdalaust.
Samþykkt var tillaga frá Pétri
Sigurjónssyni þess efnis, að
fundurinn þakkaði bankaráði
fyrir að hafa fest kaup á hent-
ugri byggingalóð fyrir framtíð-
arhúsnæði handa bankanum. —
Faldi fundurinn ráðinu að hefj-
ast handa svo fljótt sem unnt
væri um byggingarframkvæmd-
ir á staðnum.
15 milljón króna lán
Ingólfur Jónsson, iðnaðar- og
bankamálaráðherra, var mættur
á fundinum. Ræddi hann nokkuð
um útvegun 15 milljón króna
ríkisláns til bankans. Ráðherr-
ann kvað ríkisstjórnina myndi
gera sitt bezta í málinu. Sam-
þykkt var tillaga frá bankaráði
þess efnis, að fundurinn beinir
þeirri áskorun, til allra þeirra,
sem vinna við iðnaðarstörf, að
vinna að aukinni sparifjársöfn-
un og auknum innlánsviðskipt-
um við bankann.
Útibú á Keflavíkurflugvelli
og Akureyri
Á síðastliðnu hausti var hafizt
handa um byggingu útibúss fyrir
bankann á Keflavíkurflugvelli.
Húsið er nú að verða tilbúið og
ætlast er til, að útibúið taki til
starfa 1. júlí n.k. Einnig er fyrir-
hugað að koma upp útibúi bank-
ans á Akureyri. Eiga þrjár mill-
jónir af væntanlegu ríkisláni að
ganga til þess útibús. Þar sem
lánið er ekki fengið, hefir stofn-
un útibús þar enn ekki orðið að
veruleika.
—TÍMINN, 17. júní
Ný bíla- og
benzínstöð
Á laugardginn kemur, hinn 17.
júlí, tekur til starfa hér í vestur-
bænum ný bíla- og benzínstöð á
vegamótum Sargent og Arling-
ton. Fyrirtæki þetta gengur
undir nafninu Walsh Graham
Motors Limited og er stofnsett
fyrir atbeina British American
olíufélagsins og verzlar með all-
ar hinar þjóðkunnu framleiðslu-
tegundir þess; það verður vest-
urbænum til álitlegra hagsmuna,
að þar skuli nú verða stofnað
stórfyrirtæki slíkrar tegundar á
hinum ákjósanlegasta stað.
Þetta nýja fyrirtæki væntir
þess að sem flestir íslendingar
heimsæki það á laugardaginn og
kynni sér með eigin augum öll
þau nýjustu tæki og þá full-
komnustu afgreiðslu, en það
hefir á boðstólum 24. klukku-
stunda afgreiðslu.
Ed. Beattie hefir framkvæmd-
arstjórn með höndum.
TÍMINN, 16. júní
SIGURÐUR EINARSSON:
VÆNGJABLAK
Á vesturhimni fölur dagur dokar,
í djúpum hrolli hlöð og greinar skjálfa.
Sumarið Ijúfa léttum skrefum þokar,
svo leggst hin myrka nótt um veröld hálfa.
í aftanblœnum andar svalur tregi
frá öllu því, sem nú má kveðja og fara.
Svo leggur frost á lítið spor hjá vegi
og lindin bryddist faldi kristalsskara.
En uppi í kyrrum hæðum húms og rökkva
ég heyri þyt af snöggu vængjablaki,
blaktandi líf í hvolfsins djúpa dökkva.
— Svo deyr hið hinzta Ijós að fjallabaki.
Af vanga jarðar máir myrkrið litinn
og móðan svarta verður dýpri og stærri.
En djúpt i hugans húmi nem ég þytinn
af hljóðum vœngjaslögum órafjarri.
Þar flögrar yfir hugans myrka haga
það hjartans mál, sem orðlaust dó á vörum,
þar svífa á brottu söngvar minna daga,
— og sumar mitt er einnig brátt á förum.
—SUÐURLAND