Lögberg - 15.07.1954, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1954
3
Heimsókn á nautabú, þar sem kúrekarnir
fara fótgangandi
Bóndinn þar seldi í fyrra veiur
gamlan iarf fyrir 26,000 dollara
Nokkur ruglingur hefir orðið
a röð greinanna og eru lesendur
beðnir velvirðingar á því.
AUSTIN TEXAS, 19. apríl. —
f síðustu grein minni gat ég
þess, að ég mundi skoða nautabú
sem væri hér skammt frá borg-
inni, og þeirri heimsókn er nú
lokið.
Ég hef víst líka getið þess, að
Austin sé ekki í hinu raunveru-
lega „beljulandi“ fylkisins, en
þó er það svo, að einmitt hér
fyrir utan er það nautabú, sem
flestir bændur heimsækja, og
þeir, sem koma frá öðrum lönd-
um til að kynna sér nautgripa-
rækt hér í landi, eru sendir hing-
að að skoða þenna „ranch“, sem
ber nafn eiganda síns, er heitir
Frank Scofield.
Þegar Islenzkir bændur koma
saman, til að ræða landsins gagn
og nauðsynjar — og fyrst og
framst bændastéttarinnar — er
mikið um það talað, að það er
þurfi að koma upp íslenzku
holdakyni, það þurfi að fá meira
kjöt af nautpeningi, og það er
hverju orði sannara. Með fjölg-
andi munnum þarf meira kjöt og
fisk, og þar sem Islendingar eru
sem þjóð einhverjir mestu barna
karlar heimsins, þá fer ekki hjá
því að þeir verði að geta eitt-
hvað til að fá meira kjöt af þeim
gripum, sem þeir rækta. Meðal
annars af þessari ástæðu fannst
mér fróðlegt að fá að líta inn hjá
Scofield bónda og fræðast um
búskap hans.
A leiðinni til býlis hans var
mér sagt, að ég skyldi ekki gera
ráð fyrir að hitta hjá honum kú-
reka, eins og kvikmyndirnar
sýna þá, því að þeir séa óviða til
— nema í kvikmyndum. Scofield
bóndi hefði ekki hesta til að
stugga við gripum sínum, hann
og menn hans færu fótgangandi
meðal gripanna eða til að reka
þá, þegar þess þætti þörf. Og á-
'stæðan væri sú, að Scofield vildi
að gripir sínir yrðu ekki fyi'ir
ueinum æsandi áhrifum, því að
það hefði áhrif á hold þeirra og
afrakstur búsins um leið.
Mikið á ferð
En þótt Scofield vildi ekki hafa
hesta á búi sínu, fer hann samt
víða, og hann hefur einu sinni
komið til Islands — óvart. Hann
fylgist nefnilega vel með öllu,
som nautgriparækt snertir, og ef
hann fréttir einhvers staðar af
' tarfi, sem hann telur, að muni
vera betri en þeir, sem hann á,
þá fer hann til eigandans—hvort
sem hann á heima austan hafs
eða vestan, í Norður- eða Suður
Ameríku — og kynnir sér málið.
Ff gripurinn er falur, þá kaupir
Scofield, en annars lætur hann
sér nægja að kynnast því, hvern-
eigandinn hagar nautgripa-
raskt sinni, og reynir að læra á
þann hátt.
Þegar hann kom til Islands,
var hann í rauninni á ferð til
Skotlands, þar sem hann ætlaði
að fara á nautgripauppboð. Flug-
vélin varð að leita til Islands, af
því að veður var svo slæmt á
Eretlandseyjum, en þetta var í
fyrra vetur, þegar flóðin geig-
vænlegu urðu í Hollandi. Hafði
Scofield níu tíma viðstöðu í
Keflavík, og sá þar lítið annað
en snjó.
En þegar hann kom til Skot-
^ands, keypti hann tarf, sem var
eftirsóknarverðasti gripurinn á
nPpboðinu, og greiddi fyrir hann
12,000 dollara. Síðan lét hann
lytja tudda flugleiðis vestur um
af> og nú er hann kominn í
Sagnið og er vátryggður fyrir
30>000 dollara.
70 kálfar fyrir 210,000 dollara
Scofield ferðast um Bandarík-
!n þver og endilöng á gripasýn-
lngar með fallegustu gripi sína,
°S hefur fengið svo mikið af
Verðlaunum fyrir þá, að heimili
hans nægir vart lengur til að
geyma þau öll. Bikara geymir
hann að vísu í stofunum hjá sér,
en alls konar skrautborðar, sem
honum hafa hlotnazt líka, eru
festir upp í opnu fjósi, sem
stendur skammt frá íbúðarhús-
inu. Þar er einn veggur alþak-
inn slíkum viðurkenningum.
Á hverju hausti selur Scofield
þá gripa sinna, sem hann ætlar
að losa sig við, á uppboði, og
hann sagði við mig, að yfirleitt
héldi hann því bezta eftir — eða
þeim gripum, sem hann gerði
ráð fyrir, að mundu reynast
bezt. 1 fyrrahaust seldi hann til
dæmis 70 veturgamla tarfa og
kvígur, og fyrir þetta fékk hann
samtals 210,000 dollara. Bolakálf
urinn, sem mest fékkst fyrir, var
sleginn kaupanda fyrir 26,000
dollara eða um 420,000 ísl. kr.
með bankagengi. Kvígurnar fara
fyrir lægra verð, en sú, sem
mest var boðið í, var seld fyrir
14,000 dollara eða um 230,000
krónur. Af því má sjá, að kyn-
bótastarfsemi Scofields gefur
nokkuð í aðra hönd, enda vega
tarfar hans flestir uppundir eina
smálest — sá skozki vegur yfir
smálest — og kýrnar um 750 kg.
Afþakkaði milljón
Ég spurði Scofield, hversu
margar gripi hann ætti um þess-
ar mundir, og hann sagði, að
þeir væru alls 450. Og þegar ég
spurði hann, sve mikils virði
hann teldi þá vera, svaraði hann,
að sér hefðu á síðasta ári verið
boðin meira en milljón dollara
fyrir stofninn, en hann hefði af-
þakkað það boð.
„Ég á þrjá syni, og tveir þeirra
ætla að halda þessu áfram, þegar
ég fell frá (Scofield- er bráðum
70 ára, og hefur verið kúasmali,
eins og hann kemst að orði, í 50
ár), svo að það kemur ekki til
mála að selja þetta. Það hefur
kostað of mikið erfiði að komast
svona langt.“
En vilji menn kaupa nokkra
gripi af Scofield, þá er hann jafn
an til viðtals um slíka hluti, og
kynbótanaut frá honum eru nú
á fjölmörgum búgörðum í flest-
um löndum Suður-Ameríku.
Hann ætlar til dæmis í næstu
viku til fjögurra landa þar syðra
til að sjá hvernig mönnum
ganga kynbæturnar með grip-
um, sem hann hefur selt þeim.
Honum finnst ekki nóg að selja
gripina, hann vill líka sjá árang-
urinn af starfi sínu í fjarlægum
löndum, því að hann telur sig
geta lært sitt af hverju af því
að sjá „afkomendur sína“ í nýju
umhverfi.
Hann kann ættartölurnar
Hér í landi þykir fátt finna en
að geta rakið ættir sínar til „píla
grímafeðranna“ svonefndu er
námu land hjá Plymouth í Mas-
sachusettsfylki á 17. öld. Er mér
þó sagt, að í rauninni hafi það
fólk verið mesti trantaralýður
sem hafði verið gerður landræk-
ur í Englandi og síðan í Hollandi.
En hvað um það, fjarlægðin ger-
ir fjöllin blá og mennina mikla,
hér sem annars staðar. Og ætt-
arskrár eru mikils verði, ekki að
eins að því er snertir mannfólk-
ið, heldur og aðrar skepnur.
Hundaverzlun er til dæmis arð-
vænleg atvinnugrein hér, en
betra er að hafa ættarskrá „vör-
unnar“ í lagi, því að þá hækkar
verðið. Um veðhlaupahesta er
þetta vitanlega nauðsynlegt, og
sama er um nautgripi að segja.
Og Scofield kann ættartölur
gripa sinna utan að, og fannst
mér það í senn bæði skrítið og
skemmtilegt, þegar hann benti
amerískum förunaut mínum á
kú eina, sem var að bíta rétt hjá
okkur og þuldi svo ættartölu
hennar—um aldir að mér fannst
Kýrnar eiga peninga á sparisjóði
Scofield heldur nákvæmar
bækur um allan sinn búskap,
eins og vera ber, því að hann
vinnur að þessu hugðarefni sínu
og atvinnuvegi á vísindalegan
hátt. En ég átti bágt með að trúa
því, þegar mér var sagt á leið-
inni til býlis hans, að kýrnar
hans ættu hver sína sparisjóðs-
bókina. Ég spurði hann samt um
það með hálfum huga, og það
stóð heima. Þegar hann selur
kálf undan einhverri kúnni, leg-
gur hann andvirðið inn á bókina
hennar, og svo notar hann af því
síðar, þegar hann þarf að borga
reksturskostnað, reiknar hlut
hverrar kýr og tekur svo út úr
bókum þeirra í samræmi við það
Kyrrð og næði mikils virði
Það er sagt í fyrirsögn þessar-
ar greinar, að Scofield noti ekki
hesta við rekstur gripa sinna. Ég
spurði hann, hvort það væri ekki
tafsamt að standa í rekstri, þeg-
ar farið væri fótgangandi, en
hann svaraði, að það væri ekki
aðalatriði. Við mennirnir þurf-
um kyrrð og næði til að afkasta
sem mestu, sagði hann, og sama
máli gegnir um skepnurnar.
Þær nái ekki réttum holdum, ef
það er verið að þeysa í kringum
þær. Tilgangurinn er að koma
upp enn betra holdakyni en fyr-
ir er, og ef það fæst m. a. með
því að fara vel að skepnunum,
þá er tilganginum náð að
nokkru leyti.
Þegar Scofield og menn hans
ganga um hagana, hreyfir engin
skepnan sig .Nautin eru meira
að segja svo róleg, að þau færa
sig ekki úr stað, nema ýtt sé við
þeim. Þau verða ekki mannýg
með slíkri meðferð, og það er
ekki hætta á því, að þau hlaupi
af sér holdin.
Nú verður ekki farið lengra út
í þessa sálma, en mér datt í hug,
að menn á Islandi kynnu að
þykja nokkur fróðleikur í því að
frétta um það, hvernig unnið er
að þessum „holdlegu“ ræktar-
málum hér, úr því að áhugi er
fyrir að koma upp holdakyni
heima. Þó mundi það sennilega
þykja ganga vitfirring næst að
kaupa naut fyrir 200,000 krónur
— eins og Scofield gerði í Scot-
landi — þar sem markaður er af
allt öðru tagi á íslandi en annars
staðar. En á hinn bóginn er það
alveg víst, að meiri áherzla verð-
ur lögð á þetta framvegis meðal
íslenzkra bænda, og þess vegna
er gaman að vita, hversu langt
er hægt að komast í þessu efni
annars staðar. H. P.
— VISIR, 2. júní
Púli ísólfssyni gef-
inn sumarbústaður
Stokkseyringamót á sunnu-
daginn var
Stokkseyringar í Reykjavík
og heima á Stokkseyri hafa
gefið Páli ísólfsyni, sem er
eins og kunnugt er Stokks-
eyringur, vandaðan sumar-
bústað á Stokkseyri. Var
sumarbústaðurinn afhentur
tónskáldinu á sunnudaginn
var, en þá var haldið Stokks-
eyringmaót á Stokkseyri.
Sumarbústaðurinn stendur að-
eins utan við þorpið rétt ofan
við veginn, sem farinn er austur
úr þorpinu. Hann er sérkenni-
legur að útliti, með mjög hvassri
burst en lágum veggjum. Á
neðri hæð er stofa og eldhús, en
tvö herbergi á lofti.
Stokkseyringamótið hófst með
guðsþjónustu í kirkjunni, en síð-
an var farin skrúðganga þaðan
austur að sumarbústað Páls Páls
og hann afhentur. Var svo farið
á bifreiðum austur að Knarraós-
vita og þar voru ræðuhöld og
söngur. Um kvöldið var svo
dansað heima á Stokkseyri. J. K.
—Alþbl., 22. júní
— Og nú, eftir að ég er búinn
að bjóða þér á dýrar leiksýn-
ingar, kaffihús og skemmtistaði
á hverju kvöldi í heila viku, hef
ég komizt að þeirri sárgrætilegu
niðurstöðu, að við eigum ekki
skap saman!
☆
Faðirinn: — Rektor skrifar
mér og segir, að það sé ómögu-
legt að kenna þér nokkurn
skapaðan hlut.
Sonurinn: — Já. Það er eins og
ég hef alltaf sagt. Þetta er ó-
mögulegur skóli!
☆
— Hvers vegna getur þú ekki
komið með mér á knattspyrnu-
kappleikinn? — Segðu þeim,
sem þú vinnur hjá, að það eigi
að jarða ömmu þína.
— Ekki gengur það. Ég vinn
hjá afa.
☆
Læknirinn: — Ef þér viljið
grennast, þá verðið þér að borða
gulrætur, þurrt kex, salat og
marmelaði.
Frúin: — Þakka yður innilega
fyrir. En á ég að borða þetta á
undan eða eftir máltíðinni?
Business and Professionai Cards
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg
PHONE 92-6441
Thorvaldson, Eggertson,
Bastin & Stringer
Barristers and. Solicitors
»9 BANK or NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PRONB 92-SZ91
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, ManagiQg Dlrector
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Bea.: 72-3917
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
132 Simcoe St. Winnipeg, Man.
SEWING^MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Portage Ave.
Winnipeg. Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfrœCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-3851
Heimaslmi 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
Hofið
Höfn
í hugo
Heimili sólsetursbarnanna,
Icelandic Old Folks’ Home Soc.,
3498 Osler St.. Vancouver, B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescriplion Specialist
Cor. Arlington and Sargent
Phone 3-5550
Films, Picnic Supplies and
Beach Novelties.
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
Muir's Drug Store Ltd.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422 Ellice & Home
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur ltkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaC 1894 SlMI 74-7474
Minnisf
BETEL
í erfðaskróm yðar.
Oftast fjölmennara í íslands-deildinni
en þeim næstu
Iðnsýningin í Brussel stóð
í 2 vikur
Fyrir forgöngu Félags ísl. iðn-
rekenda tóku íslenzk iðnaðar-
fyrirtæki í fyrsta sinn þátt í al-
þjóða iðnsýningu nú í vor, en
það var Brusselsýningin, sem
var opnuð 24. apríl og stóð til 9.
maí.
Sýningardeild Islands var á
36 m2 gólffleti og 12 iðnaðarfyr-
irtæki sýndu framleiðslu sína á
sýningunni. Auk þessara iðnað-
arfyrirtækja tóku þátt í sýning-
unni Ferðaskrifstofa ríkisins Or-
lof, Flugfélag Islands og kynntu
Island sem ferðamannaland og
möguleika á því að komast til
landsins. — Félag ísl. iðnrek-
enda lét gera bækling með yfir-
litsgrein um íslenzkan iðnað á
frönsku og ensku með nokkrum
myndum úr íslenzku atvinnulífi.
Einnig lágu frammi ýmsar
tegundir af bæklingum, sem
Ferðaskrifstofa ríkisins h e f u r
gefið út með upplýsingum um
landið og þjóðina og öðrum upp-
lýsingum fyrir ferðamenn. Auk
þess hafði starfsfólk sýningar-
innar meðferðis íslenzkar
myndabækur sem fólk gat feng-
ið að skoða. Óhætt er að fullyrða
að íslenzka sýningardeildin var
íslandi til sóma, og vakti mikla
og verðskuldaða athygli sýning-
argesta, sem var um 1 millj.
manna. Var oftast fjölmennara í
íslandsdeildinni en í deildum
þeim er næst voru, en mesta at-
hygli vöktu vikurplöturnar og
holsteinar úr vikri. Islenzka sýn-
ingardeildin fékk mjög vinsam-
leg blaðaummæli. Auk þess hafa
nokkur hollenzk blöð birt grein-
ar um sýninguna eftir hollenzk-
an íslandsvin, F. van Hoorn, sem
gerði sér ferð til Brussel til þess
að skoða hana. í sýningarnefnd
Félags ísl. i ð n r e k e n d a voru
Gunnar Friðriksson form., Axel
Kristjánsson og Sveinn Valfells.
Fékk nefndin Skarphéðinn Jó-
hannsson arkitekt til þess að
koma sýningunni upp hér heima
en honum til áðstoðar var Hörð-
ur Agústsson listmálari. Ræðis-
mannsskrifstofa íslands í Brus-
sel veittii góðfúslega ýmsa fyrir-
greiðslu á meðan sýningin stóð
yfir.
Flest fyrirtækjanna, sem þátt
tóku í sýningunni, hafa fengið
fyrirspumir erlendis frá vegna
þátttöku sinnar. Hér er um að
ræða athyglivert brautryðjenda-
starf, sem margt má af læra. Iðn
rekendum og stjórnarvöldum
ber sameiginlega að vinna að því
að gera sem flestar íslenzkar iðn
aðarvörur útflutningshæfar og
skapa þjóðinni með því aukna
afkomumöguleika.
— VISIR, 5. júní
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
■ Chartered Accountant
505 Conlederatlon Llfe Bulldtng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Krlatjanaaon
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambera
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3501
G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Dlstributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Slml 92-6227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin. Maniloba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Electric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890