Lögberg - 12.08.1954, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 12. ÁGÚST, 1954
Úr borg og bygð
Ferðaáœtlun til Hnausa
14. ágúst
Ferðir með járnbrautum qg
Bus milli Winnipeg og Hnausa
14. ágúst, eru sem hér segir:
Með C.P.R. frá Winnipeg kl.
8.30 að morgni (Stanard Time)
og kemur til Hnausa eftir rúm-
lega tvo og hálfan tíma. — Fer
til baka frá Hnausum til Winni-
peg kl. 4.47 eftir hádegi.
Frá Winnipeg Bus Depot fer
Bus til Hnausa kl. 10 að morgni
(Stanard Time). — Kemur til
Hnausa kl. 12.40 Standard Time.
Frá Hnausum til Winnipeg kl.
5.40 að kvöldi (Standard Time).
Kemur til Winnipeg kl. 8.25
(Standard Time).
☆
Dr. Helgi Johnson prófessar í
jarðfræði við Ruthger háskólann
í New Jersey, kom hingað síðast-
liðið sunnudagskvöld í stutta
heimsókn til- föður síns Gísla
Johnson ritstjóra Tímarits Þjóð-
ræknisfélagsins, systra sinna og
annara ættmenna og vina; hann
hvarf heimleiðis á þriðjudaginn.
☆
Séra Skúli Sigurgeirsson frá
Walters, Minn., kom hingað tíl
borgar á mánudagskvöldið á-
samt frú sinni eftir að hafa flutt
guðsþjónustur í Vatnabygðum í
Saskatchewan á sunnudaginn. —
Prestshjónin fóru norður til
Mikleyjar á þriðjudaginn og í
för með þeim var frú Ingibjörg
Jónsson og frú Bensa hjúkrunar-
kona systir frú Sigríðar Sigur-
geirsson.
☆
Á laugardaginn 7. ágúst gaf
Dr. Valdimar J. Eylands saman í
hjónaband í Fyrstu lútersku
kirkju þau Florence Charlotte
Clemenson, dóttur Mr. og Mrs.
Björns Clemensonar, bónda að
Silver Bay, Man., og Victor
í'rank Gallimore, af enskum
ættum. Vegleg brúðkaupsveizla
fór fram að astaðinni hjónavígsl-
unni. Heimili ungu hjónanna
verður í Winnipeg.
☆
Mr. og Mrs. MacLittleford frá
Fort William, Ont., dvöldu í
borginni undanfarna viku. Mrs.
Littleford er dóttir þeirra Mr.
og Mrs. Fred Thordarson 996
Dominion Street.
Mrs. Ásgeir Clementson frá
Silver Bay, Man., var stödd í
borginni seinnipart fyrri viku.
☆
Mr. Sölvi Guðnason bygginga-
meistari frá Minneapolis var
íyrir nokkru staddur hér í borg-
inni ásamt frú sinni. Mr. Guðna-
son er ættaður af Isafirði, en
kona hans er af norskum ættum.
☆
Mr. og Mrs. Van Sommerfeld
frá Ottawa hafa undanfarið
dvalið hér í borginni í heimsókn
til þeirra Mr. og Mrs. J. S. Gillies
971 Dominion Street. Mrs. Som-
merfeld (Gladys), er dóttir
Þeirra Mr. og Mrs. Gillies.
☆
Mr. Árni Björnson ljósmynda-
smiður í þjónustu The National
Geographical Magazine, er á
ferðalagi hér um slóðir til að
taka myndir fyrir þetta kunna og
vandaða tímarit; mun hann heim
sækja meðal annars íslenzku
bygðalögin að Gimli, Steep Rock
og Lundar. Mr. Björnson er ís-
lenzkur í'föðurætt, sonur Einars
Björnssonar, sem rak um eitt
skeið bú í grend við Westfold, en
móðir hans er af norskum ætt-
um; aðstoðarmaður Mr. Björn-
son’s við myndatökuna er Mr
Böðvar Johnson, ættaður frá
Langruth.
☆
Mr. Páll R. Johnson leikhús-
stjóri í St. Vital, er nýlega kom-
inn heim ásamt dóttur sinni úr
mánaðarferðalagi austur til New
York og ýmissa annara stór-
borga í Bandaríkjunum. Mr.
Johnson fór til New York til
fundar við systur sína frú Ingi-
björgu Guðmundsdóttur frá
Hafnarfirði, sem á sex systkini
vestan hafs, er hún aldrei áður
hefir augum litið; bróður sinn
Pál hitti hún, er hann heim-
sótti Island fyrir rúmu ári. Frú
Ingibjörg mun dveljast hér um
slóðir fram um miðjan október-
mánuð næstkomandi.
☆
Mr. og Mrs. Theodore Vatns-
dal og William og Laufey Ólafs-
dóttir frá Hensel, N. Dak., voru
viðstödd Islendingadagshátíðina
a Gimli þann 2. þ. m.
☆
Mr. Elías Vatnsdal frá Van-
couver, B.C., er staddur í borg-
inni þessa dagana.
ISLENDINGADAGUR
1894
1954
(Sextíu ára minning)
verður haldinn að Iðavelli
við Hnausa
laugardaginn, 14. ágúst, 1954
SKEMTISKRÁ HEFST
Kl. 2 e.h. C.S.T.
Þjóðsöngvar Blandaður kór
Ávarp forseta Sigurður Wopnfjord
Ávarp Fjallkonunnar Frú Anna Austman
Ávarp Miss Canada Miss Evelyn Williams
Einsöngur................. Frú Guðmunda Elíasdóttir
Ræða — Minni íslands Björn Sigurbjörnsson
Kvæði G. O. Einarsson
Kveðjur Séra Eric H. Sigmar
Minni Canada — Ræða Prófessor J. H. Ellis
Kvæði — Minni Canada Franklin Johnson
Einsöngur Frú Guðmunda Elíasdóttir
Söngur Blandaður kór og Almenningur
Söngstjóri: Jóhannes Pálsson Meðspilari: Lilja Martin
Inngangur í skemligarðinu — Fullorðnir, 50c; Börn 25c
Dans í samkomuhúsi Gaysisbygðar, kl. 9 að kvöldi
Hljómsveit Rivertonbæjar. — Aðgangur 50 cents
Sports Events
Commencing at 10 a.m. C.S.T. —
100 Yard Dash
Hop-Step and Jump
440 and 880 Yard Races
$175.00 in Prizes
Pole Vault
Running High Jump
Relay Races
Children’s races from 5 to 18 years of age, also
races for single and married women
Five prizes in each event
Tug-of-War — married and single men — Prize $10.00
íslenzk glíma undir leiðsögn Art Reykdals
Ladies Softball games
lst Prizt $25.00 — 2nd Prize $15.00
Ágæt smíðatól til sölu gegn
vægu verði að 30 Beachwood
Place, Norwood.
☆
Mr. og Mrs. Önundur Brands
son frá Swan River voru nýlega
hér á ferð ásamt dóttur sinni.
☆
Mr. og Mrs. Lindal Hallgríms-
son frá Vancouver, B.C., voru
nýlega hér á ferð og heimsóttu
auk þess vini og vandamenn í
North Dakota og Argyle.
☆
Mr. Ásgeir Gíslason frá Leslie,
Sask., var staddur á Islendinga-
deginum á Gimli og heimsótti
auk þess vini og venzlafólk hér
í borginni.
☆
Um helgina fyrir Islendinga-
daginn á Gimli, komu hingað til
borgar þeir Mr. Sigurður M.
Askdal, Mr. Einar O. Hallgríms-
son, Mr. Björn Benson og Mr.
Stefán Johnson, allir frá Mine-
ota, Minn., og sóttu Islendinga-
dagshátíðina á Gimli; þetta eru
hinir mestu myndarmenn, sem
ánægjulegt var að kynnast.
☆
Mr. og Mrs. Thorsteinn John'
son frá Oak View, Man., voru
meðal þeirra, er sóttu íslendinga-
daginn á Gimli.
☆
Mr. Elías Elíasson trésmíða-
meistari frá Vancouver, B.C.,
kom til borgarinnar síðastliðinn
föstudag og mun dveljast hér
um slóðir um tveggja mánaða-
tíma.
☆
Mr. Egill Egilsson og frú frá
Brandon, sóttu nýafstaðinn ís-
lendingadag að Gimli.
☆
Mr. Ottó Kristjánsson bygg-
ingameistari frá Geraldton, Ont.,
var staddur nýlega hér um slóð-
ir ásamt frú sinni.
☆
Mr. og Mrs. Jónas Gíslason frá
Elfros, Sask., eru stödd hér í
borginni um þessar mundir.
☆
Mr. Haraldur Ólafsson frá
Mountain, N. Dak., var meðal
þeirra mörgu, er sóttu íslend-
ingadaginn á Gimli.
☆
Dr. Áskell Löve kom heim úr
Norðurálfuför sinni rétt fyrir Is-
lendingadaginn á Gimli, en eins
og Lögberg hafði áður sagt frá
fór hann til Parísar og sat þar
alþjóðaþing grasafræðinga; hann
kom við á íslandi á austur- og
vesturleið, en dvaldi þar aðeins í
átta daga.
☆
Frú Margrét Miller frá Gander,
Newfoundland, var stödd ásamt
dóttur sinni á nýlega afstöðnum
Islendingadegi á Gimli; hún er
dóttir þeirra Mr. og Mrs. B. J.
Lifman í Árborg og dvelur hjá
foreldrum sínum um hríð og
systrum sínum og öðrum ætt-
mennum hér í borg.
☆
— Athugið! —
Fólk er beðið að minnast þess
að sumarfrí er nú afstaðið í
Fyrstu lútersku kirkju, og að
guðsþjónustur fara fram í kirkj-
unni á hverjum sunnudegi, kl.
11 árdegis, á ensku, og kl. 7 að
kvöldi á íslenzku.
Næstkomandi sunnudag, 15.
ágúst, stýrir Victor Jónasson ár-
degisguðsþj ónustunni í fjarveru
sóknarprests; en íslenzka guðs-
þjónustan fer fram með venju-
iegum hætti.
☆
31. júlí voru gefin saman í
Fyrstu lútersku kirkju, þau
Clarence Þorsteinn Swainson,
471 Home st. og Bernice Donna
Lockhart. Brúðguminn er sonur
Mr. og Mrs. Ingi Swainson, 471
Home st. er brúðurin er af írsk-
um ættum. Fjölmenn brúðkaups
veizla fór fram í Airport Hotel
að afstaðinni vígslu. Arthur,
hinn ungi lögfræðingur, bróðir
brúðgumans, var veizlustjóri.
☆
Mr. Gunnar Sæmundsson frá
Árborg var staddur hér í borg á
fimtudaginn í fyrri viku.
Frú Kristjana Hofteig frá
Cottonwood, Minn., starfar um
þessar mundir við Sunrise
Lutheran Cam
Séra Jóhann Fredriksson frá
Glenboro, hefir verið kvaddur af
framkvæmdarnefnd Hins ísl. ev.
lúterska kirkjufélags til að þjóna
vestur í Saskatchewan næst-
komandi þrjá mánuði. Argyle-
prestakall hefir, að beiðni fram-
kvæmdarnefndarinnar, g e f i ð
presti sínum frí frá þessu starfi.
éra Virgil Anderson þjónar
Argyle-prestakalli í fjarveru
sóknarprestsins. Séra Jóhann
heldur til í Wynyard þann tíma,
sem hann dvelur vesturfrá.
☆
—GIFTING —
Laugardaginn þann 31. júlí
voru gefin saman í hjónaband í
lútersku kirkjunni í Baldur
Thora Jacobína, dóttir Mr. og
Mrs. John Davidson að Baldur,
og Bruce Gordon, sonur Mr. og
Mrs. H. P. Ball að 259 Mongat
Blvd., St. James, Man. Brúðurin
var leidd til altaris af föður sín-
um. Aðstoðarmeyjar voru
Margaret, systir brúðarinnar, og
Ólöf Magnússon, frænka hennar.
Aðstoðarmaður brúðgtimans var
John Cochrane. Miss Joyce
Graham söng tvo einsöngva “The
Lord’s Prayer” og “Beacause”.
Mrs. Graham lék undir á píanó.
Organisti safnaðarins, Árni
Sveinson, lék á orgelið. Sóknar-
presturinn gifti. Ættingjar og
vinir sátu veglega veizlu á
heimili Mr. og Mrs. J. Davidson
að giftingunni afstaðini.
Mr. B. G. Ball er starfsmaður
hjá T. EATON’S CO., og heimili
ungu hjónanna verður í Winni-
peg. ☆
Miðvikudaginn, 28. júlí, and-
aðist hér í borg, eftir margra ára
heilsubilun, Böðvar Magnússon,
86 ára að aldri. Hann var fæddur
og alinn upp á íslandi, kom til
þessa lands 26 ára gamall, og
átti heima í Winnipeg það sem
eftir var æfi. Hann var jarð-
sunginn af séra Rúnólfi Marteins
syni fimtudaginn 29. s.m. Hann
var ötull til starfs eins lengi og
kraftarnir entust, og kynnti sig
vel hvar sem hann var. Mr. J. Th.
Beck sá um útförina. Athöfnin
fór fram í útfararstofu Bardals
cg í Brookside grafreit.
☆
Á heimili Mrs. Rósu Jóhanns-
son, 575 Burnell St., var ungur
drengur skírður laugardaginn,
10. júlí, og ber hann nafnið
Orin Robert. Foreldrar hans eru
þau hjónin Dale Robert og
Svava Christensen, og eiga þau
heima í borginni Minneapolis,
Minnesota. Móðir drengsins er
bróðurdóttir Mrs. Jóhannsson. —
Skírnina framkvæmdi séra Rún-
ólfur Marteinsson. Hópur vina
var þar samankominn, sem færði
foreldrunum heillaóskir.
☆
— Hjónavígslur —
17. Júlí voru gefin saman í
Fyrstu lútersku kirkju, þau Mel-
vin Ronald Bárðarson, 413 Vic-
tor street, og Marlene Mae Hur-
rell, 843 Lipton st. Brúðguminn
er sonur Mr. og Mrs. Felix Bárð-
arson, hér í borginni, er brúður-
in af hérlendum ættum. Vegleg
brúðkaupsveizla fór fram í Le-
gion Hall, og mælti Ivan Scholzt
ráðherra, fyrir minni brúðhjón-
anna. ☆
Mr. Henry G. Thorbergson frá
Vancouver, B.C., hefir dvalið hér
í borginni undanfarinn vikutíma
í heimsókn til systur sinnar og
tengdabróður Mr. og Mrs. Fred
Thordarson 996 Dominion Street.
Hann heimsótti systur sína og
tengdabróður, Mr. og Mrs.
Wally Byron í Brandon.
☆
Þann 25. júlí síðastliðinn var
mannmargt á heimili þeirra Mr.
og Mrs. Ásgeir Clementson að
Silver Bay hér í fylkinu, en þá
um daginn áttu húsráðendur
silfurbrúðkaup, en þau hafa
allan sinn búskapartíma átt
heima í þessari vingjarnlegu og
farsælu bygð. Systir silfurbrúð-
arinn, frú Thora Elliston frá
Winnipeg, hlutaðist til um undir-
búning þessarar óvæntu heim-
sóknar, er var hin ánægjulegasta
og virðulegasta um alt. Silfur-
brúðhjónin voru sæmd fallegum
og verðmætum gjöfum, er lengi
munu prýða heimili þeirra.
Silfurbrúðhjónin biðja Lög-
berg að flytja þeim, er að heim-
sókninni stóðu, sem og öðrum
vinum hjartans þakkir fyrir
ástúð og vináttu í þeirra garð.
☆
Athygli skal hér með leidd að
Islendingahátíðinni, sem haldin
verður að Iðavelli við Hnausa á
laugardaginn kemur hinn 14.
þ. m. Svo sem skemtiskráin ber
með sér, hefir verið vandað hið
bezta til alls undirbúnings, og
víst er um það, að mikill fjöldi
fólks hlakkar til að hlusta á hina
góðkunnu óperusöngkonu, frú
Guðmundu Elíasdóttur.
Þá verður og sýnd glíma undir
leiðsögn Art Reykdals, en heið-
ursborða fá þeir, er sátu fyrsta
íslendingadaginn á þessum
slóðum 1894.
Hittumst heil að Iðavelli næst-
komandi laugardag!
Móðirin hafði rétt lokið við
að halda horðorðan fyrirlestur
yfir syni sínum og sagt honum
reglulega til syndana.
— Heyrðu, móðir góð! sagði
þá sonurinn og var ekkert sér-
lega vingjarnlegur. — Þú gleym-
ir því víst, að það er sonur þinn,
en ekki maðurinn þinn, sem þú
ert að tala við!
M ESSU BOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjuin
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— Messur í Vatnahygðum —
Sunnudaginn 15. ágúst:
Kandahar kl. 11 f. h.
Mozart kl. 2 e. h.
Wynyard kl. 7 e. h.
Nánar auglýst í Wynyard
Advance.
Séra Jóhann Fredriksson
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnudaginn 15. ágúst:
Kl. 3 í Riverton, fermingar-
börnin.
Kl. 8 messað á íslenzku í
Geysi.
Robert Jack
Nýfundi pýramídinn var sálarhús Seken-
Khet af 3. konungsætt
Kairó, 29. júní. — Zakariah
Goneim, fornfræðingur, sá
er fann áður óþekktan pýra-
mída í Sakkara á Egypta-
landi, sýndi Nasser forsætis-
ráðherra pýramídann í dag.
Pýramídinn er nærri 5 þús-
und ára gamall og hefir að
geyma steinlíkkistu eina
mikla, sem þó er tóm. Af
þessu dregur Goneim þá á-
lyktun, að pýramídinn sé
byggður fyrir sál hins látna
Faraós, en ekki líkama. Nafn
hans var Seken-Khet.
Nafnið fannst á innsigli fjög-
urra krukna. Múmía hins látna
konungs hefir ekki fundizt, en
hennar er leitað og búizt við, að
hún kunni að finnast í þeim
hluta pýramídans, sem enn er
órannsakaður eða í nágrenni
hans.
Hin skrautlega steinlíkista var
lýst upp með rafmagnsljósum,
er forsætisráðherranum var
sýndur pýramídinn. Honum var
einnig bent á grafhvelfingar,
sem liggja niður í neðanjarðar-
söfn, er ekki hafa enn verið
rannsökuð, en álitið að geymi
marga markverða hluti.
Nasser voru einnig sýnd 21
gullarmband, sem fundizt hafa
ásamt 170 steinkrukkum. For-
stöðumaður fornleifarannsókna
í Egyptalandi sagði, að rann-
sóknir á pýramída þessum
myndu ærið verkefni fyrir dr.
Goneim til æviloka.
Byggður fyrir sálina
Sekem-Khet var konungur í
Egyptalandi eftir Zoser, en hann
var fyrsti konungur hinnar 3.
koungsættar í Egyptalandi til
forna. Frægasti fornleifafræð-
ingur Egypta lýsti sig sammála
Goneim um það, að pýramídi
þessi væri byggður yfir sál
Faraós. Hann hefði athugað yfir
tvö hundruð grafhýsi í Egypta-
landi og komizt að raun um, að
Forn-Egyptar gerðu oft tvö graf-
hýsi, annað fyrir sálina, en hitt
fyrir líkamann.
—TIMINN, 30. júní
NY HLJÓMPLATA
eftir
GUÐMUNDU ELÍASDÓTTUR
Mezzo Soprano
Long playing (33 1/3 r. p. m.) Columhia Microgroove Vinylite
10 inch non-hreakáble disc.
Með eftirfarandi lögum fyrir aðeins $5.50
Sólskríkjan Jón Laxdal — Th. Erlingsson
Friður á jörðu Árni Thorsteinsson — Guðm. Guðmundsson
Erla Sigv. Kaldalóns — Stefán frá Hvítadal
Kvöldhæn Björgvin Guðmundsson
1 dag skein sól Páll Isólfsson — Davíð Stefánsson
Seinasta nóttin Magnús B. Jóhannsson — Th. Erlingsson
Hjá lygnri móðu Karl O. Runólfsson — H. Kiljan Laxness
Unglingurinn í skóginum Jórunn Viðar — H. Kiljan Laxness
Þjóðlög Jórunn Viðar — Þjóðvísur
Amma gamla er þreytt Hallgrímur Helgason — Þjóðvísa
Fuglinn í fjörunni Jón Þórarinsson — Þjóðvísa
PÖNTUN:
BJÖRNSSON'S BOOK STORE,
702 Sargent Avenue,
Winnipeg 3, Manitoba
Meðlaíjt er $5.50 f.vrir hina nýjn liljómplötu
FRÍr GCÐMUNDU EDÍASDÓTTUR
Fullt nafn .........
Heimilisfang; ......
Biejarnafn <><>• fylki