Lögberg


Lögberg - 25.11.1954, Qupperneq 6

Lögberg - 25.11.1954, Qupperneq 6
6 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. NÓVEMBER 1954 J- GUÐRÚN FRÁ LUNDI: DALALÍF — — —r Borghildur var alveg hissa á þessu óþarfa umstangi. Þetta var ólíkt Þórði, þessum húsbóndaholla manni. Ekki var ómögulegt, að áin væri lifandi niðri í dýinu, og þá var hver mínútan dýrmæt. En hún kunni ekki við að tala um það við hann; öðru máli hefði verið að gegna, ef það hefði væri Siggi. Hann Þórður var nú líka að mörgu leyti undarlegur maður. Seinast fór hann ofan í koffort og tók þaðan upp loðhúfu og Vettlinga, og eitthvað, sem hann stakk í vasa sinn. Dísa, sem hafði þann sið, að hnýsast í allt, sem fram fór á heimilinu, sagði að það hefði verið sendibréf og súkkulaðistykki, sem hann hefði látið í vasann innan á jakkanum. Líklega ætlaði hann að éta það á leið- inni, bjóst hún við. „Mér þykir Þórður vera búinn að fína sig til“, sagði Manga. Hún hafði ekki vanizt því, að menn væru að búa sig upp á, þótt þeir færu til næsta bæjar. Ekki var það siður úti á ströndinni. Siðirnir þar og hér voru ólíkir. „O, það liggja nú orsakir til alls, Manga mín“, gegndi Ketil- ríður. „Hann er nú farinn að potast upp á örvæntingarárin, greyið, og er því að reyna að strjúka sig framan í nýju ráðskonuna í Hvammi. Þau eru heldur ekki alveg ókunnug“. „Hún kemur nú sjálfsagt fram eftir“, sagði Manga. „Hún lét svo vel af fólkinu hérna“. Ketilríður glotti lymskulega. „Lét hún ekki langbezt af piltunum?“ spurði hún. „Nei, hún lét vel af öllum“. Þá rauk Borghildur allt í einu upp eins og úfin hæna: „Það er víst alveg óþarfi að vera að glósa með það, að Lína hafi verið í karlmannastússi. Hún var ekki svoleiðis stúlka“, sagði hýn svipmikil. „Ja, hvað er nú þetta?. Þér dettur þó ekki í hug, að ég hafi verið að segja þetta í alvöru? Nei, það er víst óþarfi að kenna hvorugt þeirra við það, Þórð eða hana“, sagði Ketilríður. „Hvað eiga þá svona lagaðar glósur eiginlega að þýða?“ sagði Borghildur, og tók nú til við prjónavélina, sem hún hafði gefizt upp við meðan hún skattyrtist við Ketilríði. En Ketilríður nöldraði við Möngu í hálfum hljóðum: „Það eru meiri skapsmunirnir þetta; maður má ekki einu sinni tala spaugsyrði, svo að það sé ekki tekið sem slettur. Þú skalt reyna það, Manga mín, að verða ekki piparkerling, því að þær eru alltaf fjandi geðillar“. „Er það af því?“ spurði Manga kjánalega. Þórður gekk beina leið út að Hvammi, án þess að líta á „síkið“ eða „langadýið“. Suður hjá fjárhúsunum kom Lína á móti honum. Hún var í reiðtreyju og með yfirsjal um höfuðið. „Vissirðu að ég myndi koma?“ spurði hann þegar þau höfðu heilsazt með mörgum kossum. „Nei, það datt mér nú ekki í hug, ekki svona strax“, sagði hún. „Ég var að leita að skyrtu, sem ég missti úr þvottinum“. Hún sýndi honum svolitla spjör, sem hefði verið hægt að fela í lófum sínum. „Þetta er lítil skyrta“, sagði hann brosandi og hugsaði til þess, að einhvern tíma eignuðust þau sjálfsagt lítinn barnslíkama, sem svona spjör væri mátuleg á. Slíkt er unaðsleg tilhugsun fyrir þá, sem elskast. „Máttu vera að því, að fylgja mér hérna fram á grundirnar. Við þurfum svo margt að'tala saman“. Lína tók undir handlegginn á honum og leiddi hann heim. „Þú kemur nú líklega inn og bíður meðan ég hita kaffi. Svo þarftu að sjá, hvernig ég tek mig út í ráðsmennskustöðunni“, sagði hún kát. Hann tafði lengi. Til erindis hafði hann náttúrlega að spyrja eftir ánni. En hún hafði ekki verið saman við. En hann flýtti sér saiht ekki neitt af stað. Þegar Lína tók mjólkurfötuna, fór hann að kveðja. Þau urðu samferða út. Hún skildi fötuna eftir við fjósdyrnar og fylgdi honum fram á grundina. Þau töluðu um framtíðina. Hún er ljúft umtalsefni fyrir þá, sem eiga víst sólskin og sælu bak við þetta ógagnsæja tjald, sem flestir vonast eftir að færi sér eitthvað betra en það, sem nútíðin hefur á boðstólum. Næsta ár yrðu þau að vera sitt í hvoru lagi. En þau gætu sett hringana upp á jólunum. Það væri svo miklu skemmtilegra. Hún gat valið um þrjár vistir þarna á Ströndinni, en henni líkaði eiginlega engin þeirra. Hún kveið mest fyrir því, hversu sjaldan þau gætu hitzt. „Því að aldrei kem ég mér að því, að koma fram að Nautaflötum“, sagði hún hálf feimnislega við tilhugsunina um það, hvernig hún hefði sk^ið við það heimili. Hann svaraði því heldur ekki. „Þú kemur nú einhverntíma aftur meðan ég er hérna“, hélt hún þá áfram. Já, hann langaði til þess. Þá fór hún að reikna í huganum, hvaða dagur væri heppilegastur. Hún þurfti að þvo svo oft. Þá yrði ekkert gaman fyrir hann að koma. „Það er langbezt, að þú komir á sunnudagskvöldið“. „Já, þá skal ég koma“, sagði hann. Hann tók bréfið til hennar upp úr vasa sínum og fékk henni. „Hér er fyrsta ástabréfið til þín. Ég fékk aldrei neina ferð með það. Nú geturðu skemmt þér við að lesa það. Ef þú lest það eiíis oft og ég las bréfið frá þér, þá verðurðu búin að læra það. Ég var farinn að skammast mín fyrir, hvað það var orðið óhreint“. Svo kvöddust þau — víst í tíunda sinn. Lína hljóp í einum spretti heim. Um kvöldið, þegar hún hafði lokið við öll sín verk, og allir voru sofnaðir, fór hún fram í eldhús, settist á kassa við hlóðirnar, og tók bréfið upp. „Ósköp er þetta langt bréf. Ég verð aldrei búin að lesa það“, sagði hún við sjálfa sig. Svo byrjaði hún að lesa. Hún fann ást og umhyggju í hverri setningu. Hún stundi, þegar hún hafði lokið lestrinum. „Aumingja Þórður. Ég ætla að verða honum góð kona og bæta honum það upp, sem ég hef brotið, og á eftir að brjóta. En ég get ekki annað en fundið „hann“.“ Hún lagði frá sér bréfið á hlóðarsteininn óg tók annað bréf úr barmi sínum. Það var volgt, svo nærri hjarta hennar hafði það legið. Það var bréfið, sem Sigurður hafði fært henni daginn áður. Hún hafði lesið það með hjartslætti frammi í fjósinu í Háakoti, og átti í talsverðri baráttu við sjálfa sig, áður en hún hafði afráðið, hvort hún ætti að leggja út á glerhálan ísinn í annað sinn. Utanáskriftin var ólæsilegt klór, en bréfið sjálft var skrifað með fallegri, auðsjáanlega æfðri rithönd. Hún byrjaði að lesa það enn einu sinni, og þó mundi hún hvert einasta orð og sá í huganum, hvernig hver stafur var dreginn. Ekkert bæjarnafn eða dag- setning var á þessu dásamlega bréfi. Hún las upp aftur og aftur þessar fáu línur: „Lína mín! Ég vona, að þú verðir bóngóð við Sigurð. Hann fer ekki fram á annað en að þú rázskir fyrir sig nokkra daga. Það eru slæmar ástæður hjá honum. Þetta getur orðið þó nokkuð skemmtilegt fyrir okkur. Við getum fundizt í rökkrinu, þegar aðrir sofa. Þá skulum við vaka með ást okkar“. Undirskriftin var eitthvert rósaflúr, sem ómögulegt var að gera neitt úr. Þar fyrir neðan stóðu þessar setningar: „Ástin heldur engin loforð. Hún hlýðir aðeins rödd hjartans“. Lína andvarpaði yfir því, að eiga ást þessa manns, sem gat skrifað þessar guðdómlegu setningar. Það var eins og hvert orð væri mælt fram af hlæjandi vörum glaðlynds manns. En Þórður treysti henni; hún mátti ekki bregðast honum. Hún ætlaði að verða góð og heiðarleg stúlka, eins og hún hafði lofað Önnu. Hún ætlaði ekki að fara eftir rödd hjartans. Samt var hún viss um, að hún mundi gera það. Það var ekki hægt að standast þessa rödd. Bara að hann hefði aldrei skrifað þetta bréf. Hún tók skörunginn og skaraði í eldinn, raunaleg á svip. Svo tók hún ástabréfið frá Þórði, fletti því í sundur og lagði það á glæðurnar, og síðan hitt ofan á, eftir að hafa borið það að vörum sér áður. Hún horfði á þau meðan þau brunnu og eftir að þau voru orðin að blaktandi hismi. Og hún gat lesið á dökkgráum pappírnum hvíta stafina: aðems rödd hjartans. Svo stakk hún þykkri taðflögu ofan á. Það var hægt að hugsa margt á einum sólarhring. Nú var það morgun- dagurinn, sem átti að ráða örlögum hennar. ANNA REYNIST GJÖFUL OG GÓÐ Næsta dag kom Ketilríður að Hvammi. Lína var að þvo stóran þvott frammi í eldhúsi. Hún lét aftur hurðina, þegar hún heyrði til hennar úti á hlaðinu. Hún vildi helzt vera laus við að sjá hana. Hún var ekki búin að gleyma því, sem hún hafði sagt við hana síðast. Ketilríður hlammaðist inn göngin og alla leið til baðstofu og heilsaði með sömu virktum og áður. „Ég kom nú hérna með þessar spjarir frá blessaðri hús- móðurinni“, sagði hún, þegar hún var setzt og búin að blása mæðinni. „Hérná eru nú buxurnar á drengina. Hún festi tölur í þær, svo að þeir gætu strax farið í þær. En þær eru ekki allar samsorta, enda bjóst ég við, að ekki yrðkfengizt um það. Hér er kjóllinn, og hér eru tvær svuntur til hlífðar. Önnur þeirra er frá Borghildi. Ekki dugði að setja Boga litla hjá, svo að hún saumaði þessar buxur handa honum úr bót, sem hún fann, og þarna eru aðrar, sem hún sneið upp úr buxum af Jakobi. Og hér er peysa handa honum, seirt Borghildur prjónaði úr afgöngum. Hún var ekki lengi að því í vélinni. Það er nú meiri munurinn að hafa það verkfæri. En húsbóndanum þykir það erfitt fyrir Borghildi, og það er það víst. Hún hefur verið að reyna að láta Sigga prjóna það vandaminnsta, og það eru undur, hvað hann getur fest hugann við það, þessi flughani, sem hann er. Anna má ekki snerta á henni, svo að Jón sjái til“. Svona masaði Ketilríður á meðan hún tíndi hverja spjörina af annarri upp úr bögglinum og lagði á rúmið. Þóra varð alveg hissa: „Ég skil ekkert í manneskjunni“, sagði hún, „að vera að gefa mér þetta. Svo hefur hún hlotið að vaka við að sauma þetta“. „Nei, ónei; hún vakir nú ekki að óþörfu, konan sú, Þóra mín, enda segði maðuHnn hennar líka eitthvað, ef hún færi að leggja það á sig. Borghildur hjálpaði henni við það“. „Mikið er dálætið á þeirri konu“, sagði Þóra. „Hún á víst ekki að verða gigtveik af þrældómi“. „Ojá, sei, sei; ekki er hægt að segja annað en að hann sé henni góður. Hvernig svo sem allt lítur út inn við beinið. En það er nú svona, eins og maður veit, að allir hafa sína bresti“, sagði Ketilríður og stundi mæðulega. Litlu systkinin þyrptust kringum rúmið, og horfðu á nýju fötin, sem þar voru. Birni duttu í hug sögurnar, sem Magga hafði sagt honum af jólasveininum, sem kom með föt handa öllum börnunum fyrir jólin, og skildi aldrei neitt eftir. „Mega þau ekki fara snöggvast í þetta?“ spurði Ketilríður. „Hún er bráð barnsþörfin. Ég sé, að þau langar til þess“. „Jú, þau máttu það. En Þóra bjóst við, að þeim gengi það ekki öllum vel. Ketilríður hjálpaði þeim yngri í fötin, undarlega lipur í sínum stóru höndum. Svo hlupu þau öll fram til að sýna Línu hvað þau væru orðin fín. En Þóra kyssti Ketilríði fyrir. Henni fannst endilega að þetta hlyti að vera henni eitthvað að þakka. Anna hafði alltaf verið góð vinkona, en svona hjálpleg hafði hún aldrei verið. Þóra forðaðist líka að láta hana eða nokkurn annan vita um ástæður sínar, sem stundum voru nokkuð erfiðar. „Hvar er stelpuræksnið? Hvar er Sigurlína eiginlega? Hún lætur ekki sjá sig?“ spurði Ketilríður. „Hún er að þvo frammi í eldhúsi. Það er víst nóg til fyrir hana, aumingja stúlkuna. Ekki þvoði hún nema bleijurnar, blessuð yfir- setukonan, þessa daga, sem hún var hjá mér“. „Ekki spyr ég að þeim, þessum lærðu píkum“, hnussaði í Ketilríði. „Og svona ætlaði hún að skilja við þig, ef þú hefðir enga manneskju fengið. Ekki tók það því, að hugsa um það“. „Ég veit nú bara ekki hvernig það hefði farið, ef Jón hefði ekki komið og bent okkur á Línu. Ég sagði honum það líka, að það hlyti að boða eitthvað gott, að hann skyldi koma. Hann er sjalgl- séður gestur hér“. „Var það Jón hreppstjóri?“ flýtti Ketilríður sér að segja. „Já“. ‘ „Hvenær kom hann hingað?“ spurði Ketilríður. „Sama kvöldið og þú komst með fötin“. „Nú, einmitt það“, sagði Ketilríður og brosti lymskulega. „Við héldum, að tengdafólkið þitt úti á Ströndinni hefði sent þér hana. Ég þori að fullyrða það, að hún Lína vinnur þér vel. Hún er þæg og dugleg, og svo er hún líka „ferðug“ í sér hvað sem hún ber við að gera, stelpan. Það má hún eiga. En hún er dauðans ræfill með sjálfa sig“. Þóra gerði enga athugasemd við þetta síðasta, sem Ketilríður sagði. Það var alvanalegt, ef þeirri konu varð það á, að tala hlýlega til nokkurrar manneskju, þá fylgdi því ævinlega eitthvert hnjóðs- yrði eftir á. Lína sendi Björn inn með kaffikönnuna. Bollapörin voru inni. Ketilríður hjálpaði sjálf yið að framleiða góðgerðirnar. Þegar hún hafði drukkið þrjá bolla af kaffi, fór hún að búast til ferðar. Þóra þakkaði henni fyrir komuna, og bað hana fyrir kveðjur og þakklæti til Önnu og Borghildar. Ketilríður leit inn í eldhúsið um leið og hún gekk út. Hún hafði ekkert á móti því að tala við Línu svona upp á gamlan kunningsskap, og minnast á, að það hefði órðið fátt um kveðjur með þeim síðast. En hún sá ekkert nema tvo bala af þvegnum þvotti, því að Lína faldi sig á bak við hurðina. Hún hefði tæplega haft meiri hjartslátt, þó að mannýgt naut hefði verið að nasa fyrir framan dyrnar. „Hún hefur gengið eitthvað í burtu, stelpugægsnið, líklega til að sækja vatn“, heyrði Lína hana segja, þegar hún sneri fra dyrunum. Ketilríður skilaði kveðjunum og þakklætinu til Önnu og Borghildar frammi í eldhúsinu, þegar hún kom heim. En seinna hvíslaði hún því að Önnu inni í hjónahúsinu, hver það hefði verið, sem benti þeim Hvamms-hjónum á Línu. „Já, auðvitað hefur hann kennt í brjósti um Þóru. Þetta voru nú svo voðalegar ástæður11, sagði Anna, sem alltaf reyndi að halda fast við sakleysið og dyggðina. En Ketilríður var á annari skoðun. Þær hvísluðust lengi á, og úrslitin urðu þau, að Ketilríður ætlaði í annað sinn að taka að ser að njósna um húsbónda sinn. Hún vonaði, að sér tækist betur nu en í fyrra skiptið. En fljótlega rak hún sig á, að það var ekki svo auðhlaupið að því. í rökkrinu, þegar fólkið fór að sofa, fór hann venjulega í burtu annaðhvort kvöld, og kom stundum ekki aftur fyrr en í vökulok. Hann sagðist vera yfir á Ásólfsstöðum, Bárður þyrfti víst að láta skrifa eitthvað fyrir sig núna, eins og fyrri daginn. Hann var ákaflega ánægjulegur á svip, þegar hann kom heim. Það var auðséð, að nágranninn hafði ekki verið svo fátækur, að hann aetti ekki út í kaffið handa gesti sínum. Anna talaði um það við Ketilríði, að hún sæi það sjálf, að ekki gæti hann setið úti í Hvammi allt kvöldið. Það heimili hefði ekkert það upp á að bjóða, sem honum geðjaðist að. Varla færi Sigurður að veita honum vín. Og Ketilríður sá það líka, að slíkt gat ekki átt sér stað; og sjálfsagt hefði Sigurlína annað að gera en þvælast með honum einhvers staðar og einhvers staðar alla kvöldvökuna. Það leit þvi út fyrir, að það ætlaði að verða talsveft erfitt að koma honum fram í dagsljósið í hans eiginlegu mynd. En samt varð að reyna það. Þóru líkaði betur og betvfr við Línu. Hún hændi krakkana strax að sér, og svaf bæði með nýfædda drenginn og Boga. Hún hafði lag á því, að láta litlu systkinin líta svo hreinlega út, að Þóra fann til minnimáttarkenndar. Þó hafði hún alltaf reynt það sem hún gat, til þess að heimilið liti þannig út, að það væri sér ekki til skammar. En Lína tók henni fram. Hún var alveg 'einstök. Baðstofan breyttist líka. Hún hvítskúraði gólfið á hverju kvöldi, þegar allir voru háttaðir. Hún hafði heldur enga stund afgangs til hvíldar. Hún gat ekki einu sinni lagt sig í rökkrinu, eins og venjulegt var þó í sveitinni. Eitt kvöldið sagði Björn, að hún hefði hlaupið út og ofan að Hjalla. Og daginn eftir kom svo annar bóndasonurinn þaðan og þurfti eitthvað að finna hana. Hún sagði Þóru, að hann hefði verið að koma með dálítið, sem sig hefði vanhagað um úr kaupstað. Svo voru hálfgerð vandræði með þvotinn. Lína var sífellt að leita að barnafötum. Þau fuku. En hún fann þau alltaf, oft eftir langa leit. Þóra spaugaði við hana um að það væri ekki efnilegt fyrir stúlku, sem væri komin fast að giftingu, að hafa ekki lag á því að klemma smábarnsfötin. „Ég kann svo illa við þessar klemmur, sem þú hefur“, svaraði Lína. „Anna hefur gormklemmur, og þær eru svo miklu betri a smádót“. „Já, sú kona þarf ekki að spara neitt. Ég er nú svona nízk, að ég verð fegin að spara þá aurana. Sigurður tálgaði þessar klemmur sjálfur“. „Þær geta dugað á þykk föt, en mér finnst ég ekki geta látið svona lítil föt tolla á snúrunni“, sagði Lína. Það voru ekki liðnir nema tveir dagar frá fyrri heimsókn Ketilríðar, þar til hún var setzt á rúmstokkinn hjá Þóru enn einu sinni. Og nú hafði hún meðferðis stærðar smjörsköku og fulla flösku af rjóma. Hún vissi, að það stóð illa á kúnni hjá Þóru. Og Þóra verður svo rothissa, að hún getur ekkert sagt yfir allri þessari góðvild og hlýju, sem Anna sýndi henni allt í einu. „Blessuð húsmóðirin sagði, að sér fyndist, að ekki mætti minna vera, en að þú hefðir út í kaffið meðan þú lægir á sæng“, sagði Ketilríður. Svo spurði hún, líklega til þess að sitja ekki þegjandi, hvort Lína færi nokkuð út af heimilinu. Þóra hélt nú, að hún hefði svo mikið að gera, að hún gengi ekki á bæi. Ekki datt henni í hug, að geta þess, þó að Björn hefði séð hana fara út að Hjalla eitt kvöldið. Lína var að steikja kleinur frammi í eldhúsi, og sendi Björn inn með kaffikönnuna og heitar kleinur á diski. „Það er engu líkara en að Lína skinnið hafi enga löngun til að sjá mig“, sagði Ketilríður og glotti háðslega. „Við erum Þ° búnar að raka nokkur hrífuförin á sama teignum þessi ár, sem eg hef verið á Nautaflötum. En það er nú eins og máltækið segir, að hundarnir vita alltaf hvað þeir hafa gleypt“. „Hún er frammi að steikja kleinur“, sagði Björn litli. „Já, náttúrlega; ég skil“, sagði Ketilríður. Svo hallaði hún sér að Þóru, svo að barnið heyrði ekki þessa þarflausu spurningu: „Hefur Þórður ekki komið út eftir að finna hana?“ „Hann kom út eftir fyrsta kvöldið, sem hún var hérna, en víst ekki til að finna hana. Hann var að spyrja eftir kindum , sagði Þóra. „Sýndist þér þau vera hlýleg hvort við annað?“ Þóra hikaði við að svara. Hvað svo sem skyldi Ketilríði varða um, hvernig þau hefðu tekið sig út. „Ég tók ekki eftir neinum sérstökum hlýleik“, sagði hun. Ketilríður leggur aftur augun og kinkar kolli. „Það er alltaf þetta pukur, alveg eins og það sé mannsmorð. En sannleikurinn er sá að þau eru búin að „dalla“ saman svo árum skiptir. Kom hann ekki hingað á sunnudagskvöldið?“ „Ekki svo að ég viti“, sagði Þóra. „Hann læddist í burtu á meðan við sváfum, en sat svo prúð- búinn í eldhúsinu, í hvítu peysunni með loðhúfuna, þegar ég kom fram, svo ansvíti glaðklakkalegur“.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.