Lögberg - 03.02.1955, Side 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. FEBRÚAR 1955
Argentínubúar vilja vera
„Evrópumenn" SuSur-Ámeríku
„Silfurlandið" er auðugasta
og frjósamasta land Suður-
Ameríku
Jón Alexanderssón og fjöl-
skylda hans hafa dvalizt
undanfarin 5 ár í Buenos
Aires í Argentínu. Veitti Jón
þar forstöðu fyrirtæki, er
framléiddi gólfmottur, flétt-
aðar úr hampi. Var þetta
fyrsta þess konar fyrirtæki,
er stofnsett var þar í landi,
en Argentínumenn eru fljót-
ir til og framtakssamir um
að notfœra sér nýjungar,
sem útlendingar innleiða.
Ári eftir að Jón hafði stofn-
sett fyrirtæki sitt, hafði um
15—20 sams konar verk-
smiðjum verið komið á fót í
Buenos Aires. Fréttamaður
Mbl. hitti Jón að máli fyrir
skömmu og spurði tíðinda
frá „Silfurlandinu“, en ís-
lendingum er Argentína lít-
ið kunn, þeir vita, að þar
fæst gott kjöt og Perón
rœður þar og ríkir. Tjáði
Jón margt fróðlegt og
skemmtilegt eins og sjá má á
eftirfarandi grein. ■
1ÓLIN eru mikil hátíð í Argen-
tínu eins og hér, en þau eru
ekki haldin hátíðleg fyrr en á
þrettándanum (los reyes). Fyrst
og fremst eru þau hátíð barn
anna, og þá gefur Fundácíón
Eva Perón (þjóðfélagsmála-
stofnun Evu) öllum argentínsk-
um börnum miklar gjafir. Börn-
in sækja gjafirnar á lögreglu
stöðvarnar.
Hins vegar gefast fullorðna
fólkinu möguleikar á að verða
milljónamæringar á jólunum, ef
heppnin er með. Svo er mál með
vexti, að Argentínumenn „spila“
í ríkishappdrætti eins og við. —
Stærsti vinningurinn er 500 þús.
pesos. En allir kaupa sér seðla á
jólunum, því að þá er stærsti
vinningurinn 36 millj. pesos og í
bígerð er að hækka hann á þess
um jólum upp í 40 millj. pesos.
„Á jólunum í Buenos Aires er
hitinn venjulega um 40 stig á C.
og loftrakinn kemst oft upp
90%. Okkur þótti nokkuð heitt,
þegar við höfðum klæðzt spari
fötunum og tókum að dansa
kringum jólatréð og syngja fyrir
börnin. Enda klæddumst við
sundfötum svo fljótt sem auðið
var“, segir Jón.
Mjög algengt er í Buenos
Aires, að fólk byggi sundlaugar
á lóðum sínum.
* * *
1 Argentínu kemur vorið :
september og sumarið í desem
ber, hins vegar er skíðafæri gott
i júlí víða um landið. Frá maí ti
september verður fólk að klæð-
ast hlýjum fötum. Snjór hefir þó
ekki fallið í Buenos Aires s.l. 20
ár, en þar getur orðið nístings-
kalt vegna rakans. Hús Argen-
tínumanna eru hlaðin úr tígul-
steini eins og í Danmörku og
yfirleitt eru aldrei kjallarar
undir húsunum.
„Okkur hefir aldrei orðið eins
kalt og þar, enda eru húsin ekki
hituð upp að jafnaði“, bætir Jón
við.
í Barilocke, „Sviss S.-Ame-
ríku“, sem er uppi í Andes-fjöll-
unum sunnanverðum, er loftslag
ekki ósvipað og á Islandi. Þar
fellur snjór á vetrum og þangað
fara menn í vetrarfrí í júní, júlí
og ágúst. Hins vegar er Cordoba,
sem er upp í fjöllunum norð-
vestur af Bu^nos Aires, sumar-
dvalarstaður Buenos Aires-búa
og þekkt fyrir sitt heilnæma
fjallaloft.
Það er mjög mikilsvert, efna-
hagslega séð, að landið liggur á
suðurhveli jarðar, þar sem ekki
er þá skorið upp á sama tíma árs
og í aðalviðskiptalöndum þeirra
á norðurhvelinu. Einkum gildir
þetta um hveitiuppskeruna.
Annars er loftslagið nokkuð
mismunandi frá norðri til suð-
urs, í norðurhlutanum er allt að
dví hitabeltisloftslag, en meira
cemprað um mið- og einkum
suðurhluta landsins.
Argentína, — „Silfurlandið“,
dregur nafn sitt ekki af því, að
landið sé auðugt af silfurnám-
um. En fyrr á öldum fóru silfur-
leitarmenn á leið til hinna stór-
kostlegu silfurnáma í Perú gegn
um landið, og þótt einkennilegt
megi virðast, festist nafnið við
Argentínu en ekki Perú. Annars
er heldur lítið um málma í
Argentínu, nokkuð er þó um gull
gröft og kopar- og tinvinnslu.
Saga Argentínu sem sjálf-
stæðs ríkis er tiltölulega stutt —
um 100 ára gömul — og allar
j'ramfarir eru nýjar af nálinni.
Iðnaðurinn er í frumvexti eins
og á íslandi, og því erfitt að
segja um hvernig honum muni
farnast. Verksmiðjufyrirtæki um
allt land eru undir stjórn Peróns.
Allir iðnrekendur geta fengið
lán hjá ríkinu til að byggja fyrir-
tæki sín og ríkið kaupir venju-
lega talsverðan hluta framleiðsl-
unnar fyrstu árin til að hjálpa
fyrirtækjunum gegnum byrjun-
arörðugleikana.
Auðugasta og lang frjósamasta
landið í Suður-Ameríku er Arg-
entína. Það hefir eins mikla
verzlun við útlönd og öll Suður-
Ameríku ríkin til samans.
Stærsti viðskiptavinur þeirra er
England og kaupa Argentínu-
menn þaðan aðallega iðnaðar-
og vefnaðarvörur. Utanríkis-
verzlun þeirra hefir fært mikið
út kvíarnar undanfarin ár eink-
um við Norður-Ameríku, Þýzka-
land og Norðurlönd. Gjald-
miðill þeirra, pesos, er í svipuðu
gengi á erlendum markaði miðað
við dollarann og íslenzka
krónan.
„En þó að pesoinn sé ekki
meira virði en íslenzka krónan,
er mikið um hann talað, og lífið
gengur mikið út á að þéna pen-
inga eins og hér“, verður Jóni
að orði.
Fyrst og fremst er Argentína
landbúnaðarland og flytur út
meira nautakjöt en nokkurt
annað land í heiminum. Sauð-
fjárrækt er einnig gríðarlega
mikil, og er Ástralía eina landið,
sem á því sviði stendur Argen-
tínumönnum framar. Aðeins
10% af landinu er ræktað, en
frjósemi þess er svo mikil, að
þar gætu lifað um 200 milljónir
manna, en íbúatalan er nú aðeins
18 milljónir.
„Kjötið er svo gott, að haft er
fyrir máltæki víða í heiminum,
að aldrei hafi menn bragðað kjöt
fyrr en þeir koma til Argentínu.
Kvikfjárræktin er rekin á stór-
búum — estancias — og gríðar-
stórar hjarðir kvikfjár ganga
sjálfala, þar sem grasið er grænt
allt árið um kring. Argentínu-
menn hirða gripi sína mjög vel
þvo þá og sótthreinsa vegna
hættulegra skordýra. Kýr, sem
ætlaðar eru til manneldis, eru
ekki mjólkaðar og því verður
kjötið mjög ljúffengt“, segir
Jón.
Stærstu búin eru yfirleitt
rekin af Englendingum, en ann-
ars eru margar hinna víðlendu
„estancia“ í höndum Argentínu
manna.
Landsmenn eru sjálfir mikið
gefnir fyrir kjöt. Meðalskammt
ur karlmanns í mál er hálft kg
af kjöti. Þar að auki drekka þeir
að jafnaði hálfan líter af léttu
víni, venjulega rauðvín, borða
mikið af fransbrauði, venjulega
meira eða minna af grænmeti
en mjög lítið er þar um kartöfl
ur. Eftir slíka máltíð er þeim
mikil þörf á sinni daglegu
siesta (miðdagisblundi), enda
geta fáir án hennar verið. Aðal
máltíðin er á hádegi, búðum er
lokað, og kyrrð og ró ríkir alls
staðar fram til kl. 2. Hins vegar
hefst vinna víðast hvar kl. 7 að
morgni og heldur áfram til kl.
á kvöldin.
Engan skyldi. undra, þó að
Argentínumenn drekki mikið af
rauðvíni og gefi börnum sínum
það líka. Rauðvínsflaskan kostar
sem sé 2,60 peso. Eitt kg. af. kaffi
kostar hins vegar 30 pesos. En
þeir drekka yfirleitt í hófi og
sjaldan sér vín á mönnum á göt-
um úti. En rauðvínið þykir ekki
nógu sterkt, þegar kólna tekur
í veðri og byrja þá margir dag-
inn með einum sjúss af grabba,
sem er brennivín Argentínu-
manna, búið til úr korntegund.
„En þióðardrykkur þeirra er
Mate, og þeir drekka eins mikið
af því og íslendingar af kaffi.
En mikill munur er þó á Mate
og kaffi, því að Mate bætir melt-
inguna, sem ekki veitir af vegna
kjötátsins, enda eru margir vart
viðmælandi á morgnana fyrr en
þeir hafa fengið Mate-sopann
sinn“, segir Jón.
Mate mun vera selt í ýmsum
löndum í lyfjabúðum. Mate er
búið til úr blöðum kristþyrnis-
tegundar, er vex í Paraguy.
Blöðin eru söxuð smátt og hellt
á þau heitu vatni og sykur settur
út í. Bragið er sætrammt. — Á-
vöxturinn af kristþyrninum,
sem er einna líkastur stórri
hnetu, er holaður innan og
Mate-ið er drukkið úr honum
með silfurpípu með eins konar
tesíu á endanum. Venjulega er
aðeins eitt slíkt dykkjarílát til
heimilinu og gengur það frá
munni til munns. Þessi drykkju-
siður á rót sína að rekja til sams
konar táknræns siðar og friðar-
pípan var meðal Indíána, og
gestir eru álitnir ókurteisir, ef
Deir neita að drekka úr sama
bauk og heimilismenn.
,Þrátt fyrir sína siesta geta
Argentínumenn ekki kallast
værukærir ef miðað er við aðrar
suðurlandaþjóðir. — Landsmenn
eru duglegir, miklir föðurlands-
vinir og stoltir af sínu landi og
telja sig „Erópumenn“ Suður-
Ameríku".
Frumbyggjar Argentínu voru
Indíánar, en Spánverjar slátruðu
Deim umvörpum, er þeir lögðu
undir sig landið í byrjun 16. ald-
ar. Aðeins rúm 2% þjóðarinnar
eru nú af hreinu Indíánakyni.
Hreinræktaðir Argentínumenn,
d. e. Indíánar og Meztísar
(blanda af Spánverjum og Indí-
ánum) eru í miklum minnihluta,
en mikill meirihluti þjóðarinnar
samanstendur af innflytjendum
frá Spáni og ítalíu, sem flutzt
hafa þangað svo milljónum
skiptir síðustu árin. Árið 1810 á
fullveldisdegi Argentínumanna
bjuggu 400 þús. manns í landinu,
en nú rúmlega 140 árum síðar er
íbúatalan yfir 18 millj. og tveir
þriðju hlutar landsmanna búa í
borgum, sem hafa yfir 100 þús.
íbúa.
Norðurlandabúar og Englend-
'ingar hafa einnig gerzt innflytj-
endur, og nokkrar stórar dansk-
ar „nýlendur“ — Tandil Nequ-
ecea og Tres Aroyos (þrír lækir)
— eru suður frá Buenos Aires.
Danir þessir eru flestir mikil-
hæfir bændui* og njóta mikils
álits á sviði landbúnaðarmála.
1 Argentínu er töluð mállýzka
frá Kastilíu á Spáni, er kallast
kastilínó, og er nokkuð frá'
brugðin spönsku.
Stjórn Argentínu hefir gert
margt til að laða innflytjendur
til landsins. Er mælt svo fyrir í
yfirstandandi fimm ára áætlun
Peróns, sem er önnur í röðinni,
að þeim sé úthlutað landi, hjálp
að um vélar til landbúnaðar-
starfa og lán til húsabygginga.
Hins vegar er það gert að skil-
yrði, að allir innflytjendur fari
út á land — a. m. k. 150 km. frá
Buenos Aires í tvö ár. Ástæðan
er, að Buenos Aires gat ekki séð
öllum þessum aragrúa innflytj
enda fyrir atvinnu.
„Mjög sérstæðir með argen-
tínsku þjóðinni eru gauchoarnir
— kúrekarnir og fjárhirðarnir —
er lifa á sléttum Pategóníu. Þeir
eru margir Indíánar. Þjóðsögur
og þjóðkvæði Argentínumanna
snúast flest um gauchoana. Þjóð
sör.gvar þeirra eru mjög angur-
værir, og á það upphaflega rót
sína að rekja til þeirra hörm-
unga, er dundu yfir Indíánana,
er Spánverjar tóku landið, og
hafa geymzt með þjóðinni
síðan“.
Gauchoarnir eru svo að segja
aldir upp á hestum. Perón er
sjálfur kominn af gauhoum,
fæddur í Pategóníu og er sagður
hafa verið settur fyrst á hest
tveggja ára gamall og varð þá
að spjara sig sjálfur á hinum
villtu sléttum Patagóníu.
Kúrekarnir bera barðastóra
hatta, klæðast víðum pokabux-
um og girða sig breiðum beltum
skreyttum silfurspennum, er oft
hafa gengið í erfðir í marga ætt-
liði. Pokabuxunum klæðast þeir
til að verjast skordýrum, sem
komast upp undir skálmarnar, ef
þeir eru ekki lokaðar að neðan.
Yzt klæða eru þeir í skinnjökk-
um. Er þeir koma ríðandi, gang-
andi og í hestvögnum til kjöt-
kveðjuhátíðanna eru þeir mjög
skrautlega klæddir í öllum regn-
bogans litum.
„Til kjötkveðjuhátíðanna
koma allir, sem vettlingi geta
valdið, og er þá dansað á torg-
um Buenos Aires og mikill gleð-
skapur. 1 Buenos Aires hefst há-
tíðin um 26. febrúar og stendur
í þrjár vikur. Drottning kjöt-
kveðjuhátíðarinnar var kosin af
Evu Perón meðan hún var á lífi.
Nú er hún kosin af stjórn Perón-
istahreyfingarinnar“.
Argentínumenn njóta þess að
vera vel klæddir og jafnvel
skrautlega. Og þeir leggja mun
meira af tekjum sínum í fata-
kaup heldur en í innbú í húsum
sínum. Þó að lítið sé til á heim-
ilisfólkið oftast falleg föt, og
börnin mikið af leikföngum,
enda munu þau vera allbaldin.
Ýmsar aðrar heimilisvenjur
þar eru frábrugðnar okkar hátt-
um. Undir eins og húsbóndinn
hefir lokið dagsverki sínu, fer
hann út í bæ, situr þar frem
eftir kvöldi og spilar — en spila-
mennska hvers konar er mikil
ástríða hjá Argentínumönnum
eins og Suðurlandabúum yfir-
leitt. Og margir eru þeir, sem
eyða vikukaupi sínu í alls konar
happdrætti. „Þeir sækja mikið
bifreiðakappakstur og er veðjað
Dar háum upphæðum. Á járn-
brautarstöðvunum eru víða læst
smáhólf, þar sem menn geyma
i'argjöldin til að geta verið vissir
um að komast aftur heim“.
Á kvöldin situr konan hins
vegar heima og er mjög ánægð
með tilveruna, sennilega vegna
vanans. Hún spjallar við kunn-
ingjakonurnar og fær sér auka-
bita, og afleiðingin er, að argen-
tínskar húsmæður eru nokkuð
loldugar. Konur giftast yfirleitt
mjög ungar, lögum samkvæmt
mega þær giftast frá 12 ára aldri.
Svo er einnig um karlmenn, en
þeir eru oftast talsvert eldri,
þegar þeir festa ráð sitt. Konur
eru þó ekki beinlínis lægra sett-
ar. Þær hafa atkvæðisrétt og
Eva Perón hefir gert mikið fyrir
kvenfólkið ekki síður en fátækl-
ingana. Enda hefir fólkið gert
hana að dýrðlingi. Líkneski af
henni eru á öllum torgum, og
ekki er óalgengt að sjá 20—30
manns krjúpandi á kné og biðj-
andi til Evu,*t. d. við líkneski af
henni á aðaljárnbrautarstöðinni
í Buenos Aires.
Þegar Eva dó var lík hennar
smurt og reist minningarhöll í
Buenos Aires yfir smurlinginn.
1 hugum Argentínumanna var
Eva sú, er vaxið hafði upp meðal
fátæka fólksins, komizt til valda,
en aldrei gleymt uppruna sínum.
Perón forseti er einnig mjög
vinsæll. Ferðamenn finna það
gerzt ef þeir taka leigubíl til að
skoða sig um í Buenos Aires, og
viðkvæðið er: „Þetta lét Perón
gera. Þetta höfðum við ekki
áður, en nú hefir Perón látið
gera það . . . .“
Enda hefir Perón mikið og
margt gert fyrir sína landsmenn.
Framhald á bls.
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingímundson
Re-Roofing — Asphalt Sliingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Heip Eíimínat.e
Condensation
632 Simcoc St.
Winnipeg, Man.
Gilbart Funeral Home
Selkirk, Manitoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selkirk
Dr. ROBERT BLACK
S6rfrseSingur I augna, eyrna, nef
og h&lssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimasími 40-3794
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accounlanls
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man.
And offices at:
FORT WILLIAM - KENORA
FORT FTIANCES - ATIKOKAN
HofiS
Höfn
í hugo
Heimili sðlsetursbarnnnna.
Icelandie’ Old Folks' Home Soc
3498 Osler St., Vancouver, B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescriplion Specialist
Cor. Arlington and Sargent
Phone 3-5550
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
Muir's Drug Store Lid.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422
Ellice & Home
Thorarinson & Appleby
Barristers and Solicitors
S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B.
W. R. Appleby, B.A., L.L.M.
701 Somerset Bldg.
Winnipeg, Man. Ph. 93-8391
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered. Acccmntant
505 Confederation Llfe Bnlidlng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker. Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank of Commerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dix.
Keystone Fisheries
Limited
Whoiesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street
Simi 92-6227
EGGERTSON
-FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandl ARNl EGGERTSON Jr.
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNÍPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan. Winnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
508 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningal&n og eldsfi.byrg6,
bifreiðaábyrgP o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Offlce 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
Thorvaldson, Eqgertson.
Bastin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Bes.: 72-3917
Office Phone
92-4762
Res. Fhone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur s& beztl.
StofnaC 1894
StMI 74-7474
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smlth St. Wlnnlpeg
PHONE 92-4624
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
SELKIRK MET&L PRODUCTS
ReykhAfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hrelnir. Hltaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldl-
viS, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—SkrifiC. slmtC tll
KELLY SVEINSSON
(25 WaU St. Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Slmar 3-3744 — 3-4431
Van's Efectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890
J. WiLfrid Swanson & Co.
Insurance in all its branches
Real Estate - Mortgages - Rentals
21« POWEB BUILDING
Telephone 93-7181 Bes. 46-3486
LET US SEKVE YOU